Philemon (Icelandic)

Philemon (Icelandic)

1

1:1b.PHM.001.001 Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir vor, heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni Fílemon,

1:2b.PHM.001.002 svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þínu.

1:3b.PHM.001.003 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

1:4b.PHM.001.004 Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum.

1:5b.PHM.001.005 Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú, og um kærleika þinn til hinna heilögu.

1:6b.PHM.001.006 Ég bið þess, að trú þín, sem þú átt með oss, verði mikilvirk í þekkingunni á öllu því góða, sem tilheyrir Kristi.

1:7b.PHM.001.007 Ég hlaut mikla gleði og huggun af kærleika þínum, þar eð þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu hinna heilögu.

1:8b.PHM.001.008 Því er það, að þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það, sem skylt er,

1:9b.PHM.001.009 þá fer ég þó heldur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú.

1:10b.PHM.001.010 Ég bið þig þá fyrir barnið mitt, sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus.

1:11b.PHM.001.011 Hann var þér áður óþarfur, en er nú þarfur bæði þér og mér.

1:12b.PHM.001.012 Ég sendi hann til þín aftur, og er hann þó sem hjartað í brjósti mér.

1:13b.PHM.001.013 Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér, til þess að hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins.

1:14b.PHM.001.014 En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gjöra, til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung, heldur af fúsum vilja.

1:15b.PHM.001.015 Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega,

1:16b.PHM.001.016 ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér, bæði sem maður og kristinn.

1:17b.PHM.001.017 Ef þú því telur mig félaga þinn, þá tak þú á móti honum, eins og væri það ég sjálfur.

1:18b.PHM.001.018 En hafi hann eitthvað gjört á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings.

1:19b.PHM.001.019 Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun gjalda. Að ég ekki nefni við þig, að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig.

1:20b.PHM.001.020 Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists.

1:21b.PHM.001.021 Í fullu trausti til hlýðni þinnar rita ég til þín og veit, að þú munt gjöra jafnvel fram yfir það, sem ég mælist til.

1:22b.PHM.001.022 En hafðu líka til gestaherbergi handa mér, því að ég vona, að ég vegna bæna yðar muni verða gefinn yður.

1:23b.PHM.001.023 Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. Sömuleiðis

1:24b.PHM.001.024 Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir.

1:25b.PHM.001.025 Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Philemon (Icelandic). Philemon (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9E07-F