Philippians (Icelandic)

Philippians (Icelandic)

1

1:1b.PHI.001.001 Páll og Tímóteus, þjónar Krists Jesú, heilsa öllum heilögum í Filippí, sem eru í Kristi Jesú, ásamt biskupum þeirra og djáknum.

1:2b.PHI.001.002 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

1:3b.PHI.001.003 Ég þakka Guði mínum í hvert skipti, sem ég hugsa til yðar,

1:4b.PHI.001.004 og gjöri ávallt í öllum bænum mínum með gleði bæn fyrir yður öllum,

1:5b.PHI.001.005 vegna samfélags yðar um fagnaðarerindið frá hinum fyrsta degi til þessa.

1:6b.PHI.001.006 Og ég fulltreysti einmitt því, að hann, sem byrjaði í yður góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists.

1:7b.PHI.001.007 Víst er það rétt fyrir mig að bera þennan hug til yðar allra. Ég hef yður í hjarta mínu, og þér eigið allir hlutdeild með mér í náðinni, bæði í fjötrum mínum og þegar ég er að verja fagnaðarerindið og staðfesta það.

1:8b.PHI.001.008 Guð er mér þess vitni, hvernig ég þrái yður alla með ástúð Krists Jesú.

1:9b.PHI.001.009 Og þetta bið ég um, að elska yðar aukist enn þá meir og meir að þekkingu og allri dómgreind,

1:10b.PHI.001.010 svo að þér getið metið þá hluti rétt, sem máli skipta, og séuð hreinir og ámælislausir til dags Krists,

1:11b.PHI.001.011 auðugir að réttlætis ávexti þeim, er fæst fyrir Jesú Krist til dýrðar og lofs Guði.

1:12b.PHI.001.012 En ég vil, bræður, að þér vitið, að það, sem fram við mig hefur komið, hefur í raun orðið fagnaðarerindinu til eflingar.

1:13b.PHI.001.013 Því að það er augljóst orðið í allri lífvarðarhöllinni og fyrir öllum öðrum, að ég er í fjötrum vegna Krists,

1:14b.PHI.001.014 og flestir af bræðrunum hafa öðlast meira traust á Drottni við fjötra mína og fengið meiri djörfung til að tala orð Guðs óttalaust.

1:15b.PHI.001.015 Sumir prédika að sönnu Krist af öfund og þrætugirni, en sumir gjöra það líka af góðum hug.

1:16b.PHI.001.016 Þeir gjöra það af kærleika, vegna þess að þeir vita, að ég er settur fagnaðarerindinu til varnar.

1:17b.PHI.001.017 Hinir prédika Krist af eigingirni og ekki af hreinum hug, heldur í þeim tilgangi að bæta þrengingu ofan á fjötra mína.

1:18b.PHI.001.018 En hvað um það! Kristur er allt að einu boðaður, hvort sem það heldur er af uppgerð eða heilum hug. Og þetta gleður mig. Já, það mun áfram gleðja mig.

1:19b.PHI.001.019 Því að ég veit, að þetta verður mér til frelsunar fyrir bænir yðar og hjálpina, sem andi Jesú Krists veitir mér.

1:20b.PHI.001.020 Og það er einlæg löngun mín og von, að ég í engu megi til skammar verða, heldur að Kristur megi í allra augum, nú eins og ávallt, vegsamlegur verða í mér, hvort sem það verður með lífi mínu eða dauða.

1:21b.PHI.001.021 Því að lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur.

1:22b.PHI.001.022 En eigi ég áfram að lifa á jörðinni, þá verður meiri árangur af starfi mínu. Veit ég eigi hvort ég á heldur að kjósa.

1:23b.PHI.001.023 Ég á úr tvennu vöndu að ráða: Mig langar til að fara héðan og vera með Kristi, því að það væri miklu betra.

1:24b.PHI.001.024 En yðar vegna er það nauðsynlegra, að ég haldi áfram að lifa hér á jörðu.

1:25b.PHI.001.025 Og í trausti þess veit ég, að ég mun lifa og halda áfram að vera hjá yður öllum, yður til framfara og gleði í trúnni.

1:26b.PHI.001.026 Þegar ég kem aftur til yðar, getið þér vegna mín enn framar hrósað yður í Kristi Jesú.

1:27b.PHI.001.027 En hvað sem öðru líður, þá hegðið yður eins og samboðið er fagnaðarerindinu um Krist. Hvort sem ég kem og heimsæki yður eða ég er fjarverandi, skal ég fá að heyra um yður, að þér standið stöðugir í einum anda og berjist saman með einni sál fyrir trúnni á fagnaðarerindið

1:28b.PHI.001.028 og látið í engu skelfast af mótstöðumönnunum. Fyrir þá er það merki frá Guði um glötun þeirra, en um hjálpræði yðar.

1:29b.PHI.001.029 Því að yður er veitt sú náð fyrir Krists sakir, ekki einungis að trúa á hann, heldur og að þola þjáningar hans vegna.

1:30b.PHI.001.030 Nú eigið þér í sömu baráttu sem þér sáuð mig heyja og heyrið enn um mig.

2

2:1b.PHI.002.001 Ef nokkurs má sín upphvatning í nafni Krists, ef kærleiksávarp, ef samfélag andans, ef ástúð og meðaumkun má sín nokkurs,

2:2b.PHI.002.002 þá gjörið gleði mína fullkomna með því að vera samhuga, hafa sama kærleika, einn hug og eina sál.

2:3b.PHI.002.003 Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið aðra meira en sjálfa yður.

2:4b.PHI.002.004 Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig annarra.

2:5b.PHI.002.005 Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var.

2:6b.PHI.002.006 Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur.

2:7b.PHI.002.007 Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

2:8b.PHI.002.008 Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.

2:9b.PHI.002.009 Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra,

2:10b.PHI.002.010 til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu

2:11b.PHI.002.011 og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn.

2:12b.PHI.002.012 Þess vegna, mínir elskuðu, þér sem ætíð hafið verið hlýðnir, vinnið nú að sáluhjálp yðar með ugg og ótta eins og þegar ég var hjá yður, því fremur nú, þegar ég er fjarri.

2:13b.PHI.002.013 Því að það er Guð, sem verkar í yður bæði að vilja og framkvæma sér til velþóknunar.

2:14b.PHI.002.014 Gjörið allt án þess að mögla og hika,

2:15b.PHI.002.015 til þess að þér verðið óaðfinnanlegir og hreinir, flekklaus Guðs börn meðal rangsnúinnar og gjörspilltrar kynslóðar. Þér skínið hjá þeim eins og ljós í heiminum.

2:16b.PHI.002.016 Haldið fast við orð lífsins, mér til hróss á degi Krists. Þá hef ég ekki hlaupið til einskis né erfiðað til ónýtis.

2:17b.PHI.002.017 Og enda þótt blóði mínu verði úthellt við fórnarþjónustu mína, þegar ég ber trú yðar fram fyrir Guð, þá gleðst ég og samgleðst yður öllum.

2:18b.PHI.002.018 Af hinu sama skuluð þér einnig gleðjast og samgleðjast mér.

2:19b.PHI.002.019 En ég hef þá von til Drottins Jesú, að ég muni bráðum geta sent Tímóteus til yðar, til þess að mér verði einnig hughægra, þá er ég fæ að vita um hagi yðar.

2:20b.PHI.002.020 Ég hef engan honum líkan, sem lætur sér eins einlæglega annt um hagi yðar. -

2:21b.PHI.002.021 Allir leita þess, sem sjálfra þeirra er, en ekki þess, sem Krists Jesú er. -

2:22b.PHI.002.022 En þér vitið, hvernig hann hefur reynst, að hann hefur þjónað að boðun fagnaðarerindisins með mér eins og barn með föður sínum.

2:23b.PHI.002.023 Hann vona ég þá að geta sent, jafnskjótt og ég sé, hvað um mig verður.

2:24b.PHI.002.024 En ég ber það traust til Drottins, að ég muni og bráðum koma sjálfur.

2:25b.PHI.002.025 Ég taldi það og nauðsynlegt að senda til yðar Epafrodítus, bróður minn, samverkamann og samherja, en sendimann yðar og erindreka í því að bæta úr þörf minni.

2:26b.PHI.002.026 Hann hefur þráð yður alla og liðið illa út af því, að þér höfðuð heyrt, að hann hefði orðið sjúkur.

2:27b.PHI.002.027 Því sjúkur varð hann, að dauða kominn, en Guð miskunnaði honum og ekki einungis honum, heldur og mér, til þess að ég skyldi eigi hafa hryggð á hryggð ofan.

2:28b.PHI.002.028 Fyrir því læt ég mér enn annara um að senda hann heim, til þess að þér verðið aftur glaðir, er þér sjáið hann, og mér verði hughægra.

2:29b.PHI.002.029 Takið því á móti honum í nafni Drottins með öllum fögnuði, og hafið slíka menn í heiðri.

2:30b.PHI.002.030 Hann var að vinna fyrir Krist. Þess vegna var hann að dauða kominn. Hann lagði líf sitt í hættu til þess að bæta upp það, sem brast á hjálp yðar mér til handa.

3

3:1b.PHI.003.001 Að endingu, bræður mínir, verið glaðir í Drottni. Ég tel ekki eftir mér að endurtaka það, sem ég hef skrifað, en yður er það til öryggis.

3:2b.PHI.003.002 Gefið gætur að hundunum, gefið gætur að hinum vondu verkamönnum, gefið gætur að hinum sundurskornu.

3:3b.PHI.003.003 Vér erum hinir umskornu, vér sem dýrkum Guð í anda hans og miklumst af Kristi Jesú og treystum ekki ytri yfirburðum,

3:4b.PHI.003.004 jafnvel þótt ég hafi einnig þá ytri yfirburði, sem ég gæti treyst. Ef einhver annar þykist geta treyst ytri yfirburðum, þá get ég það fremur.

3:5b.PHI.003.005 Ég var umskorinn á áttunda degi, af kyni Ísraels, ættkvísl Benjamíns, Hebrei af Hebreum, farísei í afstöðunni til lögmálsins,

3:6b.PHI.003.006 svo ákafur, að ég ofsótti kirkjuna. Ef litið er á réttlætið, sem fæst með lögmálinu, var ég vammlaus.

3:7b.PHI.003.007 En það, sem var mér ávinningur, met ég nú vera tjón sakir Krists.

3:8b.PHI.003.008 Já, meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp, til þess að ég geti áunnið Krist

3:9b.PHI.003.009 og reynst vera í honum. Nú á ég ekki eigið réttlæti, það er fæst af lögmáli, heldur það er fæst fyrir trú á Krist, réttlætið frá Guði með trúnni. -

3:10b.PHI.003.010 Ég vil þekkja Krist og kraft upprisu hans og samfélag písla hans með því að mótast eftir honum í dauða hans.

3:11b.PHI.003.011 Mætti mér auðnast að ná til upprisunnar frá dauðum.

3:12b.PHI.003.012 Ekki er svo, að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því, ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú.

3:13b.PHI.003.013 Bræður, ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndlað það.

3:14b.PHI.003.014 En eitt gjöri ég. Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur kallað oss til fyrir Krist Jesú.

3:15b.PHI.003.015 Þetta hugarfar skulum vér því allir hafa, sem fullkomnir erum. Og ef þér hugsið í nokkru öðruvísi, þá mun Guð einnig opinbera yður þetta.

3:16b.PHI.003.016 Fyrir alla muni skulum vér ganga þá götu, sem vér höfum komist á.

3:17b.PHI.003.017 Bræður, breytið allir eftir mér og festið sjónir yðar á þeim, sem breyta eftir þeirri fyrirmynd, er vér höfum yður gefið.

3:18b.PHI.003.018 Margir breyta, - ég hef oft sagt yður það og nú segi ég það jafnvel grátandi -, eins og óvinir kross Krists.

3:19b.PHI.003.019 Afdrif þeirra eru glötun. Guð þeirra er maginn, þeim þykir sómi að skömminni og þeir hafa hugann á jarðneskum munum.

3:20b.PHI.003.020 En föðurland vort er á himni og frá himni væntum vér frelsarans, Drottins Jesú Krists.

3:21b.PHI.003.021 Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama vorum og gjöra hann líkan dýrðarlíkama sínum. Því hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig.

4

4:1b.PHI.004.001 Þess vegna, mínir elskuðu og þráðu bræður, gleði mín og kóróna, standið þá stöðugir í Drottni, þér elskuðu.

4:2b.PHI.004.002 Evodíu áminni ég og Sýntýke áminni ég um að vera samlyndar vegna Drottins.

4:3b.PHI.004.003 Já, ég bið einnig þig, trúlyndi samþjónn, hjálpa þú þeim, því að þær börðust með mér við boðun fagnaðarerindisins, ásamt Klemens og öðrum samverkamönnum mínum, og standa nöfn þeirra í lífsins bók.

4:4b.PHI.004.004 Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.

4:5b.PHI.004.005 Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.

4:6b.PHI.004.006 Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.

4:7b.PHI.004.007 Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.

4:8b.PHI.004.008 Að endingu, bræður, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dyggð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.

4:9b.PHI.004.009 Þetta, sem þér hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín, það skuluð þér gjöra. Og Guð friðarins mun vera með yður.

4:10b.PHI.004.010 Ég varð mjög glaður í Drottni yfir því, að hagur yðar hefur loks batnað svo aftur, að þér gátuð hugsað til mín. Að sönnu hafið þér hugsað til mín, en gátuð ekki sýnt það.

4:11b.PHI.004.011 Ekki segi ég þetta vegna þess, að ég hafi liðið skort, því að ég hef lært að láta mér nægja það, sem fyrir hendi er.

4:12b.PHI.004.012 Ég kann að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir. Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlutum, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort.

4:13b.PHI.004.013 Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.

4:14b.PHI.004.014 Engu að síður gjörðuð þér vel í því, að taka þátt með mér í þrengingu minni.

4:15b.PHI.004.015 Þér vitið og, Filippímenn, að þegar ég í upphafi boðaði yður fagnaðarerindið og var farinn burt úr Makedóníu, hafði enginn söfnuður nema þér einir reikning hjá mér yfir gefið og þegið.

4:16b.PHI.004.016 Meira að segja, þegar ég var í Þessaloníku, senduð þér mér oftar en einu sinni til nauðsynja minna.

4:17b.PHI.004.017 Ekki að mér væri svo umhugað um gjöfina sem um ábata þann, sem ríkulega rennur í yðar reikning.

4:18b.PHI.004.018 En nú hef ég fengið allt og hef meira en nóg síðan ég af hendi Epafrodítusar tók við sendingunni frá yður, þægilegum ilm, þekkri fórn, Guði velþóknanlegri.

4:19b.PHI.004.019 En Guð minn mun af auðlegð dýrðar sinnar í Kristi Jesú uppfylla sérhverja þörf yðar.

4:20b.PHI.004.020 Guði og föður vorum sé dýrðin um aldir alda. Amen.

4:21b.PHI.004.021 Heilsið öllum heilögum í Kristi Jesú.

4:22b.PHI.004.022 Bræðurnir, sem hjá mér eru, biðja að heilsa yður. Allir hinir heilögu biðja að heilsa yður, en einkanlega þeir, sem eru í þjónustu keisarans.

4:23b.PHI.004.023 Náðin Drottins Jesú Krists sé með anda yðar.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Philippians (Icelandic). Philippians (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DF2-6