Luke (Icelandic)
1
1:1b.LUK.001.001 Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gjörst hafa meðal vor,
1:2b.LUK.001.002 samkvæmt því, sem oss hafa flutt þeir menn, er frá öndverðu voru sjónarvottar og þjónar orðsins.
1:3b.LUK.001.003 Nú hef ég athugað kostgæfilega allt þetta frá upphafi og réð því einnig af að rita samfellda sögu fyrir þig, göfugi Þeófílus,
1:4b.LUK.001.004 svo að þú megir ganga úr skugga um sannindi þeirra frásagna, sem þú hefur fræðst um.
1:5b.LUK.001.005 Á dögum Heródesar, konungs í Júdeu, var uppi prestur nokkur að nafni Sakaría, af sveit Abía. Kona hans var og af ætt Arons og hét Elísabet.
1:6b.LUK.001.006 Þau voru bæði réttlát fyrir Guði og lifðu vammlaus eftir öllum boðum og ákvæðum Drottins.
1:7b.LUK.001.007 En þau áttu ekki barn, því að Elísabet var óbyrja, og bæði voru þau hnigin að aldri.
1:8b.LUK.001.008 En svo bar við, er röðin kom að sveit hans og hann var að gegna þjónustu fyrir Guði,
1:9b.LUK.001.009 að það féll í hans hlut, samkvæmt venju prestdómsins, að ganga inn í musteri Drottins og fórna reykelsi.
1:10b.LUK.001.010 En allur fólksfjöldinn var fyrir utan á bæn, meðan reykelsisfórnin var færð.
1:11b.LUK.001.011 Birtist honum þá engill Drottins, sem stóð hægra megin við reykelsisaltarið.
1:12b.LUK.001.012 Sakaría varð hverft við sýn þessa, og ótta sló á hann.
1:13b.LUK.001.013 En engillinn sagði við hann: "Óttast þú eigi, Sakaría, því bæn þín er heyrð. Elísabet kona þín mun fæða þér son, og þú skalt láta hann heita Jóhannes.
1:14b.LUK.001.014 Og þér mun veitast gleði og fögnuður, og margir munu gleðjast vegna fæðingar hans.
1:15b.LUK.001.015 Því að hann mun verða mikill í augliti Drottins. Aldrei mun hann drekka vín né áfengan drykk, en fyllast heilögum anda þegar frá móðurlífi.
1:16b.LUK.001.016 Og mörgum af Ísraels sonum mun hann snúa til Drottins, Guðs þeirra.
1:17b.LUK.001.017 Og hann mun ganga fyrir honum í anda og krafti Elía til að snúa hjörtum feðra til barna og óhlýðnum til hugarfars réttlátra og búa Drottni altygjaðan lýð."
1:18b.LUK.001.018 Sakaría sagði við engilinn: "Af hverju get ég vitað þetta? Ég er gamall og kona mín hnigin að aldri."
1:19b.LUK.001.019 En engillinn svaraði honum: "Ég er Gabríel, sem stend frammi fyrir Guði, ég var sendur til að tala við þig og flytja þér þessa gleðifregn.
1:20b.LUK.001.020 Og þú munt verða mállaus og ekki geta talað til þess dags, er þetta kemur fram, vegna þess að þú trúðir ekki orðum mínum, en þau munu rætast á sínum tíma."
1:21b.LUK.001.021 Og fólkið beið eftir Sakaría og undraðist, hve honum dvaldist í musterinu.
1:22b.LUK.001.022 En er hann kom út, gat hann ekki talað við þá, og skildu þeir, að hann hafði séð sýn í musterinu. Hann gaf þeim bendingar og var mállaus áfram.
1:23b.LUK.001.023 Og er þjónustudagar hans voru liðnir, fór hann heim til sín.
1:24b.LUK.001.024 En eftir þessa daga varð Elísabet kona hans þunguð, og hún leyndi sér í fimm mánuði og sagði:
1:25b.LUK.001.025 "Þannig hefur Drottinn gjört við mig, er hann leit til mín að afmá hneisu mína í augum manna."
1:26b.LUK.001.026 En á sjötta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret,
1:27b.LUK.001.027 til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs, en mærin hét María.
1:28b.LUK.001.028 Og engillinn kom inn til hennar og sagði: "Heil vert þú, sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér."
1:29b.LUK.001.029 En hún varð hrædd við þessi orð og hugleiddi, hvílík þessi kveðja væri.
1:30b.LUK.001.030 Og engillinn sagði við hana: "Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði.
1:31b.LUK.001.031 Þú munt þunguð verða og son ala, og þú skalt láta hann heita JESÚ.
1:32b.LUK.001.032 Hann mun verða mikill og kallaður sonur hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans,
1:33b.LUK.001.033 og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu, og á ríki hans mun enginn endir verða."
1:34b.LUK.001.034 Þá sagði María við engilinn: "Hvernig má þetta verða, þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?"
1:35b.LUK.001.035 Og engillinn sagði við hana: "Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja þig. Fyrir því mun og barnið verða kallað heilagt, sonur Guðs.
1:36b.LUK.001.036 Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni, og þetta er sjötti mánuður hennar, sem kölluð var óbyrja,
1:37b.LUK.001.037 en Guði er enginn hlutur um megn."
1:38b.LUK.001.038 Þá sagði María: "Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum." Og engillinn fór burt frá henni.
1:39b.LUK.001.039 En á þeim dögum tók María sig upp og fór með flýti til borgar nokkurrar í fjallbyggðum Júda.
1:40b.LUK.001.040 Hún kom inn í hús Sakaría og heilsaði Elísabetu.
1:41b.LUK.001.041 Þá varð það, þegar Elísabet heyrði kveðju Maríu, að barnið tók viðbragð í lífi hennar, og Elísabet fylltist heilögum anda
1:42b.LUK.001.042 og hrópaði hárri röddu: "Blessuð ert þú meðal kvenna og blessaður ávöxtur lífs þíns.
1:43b.LUK.001.043 Hvaðan kemur mér þetta, að móðir Drottins míns kemur til mín?
1:44b.LUK.001.044 Þegar kveðja þín hljómaði í eyrum mér, tók barnið viðbragð af gleði í lífi mínu.
1:45b.LUK.001.045 Sæl er hún, sem trúði því, að rætast mundi það, sem sagt var við hana frá Drottni."
1:46b.LUK.001.046 Og María sagði: Önd mín miklar Drottin,
1:47b.LUK.001.047 og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
1:48b.LUK.001.048 Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar, héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
1:49b.LUK.001.049 Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört, og heilagt er nafn hans.
1:50b.LUK.001.050 Miskunn hans við þá, er óttast hann, varir frá kyni til kyns.
1:51b.LUK.001.051 Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
1:52b.LUK.001.052 Valdhöfum hefur hann steypt af stóli og upp hafið smælingja,
1:53b.LUK.001.053 hungraða hefur hann fyllt gæðum, en látið ríka tómhenta frá sér fara.
1:54b.LUK.001.054 Hann hefur minnst miskunnar sinnar og tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
1:55b.LUK.001.055 eins og hann talaði til feðra vorra, við Abraham og niðja hans ævinlega.
1:56b.LUK.001.056 En María dvaldist hjá henni hér um bil þrjá mánuði og sneri síðan heim til sín.
1:57b.LUK.001.057 Nú kom sá tími, að Elísabet skyldi verða léttari, og ól hún son.
1:58b.LUK.001.058 Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu, hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni, og samfögnuðu henni.
1:59b.LUK.001.059 Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn, og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum.
1:60b.LUK.001.060 Þá mælti móðir hans: "Eigi skal hann svo heita, heldur Jóhannes."
1:61b.LUK.001.061 En þeir sögðu við hana: "Enginn er í ætt þinni, sem heitir því nafni."
1:62b.LUK.001.062 Bentu þeir þá föður hans, að hann léti þá vita, hvað sveinninn skyldi heita.
1:63b.LUK.001.063 Hann bað um spjald og reit: "Jóhannes er nafn hans," og urðu þeir allir undrandi.
1:64b.LUK.001.064 Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga, og hann fór að tala og lofaði Guð.
1:65b.LUK.001.065 En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu.
1:66b.LUK.001.066 Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: "Hvað mun barn þetta verða?" Því að hönd Drottins var með honum.
1:67b.LUK.001.067 En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift:
1:68b.LUK.001.068 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
1:69b.LUK.001.069 Hann hefur reist oss horn hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
1:70b.LUK.001.070 eins og hann talaði fyrir munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
1:71b.LUK.001.071 frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra, er hata oss.
1:72b.LUK.001.072 Hann hefur auðsýnt feðrum vorum miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
1:73b.LUK.001.073 þess eiðs, er hann sór Abraham föður vorum
1:74b.LUK.001.074 að hrífa oss úr höndum óvina og veita oss að þjóna sér óttalaust
1:75b.LUK.001.075 í heilagleik og réttlæti fyrir augum hans alla daga vora.
1:76b.LUK.001.076 Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta, því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
1:77b.LUK.001.077 og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu, sem er fyrirgefning synda þeirra.
1:78b.LUK.001.078 Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor
1:79b.LUK.001.079 og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans, og beina fótum vorum á friðar veg.
1:80b.LUK.001.080 En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags, er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.
10
10:1b.LUK.010.001 Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað, sem hann ætlaði sjálfur að koma til.
10:2b.LUK.010.002 Og hann sagði við þá: "Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.
10:3b.LUK.010.003 Farið! Ég sendi yður eins og lömb meðal úlfa.
10:4b.LUK.010.004 Hafið ekki pyngju, ekki mal né skó, og heilsið engum á leiðinni.
10:5b.LUK.010.005 Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: ,Friður sé með þessu húsi.'
10:6b.LUK.010.006 Og sé þar friðar sonur, mun friður yðar hvíla yfir honum, ella hverfa aftur til yðar.
10:7b.LUK.010.007 Verið um kyrrt í sama húsi, neytið þess, sem þar er fram boðið í mat og drykk. Verður er verkamaðurinn launa sinna. Eigi skuluð þér flytjast hús úr húsi.
10:8b.LUK.010.008 Og hvar sem þér komið í borg og tekið er við yður, þá neytið þess, sem fyrir yður er sett.
10:9b.LUK.010.009 Læknið þá, sem þar eru sjúkir, og segið þeim: ,Guðs ríki er komið í nánd við yður.'
10:10b.LUK.010.010 En hvar sem þér komið í borg og eigi er við yður tekið, þá farið út á strætin og segið:
10:11b.LUK.010.011 ,Jafnvel það dust, sem loðir við fætur vora úr borg yðar, þurrkum vér af oss handa yður. Vitið samt þetta, að Guðs ríki er komið í nánd.'
10:12b.LUK.010.012 Ég segi yður: Bærilegra mun Sódómu á þeim degi en þeirri borg.
10:13b.LUK.010.013 Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þeir löngu iðrast og setið í sekk og ösku.
10:14b.LUK.010.014 En Týrus og Sídon mun bærilegra í dóminum en ykkur.
10:15b.LUK.010.015 Og þú Kapernaum! Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða.
10:16b.LUK.010.016 Sá sem á yður hlýðir, hlýðir á mig, og sá sem yður hafnar, hafnar mér. En sá sem hafnar mér, hafnar þeim er sendi mig."
10:17b.LUK.010.017 Nú komu þeir sjötíu og tveir aftur með fögnuði og sögðu: "Herra, jafnvel illir andar eru oss undirgefnir í þínu nafni."
10:18b.LUK.010.018 En hann mælti við þá: "Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu.
10:19b.LUK.010.019 Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun yður mein gjöra.
10:20b.LUK.010.020 Gleðjist samt ekki af því, að andarnir eru yður undirgefnir, gleðjist öllu heldur af hinu, að nöfn yðar eru skráð í himnunum."
10:21b.LUK.010.021 Á sömu stundu varð hann glaður í heilögum anda og sagði: "Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
10:22b.LUK.010.022 Allt er mér falið af föður mínum, og enginn veit, hver sonurinn er, nema faðirinn, né hver faðirinn er, nema sonurinn og sá sem sonurinn vill opinbera hann."
10:23b.LUK.010.023 Og hann sneri sér að lærisveinum sínum og sagði við þá einslega: "Sæl eru þau augu, sem sjá það sem þér sjáið.
10:24b.LUK.010.024 Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það sem þér heyrið, en heyrðu það ekki."
10:25b.LUK.010.025 Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista hans og mælti: "Meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?"
10:26b.LUK.010.026 Jesús sagði við hann: "Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?"
10:27b.LUK.010.027 Hann svaraði: "Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig."
10:28b.LUK.010.028 Jesús sagði við hann: "Þú svaraðir rétt. Gjör þú þetta, og þú munt lifa."
10:29b.LUK.010.029 En hann vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: "Hver er þá náungi minn?"
10:30b.LUK.010.030 Því svaraði Jesús svo: "Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona.
10:31b.LUK.010.031 Svo vildi til, að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn, en sveigði fram hjá.
10:32b.LUK.010.032 Eins kom og levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá.
10:33b.LUK.010.033 En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum, og er hann sá hann, kenndi hann í brjósti um hann,
10:34b.LUK.010.034 gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann.
10:35b.LUK.010.035 Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: ,Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meiru til, skal ég borga þér, þegar ég kem aftur.'
10:36b.LUK.010.036 Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni, sem féll í hendur ræningjum?"
10:37b.LUK.010.037 Hann mælti: "Sá sem miskunnarverkið gjörði á honum." Jesús sagði þá við hann: "Far þú og gjör hið sama."
10:38b.LUK.010.038 Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt, og kona að nafni Marta bauð honum heim.
10:39b.LUK.010.039 Hún átti systur, er María hét, og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans.
10:40b.LUK.010.040 En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: "Herra, hirðir þú eigi um það, að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér."
10:41b.LUK.010.041 En Drottinn svaraði henni: "Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu,
10:42b.LUK.010.042 en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið."
11
11:1b.LUK.011.001 Svo bar við, er Jesús var á stað einum að biðjast fyrir, að einn lærisveina hans sagði við hann, þá er hann lauk bæn sinni: "Herra, kenn þú oss að biðja, eins og Jóhannes kenndi lærisveinum sínum."
11:2b.LUK.011.002 En hann sagði við þá: "Þegar þér biðjist fyrir, þá segið: Faðir, helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
11:3b.LUK.011.003 gef oss hvern dag vort daglegt brauð.
11:4b.LUK.011.004 Fyrirgef oss vorar syndir, enda fyrirgefum vér öllum vorum skuldunautum. Og eigi leið þú oss í freistni."
11:5b.LUK.011.005 Og hann sagði við þá: "Nú á einhver yðar vin og fer til hans um miðnætti og segir við hann: ,Vinur, lánaðu mér þrjú brauð,
11:6b.LUK.011.006 því að vinur minn er kominn til mín úr ferð og ég hef ekkert að bera á borð fyrir hann.'
11:7b.LUK.011.007 Mundi hinn þá svara inni: ,Gjör mér ekki ónæði. Það er búið að loka dyrum og börn mín og ég komin í rúmið. Ég get ekki farið á fætur að fá þér brauð'?
11:8b.LUK.011.008 Ég segi yður, þótt hann fari ekki á fætur og fái honum brauð vegna vinfengis þeirra, þá fer hann samt fram úr sakir áleitni hans og fær honum eins mörg og hann þarf.
11:9b.LUK.011.009 Og ég segi yður: Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
11:10b.LUK.011.010 Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.
11:11b.LUK.011.011 Er nokkur sá faðir yðar á meðal, að hann gefi syni sínum, er biður um fisk, höggorm í staðinn,
11:12b.LUK.011.012 eða sporðdreka, ef hann biður um egg?
11:13b.LUK.011.013 Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda, sem biðja hann."
11:14b.LUK.011.014 Jesús var að reka út illan anda, og var sá mállaus. Þegar illi andinn var út farinn, tók málleysinginn að mæla, og undraðist mannfjöldinn.
11:15b.LUK.011.015 En sumir þeirra sögðu: "Með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda, rekur hann út illu andana."
11:16b.LUK.011.016 En aðrir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.
11:17b.LUK.011.017 En hann vissi hugrenningar þeirra og sagði við þá: "Hvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt, leggst í auðn, og hús fellur á hús.
11:18b.LUK.011.018 Sé nú Satan sjálfum sér sundurþykkur, hvernig fær ríki hans þá staðist - fyrst þér segið, að ég reki illu andana út með fulltingi Beelsebúls?
11:19b.LUK.011.019 En reki ég illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar.
11:20b.LUK.011.020 En ef ég rek illu andana út með fingri Guðs, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.
11:21b.LUK.011.021 Þegar sterkur maður, alvopnaður, varðveitir hús sitt, þá er allt í friði, sem hann á,
11:22b.LUK.011.022 en ráðist annar honum sterkari á hann og sigri hann, tekur sá alvæpni hans, er hann treysti á, og skiptir herfanginu.
11:23b.LUK.011.023 Hver sem er ekki með mér, er á móti mér, og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir.
11:24b.LUK.011.024 Þegar óhreinn andi fer út af manni, reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis. Og er hann finnur það ekki, segir hann: ,Ég vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór.'
11:25b.LUK.011.025 Og er hann kemur og finnur það sópað og prýtt,
11:26b.LUK.011.026 fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri, og þeir fara inn og setjast þar að, og verður svo hlutur þess manns verri eftir en áður."
11:27b.LUK.011.027 Er hann mælti þetta, hóf kona ein í mannfjöldanum upp rödd sína og sagði við hann: "Sæll er sá kviður, er þig bar, og þau brjóst, er þú mylktir."
11:28b.LUK.011.028 Hann sagði: "Já, því sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það."
11:29b.LUK.011.029 Þegar fólkið þyrptist þar að, tók hann svo til orða: "Þessi kynslóð er vond kynslóð. Hún heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar.
11:30b.LUK.011.030 Því Jónas varð Ninívemönnum tákn, og eins mun Mannssonurinn verða þessari kynslóð.
11:31b.LUK.011.031 Drottning Suðurlanda mun rísa upp í dóminum ásamt mönnum þessarar kynslóðar og sakfella þá, því að hún kom frá endimörkum jarðar að heyra speki Salómons, og hér er meira en Salómon.
11:32b.LUK.011.032 Ninívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og sakfella hana, því að þeir gjörðu iðrun við prédikun Jónasar, og hér er meira en Jónas.
11:33b.LUK.011.033 Enginn kveikir ljós og setur það í felur né undir mæliker, heldur á ljósastiku, svo að þeir, sem inn koma, sjái ljósið.
11:34b.LUK.011.034 Auga þitt er lampi líkamans. Þegar auga þitt er heilt, þá er og allur líkami þinn bjartur, en sé það spillt, þá er og líkami þinn dimmur.
11:35b.LUK.011.035 Gæt því þess, að ljósið í þér sé ekki myrkur.
11:36b.LUK.011.036 Sé því líkami þinn allur bjartur og hvergi myrkur í honum, verður hann allur í birtu, eins og þegar lampi lýsir á þig með loga sínum."
11:37b.LUK.011.037 Þá er hann hafði þetta mælt, bauð farísei nokkur honum til dagverðar hjá sér. Hann kom og settist til borðs.
11:38b.LUK.011.038 Faríseinn sá, að hann tók ekki handlaugar á undan máltíðinni, og furðaði hann á því.
11:39b.LUK.011.039 Drottinn sagði þá við hann: "Þér farísear, þér hreinsið bikarinn og fatið utan, en hið innra eruð þér fullir yfirgangs og illsku.
11:40b.LUK.011.040 Þér heimskingjar, hefur sá, sem gjörði hið ytra, ekki einnig gjört hið innra?
11:41b.LUK.011.041 En gefið fátækum það, sem í er látið, og þá er allt yður hreint.
11:42b.LUK.011.042 En vei yður, þér farísear! Þér gjaldið tíund af myntu og rúðu og alls kyns matjurtum, en hirðið ekki um réttlæti og kærleika Guðs. Þetta ber að gjöra og hitt eigi ógjört að láta.
11:43b.LUK.011.043 Vei yður, þér farísear! Yður er ljúft að skipa æðsta bekk í samkundum og láta heilsa yður á torgum.
11:44b.LUK.011.044 Vei yður, því þér eruð eins og duldar grafir, sem menn ganga yfir án þess að vita."
11:45b.LUK.011.045 Þá tók lögvitringur einn til orða: "Meistari, þú meiðir oss líka með því, sem þú segir."
11:46b.LUK.011.046 En Jesús mælti: "Vei yður líka, þér lögvitringar! Þér leggið á menn lítt bærar byrðar, og sjálfir snertið þér ekki byrðarnar einum fingri.
11:47b.LUK.011.047 Vei yður! Þér hlaðið upp grafir spámannanna, sem feður yðar líflétu.
11:48b.LUK.011.048 Þannig berið þér vitni um athafnir feðra yðar og samþykkið þær. Þeir líflétu þá, en þér hlaðið upp grafirnar.
11:49b.LUK.011.049 Þess vegna hefur og speki Guðs sagt: ,Ég mun senda þeim spámenn og postula, og suma þeirra munu þeir lífláta og ofsækja.'
11:50b.LUK.011.050 Þannig verður kynslóð þessi krafin um blóð allra spámannanna, er úthellt hefur verið frá grundvöllun heims,
11:51b.LUK.011.051 frá blóði Abels til blóðs Sakaría, sem drepinn var milli altarisins og musterisins. Já, segi ég yður, þess mun krafist verða af þessari kynslóð.
11:52b.LUK.011.052 Vei yður, þér lögvitringar! Þér hafið tekið brott lykil þekkingarinnar. Sjálfir hafið þér ekki gengið inn, og þeim hafið þér varnað, sem inn vildu ganga."
11:53b.LUK.011.053 Og er hann var farinn út þaðan, tóku fræðimenn og farísear að ganga hart að honum og spyrja hann í þaula um margt
11:54b.LUK.011.054 og sitja um að veiða eitthvað af vörum hans.
12
12:1b.LUK.012.001 Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda, svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: "Varist súrdeig farísea, sem er hræsnin.
12:2b.LUK.012.002 Ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, er eigi verður kunnugt.
12:3b.LUK.012.003 Því mun allt það, sem þér hafið talað í myrkri, heyrast í birtu, og það, sem þér hafið hvíslað í herbergjum, mun kunngjört á þökum uppi.
12:4b.LUK.012.004 Það segi ég yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða og fá að því búnu ekki meira að gjört.
12:5b.LUK.012.005 Ég skal sýna yður, hvern þér eigið að hræðast. Hræðist þann, er hefur vald að deyða og að því búnu varpa í helvíti. Já, ég segi yður, hræðist hann.
12:6b.LUK.012.006 Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó er ekki einn þeirra gleymdur Guði.
12:7b.LUK.012.007 Hárin á höfði yðar eru jafnvel öll talin. Verið óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar.
12:8b.LUK.012.008 En ég segi yður: Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og Mannssonurinn kannast við fyrir englum Guðs.
12:9b.LUK.012.009 En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun afneitað verða fyrir englum Guðs.
12:10b.LUK.012.010 Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum, verður það fyrirgefið, en þeim sem lastmælir gegn heilögum anda, verður ekki fyrirgefið.
12:11b.LUK.012.011 Og þegar þeir leiða yður fyrir samkundur, höfðingja og yfirvöld, hafið þá ekki áhyggjur af því, hvernig eða með hverju þér eigið að verja yður eða hvað þér eigið að segja.
12:12b.LUK.012.012 Því að heilagur andi mun kenna yður á þeirri stundu, hvað segja ber."
12:13b.LUK.012.013 Einn úr mannfjöldanum sagði við hann: "Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum."
12:14b.LUK.012.014 Hann svaraði honum: "Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?"
12:15b.LUK.012.015 Og hann sagði við þá: "Gætið yðar, og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum, þótt auðugur sé."
12:16b.LUK.012.016 Þá sagði hann þeim dæmisögu þessa: "Maður nokkur ríkur átti land, er hafði borið mikinn ávöxt.
12:17b.LUK.012.017 Hann hugsaði með sér: ,Hvað á ég að gjöra? Nú get ég hvergi komið fyrir afurðum mínum.'
12:18b.LUK.012.018 Og hann sagði: ,Þetta gjöri ég: Ég ríf hlöður mínar og reisi aðrar stærri, og þangað safna ég öllu korni mínu og auðæfum.
12:19b.LUK.012.019 Og ég segi við sálu mína: Sála mín, nú átt þú mikinn auð til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð.'
12:20b.LUK.012.020 En Guð sagði við hann: ,Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefur aflað?'
12:21b.LUK.012.021 Svo fer þeim er safnar sér fé, en er ekki ríkur hjá Guði."
12:22b.LUK.012.022 Og hann sagði við lærisveina sína: "Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast.
12:23b.LUK.012.023 Lífið er meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin.
12:24b.LUK.012.024 Hyggið að hröfnunum. Hvorki sá þeir né uppskera, eigi hafa þeir forðabúr eða hlöðu, og Guð fæðir þá. Hve miklum mun eruð þér fremri fuglunum!
12:25b.LUK.012.025 Og hver yðar getur með áhyggjum aukið spönn við aldur sinn?
12:26b.LUK.012.026 Fyrst þér nú orkið ekki svo litlu, hví látið þér allt hitt valda yður áhyggjum?
12:27b.LUK.012.027 Hyggið að liljunum, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.
12:28b.LUK.012.028 Fyrst Guð skrýðir svo grasið á vellinum, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, hve miklu fremur mun hann þá klæða yður, þér trúlitlir!
12:29b.LUK.012.029 Hafið ekki hugann við, hvað þér eigið að eta og hvað að drekka, og kvíðið engu.
12:30b.LUK.012.030 Allt þetta stunda heiðingjar heimsins, en faðir yðar veit, að þér þarfnist þessa.
12:31b.LUK.012.031 Leitið heldur ríkis hans, og þá mun þetta veitast yður að auki.
12:32b.LUK.012.032 Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið.
12:33b.LUK.012.033 Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur, er fyrnast ekki, fjársjóð á himnum, er þrýtur ekki, þar sem þjófur fær eigi í nánd komist né mölur spillt.
12:34b.LUK.012.034 Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.
12:35b.LUK.012.035 Verið gyrtir um lendar, og látið ljós yðar loga,
12:36b.LUK.012.036 og verið líkir þjónum, er bíða þess, að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp fyrir honum um leið og hann kemur og knýr dyra.
12:37b.LUK.012.037 Sælir eru þeir þjónar, sem húsbóndinn finnur vakandi, er hann kemur. Sannlega segi ég yður, hann mun gyrða sig belti, láta þá setjast að borði og koma og þjóna þeim.
12:38b.LUK.012.038 Og komi hann um miðnætti eða síðar og finni þá vakandi, sælir eru þeir þá.
12:39b.LUK.012.039 Það skiljið þér, að húsráðandi léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi, á hvaða stundu þjófurinn kæmi.
12:40b.LUK.012.040 Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi."
12:41b.LUK.012.041 Þá spurði Pétur: "Herra, mælir þú þessa líkingu til vor eða til allra?"
12:42b.LUK.012.042 Drottinn mælti: "Hver er sá trúi og hyggni ráðsmaður, sem húsbóndinn setur yfir hjú sín að gefa þeim skammtinn á réttum tíma?
12:43b.LUK.012.043 Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.
12:44b.LUK.012.044 Ég segi yður með sanni: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.
12:45b.LUK.012.045 En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: ,Það dregst, að húsbóndi minn komi,' og tekur að berja þjóna og þernur, eta og drekka og verða ölvaður,
12:46b.LUK.012.046 þá mun húsbóndi þess þjóns kom á þeim degi, er hann væntir ekki, á þeirri stundu, er hann veit ekki, höggva hann og láta hann fá hlut með ótrúum.
12:47b.LUK.012.047 Sá þjónn, sem veit vilja húsbónda síns og hefur ekki viðbúnað né gjörir vilja hans, mun barinn mörg högg.
12:48b.LUK.012.048 En hinn, sem veit hann ekki, en vinnur til refsingar, mun barinn fá högg. Hver sem mikið er gefið, verður mikils krafinn, og af þeim verður meira heimtað, sem meira er léð.
12:49b.LUK.012.049 Ég er kominn að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég, að hann væri þegar kveiktur!
12:50b.LUK.012.050 Skírn á ég að skírast. Hversu þungt er mér, uns hún er fullnuð.
12:51b.LUK.012.051 Ætlið þér, að ég sé kominn að færa frið á jörðu? Nei, segi ég yður, heldur sundurþykki.
12:52b.LUK.012.052 Upp frá þessu verða fimm í sama húsi sundurþykkir, þrír við tvo og tveir við þrjá,
12:53b.LUK.012.053 faðir við son og sonur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móður, tengdamóðir við tengdadóttur sína og tengdadóttir við tengdamóður."
12:54b.LUK.012.054 Hann sagði og við fólkið: "Þá er þér sjáið ský draga upp í vestri, segið þér jafnskjótt: ,Nú fer að rigna.' Og svo verður.
12:55b.LUK.012.055 Og þegar vindur blæs af suðri, segið þér: ,Nú kemur hiti.' Og svo fer.
12:56b.LUK.012.056 Hræsnarar, útlit lofts og jarðar kunnið þér að ráða, en hvernig er því farið, að þér kunnið ekki að meta þennan tíma?
12:57b.LUK.012.057 Hví dæmið þér ekki af sjálfum yður, hvað rétt sé?
12:58b.LUK.012.058 Þegar þú ferð með andstæðingi þínum fyrir yfirvald, þá kostaðu kapps um það á leiðinni að ná sáttum við hann, til þess að hann dragi þig ekki fyrir dómarann, dómarinn afhendi þig böðlinum, og böðullinn varpi þér í fangelsi.
12:59b.LUK.012.059 Ég segi þér, eigi munt þú komast út þaðan, fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri."
13
13:1b.LUK.013.001 Í sama mund komu einhverjir og sögðu honum frá Galíleumönnunum, að Pílatus hefði blandað blóði þeirra í fórnir þeirra.
13:2b.LUK.013.002 Jesús mælti við þá: "Haldið þér, að þessir Galíleumenn hafi verið meiri syndarar en allir aðrir Galíleumenn, fyrst þeir urðu að þola þetta?
13:3b.LUK.013.003 Nei, segi ég yður, en ef þér gjörið ekki iðrun, munuð þér allir farast eins.
13:4b.LUK.013.004 Eða þeir átján, sem turninn féll yfir í Sílóam og varð að bana, haldið þér, að þeir hafi verið sekari en allir þeir menn, sem í Jerúsalem búa?
13:5b.LUK.013.005 Nei, segi ég yður, en ef þér gjörið ekki iðrun, munuð þér allir farast eins."
13:6b.LUK.013.006 En hann sagði þessa dæmisögu: "Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki.
13:7b.LUK.013.007 Hann sagði þá við víngarðsmanninn: ,Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að spilla jörðinni?'
13:8b.LUK.013.008 En hann svaraði honum: ,Herra, lát það standa enn þetta ár, þar til ég hef grafið um það og borið að áburð.
13:9b.LUK.013.009 Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.'"
13:10b.LUK.013.010 Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni.
13:11b.LUK.013.011 Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið haldin sjúkleiks anda og var kreppt og alls ófær að rétta sig upp.
13:12b.LUK.013.012 Jesús sá hana og kallaði hana til sín og sagði við hana: "Kona, þú ert laus við sjúkleik þinn!"
13:13b.LUK.013.013 Þá lagði hann hendur yfir hana, og jafnskjótt réttist hún og lofaði Guð.
13:14b.LUK.013.014 En samkundustjórinn reiddist því, að Jesús læknaði á hvíldardegi, og mælti til fólksins: "Sex daga skal vinna, komið þá og látið lækna yður og ekki á hvíldardegi."
13:15b.LUK.013.015 Drottinn svaraði honum: "Hræsnarar, leysir ekki hver yðar á hvíldardegi naut sitt eða asna af stalli og leiðir til vatns?
13:16b.LUK.013.016 En þessi kona, sem er dóttir Abrahams og Satan hefur fjötrað full átján ár, mátti hún ekki leyst verða úr fjötrum þessum á hvíldardegi?"
13:17b.LUK.013.017 Við þessi orð hans urðu allir mótstöðumenn hans sneyptir, en allur lýður fagnaði yfir öllum þeim dýrðarverkum, er hann gjörði.
13:18b.LUK.013.018 Hann sagði nú: "Hverju er Guðs ríki líkt? Við hvað á ég að líkja því?
13:19b.LUK.013.019 Líkt er það mustarðskorni, sem maður tók og sáði í jurtagarð sinn. Það óx og varð tré og fuglar himins hreiðruðu sig í greinum þess."
13:20b.LUK.013.020 Og aftur sagði hann: "Við hvað á ég að líkja Guðs ríki?
13:21b.LUK.013.021 Líkt er það súrdeigi, er kona tók og fól í þrem mælum mjöls, uns það sýrðist allt."
13:22b.LUK.013.022 Og hann hélt áfram til Jerúsalem, fór um borgir og þorp og kenndi.
13:23b.LUK.013.023 Einhver sagði við hann: "Herra, eru þeir fáir, sem hólpnir verða?" Hann sagði við þá:
13:24b.LUK.013.024 "Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta.
13:25b.LUK.013.025 Þegar húsbóndinn stendur upp og lokar dyrum og þér takið þá að standa fyrir utan og knýja á dyr og segja: ,Herra, ljúk þú upp fyrir oss!' mun hann svara yður: ,Ég veit ekki, hvaðan þér eruð.'
13:26b.LUK.013.026 Þá munuð þér segja: ,Vér höfum þó etið og drukkið með þér, og þú kenndir á götum vorum.'
13:27b.LUK.013.027 Og hann mun svara: ,Ég segi yður, ég veit ekki, hvaðan þér eruð, farið frá mér allir illgjörðamenn!'
13:28b.LUK.013.028 Þar verður grátur og gnístran tanna, er þér sjáið Abraham, Ísak og Jakob og alla spámennina í Guðs ríki, en yður út rekna.
13:29b.LUK.013.029 Þá munu menn koma frá austri og vestri, frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðs ríki.
13:30b.LUK.013.030 En til eru síðastir, er verða munu fyrstir, og til eru fyrstir, er verða munu síðastir."
13:31b.LUK.013.031 Á þeirri stundu komu nokkrir farísear og sögðu við hann: "Far þú og hald á brott héðan, því að Heródes vill drepa þig."
13:32b.LUK.013.032 Og hann sagði við þá: "Farið og segið ref þeim: ,Í dag og á morgun rek ég út illa anda og lækna og á þriðja degi mun ég marki ná.'
13:33b.LUK.013.033 En mér ber að halda áfram ferð minni í dag og á morgun og næsta dag, því að eigi hæfir, að spámaður bíði dauða annars staðar en í Jerúsalem.
13:34b.LUK.013.034 Jerúsalem, Jerúsalem! Þú, sem líflætur spámennina og grýtir þá, sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum eins og hænan ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi.
13:35b.LUK.013.035 Hús yðar verður í eyði látið. Ég segi yður: Þér munuð eigi sjá mig, fyrr en þar er komið, að þér segið: ,Blessaður sé sá er kemur, í nafni Drottins!'"
14
14:1b.LUK.014.001 Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar, og höfðu þeir gætur á honum.
14:2b.LUK.014.002 Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur.
14:3b.LUK.014.003 Jesús tók þá til máls og sagði við lögvitringana og faríseana: "Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki?"
14:4b.LUK.014.004 Þeir þögðu við. En hann tók á honum, læknaði hann og lét hann fara.
14:5b.LUK.014.005 Og Jesús mælti við þá: "Nú á einhver yðar asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp, þótt hvíldardagur sé?"
14:6b.LUK.014.006 Þeir gátu engu svarað þessu.
14:7b.LUK.014.007 Jesús gaf því gætur, hvernig þeir, sem boðnir voru, völdu sér hefðarsætin, tók dæmi og sagði við þá:
14:8b.LUK.014.008 "Þegar einhver býður þér til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti. Svo getur farið, að manni þér fremri að virðingu sé boðið,
14:9b.LUK.014.009 og sá komi, er ykkur bauð, og segi við þig: ,Þoka fyrir manni þessum.' Þá verður þú með kinnroða að taka ysta sæti.
14:10b.LUK.014.010 Far þú heldur, er þér er boðið, og set þig í ysta sæti, svo að sá sem bauð þér segi við þig, þegar hann kemur: ,Vinur, flyt þig hærra upp!' Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum, er sitja til borðs með þér.
14:11b.LUK.014.011 Því að hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða."
14:12b.LUK.014.012 Þá sagði hann við gestgjafa sinn: "Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð, bjóð þá hvorki vinum þínum né bræðrum, ættingjum né ríkum nágrönnum. Þeir bjóða þér aftur, og þú færð endurgjald.
14:13b.LUK.014.013 Þegar þú gjörir veislu, þá bjóð þú fátækum og örkumla, höltum og blindum,
14:14b.LUK.014.014 og munt þú sæll verða, því þeir geta ekki endurgoldið þér, en þú færð það endurgoldið í upprisu réttlátra."
14:15b.LUK.014.015 Þegar einn þeirra, er að borði sátu, heyrði þetta, sagði hann við Jesú: "Sæll er sá, sem neytir brauðs í Guðs ríki."
14:16b.LUK.014.016 Jesús sagði við hann: "Maður nokkur gjörði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum.
14:17b.LUK.014.017 Er stundin kom, að veislan skyldi vera, sendi hann þjón sinn að segja þeim, er boðnir voru: ,Komið, nú er allt tilbúið.'
14:18b.LUK.014.018 En þeir tóku allir að afsaka sig einum munni. Hinn fyrsti sagði við hann: ,Ég hef keypt akur og verð að fara og líta á hann. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.'
14:19b.LUK.014.019 Annar sagði: ,Ég hef keypt fimm tvenndir akneyta og er á förum að reyna þau. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.'
14:20b.LUK.014.020 Og enn annar sagði: ,Konu hef ég eignast, ekki get ég komið.'
14:21b.LUK.014.021 Þjónninn kom og tjáði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: ,Far þú fljótt út á stræti og götur borgarinnar, og leið inn hingað fátæka, örkumla, blinda og halta.'
14:22b.LUK.014.022 Og þjónninn sagði: ,Herra, það er gjört, sem þú bauðst, og enn er rúm.'
14:23b.LUK.014.023 Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: ,Far þú út um brautir og gerði og þrýstu þeim að koma inn, svo að hús mitt fyllist.
14:24b.LUK.014.024 Því ég segi yður, að enginn þeirra manna, er boðnir voru, mun smakka kvöldmáltíð mína.'"
14:25b.LUK.014.025 Mikill fjöldi fólks var honum samferða. Hann sneri sér við og sagði við þá:
14:26b.LUK.014.026 "Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður, konu og börn, bræður og systur og enda sitt eigið líf, sá getur ekki verið lærisveinn minn.
14:27b.LUK.014.027 Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér, getur ekki verið lærisveinn minn.
14:28b.LUK.014.028 Hver yðar sest ekki fyrst við, ef hann ætlar að reisa turn, og reiknar kostnaðinn, hvort hann eigi nóg til að ljúka verkinu?
14:29b.LUK.014.029 Ella má svo fara, að hann leggi undirstöðu, en fái ekki við lokið, og allir, sem það sjá, taki að spotta hann
14:30b.LUK.014.030 og segja: ,Þessi maður fór að byggja, en gat ekki lokið.'
14:31b.LUK.014.031 Eða hvaða konungur fer með hernaði gegn öðrum konungi og sest ekki fyrst við og ráðgast um, hvort honum sé fært að mæta með tíu þúsundum þeim er fer á móti honum með tuttugu þúsundir?
14:32b.LUK.014.032 Sé svo ekki, gerir hann menn á fund hans, meðan hann er enn langt undan, og spyr um friðarkosti.
14:33b.LUK.014.033 Þannig getur enginn yðar verið lærisveinn minn, nema hann segi skilið við allt sem hann á.
14:34b.LUK.014.034 Saltið er gott, en ef saltið sjálft dofnar, með hverju á þá að krydda það?
14:35b.LUK.014.035 Hvorki er það hæft á tún né taðhaug. Því er fleygt. Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri."
15
15:1b.LUK.015.001 Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann,
15:2b.LUK.015.002 en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: "Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim."
15:3b.LUK.015.003 En hann sagði þeim þessa dæmisögu:
15:4b.LUK.015.004 "Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim, sem týndur er, þar til hann finnur hann?
15:5b.LUK.015.005 Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér, er hann finnur hann.
15:6b.LUK.015.006 Þegar hann kemur heim, kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið sauðinn minn, sem týndur var.'
15:7b.LUK.015.007 Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, sem ekki hafa iðrunar þörf.
15:8b.LUK.015.008 Eða kona, sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega, uns hún finnur hana?
15:9b.LUK.015.009 Og er hún hefur fundið hana, kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið drökmuna, sem ég týndi.'
15:10b.LUK.015.010 Ég segi yður: Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrun."
15:11b.LUK.015.011 Enn sagði hann: "Maður nokkur átti tvo sonu.
15:12b.LUK.015.012 Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: ,Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna, sem mér ber.' Og hann skipti með þeim eigum sínum.
15:13b.LUK.015.013 Fáum dögum síðar tók yngri sonurinn allt fé sitt og fór burt í fjarlægt land. Þar sóaði hann eigum sínum í óhófsömum lifnaði.
15:14b.LUK.015.014 En er hann hafði öllu eytt, varð mikið hungur í því landi, og hann tók að líða skort.
15:15b.LUK.015.015 Fór hann þá og settist upp hjá manni einum í því landi. Sá sendi hann út á lendur sínar að gæta svína.
15:16b.LUK.015.016 Þá langaði hann að seðja sig á drafinu, er svínin átu, en enginn gaf honum.
15:17b.LUK.015.017 En nú kom hann til sjálfs sín og sagði: ,Hve margir eru daglaunamenn föður míns og hafa gnægð matar, en ég ferst hér úr hungri!
15:18b.LUK.015.018 Nú tek ég mig upp, fer til föður míns og segi við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér.
15:19b.LUK.015.019 Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. Lát mig vera sem einn af daglaunamönnum þínum.'
15:20b.LUK.015.020 Og hann tók sig upp og fór til föður síns. En er hann var enn langt í burtu, sá faðir hans hann og kenndi í brjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kyssti hann.
15:21b.LUK.015.021 En sonurinn sagði við hann: ,Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn.'
15:22b.LUK.015.022 Þá sagði faðir hans við þjóna sína: ,Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum.
15:23b.LUK.015.023 Sækið og alikálfinn og slátrið, vér skulum eta og gjöra oss glaðan dag.
15:24b.LUK.015.024 Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn.' Tóku menn nú að gjöra sér glaðan dag.
15:25b.LUK.015.025 En eldri sonur hans var á akri. Þegar hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann hljóðfæraslátt og dans.
15:26b.LUK.015.026 Hann kallaði á einn piltanna og spurði, hvað um væri að vera.
15:27b.LUK.015.027 Hann svaraði: ,Bróðir þinn er kominn, og faðir þinn hefur slátrað alikálfinum, af því að hann heimti hann heilan heim.'
15:28b.LUK.015.028 Þá reiddist hann og vildi ekki fara inn. En faðir hans fór út og bað hann koma.
15:29b.LUK.015.029 En hann svaraði föður sínum: ,Nú er ég búinn að þjóna þér öll þessi ár og hef aldrei breytt út af boðum þínum, og mér hefur þú aldrei gefið kiðling, að ég gæti glatt mig með vinum mínum.
15:30b.LUK.015.030 En þegar hann kemur, þessi sonur þinn, sem hefur sóað eigum þínum með skækjum, þá slátrar þú alikálfinum fyrir hann.'
15:31b.LUK.015.031 Hann sagði þá við hann: ,Barnið mitt, þú ert alltaf hjá mér, og allt mitt er þitt.
15:32b.LUK.015.032 En nú varð að halda hátíð og fagna, því hann bróðir þinn, sem var dauður, er lifnaður aftur, hann var týndur og er fundinn.'"
16
16:1b.LUK.016.001 Enn sagði hann við lærisveina sína: "Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann, og var sá sakaður við hann um það, að hann sóaði eigum hans.
16:2b.LUK.016.002 Hann kallaði hann fyrir sig og sagði við hann: ,Hvað er þetta, er ég heyri um þig? Gjör reikningsskil ráðsmennsku þinnar, því þú getur ekki verið ráðsmaður lengur.'
16:3b.LUK.016.003 Ráðsmaðurinn sagði þá við sjálfan sig: ,Hvað á ég að gjöra, fyrst húsbóndi minn sviptir mig ráðsmennskunni? Ekki orka ég að grafa og skömm þykir mér að betla.
16:4b.LUK.016.004 Nú sé ég, hvað ég gjöri, til þess að menn taki við mér í hús sín, þegar ég verð sviptur ráðsmennskunni.'
16:5b.LUK.016.005 Hann kallaði nú á skuldunauta húsbónda síns, hvern og einn. Við þann fyrsta sagði hann: ,Hve mikið skuldar þú húsbónda mínum?'
16:6b.LUK.016.006 Hann svaraði: ,Hundrað kvartil viðsmjörs.' Hann mælti þá við hann: ,Tak skuldabréf þitt, set þig niður og skrifa sem skjótast fimmtíu.'
16:7b.LUK.016.007 Síðan sagði hann við annan: ,En hvað skuldar þú?' Hann svaraði: ,Hundrað tunnur hveitis.' Og hann sagði honum: ,Tak þú skuldabréf þitt og skrifa áttatíu.'
16:8b.LUK.016.008 Og húsbóndinn hrósaði rangláta ráðsmanninum fyrir að hafa breytt kænlega. Því að börn þessa heims eru kænni í skiptum við sína kynslóð en börn ljóssins.
16:9b.LUK.016.009 Og ég segi yður: Aflið yður vina með hinum rangláta mammón, svo að þeir taki við yður í eilífar tjaldbúðir, þegar honum sleppir.
16:10b.LUK.016.010 Sá sem er trúr í því smæsta, er einnig trúr í miklu, og sá sem er ótrúr í því smæsta, er og ótrúr í miklu.
16:11b.LUK.016.011 Ef þér reynist ekki trúir í hinum rangláta mammón, hver trúir yður þá fyrir sönnum auði?
16:12b.LUK.016.012 Og ef þér reynist ekki trúir í því sem annars er, hver gefur yður þá það, sem yðar er?
16:13b.LUK.016.013 Enginn þjónn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón."
16:14b.LUK.016.014 En farísearnir, sem voru menn fégjarnir, heyrðu þetta og gjörðu gys að honum.
16:15b.LUK.016.015 En hann sagði við þá: "Þér eruð þeir, sem réttlætið sjálfa yður í augum manna, en Guð þekkir hjörtu yðar. Því það, sem hátt er að dómi manna, er viðurstyggð í augum Guðs.
16:16b.LUK.016.016 Lögmálið og spámennirnir ná fram til Jóhannesar. Þaðan í frá er flutt fagnaðarerindi Guðs ríkis, og hver maður vill ryðjast þar inn.
16:17b.LUK.016.017 En það er auðveldara, að himinn og jörð líði undir lok, en einn stafkrókur lögmálsins falli úr gildi.
16:18b.LUK.016.018 Hver sem skilur við konu sína og gengur að eiga aðra, drýgir hór, og hver sem gengur að eiga konu, sem skilin er við mann, drýgir hór.
16:19b.LUK.016.019 Einu sinni var maður nokkur ríkur, er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði.
16:20b.LUK.016.020 En fátækur maður, hlaðinn kaunum, lá fyrir dyrum hans og hét sá Lasarus.
16:21b.LUK.016.021 Feginn vildi hann seðja sig á því, er féll af borði ríka mannsins, og jafnvel hundar komu og sleiktu kaun hans.
16:22b.LUK.016.022 En nú gjörðist það, að fátæki maðurinn dó, og báru hann englar í faðm Abrahams. Ríki maðurinn dó líka og var grafinn.
16:23b.LUK.016.023 Og í helju, þar sem hann var í kvölum, hóf hann upp augu sín og sá Abraham í fjarska og Lasarus við brjóst hans.
16:24b.LUK.016.024 Þá kallaði hann: ,Faðir Abraham, miskunna þú mér, og send Lasarus, að hann dýfi fingurgómi sínum í vatn og kæli tungu mína, því ég kvelst í þessum loga.'
16:25b.LUK.016.025 Abraham sagði: ,Minnstu þess, barn, að þú hlaust þín gæði, meðan þú lifðir, og Lasarus böl á sama hátt. Nú er hann hér huggaður, en þú kvelst.
16:26b.LUK.016.026 Auk alls þessa er mikið djúp staðfest milli vor og yðar, svo að þeir, er héðan vildu fara yfir til yðar, geti það ekki, og eigi verði heldur komist þaðan yfir til vor.'
16:27b.LUK.016.027 En hann sagði: ,Þá bið ég þig, faðir, að þú sendir hann í hús föður míns,
16:28b.LUK.016.028 en ég á fimm bræður, til þess að vara þá við, svo þeir komi ekki líka í þennan kvalastað.'
16:29b.LUK.016.029 En Abraham segir: ,Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði þeir þeim.'
16:30b.LUK.016.030 Hinn svaraði: ,Nei, faðir Abraham, en ef einhver kæmi til þeirra frá hinum dauðu, mundu þeir gjöra iðrun.'
16:31b.LUK.016.031 En Abraham sagði við hann: ,Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum, láta þeir ekki heldur sannfærast, þótt einhver rísi upp frá dauðum.'"
17
17:1b.LUK.017.001 Hann sagði við lærisveina sína: "Eigi verður umflúið, að til ginninga komi, en vei þeim er veldur.
17:2b.LUK.017.002 Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls.
17:3b.LUK.017.003 Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum.
17:4b.LUK.017.004 Og þótt hann misgjöri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: ,Ég iðrast,' þá skalt þú fyrirgefa honum."
17:5b.LUK.017.005 Postularnir sögðu við Drottin: "Auk oss trú!"
17:6b.LUK.017.006 En Drottinn sagði: "Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: ,Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum,' og það mundi hlýða yður.
17:7b.LUK.017.007 Hafi einhver yðar þjón, er plægir eða hirðir fénað, segir hann þá við hann, þegar hann kemur inn af akri: ,Kom þegar og set þig til borðs'?
17:8b.LUK.017.008 Segir hann ekki fremur við hann: ,Bú þú mér kvöldverð, gyrð þig og þjóna mér, meðan ég et og drekk, síðan getur þú etið og drukkið.'
17:9b.LUK.017.009 Og er hann þakklátur þjóni sínum fyrir að gjöra það, sem boðið var?
17:10b.LUK.017.010 Eins skuluð þér segja, þá er þér hafið gjört allt, sem yður var boðið: ,Ónýtir þjónar erum vér, vér höfum gjört það eitt, sem vér vorum skyldir að gjöra.'"
17:11b.LUK.017.011 Svo bar við á ferð hans til Jerúsalem, að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu.
17:12b.LUK.017.012 Og er hann kom inn í þorp nokkurt, mættu honum tíu menn líkþráir. Þeir stóðu álengdar,
17:13b.LUK.017.013 hófu upp raust sína og kölluðu: "Jesús, meistari, miskunna þú oss!"
17:14b.LUK.017.014 Er hann leit þá, sagði hann við þá: "Farið og sýnið yður prestunum." Þeir héldu af stað og nú brá svo við, að þeir urðu hreinir.
17:15b.LUK.017.015 En einn þeirra sneri aftur, er hann sá, að hann var heill orðinn, og lofaði Guð hárri raustu.
17:16b.LUK.017.016 Hann féll fram á ásjónu sína að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji.
17:17b.LUK.017.017 Jesús sagði: "Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu?
17:18b.LUK.017.018 Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?"
17:19b.LUK.017.019 Síðan mælti Jesús við hann: "Statt upp, og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér."
17:20b.LUK.017.020 Farísear spurðu hann, hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: "Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri.
17:21b.LUK.017.021 Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það, því Guðs ríki er innra með yður."
17:22b.LUK.017.022 Og hann sagði við lærisveinana: "Þeir dagar munu koma, að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá.
17:23b.LUK.017.023 Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því.
17:24b.LUK.017.024 Eins og elding, sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars, svo mun Mannssonurinn verða á degi sínum.
17:25b.LUK.017.025 En fyrst á hann margt að líða og útskúfaður verða af þessari kynslóð.
17:26b.LUK.017.026 Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins:
17:27b.LUK.017.027 Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina, og flóðið kom og tortímdi öllum.
17:28b.LUK.017.028 Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu.
17:29b.LUK.017.029 En daginn, sem Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum.
17:30b.LUK.017.030 Eins mun verða á þeim degi, er Mannssonurinn opinberast.
17:31b.LUK.017.031 Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu, fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri, skal ekki heldur hverfa aftur.
17:32b.LUK.017.032 Minnist konu Lots.
17:33b.LUK.017.033 Sá sem vill sjá lífi sínu borgið, mun týna því, en sá sem týnir því, mun öðlast líf.
17:34b.LUK.017.034 Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.
17:35b.LUK.017.035 Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.
17:36b.LUK.017.036 [Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.]"
17:37b.LUK.017.037 Þeir spurðu hann þá: "Hvar, herra?" En hann sagði við þá: "Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er."
18
18:1b.LUK.018.001 Þá sagði hann þeim dæmisögu um það, hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast:
18:2b.LUK.018.002 "Í borg einni var dómari, sem hvorki óttaðist Guð né skeytti um nokkurn mann.
18:3b.LUK.018.003 Í sömu borg var ekkja, sem kom einlægt til hans og sagði: ,Lát þú mig ná rétti á mótstöðumanni mínum.'
18:4b.LUK.018.004 Það vildi hann ekki lengi vel. En að lokum sagði hann við sjálfan sig: ,Ekki óttast ég Guð að sönnu né skeyti um nokkurn mann.
18:5b.LUK.018.005 En þessi ekkja lætur mig aldrei í friði. Því vil ég rétta hlut hennar, áður en hún gjörir út af við mig með nauði sínu.'"
18:6b.LUK.018.006 Og Drottinn mælti: "Heyrið, hvað rangláti dómarinn segir.
18:7b.LUK.018.007 Mun Guð þá ekki rétta hlut sinna útvöldu, sem hrópa til hans dag og nótt? Mun hann draga að hjálpa þeim?
18:8b.LUK.018.008 Ég segi yður: Hann mun skjótt rétta hlut þeirra. En mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu, þegar hann kemur?"
18:9b.LUK.018.009 Hann sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því, að sjálfir væru þeir réttlátir, en fyrirlitu aðra:
18:10b.LUK.018.010 "Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður.
18:11b.LUK.018.011 Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir með sjálfum sér: ,Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður.
18:12b.LUK.018.012 Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu, sem ég eignast.'
18:13b.LUK.018.013 En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins, heldur barði sér á brjóst og sagði: ,Guð, vertu mér syndugum líknsamur!'
18:14b.LUK.018.014 Ég segi yður: Þessi maður fór réttlættur heim til sín, en hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða."
18:15b.LUK.018.015 Menn færðu og til hans ungbörnin, að hann snerti þau. Lærisveinarnir sáu það og átöldu þá.
18:16b.LUK.018.016 En Jesús kallaði þau til sín og mælti: "Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.
18:17b.LUK.018.017 Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma."
18:18b.LUK.018.018 Höfðingi nokkur spurði hann: "Góði meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?"
18:19b.LUK.018.019 Jesús sagði við hann: "Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn.
18:20b.LUK.018.020 Þú kannt boðorðin: ,Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, heiðra föður þinn og móður.'"
18:21b.LUK.018.021 Hann sagði: "Alls þessa hef ég gætt frá æsku."
18:22b.LUK.018.022 Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við hann: "Enn er þér eins vant: Sel allt, sem þú átt, og skipt meðal fátækra, og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan og fylg mér."
18:23b.LUK.018.023 En er hann heyrði þetta, varð hann hryggur við, enda auðugur mjög.
18:24b.LUK.018.024 Jesús sá það og sagði: "Hve torvelt er þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki.
18:25b.LUK.018.025 Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki."
18:26b.LUK.018.026 En þeir, sem á hlýddu, spurðu: "Hver getur þá orðið hólpinn?"
18:27b.LUK.018.027 Hann mælti: "Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð."
18:28b.LUK.018.028 Þá sagði Pétur: "Vér yfirgáfum allt, sem vér áttum, og fylgdum þér."
18:29b.LUK.018.029 Jesús sagði við þá: "Sannlega segi ég yður, að enginn hefur yfirgefið heimili, konu, bræður, foreldra eða börn Guðs ríkis vegna
18:30b.LUK.018.030 án þess að hann fái margfalt aftur á þessum tíma og í hinum komandi heimi eilíft líf."
18:31b.LUK.018.031 Hann tók þá tólf til sín og sagði við þá: "Nú förum vér upp til Jerúsalem, og mun allt það koma fram við Mannssoninn, sem skrifað er hjá spámönnunum.
18:32b.LUK.018.032 Hann verður framseldur heiðingjum, menn munu hæða hann, misþyrma honum og hrækja á hann.
18:33b.LUK.018.033 Þeir munu húðstrýkja hann og lífláta, en á þriðja degi mun hann upp rísa."
18:34b.LUK.018.034 En þeir skildu ekkert af þessu, orð þessi voru þeim hulin, og þeir skynjuðu ekki það, sem sagt var.
18:35b.LUK.018.035 Svo bar við, er hann nálgaðist Jeríkó, að blindur maður sat þar við veginn og betlaði.
18:36b.LUK.018.036 Hann heyrði, að mannfjöldi gekk hjá, og spurði, hvað um væri að vera.
18:37b.LUK.018.037 Var honum sagt, að Jesús frá Nasaret færi hjá.
18:38b.LUK.018.038 Þá hrópaði hann: "Jesús, sonur Davíðs, miskunna þú mér!"
18:39b.LUK.018.039 En þeir sem á undan fóru, höstuðu á hann, að hann þegði. En hann hrópaði því meir: "Sonur Davíðs, miskunna þú mér!"
18:40b.LUK.018.040 Jesús nam staðar og bauð að leiða hann til sín. Er hann kom nær, spurði Jesús hann:
18:41b.LUK.018.041 "Hvað vilt þú, að ég gjöri fyrir þig?" Hinn svaraði: "Herra, að ég fái aftur sjón."
18:42b.LUK.018.042 Jesús sagði við hann: "Fá þú aftur sjónina. Trú þín hefur bjargað þér."
18:43b.LUK.018.043 Jafnskjótt fékk hann sjónina. Og hann fylgdi honum og lofaði Guð. En allt fólkið, er sá þetta, vegsamaði Guð.
19
19:1b.LUK.019.001 Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina.
19:2b.LUK.019.002 En þar var maður, er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur.
19:3b.LUK.019.003 Langaði hann að sjá, hver Jesús væri, en tókst það ekki fyrir mannfjöldanum, því hann var lítill vexti.
19:4b.LUK.019.004 Hann hljóp þá á undan og klifraði upp í mórberjatré til að sjá Jesú, en leið hans lá þar hjá.
19:5b.LUK.019.005 Og er Jesús kom þar að, leit hann upp og sagði við hann: "Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi þínu."
19:6b.LUK.019.006 Hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður.
19:7b.LUK.019.007 Þeir er sáu þetta, létu allir illa við og sögðu: "Hann fer til að gista hjá bersyndugum manni."
19:8b.LUK.019.008 En Sakkeus sté fram og sagði við Drottin: "Herra, helming eigna minna gef ég fátækum, og hafi ég haft nokkuð af nokkrum, gef ég honum ferfalt aftur."
19:9b.LUK.019.009 Jesús sagði þá við hann: "Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu, enda er þessi maður líka Abrahams sonur.
19:10b.LUK.019.010 Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það."
19:11b.LUK.019.011 Meðan þeir hlýddu á, bætti hann við dæmisögu, því að hann var í nánd við Jerúsalem, og þeir ætluðu, að Guðs ríki mundi þegar birtast.
19:12b.LUK.019.012 Hann sagði: "Maður nokkur tiginborinn fór í fjarlægt land til þess að taka við konungdómi og koma síðan aftur.
19:13b.LUK.019.013 Hann kallaði tíu þjóna sína, seldi þeim í hendur tíu pund og sagði við þá: ,Verslið með þetta, þangað til ég kem.'
19:14b.LUK.019.014 En landar hans hötuðu hann og gerðu sendimann á eftir honum til að segja: ,Vér viljum ekki, að þessi maður verði konungur yfir oss.'
19:15b.LUK.019.015 Nú kom hann aftur og hafði tekið konungdóm. Þá lét hann kalla fyrir sig þjóna þá er hann hafði selt féð í hendur, til þess að vita, hvað hver hefði grætt.
19:16b.LUK.019.016 Hinn fyrsti kom og sagði: ,Herra, pund þitt hefur ávaxtast um tíu pund.'
19:17b.LUK.019.017 Konungur sagði við hann: ,Gott, þú góði þjónn, þú varst trúr í mjög litlu og því skaltu ráða fyrir tíu borgum.'
19:18b.LUK.019.018 Annar kom og sagði: ,Pund þitt, herra, hefur gefið af sér fimm pund.'
19:19b.LUK.019.019 Hann sagði eins við hann: ,Þú skalt og vera yfir fimm borgum.'
19:20b.LUK.019.020 Enn kom einn og sagði: ,Herra, hér er pund þitt. Ég hef haft það geymt í dúki,
19:21b.LUK.019.021 því að ég var hræddur við þig, en þú ert maður strangur og tekur það út, sem þú lagðir ekki inn, og uppsker það, sem þú sáðir ekki.'
19:22b.LUK.019.022 Hann segir við hann: ,Illi þjónn, eftir orðum þínum dæmi ég þig. Þú vissir, að ég er maður strangur, sem tek það út, sem ég lagði ekki inn, og uppsker það, sem ég sáði ekki.
19:23b.LUK.019.023 Hvers vegna léstu þá ekki fé mitt í banka? Þá hefði ég fengið það með vöxtum, er ég kom heim.'
19:24b.LUK.019.024 Og hann sagði við þá er hjá voru: ,Takið af honum pundið, og fáið þeim, sem hefur tíu pundin.'
19:25b.LUK.019.025 En þeir sögðu við hann: ,Herra, hann hefur tíu pund.'
19:26b.LUK.019.026 Ég segi yður: Hverjum sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur.
19:27b.LUK.019.027 En þessa óvini mína, sem vildu ekki að ég yrði konungur yfir sér, færið þá hingað og höggvið þá frammi fyrir mér."
19:28b.LUK.019.028 Þá er Jesús hafði þetta mælt, hélt hann á undan áfram upp til Jerúsalem.
19:29b.LUK.019.029 Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sem svo er nefnt, sendi hann tvo lærisveina sína
19:30b.LUK.019.030 og mælti: "Farið í þorpið hér fram undan. Þegar þið komið þangað, munuð þið finna fola bundinn, sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann og komið með hann.
19:31b.LUK.019.031 Ef einhver spyr ykkur: ,Hvers vegna leysið þið hann?' þá svarið svo: ,Herrann þarf hans við'."
19:32b.LUK.019.032 Þeir sem sendir voru, fóru og fundu svo sem hann hafði sagt þeim.
19:33b.LUK.019.033 Og er þeir leystu folann, sögðu eigendur hans við þá: "Hvers vegna leysið þið folann?"
19:34b.LUK.019.034 Þeir svöruðu: "Herrann þarf hans við,"
19:35b.LUK.019.035 og fóru síðan með hann til Jesú. Þeir lögðu klæði sín á folann og settu Jesú á bak.
19:36b.LUK.019.036 En þar sem hann fór, breiddu menn klæði sín á veginn.
19:37b.LUK.019.037 Þegar hann var að koma þar að, sem farið er ofan af Olíufjallinu, hóf allur flokkur lærisveina hans að lofa Guð fagnandi hárri raustu fyrir öll þau kraftaverk, er þeir höfðu séð,
19:38b.LUK.019.038 og segja: "Blessaður sé sá sem kemur, konungurinn, í nafni Drottins. Friður á himni og dýrð í upphæðum!"
19:39b.LUK.019.039 Nokkrir farísear í mannfjöldanum sögðu við hann: "Meistari, hasta þú á lærisveina þína."
19:40b.LUK.019.040 Hann svaraði: "Ég segi yður, ef þeir þegja, munu steinarnir hrópa."
19:41b.LUK.019.041 Og er hann kom nær og sá borgina, grét hann yfir henni
19:42b.LUK.019.042 og sagði: "Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi, hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum.
19:43b.LUK.019.043 Því að þeir dagar munu koma yfir þig, að óvinir þínir munu gjöra virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu.
19:44b.LUK.019.044 Þeir munu leggja þig að velli og börn þín, sem í þér eru, og ekki láta standa stein yfir steini í þér, vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma."
19:45b.LUK.019.045 Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja
19:46b.LUK.019.046 og mælti við þá: "Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús, en þér hafið gjört það að ræningjabæli."
19:47b.LUK.019.047 Daglega var hann að kenna í helgidóminum, en æðstu prestarnir og fræðimennirnir svo og fyrirmenn þjóðarinnar leituðust við að ráða hann af dögum,
19:48b.LUK.019.048 en fundu eigi, hvað gjöra skyldi, því að allur lýðurinn vildi ákaft hlýða á hann.
2
2:1b.LUK.002.001 En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústus keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina.
2:2b.LUK.002.002 Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi.
2:3b.LUK.002.003 Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
2:4b.LUK.002.004 Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs,
2:5b.LUK.002.005 að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð.
2:6b.LUK.002.006 En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari.
2:7b.LUK.002.007 Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi.
2:8b.LUK.002.008 En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar.
2:9b.LUK.002.009 Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir,
2:10b.LUK.002.010 en engillinn sagði við þá: "Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum:
2:11b.LUK.002.011 Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.
2:12b.LUK.002.012 Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu."
2:13b.LUK.002.013 Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu:
2:14b.LUK.002.014 Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á.
2:15b.LUK.002.015 Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðarnir sín á milli: "Förum beint til Betlehem að sjá það, sem gjörst hefur og Drottinn hefur kunngjört oss."
2:16b.LUK.002.016 Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu.
2:17b.LUK.002.017 Þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um barn þetta.
2:18b.LUK.002.018 Og allir, sem heyrðu, undruðust það, er hirðarnir sögðu þeim.
2:19b.LUK.002.019 En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það.
2:20b.LUK.002.020 Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það, sem þeir höfðu heyrt og séð, en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.
2:21b.LUK.002.021 Þegar átta dagar voru liðnir, skyldi umskera hann, og var hann látinn heita Jesús, eins og engillinn nefndi hann, áður en hann var getinn í móðurlífi.
2:22b.LUK.002.022 En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse, fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, -
2:23b.LUK.002.023 en svo er ritað í lögmáli Drottins: "Allt karlkyns, er fyrst fæðist af móðurlífi, skal helgað Drottni," -
2:24b.LUK.002.024 og til að færa fórn eins og segir í lögmáli Drottins, "tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur."
2:25b.LUK.002.025 Þá var í Jerúsalem maður, er Símeon hét. Hann var réttlátur og guðrækinn og vænti huggunar Ísraels, og yfir honum var heilagur andi.
2:26b.LUK.002.026 Honum hafði heilagur andi vitrað, að hann skyldi ekki dauðann sjá, fyrr en hann hefði séð Krist Drottins.
2:27b.LUK.002.027 Hann kom að tillaðan andans í helgidóminn. Og er foreldrarnir færðu þangað sveininn Jesú til að fara með hann eftir venju lögmálsins,
2:28b.LUK.002.028 tók Símeon hann í fangið, lofaði Guð og sagði:
2:29b.LUK.002.029 "Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, eins og þú hefur heitið mér,
2:30b.LUK.002.030 því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt,
2:31b.LUK.002.031 sem þú hefur fyrirbúið í augsýn allra lýða,
2:32b.LUK.002.032 ljós til opinberunar heiðingjum og til vegsemdar lýð þínum Ísrael."
2:33b.LUK.002.033 Faðir hans og móðir undruðust það, er sagt var um hann.
2:34b.LUK.002.034 En Símeon blessaði þau og sagði við Maríu móður hans: "Þessi sveinn er settur til falls og til viðreisnar mörgum í Ísrael og til tákns, sem móti verður mælt,
2:35b.LUK.002.035 og sjálf munt þú sverði níst í sálu þinni. Þannig munu hugsanir margra hjartna verða augljósar."
2:36b.LUK.002.036 Og þar var Anna spákona Fanúelsdóttir af ætt Assers, kona háöldruð. Hafði hún lifað sjö ár með manni sínum frá því hún var mær
2:37b.LUK.002.037 og síðan verið ekkja fram á áttatíu og fjögra ára aldur. Hún vék eigi úr helgidóminum, en þjónaði Guði nótt og dag með föstum og bænahaldi.
2:38b.LUK.002.038 Hún kom að á sömu stundu og lofaði Guð. Og hún talaði um barnið við alla, sem væntu lausnar Jerúsalem.
2:39b.LUK.002.039 Og er þau höfðu lokið öllu eftir lögmáli Drottins, sneru þau aftur til Galíleu, til borgar sinnar Nasaret.
2:40b.LUK.002.040 En sveinninn óx og styrktist, fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.
2:41b.LUK.002.041 Foreldrar hans ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni.
2:42b.LUK.002.042 Og þegar hann var tólf ára gamall, fóru þau upp þangað eins og siður var á hátíðinni.
2:43b.LUK.002.043 Þau voru þar út hátíðisdagana. En þegar þau sneru heimleiðis, varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem, og vissu foreldrar hans það eigi.
2:44b.LUK.002.044 Þau hugðu, að hann væri með samferðafólkinu, og fóru eina dagleið og leituðu hans meðal frænda og kunningja.
2:45b.LUK.002.045 En þau fundu hann ekki og sneru þá aftur til Jerúsalem og leituðu hans.
2:46b.LUK.002.046 Eftir þrjá daga fundu þau hann í helgidóminum. Þar sat hann mitt á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá.
2:47b.LUK.002.047 En alla, sem heyrðu til hans, furðaði stórum á skilningi hans og andsvörum.
2:48b.LUK.002.048 Og er þau sáu hann þar, brá þeim mjög, og móðir hans sagði við hann: "Barn, hví gjörðir þú okkur þetta? Við faðir þinn höfum leitað þín harmþrungin."
2:49b.LUK.002.049 Og hann sagði við þau: "Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki, að mér ber að vera í húsi föður míns?"
2:50b.LUK.002.050 En þau skildu ekki það er hann talaði við þau.
2:51b.LUK.002.051 Og hann fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn. En móðir hans geymdi allt þetta í hjarta sér.
2:52b.LUK.002.052 Og Jesús þroskaðist að visku og vexti, og náð hjá Guði og mönnum.
20
20:1b.LUK.020.001 Svo bar við einn dag, er hann var að kenna lýðnum í helgidóminum og flutti fagnaðarerindið, að æðstu prestarnir og fræðimennirnir ásamt öldungunum gengu til hans
20:2b.LUK.020.002 og sögðu: "Seg þú oss, með hvaða valdi gjörir þú þetta? Hver hefur gefið þér þetta vald?"
20:3b.LUK.020.003 Hann svaraði þeim: "Ég vil og leggja spurningu fyrir yður. Segið mér:
20:4b.LUK.020.004 Var skírn Jóhannesar frá himni eða frá mönnum?"
20:5b.LUK.020.005 Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: "Ef vér svörum: Frá himni, spyr hann: Hví trúðuð þér honum þá ekki?
20:6b.LUK.020.006 Ef vér svörum: Frá mönnum, mun allur lýðurinn grýta oss, því að hann er sannfærður um, að Jóhannes sé spámaður."
20:7b.LUK.020.007 Þeir kváðust því ekki vita, hvaðan hún væri.
20:8b.LUK.020.008 Jesús sagði við þá: "Ég segi yður þá ekki heldur, með hvaða valdi ég gjöri þetta."
20:9b.LUK.020.009 Og hann tók að segja lýðnum dæmisögu þessa: "Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann vínyrkjum á leigu, fór síðan úr landi til langdvala.
20:10b.LUK.020.010 Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna, að þeir fengju honum hlut af ávexti víngarðsins, en vínyrkjarnir börðu hann og sendu burt tómhentan.
20:11b.LUK.020.011 Aftur sendi hann annan þjón. Þeir börðu hann einnig og svívirtu og sendu burt tómhentan.
20:12b.LUK.020.012 Og enn sendi hann hinn þriðja, en þeir veittu honum einnig áverka og köstuðu honum út.
20:13b.LUK.020.013 Þá sagði eigandi víngarðsins: ,Hvað á ég að gjöra? Ég sendi son minn elskaðan. Má vera, þeir virði hann.'
20:14b.LUK.020.014 En er vínyrkjarnir sáu hann, báru þeir saman ráð sín og sögðu: ,Þetta er erfinginn. Drepum hann, þá fáum vér arfinn.'
20:15b.LUK.020.015 Og þeir köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann. Hvað mun nú eigandi víngarðsins gjöra við þá?
20:16b.LUK.020.016 Hann mun koma, tortíma vínyrkjum þessum og fá öðrum víngarðinn." Þegar þeir heyrðu þetta, sögðu þeir: "Verði það aldrei."
20:17b.LUK.020.017 Jesús horfði á þá og mælti: "Hvað merkir þá ritning þessi: Sá steinn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn hyrningarsteinn?
20:18b.LUK.020.018 Hver sem fellur á þennan stein, mun sundur molast, og þann sem hann fellur á, mun hann sundur merja."
20:19b.LUK.020.019 Fræðimennirnir og æðstu prestarnir vildu leggja hendur á hann á sömu stundu, en óttuðust lýðinn. Þeir skildu, að hann átti við þá með dæmisögu þessari.
20:20b.LUK.020.020 Þeir höfðu gætur á honum og sendu njósnarmenn, er létust vera einlægir. Þeir áttu að hafa á orðum hans, svo að þeir mættu framselja hann í hendur og á vald landstjórans.
20:21b.LUK.020.021 Þeir spurðu hann: "Meistari, vér vitum, að þú talar og kennir rétt og gjörir þér engan mannamun, heldur kennir Guðs veg í sannleika.
20:22b.LUK.020.022 Leyfist oss að gjalda keisaranum skatt eða ekki?"
20:23b.LUK.020.023 En hann merkti flærð þeirra og sagði við þá:
20:24b.LUK.020.024 "Sýnið mér denar. Hvers mynd og yfirskrift er á honum?" Þeir sögðu: "Keisarans."
20:25b.LUK.020.025 En hann sagði við þá: "Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er."
20:26b.LUK.020.026 Og þeir gátu ekki haft neitt á orðum hans í viðurvist lýðsins, en undruðust svar hans og þögðu.
20:27b.LUK.020.027 Þá komu nokkrir saddúkear, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann:
20:28b.LUK.020.028 "Meistari, Móse segir oss í ritningunum, að deyi maður kvæntur, en barnlaus, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja.
20:29b.LUK.020.029 Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu og dó barnlaus.
20:30b.LUK.020.030 Gekk þá annar bróðirinn
20:31b.LUK.020.031 og síðan hinn þriðji að eiga hana og eins allir sjö, og létu þeir engin börn eftir sig, er þeir dóu.
20:32b.LUK.020.032 Síðast dó og konan.
20:33b.LUK.020.033 Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni? Allir sjö höfðu þeir átt hana."
20:34b.LUK.020.034 Jesús svaraði þeim: "Börn þessarar aldar kvænast og giftast,
20:35b.LUK.020.035 en þeir sem verðir þykja að fá hlutdeild í komandi veröld og upprisunni frá dauðum, kvænast hvorki né giftast.
20:36b.LUK.020.036 Þeir geta ekki heldur dáið framar, þeir eru englum jafnir og börn Guðs, enda börn upprisunnar.
20:37b.LUK.020.037 En að dauðir rísi upp, það hefur jafnvel Móse sýnt í sögunni um þyrnirunninn, er hann kallar ,Drottin Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.'
20:38b.LUK.020.038 Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda, því að honum lifa allir."
20:39b.LUK.020.039 Þá sögðu nokkrir fræðimannanna: "Vel mælt, meistari."
20:40b.LUK.020.040 En þeir þorðu ekki framar að spyrja hann neins.
20:41b.LUK.020.041 Hann sagði við þá: "Hvernig geta menn sagt, að Kristur sé sonur Davíðs?
20:42b.LUK.020.042 Davíð segir sjálfur í sálmunum: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar,
20:43b.LUK.020.043 þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.
20:44b.LUK.020.044 Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?"
20:45b.LUK.020.045 Í áheyrn alls lýðsins sagði hann við lærisveina sína:
20:46b.LUK.020.046 "Varist fræðimennina, sem fýsir að ganga í síðskikkjum og er ljúft að láta heilsa sér á torgum, vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum.
20:47b.LUK.020.047 Þeir eta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm."
21
21:1b.LUK.021.001 Þá leit hann upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna.
21:2b.LUK.021.002 Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga.
21:3b.LUK.021.003 Þá sagði hann: "Ég segi yður með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir.
21:4b.LUK.021.004 Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína."
21:5b.LUK.021.005 Einhverjir höfðu orð á, að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús:
21:6b.LUK.021.006 "Þér horfið á þetta, en þeir dagar munu koma, að hér stendur ekki eftir steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn."
21:7b.LUK.021.007 En þeir spurðu hann: "Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að það sé að koma fram?"
21:8b.LUK.021.008 Hann svaraði: "Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!' og ,Tíminn er í nánd!' Fylgið þeim ekki.
21:9b.LUK.021.009 En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara, en endirinn kemur ekki samstundis."
21:10b.LUK.021.010 Síðan sagði hann við þá: "Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki,
21:11b.LUK.021.011 þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum, en ógnir og tákn mikil á himni.
21:12b.LUK.021.012 En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns.
21:13b.LUK.021.013 Þetta veitir yður tækifæri til vitnisburðar.
21:14b.LUK.021.014 En festið það vel í huga að vera ekki fyrirfram að hugsa um, hvernig þér eigið að verjast,
21:15b.LUK.021.015 því ég mun gefa yður orð og visku, sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið.
21:16b.LUK.021.016 Jafnvel foreldrar og bræður, frændur og vinir munu framselja yður, og sumir yðar munu líflátnir.
21:17b.LUK.021.017 Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns,
21:18b.LUK.021.018 en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar.
21:19b.LUK.021.019 Verið þrautseigir og þér munuð ávinna sálir yðar.
21:20b.LUK.021.020 En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið, að eyðing hennar er í nánd.
21:21b.LUK.021.021 Þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla, þeir sem í borginni eru, flytjist burt, og þeir sem eru á ekrum úti, fari ekki inn í hana.
21:22b.LUK.021.022 Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist, sem ritað er.
21:23b.LUK.021.023 Vei þeim, sem þungaðar eru, og þeim sem börn hafa á brjósti á þeim dögum, því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir lýð þessum.
21:24b.LUK.021.024 Þeir munu falla fyrir sverðseggjum og herleiddir verða til allra þjóða, og Jerúsalem verður fótum troðin af heiðingjum, þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.
21:25b.LUK.021.025 Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný.
21:26b.LUK.021.026 Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbyggðina, því að kraftar himnanna munu bifast.
21:27b.LUK.021.027 Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð.
21:28b.LUK.021.028 En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd."
21:29b.LUK.021.029 Hann sagði þeim og líkingu: "Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám.
21:30b.LUK.021.030 Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður, að sumarið er í nánd.
21:31b.LUK.021.031 Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.
21:32b.LUK.021.032 Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt er komið fram.
21:33b.LUK.021.033 Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.
21:34b.LUK.021.034 Hafið gát á sjálfum yður, að hjörtu yðar þyngist ekki við svall og drykkju né áhyggjur þessa lífs og komi svo dagur sá skyndilega yfir yður
21:35b.LUK.021.035 eins og snara. En koma mun hann yfir alla menn, sem byggja gjörvalla jörð.
21:36b.LUK.021.036 Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum."
21:37b.LUK.021.037 Á daginn var hann að kenna í helgidóminum, en fór og dvaldist um nætur á Olíufjallinu, sem svo er nefnt.
21:38b.LUK.021.038 Og allt fólkið kom árla á morgnana til hans í helgidóminn að hlýða á hann.
22
22:1b.LUK.022.001 Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar.
22:2b.LUK.022.002 Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn.
22:3b.LUK.022.003 Þá fór Satan í Júdas, sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf.
22:4b.LUK.022.004 Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú.
22:5b.LUK.022.005 Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir.
22:6b.LUK.022.006 Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim, þegar fólkið væri fjarri.
22:7b.LUK.022.007 Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom, er slátra skyldi páskalambinu,
22:8b.LUK.022.008 sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: "Farið og búið til páskamáltíðar fyrir oss."
22:9b.LUK.022.009 Þeir sögðu við hann: "Hvar vilt þú, að við búum hana?"
22:10b.LUK.022.010 En hann sagði við þá: "Þegar þið komið inn í borgina, mætir ykkur maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum inn þangað sem hann fer,
22:11b.LUK.022.011 og segið við húsráðandann: ,Meistarinn spyr þig: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?'
22:12b.LUK.022.012 Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum. Hafið þar viðbúnað."
22:13b.LUK.022.013 Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.
22:14b.LUK.022.014 Og er stundin var komin, gekk hann til borðs og postularnir með honum.
22:15b.LUK.022.015 Og hann sagði við þá: "Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður, áður en ég líð.
22:16b.LUK.022.016 Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar, fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki."
22:17b.LUK.022.017 Þá tók hann kaleik, gjörði þakkir og sagði: "Takið þetta og skiptið með yður.
22:18b.LUK.022.018 Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur."
22:19b.LUK.022.019 Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: "Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu."
22:20b.LUK.022.020 Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: "Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt.
22:21b.LUK.022.021 En sjá, hönd þess, er mig svíkur, er á borðinu hjá mér.
22:22b.LUK.022.022 Mannssonurinn fer að sönnu þá leið, sem ákveðin er, en vei þeim manni, sem því veldur, að hann verður framseldur."
22:23b.LUK.022.023 Og þeir tóku að spyrjast á um það, hver þeirra mundi verða til þess að gjöra þetta.
22:24b.LUK.022.024 Og þeir fóru að metast um, hver þeirra væri talinn mestur.
22:25b.LUK.022.025 En Jesús sagði við þá: "Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn.
22:26b.LUK.022.026 En eigi sé yður svo farið, heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn.
22:27b.LUK.022.027 Því hvort er sá meiri, sem situr til borðs, eða hinn, sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn.
22:28b.LUK.022.028 En þér eruð þeir sem hafið verið stöðugir með mér í freistingum mínum.
22:29b.LUK.022.029 Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér,
22:30b.LUK.022.030 að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.
22:31b.LUK.022.031 Símon, Símon, Satan krafðist yðar að sælda yður eins og hveiti.
22:32b.LUK.022.032 En ég hef beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við."
22:33b.LUK.022.033 En Símon sagði við hann: "Herra, reiðubúinn er ég að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða."
22:34b.LUK.022.034 Jesús mælti: "Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag, munt þú þrisvar hafa neitað því, að þú þekkir mig."
22:35b.LUK.022.035 Og hann sagði við þá: "Þegar ég sendi yður út án pyngju og mals og skólausa, brast yður þá nokkuð?" Þeir svöruðu: "Nei, ekkert."
22:36b.LUK.022.036 Þá sagði hann við þá: "En nú skal sá, er pyngju hefur, taka hana með sér og eins sá, er mal hefur, og hinn, sem ekkert á, selji yfirhöfn sína og kaupi sverð.
22:37b.LUK.022.037 Því ég segi yður, að þessi ritning á að rætast á mér: ,með illvirkjum var hann talinn.' Og nú er að fullnast það sem um mig er ritað."
22:38b.LUK.022.038 En þeir sögðu: "Herra, hér eru tvö sverð." Og hann sagði við þá: "Það er nóg."
22:39b.LUK.022.039 Síðan fór hann út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum.
22:40b.LUK.022.040 Þegar hann kom á staðinn, sagði hann við þá: "Biðjið, að þér fallið ekki í freistni."
22:41b.LUK.022.041 Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði:
22:42b.LUK.022.042 "Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji."
22:43b.LUK.022.043 [Þá birtist honum engill af himni, sem styrkti hann.
22:44b.LUK.022.044 Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir, en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina.]
22:45b.LUK.022.045 Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð.
22:46b.LUK.022.046 Og hann sagði við þá: "Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni."
22:47b.LUK.022.047 Meðan hann var enn að tala, kom flokkur manna, og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann.
22:48b.LUK.022.048 Jesús sagði við hann: "Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?"
22:49b.LUK.022.049 Þeir sem með honum voru, sáu að hverju fór og sögðu: "Herra, eigum vér ekki að bregða sverði?"
22:50b.LUK.022.050 Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað.
22:51b.LUK.022.051 Þá sagði Jesús: "Hér skal staðar nema." Og hann snart eyrað og læknaði hann.
22:52b.LUK.022.052 Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum: "Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja?
22:53b.LUK.022.053 Daglega var ég með yður í helgidóminum, og þér lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er yðar tími og máttur myrkranna."
22:54b.LUK.022.054 En þeir tóku hann höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar.
22:55b.LUK.022.055 Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann, og Pétur settist meðal þeirra.
22:56b.LUK.022.056 En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: "Þessi maður var líka með honum."
22:57b.LUK.022.057 Því neitaði hann og sagði: "Kona, ég þekki hann ekki."
22:58b.LUK.022.058 Litlu síðar sá hann annar maður og sagði: "Þú ert líka einn af þeim." En Pétur svaraði: "Nei, maður minn, það er ég ekki."
22:59b.LUK.022.059 Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: "Víst var þessi líka með honum, enda Galíleumaður."
22:60b.LUK.022.060 Pétur mælti: "Ekki skil ég, hvað þú átt við, maður." Og jafnskjótt sem hann sagði þetta, gól hani.
22:61b.LUK.022.061 Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins, er hann mælti við hann: "Áður en hani galar í dag, muntu þrisvar afneita mér."
22:62b.LUK.022.062 Og hann gekk út og grét beisklega.
22:63b.LUK.022.063 En þeir menn, sem gættu Jesú, hæddu hann og börðu,
22:64b.LUK.022.064 huldu andlit hans og sögðu: "Spáðu nú, hver það var, sem sló þig?"
22:65b.LUK.022.065 Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann.
22:66b.LUK.022.066 Þegar dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn.
22:67b.LUK.022.067 Þeir sögðu: "Ef þú ert Kristur, þá seg oss það." En hann sagði við þá: "Þótt ég segi yður það, munuð þér ekki trúa,
22:68b.LUK.022.068 og ef ég spyr yður, svarið þér ekki.
22:69b.LUK.022.069 En upp frá þessu mun Mannssonurinn sitja til hægri handar Guðs kraftar."
22:70b.LUK.022.070 Þá spurðu þeir allir: "Ert þú þá sonur Guðs?" Og hann sagði við þá: "Þér segið, að ég sé sá."
22:71b.LUK.022.071 En þeir sögðu: "Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans."
23
23:1b.LUK.023.001 Þá stóð upp allur skarinn og færði hann fyrir Pílatus.
23:2b.LUK.023.002 Þeir tóku að ákæra hann og sögðu: "Vér höfum komist að raun um, að þessi maður leiðir þjóð vora afvega, hann bannar að gjalda keisaranum skatt og segist sjálfur vera Kristur, konungur."
23:3b.LUK.023.003 Pílatus spurði hann þá: "Ert þú konungur Gyðinga?" Jesús svaraði: "Þú segir það."
23:4b.LUK.023.004 Pílatus sagði við æðstu prestana og fólkið: "Enga sök finn ég hjá þessum manni."
23:5b.LUK.023.005 En þeir urðu því ákafari og sögðu: "Hann æsir upp lýðinn með því, sem hann kennir í allri Júdeu, hann byrjaði í Galíleu og er nú kominn hingað."
23:6b.LUK.023.006 Þegar Pílatus heyrði þetta, spurði hann, hvort maðurinn væri Galílei.
23:7b.LUK.023.007 Og er hann varð þess vís, að hann var úr umdæmi Heródesar, sendi hann hann til Heródesar, er þá var og í Jerúsalem á þeim dögum.
23:8b.LUK.023.008 En Heródes varð næsta glaður, er hann sá Jesú, því hann hafði lengi langað að sjá hann, þar eð hann hafði heyrt frá honum sagt. Vænti hann nú að sjá hann gjöra eitthvert tákn.
23:9b.LUK.023.009 Hann spurði Jesú á marga vegu, en hann svaraði honum engu.
23:10b.LUK.023.010 Æðstu prestarnir og fræðimennirnir stóðu þar og ákærðu hann harðlega.
23:11b.LUK.023.011 En Heródes óvirti hann og spottaði ásamt hermönnum sínum, lagði yfir hann skínandi klæði og sendi hann aftur til Pílatusar.
23:12b.LUK.023.012 Á þeim degi urðu þeir Heródes og Pílatus vinir, en áður var fjandskapur með þeim.
23:13b.LUK.023.013 Pílatus kallaði nú saman æðstu prestana, höfðingjana og fólkið
23:14b.LUK.023.014 og mælti við þá: "Þér hafið fært mér þennan mann og sagt hann leiða fólkið afvega. Nú hef ég yfirheyrt manninn í yðar viðurvist, en enga þá sök fundið hjá honum, er þér ákærið hann um.
23:15b.LUK.023.015 Ekki heldur Heródes, því hann sendi hann aftur til vor. Ljóst er, að hann hefur ekkert það drýgt, er dauða sé vert.
23:16b.LUK.023.016 Ætla ég því að hirta hann og láta lausan."
23:17b.LUK.023.017 [En skylt var honum að gefa þeim lausan einn bandingja á hverri hátíð.]
23:18b.LUK.023.018 En þeir æptu allir: "Burt með hann, gef oss Barabbas lausan!"
23:19b.LUK.023.019 En honum hafði verið varpað í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt, sem varð í borginni, og manndráp.
23:20b.LUK.023.020 Pílatus talaði enn til þeirra og vildi láta Jesú lausan.
23:21b.LUK.023.021 En þeir æptu á móti: "Krossfestu, krossfestu hann!"
23:22b.LUK.023.022 Í þriðja sinn sagði Pílatus við þá: "Hvað illt hefur þá þessi maður gjört? Enga dauðasök hef ég fundið hjá honum. Ætla ég því að hirta hann og láta hann lausan."
23:23b.LUK.023.023 En þeir sóttu á með ópi miklu og heimtuðu, að hann yrði krossfestur. Og hróp þeirra tóku yfir.
23:24b.LUK.023.024 Þá ákvað Pílatus, að kröfu þeirra skyldi fullnægt.
23:25b.LUK.023.025 Hann gaf lausan þann, er þeir báðu um og varpað hafði verið í fangelsi fyrir upphlaup og manndráp, en Jesú framseldi hann, að þeir færu með hann sem þeir vildu.
23:26b.LUK.023.026 Þegar þeir leiddu hann út, tóku þeir Símon nokkurn frá Kýrene, er kom utan úr sveit, og lögðu krossinn á hann, að hann bæri hann eftir Jesú.
23:27b.LUK.023.027 En honum fylgdi mikill fjöldi fólks og kvenna, er hörmuðu hann og grétu.
23:28b.LUK.023.028 Jesús sneri sér að þeim og mælti: "Jerúsalemsdætur, grátið ekki yfir mér, en grátið yfir sjálfum yður og börnum yðar.
23:29b.LUK.023.029 Því þeir dagar koma, er menn munu segja: Sælar eru óbyrjur og þau móðurlíf, er aldrei fæddu, og þau brjóst, sem engan nærðu.
23:30b.LUK.023.030 Þá munu menn segja við fjöllin: Hrynjið yfir oss! og við hálsana: Hyljið oss!
23:31b.LUK.023.031 Því að sé þetta gjört við hið græna tréð, hvað mun þá verða um hið visna?"
23:32b.LUK.023.032 Með honum voru og færðir til lífláts aðrir tveir, sem voru illvirkjar.
23:33b.LUK.023.033 Og er þeir komu til þess staðar, sem heitir Hauskúpa, krossfestu þeir hann þar og illvirkjana, annan til hægri handar, hinn til vinstri.
23:34b.LUK.023.034 Þá sagði Jesús: "Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki, hvað þeir gjöra." En þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér.
23:35b.LUK.023.035 Fólkið stóð og horfði á, og höfðingjarnir gjörðu gys að honum og sögðu: "Öðrum bjargaði hann, bjargi hann nú sjálfum sér, ef hann er Kristur Guðs, hinn útvaldi."
23:36b.LUK.023.036 Eins hæddu hann hermennirnir, komu og báru honum edik
23:37b.LUK.023.037 og sögðu: "Ef þú ert konungur Gyðinga, þá bjargaðu sjálfum þér."
23:38b.LUK.023.038 Yfirskrift var yfir honum: ÞESSI ER KONUNGUR GYÐINGA.
23:39b.LUK.023.039 Annar þeirra illvirkja, sem upp voru festir, hæddi hann og sagði: "Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur!"
23:40b.LUK.023.040 En hinn ávítaði hann og sagði: "Hræðist þú ekki einu sinni Guð, og ert þó undir sama dómi?
23:41b.LUK.023.041 Við erum það með réttu og fáum makleg gjöld fyrir gjörðir okkar, en þessi hefur ekkert illt aðhafst."
23:42b.LUK.023.042 Þá sagði hann: "Jesús, minnst þú mín, þegar þú kemur í ríki þitt!"
23:43b.LUK.023.043 Og Jesús sagði við hann: "Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís."
23:44b.LUK.023.044 Og nú var nær hádegi og myrkur varð um allt land til nóns,
23:45b.LUK.023.045 því sólin missti birtu sinnar. En fortjald musterisins rifnaði sundur í miðju.
23:46b.LUK.023.046 Þá kallaði Jesús hárri röddu: "Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn!" Og er hann hafði þetta mælt, gaf hann upp andann.
23:47b.LUK.023.047 Þegar hundraðshöfðinginn sá það, er við bar, vegsamaði hann Guð og sagði: "Sannarlega var þessi maður réttlátur."
23:48b.LUK.023.048 Og fólkið allt, sem komið hafði saman að horfa á, sá nú, hvað gjörðist, og barði sér á brjóst og hvarf frá.
23:49b.LUK.023.049 En vinir hans allir sem og konurnar, er fylgdu honum frá Galíleu, stóðu álengdar og horfðu á þetta.
23:50b.LUK.023.050 Maður er nefndur Jósef. Hann var ráðsherra, góður maður og réttvís
23:51b.LUK.023.051 og hafði ekki samþykkt ráð þeirra né athæfi. Hann var frá Arímaþeu, borg í Júdeu, og vænti Guðs ríkis.
23:52b.LUK.023.052 Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú,
23:53b.LUK.023.053 tók hann síðan ofan, sveipaði línklæði og lagði í gröf, höggna í klett, og hafði þar enginn verið áður lagður.
23:54b.LUK.023.054 Það var aðfangadagur og hvíldardagurinn fór í hönd.
23:55b.LUK.023.055 Konur þær, er komið höfðu með Jesú frá Galíleu, fylgdu eftir og sáu gröfina og hvernig líkami hans var lagður.
23:56b.LUK.023.056 Þær sneru aftur og bjuggu ilmjurtir og smyrsl. Hvíldardaginn héldu þær kyrru fyrir samkvæmt boðorðinu.
24
24:1b.LUK.024.001 En í afturelding fyrsta dag vikunnar komu þær til grafarinnar með ilmsmyrslin, sem þær höfðu búið.
24:2b.LUK.024.002 Þær sáu þá, að steininum hafði verið velt frá gröfinni,
24:3b.LUK.024.003 og þegar þær stigu inn, fundu þær ekki líkama Drottins Jesú.
24:4b.LUK.024.004 Þær skildu ekkert í þessu, en þá brá svo við, að hjá þeim stóðu tveir menn í leiftrandi klæðum.
24:5b.LUK.024.005 Þær urðu mjög hræddar og hneigðu andlit til jarðar. En þeir sögðu við þær: "Hví leitið þér hins lifanda meðal dauðra?
24:6b.LUK.024.006 Hann er ekki hér, hann er upp risinn. Minnist þess, hvernig hann talaði við yður, meðan hann var enn í Galíleu.
24:7b.LUK.024.007 Hann sagði, að Mannssonurinn skyldi framseldur verða í hendur syndugra manna og krossfestur, en rísa upp á þriðja degi."
24:8b.LUK.024.008 Og þær minntust orða hans,
24:9b.LUK.024.009 sneru frá gröfinni og kunngjörðu allt þetta þeim ellefu og öllum hinum.
24:10b.LUK.024.010 Þessar konur voru þær María Magdalena, Jóhanna og María móðir Jakobs og hinar, sem voru með þeim. Þær sögðu postulunum frá þessu.
24:11b.LUK.024.011 En þeir töldu orð þeirra markleysu eina og trúðu þeim ekki.
24:12b.LUK.024.012 Pétur stóð þó upp og hljóp til grafarinnar, skyggndist inn og sá þar líkklæðin ein. Fór hann heim síðan og undraðist það, sem við hafði borið.
24:13b.LUK.024.013 Tveir þeirra fóru þann sama dag til þorps nokkurs, sem er um sextíu skeiðrúm frá Jerúsalem og heitir Emmaus.
24:14b.LUK.024.014 Þeir ræddu sín á milli um allt þetta, sem gjörst hafði.
24:15b.LUK.024.015 Þá bar svo við, er þeir voru að tala saman og ræða þetta, að Jesús sjálfur nálgaðist þá og slóst í för með þeim.
24:16b.LUK.024.016 En augu þeirra voru svo haldin, að þeir þekktu hann ekki.
24:17b.LUK.024.017 Og hann sagði við þá: "Hvað er það, sem þið ræðið svo mjög á göngu ykkar?" Þeir námu staðar, daprir í bragði,
24:18b.LUK.024.018 og annar þeirra, Kleófas að nafni, sagði við hann: "Þú ert víst sá eini aðkomumaður í Jerúsalem, sem veist ekki, hvað þar hefur gjörst þessa dagana."
24:19b.LUK.024.019 Hann spurði: "Hvað þá?" Þeir svöruðu: "Þetta um Jesú frá Nasaret, sem var spámaður, máttugur í verki og orði fyrir Guði og öllum lýð,
24:20b.LUK.024.020 hvernig æðstu prestar og höfðingjar vorir framseldu hann til dauðadóms og krossfestu hann.
24:21b.LUK.024.021 Vér vonuðum, að hann væri sá, er leysa mundi Ísrael. En nú er þriðji dagur síðan þetta bar við.
24:22b.LUK.024.022 Þá hafa og konur nokkrar úr vorum hóp gjört oss forviða. Þær fóru árla til grafarinnar,
24:23b.LUK.024.023 en fundu ekki líkama hans og komu og sögðust enda hafa séð engla í sýn, er sögðu hann lifa.
24:24b.LUK.024.024 Nokkrir þeirra, sem með oss voru, fóru til grafarinnar og fundu allt eins og konurnar höfðu sagt, en hann sáu þeir ekki."
24:25b.LUK.024.025 Þá sagði hann við þá: "Ó, þér heimskir og tregir í hjarta til þess að trúa öllu því, sem spámennirnir hafa talað!
24:26b.LUK.024.026 Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga svo inn í dýrð sína?"
24:27b.LUK.024.027 Og hann byrjaði á Móse og öllum spámönnunum og útlagði fyrir þeim það, sem um hann er í öllum ritningunum.
24:28b.LUK.024.028 Þeir nálguðust nú þorpið, sem þeir ætluðu til, en hann lét sem hann vildi halda lengra.
24:29b.LUK.024.029 Þeir lögðu þá fast að honum og sögðu: "Vertu hjá oss, því að kvölda tekur og degi hallar." Og hann fór inn til að vera hjá þeim.
24:30b.LUK.024.030 Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, þakkaði Guði, braut það og fékk þeim.
24:31b.LUK.024.031 Þá opnuðust augu þeirra, og þeir þekktu hann, en hann hvarf þeim sjónum.
24:32b.LUK.024.032 Og þeir sögðu hvor við annan: "Brann ekki hjartað í okkur, meðan hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritningunum?"
24:33b.LUK.024.033 Þeir stóðu samstundis upp og fóru aftur til Jerúsalem. Þar fundu þeir þá ellefu og þá, er með þeim voru, saman komna,
24:34b.LUK.024.034 og sögðu þeir: "Sannarlega er Drottinn upp risinn og hefur birst Símoni."
24:35b.LUK.024.035 Hinir sögðu þá frá því, sem við hafði borið á veginum, og hvernig þeir höfðu þekkt hann, þegar hann braut brauðið.
24:36b.LUK.024.036 Nú voru þeir að tala um þetta, og þá stendur hann sjálfur meðal þeirra og segir við þá: "Friður sé með yður!"
24:37b.LUK.024.037 En þeir skelfdust og urðu hræddir og hugðust sjá anda.
24:38b.LUK.024.038 Hann sagði við þá: "Hví eruð þér óttaslegnir og hvers vegna vakna efasemdir í hjarta yðar?
24:39b.LUK.024.039 Lítið á hendur mínar og fætur, að það er ég sjálfur. Þreifið á mér, og gætið að. Ekki hefur andi hold og bein eins og þér sjáið að ég hef."
24:40b.LUK.024.040 Þegar hann hafði þetta mælt, sýndi hann þeim hendur sínar og fætur.
24:41b.LUK.024.041 Enn gátu þeir ekki trúað fyrir fögnuði og voru furðu lostnir. Þá sagði hann við þá: "Hafið þér hér nokkuð til matar?"
24:42b.LUK.024.042 Þeir fengu honum stykki af steiktum fiski,
24:43b.LUK.024.043 og hann tók það og neytti þess frammi fyrir þeim.
24:44b.LUK.024.044 Og hann sagði við þá: "Þessi er merking orða minna, sem ég talaði við yður, meðan ég var enn meðal yðar, að rætast ætti allt það, sem um mig er ritað í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum."
24:45b.LUK.024.045 Síðan lauk hann upp huga þeirra, að þeir skildu ritningarnar.
24:46b.LUK.024.046 Og hann sagði við þá: "Svo er skrifað, að Kristur eigi að líða og rísa upp frá dauðum á þriðja degi,
24:47b.LUK.024.047 og að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum iðrun til fyrirgefningar synda og byrja í Jerúsalem.
24:48b.LUK.024.048 Þér eruð vottar þessa.
24:49b.LUK.024.049 Sjá, ég sendi fyrirheit föður míns yfir yður, en verið þér kyrrir í borginni, uns þér íklæðist krafti frá hæðum."
24:50b.LUK.024.050 Síðan fór hann með þá út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þá.
24:51b.LUK.024.051 En það varð, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins.
24:52b.LUK.024.052 En þeir féllu fram og tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði.
24:53b.LUK.024.053 Og þeir voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð.
3
3:1b.LUK.003.001 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu, en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus bróðir hans í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene,
3:2b.LUK.003.002 í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni.
3:3b.LUK.003.003 Og hann fór um alla Jórdanbyggð og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda,
3:4b.LUK.003.004 eins og ritað er í bók Jesaja spámanns: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans.
3:5b.LUK.003.005 Öll gil skulu fyllast, öll fell og hálsar lægjast. Krókar skulu verða beinir og óvegir sléttar götur.
3:6b.LUK.003.006 Og allir menn munu sjá hjálpræði Guðs.
3:7b.LUK.003.007 Við mannfjöldann, sem fór út til að skírast af honum, sagði hann: "Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði?
3:8b.LUK.003.008 Berið þá ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.' Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum.
3:9b.LUK.003.009 Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað."
3:10b.LUK.003.010 Mannfjöldinn spurði hann: "Hvað eigum vér þá að gjöra?"
3:11b.LUK.003.011 En hann svaraði þeim: "Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá er matföng hefur."
3:12b.LUK.003.012 Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: "Meistari, hvað eigum vér að gjöra?"
3:13b.LUK.003.013 En hann sagði við þá: "Heimtið ekki meira en fyrir yður er lagt."
3:14b.LUK.003.014 Hermenn spurðu hann einnig: "En hvað eigum vér að gjöra?" Hann sagði við þá: "Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið yður nægja mála yðar."
3:15b.LUK.003.015 Nú var eftirvænting vakin hjá lýðnum, og allir voru að hugsa með sjálfum sér, hvort Jóhannes kynni að vera Kristur.
3:16b.LUK.003.016 En Jóhannes svaraði öllum og sagði: "Ég skíri yður með vatni, en sá kemur, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi.
3:17b.LUK.003.017 Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi."
3:18b.LUK.003.018 Með mörgu öðru áminnti hann og flutti lýðnum fagnaðarboðin.
3:19b.LUK.003.019 Hann vítti Heródes fjórðungsstjóra vegna Heródíasar, konu bróður hans, og fyrir allt hið illa, sem hann hafði gjört.
3:20b.LUK.003.020 Þá bætti Heródes einnig því ofan á allt annað, að hann varpaði Jóhannesi í fangelsi.
3:21b.LUK.003.021 Er allur lýðurinn lét skírast, var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gjörði bæn sína, að himinninn opnaðist,
3:22b.LUK.003.022 og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: "Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun."
3:23b.LUK.003.023 En Jesús var um þrítugt, er hann hóf starf sitt. Var hann, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí,
3:24b.LUK.003.024 sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, sonar Jannaí, sonar Jósefs,
3:25b.LUK.003.025 sonar Mattatíass, sonar Amoss, sonar Naúms, sonar Eslí, sonar Naggaí,
3:26b.LUK.003.026 sonar Maats, sonar Mattatíass, sonar Semeíns, sonar Jóseks, sonar Jóda,
3:27b.LUK.003.027 sonar Jóhanans, sonar Hresa, sonar Serúbabels, sonar Sealtíels, sonar Nerí,
3:28b.LUK.003.028 sonar Melkí, sonar Addí, sonar Kósams, sonar Elmadams, sonar Ers,
3:29b.LUK.003.029 sonar Jesú, sonar Elíesers, sonar Jóríms, sonar Mattats, sonar Leví,
3:30b.LUK.003.030 sonar Símeons, sonar Júda, sonar Jósefs, sonar Jónams, sonar Eljakíms,
3:31b.LUK.003.031 sonar Melea, sonar Menna, sonar Mattata, sonar Natans, sonar Davíðs,
3:32b.LUK.003.032 sonar Ísaí, sonar Óbeðs, sonar Bóasar, sonar Salmons, sonar Naksons,
3:33b.LUK.003.033 sonar Ammínadabs, sonar Admíns, sonar Arní, sonar Esroms, sonar Peres, sonar Júda,
3:34b.LUK.003.034 sonar Jakobs, sonar Ísaks, sonar Abrahams, sonar Tara, sonar Nakórs,
3:35b.LUK.003.035 sonar Serúgs, sonar Reú, sonar Pelegs, sonar Ebers, sonar Sela,
3:36b.LUK.003.036 sonar Kenans, sonar Arpaksads, sonar Sems, sonar Nóa, sonar Lameks,
3:37b.LUK.003.037 sonar Metúsala, sonar Enoks, sonar Jareds, sonar Mahalalels, sonar Kenans,
3:38b.LUK.003.038 sonar Enoss, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs.
4
4:1b.LUK.004.001 En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Leiddi andinn hann um óbyggðina
4:2b.LUK.004.002 fjörutíu daga, en djöfullinn freistaði hans. Ekki neytti hann neins þá daga, og er þeir voru liðnir, var hann hungraður.
4:3b.LUK.004.003 En djöfullinn sagði við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú steini þessum, að hann verði að brauði."
4:4b.LUK.004.004 Og Jesús svaraði honum: "Ritað er: ,Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði.'"
4:5b.LUK.004.005 Þá fór hann með hann upp og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldar.
4:6b.LUK.004.006 Og djöfullinn sagði við hann: "Þér mun ég gefa allt þetta veldi og dýrð þess, því að mér er það í hendur fengið, og ég get gefið það hverjum sem ég vil.
4:7b.LUK.004.007 Ef þú fellur fram og tilbiður mig, skal það allt verða þitt."
4:8b.LUK.004.008 Jesús svaraði honum: "Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum."
4:9b.LUK.004.009 Þá fór hann með hann til Jerúsalem, setti hann á brún musterisins og sagði við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér hér ofan,
4:10b.LUK.004.010 því að ritað er: Hann mun fela englum sínum að gæta þín
4:11b.LUK.004.011 og: þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini."
4:12b.LUK.004.012 Jesús svaraði honum: "Sagt hefur verið: ,Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.'"
4:13b.LUK.004.013 Og er djöfullinn hafði lokið allri freistni, vék hann frá honum að sinni.
4:14b.LUK.004.014 En Jesús sneri aftur til Galíleu í krafti andans, og fóru fregnir af honum um allt nágrennið.
4:15b.LUK.004.015 Hann kenndi í samkundum þeirra, og lofuðu hann allir.
4:16b.LUK.004.016 Hann kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa.
4:17b.LUK.004.017 Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn, þar sem ritað er:
4:18b.LUK.004.018 Andi Drottins er yfir mér, af því að hann hefur smurt mig. Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap, boða bandingjum lausn og blindum sýn, láta þjáða lausa
4:19b.LUK.004.019 og kunngjöra náðarár Drottins.
4:20b.LUK.004.020 Síðan lukti hann aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður, en augu allra í samkundunni hvíldu á honum.
4:21b.LUK.004.021 Hann tók þá að tala til þeirra: "Í dag hefur rætst þessi ritning í áheyrn yðar."
4:22b.LUK.004.022 Og allir lofuðu hann og undruðust þau hugnæmu orð, sem fram gengu af munni hans, og sögðu: "Er hann ekki sonur Jósefs?"
4:23b.LUK.004.023 En hann sagði við þá: "Eflaust munuð þér minna mig á orðtakið: ,Læknir, lækna sjálfan þig!' Vér höfum heyrt um allt, sem gjörst hefur í Kapernaum. Gjör nú hið sama hér í ættborg þinni."
4:24b.LUK.004.024 Enn sagði hann: "Sannlega segi ég yður, engum spámanni er vel tekið í landi sínu.
4:25b.LUK.004.025 En satt segi ég yður, að margar voru ekkjur í Ísrael á dögum Elía, þegar himinninn var luktur í þrjú ár og sex mánuði, og mikið hungur í öllu landinu,
4:26b.LUK.004.026 og þó var Elía til engrar þeirra sendur, heldur aðeins til ekkju í Sarepta í Sídonlandi.
4:27b.LUK.004.027 Og margir voru líkþráir í Ísrael á dögum Elísa spámanns, og enginn þeirra var hreinsaður, heldur aðeins Naaman Sýrlendingur."
4:28b.LUK.004.028 Allir í samkunduhúsinu fylltust reiði, er þeir heyrðu þetta,
4:29b.LUK.004.029 spruttu upp, hröktu hann út úr borginni og fóru með hann fram á brún fjalls þess, sem borg þeirra var reist á, til þess að hrinda honum þar ofan.
4:30b.LUK.004.030 En hann gekk gegnum miðja mannþröngina og fór leiðar sinnar.
4:31b.LUK.004.031 Hann kom nú ofan til Kapernaum, borgar í Galíleu, og kenndi þeim á hvíldardegi.
4:32b.LUK.004.032 Undruðust menn mjög kenningu hans, því að vald fylgdi orðum hans.
4:33b.LUK.004.033 Í samkunduhúsinu var maður nokkur, er haldinn var óhreinum, illum anda. Hann æpti hárri röddu:
4:34b.LUK.004.034 "Æ, hvað vilt þú oss, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma oss? Ég veit, hver þú ert, hinn heilagi Guðs."
4:35b.LUK.004.035 Jesús hastaði þá á hann og mælti: "Þegi þú, og far út af honum." En illi andinn slengdi honum fram fyrir þá og fór út af honum, en varð honum ekki að meini.
4:36b.LUK.004.036 Felmtri sló á alla, og sögðu þeir hver við annan: "Hvaða orð er þetta? Með valdi og krafti skipar hann óhreinum öndum, og þeir fara."
4:37b.LUK.004.037 Og orðstír hans barst út til allra staða þar í grennd. *Jesús læknar*
4:38b.LUK.004.038 Úr samkundunni fór hann í hús Símonar. En tengdamóðir Símonar var altekin sótthita, og báðu þeir hann að hjálpa henni.
4:39b.LUK.004.039 Hann gekk að, laut yfir hana og hastaði á sótthitann, og fór hann úr henni. En hún reis jafnskjótt á fætur og gekk þeim fyrir beina.
4:40b.LUK.004.040 Um sólsetur komu allir þeir, er höfðu á sínum vegum sjúklinga haldna ýmsum sjúkdómum, og færðu þá til hans. En hann lagði hendur yfir hvern þeirra og læknaði þá.
4:41b.LUK.004.041 Þá fóru og illir andar út af mörgum og æptu: "Þú ert sonur Guðs." En hann hastaði á þá og bannaði þeim að tala, því að þeir vissu, að hann var Kristur.
4:42b.LUK.004.042 Þegar dagur rann, gekk hann burt á óbyggðan stað, en mannfjöldinn leitaði hans. Þeir fundu hann og vildu aftra því, að hann færi frá þeim.
4:43b.LUK.004.043 En hann sagði við þá: "Mér ber og að flytja hinum borgunum fagnaðarerindið um Guðs ríki, því að til þess var ég sendur."
4:44b.LUK.004.044 Og hann prédikaði í samkundunum í Júdeu.
5
5:1b.LUK.005.001 Nú bar svo til, að hann stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð.
5:2b.LUK.005.002 Þá sá hann tvo báta við vatnið, en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín.
5:3b.LUK.005.003 Hann fór út í þann bátinn, er Símon átti, og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.
5:4b.LUK.005.004 Þegar hann hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við Símon: "Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskjar."
5:5b.LUK.005.005 Símon svaraði: "Meistari, vér höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið, en fyrst þú segir það, skal ég leggja netin."
5:6b.LUK.005.006 Nú gjörðu þeir svo, og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska, en net þeirra tóku að rifna.
5:7b.LUK.005.007 Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana, svo að nær voru sokknir.
5:8b.LUK.005.008 Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann fyrir kné Jesú og sagði: "Far þú frá mér, herra, því að ég er syndugur maður."
5:9b.LUK.005.009 En felmtur kom á hann og alla þá, sem með honum voru, vegna fiskaflans, er þeir höfðu fengið.
5:10b.LUK.005.010 Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: "Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða."
5:11b.LUK.005.011 Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.
5:12b.LUK.005.012 Svo bar við, er hann var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram á ásjónu sína og bað hann: "Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig."
5:13b.LUK.005.013 Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: "Ég vil, verð þú hreinn!" Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin.
5:14b.LUK.005.014 Og hann bauð honum að segja þetta engum. "En far þú," sagði hann, "sýn þig prestinum, og fórna fyrir hreinsun þína, eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar."
5:15b.LUK.005.015 En fregnin um hann breiddist út því meir, og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum.
5:16b.LUK.005.016 En hann dró sig einatt í hlé til óbyggðra staða og var þar á bæn.
5:17b.LUK.005.017 Dag nokkurn var hann að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til þess að lækna.
5:18b.LUK.005.018 Komu þá menn með lama mann í rekkju og reyndu að bera hann inn og leggja hann fyrir framan Jesú.
5:19b.LUK.005.019 En vegna mannfjöldans sáu þeir engin ráð til að komast inn með hann og fóru því upp á þak og létu hann síga í rekkjunni niður um helluþekjuna beint fram fyrir Jesú.
5:20b.LUK.005.020 Og er hann sá trú þeirra, sagði hann: "Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar."
5:21b.LUK.005.021 Þá tóku fræðimennirnir og farísearnir að hugsa með sér: "Hver er sá, er fer með slíka guðlöstun? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?"
5:22b.LUK.005.022 En Jesús skynjaði gjörla hugsanir þeirra og sagði við þá: "Hvað hugsið þér í hjörtum yðar?
5:23b.LUK.005.023 Hvort er auðveldara að segja: ,Syndir þínar eru þér fyrirgefnar,' eða segja: ,Statt upp og gakk'?
5:24b.LUK.005.024 En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér:" - og nú talar hann við lama manninn - "Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín."
5:25b.LUK.005.025 Jafnskjótt stóð hann upp frammi fyrir þeim, tók það, sem hann hafði legið á, fór heim til sín og lofaði Guð.
5:26b.LUK.005.026 En allir voru furðu lostnir og lofuðu Guð. Og þeir urðu ótta slegnir og sögðu: "Óskiljanlegt er það, sem vér höfum séð í dag."
5:27b.LUK.005.027 Eftir þetta fór hann út. Þá sá hann tollheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá tollbúðinni og sagði við hann: "Fylg þú mér!"
5:28b.LUK.005.028 Og hann stóð upp, yfirgaf allt og fylgdi honum.
5:29b.LUK.005.029 Leví bjó honum veislu mikla í húsi sínu, og þar sat að borði með þeim mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra.
5:30b.LUK.005.030 En farísearnir og fræðimenn þeirra vönduðu um við lærisveina hans og sögðu: "Hvers vegna etið þér og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum?"
5:31b.LUK.005.031 Og Jesús svaraði þeim: "Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru.
5:32b.LUK.005.032 Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar."
5:33b.LUK.005.033 En þeir sögðu við hann: "Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar farísea, en þínir eta og drekka."
5:34b.LUK.005.034 Jesús sagði við þá: "Hvort getið þér ætlað brúðkaupsgestum að fasta, meðan brúðguminn er hjá þeim?
5:35b.LUK.005.035 En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim dögum."
5:36b.LUK.005.036 Hann sagði þeim einnig líkingu: "Enginn rífur bót af nýju fati og lætur á gamalt fat, því að bæði rífur hann þá nýja fatið og bótin af því hæfir ekki hinu gamla.
5:37b.LUK.005.037 Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður, en belgirnir ónýtast.
5:38b.LUK.005.038 Nýtt vín ber að láta á nýja belgi.
5:39b.LUK.005.039 Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: ,Hið gamla er gott.'"
6
6:1b.LUK.006.001 En svo bar við á hvíldardegi, að hann fór um sáðlönd, og tíndu lærisveinar hans kornöx, neru milli handanna og átu.
6:2b.LUK.006.002 Þá sögðu farísear nokkrir: "Hví gjörið þér það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?"
6:3b.LUK.006.003 Og Jesús svaraði þeim: "Hafið þér þá ekki lesið, hvað Davíð gjörði, er hann hungraði og menn hans?
6:4b.LUK.006.004 Hann fór inn í Guðs hús, tók skoðunarbrauðin og át og gaf mönnum sínum, en þau má enginn eta nema prestarnir einir."
6:5b.LUK.006.005 Og hann sagði við þá: "Mannssonurinn er herra hvíldardagsins."
6:6b.LUK.006.006 Annan hvíldardag gekk hann í samkunduna og kenndi. Þar var maður nokkur með visna hægri hönd.
6:7b.LUK.006.007 En fræðimenn og farísear höfðu nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði á hvíldardegi, svo að þeir fengju tilefni að kæra hann.
6:8b.LUK.006.008 En hann vissi hugsanir þeirra og sagði við manninn með visnu höndina: "Statt upp, og kom hér fram." Og hann stóð upp og kom.
6:9b.LUK.006.009 Jesús sagði við þá: "Ég spyr yður, hvort er heldur leyfilegt að gjöra gott eða gjöra illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða granda því?"
6:10b.LUK.006.010 Hann leit í kring á þá alla og sagði við manninn: "Réttu fram hönd þína." Hann gjörði svo, og hönd hans varð heil.
6:11b.LUK.006.011 En þeir urðu æfir við og ræddu sín á milli, hvað þeir gætu gjört Jesú.
6:12b.LUK.006.012 En svo bar við um þessar mundir, að hann fór til fjalls að biðjast fyrir og var alla nóttina á bæn til Guðs.
6:13b.LUK.006.013 Og er dagur rann, kallaði hann til sín lærisveina sína, valdi tólf úr þeirra hópi og nefndi þá postula.
6:14b.LUK.006.014 Þeir voru: Símon, sem hann nefndi Pétur, Andrés bróðir hans, Jakob og Jóhannes, Filippus og Bartólómeus,
6:15b.LUK.006.015 Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson og Símon, kallaður vandlætari,
6:16b.LUK.006.016 og Júdas Jakobsson og Júdas Ískaríot, sem varð svikari.
6:17b.LUK.006.017 Hann gekk ofan með þeim og nam staðar á sléttri flöt. Þar var stór hópur lærisveina hans og mikill fjöldi fólks úr allri Júdeu, frá Jerúsalem og sjávarbyggðum Týrusar og Sídonar,
6:18b.LUK.006.018 er komið hafði til að hlýða á hann og fá lækning meina sinna. Einnig voru þeir læknaðir, er þjáðir voru af óhreinum öndum.
6:19b.LUK.006.019 Allt fólkið reyndi að snerta hann, því að frá honum kom kraftur, er læknaði alla.
6:20b.LUK.006.020 Þá hóf hann upp augu sín, leit á lærisveina sína og sagði: "Sælir eruð þér, fátækir, því að yðar er Guðs ríki.
6:21b.LUK.006.021 Sælir eruð þér, sem nú hungrar, því að þér munuð saddir verða. Sælir eruð þér, sem nú grátið, því að þér munuð hlæja.
6:22b.LUK.006.022 Sælir eruð þér, þá er menn hata yður, þá er þeir útskúfa yður og smána og bera út óhróður um yður vegna Mannssonarins.
6:23b.LUK.006.023 Fagnið á þeim degi og leikið af gleði, því laun yðar eru mikil á himni, og á sama veg fóru feður þeirra með spámennina.
6:24b.LUK.006.024 En vei yður, þér auðmenn, því að þér hafið tekið út huggun yðar.
6:25b.LUK.006.025 Vei yður, sem nú eruð saddir, því að yður mun hungra. Vei yður, sem nú hlæið, því að þér munuð sýta og gráta.
6:26b.LUK.006.026 Vei yður, þá er allir menn tala vel um yður, því að á sama veg fórst feðrum þeirra við falsspámennina.
6:27b.LUK.006.027 En ég segi yður, er á mig hlýðið: Elskið óvini yðar, gjörið þeim gott, sem hata yður,
6:28b.LUK.006.028 blessið þá, sem bölva yður, og biðjið fyrir þeim, er misþyrma yður.
6:29b.LUK.006.029 Slái þig einhver á kinnina, skaltu og bjóða hina, og taki einhver yfirhöfn þína, skaltu ekki varna honum að taka kyrtilinn líka.
6:30b.LUK.006.030 Gef þú hverjum sem biður þig, og þann, sem tekur þitt frá þér, skaltu eigi krefja.
6:31b.LUK.006.031 Og svo sem þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo skuluð þér og þeim gjöra.
6:32b.LUK.006.032 Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem þá elska.
6:33b.LUK.006.033 Og þótt þér gjörið þeim gott, sem yður gjöra gott, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar gjöra og hið sama.
6:34b.LUK.006.034 Og þótt þér lánið þeim, sem þér vonið að muni borga, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar lána einnig syndurum til þess að fá allt aftur.
6:35b.LUK.006.035 Nei, elskið óvini yðar, og gjörið gott og lánið án þess að vænta nokkurs í staðinn, og laun yðar munu verða mikil, og þér verða börn hins hæsta, því að hann er góður við vanþakkláta og vonda.
6:36b.LUK.006.036 Verið miskunnsamir, eins og faðir yðar er miskunnsamur.
6:37b.LUK.006.037 Dæmið ekki, og þér munuð eigi dæmdir verða. Sakfellið eigi, og þér munuð eigi sakfelldir verða. Sýknið, og þér munuð sýknaðir verða.
6:38b.LUK.006.038 Gefið, og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða."
6:39b.LUK.006.039 Þá sagði hann þeim og líkingu: "Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju?
6:40b.LUK.006.040 Ekki er lærisveinn meistaranum fremri, en hver sem er fullnuma, verður eins og meistari hans.
6:41b.LUK.006.041 Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga sjálfs þín?
6:42b.LUK.006.042 Hvernig fær þú sagt við bróður þinn: ,Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér,' en sérð þó eigi sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
6:43b.LUK.006.043 Því að ekki er til gott tré, er beri slæman ávöxt, né heldur slæmt tré, er beri góðan ávöxt.
6:44b.LUK.006.044 En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni.
6:45b.LUK.006.045 Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns, en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans.
6:46b.LUK.006.046 En hví kallið þér mig herra, herra, og gjörið ekki það, sem ég segi?
6:47b.LUK.006.047 Ég skal sýna yður, hverjum sá er líkur, sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim.
6:48b.LUK.006.048 Hann er líkur manni, er byggði hús, gróf djúpt fyrir og grundvallaði það á bjargi. Nú kom flóð og flaumurinn skall á því húsi, en fékk hvergi hrært það, vegna þess að það var vel byggt.
6:49b.LUK.006.049 Hinn, er heyrir og gjörir ekki, er líkur manni, sem byggði hús á jörðinni án undirstöðu. Flaumurinn skall á því, og það hús féll þegar, og fall þess varð mikið."
7
7:1b.LUK.007.001 Þá er hann hafði lokið máli sínu í áheyrn lýðsins, fór hann til Kapernaum.
7:2b.LUK.007.002 Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón, sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona.
7:3b.LUK.007.003 Þegar hundraðshöfðinginn heyrði um Jesú, sendi hann til hans öldunga Gyðinga og bað hann koma og bjarga lífi þjóns síns.
7:4b.LUK.007.004 Þeir komu til Jesú, báðu hann ákaft og sögðu: "Verður er hann þess, að þú veitir honum þetta,
7:5b.LUK.007.005 því að hann elskar þjóð vora, og hann hefur reist samkunduna handa oss."
7:6b.LUK.007.006 Jesús fór með þeim. Þegar hann átti skammt til hússins, sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og lét segja við hann: "Ómaka þig ekki, herra, því að ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt.
7:7b.LUK.007.007 Þess vegna hef ég ekki heldur talið sjálfan mig verðan þess að koma til þín. En mæl þú eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.
7:8b.LUK.007.008 Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ,Far þú,' og hann fer, og við annan: ,Kom þú,' og hann kemur, og við þjón minn: ,Gjör þetta,' og hann gjörir það."
7:9b.LUK.007.009 Þegar Jesús heyrði þetta, furðaði hann sig á honum, sneri sér að mannfjöldanum, sem fylgdi honum, og mælti: "Ég segi yður, ekki einu sinni í Ísrael hef ég fundið þvílíka trú."
7:10b.LUK.007.010 Sendimenn sneru þá aftur heim og fundu þjóninn heilan heilsu.
7:11b.LUK.007.011 Skömmu síðar bar svo við, að Jesús hélt til borgar, sem heitir Nain, og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi.
7:12b.LUK.007.012 Þegar hann nálgaðist borgarhliðið, þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar, sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni.
7:13b.LUK.007.013 Og er Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: "Grát þú eigi!"
7:14b.LUK.007.014 Og hann gekk að og snart líkbörurnar, en þeir, sem báru, námu staðar. Þá sagði hann: "Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!"
7:15b.LUK.007.015 Hinn látni settist þá upp og tók að mæla, og Jesús gaf hann móður hans.
7:16b.LUK.007.016 En ótti greip alla, og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: "Spámaður mikill er risinn upp meðal vor," og "Guð hefur vitjað lýðs síns."
7:17b.LUK.007.017 Og þessi fregn um hann barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.
7:18b.LUK.007.018 Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Hann kallaði þá til sín tvo lærisveina sína,
7:19b.LUK.007.019 sendi þá til Drottins og lét spyrja: "Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?"
7:20b.LUK.007.020 Mennirnir fóru til hans og sögðu: "Jóhannes skírari sendi okkur til þín og spyr: ,Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?'"
7:21b.LUK.007.021 Á þeirri stundu læknaði hann marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn.
7:22b.LUK.007.022 Og hann svaraði þeim: "Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi.
7:23b.LUK.007.023 Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér."
7:24b.LUK.007.024 Þá er sendimenn Jóhannesar voru burt farnir, tók hann að tala til mannfjöldans um Jóhannes: "Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?
7:25b.LUK.007.025 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, í konungssölum er þá að finna, sem skartklæðin bera og lifa í sællífi.
7:26b.LUK.007.026 Hvað fóruð þér þá að sjá? Spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.
7:27b.LUK.007.027 Hann er sá sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.
7:28b.LUK.007.028 Ég segi yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes. En hinn minnsti í Guðs ríki er honum meiri."
7:29b.LUK.007.029 Og allur lýðurinn, sem á hlýddi, og enda tollheimtumenn, viðurkenndu réttlæti Guðs og létu skírast af Jóhannesi.
7:30b.LUK.007.030 En farísear og lögvitringar gjörðu að engu áform Guðs um þá og létu ekki skírast af honum.
7:31b.LUK.007.031 "Við hvað á ég þá að líkja mönnum þessarar kynslóðar? Hverju eru þeir líkir?
7:32b.LUK.007.032 Líkir eru þeir börnum, sem á torgi sitja og kallast á: ,Vér lékum fyrir yður á flautu, og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér gráta.'
7:33b.LUK.007.033 Nú kom Jóhannes skírari, át ekki brauð né drakk vín, og þér segið: ,Hann hefur illan anda.'
7:34b.LUK.007.034 Og Mannssonurinn er kominn, etur og drekkur, og þér segið: ,Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra!'
7:35b.LUK.007.035 En spekin hefur rétt fyrir sér, það staðfesta öll börn hennar."
7:36b.LUK.007.036 Farísei nokkur bauð honum að eta hjá sér, og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs.
7:37b.LUK.007.037 En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís, að hann sat að borði í húsi faríseans. Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum,
7:38b.LUK.007.038 nam staðar að baki honum til fóta hans grátandi, tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum.
7:39b.LUK.007.039 Þegar faríseinn, sem honum hafði boðið, sá þetta, sagði hann við sjálfan sig: "Væri þetta spámaður, mundi hann vita, hver og hvílík sú kona er, sem snertir hann, að hún er bersyndug."
7:40b.LUK.007.040 Jesús sagði þá við hann: "Símon, ég hef nokkuð að segja þér." Hann svaraði: "Seg þú það, meistari."
7:41b.LUK.007.041 "Tveir menn voru skuldugir lánveitanda nokkrum. Annar skuldaði honum fimm hundruð denara, en hinn fimmtíu.
7:42b.LUK.007.042 Nú gátu þeir ekkert borgað, og þá gaf hann báðum upp. Hvor þeirra skyldi nú elska hann meira?"
7:43b.LUK.007.043 Símon svaraði: "Sá, hygg ég, sem hann gaf meira upp." Jesús sagði við hann: "Þú ályktaðir rétt."
7:44b.LUK.007.044 Síðan sneri hann sér að konunni og sagði við Símon: "Sér þú konu þessa? Ég kom í hús þitt, og þú gafst mér ekki vatn á fætur mína, en hún vætti fætur mína tárum sínum og þerraði með hári sínu.
7:45b.LUK.007.045 Ekki gafst þú mér koss, en hún hefur ekki látið af að kyssa fætur mína, allt frá því ég kom.
7:46b.LUK.007.046 Ekki smurðir þú höfuð mitt olíu, en hún hefur smurt fætur mína með smyrslum.
7:47b.LUK.007.047 Þess vegna segi ég þér: Hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar, enda elskar hún mikið, en sá elskar lítið, sem lítið er fyrirgefið."
7:48b.LUK.007.048 Síðan sagði hann við hana: "Syndir þínar eru fyrirgefnar."
7:49b.LUK.007.049 Þá tóku þeir, sem til borðs sátu með honum, að segja með sjálfum sér: "Hver er sá, er fyrirgefur syndir?"
7:50b.LUK.007.050 En hann sagði við konuna: "Trú þín hefur frelsað þig, far þú í friði."
8
8:1b.LUK.008.001 Eftir þetta fór hann um, borg úr borg og þorp úr þorpi, prédikaði og flutti fagnaðarerindið um Guðs ríki. Með honum voru þeir tólf
8:2b.LUK.008.002 og konur nokkrar, er læknaðar höfðu verið af illum öndum og sjúkdómum. Það voru þær María, kölluð Magdalena, er sjö illir andar höfðu farið úr,
8:3b.LUK.008.003 Jóhanna, kona Kúsa, ráðsmanns Heródesar, Súsanna og margar aðrar. Þær hjálpuðu þeim með fjármunum sínum.
8:4b.LUK.008.004 Nú var mikill fjöldi saman kominn, og menn komu til hans úr hverri borg af annarri. Þá sagði hann þessa dæmisögu:
8:5b.LUK.008.005 "Sáðmaður gekk út að sá sæði sínu. Og þá er hann sáði, féll sumt hjá götunni og varð fótum troðið, og fuglar himins átu það upp.
8:6b.LUK.008.006 Sumt féll á klöpp. Það spratt, en skrælnaði, af því að það hafði ekki raka.
8:7b.LUK.008.007 Og sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir spruttu einnig og kæfðu það.
8:8b.LUK.008.008 En sumt féll í góða jörð, óx upp og bar hundraðfaldan ávöxt." Að svo mæltu hrópaði hann: "Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri."
8:9b.LUK.008.009 En lærisveinar hans spurðu hann, hvað þessi dæmisaga þýddi.
8:10b.LUK.008.010 Hann sagði: "Yður er gefið að þekkja leynda dóma Guðs ríkis, hinir fá þá í dæmisögum, ,að sjáandi sjái þeir ekki og heyrandi skilji þeir ekki.'
8:11b.LUK.008.011 En dæmisagan þýðir þetta: Sæðið er Guðs orð.
8:12b.LUK.008.012 Það er féll hjá götunni, merkir þá, sem heyra orðið, en síðan kemur djöfullinn og tekur það burt úr hjarta þeirra, til þess að þeir trúi ekki og verði hólpnir.
8:13b.LUK.008.013 Það er féll á klöppina, merkir þá, sem taka orðinu með fögnuði, er þeir heyra það, en hafa enga rótfestu. Þeir trúa um stund, en falla frá á reynslutíma.
8:14b.LUK.008.014 Það er féll meðal þyrna, merkir þá er heyra, en kafna síðan undir áhyggjum, auðæfum og nautnum lífsins og bera ekki þroskaðan ávöxt.
8:15b.LUK.008.015 En það er féll í góða jörð, merkir þá sem heyra orðið og geyma það í göfugu, góðu hjarta og bera ávöxt með stöðuglyndi.
8:16b.LUK.008.016 Enginn kveikir ljós og byrgir það með keri eða setur undir bekk, heldur láta menn það á ljósastiku, að þeir, sem inn koma, sjái ljósið.
8:17b.LUK.008.017 Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, að eigi verði það kunnugt og komi í ljós.
8:18b.LUK.008.018 Gætið því að, hvernig þér heyrið. Því að þeim sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann ætlar sig hafa."
8:19b.LUK.008.019 Móðir hans og bræður komu til hans, en gátu ekki náð fundi hans vegna mannfjöldans.
8:20b.LUK.008.020 Var honum sagt: "Móðir þín og bræður standa úti og vilja finna þig."
8:21b.LUK.008.021 En hann svaraði þeim: "Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því."
8:22b.LUK.008.022 Dag einn fór hann út í bát og lærisveinar hans. Hann sagði við þá: "Förum yfir um vatnið." Og þeir létu frá landi.
8:23b.LUK.008.023 En sem þeir sigldu, sofnaði hann. Þá skall stormhrina á vatnið, svo að nær fyllti bátinn og voru þeir hætt komnir.
8:24b.LUK.008.024 Þeir fóru þá til hans, vöktu hann og sögðu: "Meistari, meistari, vér förumst!" En hann vaknaði og hastaði á vindinn og öldurótið og slotaði þegar og gerði logn.
8:25b.LUK.008.025 Og hann sagði við þá: "Hvar er trú yðar?" En þeir urðu hræddir og undruðust og sögðu hver við annan: "Hver er þessi? Hann skipar bæði vindum og vatni og hvort tveggja hlýðir honum."
8:26b.LUK.008.026 Þeir tóku land í byggð Gerasena, sem er gegnt Galíleu.
8:27b.LUK.008.027 Er hann sté á land, kom á móti honum maður nokkur úr borginni, sem haldinn var illum öndum. Langan tíma hafði hann ekki farið í föt né dvalist í húsi, heldur í gröfunum.
8:28b.LUK.008.028 Þegar hann sá Jesú, æpti hann, féll fram fyrir honum og hrópaði hárri röddu: "Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur Guðs hins hæsta? Ég bið þig, kvel þú mig eigi!"
8:29b.LUK.008.029 Því að hann hafði boðið óhreina andanum að fara út af manninum. En margsinnis hafði hann gripið hann, og höfðu menn fjötrað hann á höndum og fótum og haft í gæslu, en hann hafði slitið böndin og illi andinn hrakið hann út í óbyggðir.
8:30b.LUK.008.030 Jesús spurði hann: "Hvað heitir þú?" En hann sagði: "Hersing", því að margir illir andar höfðu farið í hann.
8:31b.LUK.008.031 Og þeir báðu Jesú að skipa sér ekki að fara í undirdjúpið.
8:32b.LUK.008.032 En þar var stór svínahjörð á beit í fjallinu. Þeir báðu hann að leyfa sér að fara í þau, og hann leyfði þeim það.
8:33b.LUK.008.033 Illu andarnir fóru þá úr manninum og í svínin, og hjörðin ruddist fram af hamrinum í vatnið og drukknaði.
8:34b.LUK.008.034 En er hirðarnir sáu, hvað orðið var, flýðu þeir og sögðu tíðindin í borginni og sveitinni.
8:35b.LUK.008.035 Menn fóru þá að sjá, hvað gjörst hafði, komu til Jesú og fundu manninn, sem illu andarnir höfðu farið úr, sitja klæddan og heilvita við fætur Jesú. Og þeir urðu hræddir.
8:36b.LUK.008.036 Sjónarvottar sögðu þeim frá, hvernig sá, sem haldinn var illum öndum, hafði orðið heill.
8:37b.LUK.008.037 Allt fólk í héruðum Gerasena bað hann þá fara burt frá sér, því menn voru slegnir miklum ótta. Og hann sté í bátinn og sneri aftur.
8:38b.LUK.008.038 Maðurinn, sem illu andarnir höfðu farið úr, bað hann að mega vera með honum, en Jesús lét hann fara og mælti:
8:39b.LUK.008.039 "Far aftur heim til þín, og seg þú frá, hve mikið Guð hefur fyrir þig gjört." Hann fór og kunngjörði um alla borgina, hve mikið Jesús hafði fyrir hann gjört.
8:40b.LUK.008.040 En er Jesús kom aftur, fagnaði mannfjöldinn honum, því að allir væntu hans.
8:41b.LUK.008.041 Þá kom þar maður, Jaírus að nafni, forstöðumaður samkundunnar. Hann féll til fóta Jesú og bað hann koma heim til sín.
8:42b.LUK.008.042 Því hann átti einkadóttur, um tólf ára að aldri, og hún lá fyrir dauðanum. Þegar Jesús var á leiðinni, þrengdi mannfjöldinn að honum.
8:43b.LUK.008.043 Þar var kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár. Hún hafði leitað lækna og varið til aleigu sinni, en enginn getað læknað hana.
8:44b.LUK.008.044 Hún kom að baki honum og snart fald klæða hans, og jafnskjótt stöðvaðist blóðlát hennar.
8:45b.LUK.008.045 Jesús sagði: "Hver var það, sem snart mig?" En er allir synjuðu fyrir það, sagði Pétur: "Meistari, mannfjöldinn treðst að þér og þrýstir á."
8:46b.LUK.008.046 En Jesús sagði: "Einhver snart mig, því að ég fann, að kraftur fór út frá mér."
8:47b.LUK.008.047 En er konan sá, að hún fékk eigi dulist, kom hún skjálfandi, féll til fóta honum og skýrði frá því í áheyrn alls lýðsins, hvers vegna hún snart hann, og hvernig hún hafði jafnskjótt læknast.
8:48b.LUK.008.048 Hann sagði þá við hana: "Dóttir, trú þín hefur bjargað þér. Far þú í friði."
8:49b.LUK.008.049 Meðan hann var að segja þetta, kemur maður heiman frá samkundustjóranum og segir: "Dóttir þín er látin, ómaka þú ekki meistarann lengur."
8:50b.LUK.008.050 En er Jesús heyrði þetta, sagði hann við hann: "Óttast ekki, trú þú aðeins, og mun hún heil verða."
8:51b.LUK.008.051 Þegar hann kom að húsinu, leyfði hann engum að fara inn með sér nema Pétri, Jóhannesi og Jakobi og föður stúlkunnar og móður.
8:52b.LUK.008.052 Og allir grétu og syrgðu hana. Hann sagði: "Grátið ekki, hún er ekki dáin, hún sefur."
8:53b.LUK.008.053 En þeir hlógu að honum, þar eð þeir vissu að hún var dáin.
8:54b.LUK.008.054 Hann tók þá hönd hennar og kallaði: "Stúlka, rís upp!"
8:55b.LUK.008.055 Og andi hennar kom aftur, og hún reis þegar upp, en hann bauð að gefa henni að eta.
8:56b.LUK.008.056 Foreldrar hennar urðu frá sér numdir, en hann bauð þeim að segja engum frá þessum atburði.
9
9:1b.LUK.009.001 Hann kallaði saman þá tólf og gaf þeim mátt og vald yfir öllum illum öndum og til að lækna sjúkdóma.
9:2b.LUK.009.002 Hann sendi þá að boða Guðs ríki og græða sjúka
9:3b.LUK.009.003 og sagði við þá: "Takið ekkert til ferðarinnar, hvorki staf né mal, brauð né silfur, og enginn hafi tvo kyrtla.
9:4b.LUK.009.004 Og hvar sem þér fáið inni, þar sé aðsetur yðar og þaðan skuluð þér leggja upp að nýju.
9:5b.LUK.009.005 En taki menn ekki við yður, þá farið úr borg þeirra og hristið dustið af fótum yðar til vitnisburðar gegn þeim."
9:6b.LUK.009.006 Þeir lögðu af stað og fóru um þorpin, fluttu fagnaðarerindið og læknuðu hvarvetna.
9:7b.LUK.009.007 En Heródes fjórðungsstjóri frétti allt, sem gjörst hafði, og vissi ekki, hvað hann átti að halda, því sumir sögðu, að Jóhannes væri risinn upp frá dauðum,
9:8b.LUK.009.008 aðrir, að Elía væri kominn fram, enn aðrir, að einn hinna fornu spámanna væri risinn upp.
9:9b.LUK.009.009 Heródes sagði: "Jóhannes lét ég hálshöggva, en hver er þessi, er ég heyri þvílíkt um?" Og hann leitaði færis að sjá hann.
9:10b.LUK.009.010 Postularnir komu aftur og skýrðu Jesú frá öllu því, er þeir höfðu gjört, en hann tók þá með sér og vék brott til bæjar, sem heitir Betsaída, að þeir væru einir saman.
9:11b.LUK.009.011 Mannfjöldinn varð þess var og fór á eftir honum. Hann tók þeim vel og talaði við þá um Guðs ríki og læknaði þá, er lækningar þurftu.
9:12b.LUK.009.012 Nú tók degi að halla. Komu þá þeir tólf að máli við hann og sögðu: "Lát þú mannfjöldann fara, að þeir geti náð til þorpa og býla hér í kring og náttað sig og fengið mat, því að hér erum vér á óbyggðum stað."
9:13b.LUK.009.013 En hann sagði við þá: "Gefið þeim sjálfir að eta." Þeir svöruðu: "Vér eigum ekki meira en fimm brauð og tvo fiska, nema þá vér förum og kaupum vistir handa öllu þessu fólki."
9:14b.LUK.009.014 En þar voru um fimm þúsund karlmenn. Hann sagði þá við lærisveina sína: "Látið þá setjast í hópa, um fimmtíu í hverjum."
9:15b.LUK.009.015 Þeir gjörðu svo og létu alla setjast.
9:16b.LUK.009.016 En hann tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði fyrir þau og braut og gaf lærisveinunum að bera fram fyrir mannfjöldann.
9:17b.LUK.009.017 Og þeir neyttu allir og urðu mettir. En leifarnar eftir þá voru teknar saman, tólf körfur brauðbita.
9:18b.LUK.009.018 Svo bar við, að hann var einn á bæn og lærisveinarnir hjá honum. Þá spurði hann þá: "Hvern segir fólkið mig vera?"
9:19b.LUK.009.019 Þeir svöruðu: "Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir, að einn hinna fornu spámanna sé risinn upp."
9:20b.LUK.009.020 Og hann sagði við þá: "En þér, hvern segið þér mig vera?" Pétur svaraði: "Krist Guðs."
9:21b.LUK.009.021 Hann lagði ríkt á við þá að segja þetta engum
9:22b.LUK.009.022 og mælti: "Mannssonurinn á margt að líða, honum mun útskúfað verða af öldungum, æðstu prestum og fræðimönnum, hann mun líflátinn, en upp rísa á þriðja degi."
9:23b.LUK.009.023 Og hann sagði við alla: "Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.
9:24b.LUK.009.024 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun bjarga því.
9:25b.LUK.009.025 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en týna eða fyrirgjöra sjálfum sér?
9:26b.LUK.009.026 En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð sinni og föðurins og heilagra engla.
9:27b.LUK.009.027 En ég segi yður með sanni: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Guðs ríki."
9:28b.LUK.009.028 Svo bar við um átta dögum eftir ræðu þessa, að hann tók með sér þá Pétur, Jóhannes og Jakob og gekk upp á fjallið að biðjast fyrir.
9:29b.LUK.009.029 Og er hann var að biðjast fyrir, varð yfirlit ásjónu hans annað, og klæði hans urðu hvít og skínandi.
9:30b.LUK.009.030 Og tveir menn voru á tali við hann. Það voru þeir Móse og Elía.
9:31b.LUK.009.031 Þeir birtust í dýrð og ræddu um brottför hans, er hann skyldi fullna í Jerúsalem.
9:32b.LUK.009.032 Þá Pétur og félaga hans sótti mjög svefn, en nú vöknuðu þeir og sáu dýrð hans og mennina tvo, er stóðu hjá honum.
9:33b.LUK.009.033 Þegar þeir voru að skilja við Jesú, mælti Pétur við hann: "Meistari, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina." Ekki vissi hann, hvað hann sagði.
9:34b.LUK.009.034 Um leið og hann mælti þetta, kom ský og skyggði yfir þá, og urðu þeir hræddir, er þeir komu inn í skýið.
9:35b.LUK.009.035 Og rödd kom úr skýinu og sagði: "Þessi er sonur minn, útvalinn, hlýðið á hann!"
9:36b.LUK.009.036 Er röddin hafði talað, var Jesús einn. Og þeir þögðu og sögðu á þeim dögum engum frá neinu því, sem þeir höfðu séð.
9:37b.LUK.009.037 Daginn eftir, er þeir fóru ofan af fjallinu, kom mikill mannfjöldi á móti honum.
9:38b.LUK.009.038 Og maður nokkur úr mannfjöldanum hrópar: "Meistari, ég bið þig að líta á son minn, því að hann er einkabarnið mitt.
9:39b.LUK.009.039 Það er andi, sem grípur hann, og þá æpir hann skyndilega. Hann teygir hann svo að hann froðufellir, og víkur varla frá honum og er að gjöra út af við hann.
9:40b.LUK.009.040 Ég bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki."
9:41b.LUK.009.041 Jesús svaraði: "Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður og umbera yður? Fær þú hingað son þinn."
9:42b.LUK.009.042 Þegar hann var að koma, slengdi illi andinn honum flötum og teygði hann ákaflega. En Jesús hastaði á óhreina andann, læknaði sveininn og gaf hann aftur föður hans.
9:43b.LUK.009.043 Og allir undruðust stórum veldi Guðs.
9:44b.LUK.009.044 "Festið þessi orð í huga: ,Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur.'"
9:45b.LUK.009.045 En þeir skildu ekki þessi orð, og þetta var þeim hulið, svo að þeir skynjuðu það ekki. Og þeir þorðu ekki að spyrja hann um þetta.
9:46b.LUK.009.046 Sú spurning kom fram meðal þeirra, hver þeirra væri mestur.
9:47b.LUK.009.047 Jesús vissi, hvað þeir hugsuðu í hjörtum sínum, og tók lítið barn, setti það hjá sér
9:48b.LUK.009.048 og sagði við þá: "Hver sem tekur við þessu barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur við þeim, er sendi mig. Því að sá sem minnstur er meðal yðar allra, hann er mestur."
9:49b.LUK.009.049 Jóhannes tók til máls: "Meistari, vér sáum mann reka út illa anda í þínu nafni, og vildum vér varna honum þess, af því að hann fylgir oss ekki."
9:50b.LUK.009.050 En Jesús sagði við hann: "Varnið þess ekki. Sá sem er ekki á móti yður, er með yður."
9:51b.LUK.009.051 Nú fullnaðist brátt sá tími, er hann skyldi upp numinn verða. Beindi hann þá augum til Jerúsalem, einráðinn að fara þangað.
9:52b.LUK.009.052 Og hann lét sendiboða fara á undan sér. Þeir fóru og komu í Samverjaþorp nokkurt til að búa honum gistingu.
9:53b.LUK.009.053 En þeir tóku ekki við honum, því hann var á leið til Jerúsalem.
9:54b.LUK.009.054 Þegar lærisveinar hans, þeir Jakob og Jóhannes, sáu það, sögðu þeir: "Herra, eigum vér að bjóða, að eldur falli af himni og tortími þeim?"
9:55b.LUK.009.055 En hann sneri sér við og ávítaði þá [og sagði: "Ekki vitið þið, hvers anda þið eruð.
9:56b.LUK.009.056 Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa."] Og þeir fóru í annað þorp.
9:57b.LUK.009.057 Þegar þeir voru á ferð á veginum, sagði maður nokkur við hann: "Ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð."
9:58b.LUK.009.058 Jesús sagði við hann: "Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla."
9:59b.LUK.009.059 Við annan sagði hann: "Fylg þú mér!" Sá mælti: "Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn."
9:60b.LUK.009.060 Jesús svaraði: "Lát hina dauðu jarða sína dauðu, en far þú og boða Guðs ríki."
9:61b.LUK.009.061 Enn annar sagði: "Ég vil fylgja þér, herra, en leyf mér fyrst að kveðja fólk mitt heima."
9:62b.LUK.009.062 En Jesús sagði við hann: "Enginn, sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur, er hæfur í Guðs ríki."
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Luke (Icelandic). Luke (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DDA-2