Titus (Icelandic)
1
1:1b.TIT.001.001 Frá Páli, þjóni Guðs, en postula Jesú Krists til að efla trú Guðs útvöldu og þekkingu á sannleikanum, sem leiðir til guðhræðslu
1:2b.TIT.001.002 í von um eilíft líf. Því hefur Guð, sá er ekki lýgur, heitið frá eilífum tíðum,
1:3b.TIT.001.003 en opinberað á settum tíma. Þetta orð hans var mér trúað fyrir að prédika eftir skipun Guðs, frelsara vors.
1:4b.TIT.001.004 Til Títusar, skilgetins sonar míns í sameiginlegri trú. Náð og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, frelsara vorum.
1:5b.TIT.001.005 Ég lét þig eftir á Krít, til þess að þú færðir í lag það, sem ógjört var, og skipaðir öldunga í hverri borg, svo sem ég lagði fyrir þig.
1:6b.TIT.001.006 Öldungur á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, á að eiga trúuð börn, sem eigi eru sökuð um gjálífi eða óhlýðni.
1:7b.TIT.001.007 Því að biskup á að vera óaðfinnanlegur, þar sem hann er ráðsmaður Guðs. Hann á ekki að vera sjálfbirgingur, ekki bráður, ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, ekki sólginn í ljótan gróða.
1:8b.TIT.001.008 Hann sé gestrisinn, góðgjarn, hóglátur, réttlátur, heilagur og hafi stjórn á sjálfum sér.
1:9b.TIT.001.009 Hann á að vera maður fastheldinn við hið áreiðanlega orð, sem samkvæmt er kenningunni, til þess að hann sé fær um bæði að áminna með hinni heilnæmu kenningu og hrekja þá, sem móti mæla.
1:10b.TIT.001.010 Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helst eru það þeir sem halda fram umskurn,
1:11b.TIT.001.011 og verður að þagga niður í þeim. Það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna það, sem eigi á að kenna, fyrir svívirðilegs gróða sakir.
1:12b.TIT.001.012 Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefur svo að orði komist: "Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar."
1:13b.TIT.001.013 Þessi vitnisburður er sannur. Fyrir þá sök skalt þú vanda harðlega um við þá, til þess að þeir verði heilbrigðir í trúnni,
1:14b.TIT.001.014 og gefi sig ekki að gyðingaævintýrum og boðum manna, sem fráhverfir eru sannleikanum.
1:15b.TIT.001.015 Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samviska.
1:16b.TIT.001.016 Þeir segjast þekkja Guð, en afneita honum með verkum sínum. Þeir eru viðbjóðslegir og óhlýðnir, óhæfir til hvers góðs verks.
2
2:1b.TIT.002.001 En tala þú það, sem sæmir hinni heilnæmu kenningu.
2:2b.TIT.002.002 Aldraðir menn skulu vera bindindissamir, heiðvirðir, hóglátir, heilbrigðir í trúnni, kærleikanum og þolgæðinu.
2:3b.TIT.002.003 Svo eiga og aldraðar konur að vera í háttalagi sínu eins og heilögum sæmir. Þær skulu ekki vera rógberar og ekki heldur í ánauð ofdrykkjunnar, heldur kenni þær gott frá sér,
2:4b.TIT.002.004 til þess að þær laði hinar ungu til að elska menn sína og börn,
2:5b.TIT.002.005 vera hóglátar, skírlífar, heimilisræknar, góðlátar og eiginmönnum sínum undirgefnar, til þess að orði Guðs verði ekki lastmælt.
2:6b.TIT.002.006 Svo skalt þú og áminna hina yngri menn að vera hóglátir.
2:7b.TIT.002.007 Sýn þig sjálfan í öllum greinum sem fyrirmynd í góðum verkum. Vertu grandvar í fræðslu þinni og heilhuga, svo hún verði
2:8b.TIT.002.008 heilnæm og óaðfinnanleg og andstæðingurinn fyrirverði sig, þegar hann hefur ekkert illt um oss að segja.
2:9b.TIT.002.009 Áminn þræla, að þeir séu undirgefnir húsbændum sínum og í öllu geðþekkir, ekki svörulir,
2:10b.TIT.002.010 ekki hnuplsamir, heldur skulu þeir auðsýna hvers konar góða trúmennsku, til þess að þeir prýði kenningu Guðs frelsara vors í öllum greinum.
2:11b.TIT.002.011 Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum.
2:12b.TIT.002.012 Hún kennir oss að afneita óguðleik og veraldlegum girndum og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum,
2:13b.TIT.002.013 í eftirvæntingu vorrar sælu vonar, að hinn mikli Guð og frelsari vor Jesús Kristur opinberist í dýrð sinni.
2:14b.TIT.002.014 Hann gaf sjálfan sig fyrir oss, til þess að hann leysti oss frá öllu ranglæti og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kostgæfinn til góðra verka.
2:15b.TIT.002.015 Tala þú þetta og áminn og vanda um með allri röggsemi. Lát engan lítilsvirða þig.
3
3:1b.TIT.003.001 Minn þá á að vera undirgefnir höfðingjum og yfirvöldum, hlýðnir og reiðubúnir til sérhvers góðs verks,
3:2b.TIT.003.002 lastmæla engum, vera ódeilugjarnir, sanngjarnir og sýna hvers konar hógværð við alla menn.
3:3b.TIT.003.003 Því að þeir voru tímarnir, að vér vorum einnig óskynsamir, óhlýðnir, villuráfandi, í ánauð hvers konar fýsna og lostasemda. Vér ólum aldur vorn í illsku og öfund, vorum andstyggilegir, hötuðum hver annan.
3:4b.TIT.003.004 En er gæska Guðs frelsara vors birtist og elska hans til mannanna,
3:5b.TIT.003.005 þá frelsaði hann oss, ekki vegna réttlætisverkanna, sem vér höfðum unnið, heldur samkvæmt miskunn sinni í þeirri laug, þar sem vér endurfæðumst og heilagur andi gjörir oss nýja.
3:6b.TIT.003.006 Hann úthellti anda sínum yfir oss ríkulega fyrir Jesú Krist, frelsara vorn,
3:7b.TIT.003.007 til þess að vér, réttlættir fyrir náð hans, yrðum í voninni erfingjar eilífs lífs.
3:8b.TIT.003.008 Það orð er satt, og á þetta vil ég að þú leggir alla áherslu, til þess að þeir, sem fest hafa trú á Guð, láti sér umhugað um að stunda góð verk. Þetta er gott og mönnum nytsamlegt.
3:9b.TIT.003.009 En forðast þú heimskulegar þrætur og ættartölur, deilur og lögmálsstælur. Þær eru gagnslausar og til einskis.
3:10b.TIT.003.010 Þrætumanni skalt þú sneiða hjá, er þú hefur einu sinni og tvisvar áminnt hann.
3:11b.TIT.003.011 Þú veist að slíkur maður er rangsnúinn og syndugur. Hann er sjálfdæmdur.
3:12b.TIT.003.012 Þegar ég sendi Artemas til þín eða Týkíkus, kom þá sem fyrst til mín í Nikópólis, því þar hef ég ásett mér að hafa vetrarvist.
3:13b.TIT.003.013 Greið sem best för þeirra Senasar lögvitrings og Apollóss, til þess að þá bresti ekkert.
3:14b.TIT.003.014 En vorir menn eiga og að læra að stunda góð verk til nauðsynjaþarfa, til þess að þeir séu ekki ávaxtalausir.
3:15b.TIT.003.015 Allir, sem hjá mér eru, senda þér kveðju. Heilsa þeim, sem oss elska í trú. Náð sé með yður öllum.
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Titus (Icelandic). Titus (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9E04-2