2 Timothy (Icelandic)
1
1:1b.2TI.001.001 Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú til að flytja fyrirheitið um lífið í Kristi Jesú, heilsar
1:2b.2TI.001.002 Tímóteusi, elskuðum syni sínum. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, Drottni vorum.
1:3b.2TI.001.003 Þakkir gjöri ég Guði, sem ég þjóna, eins og forfeður mínir, með hreinni samvisku, því að án afláts, nótt og dag, minnist ég þín í bænum mínum.
1:4b.2TI.001.004 Ég þrái að sjá þig, minnugur tára þinna, til þess að ég fyllist gleði
1:5b.2TI.001.005 er ég rifja upp fyrir mér hina hræsnislausu trú þína. Sú trú bjó fyrst í henni Lóis ömmu þinni og í henni Evnike móður þinni, og ég er sannfærður um, að hún býr líka í þér.
1:6b.2TI.001.006 Fyrir þá sök minni ég þig á að glæða hjá þér þá náðargjöf, sem Guð gaf þér við yfirlagningu handa minna.
1:7b.2TI.001.007 Því að ekki gaf Guð oss anda hugleysis, heldur anda máttar og kærleiks og stillingar.
1:8b.2TI.001.008 Fyrirverð þig því ekki fyrir vitnisburðinn um Drottin vorn, né fyrir mig, bandingja hans, heldur skalt þú með mér illt þola vegna fagnaðarerindisins, svo sem Guð gefur máttinn til.
1:9b.2TI.001.009 Hann hefur frelsað oss og kallað heilagri köllun, ekki eftir verkum vorum, heldur eftir eigin ákvörðun og náð, sem oss var gefin fyrir Krist Jesú frá eilífum tímum,
1:10b.2TI.001.010 en hefur nú birst við komu frelsara vors Krists Jesú. Hann afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu.
1:11b.2TI.001.011 Og til að boða það er ég settur prédikari, postuli og kennari.
1:12b.2TI.001.012 Fyrir þá sök líð ég og þetta. En eigi fyrirverð ég mig, því að ég veit á hvern ég trúi. Og ég er sannfærður um, að hann er þess megnugur að varðveita það, sem mér er trúað fyrir, þar til dagurinn kemur.
1:13b.2TI.001.013 Haf þér til fyrirmyndar heilnæmu orðin, sem þú heyrðir mig flytja. Stattu stöðugur í þeirri trú og þeim kærleika, sem veitist í Kristi Jesú.
1:14b.2TI.001.014 Varðveittu hið góða, sem þér er trúað fyrir, með hjálp heilags anda, sem í oss býr.
1:15b.2TI.001.015 Þú veist þetta, að allir Asíumenn sneru við mér bakinu. Í þeirra flokki eru þeir Fýgelus og Hermogenes.
1:16b.2TI.001.016 Drottinn veiti miskunn heimili Ónesífórusar, því að oft hressti hann mig og fyrirvarð sig ekki fyrir fjötur minn,
1:17b.2TI.001.017 heldur lét sér annt um að leita mín, þegar hann kom til Rómar og fann mig.
1:18b.2TI.001.018 Gefi Drottinn honum miskunn að finna hjá Drottni Guði á þeim degi! Og þú þekkir manna best, hve mikla þjónustu hann innti af hendi í Efesus.
2
2:1b.2TI.002.001 Styrkst þú þá, sonur minn, í náðinni, sem fæst fyrir Krist Jesú.
2:2b.2TI.002.002 Og það sem þú heyrðir mig tala í margra votta viðurvist, það skalt þú fá í hendur trúum mönnum, sem líka munu færir um að kenna öðrum.
2:3b.2TI.002.003 Þú skalt og að þínu leyti illt þola, eins og góður hermaður Krists Jesú.
2:4b.2TI.002.004 Enginn hermaður bendlar sig við atvinnustörf. Þá þóknast hann ekki þeim, sem hefur tekið hann á mála.
2:5b.2TI.002.005 Og sá sem keppir í íþróttum fær ekki sigursveiginn, nema hann keppi löglega.
2:6b.2TI.002.006 Bóndinn, sem erfiðar, á fyrstur að fá sinn hlut af ávöxtunum.
2:7b.2TI.002.007 Tak eftir því, sem ég segi. Drottinn mun gefa þér skilning á öllu.
2:8b.2TI.002.008 Minnst þú Jesú Krists, hans sem risinn er upp frá dauðum, af kyni Davíðs, eins og boðað er í fagnaðarerindi mínu.
2:9b.2TI.002.009 Fyrir það líð ég illt og það jafnvel að vera í fjötrum eins og illvirki. En orð Guðs verður ekki fjötrað.
2:10b.2TI.002.010 Fyrir því þoli ég allt sakir hinna útvöldu, til þess að þeir einnig hljóti hjálpræðið, í Kristi Jesú með eilífri dýrð.
2:11b.2TI.002.011 Það orð er satt: Ef vér höfum dáið með honum, þá munum vér og lifa með honum.
2:12b.2TI.002.012 Ef vér stöndum stöðugir, þá munum vér og með honum ríkja. Ef vér afneitum honum, þá mun hann og afneita oss.
2:13b.2TI.002.013 Þótt vér séum ótrúir, þá verður hann samt trúr, því að ekki getur hann afneitað sjálfum sér.
2:14b.2TI.002.014 Minn á þetta og heit á þá fyrir augliti Guðs að eiga ekki í orðastælum til einskis gagns, áheyrendum til falls.
2:15b.2TI.002.015 Legg kapp á að reynast hæfur fyrir Guði sem verkamaður, er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans.
2:16b.2TI.002.016 Forðast þú hinar vanheilögu hégómaræður, því að þeim, er leggja stund á þær, skilar lengra áfram í guðleysi,
2:17b.2TI.002.017 og lærdómur þeirra etur um sig eins og helbruni. Í hópi þeirra eru þeir Hýmeneus og Fíletus.
2:18b.2TI.002.018 Þeir hinir sömu hafa villst frá sannleikanum, þar sem þeir segja upprisuna þegar um garð gengna og umhverfa trú sumra manna.
2:19b.2TI.002.019 En Guðs styrki grundvöllur stendur. Hann hefur þetta innsigli: "Drottinn þekkir sína" og "hver sá, sem nefnir nafn Drottins, haldi sér frá ranglæti."
2:20b.2TI.002.020 Á stóru heimili eru ekki einungis gullker og silfurker, heldur og tréker og leirker. Sum eru til viðhafnar, önnur til óþriflegri nota.
2:21b.2TI.002.021 Sá sem fær sig hreinan gjört af slíku, mun verða ker til viðhafnar, helgað og hagfellt húsbóndanum, hæfilegt til sérhvers góðs verks.
2:22b.2TI.002.022 Flý þú æskunnar girndir, en stunda réttlæti, trú, kærleika og frið við þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta.
2:23b.2TI.002.023 En hafna þú heimskulegum og óskynsamlegum þrætum. Þú veist, að þær leiða af sér ófrið.
2:24b.2TI.002.024 Þjónn Drottins á ekki að eiga í ófriði, heldur á hann að vera ljúfur við alla, góður fræðari, þolinn í þrautum,
2:25b.2TI.002.025 hógvær er hann agar þá, sem skipast í móti. Guð kynni að gefa þeim sinnaskipti, sem leiddi þá til þekkingar á sannleikanum,
2:26b.2TI.002.026 þá gætu þeir endurvitkast og losnað úr snöru djöfulsins, sem hefur veitt þá til að gjöra hans vilja.
3
3:1b.2TI.003.001 Vita skalt þú þetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir.
3:2b.2TI.003.002 Mennirnir verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir,
3:3b.2TI.003.003 kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er,
3:4b.2TI.003.004 sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlífið meira en Guð.
3:5b.2TI.003.005 Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum!
3:6b.2TI.003.006 Úr hópi þeirra eru mennirnir, sem smeygja sér inn á heimilin og ná á band sitt kvensniftum, sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum.
3:7b.2TI.003.007 Þær eru alltaf að reyna að læra, en geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum.
3:8b.2TI.003.008 Eins og þeir Jannes og Jambres stóðu í gegn Móse, þannig standa og þessir menn í gegn sannleikanum. Þeir eru menn hugspilltir og óhæfir í trúnni.
3:9b.2TI.003.009 En þeim mun ekki verða ágengt, því að heimska þeirra mun verða hverjum manni augljós, eins og líka heimska hinna varð.
3:10b.2TI.003.010 Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði,
3:11b.2TI.003.011 í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem fyrir mig komu í Antíokkíu, í Íkóníum og í Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi ég, og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum.
3:12b.2TI.003.012 Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða.
3:13b.2TI.003.013 En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir.
3:14b.2TI.003.014 En halt þú stöðuglega við það, sem þú hefur numið og hefur fest trú á, þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það.
3:15b.2TI.003.015 Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.
3:16b.2TI.003.016 Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti,
3:17b.2TI.003.017 til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks.
4
4:1b.2TI.004.001 Fyrir augliti Guðs og Krists Jesú, sem dæma mun lifendur og dauða, með endurkomu hans fyrir augum og ríki hans heiti ég á þig:
4:2b.2TI.004.002 Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma og ótíma. Vanda um, ávíta, áminn með öllu langlyndi og fræðslu.
4:3b.2TI.004.003 Því að þann tíma mun að bera, er menn þola ekki hina heilnæmu kenning, heldur hópa þeir að sér kennurum eftir eigin fýsnum sínum til þess að heyra það, sem kitlar eyrun.
4:4b.2TI.004.004 Þeir munu snúa eyrum sínum burt frá sannleikanum og hverfa að ævintýrum.
4:5b.2TI.004.005 En ver þú algáður í öllu, þol illt, gjör verk trúboða, fullna þjónustu þína.
4:6b.2TI.004.006 Nú er svo komið, að mér verður fórnfært, og tíminn er kominn, að ég taki mig upp.
4:7b.2TI.004.007 Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna.
4:8b.2TI.004.008 Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins, sem Drottinn, hinn réttláti dómari, mun gefa mér á þeim degi. Og ekki einungis mér, heldur og öllum, sem þráð hafa endurkomu hans.
4:9b.2TI.004.009 Reyndu að koma sem fyrst til mín,
4:10b.2TI.004.010 því að Demas hefur yfirgefið mig vegna þess að hann elskaði þennan heim. Hann er farinn til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu.
4:11b.2TI.004.011 Lúkas er einn hjá mér. Tak þú Markús og lát hann koma með þér, því að hann er mér þarfur til þjónustu.
4:12b.2TI.004.012 Týkíkus hef ég sent til Efesus.
4:13b.2TI.004.013 Fær þú mér, þegar þú kemur, möttulinn, sem ég skildi eftir í Tróas hjá Karpusi, og bækurnar, einkanlega skinnbækurnar.
4:14b.2TI.004.014 Alexander koparsmiður gjörði mér margt illt. Drottinn mun gjalda honum eftir verkum hans.
4:15b.2TI.004.015 Gæt þín líka fyrir honum, því að mjög stóð hann í gegn orðum vorum.
4:16b.2TI.004.016 Í fyrstu málsvörn minni kom enginn mér til aðstoðar, heldur yfirgáfu mig allir. Verði þeim það ekki tilreiknað!
4:17b.2TI.004.017 En Drottinn stóð með mér og veitti mér kraft, til þess að ég yrði til að fullna prédikunina og allar þjóðir fengju að heyra. Og ég varð frelsaður úr gini ljónsins.
4:18b.2TI.004.018 Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn leiða inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen.
4:19b.2TI.004.019 Heilsa þú Prisku og Akvílasi og heimili Ónesífórusar.
4:20b.2TI.004.020 Erastus varð eftir í Korintu, en Trófímus skildi ég eftir sjúkan í Míletus.
4:21b.2TI.004.021 Flýt þér að koma fyrir vetur. Evbúlus sendir þér kveðju og Púdes og Línus og Kládía og allir bræðurnir.
4:22b.2TI.004.022 Drottinn sé með þínum anda. Náð sé með yður.
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. 2 Timothy (Icelandic). 2 Timothy (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9E01-5