2 Thessalonians (Icelandic)
1
1:1b.2TH.001.001 Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna, sem lifa í Guði, föður vorum, og Drottni Jesú Kristi.
1:2b.2TH.001.002 Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.
1:3b.2TH.001.003 Skylt er oss, bræður, og maklegt að þakka Guði ætíð fyrir yður, því að trú yðar eykst stórum og kærleiki yðar allra hvers til annars fer vaxandi.
1:4b.2TH.001.004 Því getum vér hrósað oss af yður í söfnuðum Guðs fyrir þolgæði yðar og trú í öllum ofsóknum yðar og þrengingum þeim, er þér þolið.
1:5b.2TH.001.005 Þær eru augljóst merki þess, að Guð dæmir rétt og mun álíta yður maklega Guðs ríkis, sem þér nú líðið illt fyrir.
1:6b.2TH.001.006 Guð er réttlátur, hann endurgeldur þeim þrengingu, sem að yður þrengja.
1:7b.2TH.001.007 En yður, sem þrengingu líðið, veitir hann hvíld ásamt oss, þegar Drottinn Jesús opinberast af himni með englum máttar síns.
1:8b.2TH.001.008 Hann kemur í logandi eldi og lætur hegningu koma yfir þá, sem þekkja ekki Guð, og yfir þá, sem hlýða ekki fagnaðarerindinu um Drottin vorn Jesú.
1:9b.2TH.001.009 Þeir munu sæta hegningu, eilífri glötun, fjarri augliti Drottins og fjarri dýrð hans og mætti,
1:10b.2TH.001.010 á þeim degi, er hann kemur til að vegsamast meðal sinna heilögu og hljóta lof meðal allra, sem trú hafa tekið. Og þér hafið trúað þeim vitnisburði, sem vér fluttum yður.
1:11b.2TH.001.011 Þess vegna biðjum vér og alla tíma fyrir yður, að Guð vor álíti yður maklega köllunarinnar og fullkomni allt hið góða, sem þér viljið og vinnið í trú og með krafti Guðs,
1:12b.2TH.001.012 svo að nafn Drottins vors Jesú verði dýrlegt í yður og þér í honum fyrir náð Guðs vors og Drottins Jesú Krists.
2
2:1b.2TH.002.001 En að því er snertir komu Drottins vors Jesú Krists og það, að vér söfnumst til hans, biðjum vér yður, bræður,
2:2b.2TH.002.002 að þér séuð ekki fljótir til að komast í uppnám eða láta hræða yður, hvorki af nokkrum anda né við orð eða bréf, sem væri það frá oss, eins og dagur Drottins væri þegar fyrir höndum.
2:3b.2TH.002.003 Látið engan villa yður á nokkurn hátt. Því að ekki kemur dagurinn nema fráhvarfið komi fyrst og maður syndarinnar birtist. Hann er sonur glötunarinnar,
2:4b.2TH.002.004 sem setur sig á móti Guði og rís gegn öllu því, sem kallast Guð eða helgur dómur. Hann sest í musteri Guðs og gjörir sjálfan sig að Guði.
2:5b.2TH.002.005 Minnist þér ekki þess, að ég sagði yður þetta, meðan ég enn þá var hjá yður?
2:6b.2TH.002.006 Og þér vitið, hvað aftrar honum nú, til þess að hann opinberist á sínum tíma.
2:7b.2TH.002.007 Því að lögleysið er þegar farið að starfa í leyndum og stendur ekki á öðru en að þeim verði burt rýmt, sem nú heldur aftur af.
2:8b.2TH.002.008 Þá mun lögleysinginn opinberast, - og honum mun Drottinn Jesús tortíma með anda munns síns og að engu gjöra þegar hann birtist við endurkomu sína.
2:9b.2TH.002.009 Lögleysinginn kemur fyrir tilverknað Satans með miklum krafti, lygatáknum og undrum
2:10b.2TH.002.010 og með alls konar ranglætisvélum, sem blekkja þá, sem glatast, af því að þeir veittu ekki viðtöku og elskuðu ekki sannleikann, svo að þeir mættu verða hólpnir.
2:11b.2TH.002.011 Þess vegna sendir Guð þeim megna villu, til þess að þeir trúi lyginni.
2:12b.2TH.002.012 Þannig munu allir þeir verða dæmdir, sem hafa ekki trúað sannleikanum, en haft velþóknun á ranglætinu.
2:13b.2TH.002.013 En alltaf hljótum vér að þakka Guði fyrir yður, bræður, sem Drottinn elskar. Guð hefur frá upphafi útvalið yður til frelsunar í helgun andans og trú á sannleikann.
2:14b.2TH.002.014 Til þess kallaði hann yður fyrir fagnaðarboðskap vorn, að þér skylduð öðlast dýrð Drottins vors Jesú Krists.
2:15b.2TH.002.015 Bræður, standið því stöðugir og haldið fast við þær kenningar, er vér höfum flutt yður munnlega eða með bréfi.
2:16b.2TH.002.016 En sjálfur Drottinn vor Jesús Kristur og Guð, faðir vor, sem elskaði oss og gaf oss í náð eilífa huggun og góða von,
2:17b.2TH.002.017 huggi hjörtu yðar og styrki í sérhverju góðu verki og orði.
3
3:1b.2TH.003.001 Að endingu, bræður: Biðjið fyrir oss, að orð Drottins megi hafa framgang og vegsamast eins og hjá yður,
3:2b.2TH.003.002 og að vér mættum frelsast frá spilltum og vondum mönnum. Því að ekki er trúin allra.
3:3b.2TH.003.003 En trúr er Drottinn og hann mun styrkja yður og vernda fyrir hinum vonda.
3:4b.2TH.003.004 En vér höfum það traust til yðar vegna Drottins, að þér bæði gjörið og munuð gjöra það, sem vér leggjum fyrir yður.
3:5b.2TH.003.005 En Drottinn leiði hjörtu yðar til kærleika Guðs og þolgæðis Krists.
3:6b.2TH.003.006 En vér bjóðum yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér sneiðið hjá hverjum þeim bróður, er lifir óreglulega og ekki eftir þeirri kenningu, sem þeir hafa numið af oss.
3:7b.2TH.003.007 Því að sjálfir vitið þér, hvernig á að breyta eftir oss. Ekki hegðuðum vér oss óreglulega hjá yður,
3:8b.2TH.003.008 neyttum ekki heldur brauðs hjá neinum fyrir ekkert, heldur unnum vér með erfiði og striti nótt og dag, til þess að vera ekki neinum yðar til þyngsla.
3:9b.2TH.003.009 Ekki af því að vér höfum ekki rétt til þess, heldur til þess að vér gæfum yður sjálfa oss sem fyrirmynd til eftirbreytni.
3:10b.2TH.003.010 Því var og það, að þegar vér vorum hjá yður, buðum vér yður: Ef einhver vill ekki vinna, þá á hann heldur ekki mat að fá.
3:11b.2TH.003.011 Vér heyrum, að nokkrir meðal yðar lifi óreglulega, vinni ekkert, heldur gefi sig alla að því, sem þeim kemur eigi við.
3:12b.2TH.003.012 Slíkum mönnum bjóðum vér og áminnum þá vegna Drottins Jesú Krists, að vinna kyrrlátlega og eta eigið brauð.
3:13b.2TH.003.013 En þér, bræður, þreytist ekki gott að gjöra.
3:14b.2TH.003.014 En ef einhver hlýðir ekki orðum vorum í bréfi þessu, þá merkið yður þann mann. Hafið ekkert samfélag við hann, til þess að hann blygðist sín.
3:15b.2TH.003.015 En álítið hann þó ekki óvin, heldur áminnið hann sem bróður.
3:16b.2TH.003.016 En sjálfur Drottinn friðarins gefi yður friðinn, ætíð á allan hátt. Drottinn sé með yður öllum.
3:17b.2TH.003.017 Kveðjan er með minni, Páls, eigin hendi, og það er merki á hverju bréfi. Þannig skrifa ég.
3:18b.2TH.003.018 Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður öllum.
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. 2 Thessalonians (Icelandic). 2 Thessalonians (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DFB-D