Acts (Icelandic)
1
1:1b.ACT.001.001 Fyrri sögu mína, Þeófílus, samdi ég um allt, sem Jesús gjörði og kenndi frá upphafi,
1:2b.ACT.001.002 allt til þess dags, er hann gaf postulunum, sem hann hafði valið, fyrirmæli sín fyrir heilagan anda og varð upp numinn.
1:3b.ACT.001.003 Þeim birti hann sig lifandi eftir písl sína með mörgum órækum kennimerkjum, lét þá sjá sig í fjörutíu daga og talaði um Guðs ríki.
1:4b.ACT.001.004 Er hann var með þeim, bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem, heldur bíða eftir fyrirheiti föðurins, "sem þér," sagði hann, "hafið heyrt mig tala um.
1:5b.ACT.001.005 Því að Jóhannes skírði með vatni, en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda, nú innan fárra daga."
1:6b.ACT.001.006 Meðan þeir voru saman, spurðu þeir hann: "Herra, ætlar þú á þessum tíma að endurreisa ríkið handa Ísrael?"
1:7b.ACT.001.007 Hann svaraði: "Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn setti af sjálfs sín valdi.
1:8b.ACT.001.008 En þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar."
1:9b.ACT.001.009 Þegar hann hafði þetta mælt, varð hann upp numinn að þeim ásjáandi, og ský huldi hann sjónum þeirra.
1:10b.ACT.001.010 Er þeir störðu til himins á eftir honum, þegar hann hvarf, þá stóðu hjá þeim allt í einu tveir menn í hvítum klæðum
1:11b.ACT.001.011 og sögðu: "Galíleumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem varð upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins."
1:12b.ACT.001.012 Þá sneru þeir aftur til Jerúsalem frá Olíufjallinu, sem svo er nefnt og er í nánd við Jerúsalem, hvíldardagsleið þaðan.
1:13b.ACT.001.013 Er þeir komu þangað, fóru þeir upp í loftstofuna, þar sem þeir dvöldust: Pétur og Jóhannes, Jakob og Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon vandlætari og Júdas Jakobsson.
1:14b.ACT.001.014 Allir þessir voru með einum huga stöðugir í bæninni ásamt konunum. María, móðir Jesú, var líka með þeim og bræður hans.
1:15b.ACT.001.015 Á þessum dögum stóð Pétur upp meðal bræðranna. Þar var saman kominn flokkur manna, um eitt hundrað og tuttugu að tölu. Hann mælti:
1:16b.ACT.001.016 "Bræður, rætast hlaut ritning sú, er heilagur andi sagði fyrir munn Davíðs um Júdas, sem vísaði leið þeim, er tóku Jesú höndum.
1:17b.ACT.001.017 Hann var í vorum hópi, og honum var falin sama þjónusta.
1:18b.ACT.001.018 Hann keypti reit fyrir laun ódæðis síns, steyptist á höfuðið og brast sundur í miðju, svo að iðrin öll féllu út.
1:19b.ACT.001.019 Þetta varð kunnugt öllum Jerúsalembúum, og er reitur sá kallaður á tungu þeirra Akeldamak, það er Blóðreitur.
1:20b.ACT.001.020 Ritað er í Sálmunum: Bústaður hans skal í eyði verða, enginn skal í honum búa, og: Annar taki embætti hans.
1:21b.ACT.001.021 Einhver þeirra manna, sem með oss voru alla tíð, meðan Drottinn Jesús gekk inn og út vor á meðal,
1:22b.ACT.001.022 allt frá skírn Jóhannesar til þess dags, er hann varð upp numinn frá oss, verður nú að gjörast vottur upprisu hans ásamt oss."
1:23b.ACT.001.023 Og þeir tóku tvo til, Jósef, kallaðan Barsabbas, öðru nafni Jústus, og Mattías,
1:24b.ACT.001.024 báðust fyrir og sögðu: "Drottinn, þú sem þekkir hjörtu allra. Sýn þú, hvorn þessara þú hefur valið
1:25b.ACT.001.025 til að taka þessa þjónustu og postuladóm, sem Júdas vék frá til að fara til síns eigin staðar."
1:26b.ACT.001.026 Þeir hlutuðu um þá, og kom upp hlutur Mattíasar. Var hann tekinn í tölu postulanna með þeim ellefu.
10
10:1b.ACT.010.001 Maður nokkur var í Sesareu, Kornelíus að nafni, hundraðshöfðingi í ítölsku hersveitinni.
10:2b.ACT.010.002 Hann var trúmaður og dýrkaði Guð og heimafólk hans allt. Gaf hann lýðnum miklar ölmusur og var jafnan á bæn til Guðs.
10:3b.ACT.010.003 Dag einn um nón sá hann berlega í sýn engil Guðs koma inn til sín, er sagði við hann: "Kornelíus!"
10:4b.ACT.010.004 Hann starði á hann, varð óttasleginn og sagði: "Hvað er það, herra?" Engillinn svaraði: "Bænir þínar og ölmusur eru stignar upp til Guðs, og hann minnist þeirra.
10:5b.ACT.010.005 Send þú nú menn til Joppe og lát sækja Símon nokkurn, er kallast Pétur.
10:6b.ACT.010.006 Hann gistir hjá Símoni nokkrum sútara, sem á hús við sjóinn."
10:7b.ACT.010.007 Þegar engillinn, sem talaði við hann, var farinn, kallaði hann á tvo heimamenn sína og guðrækinn hermann, einn þeirra, er honum voru handgengnir,
10:8b.ACT.010.008 sagði þeim frá öllu og sendi þá til Joppe.
10:9b.ACT.010.009 Daginn eftir, er þeir voru á leiðinni og nálguðust bæinn, gekk Pétur upp á húsþakið um hádegi til að biðjast fyrir.
10:10b.ACT.010.010 Kenndi hann þá hungurs og vildi matast. En meðan verið var að matreiða, varð hann frá sér numinn,
10:11b.ACT.010.011 sá himininn opinn og hlut nokkurn koma niður, líkan stórum dúki. Var hann látinn síga til jarðar á fjórum skautum.
10:12b.ACT.010.012 Þar voru á alls kyns ferfætt dýr, skriðdýr jarðar, svo og fuglar himins.
10:13b.ACT.010.013 Og honum barst rödd: "Slátra nú, Pétur, og et!"
10:14b.ACT.010.014 Pétur sagði: "Nei, Drottinn, engan veginn, aldrei hef ég etið neitt vanheilagt né óhreint."
10:15b.ACT.010.015 Aftur barst honum rödd: "Eigi skalt þú kalla það vanheilagt, sem Guð hefur lýst hreint!"
10:16b.ACT.010.016 Þetta gjörðist þrem sinnum, og jafnskjótt var hluturinn upp numinn til himins.
10:17b.ACT.010.017 Meðan Pétur var að reyna að ráða í, hvað þessi sýn ætti að merkja, höfðu sendimenn Kornelíusar spurt uppi hús Símonar. Nú stóðu þeir fyrir dyrum úti
10:18b.ACT.010.018 og kölluðu: "Er Símon sá, er nefnist Pétur, gestur hér?"
10:19b.ACT.010.019 Pétur var enn að hugsa um sýnina, þegar andinn sagði við hann: "Menn eru að leita þín.
10:20b.ACT.010.020 Flýt þér nú ofan og far hiklaust með þeim, því að ég hef sent þá."
10:21b.ACT.010.021 Pétur gekk þá niður til mannanna og sagði: "Ég er sá sem þér leitið að. Hvers vegna eruð þér komnir hér?"
10:22b.ACT.010.022 Þeir sögðu: "Kornelíus hundraðshöfðingi, réttlátur maður og guðhræddur og orðsæll af allri Gyðinga þjóð, fékk bendingu frá heilögum engli að senda eftir þér og fá þig heim til sín og heyra, hvað þú hefðir að flytja."
10:23b.ACT.010.023 Þá bauð hann þeim inn og lét þá gista. Daginn eftir tók hann sig upp og fór með þeim og nokkrir bræður frá Joppe með honum.
10:24b.ACT.010.024 Næsta dag komu þeir til Sesareu. Kornelíus bjóst við þeim og hafði boðið til sín frændum og virktavinum.
10:25b.ACT.010.025 Þegar Pétur kom, fór Kornelíus á móti honum, féll til fóta honum og veitti honum lotningu.
10:26b.ACT.010.026 Pétur reisti hann upp og sagði: "Statt upp, ég er maður sem þú."
10:27b.ACT.010.027 Og hann ræddi við hann og gekk inn og fann þar marga menn saman komna.
10:28b.ACT.010.028 Hann sagði við þá: "Þér vitið, að Gyðingi er bannað að eiga samneyti við annarrar þjóðar mann eða koma til hans. En Guð hefur sýnt mér, að ég á engan að kalla vanheilagan eða óhreinan.
10:29b.ACT.010.029 Fyrir því kom ég mótmælalaust, er eftir mér var sent. Nú spyr ég, hvers vegna þér senduð eftir mér."
10:30b.ACT.010.030 Kornelíus mælti: "Í þetta mund fyrir fjórum dögum var ég að biðjast fyrir að nóni í húsi mínu. Þá stóð maður frammi fyrir mér í skínandi klæðum
10:31b.ACT.010.031 og mælti: ,Kornelíus, bæn þín er heyrð, og Guð hefur minnst ölmusugjörða þinna.
10:32b.ACT.010.032 Nú skalt þú senda til Joppe eftir Símoni, er kallast Pétur. Hann gistir í húsi Símonar sútara við sjóinn.'
10:33b.ACT.010.033 Því sendi ég jafnskjótt til þín, og vel gjörðir þú að koma. Nú erum vér hér allir fyrir augsýn Guðs til að heyra allt, sem Drottinn hefur boðið þér."
10:34b.ACT.010.034 Þá tók Pétur til máls og sagði: "Sannlega skil ég nú, að Guð fer ekki í manngreinarálit.
10:35b.ACT.010.035 Hann tekur opnum örmum hverjum þeim, sem óttast hann og ástundar réttlæti, hverrar þjóðar sem er.
10:36b.ACT.010.036 Orðið, sem hann sendi börnum Ísraels, þá er hann flutti fagnaðarboðin um frið fyrir Jesú Krist, sem er Drottinn allra, þekkið þér.
10:37b.ACT.010.037 Þér vitið, hvað gjörst hefur um alla Júdeu, en hófst í Galíleu eftir skírnina, sem Jóhannes prédikaði.
10:38b.ACT.010.038 Það er sagan um Jesú frá Nasaret, hvernig Guð smurði hann heilögum anda og krafti. Hann gekk um, gjörði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undirokaðir, því Guð var með honum.
10:39b.ACT.010.039 Vér erum vottar alls þess, er hann gjörði, bæði í landi Gyðinga og í Jerúsalem. Og hann hengdu þeir upp á tré og tóku af lífi.
10:40b.ACT.010.040 En Guð uppvakti hann á þriðja degi og lét hann birtast,
10:41b.ACT.010.041 ekki öllum lýðnum, heldur þeim vottum, sem Guð hafði áður kjörið, oss, sem átum og drukkum með honum, eftir að hann var risinn upp frá dauðum.
10:42b.ACT.010.042 Og hann bauð oss að prédika fyrir lýðnum og vitna, að hann er sá dómari lifenda og dauðra, sem Guð hefur fyrirhugað.
10:43b.ACT.010.043 Honum bera allir spámennirnir vitni, að sérhver, sem á hann trúir, fái fyrir hans nafn fyrirgefningu syndanna."
10:44b.ACT.010.044 Meðan Pétur var enn að mæla þessi orð, kom heilagur andi yfir alla þá, er orðið heyrðu.
10:45b.ACT.010.045 Hinir trúuðu Gyðingar, sem komið höfðu með Pétri, urðu furðu lostnir, að heilögum anda, gjöf Guðs, skyldi einnig úthellt yfir heiðingjana,
10:46b.ACT.010.046 því þeir heyrðu þá tala tungum og mikla Guð.
10:47b.ACT.010.047 Þá mælti Pétur: "Hver getur varnað þess, að þeir verði skírðir í vatni? Þeir hafa fengið heilagan anda sem vér."
10:48b.ACT.010.048 Og hann bauð, að þeir skyldu skírðir verða í nafni Jesú Krists. Síðan báðu þeir hann að standa við í nokkra daga.
11
11:1b.ACT.011.001 En postularnir og bræðurnir í Júdeu heyrðu, að heiðingjarnir hefðu einnig tekið við orði Guðs.
11:2b.ACT.011.002 Þegar Pétur kom upp til Jerúsalem, deildu umskurnarmennirnir á hann og sögðu:
11:3b.ACT.011.003 "Þú hefur farið inn til óumskorinna manna og etið með þeim."
11:4b.ACT.011.004 En Pétur sagði þeim þá alla söguna frá rótum og mælti:
11:5b.ACT.011.005 "Ég var að biðjast fyrir í borginni Joppe og sá, frá mér numinn, sýn, hlut nokkurn koma niður, eins og stór dúkur væri látinn síga á fjórum skautum frá himni, og hann kom til mín.
11:6b.ACT.011.006 Ég starði á hann og hugði að og sá þá ferfætt dýr jarðar, villidýr, skriðdýr og fugla himins,
11:7b.ACT.011.007 og ég heyrði rödd segja við mig: ,Slátra nú, Pétur, og et!'
11:8b.ACT.011.008 En ég sagði: ,Nei, Drottinn, engan veginn, því að aldrei hefur neitt vanheilagt né óhreint komið mér í munn.'
11:9b.ACT.011.009 Í annað sinn sagði rödd af himni: ,Eigi skalt þú kalla það vanheilagt, sem Guð hefur lýst hreint!'
11:10b.ACT.011.010 Þetta gjörðist þrem sinnum, og aftur var allt dregið upp til himins.
11:11b.ACT.011.011 Samstundis stóðu þrír menn við húsið, sem ég var í, sendir til mín frá Sesareu.
11:12b.ACT.011.012 Og andinn sagði mér að fara með þeim hiklaust. Þessir sex bræður urðu mér einnig samferða, og vér gengum inn í hús mannsins.
11:13b.ACT.011.013 Hann sagði oss, hvernig hann hefði séð engil standa í húsi sínu, er sagði: ,Send þú til Joppe og lát sækja Símon, er kallast Pétur.
11:14b.ACT.011.014 Hann mun orð til þín mæla, og fyrir þau munt þú hólpinn verða og allt heimili þitt.'
11:15b.ACT.011.015 En þegar ég var farinn að tala, kom heilagur andi yfir þá, eins og yfir oss í upphafi.
11:16b.ACT.011.016 Ég minntist þá orða Drottins, er hann sagði: ,Jóhannes skírði með vatni, en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda.'
11:17b.ACT.011.017 Fyrst Guð gaf þeim nú sömu gjöf og oss, er vér tókum trú á Drottin Jesú Krist, hvernig var ég þá þess umkominn að standa gegn Guði?"
11:18b.ACT.011.018 Þegar þeir heyrðu þetta, stilltust þeir, og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: "Guð hefur þá einnig gefið heiðingjunum afturhvarf til lífs."
11:19b.ACT.011.019 Þeir, sem dreifst höfðu vegna ofsóknarinnar, sem varð út af Stefáni, fóru allt til Fönikíu, Kýpur og Antíokkíu. En Gyðingum einum fluttu þeir orðið.
11:20b.ACT.011.020 Nokkrir þeirra voru frá Kýpur og Kýrene, og er þeir komu til Antíokkíu, tóku þeir einnig að tala til Grikkja og boða þeim fagnaðarerindið um Drottin Jesú.
11:21b.ACT.011.021 Og hönd Drottins var með þeim, og mikill fjöldi tók trú og sneri sér til Drottins.
11:22b.ACT.011.022 Og fregnin um þá barst til eyrna safnaðarins í Jerúsalem, og þeir sendu Barnabas til Antíokkíu.
11:23b.ACT.011.023 Þegar hann kom og sá verk Guðs náðar, gladdist hann, og hann áminnti alla um að halda sér fast við Drottin af öllu hjarta.
11:24b.ACT.011.024 Því hann var góður maður, fullur af heilögum anda og trú. Og mikill fjöldi manna gafst Drottni.
11:25b.ACT.011.025 Þá fór hann til Tarsus að leita Sál uppi.
11:26b.ACT.011.026 Þegar hann hafði fundið hann, fór hann með hann til Antíokkíu. Þeir voru síðan saman heilt ár í söfnuðinum og kenndu fjölda fólks. Í Antíokkíu voru lærisveinarnir fyrst kallaðir kristnir.
11:27b.ACT.011.027 Á þessum dögum komu spámenn frá Jerúsalem til Antíokkíu.
11:28b.ACT.011.028 Einn þeirra, Agabus að nafni, steig fram, og af gift andans sagði hann fyrir, að mikil hungursneyð mundi koma yfir alla heimsbyggðina. Kom það fram á dögum Kládíusar.
11:29b.ACT.011.029 En lærisveinarnir samþykktu þá, að hver þeirra skyldi eftir efnum senda nokkuð til hjálpar bræðrunum, sem bjuggu í Júdeu.
11:30b.ACT.011.030 Þetta gjörðu þeir og sendu það til öldunganna með þeim Barnabasi og Sál.
12
12:1b.ACT.012.001 Um þessar mundir lét Heródes konungur leggja hendur á nokkra úr söfnuðinum og misþyrma þeim.
12:2b.ACT.012.002 Hann lét höggva Jakob bróður Jóhannesar með sverði.
12:3b.ACT.012.003 Og er hann sá, að Gyðingum líkaði vel, lét hann einnig taka Pétur. Þá voru dagar ósýrðu brauðanna.
12:4b.ACT.012.004 Þegar hann hafði handtekið hann, lét hann setja hann í fangelsi og fól fjórum fjögurra hermanna varðflokkum að gæta hans. Ætlaði hann eftir páska að leiða hann fram fyrir lýðinn.
12:5b.ACT.012.005 Sat nú Pétur í fangelsinu, en söfnuðurinn bað heitt til Guðs fyrir honum.
12:6b.ACT.012.006 Nóttina áður en Heródes ætlaði að leiða hann fram svaf Pétur milli tveggja hermanna, bundinn tveim fjötrum, og varðmenn fyrir dyrum úti gættu fangelsisins.
12:7b.ACT.012.007 Allt í einu stóð engill Drottins hjá honum og ljós skein í klefanum. Laust hann á síðu Pétri, vakti hann og mælti: "Rís upp skjótt!" Og fjötrarnir féllu af höndum hans.
12:8b.ACT.012.008 Þá sagði engillinn við hann: "Gyrð þig og bind á þig skóna!" Hann gjörði svo. Síðan segir engillinn: "Far þú í yfirhöfn þína og fylg mér!"
12:9b.ACT.012.009 Hann gekk út og fylgdi honum. En ekki vissi hann, að það var raunverulegt, sem gjörst hafði við komu engilsins, hann hélt sig sjá sýn.
12:10b.ACT.012.010 Þeir gengu nú fram hjá innri og ytri verðinum og komu að járnhliðinu, sem farið er um til borgarinnar. Laukst það upp af sjálfu sér fyrir þeim. Þeir fóru út um það og gengu eitt stræti, en þá hvarf engillinn allt í einu frá honum.
12:11b.ACT.012.011 Þegar Pétur kom til sjálfs sín, sagði hann: "Nú veit ég sannlega, að Drottinn hefur sent engil sinn og bjargað mér úr hendi Heródesar og frá allri ætlan Gyðingalýðs."
12:12b.ACT.012.012 Og er hann hafði áttað sig, gekk hann að húsi Maríu, móður Jóhannesar, er kallast Markús. Þar höfðu margir safnast saman og voru á bæn.
12:13b.ACT.012.013 Hann knúði hurð fordyrisins, og stúlka að nafni Róde gekk til dyra.
12:14b.ACT.012.014 Þegar hún þekkti málróm Péturs, gáði hún eigi fyrir fögnuði að ljúka upp fordyrinu, heldur hljóp inn og sagði, að Pétur stæði fyrir dyrum úti.
12:15b.ACT.012.015 Þeir sögðu við hana: "Þú ert frávita." En hún stóð fast á því, að svo væri sem hún sagði. "Það er þá engill hans," sögðu þeir.
12:16b.ACT.012.016 En Pétur hélt áfram að berja, og þegar þeir luku upp, sáu þeir hann og urðu furðu lostnir.
12:17b.ACT.012.017 Hann benti þeim með hendinni að vera hljóðir, skýrði þeim frá, hvernig Drottinn hafði leitt hann út úr fangelsinu, og bað þá segja Jakobi og bræðrunum frá þessu. Síðan gekk hann út og fór í annan stað.
12:18b.ACT.012.018 Þegar dagur rann, kom ekki lítið fát á hermennina út af því, hvað af Pétri væri orðið.
12:19b.ACT.012.019 Heródes lét leita hans, en fann hann ekki. Hann lét þá yfirheyra varðmennina og bauð síðan að taka þá af lífi. Síðan fór hann úr Júdeu niður til Sesareu og sat þar um kyrrt.
12:20b.ACT.012.020 Heródes hafði verið harla gramur Týrverjum og Sídóningum. Komu þeir saman á fund hans, fengu Blastus, stallara konungs, til fylgis við sig og báðust friðar, en land þeirra var háð landi konungs um vistaföng.
12:21b.ACT.012.021 Á tilsettum degi klæddist Heródes konungsskrúða, settist í hásæti og flutti þeim ræðu.
12:22b.ACT.012.022 En lýðurinn kallaði: "Guðs rödd er þetta, en eigi manns."
12:23b.ACT.012.023 Jafnskjótt laust engill Drottins hann, sökum þess að hann gaf ekki Guði dýrðina. Hann varð ormétinn og dó.
12:24b.ACT.012.024 En orð Guðs efldist og breiddist út.
12:25b.ACT.012.025 Barnabas og Sál sneru aftur frá Jerúsalem að loknu erindi sínu og tóku með sér Jóhannes, öðru nafni Markús.
13
13:1b.ACT.013.001 Í söfnuðinum í Antíokkíu voru spámenn og kennarar. Þar voru þeir Barnabas, Símeon, nefndur Níger, Lúkíus frá Kýrene, Manaen, samfóstri Heródesar fjórðungsstjóra, og Sál.
13:2b.ACT.013.002 Eitt sinn er þeir voru að þjóna Drottni og föstuðu sagði heilagur andi: "Skiljið frá mér til handa þá Barnabas og Sál til þess verks, sem ég hef kallað þá til."
13:3b.ACT.013.003 Síðan föstuðu þeir og báðust fyrir, lögðu hendur yfir þá og létu þá fara.
13:4b.ACT.013.004 Þeir fóru nú, sendir af heilögum anda, til Selevkíu og sigldu þaðan til Kýpur.
13:5b.ACT.013.005 Þegar þeir voru komnir til Salamis, boðuðu þeir orð Guðs í samkunduhúsum Gyðinga. Höfðu þeir og Jóhannes til aðstoðar.
13:6b.ACT.013.006 Þeir fóru um alla eyna, allt til Pafos. Þar fundu þeir töframann nokkurn og falsspámann, Gyðing, er hét Barjesús.
13:7b.ACT.013.007 Hann var hjá landstjóranum Sergíusi Páli, hyggnum manni, sem hafði boðað þá Barnabas og Sál á fund sinn og fýsti að heyra Guðs orð.
13:8b.ACT.013.008 Gegn þeim stóð Elýmas, töframaðurinn, en svo er nafn hans útlagt. Reyndi hann að gjöra landstjórann fráhverfan trúnni.
13:9b.ACT.013.009 En Sál, sem og er nefndur Páll, hvessti á hann augun og sagði, fylltur heilögum anda:
13:10b.ACT.013.010 "Þú djöfuls sonur, fullur allra véla og flærðar, óvinur alls réttlætis, ætlar þú aldrei að hætta að rangsnúa réttum vegum Drottins?
13:11b.ACT.013.011 Nú er hönd Drottins reidd gegn þér, og þú munt verða blindur og ekki sjá sól um tíma." Jafnskjótt féll yfir hann þoka og myrkur, og hann reikaði um og leitaði einhvers til að leiða sig.
13:12b.ACT.013.012 Þegar landstjórinn sá þennan atburð, varð hann gagntekinn af kenningu Drottins og tók trú.
13:13b.ACT.013.013 Þeir Páll lögðu út frá Pafos og komu til Perge í Pamfýlíu, en Jóhannes skildi við þá og sneri aftur til Jerúsalem.
13:14b.ACT.013.014 Sjálfir héldu þeir áfram frá Perge og komu til Antíokkíu í Pisidíu, gengu á hvíldardegi inn í samkunduhúsið og settust.
13:15b.ACT.013.015 En eftir upplestur úr lögmálinu og spámönnunum sendu samkundustjórarnir til þeirra og sögðu: "Bræður, ef þér hafið einhver hvatningarorð til fólksins, takið þá til máls."
13:16b.ACT.013.016 Þá stóð Páll upp, benti til hljóðs með hendinni og sagði: "Ísraelsmenn og aðrir þér, sem óttist Guð, hlýðið á.
13:17b.ACT.013.017 Guð lýðs þessa, Ísraels, útvaldi feður vora og hóf upp lýðinn í útlegðinni í Egyptalandi. Með upplyftum armi leiddi hann þá út þaðan.
13:18b.ACT.013.018 Og um fjörutíu ára skeið fóstraði hann þá í eyðimörkinni.
13:19b.ACT.013.019 Hann stökkti burt sjö þjóðum úr Kanaanslandi og gaf þeim land þeirra til eignar.
13:20b.ACT.013.020 Svo stóð um fjögur hundruð og fimmtíu ára skeið. Eftir þetta gaf hann þeim dómara allt til Samúels spámanns.
13:21b.ACT.013.021 Síðan báðu þeir um konung, og Guð gaf þeim Sál Kísson, mann af Benjamíns ætt. Hann ríkti í fjörutíu ár.
13:22b.ACT.013.022 Þegar Guð hafði sett hann af, hóf hann Davíð til konungs yfir þeim. Um hann vitnaði hann: ,Ég hef fundið Davíð, son Ísaí, mann eftir mínu hjarta, er gjöra mun allan vilja minn.'
13:23b.ACT.013.023 Af kyni hans sendi Guð Ísrael frelsara, Jesú, samkvæmt fyrirheiti.
13:24b.ACT.013.024 En áður en hann kom fram, boðaði Jóhannes öllum Ísraelslýð iðrunarskírn.
13:25b.ACT.013.025 Þegar Jóhannes var að enda skeið sitt, sagði hann: ,Hvern hyggið þér mig vera? Ekki er ég hann. Annar kemur eftir mig, og er ég eigi verður þess að leysa skó af fótum honum.'
13:26b.ACT.013.026 Bræður, niðjar Abrahams, og aðrir yðar á meðal, sem óttist Guð, oss er sent orð þessa hjálpræðis.
13:27b.ACT.013.027 Þeir, sem í Jerúsalem búa, og höfðingjar þeirra þekktu hann eigi né skildu orð spámannanna, sem upp eru lesin hvern hvíldardag, en uppfylltu þau með því að dæma hann.
13:28b.ACT.013.028 Þótt þeir fyndu enga dauðasök hjá honum, báðu þeir Pílatus að láta lífláta hann.
13:29b.ACT.013.029 En er þeir höfðu fullnað allt, sem um hann var ritað, tóku þeir hann ofan af krossinum og lögðu í gröf.
13:30b.ACT.013.030 En Guð vakti hann frá dauðum.
13:31b.ACT.013.031 Marga daga birtist hann þeim, sem með honum fóru frá Galíleu upp til Jerúsalem, og eru þeir nú vottar hans hjá fólkinu.
13:32b.ACT.013.032 Og vér flytjum yður þau gleðiboð,
13:33b.ACT.013.033 að fyrirheitið, sem Guð gaf feðrum vorum, hefur hann efnt við oss börn þeirra með því að reisa Jesú upp. Svo er ritað í öðrum sálminum: Þú ert sonur minn, í dag hef ég fætt þig.
13:34b.ACT.013.034 En um það, að hann reisti hann frá dauðum, svo að hann hverfur aldrei aftur í greipar dauðans, hefur hann talað þannig: Yður mun ég veita heilögu, óbrigðulu fyrirheitin, sem Davíð voru gefin.
13:35b.ACT.013.035 Á öðrum stað segir: Eigi munt þú láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.
13:36b.ACT.013.036 Davíð þjónaði sinni kynslóð að Guðs ráði. Síðan sofnaði hann, safnaðist til feðra sinna og varð rotnun að bráð.
13:37b.ACT.013.037 En sá, sem Guð uppvakti, varð ekki rotnun að bráð.
13:38b.ACT.013.038 Það skuluð þér því vita, bræður, að yður er fyrir hann boðuð fyrirgefning syndanna
13:39b.ACT.013.039 og að sérhver, er trúir, réttlætist í honum af öllu því, er lögmál Móse gat ekki réttlætt yður af.
13:40b.ACT.013.040 Gætið nú þess, að eigi komi það yfir yður, sem sagt er hjá spámönnunum:
13:41b.ACT.013.041 Sjáið, þér spottarar, undrist, og verðið að engu, því að verk vinn ég á dögum yðar, verk, sem þér alls ekki munduð trúa, þótt einhver segði yður frá því."
13:42b.ACT.013.042 Þegar þeir gengu út, báðu menn um, að mál þetta yrði rætt við þá aftur næsta hvíldardag.
13:43b.ACT.013.043 Og er samkomunni var slitið, fylgdu margir Gyðingar og guðræknir menn, sem tekið höfðu trú Gyðinga, þeim Páli og Barnabasi. En þeir töluðu við þá og brýndu fyrir þeim að halda sér fast við náð Guðs.
13:44b.ACT.013.044 Næsta hvíldardag komu nálega allir bæjarmenn saman til að heyra orð Drottins.
13:45b.ACT.013.045 En er Gyðingar litu mannfjöldann, fylltust þeir ofstæki og mæltu gegn orðum Páls með guðlasti.
13:46b.ACT.013.046 Páll og Barnabas svöruðu þá einarðlega: "Svo hlaut að vera, að orð Guðs væri fyrst flutt yður. Þar sem þér nú vísið því á bug og metið sjálfa yður ekki verða eilífs lífs, þá snúum vér oss nú til heiðingjanna.
13:47b.ACT.013.047 Því að svo hefur Drottinn boðið oss: Ég hef sett þig til að vera ljós heiðinna þjóða, að þú sért hjálpræði allt til endimarka jarðar."
13:48b.ACT.013.048 En er heiðingjar heyrðu þetta, glöddust þeir og vegsömuðu orð Guðs, og allir þeir, sem ætlaðir voru til eilífs lífs, tóku trú.
13:49b.ACT.013.049 Og orð Drottins breiddist út um allt héraðið.
13:50b.ACT.013.050 En Gyðingar æstu upp guðræknar hefðarkonur og fyrirmenn borgarinnar og vöktu ofsókn gegn Páli og Barnabasi og ráku þá burt úr byggðum sínum.
13:51b.ACT.013.051 En þeir hristu dustið af fótum sér móti þeim og fóru til Íkóníum.
13:52b.ACT.013.052 En lærisveinarnir voru fylltir fögnuði og heilögum anda.
14
14:1b.ACT.014.001 Í Íkóníum gengu þeir á sama hátt inn í samkundu Gyðinga og töluðu þannig, að mikill fjöldi Gyðinga og Grikkja tók trú.
14:2b.ACT.014.002 En vantrúa Gyðingar vöktu æsing með heiðingjum og illan hug gegn bræðrunum.
14:3b.ACT.014.003 Dvöldust þeir þar alllangan tíma og töluðu djarflega í trausti til Drottins, sem staðfesti orð náðar sinnar með því að láta tákn og undur gerast fyrir hendur þeirra.
14:4b.ACT.014.004 Skiptust nú borgarbúar í tvo flokka, og voru sumir með Gyðingum, aðrir með postulunum.
14:5b.ACT.014.005 Heiðingjar og Gyðingar gjörðu ásamt yfirvöldum sínum samblástur um að misþyrma þeim og grýta þá.
14:6b.ACT.014.006 Þeir komust að þessu og flýðu til borganna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu og héraðsins umhverfis.
14:7b.ACT.014.007 Þar héldu þeir áfram að flytja fagnaðarerindið.
14:8b.ACT.014.008 Í Lýstru var maður nokkur máttvana í fótum, lami frá móðurlífi, og hafði aldrei getað gengið.
14:9b.ACT.014.009 Maður þessi heyrði á mál Páls, en Páll horfði á hann og sá, að hann hafði trú til þess að verða heill,
14:10b.ACT.014.010 og sagði hárri raustu: "Rís upp og stattu í fæturna!" Hann spratt upp og tók að ganga.
14:11b.ACT.014.011 Múgurinn sá, hvað Páll hafði gjört, og tók að hrópa á lýkaónsku: "Guðirnir eru í manna líki stignir niður til vor."
14:12b.ACT.014.012 Kölluðu þeir Barnabas Seif, en Pál Hermes, því að hann hafði orð fyrir þeim.
14:13b.ACT.014.013 En prestur í hofi Seifs utan borgar kom með naut og kransa að borgarhliðunum og vildi færa fórnir ásamt fólkinu.
14:14b.ACT.014.014 Þegar postularnir, Barnabas og Páll, heyrðu þetta, rifu þeir klæði sín, stukku inn í mannþröngina og hrópuðu:
14:15b.ACT.014.015 "Menn, hví gjörið þér þetta? Menn erum vér sem þér, yðar líkar, og flytjum yður þau fagnaðarboð, að þér skuluð hverfa frá þessum fánýtu goðum til lifanda Guðs, sem skapaði himin, jörð og haf og allt, sem í þeim er.
14:16b.ACT.014.016 Hann hefur um liðnar aldir leyft, að sérhver þjóð gengi sína vegu.
14:17b.ACT.014.017 En þó hefur hann vitnað um sjálfan sig með velgjörðum sínum. Hann hefur gefið yður regn af himni og uppskerutíðir. Hann hefur veitt yður fæðu og fyllt hjörtu yðar gleði."
14:18b.ACT.014.018 Með þessum orðum fengu þeir með naumindum fólkið ofan af því að færa þeim fórnir.
14:19b.ACT.014.019 Þá komu Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Töldu þeir fólkið á sitt mál, og menn grýttu Pál, drógu hann út úr borginni og hugðu hann dáinn.
14:20b.ACT.014.020 En lærisveinarnir slógu hring um hann, og reis hann þá upp og gekk inn í borgina. Daginn eftir fór hann þaðan með Barnabasi til Derbe.
14:21b.ACT.014.021 Þegar þeir höfðu boðað fagnaðarerindið í þeirri borg og gjört marga að lærisveinum, sneru þeir aftur til Lýstru, Íkóníum og Antíokkíu,
14:22b.ACT.014.022 styrktu lærisveinana og hvöttu þá til að vera staðfastir í trúnni. Þeir sögðu: "Vér verðum að ganga inn í Guðs ríki gegnum margar þrengingar."
14:23b.ACT.014.023 Þeir völdu þeim öldunga í hverjum söfnuði, fólu þá síðan með föstum og bænahaldi Drottni, sem þeir höfðu fest trú á.
14:24b.ACT.014.024 Þá fóru þeir um Pisidíu og komu til Pamfýlíu.
14:25b.ACT.014.025 Þeir fluttu orðið í Perge, fóru til Attalíu
14:26b.ACT.014.026 og sigldu þaðan til Antíokkíu, en þar höfðu þeir verið faldir náð Guðs til þess verks, sem þeir höfðu nú fullnað.
14:27b.ACT.014.027 Þegar þeir voru þangað komnir, stefndu þeir saman söfnuðinum og greindu frá, hversu mikið Guð hafði látið þá gjöra og að hann hefði upp lokið dyrum trúarinnar fyrir heiðingjum.
14:28b.ACT.014.028 Dvöldust þeir nú alllengi hjá lærisveinunum.
15
15:1b.ACT.015.001 Þá komu menn sunnan frá Júdeu og kenndu bræðrunum svo: "Eigi getið þér hólpnir orðið, nema þér látið umskerast að sið Móse."
15:2b.ACT.015.002 Varð mikil misklíð og þræta milli þeirra og Páls og Barnabasar, og réðu menn af, að Páll og Barnabas og nokkrir þeirra aðrir færu á fund postulanna og öldunganna upp til Jerúsalem vegna þessa ágreinings.
15:3b.ACT.015.003 Söfnuðurinn bjó síðan ferð þeirra, og fóru þeir um Fönikíu og Samaríu og sögðu frá afturhvarfi heiðingjanna og vöktu mikinn fögnuð meðal allra bræðranna.
15:4b.ACT.015.004 Þegar þeir komu til Jerúsalem, tók söfnuðurinn á móti þeim og postularnir og öldungarnir, og skýrðu þeir frá, hversu mikið Guð hefði látið þá gjöra.
15:5b.ACT.015.005 Þá risu upp nokkrir úr flokki farísea, er trú höfðu tekið, og sögðu: "Þá ber að umskera og bjóða þeim að halda lögmál Móse."
15:6b.ACT.015.006 Postularnir og öldungarnir komu nú saman til að líta á þetta mál.
15:7b.ACT.015.007 Eftir mikla umræðu reis Pétur upp og sagði við þá: "Bræður, þér vitið, að Guð kaus sér það fyrir löngu yðar á meðal, að heiðingjarnir skyldu fyrir munn minn heyra orð fagnaðarerindisins og taka trú.
15:8b.ACT.015.008 Og Guð, sem hjörtun þekkir, bar þeim vitni, er hann gaf þeim heilagan anda eins og oss.
15:9b.ACT.015.009 Engan mun gjörði hann á oss og þeim, er hann hreinsaði hjörtu þeirra með trúnni.
15:10b.ACT.015.010 Hví freistið þér nú Guðs með því að leggja ok á háls lærisveinanna, er hvorki feður vorir né vér megnuðum að bera?
15:11b.ACT.015.011 Vér trúum þó því, að vér verðum hólpnir fyrir náð Drottins Jesú á sama hátt og þeir."
15:12b.ACT.015.012 Þá sló þögn á allan hópinn, og menn hlýddu á Barnabas og Pál, er þeir sögðu frá, hve mörg tákn og undur Guð hafði látið þá gjöra meðal heiðingjanna.
15:13b.ACT.015.013 Þegar þeir höfðu lokið máli sínu, sagði Jakob: "Bræður, hlýðið á mig.
15:14b.ACT.015.014 Símon hefur skýrt frá, hvernig Guð sá til þess í fyrstu, að hann eignaðist lýð meðal heiðinna þjóða, er bæri nafn hans.
15:15b.ACT.015.015 Í samræmi við þetta eru orð spámannanna, svo sem ritað er:
15:16b.ACT.015.016 Eftir þetta mun ég aftur koma og endurreisa hina föllnu tjaldbúð Davíðs. Ég mun reisa hana úr rústum og gjöra hana upp aftur,
15:17b.ACT.015.017 svo að mennirnir, sem eftir eru, leiti Drottins, allir heiðingjarnir, sem nafn mitt hefur verið nefnt yfir, segir Drottinn, sem gjörir þetta
15:18b.ACT.015.018 kunnugt frá eilífð.
15:19b.ACT.015.019 Ég lít því svo á, að eigi skuli íþyngja heiðingjum þeim, er snúa sér til Guðs,
15:20b.ACT.015.020 heldur rita þeim, að þeir haldi sér frá öllu, sem flekkað er af skurðgoðum, frá saurlifnaði, frá kjöti af köfnuðum dýrum og frá blóði.
15:21b.ACT.015.021 Frá fornu fari hafa menn prédikað Móse í öllum borgum. Hann er lesinn upp í samkundunum hvern hvíldardag."
15:22b.ACT.015.022 Postularnir og öldungarnir, ásamt öllum söfnuðinum, samþykktu þá að kjósa menn úr sínum hópi og senda með Páli og Barnabasi til Antíokkíu þá Júdas, er kallaður var Barsabbas, og Sílas, forystumenn meðal bræðranna.
15:23b.ACT.015.023 Þeir rituðu með þeim: "Postularnir og öldungarnir, bræður yðar, senda bræðrunum í Antíokkíu, Sýrlandi og Kilikíu, er áður voru heiðnir, kveðju sína.
15:24b.ACT.015.024 Vér höfum heyrt, að nokkrir frá oss hafi óróað yður með orðum sínum og komið róti á hugi yðar, án þess vér hefðum þeim neitt um boðið.
15:25b.ACT.015.025 Því höfum vér einróma ályktað að kjósa menn og senda til yðar með vorum elskuðu Barnabasi og Páli,
15:26b.ACT.015.026 mönnum, er lagt hafa líf sitt í hættu vegna nafns Drottins vors Jesú Krists.
15:27b.ACT.015.027 Vér sendum því Júdas og Sílas, og boða þeir yður munnlega hið sama.
15:28b.ACT.015.028 Það er ályktun heilags anda og vor að leggja ekki frekari byrðar á yður en þetta, sem nauðsynlegt er,
15:29b.ACT.015.029 að þér haldið yður frá kjöti fórnuðu skurðgoðum, blóði, kjöti af köfnuðum dýrum og saurlifnaði. Ef þér varist þetta, gjörið þér vel. Verið sælir."
15:30b.ACT.015.030 Þeir voru nú sendir af stað og komu norður til Antíokkíu, kölluðu saman söfnuðinn og skiluðu bréfinu.
15:31b.ACT.015.031 En er menn lásu það, urðu þeir glaðir yfir þessari uppörvun.
15:32b.ACT.015.032 Júdas og Sílas, sem sjálfir voru spámenn, hvöttu bræðurna með mörgum orðum og styrktu þá.
15:33b.ACT.015.033 Þegar þeir höfðu dvalist þar um hríð, kvöddu þeir bræðurna og báðu þeim friðar og héldu aftur til þeirra, sem höfðu sent þá.
15:34b.ACT.015.034 (OMITTED TEXT)
15:35b.ACT.015.035 En Páll og Barnabas héldu kyrru fyrir í Antíokkíu, kenndu og boðuðu ásamt mörgum öðrum orð Drottins.
15:36b.ACT.015.036 Eftir nokkra daga sagði Páll við Barnabas: "Förum nú aftur og vitjum bræðranna í hverri borg, þar sem vér höfum boðað orð Drottins, og sjáum, hvað þeim líður."
15:37b.ACT.015.037 Barnabas vildi þá líka taka með Jóhannes, er kallaður var Markús.
15:38b.ACT.015.038 En Páli þótti eigi rétt að taka með þann mann, er skilið hafði við þá í Pamfýlíu og ekki gengið að verki með þeim.
15:39b.ACT.015.039 Varð þeim mjög sundurorða, og skildi þar með þeim. Tók Barnabas Markús með sér og sigldi til Kýpur.
15:40b.ACT.015.040 En Páll kaus sér Sílas og fór af stað, og fólu bræðurnir hann náð Drottins.
15:41b.ACT.015.041 Fór hann um Sýrland og Kilikíu og styrkti söfnuðina.
16
16:1b.ACT.016.001 Hann kom til Derbe og Lýstru. Þar var lærisveinn nokkur, Tímóteus að nafni, sonur trúaðrar konu af Gyðinga ætt, en faðir hans var grískur.
16:2b.ACT.016.002 Bræðurnir í Lýstru og Íkóníum báru honum gott orð.
16:3b.ACT.016.003 Páll vildi hafa hann með sér og umskar hann sökum Gyðinga, er voru í þeim byggðum, því að allir vissu þeir, að faðir hans var grískur.
16:4b.ACT.016.004 Þeir fóru nú um borgirnar, fluttu mönnum þær ályktanir, sem postularnir og öldungarnir í Jerúsalem höfðu samþykkt, og buðu að varðveita þær.
16:5b.ACT.016.005 En söfnuðirnir styrktust í trúnni og urðu fjölmennari dag frá degi.
16:6b.ACT.016.006 Þeir fóru um Frýgíu og Galataland, því heilagur andi varnaði þeim að boða orðið í Asíu.
16:7b.ACT.016.007 Og sem þeir voru komnir að Mýsíu, reyndu þeir að fara til Biþýníu, en andi Jesú leyfði það eigi.
16:8b.ACT.016.008 Þeir fóru þá um Mýsíu og komu niður til Tróas.
16:9b.ACT.016.009 Um nóttina birtist Páli sýn: Maður nokkur makedónskur stóð hjá honum og bað hann: "Kom yfir til Makedóníu og hjálpa oss!"
16:10b.ACT.016.010 En jafnskjótt og hann hafði séð þessa sýn, leituðum vér færis að komast til Makedóníu, þar sem vér skildum, að Guð hafði kallað oss til þess að flytja þeim fagnaðarerindið.
16:11b.ACT.016.011 Nú lögðum vér út frá Tróas og sigldum beint til Samóþrake, en næsta dag til Neapólis
16:12b.ACT.016.012 og þaðan til Filippí. Hún er helsta borg í þessum hluta Makedóníu, rómversk nýlenda. Í þeirri borg dvöldumst vér nokkra daga.
16:13b.ACT.016.013 Hvíldardaginn gengum vér út fyrir hliðið að á einni, en þar hugðum vér vera bænastað. Settumst vér niður og töluðum við konurnar, sem voru þar saman komnar.
16:14b.ACT.016.014 Kona nokkur guðrækin úr Þýatíruborg, Lýdía að nafni, er verslaði með purpura, hlýddi á. Opnaði Drottinn hjarta hennar, og hún tók við því, sem Páll sagði.
16:15b.ACT.016.015 Hún var skírð og heimili hennar og hún bað oss: "Gangið inn í hús mitt og dveljist þar, fyrst þér teljið mig trúa á Drottin." Þessu fylgdi hún fast fram.
16:16b.ACT.016.016 Eitt sinn, er vér gengum til bænastaðarins, mætti oss ambátt nokkur, sem hafði spásagnaranda og aflaði húsbændum sínum mikils gróða með því að spá.
16:17b.ACT.016.017 Hún elti Pál og oss og hrópaði: "Menn þessir eru þjónar Guðs hins hæsta, og boða þeir yður veg til hjálpræðis!"
16:18b.ACT.016.018 Þetta gjörði hún dögum saman. Páli féll það illa. Loks sneri hann sér við og sagði við andann: "Ég býð þér í nafni Jesú Krists að fara út af henni." Og hann fór út á samri stundu.
16:19b.ACT.016.019 Nú sem húsbændur hennar sáu, að þar fór ábatavon þeirra, gripu þeir Pál og Sílas og drógu þá á torgið fyrir valdsmennina.
16:20b.ACT.016.020 Þeir færðu þá til höfuðsmannanna og sögðu: "Menn þessir gjöra mestu óspektir í borg vorri. Þeir eru Gyðingar
16:21b.ACT.016.021 og boða siði, sem oss, rómverskum mönnum, leyfist hvorki að þýðast né fylgja."
16:22b.ACT.016.022 Múgurinn réðst og gegn þeim, og höfuðsmennirnir létu fletta þá klæðum og skipuðu að húðstrýkja þá.
16:23b.ACT.016.023 Og er þeir höfðu lostið þá mörg högg, vörpuðu þeir þeim í fangelsi og buðu fangaverðinum að gæta þeirra vandlega.
16:24b.ACT.016.024 Þegar hann hafði fengið slíka skipun, varpaði hann þeim í innsta fangelsið og felldi stokk á fætur þeim.
16:25b.ACT.016.025 Um miðnætti báðust þeir Páll og Sílas fyrir og lofsungu Guði, en bandingjarnir hlustuðu á þá.
16:26b.ACT.016.026 Þá varð skyndilega landskjálfti mikill, svo að grunnur fangelsisins riðaði. Jafnskjótt opnuðust allar dyr, og fjötrarnir féllu af öllum.
16:27b.ACT.016.027 Fangavörðurinn vaknaði við, og er hann sá fangelsisdyrnar opnar, dró hann sverð sitt og vildi fyrirfara sér, þar eð hann hugði fangana flúna.
16:28b.ACT.016.028 Þá kallaði Páll hárri raustu: "Gjör þú sjálfum þér ekkert mein, vér erum hér allir!"
16:29b.ACT.016.029 En hann bað um ljós, stökk inn og féll óttasleginn til fóta Páli og Sílasi.
16:30b.ACT.016.030 Síðan leiddi hann þá út og sagði: "Herrar mínir, hvað á ég að gjöra til að verða hólpinn?"
16:31b.ACT.016.031 En þeir sögðu: "Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt."
16:32b.ACT.016.032 Og þeir fluttu honum orð Drottins og öllum á heimili hans.
16:33b.ACT.016.033 Á þessari sömu næturstund tók hann þá með sér og laugaði meiðsli þeirra eftir höggin, og var hann þegar skírður og allt hans fólk.
16:34b.ACT.016.034 Síðan fór hann með þá upp í hús sitt, bar þeim mat, og var hann og allt heimafólk hans fagnandi yfir því að hafa tekið trú á Guð.
16:35b.ACT.016.035 Þegar dagur rann, sendu höfuðsmennirnir vandsveina og sögðu: "Lát þú menn þessa lausa."
16:36b.ACT.016.036 Fangavörðurinn flutti Páli þessi orð: "Höfuðsmennirnir hafa sent boð um, að þið skuluð látnir lausir. Gangið nú út og farið í friði."
16:37b.ACT.016.037 En Páll sagði við þá: "Þeir hafa opinberlega látið húðstrýkja okkur, rómverska menn, án dóms og laga og varpa í fangelsi, og nú ætla þeir leynilega að hleypa okkur út. Ég held nú síður. Þeir skulu koma sjálfir og leiða okkur út."
16:38b.ACT.016.038 Vandsveinarnir fluttu höfuðsmönnunum þessi orð. En þeir urðu hræddir, er þeir heyrðu, að þeir væru rómverskir,
16:39b.ACT.016.039 og komu og friðmæltust við þá, leiddu þá út og báðu þá að fara burt úr borginni.
16:40b.ACT.016.040 Þegar þeir voru komnir út úr fangelsinu, fóru þeir heim til Lýdíu, fundu bræðurna og hughreystu þá. Síðan héldu þeir af stað.
17
17:1b.ACT.017.001 Þeir fóru nú um Amfípólis og Apollóníu og komu til Þessaloníku. Þar áttu Gyðingar samkundu.
17:2b.ACT.017.002 Eftir venju sinni gekk Páll inn til þeirra, og þrjá hvíldardaga ræddi hann við þá og lagði út af ritningunum,
17:3b.ACT.017.003 lauk þeim upp fyrir þeim og setti þeim fyrir sjónir, að Kristur átti að líða og rísa upp frá dauðum. Hann sagði: "Jesús, sem ég boða yður, hann er Kristur."
17:4b.ACT.017.004 Nokkrir þeirra létu sannfærast og gengu til fylgis við Pál og Sílas, auk þess mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og mikilsháttar konur eigi allfáar.
17:5b.ACT.017.005 En Gyðingar fylltust afbrýði og fengu með sér götuskríl, æstu til uppþota og hleyptu borginni í uppnám. Þustu þeir að húsi Jasonar og vildu færa þá fyrir lýðinn.
17:6b.ACT.017.006 En þegar þeir fundu þá ekki, drógu þeir Jason og nokkra bræður fyrir borgarstjórana og hrópuðu: "Mennirnir, sem komið hafa allri heimsbyggðinni í uppnám, þeir eru nú komnir hingað,
17:7b.ACT.017.007 og Jason hefur tekið á móti þeim. Allir þessir breyta gegn boðum keisarans, því þeir segja, að annar sé konungur og það sé Jesús."
17:8b.ACT.017.008 Og þeir vöktu óhug með fólkinu og einnig borgarstjórunum með þessum orðum.
17:9b.ACT.017.009 Slepptu þeir ekki þeim Jasoni fyrr en þeir höfðu látið þá setja tryggingu.
17:10b.ACT.017.010 En bræðurnir sendu þá Pál og Sílas þegar um nóttina til Beroju. Þegar þeir komu þangað, gengu þeir inn í samkunduhús Gyðinga.
17:11b.ACT.017.011 Þeir voru veglyndari þar en í Þessaloníku. Þeir tóku við orðinu með allri góðfýsi og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig farið.
17:12b.ACT.017.012 Margir þeirra tóku trú og einnig Grikkir ekki allfáir, tignar konur og karlar.
17:13b.ACT.017.013 En er Gyðingar í Þessaloníku fréttu, að Páll hefði einnig boðað orð Guðs í Beroju, komu þeir og hleyptu líka ólgu og æsingu í múginn þar.
17:14b.ACT.017.014 Þá sendu bræðurnir jafnskjótt með Pál af stað til sjávar, en Sílas og Tímóteus urðu eftir.
17:15b.ACT.017.015 Leiðsögumenn Páls fylgdu honum allt til Aþenu og sneru aftur með boð til Sílasar og Tímóteusar að koma hið bráðasta til hans.
17:16b.ACT.017.016 Meðan Páll beið þeirra í Aþenu, var honum mikil skapraun að sjá, að borgin var full af skurðgoðum.
17:17b.ACT.017.017 Hann ræddi þá í samkundunni við Gyðinga og guðrækna menn, og hvern dag á torginu við þá, sem urðu á vegi hans.
17:18b.ACT.017.018 En nokkrir heimspekingar, Epíkúringar og Stóumenn, áttu og í orðakasti við hann. Sögðu sumir: "Hvað mun skraffinnur sá hafa að flytja?" Aðrir sögðu: "Hann virðist boða ókennda guði," - því að hann flutti fagnaðarerindið um Jesú og upprisuna.
17:19b.ACT.017.019 Og þeir tóku hann og fóru með hann á Aresarhæð og sögðu: "Getum vér fengið að vita, hver þessi nýja kenning er, sem þú ferð með?
17:20b.ACT.017.020 Því að eitthvað nýstárlegt flytur þú oss til eyrna, og oss fýsir að vita, hvað þetta er."
17:21b.ACT.017.021 En allir Aþeningar og aðkomumenn þar gáfu sér ekki tóm til annars fremur en að segja eða heyra einhver nýmæli.
17:22b.ACT.017.022 Þá sté Páll fram á miðri Aresarhæð og tók til máls: "Aþeningar, þér komið mér svo fyrir sjónir, að þér séuð í öllum greinum miklir trúmenn,
17:23b.ACT.017.023 því að ég gekk hér um og hugði að helgidómum yðar og fann þá meðal annars altari, sem á er ritað: ,Ókunnum guði'. Þetta, sem þér nú dýrkið og þekkið ekki, það boða ég yður.
17:24b.ACT.017.024 Guð, sem skóp heiminn og allt, sem í honum er, hann, sem er herra himins og jarðar, býr ekki í musterum, sem með höndum eru gjörð.
17:25b.ACT.017.025 Ekki verður honum heldur þjónað með höndum manna, eins og hann þyrfti nokkurs við, þar sem hann sjálfur gefur öllum líf og anda og alla hluti.
17:26b.ACT.017.026 Hann skóp og af einum allar þjóðir manna og lét þær byggja allt yfirborð jarðar, er hann hafði ákveðið setta tíma og mörk bólstaða þeirra.
17:27b.ACT.017.027 Hann vildi, að þær leituðu Guðs, ef verða mætti þær þreifuðu sig til hans og fyndu hann. En eigi er hann langt frá neinum af oss.
17:28b.ACT.017.028 Í honum lifum, hrærumst og erum vér. Svo hafa og sum skáld yðar sagt: ,Því að vér erum líka hans ættar.'
17:29b.ACT.017.029 Fyrst vér erum nú Guðs ættar, megum vér eigi ætla, að guðdómurinn sé líkur smíði af gulli, silfri eða steini, gjörðri með hagleik og hugviti manna.
17:30b.ACT.017.030 Guð, sem hefur umborið tíðir vanviskunnar, boðar nú mönnunum, að þeir skuli allir hvarvetna taka sinnaskiptum,
17:31b.ACT.017.031 því að hann hefur sett dag, er hann mun láta mann, sem hann hefur fyrirhugað, dæma heimsbyggðina með réttvísi. Þetta hefur hann sannað öllum mönnum með því að reisa hann frá dauðum."
17:32b.ACT.017.032 Þegar þeir heyrðu nefnda upprisu dauðra, gjörðu sumir gys að, en aðrir sögðu: "Vér munum hlusta á þetta hjá þér öðru sinni."
17:33b.ACT.017.033 Þannig skildi Páll við þá.
17:34b.ACT.017.034 En nokkrir menn slógust í fylgd hans. Þeir tóku trú. Meðal þeirra var Díónýsíus, einn úr Areopagus-dóminum, og kona nokkur, Damaris að nafni, og aðrir fleiri.
18
18:1b.ACT.018.001 Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu.
18:2b.ACT.018.002 Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans, en Kládíus hafði skipað svo fyrir, að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Páll fór til þeirra,
18:3b.ACT.018.003 og af því hann stundaði sömu iðn, settist hann að hjá þeim og vann með þeim. Þeir voru tjaldgjörðarmenn að iðn.
18:4b.ACT.018.004 Hann ræddi við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag og reyndi að sannfæra bæði Gyðinga og Grikki.
18:5b.ACT.018.005 Þegar þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu, gaf Páll sig allan að boðun orðsins og vitnaði fyrir Gyðingum, að Jesús væri Kristur.
18:6b.ACT.018.006 En er þeir stóðu í gegn og lastmæltu, hristi hann dustið af klæðum sínum og sagði við þá: "Blóð yðar komi yfir höfuð yðar. Ekki er mér um að kenna. Upp frá þessu fer ég til heiðingjanna."
18:7b.ACT.018.007 Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs, er hét Títus Jústus og dýrkaði Guð. Hús hans var hjá samkunduhúsinu.
18:8b.ACT.018.008 Krispus samkundustjóri tók trú á Drottin og allt heimili hans, og margir Korintumenn, sem á hlýddu, tóku trú og létu skírast.
18:9b.ACT.018.009 En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: "Óttast þú eigi, heldur tala þú og þagna ekki,
18:10b.ACT.018.010 ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein, því að ég á margt fólk í þessari borg."
18:11b.ACT.018.011 Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.
18:12b.ACT.018.012 En þegar Gallíón var landstjóri í Akkeu, bundust Gyðingar samtökum gegn Páli, drógu hann fyrir dómstólinn
18:13b.ACT.018.013 og sögðu: "Maður þessi tælir menn til að dýrka Guð gagnstætt lögmálinu."
18:14b.ACT.018.014 Páll bjóst til að svara, og þá sagði Gallíón við Gyðingana: "Væri hér um einhver lögbrot eða illvirki að ræða, bæri mér að sinna yður, Gyðingar.
18:15b.ACT.018.015 En fyrst það eru þrætur um orð og nöfn og lögmál yðar, þá ráðið sjálfir fram úr því. Dómari í þeim sökum vil ég ekki vera."
18:16b.ACT.018.016 Og hann rak þá burt frá dómstólnum.
18:17b.ACT.018.017 Þá tóku þeir allir Sósþenes samkundustjóra og fóru að berja hann fyrir framan dómstólinn, og lét Gallíón sig það engu skipta.
18:18b.ACT.018.018 Páll var þar enn um kyrrt allmarga daga, kvaddi síðan bræðurna og sigldi til Sýrlands og með honum Priskilla og Akvílas. Lét hann áður skera hár sitt í Kenkreu, því að heit hafði hvílt á honum.
18:19b.ACT.018.019 Þeir komu til Efesus. Þar skildi hann við þá, en gekk sjálfur inn í samkunduhúsið og ræddi við Gyðinga.
18:20b.ACT.018.020 Þeir báðu hann að standa lengur við, en hann varð ekki við því,
18:21b.ACT.018.021 heldur kvaddi þá og sagði: "Ég skal koma aftur til yðar, ef Guð lofar." Síðan lét hann í haf frá Efesus,
18:22b.ACT.018.022 lenti í Sesareu, fór upp eftir til Jerúsalem og heilsaði söfnuðinum. Síðan hélt hann norður til Antíokkíu.
18:23b.ACT.018.023 Þegar hann hafði dvalist þar um hríð, hélt hann af stað og fór eins og leið liggur um Galataland og Frýgíu og styrkti alla lærisveinana.
18:24b.ACT.018.024 En Gyðingur nokkur, Apollós að nafni, ættaður frá Alexandríu, kom til Efesus. Hann var maður vel máli farinn og fær í ritningunum.
18:25b.ACT.018.025 Hann hafði verið fræddur um veg Drottins, og brennandi í andanum talaði hann og kenndi kostgæfilega um Jesú. Þó þekkti hann aðeins skírn Jóhannesar.
18:26b.ACT.018.026 Þessi maður tók nú að tala djarflega í samkunduhúsinu. Priskilla og Akvílas heyrðu til hans, tóku hann að sér og skýrðu nánar fyrir honum Guðs veg.
18:27b.ACT.018.027 Hann fýsti að fara yfir til Akkeu. Bræðurnir hvöttu hann til þess og rituðu lærisveinunum þar að taka honum vel. Hann kom þangað og varð til mikillar hjálpar þeim, sem fyrir Guðs náð höfðu tekið trú,
18:28b.ACT.018.028 því hann hrakti skarplega rök Gyðinga í allra áheyrn og sannaði af ritningunum, að Jesús væri Kristur.
19
19:1b.ACT.019.001 Meðan Apollós var í Korintu, fór Páll um upplöndin og kom til Efesus. Þar hitti hann fyrir nokkra lærisveina.
19:2b.ACT.019.002 Hann sagði við þá: "Fenguð þér heilagan anda, er þér tókuð trú?" Þeir svöruðu: "Nei, vér höfum ekki einu sinni heyrt, að heilagur andi sé til."
19:3b.ACT.019.003 Hann sagði: "Upp á hvað eruð þér þá skírðir?" Þeir sögðu: "Skírn Jóhannesar."
19:4b.ACT.019.004 Þá mælti Páll: "Jóhannes skírði iðrunarskírn og sagði lýðnum að trúa á þann, sem eftir sig kæmi, það er á Jesú."
19:5b.ACT.019.005 Þegar þeir heyrðu þetta, létu þeir skírast til nafns Drottins Jesú.
19:6b.ACT.019.006 Er Páll hafði lagt hendur yfir þá, kom heilagur andi yfir þá, og þeir töluðu tungum og spáðu.
19:7b.ACT.019.007 Þessir menn voru alls um tólf.
19:8b.ACT.019.008 Páll sótti nú samkunduna í þrjá mánuði og talaði þar djarflega og reyndi að sannfæra menn um Guðs ríki.
19:9b.ACT.019.009 En nokkrir brynjuðu sig og vildu ekki trúa. Þegar þeir tóku að illmæla veginum í áheyrn fólksins, sagði Páll skilið við þá, greindi lærisveinana frá þeim, og síðan talaði hann daglega í skóla Týrannusar.
19:10b.ACT.019.010 Þessu fór fram í tvö ár, svo að allir þeir, sem í Asíu bjuggu, heyrðu orð Drottins, bæði Gyðingar og Grikkir.
19:11b.ACT.019.011 Guð gjörði óvenjuleg kraftaverk fyrir hendur Páls.
19:12b.ACT.019.012 Það bar við, að menn lögðu dúka og flíkur af Páli á sjúka, og hurfu þá veikindi þeirra, og illir andar fóru út af þeim.
19:13b.ACT.019.013 En nokkrir Gyðingar, er fóru um og frömdu andasæringar, tóku og fyrir að nefna nafn Drottins Jesú yfir þeim, er höfðu illa anda. Þeir sögðu: "Ég særi yður við Jesú þann, sem Páll prédikar."
19:14b.ACT.019.014 Þeir er þetta frömdu, voru sjö synir Gyðings nokkurs, Skeva æðsta prests.
19:15b.ACT.019.015 En illi andinn sagði við þá: "Jesú þekki ég, og Pál kannast ég við, en hverjir eruð þér?"
19:16b.ACT.019.016 Og maðurinn, sem illi andinn var í, flaug á þá, keyrði þá alla undir sig og lék þá svo hart, að þeir flýðu naktir og særðir úr húsinu.
19:17b.ACT.019.017 Þetta varð kunnugt öllum Efesusbúum, bæði Gyðingum og Grikkjum, og ótta sló á þá alla, og nafn Drottins Jesú varð miklað.
19:18b.ACT.019.018 Margir þeirra, sem trú höfðu tekið, komu, gjörðu játningu og sögðu frá athæfi sínu.
19:19b.ACT.019.019 Og allmargir er farið höfðu með kukl, komu með bækur sínar og brenndu þær að öllum ásjáandi. Þær voru samtals virtar á fimmtíu þúsundir silfurpeninga.
19:20b.ACT.019.020 Þannig breiddist orð Drottins út og efldist í krafti hans.
19:21b.ACT.019.021 Þá er þetta var um garð gengið, tók Páll þá ákvörðun að ferðast um Makedóníu og Akkeu og fara síðan til Jerúsalem. Hann sagði: "Þegar ég hef verið þar, ber mér líka að sjá Róm."
19:22b.ACT.019.022 Hann sendi tvo aðstoðarmenn sína, þá Tímóteus og Erastus, til Makedóníu, en dvaldist sjálfur um tíma í Asíu.
19:23b.ACT.019.023 Í þann tíma urðu miklar æsingar út af veginum.
19:24b.ACT.019.024 Demetríus hét maður og var silfursmiður. Bjó hann til Artemisar-musteri úr silfri og veitti smiðum eigi litla atvinnu.
19:25b.ACT.019.025 Hann stefndi þeim saman og öðrum, sem að slíku unnu, og sagði: "Góðir menn, þér vitið, að velmegun vor hvílir á þessari atvinnu.
19:26b.ACT.019.026 Og þér sjáið og heyrið, að Páll þessi hefur með fortölum sínum snúið fjölda fólks, ekki einungis í Efesus, heldur nær um gjörvalla Asíu. Hann segir, að eigi séu það neinir guðir, sem með höndum eru gjörðir.
19:27b.ACT.019.027 Nú horfir þetta ekki einungis iðn vorri til smánar, heldur einnig til þess, að helgidómur hinnar miklu gyðju, Artemisar, verði einskis virtur og að hún, sem öll Asía og heimsbyggðin dýrkar, verði svipt tign sinni."
19:28b.ACT.019.028 Er þeir heyrðu þetta, urðu þeir afar reiðir og æptu: "Mikil er Artemis Efesusmanna!"
19:29b.ACT.019.029 Og öll borgin komst í uppnám, menn þustu hver um annan til leikvangsins og þrifu með sér þá Gajus og Aristarkus, förunauta Páls úr Makedóníu.
19:30b.ACT.019.030 En er Páll vildi ganga inn í mannþröngina, leyfðu lærisveinarnir honum það ekki.
19:31b.ACT.019.031 Nokkrir höfðingjar skattlandsins, sem voru vinir hans, sendu einnig til hans og báðu hann að hætta sér ekki inn á leikvanginn.
19:32b.ACT.019.032 Menn hrópuðu nú sitt hver, því að mannsöfnuðurinn var í uppnámi, og vissu fæstir, hvers vegna þeir voru saman komnir.
19:33b.ACT.019.033 Nokkrir í mannþrönginni töldu það vera vegna Alexanders, því að Gyðingar ýttu honum fram, en Alexander benti til hljóðs með hendinni og vildi verja mál sitt fyrir fólkinu.
19:34b.ACT.019.034 Þegar menn urðu þess vísir, að hann var Gyðingur, lustu allir upp einu ópi og hrópuðu í nærfellt tvær stundir: "Mikil er Artemis Efesusmanna!"
19:35b.ACT.019.035 En borgarritarinn gat sefað fólkið og mælti: "Efesusmenn, hver er sá maður, að hann viti ekki, að borg Efesusmanna geymir musteri hinnar miklu Artemisar og steininn helga af himni?
19:36b.ACT.019.036 Þar sem enginn má gegn því mæla, ber yður að vera stilltir og hrapa ekki að neinu.
19:37b.ACT.019.037 Þér hafið dregið þessa menn hingað, þótt þeir hafi hvorki framið helgispjöll né lastmælt gyðju vorri.
19:38b.ACT.019.038 Eigi nú Demetríus og smiðirnir, sem honum fylgja, sök við nokkurn, þá eru þingdagar haldnir, og til eru landstjórar. Eigist þeir lög við.
19:39b.ACT.019.039 En ef þér hafið annars að krefja, má gjöra út um það á löglegu þingi.
19:40b.ACT.019.040 Vér eigum á hættu að verða sakaðir um uppreisn fyrir þetta í dag og getum ekki bent á neitt tilefni, sem gæti afsakað slík ólæti."
19:41b.ACT.019.041 Að svo mæltu lét hann mannsöfnuðinn fara.
2
2:1b.ACT.002.001 Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir.
2:2b.ACT.002.002 Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru.
2:3b.ACT.002.003 Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvern og einn þeirra.
2:4b.ACT.002.004 Þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.
2:5b.ACT.002.005 Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum.
2:6b.ACT.002.006 Er þetta hljóð heyrðist, dreif að fjölda manns. Þeim brá mjög við, því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu.
2:7b.ACT.002.007 Þeir voru frá sér af undrun og sögðu: "Eru þetta ekki allt Galíleumenn, sem hér eru að tala?
2:8b.ACT.002.008 Hvernig má það vera, að vér, hver og einn, heyrum þá tala vort eigið móðurmál?
2:9b.ACT.002.009 Vér erum Partar, Medar og Elamítar, vér erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu,
2:10b.ACT.002.010 frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene, og vér, sem hingað erum fluttir frá Róm.
2:11b.ACT.002.011 Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Vér heyrum þá tala á vorum tungum um stórmerki Guðs."
2:12b.ACT.002.012 Þeir voru allir furðu lostnir og ráðalausir og sögðu hver við annan: "Hvað getur þetta verið?"
2:13b.ACT.002.013 En aðrir höfðu að spotti og sögðu: "Þeir eru drukknir af sætu víni."
2:14b.ACT.002.014 Þá steig Pétur fram og þeir ellefu, og hann hóf upp rödd sína og mælti til þeirra: "Gyðingar og allir þér Jerúsalembúar! Þetta skuluð þér vita. Ljáið eyru orðum mínum.
2:15b.ACT.002.015 Eigi eru þessir menn drukknir, eins og þér ætlið, enda aðeins komin dagmál.
2:16b.ACT.002.016 Hér er að rætast það, sem spámaðurinn Jóel segir:
2:17b.ACT.002.017 Það mun verða á efstu dögum, segir Guð, að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, ungmenni yðar munu sjá sýnir og gamalmenni yðar mun drauma dreyma.
2:18b.ACT.002.018 Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar mun ég á þeim dögum úthella anda mínum, og þau munu spá.
2:19b.ACT.002.019 Og ég mun láta undur verða á himnum uppi og tákn á jörðu niðri, blóð og eld og reykjarmökk.
2:20b.ACT.002.020 Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður dagur Drottins kemur, hinn mikli og dýrlegi.
2:21b.ACT.002.021 En hver sá, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.
2:22b.ACT.002.022 Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesús frá Nasaret var maður, sem Guð sannaði yður með kraftaverkum, undrum og táknum, er Guð lét hann gjöra meðal yðar, eins og þér sjálfir vitið.
2:23b.ACT.002.023 Hann var framseldur að fyrirhuguðu ráði Guðs og fyrirvitund, og þér létuð heiðna menn negla hann á kross og tókuð hann af lífi.
2:24b.ACT.002.024 En Guð leysti hann úr nauðum dauðans og reisti hann upp, enda gat það aldrei orðið, að dauðinn fengi haldið honum,
2:25b.ACT.002.025 því að Davíð segir um hann: Ávallt hafði ég Drottin fyrir augum mér, því að hann er mér til hægri hliðar, til þess að ég bifist ekki.
2:26b.ACT.002.026 Fyrir því gladdist hjarta mitt, og tunga mín fagnaði. Meira að segja mun líkami minn hvílast í von.
2:27b.ACT.002.027 Því að ekki munt þú skilja sálu mína eftir í helju og eigi láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.
2:28b.ACT.002.028 Kunna gjörðir þú mér lífsins vegu. Þú munt mig fögnuði fylla fyrir þínu augliti.
2:29b.ACT.002.029 Bræður, óhikað get ég við yður talað um ættföðurinn Davíð. Hann dó og var grafinn, og leiði hans er til hér allt til þessa dags.
2:30b.ACT.002.030 En hann var spámaður og vissi, að Guð hafði með eiði heitið honum að setja í hásæti hans einhvern niðja hans.
2:31b.ACT.002.031 Því sá hann fyrir upprisu Krists og sagði: Ekki varð hann eftir skilinn í helju, og ekki varð líkami hans rotnun að bráð.
2:32b.ACT.002.032 Þennan Jesú reisti Guð upp, og erum vér allir vottar þess.
2:33b.ACT.002.033 Nú er hann upp hafinn til Guðs hægri handar og hefur af föðurnum tekið við heilögum anda, sem fyrirheitið var, og úthellt honum, eins og þér sjáið og heyrið.
2:34b.ACT.002.034 Ekki steig Davíð upp til himna, en hann segir: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar,
2:35b.ACT.002.035 þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.
2:36b.ACT.002.036 Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt, að þennan Jesú, sem þér krossfestuð, hefur Guð gjört bæði að Drottni og Kristi."
2:37b.ACT.002.037 Er þeir heyrðu þetta, var sem stungið væri í hjörtu þeirra, og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: "Hvað eigum vér að gjöra, bræður?"
2:38b.ACT.002.038 Pétur sagði við þá: "Gjörið iðrun og látið skírast hver og einn í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar; þá munuð þér öðlast að gjöf heilagan anda.
2:39b.ACT.002.039 Því að yður er ætlað fyrirheitið, börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru, öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín."
2:40b.ACT.002.040 Og með öðrum fleiri orðum vitnaði hann, áminnti þá og sagði: "Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð."
2:41b.ACT.002.041 En þeir, sem veittu orði hans viðtöku, voru skírðir, og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir.
2:42b.ACT.002.042 Þeir ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.
2:43b.ACT.002.043 Ótta setti að hverjum manni, en mörg undur og tákn gjörðust fyrir hendur postulanna.
2:44b.ACT.002.044 Allir þeir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt.
2:45b.ACT.002.045 Þeir seldu eignir sínar og fjármuni og skiptu meðal allra eftir því sem hver hafði þörf á.
2:46b.ACT.002.046 Daglega komu þeir saman með einum huga í helgidóminum, þeir brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans.
2:47b.ACT.002.047 Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.
20
20:1b.ACT.020.001 Þegar þessum látum linnti, sendi Páll eftir lærisveinunum, uppörvaði þá og kvaddi síðan og lagði af stað til Makedóníu.
20:2b.ACT.020.002 Hann fór nú um þau héruð og uppörvaði menn með mörgum orðum. Síðan hélt hann til Grikklands.
20:3b.ACT.020.003 Dvaldist hann þar þrjá mánuði. Þá bjóst hann til að sigla til Sýrlands, en þar eð Gyðingar brugguðu honum launráð, tók hann til bragðs að hverfa aftur um Makedóníu.
20:4b.ACT.020.004 Í för með honum voru þeir Sópater Pýrrusson frá Beroju, Aristarkus og Sekúndus frá Þessaloníku, Gajus frá Derbe, Tímóteus og Asíumennirnir Týkíkus og Trófímus.
20:5b.ACT.020.005 Þeir fóru á undan og biðu vor í Tróas.
20:6b.ACT.020.006 En vér sigldum eftir daga ósýrðu brauðanna frá Filippí og komum til þeirra í Tróas á fimmta degi. Þar stóðum vér við í sjö daga.
20:7b.ACT.020.007 Fyrsta dag vikunnar, er vér vorum saman komnir til að brjóta brauðið, talaði Páll til þeirra. Hann var á förum daginn eftir. Entist ræða hans allt til miðnættis.
20:8b.ACT.020.008 Mörg ljós voru í loftstofunni, þar sem vér vorum saman komnir.
20:9b.ACT.020.009 Ungmenni eitt, Evtýkus að nafni, sat í glugganum. Seig á hann svefnhöfgi, er Páll ræddi svo lengi, og féll hann sofandi ofan af þriðja lofti. Hann var liðinn, þegar hann var tekinn upp.
20:10b.ACT.020.010 Páll gekk ofan, varpaði sér yfir hann, tók utan um hann og sagði: "Verið stilltir, það er líf með honum."
20:11b.ACT.020.011 Fór hann síðan upp, braut brauðið og neytti og talaði enn lengi, allt fram í dögun. Að svo búnu hélt hann brott.
20:12b.ACT.020.012 En þeir fóru með sveininn lifandi og hugguðust mikillega.
20:13b.ACT.020.013 Vér fórum á undan til skips og sigldum til Assus. Þar ætluðum vér að taka Pál. Svo hafði hann fyrir lagt, því hann vildi fara landveg.
20:14b.ACT.020.014 Þegar hann hafði hitt oss í Assus, tókum vér hann á skip og héldum til Mitýlene.
20:15b.ACT.020.015 Þaðan sigldum vér daginn eftir og komumst til móts við Kíos. Á öðrum degi fórum vér til Samos og komum næsta dag til Míletus.
20:16b.ACT.020.016 En Páll hafði sett sér að sigla fram hjá Efesus, svo að hann tefðist ekki í Asíu. Hann hraðaði ferð sinni, ef verða mætti, að hann kæmist til Jerúsalem á hvítasunnudag.
20:17b.ACT.020.017 Frá Míletus sendi hann til Efesus og boðaði til sín öldunga safnaðarins.
20:18b.ACT.020.018 Þegar þeir komu til hans, sagði hann við þá: "Þér vitið, hvernig ég hef hagað mér hjá yður alla tíð frá þeim degi, er ég kom fyrst til Asíu.
20:19b.ACT.020.019 Ég þjónaði Drottni í allri auðmýkt, með tárum og í raunum, sem að mér hafa steðjað af launráðum Gyðinga.
20:20b.ACT.020.020 Þér vitið, að ég dró ekkert undan, sem yður mátti að gagni verða, heldur boðaði yður það og kenndi opinberlega og í heimahúsum
20:21b.ACT.020.021 og vitnaði bæði fyrir Gyðingum og Grikkjum um afturhvarf til Guðs og trú á Drottin vorn Jesú.
20:22b.ACT.020.022 Og nú er ég á leið til Jerúsalem, knúinn af andanum. Ekki veit ég, hvað þar mætir mér,
20:23b.ACT.020.023 nema að heilagur andi birtir mér í hverri borg, að fjötrar og þrengingar bíði mín.
20:24b.ACT.020.024 En mér er líf mitt einskis virði, fái ég aðeins að fullna skeið mitt og þá þjónustu, sem Drottinn Jesús fól mér: Að bera vitni fagnaðarerindinu um Guðs náð.
20:25b.ACT.020.025 Nú veit ég, að þér munuð ekki framar sjá mig, engir þér, sem ég hef komið til og boðað ríkið.
20:26b.ACT.020.026 Þess vegna vitna ég fyrir yður nú í dag, að ekki er mig um að saka, þótt einhver glatist,
20:27b.ACT.020.027 því að ég hef boðað yður allt Guðs ráð og ekkert dregið undan.
20:28b.ACT.020.028 Hafið gát á sjálfum yður og allri hjörðinni, sem heilagur andi fól yður til umsjónar. Verið hirðar Guðs kirkju, sem hann hefur unnið sér með sínu eigin blóði.
20:29b.ACT.020.029 Ég veit, að skæðir vargar munu koma inn á yður, þegar ég er farinn, og eigi þyrma hjörðinni.
20:30b.ACT.020.030 Og úr hópi sjálfra yðar munu koma fram menn, sem flytja rangsnúna kenningu til að tæla lærisveinana á eftir sér.
20:31b.ACT.020.031 Vakið því og verið þess minnugir, að ég áminnti stöðugt sérhvern yðar með tárum dag og nótt í þrjú ár.
20:32b.ACT.020.032 Og nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa yður arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru.
20:33b.ACT.020.033 Eigi girntist ég silfur né gull né klæði nokkurs manns.
20:34b.ACT.020.034 Sjálfir vitið þér, að þessar hendur unnu fyrir öllu því, er ég þurfti með og þeir, er með mér voru.
20:35b.ACT.020.035 Í öllu sýndi ég yður, að með því að vinna þannig ber oss að annast óstyrka og minnast orða Drottins Jesú, að hann sjálfur sagði: ,Sælla er að gefa en þiggja.'"
20:36b.ACT.020.036 Þegar hann hafði þetta mælt, féll hann á kné og baðst fyrir ásamt þeim öllum.
20:37b.ACT.020.037 Allir tóku að gráta sáran, féllu um háls Páli og kysstu hann.
20:38b.ACT.020.038 Mest varð þeim um þau orð hans, að þeir mundu aldrei framar sjá hann. Síðan fylgdu þeir honum til skips.
21
21:1b.ACT.021.001 Þegar vér höfðum slitið oss frá þeim, létum vér í haf og héldum beina leið til Kós, næsta dag til Ródus og þaðan til Patara.
21:2b.ACT.021.002 Þar hittum vér á skip, er fara átti til Fönikíu. Stigum vér á það og létum í haf.
21:3b.ACT.021.003 Vér höfðum landsýn af Kýpur, létum hana á bakborða og sigldum til Sýrlands og tókum höfn í Týrus. Þar átti skipið að leggja upp farminn.
21:4b.ACT.021.004 Vér fundum lærisveinana og dvöldumst þar sjö daga. Þeir sögðu Páli af gift andans, að hann skyldi ekki halda áfram til Jerúsalem.
21:5b.ACT.021.005 Að þessum dögum liðnum lögðum vér af stað. Fylgdu þeir oss allir á veg með konum og börnum út fyrir borgina. Vér féllum á kné í fjörunni og báðumst fyrir.
21:6b.ACT.021.006 Þar kvöddumst vér. Vér stigum á skip, en hinir sneru aftur heim til sín.
21:7b.ACT.021.007 Vér komum til Ptólemais frá Týrus og lukum þar sjóferðinni. Vér heilsuðum bræðrunum og dvöldumst hjá þeim einn dag.
21:8b.ACT.021.008 Daginn eftir fórum vér þaðan og komum til Sesareu, gengum inn í hús Filippusar trúboða, sem var einn af þeim sjö, og dvöldumst hjá honum.
21:9b.ACT.021.009 Hann átti fjórar ógiftar dætur, gæddar spádómsgáfu.
21:10b.ACT.021.010 Þegar vér höfðum dvalist þar nokkra daga, kom spámaður einn ofan frá Júdeu, Agabus að nafni.
21:11b.ACT.021.011 Hann kom til vor, tók belti Páls, batt fætur sína og hendur og mælti: "Svo segir heilagur andi: ,Þannig munu Gyðingar í Jerúsalem binda þann mann, sem þetta belti á, og selja hann í hendur heiðingjum.'"
21:12b.ACT.021.012 Þegar vér heyrðum þetta, lögðum vér og heimamenn að Páli að fara ekki upp til Jerúsalem.
21:13b.ACT.021.013 En hann sagði: "Hví grátið þér og hrellið hjarta mitt? Ég er eigi aðeins reiðubúinn að láta binda mig, heldur og að deyja í Jerúsalem fyrir nafn Drottins Jesú."
21:14b.ACT.021.014 Honum varð eigi talið hughvarf. Þá létum vér kyrrt og sögðum: "Verði Drottins vilji."
21:15b.ACT.021.015 Að þessum dögum liðnum bjuggumst vér til ferðar og héldum upp til Jerúsalem.
21:16b.ACT.021.016 Nokkrir lærisveinar frá Sesareu urðu oss samferða. Þeir fóru með oss til Mnasons nokkurs frá Kýpur, lærisveins frá elstu tíð, og skyldum vér gista hjá honum.
21:17b.ACT.021.017 Þegar vér komum til Jerúsalem, tóku bræðurnir oss feginsamlega.
21:18b.ACT.021.018 Næsta dag gekk Páll með oss til Jakobs, og allir öldungarnir komu þangað.
21:19b.ACT.021.019 Páll heilsaði þeim og lýsti síðan nákvæmlega öllu, sem Guð hafði gjört meðal heiðingjanna með þjónustu hans.
21:20b.ACT.021.020 Þeir vegsömuðu Guð fyrir það, sem þeir heyrðu, og sögðu við hann: "Þú sérð, bróðir hve margir tugir þúsunda það eru meðal Gyðinga, sem trú hafa tekið, og allir eru þeir vandlátir um lögmálið.
21:21b.ACT.021.021 En þeim hefur verið sagt, að þú kennir öllum Gyðingum, sem eru meðal heiðingja, að hverfa frá Móse og segir, að þeir skuli hvorki umskera börn sín né fylgja siðum vorum.
21:22b.ACT.021.022 Hvað á nú að gjöra? Víst mun það spyrjast, að þú ert kominn.
21:23b.ACT.021.023 Gjör því þetta, sem vér nú segjum þér. Hjá oss eru fjórir menn, sem heit hvílir á.
21:24b.ACT.021.024 Tak þá með þér, lát hreinsast með þeim og ber kostnaðinn fyrir þá, að þeir geti látið raka höfuð sín. Þá mega allir sjá, að ekkert er hæft í því, sem þeim hefur verið sagt um þig, heldur gætir þú lögmálsins sjálfur í breytni þinni.
21:25b.ACT.021.025 En um heiðingja, sem trú hafa tekið, höfum vér gefið út bréf og ályktað, að þeir skuli varast kjöt fórnað skurðgoðum, blóð, kjöt af köfnuðum dýrum og saurlifnað."
21:26b.ACT.021.026 Páll tók að sér mennina og lét hreinsast með þeim daginn eftir. Síðan gekk hann inn í helgidóminn og gjörði kunnugt, hvenær hreinsunardagarnir væru á enda og fórnin fyrir hvern þeirra skyldi fram borin.
21:27b.ACT.021.027 Þegar dagarnir sjö voru nær liðnir, sáu Gyðingar frá Asíu Pál í helgidóminum. Þeir komu öllu fólkinu í uppnám, lögðu hendur á hann
21:28b.ACT.021.028 og hrópuðu: "Ísraelsmenn, veitið nú lið. Þetta er maðurinn, sem alls staðar kennir öllum það, sem er andstætt lýðnum, lögmálinu og þessum stað. Og nú hefur hann auk heldur farið með Grikki inn í helgidóminn og saurgað þennan heilaga stað."
21:29b.ACT.021.029 En þeir höfðu áður séð Trófímus frá Efesus með honum í borginni og hugðu, að Páll hefði farið með hann inn í helgidóminn.
21:30b.ACT.021.030 Öll borgin varð uppvæg, fólk þusti að, þeir tóku Pál og drógu hann út úr helgidóminum. Jafnskjótt var dyrunum læst.
21:31b.ACT.021.031 Þeir ætluðu að lífláta hann, en hersveitarforingjanum var tjáð, að öll Jerúsalem væri í uppnámi.
21:32b.ACT.021.032 Hann brá við og tók með sér hermenn og hundraðshöfðingja og hljóp niður til þeirra. Þegar þeir sáu hersveitarforingjann og hermennina, hættu þeir að berja Pál.
21:33b.ACT.021.033 Hersveitarforinginn kom þá að, tók hann og skipaði að binda hann tvennum fjötrum og spurði, hver hann væri og hvað hann hefði gjört.
21:34b.ACT.021.034 En sitt kallaði hver í mannfjöldanum. Þegar hann gat ekki orðið neins vísari sökum óróans, bauð hann að fara með hann upp í kastalann.
21:35b.ACT.021.035 Þegar komið var að þrepunum, urðu hermennirnir að bera hann vegna ofsans í fólkinu,
21:36b.ACT.021.036 en múgur manns fylgdi eftir og æpti: "Burt með hann!"
21:37b.ACT.021.037 Um leið og fara átti með Pál inn í kastalann, segir hann við hersveitarforingjann: "Leyfist mér að tala nokkur orð við þig?" Hann svaraði: "Kannt þú grísku?
21:38b.ACT.021.038 Ekki ert þú þá Egyptinn, sem æsti til uppreisnar á dögunum og fór með morðvargana fjögur þúsund út í óbyggðir."
21:39b.ACT.021.039 Páll sagði: "Ég er Gyðingur, frá Tarsus í Kilikíu, borgari í ekki ómerkum bæ. Ég bið þig, leyf mér að tala til fólksins."
21:40b.ACT.021.040 Hann leyfði það. Páll bandaði hendi til fólksins, þar sem hann stóð á þrepunum. Þegar hann hafði fengið gott hljóð, mælti hann til þeirra á hebreska tungu:
22
22:1b.ACT.022.001 "Bræður og feður, hlustið á það, sem ég ætla að flytja yður mér til varnar."
22:2b.ACT.022.002 En er þeir heyrðu hann ávarpa sig á hebresku, urðu þeir enn hljóðari. Hann heldur áfram:
22:3b.ACT.022.003 "Ég er Gyðingur, fæddur í Tarsus í Kilikíu, en alinn upp í þessari borg. Við fætur Gamalíels hlaut ég fyllstu uppfræðslu í lögmáli feðra vorra. Guðs stríðsmaður vildi ég vera ekki síður en þér allir í dag.
22:4b.ACT.022.004 Ég ofsótti þá, sem voru þessa vegar, og sparði ekki líf þeirra, færði í fjötra og hneppti í fangelsi karla og konur.
22:5b.ACT.022.005 Æðsti presturinn og allt öldungaráðið geta borið mér vitni um þetta. Hjá þeim fékk ég bréf til bræðranna í Damaskus og fór þangað til að flytja einnig þá, er þar voru, í böndum til Jerúsalem, að þeim yrði refsað.
22:6b.ACT.022.006 En á leiðinni, er ég nálgaðist Damaskus, bar svo við um hádegisbil, að ljós mikið af himni leiftraði skyndilega um mig.
22:7b.ACT.022.007 Ég féll til jarðar og heyrði raust, er sagði við mig: ,Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?'
22:8b.ACT.022.008 Ég svaraði: ,Hver ert þú, herra?' Og hann sagði við mig: ,Ég er Jesús frá Nasaret, sem þú ofsækir.'
22:9b.ACT.022.009 Þeir, sem með mér voru, sáu ljósið, en raust þess, er við mig talaði, heyrðu þeir ekki.
22:10b.ACT.022.010 Þá sagði ég: ,Hvað á ég að gjöra, herra?' En Drottinn sagði við mig: ,Rís upp og far til Damaskus. Þar mun þér verða sagt allt, sem þér er ætlað að gjöra.'
22:11b.ACT.022.011 En með því að ég var blindaður af ljóma þessa ljóss, urðu förunautar mínir að leiða mig, og þannig komst ég til Damaskus.
22:12b.ACT.022.012 En Ananías nokkur, maður guðrækinn eftir lögmálinu og í góðum metum hjá öllum Gyðingum, er þar bjuggu,
22:13b.ACT.022.013 kom til mín, nam staðar hjá mér og sagði: ,Sál, bróðir, fá þú aftur sjón þína!' Á sömu stundu fékk ég sjónina og sá hann.
22:14b.ACT.022.014 En hann sagði: ,Guð feðra vorra hefur útvalið þig til að þekkja vilja sinn, að sjá hinn réttláta og heyra raustina af munni hans.
22:15b.ACT.022.015 Því að þú skalt honum vottur vera hjá öllum mönnum um það, sem þú hefur séð og heyrt.
22:16b.ACT.022.016 Hvað dvelur þig nú? Rís upp, ákalla nafn hans og lát skírast og laugast af syndum þínum.'
22:17b.ACT.022.017 En þegar ég var kominn aftur til Jerúsalem og baðst fyrir í helgidóminum, varð ég frá mér numinn
22:18b.ACT.022.018 og sá hann, og hann sagði við mig: ,Flýt þér og far sem skjótast burt úr Jerúsalem, því að þeir munu ekki veita viðtöku vitnisburði þínum um mig.'
22:19b.ACT.022.019 Ég sagði: ,Drottinn, þeir vita, að ég hef verið að hneppa í fangelsi þá, sem trúðu á þig, og láta húðstrýkja þá í samkunduhúsunum.
22:20b.ACT.022.020 Og þegar úthellt var blóði Stefáns, vottar þíns, stóð ég sjálfur þar hjá og lét mér vel líka og varðveitti klæði þeirra, sem tóku hann af lífi.'
22:21b.ACT.022.021 Hann sagði við mig: ,Far þú, því að ég mun senda þig til heiðingja langt í burtu.'"
22:22b.ACT.022.022 Allt að þessu orði hlýddu þeir á hann, en nú hófu þeir upp raust sína og hrópuðu: "Burt með slíkan mann af jörðinni! Eigi hæfir, að hann lifi!"
22:23b.ACT.022.023 Nú sem þeir æptu og vingsuðu klæðum sínum og þyrluðu ryki í loft upp,
22:24b.ACT.022.024 skipaði hersveitarforinginn að fara með hann inn í kastalann og hýða hann og kúga hann með því til sagna, svo að hann kæmist að því, fyrir hverja sök þeir gjörðu slík óp að honum.
22:25b.ACT.022.025 En þá er þeir strengdu hann undir höggin, sagði Páll við hundraðshöfðingjann, er hjá stóð: "Leyfist yður að húðstrýkja rómverskan mann og það án dóms og laga?"
22:26b.ACT.022.026 Þegar hundraðshöfðinginn heyrði þetta, fór hann til hersveitarforingjans, skýrði honum frá og sagði: "Hvað ert þú að gjöra? Maður þessi er rómverskur."
22:27b.ACT.022.027 Hersveitarforinginn kom þá og sagði við Pál: "Seg mér, ert þú rómverskur borgari?" Páll sagði: "Já."
22:28b.ACT.022.028 Hersveitarforinginn sagði: "Fyrir ærið fé keypti ég þennan þegnrétt." En Páll sagði: "Ég er meira að segja með honum fæddur."
22:29b.ACT.022.029 Þeir, sem áttu að kúga hann til sagna, viku nú jafnskjótt frá honum. Og hersveitarforinginn varð hræddur, er hann varð þess vís, að það var rómverskur maður, sem hann hafði látið binda.
22:30b.ACT.022.030 Daginn eftir vildi hann ganga úr skugga um, fyrir hvað Gyðingar kærðu hann, lét leysa hann og bauð, að æðstu prestarnir og allt ráðið kæmi saman. Síðan kom hann ofan með Pál og leiddi hann fram fyrir þá.
23
23:1b.ACT.023.001 En Páll hvessti augun á ráðið og mælti: "Bræður, ég hef í öllu breytt með góðri samvisku fyrir Guði fram á þennan dag."
23:2b.ACT.023.002 En Ananías æðsti prestur skipaði þeim, er hjá stóðu, að ljósta hann á munninn.
23:3b.ACT.023.003 Þá sagði Páll við hann: "Guð mun ljósta þig, kalkaði veggur. Hér situr þú til að dæma mig samkvæmt lögmálinu og skipar þó þvert ofan í lögmálið að slá mig."
23:4b.ACT.023.004 Þeir, sem hjá stóðu sögðu: "Smánar þú æðsta prest Guðs?"
23:5b.ACT.023.005 Páll svaraði: "Ekki vissi ég, bræður, að hann væri æðsti prestur, því ritað er: ,Þú skalt ekki illmæla höfðingja lýðs þíns.'"
23:6b.ACT.023.006 Nú vissi Páll, að sumir þeirra voru saddúkear, en aðrir farísear, og hann hrópaði upp í ráðinu: "Bræður, ég er farísei, af faríseum kominn. Ég er lögsóttur fyrir vonina um upprisu dauðra."
23:7b.ACT.023.007 Þegar hann sagði þetta, varð deila milli farísea og saddúkea, og þingheimur skiptist í flokka.
23:8b.ACT.023.008 Því saddúkear segja, að ekki sé til upprisa, englar né andar, en farísear játa allt þetta.
23:9b.ACT.023.009 Nú varð hróp mikið, og nokkrir fræðimenn af flokki farísea risu upp og fullyrtu: "Vér sjáum ekki, að þessi maður hafi brotið af sér. Gæti ekki hugsast, að andi hafi talað við hann eða engill?"
23:10b.ACT.023.010 Deilan harðnaði og hersveitarforinginn fór að óttast, að þeir ætluðu að rífa Pál í sundur. Því skipaði hann herliðinu að koma ofan, taka hann af þeim og færa hann inn í kastalann.
23:11b.ACT.023.011 Nóttina eftir kom Drottinn til hans og sagði: "Vertu hughraustur! Svo sem þú hefur vitnað um mig í Jerúsalem eins ber þér og að vitna í Róm."
23:12b.ACT.023.012 Þegar dagur rann, bundust Gyðingar samtökum og sóru þess eið að eta hvorki né drekka, fyrr en þeir hefðu ráðið Pál af dögum.
23:13b.ACT.023.013 Voru þeir fleiri en fjörutíu, sem þetta samsæri gjörðu.
23:14b.ACT.023.014 Þeir fóru til æðstu prestanna og öldunganna og sögðu: "Vér höfum svarið þess dýran eið að neyta einskis, fyrr en vér höfum ráðið Pál af dögum.
23:15b.ACT.023.015 Nú skuluð þér og ráðið leggja til við hersveitarforingjann, að hann láti senda hann niður til yðar, svo sem vilduð þér kynna yður mál hans rækilegar. En vér erum við því búnir að vega hann, áður en hann kemst alla leið."
23:16b.ACT.023.016 En systursonur Páls heyrði um fyrirsátina. Hann gekk inn í kastalann og sagði Páli frá.
23:17b.ACT.023.017 Páll kallaði til sín einn hundraðshöfðingjann og mælti: "Far þú með þennan unga mann til hersveitarforingjans, því að hann hefur nokkuð að segja honum."
23:18b.ACT.023.018 Hundraðshöfðinginn tók hann með sér, fór með hann til hersveitarforingjans og sagði: "Fanginn Páll kallaði mig til sín og bað mig fara til þín með þennan unga mann. Hann hefur eitthvað að segja þér."
23:19b.ACT.023.019 Hersveitarforinginn tók í hönd honum, leiddi hann afsíðis og spurði: "Hvað er það, sem þú hefur að segja mér?"
23:20b.ACT.023.020 Hinn svaraði: "Gyðingar hafa komið sér saman um að biðja þig að senda Pál niður í ráðið á morgun, þar eð þeir ætli að rannsaka mál hans rækilegar.
23:21b.ACT.023.021 En lát þú ekki að vilja þeirra, því að menn þeirra, fleiri en fjörutíu, sitja fyrir honum og hafa svarið þess eið að eta hvorki né drekka fyrr en þeir hafi vegið hann. Nú eru þeir viðbúnir og bíða eftir, að svarið komi frá þér."
23:22b.ACT.023.022 Hersveitarforinginn lét piltinn fara og bauð honum: "Þú mátt engum segja, að þú hafir gjört mér viðvart um þetta."
23:23b.ACT.023.023 Hann kallaði fyrir sig tvo hundraðshöfðingja og sagði: "Látið tvö hundruð hermenn vera tilbúna að fara til Sesareu eftir náttmál, auk þess sjötíu riddara og tvö hundruð léttliða.
23:24b.ACT.023.024 Hafið og til fararskjóta handa Páli, svo að þér komið honum heilum til Felixar landstjóra."
23:25b.ACT.023.025 Og hann ritaði bréf, svo hljóðandi:
23:26b.ACT.023.026 "Kládíus Lýsías sendir kveðju hinum göfuga Felix landstjóra.
23:27b.ACT.023.027 Mann þennan höfðu Gyðingar tekið höndum og voru í þann veginn að taka af lífi, er ég kom að með hermönnum. Ég komst að því, að hann var rómverskur, og bjargaði honum.
23:28b.ACT.023.028 En ég vildi vita, fyrir hverja sök þeir ákærðu hann, og fór með hann niður í ráð þeirra.
23:29b.ACT.023.029 Komst ég þá að raun um, að hann var kærður vegna ágreinings um lögmál þeirra, en engin sök var honum gefin, er sætir dauða eða fangelsi.
23:30b.ACT.023.030 En þar sem ég hef fengið bendingu um, að setið sé um líf mannsins, sendi ég hann tafarlaust til þín. Ég hef jafnframt boðið ákærendum hans að flytja mál sitt gegn honum fyrir þér."
23:31b.ACT.023.031 Hermennirnir tóku þá Pál, eins og þeim var boðið, og fóru með hann um nótt til Antípatris.
23:32b.ACT.023.032 Daginn eftir sneru þeir aftur til kastalans, en létu riddarana fara með honum.
23:33b.ACT.023.033 Þeir fóru inn í Sesareu, skiluðu bréfinu til landstjórans og færðu Pál fyrir hann.
23:34b.ACT.023.034 Hann las bréfið og spurði, úr hvaða skattlandi hann væri. Var honum tjáð, að hann væri frá Kilikíu.
23:35b.ACT.023.035 Þá mælti hann: "Ég mun rannsaka mál þitt, þegar kærendur þínir koma." Og hann bauð að geyma hann í höll Heródesar.
24
24:1b.ACT.024.001 Fimm dögum síðar fór Ananías æðsti prestur ofan þangað og með honum nokkrir öldungar og Tertúllus nokkur málafærslumaður. Þeir báru sakir á Pál fyrir landstjóranum.
24:2b.ACT.024.002 Hann var nú kallaður fyrir, en Tertúllus hóf málsóknina og sagði: "Fyrir þitt tilstilli, göfugi Felix, sitjum vér í góðum friði, og þjóð vor hefur sakir þinnar forsjár öðlast umbætur í öllum greinum og alls staðar.
24:3b.ACT.024.003 Þetta viðurkennum vér mjög þakksamlega.
24:4b.ACT.024.004 En svo að ég tefji þig sem minnst, bið ég, að þú af mildi þinni viljir heyra oss litla hríð.
24:5b.ACT.024.005 Vér höfum komist að raun um, að maður þessi er skaðræði, kveikir ófrið með öllum Gyðingum um víða veröld og er forsprakki villuflokks Nasarea.
24:6b.ACT.024.006 Hann reyndi meira að segja að vanhelga musterið, og þá tókum vér hann höndum.
24:7b.ACT.024.007 (OMITTED TEXT)
24:8b.ACT.024.008 Með því að yfirheyra hann mátt þú sjálfur ganga úr skugga um öll sakarefni vor gegn honum."
24:9b.ACT.024.009 Gyðingarnir tóku undir sakargiftirnar og kváðu þetta rétt vera.
24:10b.ACT.024.010 Landstjórinn benti þá Páli að taka til máls. Hann sagði: "Kunnugt er mér um, að þú hefur verið dómari þessarar þjóðar í mörg ár. Mun ég því ótrauður verja mál mitt.
24:11b.ACT.024.011 Þú getur og gengið úr skugga um, að ekki eru nema tólf dagar síðan ég kom upp til Jerúsalem að biðjast fyrir.
24:12b.ACT.024.012 Og enginn hefur staðið mig að því að vera að stæla við neinn eða æsa fólk til óspekta, hvorki í samkunduhúsunum né neins staðar í borginni.
24:13b.ACT.024.013 Þeir geta ekki heldur sannað þér það, sem þeir eru nú að kæra mig um.
24:14b.ACT.024.014 En hitt skal ég játa þér, að ég þjóna Guði feðra vorra samkvæmt veginum, sem þeir kalla villu, og trúi öllu því, sem skrifað stendur í lögmálinu og spámönnunum.
24:15b.ACT.024.015 Og þá von hef ég til Guðs, sem þeir og sjálfir hafa, að upp muni rísa bæði réttlátir og ranglátir.
24:16b.ACT.024.016 Því tem ég mér og sjálfur að hafa jafnan hreina samvisku fyrir Guði og mönnum.
24:17b.ACT.024.017 Eftir margra ára fjarveru kom ég til að færa fólki mínu ölmusugjafir og til að fórna.
24:18b.ACT.024.018 Þetta var ég að gjöra í helgidóminum og hafði látið hreinsast, og enginn var þá mannsöfnuður né uppþot, þegar menn komu að mér.
24:19b.ACT.024.019 Þar voru Gyðingar nokkrir frá Asíu. Þeir hefðu átt að koma fyrir þig og bera fram kæru, hefðu þeir fundið mér eitthvað til saka.
24:20b.ACT.024.020 Annars skulu þessir, sem hér eru, segja til, hvað saknæmt þeir fundu, þegar ég stóð fyrir ráðinu.
24:21b.ACT.024.021 Nema það sé þetta eina, sem ég hrópaði, þegar ég stóð meðal þeirra: ,Fyrir upprisu dauðra er ég lögsóttur í dag frammi fyrir yður.'"
24:22b.ACT.024.022 Felix, sem var vel kunnugt um veginn, frestaði nú málinu, og mælti: "Þegar Lýsías hersveitarforingi kemur ofan hingað, skal ég skera úr máli yðar."
24:23b.ACT.024.023 Hann bauð hundraðshöfðingjanum að hafa Pál í vægu varðhaldi og varna engum félaga hans að vitja um hann.
24:24b.ACT.024.024 Nokkrum dögum seinna kom Felix með eiginkonu sinni, Drúsillu. Hún var Gyðingur. Hann lét sækja Pál og hlýddi á mál hans um trúna á Krist Jesú.
24:25b.ACT.024.025 En er hann ræddi um réttlæti, sjálfsögun og komandi dóm, varð Felix skelkaður og mælti: "Far burt að sinni. Ég læt kalla þig, þegar ég fæ tóm til."
24:26b.ACT.024.026 Meðfram gjörði hann sér von um, að Páll mundi gefa sér fé. Því var það, að hann lét alloft sækja hann og átti tal við hann.
24:27b.ACT.024.027 Þegar tvö ár voru liðin, tók Porkíus Festus við landstjórn af Felix. Felix vildi koma sér vel við Gyðinga og lét því Pál eftir í haldi.
25
25:1b.ACT.025.001 Þrem dögum eftir að Festus hafði tekið við umdæmi sínu, fór hann frá Sesareu upp til Jerúsalem.
25:2b.ACT.025.002 Æðstu prestarnir og fyrirmenn Gyðinga báru þá sakir á Pál fyrir honum og báðu hann
25:3b.ACT.025.003 að veita sér að málum gegn honum og gera sér þann greiða að senda hann til Jerúsalem. En þeir hugðust búa honum fyrirsát og vega hann á leiðinni.
25:4b.ACT.025.004 Festus svaraði, að Páll væri í varðhaldi í Sesareu, en sjálfur mundi hann bráðlega fara þangað.
25:5b.ACT.025.005 "Látið því," sagði hann, "ráðamenn yðar verða mér samferða ofan eftir og lögsækja manninn, ef hann er um eitthvað sekur."
25:6b.ACT.025.006 Festus dvaldist þar ekki lengur en í átta daga eða tíu. Síðan fór hann ofan til Sesareu. Daginn eftir settist hann á dómstólinn og bauð að leiða Pál fram.
25:7b.ACT.025.007 Þegar hann kom, umkringdu hann Gyðingar þeir, sem komnir voru ofan frá Jerúsalem, og báru á hann margar þungar sakir, sem þeir gátu ekki sannað.
25:8b.ACT.025.008 En Páll varði sig og sagði: "Ekkert hef ég brotið, hvorki gegn lögmáli Gyðinga, helgidóminum né keisaranum."
25:9b.ACT.025.009 Festus vildi koma sér vel við Gyðinga og mælti við Pál: "Vilt þú fara upp til Jerúsalem og hlíta þar dómi mínum í máli þessu?"
25:10b.ACT.025.010 Páll svaraði: "Ég stend nú fyrir dómstóli keisarans, og hér á ég að dæmast. Gyðingum hef ég ekkert rangt gjört, það veistu fullvel.
25:11b.ACT.025.011 Sé ég sekur og hafi framið eitthvað, sem dauða sé vert, mæli ég mig ekki undan því að deyja. En ef ekkert er hæft í því, sem þessir menn kæra mig um, á enginn með að selja mig þeim á vald. Ég skýt máli mínu til keisarans."
25:12b.ACT.025.012 Festus ræddi þá við ráðunauta sína og mælti síðan: "Til keisarans hefur þú skotið máli þínu, til keisarans skaltu fara."
25:13b.ACT.025.013 Eftir nokkra daga komu Agrippa konungur og Berníke til Sesareu að bjóða Festus velkominn.
25:14b.ACT.025.014 Þegar þau höfðu dvalist þar nokkra daga, lagði Festus mál Páls fyrir konung og sagði: "Hér er fangi nokkur, sem Felix skildi eftir.
25:15b.ACT.025.015 Þegar ég kom til Jerúsalem, báru æðstu prestar og öldungar Gyðinga á hann sakir og heimtuðu hann dæmdan.
25:16b.ACT.025.016 Ég svaraði þeim, að það væri ekki venja Rómverja að selja fram nokkurn sakborning fyrr en hann hefði verið leiddur fyrir ákærendur sína og átt þess kost að bera fram vörn gegn sakargiftinni.
25:17b.ACT.025.017 Þeir urðu nú samferða hingað, og lét ég engan drátt á verða, heldur settist daginn eftir á dómstólinn og bauð að leiða fram manninn.
25:18b.ACT.025.018 Þegar ákærendurnir komu fram, báru þeir ekki á hann sakir fyrir nein þau illræði, sem ég hafði búist við,
25:19b.ACT.025.019 heldur áttu þeir í einhverjum deilum við hann um átrúnað sjálfra þeirra og um Jesú nokkurn, látinn mann, sem Páll segir lifa.
25:20b.ACT.025.020 Fannst mér vandi fyrir mig að fást við þetta og spurði Pál, hvort hann vildi fara til Jerúsalem og láta dæma málið þar.
25:21b.ACT.025.021 En hann skaut máli sínu til keisarans og krafðist þess að vera hafður í haldi, þar til hans hátign hefði skorið úr. Því bauð ég að hafa hann í haldi, þangað til ég gæti sent hann til keisarans."
25:22b.ACT.025.022 Agrippa sagði þá við Festus: "Ég vildi sjálfur fá að heyra manninn." Hinn svaraði: "Á morgun skalt þú hlusta á hann."
25:23b.ACT.025.023 Daginn eftir komu Agrippa og Berníke með mikilli viðhöfn og gengu ásamt hersveitarforingjum og æðstu mönnum borgarinnar inn í málstofuna. Var þá Páll leiddur inn að boði Festusar.
25:24b.ACT.025.024 Festus mælti: "Agrippa konungur og þér menn allir, sem hjá oss eruð staddir. Þarna sjáið þér mann, sem veldur því, að allir Gyðingar, bæði í Jerúsalem og hér, hafa leitað til mín. Þeir heimta hástöfum, að hann sé tekinn af lífi.
25:25b.ACT.025.025 Mér varð ljóst, að hann hefur ekkert það framið, er dauða sé vert, en sjálfur skaut hann máli sínu til hans hátignar, og þá ákvað ég að senda hann þangað.
25:26b.ACT.025.026 Nú hef ég ekkert áreiðanlegt að skrifa herra vorum um hann. Þess vegna hef ég leitt hann fram fyrir yður og einkum fyrir þig, Agrippa konungur, svo að ég hafi eitthvað að skrifa að lokinni yfirheyrslu.
25:27b.ACT.025.027 Því það líst mér fráleitt að senda fanga og tjá eigi um leið sakargiftir gegn honum."
26
26:1b.ACT.026.001 En Agrippa sagði við Pál: "Nú er þér leyft að tala þínu máli." Páll rétti þá út höndina og bar fram vörn sína:
26:2b.ACT.026.002 "Lánsamur þykist ég, Agrippa konungur, að eiga í dag í þinni áheyrn að verja mig gegn öllu því, sem Gyðingar saka mig um,
26:3b.ACT.026.003 því heldur sem þú þekkir alla siðu Gyðinga og ágreiningsmál. Því bið ég þig að hlýða þolinmóður á mig.
26:4b.ACT.026.004 Allir Gyðingar þekkja líf mitt frá upphafi, hvernig ég hef lifað með þjóð minni, fyrst í æsku og síðan í Jerúsalem.
26:5b.ACT.026.005 Það vita þeir um mig, vilji þeir unna mér sannmælis, að ég var farísei frá fyrstu tíð, fylgdi strangasta flokki trúarbragða vorra.
26:6b.ACT.026.006 Og hér stend ég nú lögsóttur vegna vonarinnar um fyrirheitið, sem Guð gaf feðrum vorum
26:7b.ACT.026.007 og vorar tólf kynkvíslir vona að öðlast með því að dýrka Guð án afláts nótt sem dag. Fyrir þessa von er ég nú ákærður, konungur, og það af Gyðingum.
26:8b.ACT.026.008 Hvers vegna teljið þér það ótrúlegt, að Guð veki upp dauða?
26:9b.ACT.026.009 Sjálfur taldi ég mér skylt að vinna af öllu megni gegn nafni Jesú frá Nasaret.
26:10b.ACT.026.010 Það gjörði ég og í Jerúsalem, hneppti marga hinna heilögu í fangelsi með valdi frá æðstu prestunum og galt því jákvæði, að þeir væru teknir af lífi.
26:11b.ACT.026.011 Og í öllum samkundunum reyndi ég þrásinnis með pyndingum að neyða þá til að afneita trú sinni. Svo freklega æddi ég gegn þeim, að ég fór til borga erlendis að ofsækja þá.
26:12b.ACT.026.012 Þá er ég var á leið til Damaskus slíkra erinda með vald og umboð frá æðstu prestunum,
26:13b.ACT.026.013 sá ég, konungur, á veginum um miðjan dag ljós af himni sólu bjartara leiftra um mig og þá, sem mér voru samferða.
26:14b.ACT.026.014 Vér féllum allir til jarðar, og ég heyrði rödd, er sagði við mig á hebresku: ,Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Erfitt verður þér að spyrna móti broddunum.'
26:15b.ACT.026.015 En ég sagði: ,Hver ert þú, herra?' Og Drottinn sagði: ,Ég er Jesús, sem þú ofsækir.
26:16b.ACT.026.016 Rís nú upp og statt á fætur þína. Til þess birtist ég þér, að ég vel þig til þess að vera þjónn minn og vitni þess, að þú hefur séð mig bæði nú og síðar, er ég mun birtast þér.
26:17b.ACT.026.017 Ég mun frelsa þig frá lýðnum og frá heiðingjunum, og til þeirra sendi ég þig
26:18b.ACT.026.018 að opna augu þeirra og snúa þeim frá myrkri til ljóss, frá Satans valdi til Guðs, svo að þeir öðlist fyrir trú á mig fyrirgefningu syndanna og arf með þeim, sem helgaðir eru.'
26:19b.ACT.026.019 Fyrir því gjörðist ég, Agrippa konungur, eigi óhlýðinn hinni himnesku vitrun,
26:20b.ACT.026.020 heldur boðaði ég fyrst þeim í Damaskus og í Jerúsalem, síðan um alla Júdeubyggð og heiðingjunum að iðrast og snúa sér til Guðs og vinna verk samboðin iðruninni.
26:21b.ACT.026.021 Sakir þessa gripu Gyðingar mig í helgidóminum og reyndu að ráða mér bana.
26:22b.ACT.026.022 En Guð hefur hjálpað mér, og því stend ég allt til þessa dags og vitna bæði fyrir háum og lágum. Mæli ég ekki annað en það, sem bæði spámennirnir og Móse hafa sagt að verða mundi,
26:23b.ACT.026.023 að Kristur ætti að líða og fyrstur rísa upp frá dauðum og boða bæði lýðnum og heiðingjunum ljósið."
26:24b.ACT.026.024 Þegar Páll var hér kominn í vörn sinni, segir Festus hárri raustu: "Óður ert þú, Páll. Þitt mikla bókvit gjörir þig óðan."
26:25b.ACT.026.025 Páll svaraði: "Ekki er ég óður, göfugi Festus, heldur mæli ég sannleiks orð af fullu viti.
26:26b.ACT.026.026 Konungur kann skil á þessu, og við hann tala ég djarflega. Eigi ætla ég, að honum hafi dulist neitt af þessu, enda hefur það ekki gjörst í neinum afkima.
26:27b.ACT.026.027 Trúir þú, Agrippa konungur, spámönnunum? Ég veit, að þú gjörir það."
26:28b.ACT.026.028 Þá sagði Agrippa við Pál: "Þú þykist ekki vera lengi að gjöra mig kristinn."
26:29b.ACT.026.029 En Páll sagði: "Þess bið ég Guð, hvort sem lengur dregst eða skemur, að ekki einungis þú, heldur og allir, sem til mín heyra í dag, verði slíkir sem ég er, að frátöldum fjötrum mínum."
26:30b.ACT.026.030 Þá stóð konungur upp og landstjórinn, svo og Berníke og þeir, er þar sátu með þeim.
26:31b.ACT.026.031 Þegar þau voru farin, sögðu þau sín á milli: "Þessi maður fremur ekkert, sem varðar dauða eða fangelsi."
26:32b.ACT.026.032 En Agrippa sagði við Festus: "Þennan mann hefði mátt láta lausan, ef hann hefði ekki skotið máli sínu til keisarans."
27
27:1b.ACT.027.001 Þegar ákveðið var, að vér skyldum sigla til Ítalíu, voru Páll og nokkrir bandingjar aðrir seldir í hendur hundraðshöfðingja, er Júlíus hét, úr hersveit keisarans.
27:2b.ACT.027.002 Vér stigum á skip frá Adramýttíum, sem átti að sigla til hafna í Asíu, og létum í haf. Aristarkus, makedónskur maður frá Þessaloníku, var oss samferða.
27:3b.ACT.027.003 Á öðrum degi lentum vér í Sídon. Júlíus sýndi Páli þá mannúð að leyfa honum að fara á fund vina sinna og þiggja umönnun þeirra.
27:4b.ACT.027.004 Þaðan létum vér í haf og sigldum undir Kýpur, því að vindar voru andstæðir.
27:5b.ACT.027.005 Þá sigldum vér yfir hafið undan Kilikíu og Pamfýlíu og komum til Mýru í Lýkíu.
27:6b.ACT.027.006 Þar fann hundraðshöfðinginn skip frá Alexandríu, er sigla átti til Ítalíu, og kom oss á það.
27:7b.ACT.027.007 Siglingin gekk tregt allmarga daga. Komumst vér með herkjum móts til Knídus, en þar bægði vindur oss. Þá sigldum vér undir Krít við Salmóne.
27:8b.ACT.027.008 Vér beittum þar hjá með naumindum og komumst á stað einn, sem kallast Góðhafnir, í grennd við borgina Laseu.
27:9b.ACT.027.009 Enn leið drjúgur tími, og sjóferðir voru orðnar hættulegar, enda komið fram yfir föstu. Páll vildi því vara þá við
27:10b.ACT.027.010 og sagði við þá: "Það sé ég, góðir menn, að sjóferðin muni kosta hrakninga og mikið tjón, ekki einungis á farmi og skipi, heldur og á lífi voru."
27:11b.ACT.027.011 En hundraðshöfðinginn treysti betur skipstjóra og skipseiganda en því, er Páll sagði.
27:12b.ACT.027.012 Höfnin var óhentug til vetrarlegu. Því var það flestra ráð að halda þaðan, ef þeir mættu ná Fönix og hafa þar vetrarlegu. Sú höfn er á Krít og veit til útsuðurs og útnorðurs.
27:13b.ACT.027.013 Nú rann á hægur sunnanvindur. Hugðust þeir þá hafa ráð þetta í hendi sér, léttu akkerum og sigldu fram með Krít nærri landi.
27:14b.ACT.027.014 En áður en langt leið, skall á af landi ofan fárviðri, hinn illræmdi landnyrðingur.
27:15b.ACT.027.015 Skipið hrakti, og varð ekki beitt upp í vindinn. Slógum vér undan og létum reka.
27:16b.ACT.027.016 Vér hleyptum undir litla ey, sem nefnist Káda. Þar gátum vér með naumindum bjargað skipsbátnum.
27:17b.ACT.027.017 Þeir náðu honum upp og gripu til þeirra ráða, sem helst máttu til bjargar verða, og reyrðu skipið köðlum. Þeir óttuðust, að þá mundi bera inn í Syrtuflóa; því felldu þeir segl og létu reka.
27:18b.ACT.027.018 Daginn eftir hrakti oss mjög undan ofviðrinu. Þá tóku þeir að ryðja skipið.
27:19b.ACT.027.019 Og á þriðja degi vörpuðu þeir út með eigin höndum búnaði skipsins.
27:20b.ACT.027.020 Dögum saman sá hvorki til sólar né stjarna, og ekkert lát varð á ofviðrinu. Tók þá að þrjóta öll von um það, að vér kæmumst af.
27:21b.ACT.027.021 Nú höfðu menn lengi einskis matar neytt. Þá stóð Páll upp meðal þeirra og mælti: "Góðir menn, þér hefðuð átt að hlíta mínu ráði og leggja ekki út frá Krít. Þá hefðuð þér komist hjá hrakningum þessum og tjóni.
27:22b.ACT.027.022 En nú hvet ég yður að vera vonglaðir, því enginn yðar mun lífi týna, en skipið mun farast.
27:23b.ACT.027.023 Því að á þessari nóttu stóð hjá mér engill þess Guðs, sem ég heyri til og þjóna, og mælti:
27:24b.ACT.027.024 ,Óttast þú eigi, Páll, fyrir keisarann átt þú að koma. Og sjá, Guð hefur gefið þér alla þá, sem þér eru samskipa.'
27:25b.ACT.027.025 Verið því vonglaðir, góðir menn. Ég treysti Guði, að svo muni fara sem við mig hefur verið mælt.
27:26b.ACT.027.026 Oss mun bera upp á einhverja eyju."
27:27b.ACT.027.027 Á miðnætti, þegar vér höfðum hrakist um Adríahaf í hálfan mánuð, þóttust skipverjar verða þess varir, að land væri í nánd.
27:28b.ACT.027.028 Þeir vörpuðu grunnsökku, og reyndist dýpið tuttugu faðmar. Aftur vörpuðu þeir grunnsökku litlu síðar, og reyndist dýpið þá fimmtán faðmar.
27:29b.ACT.027.029 Þeir óttuðust, að oss kynni að bera upp í kletta, og köstuðu því fjórum akkerum úr skutnum og þráðu nú mest, að dagur rynni.
27:30b.ACT.027.030 En hásetarnir reyndu að strjúka úr skipinu. Þeir settu bátinn útbyrðis og þóttust vera að færa út akkeri úr framstafni.
27:31b.ACT.027.031 Þá sagði Páll við hundraðshöfðingjann og hermennina: "Ef þessir menn eru ekki kyrrir í skipinu, getið þér ekki bjargast."
27:32b.ACT.027.032 Hermennirnir hjuggu þá festar bátsins og létu hann fara.
27:33b.ACT.027.033 Undir dögun hvatti Páll alla að neyta matar og sagði: "Þér hafið nú þraukað hálfan mánuð fastandi og engu nærst.
27:34b.ACT.027.034 Það er nú mitt ráð, að þér fáið yður mat. Þess þurfið þér, ef þér ætlið að bjargast. En enginn yðar mun einu hári týna af höfði sér."
27:35b.ACT.027.035 Að svo mæltu tók hann brauð, gjörði Guði þakkir í allra augsýn, braut það og tók að eta.
27:36b.ACT.027.036 Urðu nú allir hressari og fóru líka að matast.
27:37b.ACT.027.037 Alls vorum vér á skipinu tvö hundruð sjötíu og sex manns.
27:38b.ACT.027.038 Þá er þeir höfðu etið sig metta, léttu þeir á skipinu með því að kasta kornfarminum í sjóinn.
27:39b.ACT.027.039 Þegar dagur rann, kenndu þeir ekki landið, en greindu vík eina með sandfjöru. Varð það ráð þeirra að reyna að hleypa þar upp skipinu.
27:40b.ACT.027.040 Þeir losuðu akkerin og létu þau eftir í sjónum, leystu um leið stýrisböndin, undu upp framseglið og létu berast undan vindi til strandar.
27:41b.ACT.027.041 Þeir lentu á rifi, skipið strandaði, stefnið festist og hrærðist hvergi, en skuturinn tók að liðast sundur í hafrótinu.
27:42b.ACT.027.042 Hermennirnir ætluðu að drepa bandingjana, svo að enginn þeirra kæmist undan á sundi.
27:43b.ACT.027.043 En hundraðshöfðinginn vildi forða Páli og kom í veg fyrir ráðagjörð þeirra. Bauð hann, að þeir, sem syndir væru, skyldu fyrstir varpa sér út og leita til lands,
27:44b.ACT.027.044 en hinir síðan ýmist á plönkum eða braki úr skipinu. Þannig komust allir heilir til lands.
28
28:1b.ACT.028.001 Nú sem vér vorum heilir á land komnir, fengum vér að vita, að eyjan hét Malta.
28:2b.ACT.028.002 Eyjarskeggjar sýndu oss einstaka góðmennsku. Þeir kyntu bál og hlynntu að oss öllum, en kalt var í veðri og farið að rigna.
28:3b.ACT.028.003 Páll tók saman hrísvöndul og lagði á eldinn. Skreið þá út naðra undan hitanum og festi sig á hönd hans.
28:4b.ACT.028.004 Þegar eyjarskeggjar sáu kvikindið hanga á hendi hans, sögðu þeir hver við annan: "Það er víst, að þessi maður er manndrápari, fyrst refsinornin lofar honum ekki að lifa, þótt hann hafi bjargast úr sjónum."
28:5b.ACT.028.005 En hann hristi kvikindið af sér í eldinn og sakaði ekki.
28:6b.ACT.028.006 Þeir bjuggust við, að hann mundi bólgna upp eða detta sviplega dauður niður. En þá er þeir höfðu beðið þess lengi og sáu, að honum varð ekkert meint af, skiptu þeir um og sögðu hann guð vera.
28:7b.ACT.028.007 Í grennd við stað þennan átti búgarð æðsti maður á eynni, Públíus að nafni. Hann tók við oss og hélt oss í góðu yfirlæti þrjá daga.
28:8b.ACT.028.008 Svo vildi til, að faðir Públíusar lá sjúkur með hitaköstum og blóðsótt. Páll gekk inn til hans, baðst fyrir, lagði hendur yfir hann og læknaði hann.
28:9b.ACT.028.009 Eftir þetta komu aðrir þeir, er sjúkir voru á eynni, og voru læknaðir.
28:10b.ACT.028.010 Höfðu þeir oss í hávegum, og er vér skyldum sigla, gáfu þeir oss allt, sem vér þurftum til fararinnar.
28:11b.ACT.028.011 Að liðnum þrem mánuðum lögðum vér til hafs á skipi frá Alexandríu, sem legið hafði við eyna um veturinn og bar merki Tvíburanna.
28:12b.ACT.028.012 Vér tókum höfn í Sýrakúsu og dvöldumst þar þrjá daga.
28:13b.ACT.028.013 Þaðan sigldum vér í sveig og komum til Regíum. Að degi liðnum fengum vér sunnanvind og komum á öðrum degi til Púteólí.
28:14b.ACT.028.014 Þar hittum vér bræður, og báðu þeir oss að dveljast hjá sér í viku. Síðan héldum vér til Rómar.
28:15b.ACT.028.015 Bræðurnir þar fréttu um oss og komu til móts við oss allt til Appíusartorgs og Þríbúða. Þegar Páll sá þá, gjörði hann Guði þakkir og hresstist í huga.
28:16b.ACT.028.016 Er vér vorum komnir til Rómar, var Páli leyft að búa út af fyrir sig með hermanni þeim, sem gætti hans.
28:17b.ACT.028.017 Eftir þrjá daga stefndi hann saman helstu mönnum Gyðinga. Þegar þeir voru saman komnir, sagði hann við þá: "Bræður, ekkert hef ég brotið gegn lýðnum eða siðum feðranna, en samt er ég fangi, framseldur Rómverjum í Jerúsalem.
28:18b.ACT.028.018 Þeir yfirheyrðu mig og vildu láta mig lausan, af því á mér hvíldi engin dauðasök.
28:19b.ACT.028.019 En Gyðingar mæltu á móti, og neyddist ég til að skjóta máli mínu til keisarans, þó eigi svo að skilja, að ég sé að kæra þjóð mína.
28:20b.ACT.028.020 Sakir þessa hef ég kallað yður hingað, að ég mætti sjá yður og tala við yður, því vegna vonar Ísraels ber ég þessa hlekki."
28:21b.ACT.028.021 Þeir svöruðu: "Vér höfum ekki fengið bréf um þig frá Júdeu, og eigi hefur heldur neinn bræðranna komið hingað og birt eða talað nokkuð illt um þig.
28:22b.ACT.028.022 Rétt þykir oss að heyra hjá þér, hvað þér býr í huga, en það er oss kunnugt um flokk þennan, að honum er alls staðar mótmælt."
28:23b.ACT.028.023 Þeir tóku til dag við hann, og komu þá mjög margir til hans í herbergi hans. Frá morgni til kvölds skýrði hann og vitnaði fyrir þeim um Guðs ríki og reyndi að sannfæra þá um Jesú, bæði eftir lögmáli Móse og spámönnunum.
28:24b.ACT.028.024 Sumir létu sannfærast af orðum hans, en aðrir trúðu ekki.
28:25b.ACT.028.025 Fóru þeir burt, ósamþykkir sín í milli, en Páll sagði þetta eitt: "Rétt er það, sem heilagur andi mælti við feður yðar fyrir munn Jesaja spámanns:
28:26b.ACT.028.026 Far til lýðs þessa og seg þú: Með eyrum munuð þér heyra og alls eigi skilja, og sjáandi munuð þér horfa og ekkert sjá.
28:27b.ACT.028.027 Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið, og illa heyra þeir með eyrum sínum, og augunum hafa þeir lokað, svo að þeir sjái ekki með augunum né heyri með eyrunum og skynji með hjartanu og snúi sér, og ég lækni þá.
28:28b.ACT.028.028 Nú skuluð þér vita, að þetta hjálpræði Guðs hefur verið sent heiðingjunum, og þeir munu hlusta."
28:29b.ACT.028.029 (OMITTED TEXT)
28:30b.ACT.028.030 Full tvö ár var Páll þar í húsnæði, sem hann hafði leigt sér, og tók á móti öllum þeim, sem komu til hans.
28:31b.ACT.028.031 Hann boðaði Guðs ríki og fræddi um Drottin Jesú Krist með allri djörfung, tálmunarlaust.
3
3:1b.ACT.003.001 Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna.
3:2b.ACT.003.002 Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins, sem nefndar eru Fögrudyr, til að beiðast ölmusu hjá þeim, er inn gengu í helgidóminn.
3:3b.ACT.003.003 Er hann sá þá Pétur og Jóhannes á leið inn í helgidóminn, baðst hann ölmusu.
3:4b.ACT.003.004 Þeir horfðu fast á hann, og Pétur sagði: "Lít þú á okkur."
3:5b.ACT.003.005 Hann starði á þá í von um að fá eitthvað hjá þeim.
3:6b.ACT.003.006 Pétur sagði: "Silfur og gull á ég ekki, en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!"
3:7b.ACT.003.007 Og hann tók í hægri hönd honum og reisti hann upp. Jafnskjótt urðu fætur hans og ökklar styrkir,
3:8b.ACT.003.008 hann spratt upp, stóð í fætur og tók að ganga. Hann fór inn með þeim í helgidóminn, gekk um og stökk og lofaði Guð.
3:9b.ACT.003.009 Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð.
3:10b.ACT.003.010 Þeir þekktu, að hann var sá er hafði setið fyrir Fögrudyrum helgidómsins til að beiðast ölmusu. Urðu þeir furðu lostnir og frá sér numdir af því, sem fram við hann hafði komið.
3:11b.ACT.003.011 Hann hélt sér að Pétri og Jóhannesi, og þá flykktist allt fólkið furðu lostið til þeirra í súlnagöngin, sem kennd eru við Salómon.
3:12b.ACT.003.012 Þegar Pétur sá það, ávarpaði hann fólkið: "Ísraelsmenn, hví furðar yður á þessu eða hví starið þér á okkur, eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni komið því til leiðar, að þessi maður gengur?
3:13b.ACT.003.013 Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, Guð feðra vorra hefur dýrlegan gjört þjón sinn, Jesú, sem þér framselduð og afneituðuð frammi fyrir Pílatusi, er hann hafði ályktað að láta hann lausan.
3:14b.ACT.003.014 Þér afneituðuð hinum heilaga og réttláta, en beiddust að manndrápari yrði gefinn yður.
3:15b.ACT.003.015 Þér líflétuð höfðingja lífsins, en Guð uppvakti hann frá dauðum, og að því erum vér vottar.
3:16b.ACT.003.016 Trúin á nafn Jesú gjörði þennan mann, sem þér sjáið og þekkið, styrkan. Nafnið hans og trúin, sem hann gefur, veitti honum þennan albata fyrir augum yðar allra.
3:17b.ACT.003.017 Nú veit ég, bræður, að þér gjörðuð það af vanþekkingu, sem og höfðingjar yðar.
3:18b.ACT.003.018 En Guð lét þannig rætast það, sem hann hafði boðað fyrirfram fyrir munn allra spámannanna, að Kristur hans skyldi líða.
3:19b.ACT.003.019 Gjörið því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði afmáðar.
3:20b.ACT.003.020 Þá munu koma endurlífgunartímar frá augliti Drottins, og hann mun senda Krist, sem yður er fyrirhugaður, sem er Jesús.
3:21b.ACT.003.021 Hann á að vera í himninum allt til þess tíma, þegar Guð endurreisir alla hluti, eins og hann hefur sagt fyrir munn sinna heilögu spámanna frá alda öðli.
3:22b.ACT.003.022 Móse sagði: ,Spámann mun Drottinn, Guð yðar, uppvekja yður af bræðrum yðar eins og mig. Á hann skuluð þér hlýða í öllu, er hann talar til yðar.
3:23b.ACT.003.023 Og sérhver sá, sem hlýðir ekki á þennan spámann, skal upprættur verða úr lýðnum.'
3:24b.ACT.003.024 Allir spámennirnir, Samúel og þeir sem á eftir komu, allir þeir sem talað hafa, boðuðu og þessa daga.
3:25b.ACT.003.025 Þér eruð börn spámannanna og eigið hlut í sáttmálanum, sem Guð gjörði við feður yðar, er hann sagði við Abraham: ,Af þínu afkvæmi skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessun hljóta.'
3:26b.ACT.003.026 Guð hefur reist upp þjón sinn og sent hann yður fyrst til að blessa yður og snúa hverjum yðar frá vondri breytni sinni."
4
4:1b.ACT.004.001 Meðan þeir voru að tala til fólksins, komu að þeim prestarnir, varðforingi helgidómsins og saddúkearnir.
4:2b.ACT.004.002 Þeir voru æfir af því að postularnir voru að kenna fólkinu og boða upprisu dauðra í Jesú.
4:3b.ACT.004.003 Lögðu þeir hendur á þá og settu þá í varðhald til næsta morguns, því að kvöld var komið.
4:4b.ACT.004.004 En margir þeirra, er heyrt höfðu orðið, tóku trú, og tala karlmanna varð um fimm þúsundir.
4:5b.ACT.004.005 Næsta morgun komu höfðingjarnir, öldungarnir og fræðimennirnir saman í Jerúsalem.
4:6b.ACT.004.006 Þar voru Annas, æðsti prestur, Kaífas, Jóhannes, Alexander og allir, sem voru af æðsta prests ættum.
4:7b.ACT.004.007 Þeir létu leiða postulana fram og spurðu þá: "Með hvaða krafti eða í hvers nafni gjörðuð þið þetta?"
4:8b.ACT.004.008 Þá sagði Pétur við þá, fylltur heilögum anda: "Þér höfðingjar lýðsins og öldungar,
4:9b.ACT.004.009 með því að við eigum í dag að svara til saka vegna góðverks við sjúkan mann og gera grein fyrir því, hvernig hann sé heill orðinn,
4:10b.ACT.004.010 þá sé yður öllum kunnugt og öllum Ísraelslýð, að í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess er þér krossfestuð, en Guð uppvakti frá dauðum, í hans nafni stendur þessi maður heilbrigður fyrir augum yðar.
4:11b.ACT.004.011 Jesús er steinninn, sem þér, húsasmiðirnir, virtuð einskis, hann er orðinn hyrningarsteinn.
4:12b.ACT.004.012 Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss."
4:13b.ACT.004.013 Þegar þeir sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og skildu, að þeir voru ólærðir leikmenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust og við, að þeir höfðu verið með Jesú.
4:14b.ACT.004.014 Og er þeir sáu manninn, sem læknaður hafði verið, standa hjá þeim, máttu þeir ekki í móti mæla.
4:15b.ACT.004.015 Þeir skipuðu þeim að ganga út frá ráðinu, tóku saman ráð sín og sögðu:
4:16b.ACT.004.016 "Hvað eigum vér að gjöra við þessa menn? Því að augljóst er öllum Jerúsalembúum, að ótvírætt tákn er orðið af þeirra völdum. Vér getum ekki neitað því.
4:17b.ACT.004.017 Þetta má ekki berast frekar út meðal lýðsins. Vér skulum því hóta þeim hörðu, að þeir tali aldrei framar í þessu nafni við nokkurn mann."
4:18b.ACT.004.018 Síðan kölluðu þeir þá fyrir sig og skipuðu þeim að hætta með öllu að tala eða kenna í Jesú nafni.
4:19b.ACT.004.019 Pétur og Jóhannes svöruðu: "Dæmið sjálfir, hvort það sé rétt í augum Guðs að hlýðnast yður fremur en honum.
4:20b.ACT.004.020 Vér getum ekki annað en talað það, sem vér höfum séð og heyrt."
4:21b.ACT.004.021 En þeir ógnuðu þeim enn frekar og slepptu þeim síðan, þar sem þeir sáu enga leið vegna fólksins að hegna þeim, því allir lofuðu Guð fyrir þennan atburð.
4:22b.ACT.004.022 En maðurinn, sem læknast hafði með þessu tákni, var yfir fertugt.
4:23b.ACT.004.023 Er þeim hafði verið sleppt, fóru þeir til félaga sinna og greindu þeim frá öllu því, sem æðstu prestarnir og öldungarnir höfðu við þá talað.
4:24b.ACT.004.024 Þegar þeir heyrðu það, hófu þeir einum huga raust sína til Guðs og sögðu: "Herra, þú sem gjörðir himin, jörð og haf og allt, sem í þeim er,
4:25b.ACT.004.025 þú, sem lést heilagan anda mæla af munni Davíðs, föður vors, þjóns þíns: Hví geisuðu heiðingjarnir, og hví hugðu lýðirnir á hégómleg ráð?
4:26b.ACT.004.026 Konungar jarðarinnar risu upp, og höfðingjarnir söfnuðust saman gegn Drottni og gegn hans Smurða.
4:27b.ACT.004.027 Því að sannarlega söfnuðust saman í borg þessari gegn hinum heilaga þjóni þínum, Jesú, er þú smurðir, þeir Heródes og Pontíus Pílatus ásamt heiðingjunum og lýðum Ísraels
4:28b.ACT.004.028 til að gjöra allt það, er hönd þín og ráð hafði fyrirhugað, að verða skyldi.
4:29b.ACT.004.029 Og nú, Drottinn, lít á hótanir þeirra og veit þjónum þínum fulla djörfung að tala orð þitt.
4:30b.ACT.004.030 Rétt þú út hönd þína til að lækna og lát tákn og undur verða fyrir nafn þíns heilaga þjóns, Jesú."
4:31b.ACT.004.031 Þegar þeir höfðu beðist fyrir, hrærðist staðurinn, þar sem þeir voru saman komnir, og þeir fylltust allir heilögum anda og töluðu orð Guðs af djörfung.
4:32b.ACT.004.032 En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál, og enginn þeirra taldi neitt vera sitt, er hann átti, heldur höfðu þeir allt sameiginlegt.
4:33b.ACT.004.033 Postularnir báru vitni um upprisu Drottins Jesú með miklum krafti, og mikil náð var yfir þeim öllum.
4:34b.ACT.004.034 Eigi var heldur neinn þurfandi meðal þeirra, því að allir landeigendur og húseigendur seldu eign sína, komu með andvirðið
4:35b.ACT.004.035 og lögðu fyrir fætur postulanna. Og sérhverjum var úthlutað eftir því sem hann hafði þörf til.
4:36b.ACT.004.036 Jósef levíti, frá Kýpur, sem postularnir kölluðu Barnabas, það þýðir huggunar sonur,
4:37b.ACT.004.037 átti sáðland og seldi, kom með verðið og lagði fyrir fætur postulanna.
5
5:1b.ACT.005.001 En maður nokkur, Ananías að nafni, seldi ásamt Saffíru, konu sinni, eign
5:2b.ACT.005.002 og dró undan af verðinu með vitund konu sinnar, en kom með nokkuð af því og lagði fyrir fætur postulanna.
5:3b.ACT.005.003 En Pétur mælti: "Ananías, hví fyllti Satan hjarta þitt, svo að þú laugst að heilögum anda og dróst undan af verði lands þíns?
5:4b.ACT.005.004 Var landið ekki þitt, meðan þú áttir það, og var ekki andvirði þess á þínu valdi? Hvernig gastu þá látið þér hugkvæmast slíkt tiltæki? Ekki hefur þú logið að mönnum, heldur Guði."
5:5b.ACT.005.005 Þegar Ananías heyrði þetta, féll hann niður og gaf upp öndina, og miklum ótta sló á alla þá, sem heyrðu.
5:6b.ACT.005.006 En ungu mennirnir stóðu upp og bjuggu um hann, báru hann út og jörðuðu.
5:7b.ACT.005.007 Að liðnum svo sem þrem stundum kom kona hans inn og vissi ekki, hvað við hafði borið.
5:8b.ACT.005.008 Þá spurði Pétur hana: "Seg mér, selduð þið jörðina fyrir þetta verð?" En hún svaraði: "Já, fyrir þetta verð."
5:9b.ACT.005.009 Pétur mælti þá við hana: "Hvernig gátuð þið orðið samþykk um að freista anda Drottins? Þú heyrir við dyrnar fótatak þeirra, sem greftruðu mann þinn. Þeir munu bera þig út."
5:10b.ACT.005.010 Jafnskjótt féll hún niður við fætur hans og gaf upp öndina. Ungu mennirnir komu inn, fundu hana dauða, báru út og jörðuðu hjá manni hennar.
5:11b.ACT.005.011 Og miklum ótta sló á allan söfnuðinn og alla, sem heyrðu þetta.
5:12b.ACT.005.012 Fyrir hendur postulanna gjörðust mörg tákn og undur meðal lýðsins. Allur söfnuðurinn kom einum huga saman í Súlnagöngum Salómons.
5:13b.ACT.005.013 Engir aðrir þorðu að samlagast þeim, en fólk virti þá mikils.
5:14b.ACT.005.014 Og enn fleiri urðu þeir, sem trúðu á Drottin, fjöldi karla og kvenna.
5:15b.ACT.005.015 Menn báru jafnvel sjúka út á strætin og lögðu þá á rekkjur og börur, ef verða mætti, er Pétur gengi hjá, að alltént skugginn af honum félli á einhvern þeirra.
5:16b.ACT.005.016 Einnig kom fjöldi fólks frá borgunum umhverfis Jerúsalem og flutti með sér sjúka menn og þjáða af óhreinum höndum. Þeir læknuðust allir.
5:17b.ACT.005.017 Þá hófst æðsti presturinn handa og allur sá flokkur, sem fylgdi honum, saddúkearnir. Fullir ofsa
5:18b.ACT.005.018 létu þeir taka postulana höndum og varpa í fangelsið.
5:19b.ACT.005.019 En engill Drottins opnaði um nóttina dyr fangelsisins, leiddi þá út og sagði:
5:20b.ACT.005.020 "Farið og gangið fram í helgidóminum og talið til lýðsins öll þessi lífsins orð."
5:21b.ACT.005.021 Þeir hlýddu og fóru í dögun í helgidóminn og kenndu. Nú kom æðsti presturinn og hans menn, kölluðu saman ráðið, alla öldunga Ísraels, og sendu þjóna til fangelsisins að sækja postulana.
5:22b.ACT.005.022 Þeir komu í fangelsið og fundu þá ekki, sneru aftur og skýrðu svo frá:
5:23b.ACT.005.023 "Fangelsið fundum vér að öllu tryggilega læst, og varðmennirnir stóðu fyrir dyrum, en er vér lukum upp, fundum vér engan inni."
5:24b.ACT.005.024 Þegar varðforingi helgidómsins og æðstu prestarnir heyrðu þetta, urðu þeir ráðþrota og spurðu, hvar þetta ætlaði að lenda.
5:25b.ACT.005.025 En þá kom maður og bar þeim þessa frétt: "Mennirnir, sem þér settuð í fangelsið, standa í helgidóminum og eru að kenna lýðnum."
5:26b.ACT.005.026 Þá fór varðforinginn með þjónunum og sótti þá. Beittu þeir samt ekki ofbeldi, því þeir óttuðust, að fólkið grýtti þá.
5:27b.ACT.005.027 Þegar þeir voru komnir með þá, leiddu þeir þá fram fyrir ráðið, og æðsti presturinn tók að yfirheyra þá og sagði:
5:28b.ACT.005.028 "Stranglega bönnuðum vér yður að kenna í þessu nafni, og nú hafið þér fyllt Jerúsalem með kenningu yðar og viljið steypa yfir oss blóði þessa manns."
5:29b.ACT.005.029 En Pétur og hinir postularnir svöruðu: "Framar ber að hlýða Guði en mönnum.
5:30b.ACT.005.030 Guð feðra vorra hefur upp vakið Jesú, sem þér hengduð á tré og tókuð af lífi.
5:31b.ACT.005.031 Hann hefur Guð hafið sér til hægri handar og gjört hann að foringja og frelsara til að veita Ísrael afturhvarf og fyrirgefningu synda sinna.
5:32b.ACT.005.032 Vér erum vottar alls þessa, og heilagur andi, sem Guð hefur gefið þeim, er honum hlýða."
5:33b.ACT.005.033 Þegar þeir heyrðu þetta, fylltust þeir bræði og hugðust deyða þá.
5:34b.ACT.005.034 Reis þá upp í ráðinu farísei nokkur, Gamalíel að nafni, kennari í lögmálinu, virtur af öllum lýð. Hann bauð, að mennirnir væru látnir fara út stundarkorn.
5:35b.ACT.005.035 Síðan sagði hann: "Ísraelsmenn, athugið vel, hvað þér gjörið við þessa menn.
5:36b.ACT.005.036 Ekki alls fyrir löngu kom Þevdas fram og þóttist vera eitthvað. Hann aðhylltust um fjögur hundruð manns. En hann var drepinn, og allir þeir, sem fylgdu honum, tvístruðust og hurfu.
5:37b.ACT.005.037 Eftir hann kom fram Júdas frá Galíleu á dögum skrásetningarinnar og sneri fólki til fylgis við sig. Hann fórst líka, og þeir dreifðust allir, sem fylgdu honum.
5:38b.ACT.005.038 Og nú segi ég yður: Látið þessa menn eiga sig og sleppið þeim. Sé þetta ráð eða verk frá mönnum, verður það að engu,
5:39b.ACT.005.039 en sé það frá Guði, þá megnið þér ekki að yfirbuga þá. Eigi má það verða, að þér berjist við sjálfan Guð."
5:40b.ACT.005.040 Þeir féllust á mál hans, kölluðu á postulana, húðstrýktu þá, fyrirbuðu þeim að tala í Jesú nafni og létu þá síðan lausa.
5:41b.ACT.005.041 Þeir fóru burt frá ráðinu, glaðir yfir því, að þeir höfðu verið virtir þess að þola háðung vegna nafns Jesú.
5:42b.ACT.005.042 Létu þeir eigi af að kenna dag hvern í helgidóminum og í heimahúsum og boða fagnaðarerindið um, að Jesús sé Kristur.
6
6:1b.ACT.006.001 Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta út af því, að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun.
6:2b.ACT.006.002 Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: "Ekki hæfir, að vér hverfum frá boðun Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum.
6:3b.ACT.006.003 Finnið því, bræður, sjö vel kynnta menn úr yðar hópi, sem fullir eru anda og visku. Munum vér setja þá yfir þetta starf.
6:4b.ACT.006.004 En vér munum helga oss bæninni og þjónustu orðsins."
6:5b.ACT.006.005 Öll samkoman gerði góðan róm að máli þeirra, og kusu þeir Stefán, mann fullan af trú og heilögum anda, Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu, sem tekið hafði gyðingatrú.
6:6b.ACT.006.006 Þeir leiddu þá fram fyrir postulana, sem báðust fyrir og lögðu hendur yfir þá.
6:7b.ACT.006.007 Orð Guðs breiddist út, og tala lærisveinanna í Jerúsalem fór stórum vaxandi, einnig snerist mikill fjöldi presta til hlýðni við trúna.
6:8b.ACT.006.008 Stefán var fullur af náð og krafti og gjörði undur og tákn mikil meðal fólksins.
6:9b.ACT.006.009 Þá komu til nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og Alexandríu, en aðrir frá Kilikíu og Asíu, og tóku að þrátta við Stefán.
6:10b.ACT.006.010 En þeir gátu ekki staðið gegn visku þeirri og anda, sem hann talaði af.
6:11b.ACT.006.011 Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: "Vér höfum heyrt hann tala lastmæli gegn Móse og Guði."
6:12b.ACT.006.012 Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina, og þeir veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið.
6:13b.ACT.006.013 Þá leiddu þeir fram ljúgvotta, er sögðu: "Þessi maður er alltaf að tala gegn þessum heilaga stað og lögmálinu.
6:14b.ACT.006.014 Vér höfum heyrt hann segja, að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum, sem Móse hefur sett oss."
6:15b.ACT.006.015 Allir sem í ráðinu sátu, störðu á hann og sáu, að ásjóna hans var sem engils ásjóna.
7
7:1b.ACT.007.001 Þá spurði æðsti presturinn: "Er þessu svo farið?"
7:2b.ACT.007.002 Stefán svaraði: "Heyrið mig, bræður og feður. Guð dýrðarinnar birtist föður vorum, Abraham, er hann var enn í Mesópótamíu, áður en hann settist að í Haran,
7:3b.ACT.007.003 og sagði við hann: ,Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu til landsins, sem ég mun vísa þér á.'
7:4b.ACT.007.004 Þá fór hann burt úr Kaldealandi og settist að í Haran. En eftir lát föður hans leiddi Guð hann þaðan til þessa lands, sem þér nú byggið.
7:5b.ACT.007.005 Ekki gaf hann honum óðal hér, ekki eitt fótmál. En hann hét honum að gefa honum landið til eignar og niðjum hans eftir hann, þótt hann væri enn barnlaus.
7:6b.ACT.007.006 Guð sagði, að niðjar hans mundu búa sem útlendingar í ókunnu landi og verða þjáðir og þrælkaðir í fjögur hundruð ár.
7:7b.ACT.007.007 ,En þjóðina, sem þrælkar þá, mun ég dæma,' sagði Guð, ,og eftir það munu þeir fara þaðan og þjóna mér á þessum stað.'
7:8b.ACT.007.008 Þá gaf hann honum sáttmála umskurnarinnar. Síðan gat Abraham Ísak og umskar hann á áttunda degi, og Ísak gat Jakob og Jakob ættfeðurna tólf.
7:9b.ACT.007.009 Og ættfeðurnir öfunduðu Jósef og seldu hann til Egyptalands. En Guð var með honum,
7:10b.ACT.007.010 frelsaði hann úr öllum þrengingum hans og veitti honum hylli og visku í augum Faraós, Egyptalandskonungs, svo að hann skipaði hann höfðingja yfir Egyptaland og yfir allt sitt hús.
7:11b.ACT.007.011 Nú kom hallæri á öllu Egyptalandi og Kanaan og mikil þrenging, og feður vorir höfðu ekki lífsbjörg.
7:12b.ACT.007.012 En er Jakob heyrði, að korn væri til á Egyptalandi, sendi hann feður vora þangað hið fyrra sinn.
7:13b.ACT.007.013 Og í síðara skiptið gaf Jósef sig fram við bræður sína, og Faraó varð kunn ætt Jósefs.
7:14b.ACT.007.014 En Jósef sendi eftir Jakobi föður sínum og öllu ættfólki sínu, sjötíu og fimm manns,
7:15b.ACT.007.015 og Jakob fór suður til Egyptalands. Þar andaðist hann og feður vorir.
7:16b.ACT.007.016 Þeir voru fluttir til Síkem og lagðir í grafreitinn, er Abraham hafði keypt fyrir silfur af sonum Hemors í Síkem.
7:17b.ACT.007.017 Nú tók að nálgast sá tími, er rætast skyldi fyrirheitið, sem Guð hafði gefið Abraham. Fólkið hafði vaxið og margfaldast í Egyptalandi.
7:18b.ACT.007.018 ,Þá hófst til ríkis þar annar konungur, er eigi vissi skyn á Jósef.'
7:19b.ACT.007.019 Hann beitti kyn vort slægð og lék feður vora illa. Hann lét þá bera út ungbörn sín, til þess að þjóðin skyldi eigi lífi halda.
7:20b.ACT.007.020 Um þessar mundir fæddist Móse og var forkunnar fríður. Þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns.
7:21b.ACT.007.021 En er hann var út borinn, tók dóttir Faraós hann og fóstraði sem sinn son.
7:22b.ACT.007.022 Móse var fræddur í allri speki Egypta, og hann var máttugur í orðum sínum og verkum.
7:23b.ACT.007.023 Þegar hann var fertugur að aldri, kom honum í hug að vitja bræðra sinna, Ísraelsmanna.
7:24b.ACT.007.024 Hann sá einn þeirra verða fyrir ójöfnuði, og rétti hann hlut hans, hefndi þess, sem meingjörðina þoldi, og drap Egyptann.
7:25b.ACT.007.025 Hann hugði, að bræður hans mundu skilja, að Guð ætlaði að nota hann til að bjarga þeim, en þeir skildu það ekki.
7:26b.ACT.007.026 Næsta dag kom hann að tveim þeirra, sem slógust. Hann reyndi að stilla til friðar með þeim og sagði: ,Góðir menn, þið eruð bræður, hví eigist þið illt við?'
7:27b.ACT.007.027 En sá sem beitti náunga sinn órétti, hratt honum frá sér og sagði: ,Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur?
7:28b.ACT.007.028 Þú munt þó ekki vilja drepa mig, eins og þú drapst Egyptann í gær?'
7:29b.ACT.007.029 Við þessi orð flýði Móse og settist að sem útlendingur í Midíanslandi. Þar gat hann tvo sonu.
7:30b.ACT.007.030 Að fjörutíu árum liðnum ,birtist honum engill í eyðimörk Sínaífjalls í logandi þyrnirunna.'
7:31b.ACT.007.031 Móse undraðist sýnina, gekk nær og vildi hyggja að. Þá hljómaði rödd Drottins:
7:32b.ACT.007.032 ,Ég er Guð feðra þinna, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs.' En Móse skelfdist og þorði ekki að hyggja frekar að.
7:33b.ACT.007.033 En Drottinn sagði við hann: ,Leys af þér skó þína, því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð.
7:34b.ACT.007.034 Ég hef sannlega séð áþján lýðs míns á Egyptalandi og heyrt andvörp þeirra og er ofan kominn að frelsa þá. Kom nú, ég vil senda þig til Egyptalands.'
7:35b.ACT.007.035 Þennan Móse, er þeir afneituðu með því að segja: ,Hver skipaði þig höfðingja og dómara?' hann sendi Guð sem höfðingja og lausnara með fulltingi engilsins, er honum birtist í þyrnirunnanum.
7:36b.ACT.007.036 Það var Móse, sem leiddi þá út og gjörði undur og tákn á Egyptalandi, í Rauðahafinu og á eyðimörkinni í fjörutíu ár.
7:37b.ACT.007.037 Þessi er sá Móse, sem sagði við Ísraelsmenn: ,Spámann eins og mig mun Guð upp vekja yður, einn af bræðrum yðar.'
7:38b.ACT.007.038 Hann er sá, sem var í söfnuðinum í eyðimörkinni, með englinum, er við hann talaði á Sínaífjalli, og með feðrum vorum. Hann tók á móti lifandi orðum að gefa oss.
7:39b.ACT.007.039 Eigi vildu feður vorir hlýðnast honum, heldur hrundu honum frá sér og þráðu í hjörtum sínum Egyptaland.
7:40b.ACT.007.040 Þeir sögðu við Aron: ,Gjör oss guði, er fyrir oss fari, því að ekki vitum vér, hvað orðið er af Móse þeim, sem leiddi oss brott af Egyptalandi.'
7:41b.ACT.007.041 Og á þeim dögum smíðuðu þeir kálf, færðu skurðgoðinu fórn og kættust af verki handa sinna.
7:42b.ACT.007.042 En Guð sneri sér frá þeim og lét þeim eftir að dýrka her himinsins, eins og ritað er í spámannabókinni: Hvort færðuð þér mér, Ísraels ætt, sláturdýr og fórnir árin fjörutíu í eyðimörkinni?
7:43b.ACT.007.043 Nei, þér báruð búð Móloks og stjörnu guðsins Refans, myndirnar, sem þér smíðuðuð til þess að tilbiðja þær. Ég mun herleiða yður austur fyrir Babýlon.
7:44b.ACT.007.044 Vitnisburðartjaldbúðina höfðu feður vorir í eyðimörkinni. Hún var gjörð eins og sá bauð, er við Móse mælti, eftir þeirri fyrirmynd, sem Móse sá.
7:45b.ACT.007.045 Við henni tóku og feður vorir, fluttu hana með Jósúa inn í landið, sem þeir tóku til eignar af heiðingjunum, er Guð rak brott undan þeim. Stóð svo allt til daga Davíðs.
7:46b.ACT.007.046 Hann fann náð hjá Guði og bað, að hann mætti finna bústað fyrir Jakobs Guð.
7:47b.ACT.007.047 En Salómon reisti honum hús.
7:48b.ACT.007.048 En eigi býr hinn hæsti í því, sem með höndum er gjört. Spámaðurinn segir:
7:49b.ACT.007.049 Himinninn er hásæti mitt og jörðin skör fóta minna. Hvaða hús munuð þér reisa mér, segir Drottinn, eða hver er hvíldarstaður minn?
7:50b.ACT.007.050 Hefur ekki hönd mín skapað allt þetta?
7:51b.ACT.007.051 Þér harðsvíraðir og óumskornir í hjörtum og á eyrum, þér standið ávallt gegn heilögum anda, þér eins og feður yðar.
7:52b.ACT.007.052 Hver var sá spámaður, sem feður yðar ofsóttu eigi? Þeir drápu þá, er boðuðu fyrirfram komu hins réttláta, og nú hafið þér svikið hann og myrt.
7:53b.ACT.007.053 Þér sem lögmálið fenguð fyrir umsýslan engla, en hafið þó eigi haldið það."
7:54b.ACT.007.054 Þegar þeir heyrðu þetta, trylltust þeir og gnístu tönnum gegn honum.
7:55b.ACT.007.055 En hann horfði til himins, fullur af heilögum anda og leit dýrð Guðs og Jesú standa til hægri handar Guði
7:56b.ACT.007.056 og sagði: "Ég sé himnana opna og Mannssoninn standa til hægri handar Guði."
7:57b.ACT.007.057 Þá æptu þeir hástöfum, héldu fyrir eyrun og réðust að honum, allir sem einn maður.
7:58b.ACT.007.058 Þeir hröktu hann út úr borginni og tóku að grýta hann. En vottarnir lögðu yfirhafnir sínar að fótum ungum manni, er Sál hét.
7:59b.ACT.007.059 Þannig grýttu þeir Stefán. En hann ákallaði Drottin og sagði: "Drottinn Jesús, meðtak þú anda minn."
7:60b.ACT.007.060 Síðan féll hann á kné og hrópaði hárri röddu: "Drottinn, lát þá ekki gjalda þessarar syndar." Þegar hann hafði þetta mælt, sofnaði hann.
8
8:1b.ACT.008.001 Sál lét sér vel líka líflát hans. Á þeim degi hófst mikil ofsókn gegn söfnuðinum í Jerúsalem. Allir dreifðust út um byggðir Júdeu og Samaríu nema postularnir.
8:2b.ACT.008.002 Guðræknir menn greftruðu Stefán og höfðu sorgarathöfn mikla.
8:3b.ACT.008.003 En Sál gjörði sér allt far um að uppræta söfnuðinn. Hann óð inn í hvert hús, dró þaðan bæði karla og konur og lét setja í varðhald.
8:4b.ACT.008.004 Þeir sem dreifst höfðu, fóru víðs vegar og fluttu fagnaðarerindið.
8:5b.ACT.008.005 Filippus fór norður til höfuðborgar Samaríu og prédikaði Krist þar.
8:6b.ACT.008.006 Menn hlýddu með athygli á orð Filippusar, þegar þeir heyrðu hann tala og sáu táknin, sem hann gjörði.
8:7b.ACT.008.007 Margir höfðu óhreina anda, og fóru þeir út af þeim með ópi miklu. Og margir lama menn og haltir voru læknaðir.
8:8b.ACT.008.008 Mikill fögnuður varð í þeirri borg.
8:9b.ACT.008.009 Maður nokkur, Símon að nafni, var fyrir í borginni. Hann lagði stund á töfra og vakti hrifningu fólksins í Samaríu. Hann þóttist vera næsta mikill.
8:10b.ACT.008.010 Allir flykktust til hans, háir og lágir, og sögðu: "Þessi maður er kraftur Guðs, sá hinn mikli."
8:11b.ACT.008.011 En því flykktust menn um hann, að hann hafði lengi heillað þá með töfrum.
8:12b.ACT.008.012 Nú trúðu menn Filippusi, þegar hann flutti fagnaðarerindið um Guðs ríki og nafn Jesú Krists, og létu skírast, bæði karlar og konur.
8:13b.ACT.008.013 Meira að segja Símon tók trú. Hann var skírður og gjörðist mjög fylgisamur Filippusi. Og er hann sá tákn og mikil kraftaverk gjörast, var hann frá sér numinn.
8:14b.ACT.008.014 Þegar postularnir í Jerúsalem heyrðu, að Samaría hefði tekið við orði Guðs, sendu þeir til þeirra þá Pétur og Jóhannes.
8:15b.ACT.008.015 Þeir fóru norður þangað og báðu fyrir þeim, að þeir mættu öðlast heilagan anda,
8:16b.ACT.008.016 því að enn var hann ekki kominn yfir neinn þeirra. Þeir voru aðeins skírðir til nafns Drottins Jesú.
8:17b.ACT.008.017 Nú lögðu þeir hendur yfir þá, og fengu þeir heilagan anda.
8:18b.ACT.008.018 En er Símon sá, að heilagur andi veittist fyrir handayfirlagning postulanna, bauð hann þeim fé og sagði:
8:19b.ACT.008.019 "Gefið einnig mér þetta vald, að hver sá, er ég legg hendur yfir, fái heilagan anda."
8:20b.ACT.008.020 En Pétur svaraði: "Þrífist aldrei silfur þitt né sjálfur þú, fyrst þú hugðist eignast gjöf Guðs fyrir fé.
8:21b.ACT.008.021 Eigi átt þú skerf né hlut í þessu, því að hjarta þitt er ekki einlægt gagnvart Guði.
8:22b.ACT.008.022 Snú því huga þínum frá þessari illsku þinni og bið Drottin, að þér mætti fyrirgefast hugsun hjarta þíns,
8:23b.ACT.008.023 því ég sé, að þú ert fullur gallbeiskju og í fjötrum ranglætis."
8:24b.ACT.008.024 Símon sagði: "Biðjið þér fyrir mér til Drottins, að ekkert komi það yfir mig, sem þér hafið mælt."
8:25b.ACT.008.025 Er þeir höfðu nú vitnað og talað orð Drottins, sneru þeir aftur áleiðis til Jerúsalem og boðuðu fagnaðarerindið í mörgum þorpum Samverja.
8:26b.ACT.008.026 En engill Drottins mælti til Filippusar: "Statt upp og gakk suður á veginn, sem liggur ofan frá Jerúsalem til Gasa." Þar er óbyggð.
8:27b.ACT.008.027 Hann hlýddi og fór. Þá bar að mann frá Eþíópíu. Hann var hirðmaður og höfðingi hjá Kandake, drottningu Eþíópa, og settur yfir alla fjárhirslu hennar. Hann hafði farið til Jerúsalem til að biðjast fyrir
8:28b.ACT.008.028 og var á heimleið, sat í vagni sínum og las Jesaja spámann.
8:29b.ACT.008.029 Andinn sagði þá við Filippus: "Gakk að þessum vagni og vertu sem næst honum."
8:30b.ACT.008.030 Filippus skundaði þangað og heyrði manninn vera að lesa Jesaja spámann. Hann spurði: "Hvort skilur þú það, sem þú ert að lesa?"
8:31b.ACT.008.031 Hinn svaraði: "Hvernig ætti ég að geta það, ef enginn leiðbeinir mér?" Og hann bað Filippus stíga upp í og setjast hjá sér.
8:32b.ACT.008.032 En orð þeirrar ritningar, sem hann var að lesa, voru þessi: Eins og sauður til slátrunar leiddur, og sem lamb þegir hjá þeim, er klippir það, svo lauk hann ekki upp munni sínum.
8:33b.ACT.008.033 Í niðurlægingunni var hann sviptur rétti. Hver getur sagt frá ætt hans? Því að líf hans var hrifið burt af jörðinni.
8:34b.ACT.008.034 Hirðmaðurinn mælti þá við Filippus: "Seg þú mér: Um hvern segir spámaðurinn þetta, sjálfan sig eða einhvern annan?"
8:35b.ACT.008.035 Filippus tók þá til orða, hóf máls á ritningu þessari og boðaði honum fagnaðarerindið um Jesú.
8:36b.ACT.008.036 Þegar þeir fóru áfram veginn, komu þeir að vatni nokkru. Þá mælti hirðmaðurinn: "Hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast?"
8:37b.ACT.008.037 (OMITTED TEXT)
8:38b.ACT.008.038 Hann lét stöðva vagninn, og stigu báðir niður í vatnið, Filippus og hirðmaðurinn, og Filippus skírði hann.
8:39b.ACT.008.039 En er þeir stigu upp úr vatninu, hreif andi Drottins Filippus burt. Hirðmaðurinn sá hann ekki framar og fór fagnandi leiðar sinnar.
8:40b.ACT.008.040 En Filippus kom fram í Asdód, fór um og flutti fagnaðarerindið í hverri borg, uns hann kom til Sesareu.
9
9:1b.ACT.009.001 En Sál blés enn ógnum og manndrápum gegn lærisveinum Drottins. Gekk hann til æðsta prestsins
9:2b.ACT.009.002 og beiddist bréfa af honum til samkundanna í Damaskus, að hann mætti flytja í böndum til Jerúsalem þá, er hann kynni að finna og væru þessa vegar, hvort heldur karla eða konur.
9:3b.ACT.009.003 En þegar hann var á ferð sinni kominn í nánd við Damaskus, leiftraði skyndilega um hann ljós af himni.
9:4b.ACT.009.004 Hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: "Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?"
9:5b.ACT.009.005 En hann sagði: "Hver ert þú, herra?" Þá var svarað: "Ég er Jesús, sem þú ofsækir.
9:6b.ACT.009.006 En statt upp og gakk inn í borgina, og þér mun verða sagt, hvað þú átt að gjöra."
9:7b.ACT.009.007 Förunautar hans stóðu orðlausir. Þeir heyrðu að vísu raustina, en sáu engan.
9:8b.ACT.009.008 Sál reis á fætur, en þegar hann lauk upp augunum, sá hann ekkert. Þeir leiddu hann við hönd sér inn í Damaskus.
9:9b.ACT.009.009 Þrjá daga var hann sjónlaus og át hvorki né drakk.
9:10b.ACT.009.010 Í Damaskus var lærisveinn nokkur, sem hét Ananías. Við hann sagði Drottinn í sýn: "Ananías." Hann svaraði: "Hér er ég, Drottinn."
9:11b.ACT.009.011 Drottinn sagði við hann: "Far þegar í stræti það, sem kallað er Hið beina, og í húsi Júdasar skaltu spyrja eftir manni frá Tarsus, er heitir Sál. Hann er að biðja.
9:12b.ACT.009.012 Og hann hefur í sýn séð mann, Ananías að nafni, koma inn og leggja hendur yfir sig, til þess að hann fái aftur sjón."
9:13b.ACT.009.013 Ananías svaraði: "Drottinn, heyrt hef ég marga segja frá manni þessum, hve mikið illt hann hefur gjört þínum heilögu í Jerúsalem.
9:14b.ACT.009.014 Og hér fer hann með vald frá æðstu prestunum að færa í bönd alla þá, sem ákalla nafn þitt."
9:15b.ACT.009.015 Drottinn sagði við hann: "Far þú, því að þennan mann hef ég valið mér að verkfæri til þess að bera nafn mitt fram fyrir heiðingja, konunga og börn Ísraels,
9:16b.ACT.009.016 og ég mun sýna honum, hversu mikið hann verður að þola vegna nafns míns."
9:17b.ACT.009.017 Þá fór Ananías af stað, gekk inn í húsið og lagði hendur yfir hann og mælti: "Sál, bróðir, Drottinn hefur sent mig, Jesús, sá er birtist þér á leið þinni hingað. Þú átt að fá aftur sjón þína og fyllast heilögum anda."
9:18b.ACT.009.018 Jafnskjótt var sem hreistur félli af augum hans, hann fékk aftur sjónina og lét þegar skírast.
9:19b.ACT.009.019 Síðan neytti hann matar og styrktist. Sál var nokkra daga hjá lærisveinunum í Damaskus
9:20b.ACT.009.020 og tók þegar að prédika í samkunduhúsunum, að Jesús væri sonur Guðs.
9:21b.ACT.009.021 Allir þeir, sem heyrðu það, undruðust stórum og sögðu: "Er þetta ekki maðurinn, sem í Jerúsalem hugðist eyða þeim, er ákölluðu þetta nafn? Kom hann ekki hingað til að fara með þá í böndum til æðstu prestanna?"
9:22b.ACT.009.022 En Sál efldist æ meir og gjörði þá Gyðinga, sem bjuggu í Damaskus, rökþrota, er hann sannaði, að Jesús væri Kristur.
9:23b.ACT.009.023 Að allmörgum dögum liðnum réðu Gyðingar með sér að taka hann af lífi.
9:24b.ACT.009.024 En Sál fékk vitneskju um ráðagjörð þeirra. Þeir gættu borgarhliðanna nótt og dag til að ná lífi hans.
9:25b.ACT.009.025 En lærisveinarnir tóku hann um nótt og komu honum út fyrir borgarmúrinn með því að láta hann síga ofan í körfu.
9:26b.ACT.009.026 Þá er hann kom til Jerúsalem, reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum, en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki, að hann væri lærisveinn.
9:27b.ACT.009.027 En Barnabas tók hann að sér, fór með hann til postulanna og skýrði þeim frá, hvernig hann hefði séð Drottin á veginum, hvað hann hefði sagt við hann og hversu einarðlega hann hefði talað í Jesú nafni í Damaskus.
9:28b.ACT.009.028 Dvaldist hann nú með þeim í Jerúsalem, gekk þar út og inn og talaði einarðlega í nafni Drottins.
9:29b.ACT.009.029 Hann talaði og háði kappræður við grískumælandi Gyðinga, en þeir leituðust við að ráða hann af dögum.
9:30b.ACT.009.030 Þegar bræðurnir urðu þessa vísir, fóru þeir með hann til Sesareu og sendu hann áfram til Tarsus.
9:31b.ACT.009.031 Nú hafði kirkjan frið um alla Júdeu, Galíleu og Samaríu. Hún byggðist upp og gekk fram í ótta Drottins og óx við styrkingu heilags anda.
9:32b.ACT.009.032 Svo bar við, er Pétur var að ferðast um og vitja allra, að hann kom og til hinna heilögu, sem áttu heima í Lýddu.
9:33b.ACT.009.033 Þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur. Hann var lami.
9:34b.ACT.009.034 Pétur sagði við hann: "Eneas, Jesús Kristur læknar þig, statt upp og bú um þig." Jafnskjótt stóð hann upp.
9:35b.ACT.009.035 Allir þeir, sem áttu heima í Lýddu og Saron, sáu hann, og þeir sneru sér til Drottins.
9:36b.ACT.009.036 Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas. Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða.
9:37b.ACT.009.037 En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún lauguð og lögð í loftstofu.
9:38b.ACT.009.038 Nú er Lýdda í grennd við Joppe, og höfðu lærisveinarnir heyrt, að Pétur væri þar. Sendu þeir tvo menn til hans og báðu hann: "Kom án tafar til vor."
9:39b.ACT.009.039 Pétur brá við og fór með þeim. Þegar þangað kom, fóru þeir með hann upp í loftstofuna, og allar ekkjurnar komu til hans grátandi og sýndu honum kyrtla og yfirhafnir, sem Dorkas hafði gjört, meðan hún var hjá þeim.
9:40b.ACT.009.040 En Pétur lét alla fara út, féll á kné og baðst fyrir. Síðan sneri hann sér að líkinu og sagði: "Tabíþa, rís upp." En hún opnaði augun, sá Pétur og settist upp.
9:41b.ACT.009.041 Og hann rétti henni höndina og reisti hana á fætur, kallaði síðan á hina heilögu og ekkjurnar og leiddi hana fram lifandi.
9:42b.ACT.009.042 Þetta varð hljóðbært um alla Joppe, og margir tóku trú á Drottin.
9:43b.ACT.009.043 Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara.
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Acts (Icelandic). Acts (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DE0-A