1 Thessalonians (Icelandic)

1 Thessalonians (Icelandic)

1

1:1b.1TH.001.001 Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna, sem er í Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Náð sé með yður og friður.

1:2b.1TH.001.002 Vér þökkum ávallt Guði fyrir yður alla, er vér minnumst yðar í bænum vorum.

1:3b.1TH.001.003 Fyrir augsýn Guðs og föður vors erum vér sífellt minnugir starfs yðar í trúnni, erfiðis yðar í kærleikanum og stöðuglyndis yðar í voninni á Drottin vorn Jesú Krist.

1:4b.1TH.001.004 Guð elskar yður, bræður, og vér vitum, að hann hefur útvalið yður.

1:5b.1TH.001.005 Fagnaðarerindi vort kom eigi til yðar í orðum einum, heldur einnig í krafti og í heilögum anda og með fullkominni sannfæringu. Þér vitið, hvernig vér komum fram hjá yður, yðar vegna.

1:6b.1TH.001.006 Og þér hafið gjörst eftirbreytendur vorir og Drottins, er þér tókuð á móti orðinu með fögnuði heilags anda, þrátt fyrir mikla þrengingu.

1:7b.1TH.001.007 Þannig eruð þér orðnir fyrirmynd öllum trúuðum í Makedóníu og í Akkeu.

1:8b.1TH.001.008 Frá yður hefur orð Drottins hljómað, ekki einungis í Makedóníu og Akkeu, heldur er trú yðar á Guð kunn orðin alls staðar. Vér þurfum ekkert um það að tala,

1:9b.1TH.001.009 því að þeir segja sjálfir, á hvern hátt vér komum til yðar og hvernig þér sneruð yður til Guðs frá skurðgoðunum, til þess að þjóna lifandi og sönnum Guði,

1:10b.1TH.001.010 og væntið nú sonar hans frá himnum, sem hann vakti upp frá dauðum, Jesú, er frelsar oss frá hinni komandi reiði.

2

2:1b.1TH.002.001 Sjálfir vitið þér, bræður, að koma vor til yðar varð ekki árangurslaus.

2:2b.1TH.002.002 Yður er kunnugt, að vér höfðum áður þolað illt og verið misþyrmt í Filippí, en Guð gaf oss djörfung til að tala til yðar fagnaðarerindi Guðs, þótt baráttan væri mikil.

2:3b.1TH.002.003 Boðun vor er ekki sprottin af villu né af óhreinum hvötum og vér reynum ekki að blekkja neinn.

2:4b.1TH.002.004 En Guð hefur talið oss maklega þess að trúa oss fyrir fagnaðarerindinu. Því er það, að vér tölum ekki eins og þeir, er þóknast vilja mönnum, heldur Guði, sem rannsakar hjörtu vor.

2:5b.1TH.002.005 Aldrei höfðum vér nein smjaðuryrði á vörum, það vitið þér. Og ekki bjó þar ásælni að baki, - Guð er vottur þess.

2:6b.1TH.002.006 Ekki leituðum vér vegsemdar af mönnum, hvorki yður né öðrum, þótt vér hefðum getað beitt myndugleika sem postular Krists.

2:7b.1TH.002.007 Nei, vér vorum mildir yðar á meðal, eins og móðir, sem hlúir að börnum sínum.

2:8b.1TH.002.008 Slíkt kærleiksþel bárum vér til yðar, að vér vildum glaðir gefa yður ekki einungis fagnaðarerindi Guðs, heldur og vort eigið líf því að þér voruð orðnir oss ástfólgnir.

2:9b.1TH.002.009 Þér munið, bræður, eftir erfiði voru og striti: Vér unnum nótt og dag, til þess að vera ekki neinum yðar til þyngsla, um leið og vér prédikuðum fyrir yður fagnaðarerindi Guðs.

2:10b.1TH.002.010 Þér og Guð, eruð vottar þess, hversu heilaglega, réttvíslega og óaðfinnanlega vér hegðuðum oss hjá yður, sem trúið.

2:11b.1TH.002.011 Þér vitið, hvernig vér áminntum og hvöttum og grátbændum hvern og einn yðar, eins og faðir börn sín,

2:12b.1TH.002.012 til þess að þér skylduð breyta eins og samboðið er Guði, er kallar yður til ríkis síns og dýrðar.

2:13b.1TH.002.013 Og þess vegna þökkum vér líka Guði án afláts, því að þegar þér veittuð viðtöku því orði Guðs, sem vér boðuðum, þá tókuð þér ekki við því sem manna orði, heldur sem Guðs orði, - eins og það í sannleika er. Og það sýnir kraft sinn í yður, sem trúið.

2:14b.1TH.002.014 Þér hafið, bræður, tekið yður til fyrirmyndar söfnuði Guðs í Júdeu, sem eru í Kristi Jesú. Því að þér hafið þolað hið sama af löndum yðar sem þeir urðu að þola af Gyðingum,

2:15b.1TH.002.015 er bæði líflétu Drottin Jesú og spámennina og hafa ofsótt oss. Þeir eru Guði eigi þóknanlegir og öllum mönnum mótsnúnir.

2:16b.1TH.002.016 Þeir vilja meina oss að tala til heiðingjanna, til þess að þeir megi verða hólpnir. Þannig fylla þeir stöðugt mæli synda sinna. En reiðin er þá líka yfir þá komin um síðir.

2:17b.1TH.002.017 En vér, bræður, sem um stundarsakir höfum verið skildir frá yður að líkamanum til en ekki huganum, höfum þráð yður mjög og gjört oss allt far um að fá að sjá yður aftur.

2:18b.1TH.002.018 Þess vegna ætluðum vér að koma til yðar, ég, Páll, oftar en einu sinni, en Satan hefur hamlað því.

2:19b.1TH.002.019 Hver er von vor eða gleði vor eða sigursveigurinn, sem vér hrósum oss af? Eruð það ekki einmitt þér, frammi fyrir Drottni vorum Jesú við komu hans?

2:20b.1TH.002.020 Jú, þér eruð vegsemd vor og gleði.

3

3:1b.1TH.003.001 Þar kom, að vér þoldum ekki lengur við og réðum þá af að verða einir eftir í Aþenu,

3:2b.1TH.003.002 en sendum Tímóteus, bróður vorn og aðstoðarmann Guðs við fagnaðarerindið um Krist, til að styrkja yður og áminna í trú yðar,

3:3b.1TH.003.003 svo að enginn láti bifast í þrengingum þessum. Þér vitið sjálfir, að þetta er oss ætlað.

3:4b.1TH.003.004 Þegar vér vorum hjá yður, þá sögðum vér yður fyrir, að vér mundum verða að þola þrengingar. Það kom líka fram, eins og þér vitið.

3:5b.1TH.003.005 Því þoldi ég ekki lengur við og sendi Tímóteus til að fá að vita um trú yðar, hvort freistarinn kynni að hafa freistað yðar og erfiði vort orðið til einskis.

3:6b.1TH.003.006 En nú er hann aftur kominn til vor frá yður og hefur borið oss gleðifregn um trú yðar og kærleika, að þér ávallt munið eftir oss með hlýjum hug og yður langi til að sjá oss, eins og oss líka til að sjá yður.

3:7b.1TH.003.007 Sökum þessa höfum vér, bræður, huggun hlotið vegna trúar yðar þrátt fyrir alla neyð og þrengingu.

3:8b.1TH.003.008 Nú lifum vér, ef þér standið stöðugir í Drottni.

3:9b.1TH.003.009 Hvernig getum vér nógsamlega þakkað Guði fyrir alla þá gleði, er vér höfum af yður frammi fyrir Guði vorum?

3:10b.1TH.003.010 Og vér biðjum nótt og dag, heitt og af hjarta, að fá að sjá yður og bæta úr því, sem trú yðar er áfátt.

3:11b.1TH.003.011 Sjálfur Guð og faðir vor og Drottinn vor Jesús greiði veg vorn til yðar.

3:12b.1TH.003.012 En Drottinn efli yður og auðgi að kærleika hvern til annars og til allra, eins og vér berum kærleika til yðar.

3:13b.1TH.003.013 Þannig styrkir hann hjörtu yðar, svo að þér verðið óaðfinnanlegir og heilagir frammi fyrir Guði, föður vorum, við komu Drottins vors Jesú ásamt öllum hans heilögu.

4

4:1b.1TH.004.001 Að endingu biðjum vér yður, bræður, og áminnum í Drottni Jesú. Þér hafið numið af oss, hvernig yður ber að breyta og þóknast Guði, og þannig breytið þér líka. En takið enn meiri framförum.

4:2b.1TH.004.002 Þér vitið, hver boðorð vér gáfum yður frá Drottni Jesú.

4:3b.1TH.004.003 Það er vilji Guðs, að þér verðið heilagir. Hann vill, að þér haldið yður frá frillulífi,

4:4b.1TH.004.004 að sérhver yðar hafi vit á að halda líkama sínum í helgun og heiðri,

4:5b.1TH.004.005 en ekki í losta, eins og heiðingjarnir, er ekki þekkja Guð.

4:6b.1TH.004.006 Og enginn skyldi gjöra bróður sínum rangt til né blekkja hann í slíkum sökum. Því að Drottinn hegnir fyrir allt þvílíkt, eins og vér höfum áður sagt yður og brýnt fyrir yður.

4:7b.1TH.004.007 Ekki kallaði Guð oss til saurlifnaðar, heldur helgunar.

4:8b.1TH.004.008 Sá, sem fyrirlítur þetta, fyrirlítur þess vegna ekki mann, heldur Guð, sem hefur gefið yður sinn heilaga anda.

4:9b.1TH.004.009 En ekki hafið þér þess þörf, að ég skrifi yður um bróðurkærleikann, því Guð hefur sjálfur kennt yður að elska hver annan.

4:10b.1TH.004.010 Það gjörið þér einnig öllum bræðrum í allri Makedóníu. En vér áminnum yður, bræður, að taka enn meiri framförum.

4:11b.1TH.004.011 Leitið sæmdar í því að lifa kyrrlátu lífi og stunda hver sitt starf og vinna með höndum yðar, eins og vér höfum boðið yður.

4:12b.1TH.004.012 Þannig hegðið þér yður með sóma gagnvart þeim, sem fyrir utan eru, og eruð upp á engan komnir.

4:13b.1TH.004.013 Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von.

4:14b.1TH.004.014 Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru.

4:15b.1TH.004.015 Því að það segjum vér yður, og það er orð Drottins, að vér, sem verðum eftir á lífi við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu.

4:16b.1TH.004.016 Því að sjálfur Drottinn mun stíga niður af himni með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa.

4:17b.1TH.004.017 Síðan munum vér, sem eftir lifum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma.

4:18b.1TH.004.018 Uppörvið því hver annan með þessum orðum.

5

5:1b.1TH.005.001 En um tíma og tíðir hafið þér, bræður, ekki þörf á að yður sé skrifað.

5:2b.1TH.005.002 Þér vitið það sjálfir gjörla, að dagur Drottins kemur sem þjófur á nóttu.

5:3b.1TH.005.003 Þegar menn segja: "Friður og engin hætta", þá kemur snögglega tortíming yfir þá, eins og jóðsótt yfir þungaða konu. Og þeir munu alls ekki undan komast.

5:4b.1TH.005.004 En þér, bræður, eruð ekki í myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur.

5:5b.1TH.005.005 Þér eruð allir synir ljóssins og synir dagsins. Vér heyrum ekki nóttunni til né myrkrinu.

5:6b.1TH.005.006 Vér skulum þess vegna ekki sofa eins og aðrir, heldur vökum og verum algáðir.

5:7b.1TH.005.007 Þeir, sem sofa, sofa á nóttunni og þeir, sem drekka sig drukkna, drekka á nóttunni.

5:8b.1TH.005.008 En vér, sem heyrum deginum til, skulum vera algáðir, klæddir brynju trúar og kærleika og von hjálpræðis sem hjálmi.

5:9b.1TH.005.009 Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesú Krist,

5:10b.1TH.005.010 sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.

5:11b.1TH.005.011 Áminnið því hver annan og uppbyggið hver annan, eins og þér og gjörið.

5:12b.1TH.005.012 Vér biðjum yður, bræður, að sýna þeim viðurkenningu, sem erfiða á meðal yðar og veita yður forstöðu í Drottni og áminna yður.

5:13b.1TH.005.013 Auðsýnið þeim sérstaka virðingu og kærleika fyrir verk þeirra. Lifið í friði yðar á milli.

5:14b.1TH.005.014 Vér áminnum yður, bræður: Vandið um við þá, sem óreglusamir eru, hughreystið ístöðulitla, takið að yður þá, sem óstyrkir eru, verið langlyndir við alla.

5:15b.1TH.005.015 Gætið þess, að enginn gjaldi neinum illt með illu, en keppið ávallt eftir hinu góða, bæði hver við annan og við alla aðra.

5:16b.1TH.005.016 Verið ætíð glaðir.

5:17b.1TH.005.017 Biðjið án afláts.

5:18b.1TH.005.018 Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú.

5:19b.1TH.005.019 Slökkvið ekki andann.

5:20b.1TH.005.020 Fyrirlítið ekki spádómsorð.

5:21b.1TH.005.021 Prófið allt, haldið því, sem gott er.

5:22b.1TH.005.022 En forðist allt illt, í hvaða mynd sem er.

5:23b.1TH.005.023 En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

5:24b.1TH.005.024 Trúr er sá, er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar.

5:25b.1TH.005.025 Bræður, biðjið fyrir oss!

5:26b.1TH.005.026 Heilsið öllum bræðrunum með heilögum kossi.

5:27b.1TH.005.027 Ég bið og brýni yður í Drottins nafni, að þér látið lesa bréf þetta upp fyrir öllum bræðrunum.

5:28b.1TH.005.028 Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. 1 Thessalonians (Icelandic). 1 Thessalonians (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DF8-0