Matthew (Icelandic)
1
1:1b.MAT.001.001 Ættartala Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams.
1:2b.MAT.001.002 Abraham gat Ísak, Ísak gat Jakob, Jakob gat Júda og bræður hans.
1:3b.MAT.001.003 Júda gat Peres og Sara við Tamar, Peres gat Esrom, Esrom gat Ram,
1:4b.MAT.001.004 Ram gat Ammínadab, Ammínadab gat Nakson, Nakson gat Salmon,
1:5b.MAT.001.005 Salmon gat Bóas við Rahab, og Bóas gat Óbeð við Rut. Óbeð gat Ísaí,
1:6b.MAT.001.006 og Ísaí gat Davíð konung. Davíð gat Salómon við konu Úría,
1:7b.MAT.001.007 Salómon gat Róbóam, Róbóam gat Abía, Abía gat Asaf,
1:8b.MAT.001.008 Asaf gat Jósafat, Jósafat gat Jóram, Jóram gat Ússía,
1:9b.MAT.001.009 Ússía gat Jótam, Jótam gat Akas, Akas gat Esekía,
1:10b.MAT.001.010 Esekía gat Manasse, Manasse gat Amos, Amos gat Jósía.
1:11b.MAT.001.011 Jósía gat Jekonja og bræður hans á tíma herleiðingarinnar til Babýlonar.
1:12b.MAT.001.012 Eftir herleiðinguna til Babýlonar gat Jekonja Sealtíel, Sealtíel gat Serúbabel,
1:13b.MAT.001.013 Serúbabel gat Abíúd, Abíúd gat Eljakím, Eljakím gat Asór,
1:14b.MAT.001.014 Asór gat Sadók, Sadók gat Akím, Akím gat Elíúd,
1:15b.MAT.001.015 Elíúd gat Eleasar, Eleasar gat Mattan, Mattan gat Jakob,
1:16b.MAT.001.016 og Jakob gat Jósef, mann Maríu, en hún ól Jesú, sem kallast Kristur.
1:17b.MAT.001.017 Þannig eru alls fjórtán ættliðir frá Abraham til Davíðs, fjórtán ættliðir frá Daví� fram að herleiðingunni til Babýlonar og fjórtán ættliðir frá herleiðingunni til Krists.
1:18b.MAT.001.018 Fæðing Jesú Krists varð með þessum atburðum: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman, reyndist hún þunguð af heilögum anda.
1:19b.MAT.001.019 Jósef, festarmaður hennar, sem var grandvar, vildi ekki gjöra henni opinbera minnkun og hugðist skilja við hana í kyrrþey.
1:20b.MAT.001.020 Hann hafði ráðið þetta með sér, en þá vitraðist honum engill Drottins í draumi og sagði: "Jósef, sonur Davíðs, óttastu ekki að taka til þín Maríu, heitkonu þína. Barnið, sem hún gengur með, er af heilögum anda.
1:21b.MAT.001.021 Hún mun son ala, og hann skaltu láta heita Jesú, því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra."
1:22b.MAT.001.022 Allt varð þetta til þess, að rætast skyldu orð Drottins fyrir munn spámannsins:
1:23b.MAT.001.023 "Sjá, mærin mun þunguð verða og son ala. Nafn hans mun vera Immanúel," það þýðir: Guð með oss.
1:24b.MAT.001.024 Þegar Jósef vaknaði, gjörði hann eins og engill Drottins hafði boðið honum og tók konu sína til sín.
1:25b.MAT.001.025 Hann kenndi hennar ekki fyrr en hún hafði alið son. Og hann gaf honum nafnið JESÚS.
10
10:1b.MAT.010.001 Og hann kallaði til sín lærisveina sína tólf og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum, að þeir gætu rekið þá út og læknað hvers kyns sjúkdóm og veikindi.
10:2b.MAT.010.002 Nöfn postulanna tólf eru þessi: Fyrstur Símon, sem kallast Pétur, og Andrés bróðir hans, þá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróðir hans,
10:3b.MAT.010.003 Filippus og Bartólómeus, Tómas og Matteus tollheimtumaður, Jakob Alfeusson og Taddeus,
10:4b.MAT.010.004 Símon vandlætari og Júdas Ískaríot, sá er sveik hann.
10:5b.MAT.010.005 Þessa tólf sendi Jesús út og mælti svo fyrir: "Haldið ekki til heiðinna manna og farið ekki í samverska borg.
10:6b.MAT.010.006 Farið heldur til týndra sauða af Ísraelsætt.
10:7b.MAT.010.007 Farið og prédikið: ,Himnaríki er í nánd.'
10:8b.MAT.010.008 Læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda. Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té.
10:9b.MAT.010.009 Takið ekki gull, silfur né eir í belti,
10:10b.MAT.010.010 eigi mal til ferðar eða tvo kyrtla og hvorki skó né staf. Verður er verkamaðurinn fæðis síns.
10:11b.MAT.010.011 Hvar sem þér komið í borg eða þorp, spyrjist þá fyrir um, hver þar sé verðugur, og þar sé aðsetur yðar, uns þér leggið upp að nýju.
10:12b.MAT.010.012 Þegar þér komið í hús, þá árnið því góðs,
10:13b.MAT.010.013 og sé það verðugt, skal friður yðar koma yfir það, en sé það ekki verðugt, skal friður yðar aftur hverfa til yðar.
10:14b.MAT.010.014 Og taki einhver ekki við yður né hlýði á orð yðar, farið þá úr því húsi eða þeirri borg og hristið dustið af fótum yðar.
10:15b.MAT.010.015 Sannlega segi ég yður: Bærilegra mun landi Sódómu og Gómorru á dómsdegi en þeirri borg.
10:16b.MAT.010.016 Sjá, ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur.
10:17b.MAT.010.017 Varið yður á mönnunum. Þeir munu draga yður fyrir dómstóla og húðstrýkja yður í samkundum sínum.
10:18b.MAT.010.018 Þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna þeim og heiðingjunum til vitnisburðar.
10:19b.MAT.010.019 En þá er menn draga yður fyrir rétt, skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því, hvernig eða hvað þér eigið að tala. Yður verður gefið á sömu stundu, hvað segja skal.
10:20b.MAT.010.020 Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur andi föður yðar, hann talar í yður.
10:21b.MAT.010.021 Bróðir mun selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða.
10:22b.MAT.010.022 Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.
10:23b.MAT.010.023 Þegar þeir ofsækja yður í einni borg, þá flýið í aðra. Sannlega segi ég yður: Þér munuð ekki hafa náð til allra borga Ísraels, áður en Mannssonurinn kemur.
10:24b.MAT.010.024 Ekki er lærisveinn meistaranum fremri né þjónn herra sínum.
10:25b.MAT.010.025 Nægja má lærisveini að vera sem meistari hans og þjóni sem herra hans. Fyrst þeir kölluðu húsföðurinn Beelsebúl, hvað kalla þeir þá heimamenn hans?
10:26b.MAT.010.026 Óttist þá því eigi. Ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, er eigi verður kunnugt.
10:27b.MAT.010.027 Það sem ég segi yður í myrkri, skuluð þér tala í birtu, og það sem þér heyrið hvíslað í eyra, skuluð þér kunngjöra á þökum uppi.
10:28b.MAT.010.028 Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða, en fá ekki deytt sálina. Hræðist heldur þann, sem megnar að tortíma bæði sálu og líkama í helvíti.
10:29b.MAT.010.029 Eru ekki tveir spörvar seldir fyrir smápening? Og ekki fellur einn þeirra til jarðar án vitundar föður yðar.
10:30b.MAT.010.030 Á yður eru jafnvel höfuðhárin öll talin.
10:31b.MAT.010.031 Verið því óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar.
10:32b.MAT.010.032 Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.
10:33b.MAT.010.033 En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun og ég afneita fyrir föður mínum á himnum.
10:34b.MAT.010.034 Ætlið ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki að færa frið, heldur sverð.
10:35b.MAT.010.035 Ég er kominn að gjöra ,son andvígan föður sínum, dóttur móður sinni og tengdadóttur tengdamóður sinni.
10:36b.MAT.010.036 Og heimamenn manns verða óvinir hans.'
10:37b.MAT.010.037 Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður.
10:38b.MAT.010.038 Hver sem tekur ekki sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður.
10:39b.MAT.010.039 Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það.
10:40b.MAT.010.040 Sá sem tekur við yður, tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim, er sendi mig.
10:41b.MAT.010.041 Sá sem tekur við spámanni, vegna þess að hann er spámaður, mun fá spámanns laun, og sá sem tekur við réttlátum manni, vegna þess að hann er réttlátur, mun fá laun réttláts manns.
10:42b.MAT.010.042 Og hver sem gefur einum þessara smælingja svaladrykk vegna þess eins, að hann er lærisveinn, sannlega segi ég yður, hann mun alls ekki missa af launum sínum."
11
11:1b.MAT.011.001 Þá er Jesús hafði mælt svo fyrir við lærisveina sína tólf, hélt hann þaðan að kenna og prédika í borgum þeirra.
11:2b.MAT.011.002 Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði:
11:3b.MAT.011.003 "Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?"
11:4b.MAT.011.004 Jesús svaraði þeim: "Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið:
11:5b.MAT.011.005 Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp, og fátækum er flutt fagnaðarerindi.
11:6b.MAT.011.006 Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér."
11:7b.MAT.011.007 Þegar þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: "Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?
11:8b.MAT.011.008 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga.
11:9b.MAT.011.009 Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.
11:10b.MAT.011.010 Hann er sá, sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.
11:11b.MAT.011.011 Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri.
11:12b.MAT.011.012 Frá dögum Jóhannesar skírara og til þessa er ríki himnanna ofríki beitt, og ofríkismenn vilja hremma það.
11:13b.MAT.011.013 Spámennirnir allir og lögmálið, allt fram að Jóhannesi, sögðu fyrir um þetta.
11:14b.MAT.011.014 Og ef þér viljið við því taka, þá er hann Elía sá, sem koma skyldi.
11:15b.MAT.011.015 Hver sem eyru hefur, hann heyri.
11:16b.MAT.011.016 Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum, sem á torgum sitja og kallast á:
11:17b.MAT.011.017 ,Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér syrgja.'
11:18b.MAT.011.018 Jóhannes kom, át hvorki né drakk, og menn segja: ,Hann hefur illan anda.'
11:19b.MAT.011.019 Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: ,Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra!' En spekin sannast af verkum sínum."
11:20b.MAT.011.020 Þá tók hann að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gjört flest kraftaverk sín, fyrir að hafa ekki gjört iðrun.
11:21b.MAT.011.021 "Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast í sekk og ösku.
11:22b.MAT.011.022 En ég segi ykkur: Týrus og Sídon mun bærilegra á dómsdegi en ykkur.
11:23b.MAT.011.023 Og þú Kapernaum. Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. Ef gjörst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gjörðust í þér, þá stæði hún enn í dag.
11:24b.MAT.011.024 En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér."
11:25b.MAT.011.025 Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: "Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum.
11:26b.MAT.011.026 Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
11:27b.MAT.011.027 Allt er mér falið af föður mínum, og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.
11:28b.MAT.011.028 Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.
11:29b.MAT.011.029 Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.
11:30b.MAT.011.030 Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt."
12
12:1b.MAT.012.001 Um þessar mundir fór Jesús um sáðlönd á hvíldardegi. Lærisveinar hans kenndu hungurs og tóku að tína kornöx og eta.
12:2b.MAT.012.002 Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við hann: "Lít á, lærisveinar þínir gjöra það, sem ekki er leyft að gjöra á hvíldardegi."
12:3b.MAT.012.003 Hann svaraði þeim: "Hafið þér eigi lesið, hvað Davíð gjörði, þegar hann hungraði og menn hans?
12:4b.MAT.012.004 Hann fór inn í Guðs hús, og þeir átu skoðunarbrauðin, sem hvorki hann né menn hans og engir nema prestarnir máttu eta.
12:5b.MAT.012.005 Eða hafið þér ekki lesið í lögmálinu, að prestar vanhelga hvíldardaginn í musterinu á hvíldardögum, og eru þó án saka?
12:6b.MAT.012.006 En ég segi yður: Hér er meira en musterið.
12:7b.MAT.012.007 Ef þér hefðuð skilið, hvað felst í orðunum: ,Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir,' munduð þér ekki hafa sakfellt saklausa menn.
12:8b.MAT.012.008 Því að Mannssonurinn er herra hvíldardagsins."
12:9b.MAT.012.009 Hann fór þaðan og kom í samkundu þeirra.
12:10b.MAT.012.010 Þar var maður með visna hönd. Og þeir spurðu Jesú: "Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi?" Þeir hugðust kæra hann.
12:11b.MAT.012.011 Hann svarar þeim: "Nú á einhver yðar eina sauðkind, og hún fellur í gryfju á hvíldardegi. Mundi hann ekki taka hana og draga upp úr?
12:12b.MAT.012.012 Hve miklu er þó maðurinn sauðkindinni fremri! Það er því leyfilegt að gjöra góðverk á hvíldardegi."
12:13b.MAT.012.013 Síðan segir hann við manninn: "Réttu fram hönd þína." Hann rétti fram höndina, og hún varð heil sem hin.
12:14b.MAT.012.014 Þá gengu farísearnir út og tóku saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans.
12:15b.MAT.012.015 Þegar Jesús varð þess vís, fór hann þaðan. Margir fylgdu honum, og alla læknaði hann.
12:16b.MAT.012.016 En hann lagði ríkt á við þá, að þeir gjörðu hann eigi kunnan.
12:17b.MAT.012.017 Þannig rættist það, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns:
12:18b.MAT.012.018 Sjá þjón minn, sem ég hef útvalið, minn elskaða, sem sál mín hefur þóknun á. Ég mun láta anda minn koma yfir hann, og hann mun boða þjóðunum rétt.
12:19b.MAT.012.019 Eigi mun hann þrátta né hrópa, og eigi mun raust hans heyrast á strætum.
12:20b.MAT.012.020 Brákaðan reyr brýtur hann ekki, og rjúkandi hörkveik mun hann ekki slökkva, uns hann hefur leitt réttinn til sigurs.
12:21b.MAT.012.021 Á nafn hans munu þjóðirnar vona.
12:22b.MAT.012.022 Þá var færður til hans maður haldinn illum anda, blindur og mállaus. Hann læknaði hann, svo að hinn dumbi gat talað og séð.
12:23b.MAT.012.023 Allt fólkið varð furðu lostið og sagði: "Hann er þó ekki sonur Davíðs?"
12:24b.MAT.012.024 Þegar farísear heyrðu það, sögðu þeir: "Þessi rekur ekki út illa anda nema með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda."
12:25b.MAT.012.025 En Jesús vissi hugsanir þeirra og sagði við þá: "Hvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykkt, leggst í auðn, og hver sú borg eða heimili, sem er sjálfu sér sundurþykkt, fær ekki staðist.
12:26b.MAT.012.026 Ef Satan rekur Satan út, er hann sjálfum sér sundurþykkur. Hvernig fær ríki hans þá staðist?
12:27b.MAT.012.027 Og ef ég rek illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar.
12:28b.MAT.012.028 En ef ég rek illu andana út með Guðs anda, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.
12:29b.MAT.012.029 Eða hvernig fær nokkur brotist inn í hús hins sterka og rænt föngum hans, nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.
12:30b.MAT.012.030 Hver sem er ekki með mér, er á móti mér, og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir.
12:31b.MAT.012.031 Þess vegna segi ég yður: Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin, en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið.
12:32b.MAT.012.032 Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum, verður það fyrirgefið, en þeim sem mælir gegn heilögum anda, verður ekki fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né í hinum komanda.
12:33b.MAT.012.033 Annaðhvort er tréð gott og ávöxturinn góður eða tréð vont og ávöxturinn vondur. Því af ávextinum þekkist tréð.
12:34b.MAT.012.034 Þér nöðru kyn, hvernig getið þér, sem eruð vondir, talað gott? Af gnægð hjartans mælir munnurinn.
12:35b.MAT.012.035 Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði, en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði.
12:36b.MAT.012.036 En ég segi yður: Hvert ónytjuorð, sem menn mæla, munu þeir verða að svara fyrir á dómsdegi.
12:37b.MAT.012.037 Því af orðum þínum muntu sýknaður, og af orðum þínum muntu sakfelldur verða."
12:38b.MAT.012.038 Þá sögðu nokkrir fræðimenn og farísear við hann: "Meistari, vér viljum sjá þig gjöra tákn."
12:39b.MAT.012.039 Hann svaraði þeim: "Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar spámanns.
12:40b.MAT.012.040 Jónas var í kviði stórhvelisins þrjá daga og þrjár nætur, og eins mun Mannssonurinn vera þrjá daga og þrjár nætur í skauti jarðar.
12:41b.MAT.012.041 Nínívemenn munu koma fram í dóminum ásamt kynslóð þessari og sakfella hana, því að þeir gjörðu iðrun við prédikun Jónasar, og hér er meira en Jónas.
12:42b.MAT.012.042 Drottning Suðurlanda mun rísa upp í dóminum ásamt þessari kynslóð og sakfella hana, því að hún kom frá endimörkum jarðar að heyra speki Salómons, og hér er meira en Salómon.
12:43b.MAT.012.043 Þegar óhreinn andi fer út af manni, reikar hann um eyðihrjóstur og leitar hælis, en finnur ekki.
12:44b.MAT.012.044 Þá segir hann: ,Ég vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem ég fór.' Og er hann kemur og finnur það tómt, sópað og prýtt,
12:45b.MAT.012.045 fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri, og þeir fara inn og setjast þar að, og verður svo hlutur þess manns verri eftir en áður. Eins mun fara fyrir þessari vondu kynslóð."
12:46b.MAT.012.046 Meðan hann var enn að tala við fólkið kom móðir hans og bræður. Þau stóðu úti og vildu tala við hann.
12:47b.MAT.012.047 Einhver sagði við hann: "Móðir þín og bræður standa hér úti og vilja tala við þig."
12:48b.MAT.012.048 Jesús svaraði þeim, er við hann mælti: "Hver er móðir mín, og hverjir eru bræður mínir?"
12:49b.MAT.012.049 Og hann rétti út höndina yfir lærisveina sína og sagði: "Hér er móðir mín og bræður mínir.
12:50b.MAT.012.050 Hver sem gjörir vilja föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir."
13
13:1b.MAT.013.001 Sama dag gekk Jesús að heiman og settist við vatnið.
13:2b.MAT.013.002 Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum, að hann varð að stíga í bát og sitja þar. En allt fólkið stóð á ströndinni.
13:3b.MAT.013.003 Hann talaði margt til þeirra í dæmisögum. Hann sagði: "Sáðmaður gekk út að sá,
13:4b.MAT.013.004 og þá er hann sáði, féll sumt hjá götunni, og fuglar komu og átu það upp.
13:5b.MAT.013.005 Sumt féll í grýtta jörð, þar sem var lítill jarðvegur, og það rann skjótt upp, því það hafði ekki djúpa jörð.
13:6b.MAT.013.006 Þegar sól hækkaði, visnaði það, og sökum þess að það hafði ekki rætur, skrælnaði það.
13:7b.MAT.013.007 Sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu og kæfðu það.
13:8b.MAT.013.008 En sumt féll í góða jörð og bar ávöxt, sumt hundraðfaldan, sumt sextugfaldan og sumt þrítugfaldan.
13:9b.MAT.013.009 Hver sem eyru hefur, hann heyri."
13:10b.MAT.013.010 Þá komu lærisveinarnir til hans og spurðu: "Hvers vegna talar þú til þeirra í dæmisögum?"
13:11b.MAT.013.011 Hann svaraði: "Yður er gefið að þekkja leynda dóma himnaríkis, hinum er það ekki gefið.
13:12b.MAT.013.012 Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og hann mun hafa gnægð, en frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur.
13:13b.MAT.013.013 Þess vegna tala ég til þeirra í dæmisögum, að sjáandi sjá þeir ekki og heyrandi heyra þeir ekki né skilja.
13:14b.MAT.013.014 Á þeim rætist spádómur Jesaja: Með eyrum munuð þér heyra og alls ekki skilja, og sjáandi munuð þér horfa og ekkert sjá.
13:15b.MAT.013.015 Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið, og illa heyra þeir með eyrum sínum, og augunum hafa þeir lokað, svo að þeir sjái ekki með augunum né heyri með eyrunum og skilji með hjartanu og snúi sér, og ég lækni þá.
13:16b.MAT.013.016 En sæl eru augu yðar, að þau sjá, og eyru yðar, að þau heyra.
13:17b.MAT.013.017 Sannlega segi ég yður: Margir spámenn og réttlátir þráðu að sjá það, sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það, sem þér heyrið, en heyrðu það ekki.
13:18b.MAT.013.018 Heyrið þá hvað dæmisagan um sáðmanninn merkir:
13:19b.MAT.013.019 Þegar einhver heyrir orðið um ríkið og skilur ekki, þá kemur hinn vondi og rænir því, sem sáð var í hjarta hans. Það sem sáð var við götuna, merkir þetta.
13:20b.MAT.013.020 Það sem sáð var í grýtta jörð, merkir þann, sem tekur orðinu með fögnuði, um leið og hann heyrir það,
13:21b.MAT.013.021 en hefur enga rótfestu. Hann er hvikull, og er þrenging verður eða ofsókn vegna orðsins, bregst hann þegar.
13:22b.MAT.013.022 Það er sáð var meðal þyrna, merkir þann, sem heyrir orðið, en áhyggjur heimsins og tál auðæfanna kefja orðið, svo það ber engan ávöxt.
13:23b.MAT.013.023 En það er sáð var í góða jörð, merkir þann, sem heyrir orðið og skilur það. Hann er sá, sem ber ávöxt og gefur af sér hundraðfalt, sextugfalt eða þrítugfalt."
13:24b.MAT.013.024 Aðra dæmisögu sagði hann þeim: "Líkt er um himnaríki og mann, er sáði góðu sæði í akur sinn.
13:25b.MAT.013.025 En er menn voru í svefni, kom óvinur hans, sáði illgresi meðal hveitisins og fór síðan.
13:26b.MAT.013.026 Þegar sæðið spratt upp og tók að bera ávöxt, kom illgresið og í ljós.
13:27b.MAT.013.027 Þá komu þjónar húsbóndans til hans og sögðu við hann: ,Herra, sáðir þú ekki góðu sæði í akur þinn? Hvaðan kemur illgresið?'
13:28b.MAT.013.028 Hann svaraði þeim: ,Þetta hefur einhver óvinur gjört.' Þjónarnir sögðu við hann: ,Viltu, að vér förum og tínum það?'
13:29b.MAT.013.029 Hann sagði: ,Nei, með því að tína illgresið, gætuð þér slitið upp hveitið um leið.
13:30b.MAT.013.030 Látið hvort tveggja vaxa saman fram að kornskurði. Þegar komin er kornskurðartíð, mun ég segja við kornskurðarmenn: Safnið fyrst illgresinu og bindið í bundin til að brenna því, en hirðið hveitið í hlöðu mína.'"
13:31b.MAT.013.031 Aðra dæmisögu sagði hann þeim: "Líkt er himnaríki mustarðskorni, sem maður tók og sáði í akur sinn.
13:32b.MAT.013.032 Smæst er það allra sáðkorna, en nær það vex, er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess."
13:33b.MAT.013.033 Aðra dæmisögu sagði hann þeim: "Líkt er himnaríki súrdeigi, er kona tók og fól í þrem mælum mjöls, uns það sýrðist allt."
13:34b.MAT.013.034 Þetta allt talaði Jesús í dæmisögum til fólksins, og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra.
13:35b.MAT.013.035 Það átti að rætast, sem sagt er fyrir munn spámannsins: Ég mun opna munn minn í dæmisögum, mæla fram það, sem hulið var frá grundvöllun heims.
13:36b.MAT.013.036 Þá skildi hann við mannfjöldann og fór inn. Lærisveinar hans komu til hans og sögðu: "Skýrðu fyrir oss dæmisöguna um illgresið á akrinum."
13:37b.MAT.013.037 Hann mælti: "Sá er sáir góða sæðinu, er Mannssonurinn,
13:38b.MAT.013.038 akurinn er heimurinn, góða sæðið merkir börn ríkisins, en illgresið börn hins vonda.
13:39b.MAT.013.039 Óvinurinn, sem sáði því, er djöfullinn. Kornskurðurinn er endir veraldar og kornskurðarmennirnir englar.
13:40b.MAT.013.040 Eins og illgresinu er safnað og brennt í eldi, þannig verður við endi veraldar.
13:41b.MAT.013.041 Mannssonurinn mun senda engla sína, og þeir munu safna úr ríki hans öllum, sem hneykslunum valda og ranglæti fremja,
13:42b.MAT.013.042 og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna.
13:43b.MAT.013.043 Þá munu réttlátir skína sem sól í ríki föður þeirra. Hver sem eyru hefur, hann heyri.
13:44b.MAT.013.044 Líkt er himnaríki fjársjóði, sem fólginn var í jörðu og maður fann og leyndi. Í fögnuði sínum fór hann, seldi allar eigur sínar og keypti akur þann.
13:45b.MAT.013.045 Enn er himnaríki líkt kaupmanni, sem leitaði að fögrum perlum.
13:46b.MAT.013.046 Og er hann fann eina dýrmæta perlu, fór hann, seldi allt, sem hann átti, og keypti hana.
13:47b.MAT.013.047 Enn er himnaríki líkt neti, sem lagt er í sjó og safnar alls kyns fiski.
13:48b.MAT.013.048 Þegar það er fullt, draga menn það á land, setjast við og safna þeim góðu í ker, en kasta þeim óætu burt.
13:49b.MAT.013.049 Svo mun verða, þegar veröld endar: Englarnir munu fara til, skilja vonda menn frá réttlátum
13:50b.MAT.013.050 og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna.
13:51b.MAT.013.051 Hafið þér skilið allt þetta?" "Já," svöruðu þeir.
13:52b.MAT.013.052 Hann sagði við þá: "Þannig er sérhver fræðimaður, sem orðinn er lærisveinn himnaríkis, líkur húsföður, sem ber fram nýtt og gamalt úr forðabúri sínu."
13:53b.MAT.013.053 Þegar Jesús hafði lokið þessum dæmisögum, hélt hann þaðan.
13:54b.MAT.013.054 Hann kom í ættborg sína og tók að kenna þeim í samkundu þeirra. Þeir undruðust stórum og sögðu: "Hvaðan kemur honum þessi speki og kraftaverkin?
13:55b.MAT.013.055 Er þetta ekki sonur smiðsins? Heitir ekki móðir hans María og bræður hans Jakob, Jósef, Símon og Júdas?
13:56b.MAT.013.056 Og eru ekki systur hans allar hjá oss? Hvaðan kemur honum þá allt þetta?"
13:57b.MAT.013.057 Og þeir hneyksluðust á honum. En Jesús sagði við þá: "Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu og með heimamönnum."
13:58b.MAT.013.058 Og hann gjörði þar ekki mörg kraftaverk sökum vantrúar þeirra.
14
14:1b.MAT.014.001 Um þessar mundir spyr Heródes fjórðungsstjóri tíðindin af Jesú.
14:2b.MAT.014.002 Og hann segir við sveina sína: "Þetta er Jóhannes skírari, hann er risinn frá dauðum, þess vegna eru kraftarnir að verki í honum."
14:3b.MAT.014.003 En Heródes hafði látið taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar bróður síns,
14:4b.MAT.014.004 því Jóhannes hafði sagt við hann: "Þú mátt ekki eiga hana."
14:5b.MAT.014.005 Heródes vildi deyða hann, en óttaðist lýðinn, þar eð menn töldu hann vera spámann.
14:6b.MAT.014.006 En á afmælisdegi Heródesar dansaði dóttir Heródíasar dans frammi fyrir gestunum og hreif Heródes svo,
14:7b.MAT.014.007 að hann sór þess eið að veita henni hvað sem hún bæði um.
14:8b.MAT.014.008 Að undirlagi móður sinnar segir hún: "Gef mér hér á fati höfuð Jóhannesar skírara."
14:9b.MAT.014.009 Konungur varð hryggur við, en vegna eiðsins og gesta sinna bauð hann að veita henni þetta.
14:10b.MAT.014.010 Hann sendi í fangelsið og lét hálshöggva Jóhannes þar.
14:11b.MAT.014.011 Höfuð hans var borið inn á fati og fengið stúlkunni, en hún færði móður sinni.
14:12b.MAT.014.012 Lærisveinar hans komu, tóku líkið og greftruðu, fóru síðan og sögðu Jesú.
14:13b.MAT.014.013 Þegar Jesús heyrði þetta, fór hann þaðan á báti á óbyggðan stað og vildi vera einn. En fólkið frétti það og fór gangandi á eftir honum úr borgunum.
14:14b.MAT.014.014 Þegar Jesús steig á land, sá hann þar mikinn mannfjölda, og hann kenndi í brjósti um þá og læknaði þá af þeim, er sjúkir voru.
14:15b.MAT.014.015 Um kvöldið komu lærisveinarnir að máli við hann og sögðu: "Hér er engin mannabyggð og dagur liðinn. Lát nú fólkið fara, að þeir geti náð til þorpanna og keypt sér vistir."
14:16b.MAT.014.016 Jesús svaraði þeim: "Ekki þurfa þeir að fara, gefið þeim sjálfir að eta."
14:17b.MAT.014.017 Þeir svara honum: "Vér höfum hér ekki nema fimm brauð og tvo fiska."
14:18b.MAT.014.018 Hann segir: "Færið mér það hingað."
14:19b.MAT.014.019 Og hann bauð fólkinu að setjast í grasið. Þá tók hann brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum, en þeir fólkinu.
14:20b.MAT.014.020 Og þeir neyttu allir og urðu mettir. Og þeir tóku saman brauðbitana, er af gengu, tólf körfur fullar.
14:21b.MAT.014.021 En þeir, sem neytt höfðu, voru um fimm þúsund karlmenn, auk kvenna og barna.
14:22b.MAT.014.022 Tafarlaust knúði hann lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan sér yfir um, meðan hann sendi fólkið brott.
14:23b.MAT.014.023 Og er hann hafði látið fólkið fara, gekk hann til fjalls að biðjast fyrir í einrúmi. Þegar kvöld var komið, var hann þar einn.
14:24b.MAT.014.024 En báturinn var þegar kominn langt frá landi og lá undir áföllum, því að vindur var á móti.
14:25b.MAT.014.025 En er langt var liðið nætur kom hann til þeirra, gangandi á vatninu.
14:26b.MAT.014.026 Þegar lærisveinarnir sáu hann ganga á vatninu, varð þeim bilt við. Þeir sögðu: "Þetta er vofa," og æptu af hræðslu.
14:27b.MAT.014.027 En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: "Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir."
14:28b.MAT.014.028 Pétur svaraði honum: "Ef það ert þú, herra, þá bjóð mér að koma til þín á vatninu."
14:29b.MAT.014.029 Jesús svaraði: "Kom þú!" Og Pétur sté úr bátnum og gekk á vatninu til hans.
14:30b.MAT.014.030 En sem hann sá rokið, varð hann hræddur og tók að sökkva. Þá kallaði hann: "Herra, bjarga þú mér!"
14:31b.MAT.014.031 Jesús rétti þegar út höndina, tók í hann og sagði: "Þú trúlitli, hví efaðist þú?"
14:32b.MAT.014.032 Þeir stigu í bátinn, og þá lægði vindinn.
14:33b.MAT.014.033 En þeir sem í bátnum voru, tilbáðu hann og sögðu: "Sannarlega ert þú sonur Guðs."
14:34b.MAT.014.034 Þegar þeir höfðu náð yfir um, komu þeir að landi við Genesaret.
14:35b.MAT.014.035 Fólkið á þeim stað þekkti hann og sendi boð um allt nágrennið, og menn færðu til hans alla þá, er sjúkir voru.
14:36b.MAT.014.036 Þeir báðu hann að mega rétt snerta fald klæða hans, og allir, sem snertu hann, urðu alheilir.
15
15:1b.MAT.015.001 Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu:
15:2b.MAT.015.002 "Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir taka ekki handlaugar, áður en þeir neyta matar."
15:3b.MAT.015.003 Hann svaraði þeim: "Hvers vegna brjótið þér sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar yðar?
15:4b.MAT.015.004 Guð hefur sagt: ,Heiðra föður þinn og móður,' og: ,Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.'
15:5b.MAT.015.005 En þér segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: ,Það sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er musterisfé,'
15:6b.MAT.015.006 hann á ekki að heiðra föður sinn [eða móður]. Þér ógildið orð Guðs með erfikenning yðar.
15:7b.MAT.015.007 Hræsnarar, sannspár var Jesaja um yður, er hann segir:
15:8b.MAT.015.008 Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.
15:9b.MAT.015.009 Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar."
15:10b.MAT.015.010 Og hann kallaði til sín mannfjöldann og sagði: "Heyrið og skiljið.
15:11b.MAT.015.011 Ekki saurgar það manninn, sem inn fer í munninn, hitt saurgar manninn, sem út fer af munni."
15:12b.MAT.015.012 Þá komu lærisveinar hans og sögðu við hann: "Veistu, að farísearnir hneyksluðust, þegar þeir heyrðu orð þín?"
15:13b.MAT.015.013 Hann svaraði: "Sérhver jurt, sem faðir minn himneskur hefur eigi gróðursett, mun upprætt verða.
15:14b.MAT.015.014 Látið þá eiga sig! Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju."
15:15b.MAT.015.015 Þá sagði Pétur við hann: "Skýrðu fyrir oss líkinguna."
15:16b.MAT.015.016 Hann svaraði: "Eruð þér líka skilningslausir ennþá?
15:17b.MAT.015.017 Skiljið þér ekki, að allt sem inn kemur í munninn, fer í magann og lendir síðan í safnþrónni?
15:18b.MAT.015.018 En það sem út fer af munni, kemur frá hjartanu. Og slíkt saurgar manninn.
15:19b.MAT.015.019 Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi.
15:20b.MAT.015.020 Þetta er það, sem saurgar manninn. En að eta með óþvegnum höndum saurgar engan mann."
15:21b.MAT.015.021 Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar.
15:22b.MAT.015.022 Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: "Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda."
15:23b.MAT.015.023 En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: "Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum."
15:24b.MAT.015.024 Hann mælti: "Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt."
15:25b.MAT.015.025 Konan kom, laut honum og sagði: "Herra, hjálpa þú mér!"
15:26b.MAT.015.026 Hann svaraði: "Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana."
15:27b.MAT.015.027 Hún sagði: "Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra."
15:28b.MAT.015.028 Þá mælti Jesús við hana: "Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt." Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.
15:29b.MAT.015.029 Þaðan fór Jesús og kom að Galíleuvatni. Og hann gekk upp á fjall og settist þar.
15:30b.MAT.015.030 Menn komu til hans hópum saman og höfðu með sér halta menn og blinda, fatlaða, mállausa og marga aðra og lögðu þá fyrir fætur hans, og hann læknaði þá.
15:31b.MAT.015.031 Fólkið undraðist, þegar það sá mállausa mæla, fatlaða heila, halta ganga og blinda sjá. Og þeir lofuðu Guð Ísraels.
15:32b.MAT.015.032 Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði: "Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar. Ég vil ekki láta þá fara fastandi frá mér, þeir gætu örmagnast á leiðinni."
15:33b.MAT.015.033 Lærisveinarnir sögðu: "Hvar fáum vér nóg brauð til að metta allt þetta fólk hér í óbyggðum?"
15:34b.MAT.015.034 Jesús spyr: "Hve mörg brauð hafið þér?" Þeir svara: "Sjö, og fáeina smáfiska."
15:35b.MAT.015.035 Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina,
15:36b.MAT.015.036 tók brauðin sjö og fiskana, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinunum, en lærisveinarnir fólkinu.
15:37b.MAT.015.037 Allir neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur fullar.
15:38b.MAT.015.038 En þeir, sem neytt höfðu, voru fjórar þúsundir karlmanna auk kvenna og barna.
15:39b.MAT.015.039 Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir.
16
16:1b.MAT.016.001 Þá komu farísear og saddúkear, vildu freista hans og báðu hann að sýna sér tákn af himni.
16:2b.MAT.016.002 Hann svaraði þeim: "Að kvöldi segið þér: ,Það verður góðviðri, því að roði er á lofti.'
16:3b.MAT.016.003 Og að morgni: ,Illviðri í dag, himinninn er rauður og þungbúinn.' Útlit loftsins kunnið þér að ráða, en ekki tákn tímanna.
16:4b.MAT.016.004 Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar." Síðan skildi hann við þá og fór.
16:5b.MAT.016.005 Þegar lærisveinarnir fóru yfir um vatnið, höfðu þeir gleymt að taka með sér brauð.
16:6b.MAT.016.006 Jesús sagði við þá: "Gætið yðar, varist súrdeig farísea og saddúkea."
16:7b.MAT.016.007 En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki tekið brauð.
16:8b.MAT.016.008 Jesús varð þess vís og sagði: "Hvað eruð þér að tala um það, trúlitlir menn, að þér hafið ekki brauð?
16:9b.MAT.016.009 Skynjið þér ekki enn? Minnist þér ekki brauðanna fimm handa fimm þúsundum og hve margar körfur þér tókuð saman?
16:10b.MAT.016.010 Eða brauðanna sjö handa fjórum þúsundum og hve margar körfur þér tókuð saman?
16:11b.MAT.016.011 Hvernig má það vera, að þér skynjið ekki, að ég var ekki að tala um brauð við yður. Varist súrdeig farísea og saddúkea."
16:12b.MAT.016.012 Þá skildu þeir, að hann hafði ekki talað um að varast súrdeig í brauði, heldur kenningu farísea og saddúkea.
16:13b.MAT.016.013 Þegar Jesús kom í byggðir Sesareu Filippí, spurði hann lærisveina sína: "Hvern segja menn Mannssoninn vera?"
16:14b.MAT.016.014 Þeir svöruðu: "Sumir Jóhannes skírara, aðrir Elía og enn aðrir Jeremía eða einn af spámönnunum."
16:15b.MAT.016.015 Hann spyr: "En þér, hvern segið þér mig vera?"
16:16b.MAT.016.016 Símon Pétur svarar: "Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs."
16:17b.MAT.016.017 Þá segir Jesús við hann: "Sæll ert þú, Símon Jónasson! Hold og blóð hefur ekki opinberað þér þetta, heldur faðir minn á himnum.
16:18b.MAT.016.018 Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast.
16:19b.MAT.016.019 Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum."
16:20b.MAT.016.020 Þá lagði hann ríkt á við lærisveinana að segja engum, að hann væri Kristur.
16:21b.MAT.016.021 Upp frá þessu tók Jesús að sýna lærisveinum sínum fram á, að hann ætti að fara til Jerúsalem, líða þar margt af hendi öldunga, æðstu presta og fræðimanna og verða líflátinn, en rísa upp á þriðja degi.
16:22b.MAT.016.022 En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann: "Guð náði þig, herra, þetta má aldrei fyrir þig koma."
16:23b.MAT.016.023 Jesús sneri sér við og mælti til Péturs: "Vík frá mér, Satan, þú ert mér til ásteytingar, þú hugsar ekki um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er."
16:24b.MAT.016.024 Þá mælti Jesús við lærisveina sína: "Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér.
16:25b.MAT.016.025 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það.
16:26b.MAT.016.026 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?
16:27b.MAT.016.027 Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans.
16:28b.MAT.016.028 Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu."
17
17:1b.MAT.017.001 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman.
17:2b.MAT.017.002 Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól, og klæði hans urðu björt eins og ljós.
17:3b.MAT.017.003 Og Móse og Elía birtust þeim, og voru þeir á tali við hann.
17:4b.MAT.017.004 Pétur tók til máls og sagði við Jesú: "Herra, gott er, að vér erum hér. Ef þú vilt, skal ég gjöra hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina."
17:5b.MAT.017.005 Meðan hann var enn að tala, skyggði yfir þá bjart ský, og rödd úr skýinu sagði: "Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!"
17:6b.MAT.017.006 Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta, féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög.
17:7b.MAT.017.007 Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: "Rísið upp, og óttist ekki."
17:8b.MAT.017.008 En er þeir hófu upp augu sín, sáu þeir engan nema Jesú einan.
17:9b.MAT.017.009 Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim og mælti: "Segið engum frá sýninni, fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum."
17:10b.MAT.017.010 Lærisveinarnir spurðu hann: "Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?"
17:11b.MAT.017.011 Hann svaraði: "Víst kemur Elía og færir allt í lag.
17:12b.MAT.017.012 En ég segi yður: Elía er þegar kominn, og menn þekktu hann ekki, heldur gjörðu honum allt sem þeir vildu. Eins mun og Mannssonurinn píslir þola af hendi þeirra."
17:13b.MAT.017.013 Þá skildu lærisveinarnir, að hann hafði talað við þá um Jóhannes skírara.
17:14b.MAT.017.014 Þegar þeir komu til fólksins, gekk til hans maður, féll á kné fyrir honum
17:15b.MAT.017.015 og sagði: "Herra, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann á eld og oft í vatn.
17:16b.MAT.017.016 Ég fór með hann til lærisveina þinna, en þeir gátu ekki læknað hann."
17:17b.MAT.017.017 Jesús svaraði: "Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann hingað til mín."
17:18b.MAT.017.018 Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninn varð heill frá þeirri stundu.
17:19b.MAT.017.019 Þá komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann einslega: "Hvers vegna gátum vér ekki rekið hann út?"
17:20b.MAT.017.020 Hann svaraði þeim: "Vegna þess að yður skortir trú. Sannlega segi ég yður: Ef þér hafið trú eins og mustarðskorn, getið þér sagt við fjall þetta: Flyt þig héðan og þangað, og það mun flytja sig. Ekkert verður yður um megn.
17:21b.MAT.017.021 [En þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn og föstu.]"
17:22b.MAT.017.022 Þegar þeir voru saman í Galíleu, sagði Jesús við þá: "Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur,
17:23b.MAT.017.023 og þeir munu lífláta hann, en á þriðja degi mun hann upp rísa." Þeir urðu mjög hryggir.
17:24b.MAT.017.024 Þá er þeir komu til Kapernaum, gengu menn þeir, sem heimta inn musterisgjaldið, til Péturs og spurðu: "Geldur meistari yðar eigi musterisgjaldið?"
17:25b.MAT.017.025 Hann kvað svo vera. En er hann kom inn, tók Jesús fyrr til máls og mælti: "Hvað líst þér, Símon? Af hverjum heimta konungar jarðarinnar toll eða skatt? Af börnum sínum eða vandalausum?"
17:26b.MAT.017.026 "Af vandalausum," sagði Pétur. Jesús mælti: "Þá eru börnin frjáls.
17:27b.MAT.017.027 En til þess vér hneykslum þá ekki, skaltu fara niður að vatni og renna öngli, taktu síðan fyrsta fiskinn, sem þú dregur, opna munn hans og muntu finna pening. Tak hann og greið þeim fyrir mig og þig."
18
18:1b.MAT.018.001 Á þeirri stundu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu: "Hver er mestur í himnaríki?"
18:2b.MAT.018.002 Hann kallaði til sín lítið barn, setti það meðal þeirra
18:3b.MAT.018.003 og sagði: "Sannlega segi ég yður: Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.
18:4b.MAT.018.004 Hver sem auðmýkir sjálfan sig eins og barn þetta, sá er mestur í himnaríki.
18:5b.MAT.018.005 Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér.
18:6b.MAT.018.006 En hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem á mig trúa, væri betra að vera sökkt í sjávardjúp með mylnustein hengdan um háls.
18:7b.MAT.018.007 Vei heiminum vegna ginninga hans. Hjá ginningum verður eigi komist, en vei þeim manni, sem veldur.
18:8b.MAT.018.008 Ef hönd þín eða fótur tælir þig til falls, þá sníð hann af og kasta frá þér. Betra er þér handarvana eða höltum inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og báða fætur og verða kastað í hinn eilífa eld.
18:9b.MAT.018.009 Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr og kasta frá þér. Betra er þér eineygðum inn að ganga til lífsins en hafa bæði augu og verða kastað í eldsvítið.
18:10b.MAT.018.010 Varist að forsmá nokkurn þessara smælingja. Ég segi yður, að englar þeirra á himnum sjá jafnan auglit míns himneska föður.
18:11b.MAT.018.011 [Því að Mannssonurinn er kominn að frelsa hið týnda.]
18:12b.MAT.018.012 Hvað virðist yður? Ef einhver á hundrað sauði og einn þeirra villist frá, skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í fjallinu og fer að leita þess, sem villtur er?
18:13b.MAT.018.013 Og auðnist honum að finna hann, þá segi ég yður með sanni, að hann fagnar meir yfir honum en þeim níutíu og níu, sem villtust ekki frá.
18:14b.MAT.018.014 Þannig er það eigi vilji yðar himneska föður, að nokkur þessara smælingja glatist.
18:15b.MAT.018.015 Ef bróðir þinn syndgar [gegn þér], skaltu fara og tala um fyrir honum, og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast, hefur þú unnið bróður þinn.
18:16b.MAT.018.016 En láti hann sér ekki segjast, skaltu taka með þér einn eða tvo, að ,hvert orð sé staðfest með framburði tveggja eða þriggja vitna.'
18:17b.MAT.018.017 Ef hann skeytir þeim ekki, þá seg það söfnuðinum, og skeyti hann ekki söfnuðinum heldur, þá sé hann þér sem heiðingi eða tollheimtumaður.
18:18b.MAT.018.018 Sannlega segi ég yður: Hvað sem þér bindið á jörðu, mun bundið á himni, og hvað sem þér leysið á jörðu, mun leyst á himni.
18:19b.MAT.018.019 Enn segi ég yður: Hverja þá bæn, sem tveir yðar verða einhuga um á jörðu, mun faðir minn á himnum veita þeim.
18:20b.MAT.018.020 Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra."
18:21b.MAT.018.021 Þá gekk Pétur til hans og spurði: "Herra, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum, ef hann misgjörir við mig? Svo sem sjö sinnum?"
18:22b.MAT.018.022 Jesús svaraði: "Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu sinnum sjö.
18:23b.MAT.018.023 Því að líkt er um himnaríki og konung, sem vildi láta þjóna sína gjöra skil.
18:24b.MAT.018.024 Hann hóf reikningsskilin, og var færður til hans maður, er skuldaði tíu þúsund talentur.
18:25b.MAT.018.025 Sá gat ekkert borgað, og bauð konungur þá, að hann skyldi seldur ásamt konu og börnum og öllu, sem hann átti, til lúkningar skuldinni.
18:26b.MAT.018.026 Þá féll þjónninn til fóta honum og sagði: ,Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér allt.'
18:27b.MAT.018.027 Og herra þjónsins kenndi í brjósti um hann, lét hann lausan og gaf honum upp skuldina.
18:28b.MAT.018.028 Þegar þjónn þessi kom út, hitti hann einn samþjón sinn, sem skuldaði honum hundrað denara. Hann greip hann, tók fyrir kverkar honum og sagði: ,Borga það, sem þú skuldar!'
18:29b.MAT.018.029 Samþjónn hans féll þá til fóta honum og bað hann: ,Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér.'
18:30b.MAT.018.030 En hann vildi ekki, heldur fór og lét varpa honum í fangelsi, uns hann hefði borgað skuldina.
18:31b.MAT.018.031 Þegar samþjónar hans sáu, hvað orðið var, urðu þeir mjög hryggir og sögðu herra sínum allt, sem gjörst hafði.
18:32b.MAT.018.032 Konungurinn kallar þá þjóninn fyrir sig og segir við hann: ,Illi þjónn, alla þessa skuld gaf ég þér upp, af því að þú baðst mig.
18:33b.MAT.018.033 Bar þér þá ekki einnig að miskunna samþjóni þínum, eins og ég miskunnaði þér?'
18:34b.MAT.018.034 Og konungur varð reiður og afhenti hann böðlunum, uns hann hefði goldið allt, sem hann skuldaði honum.
18:35b.MAT.018.035 Þannig mun og faðir minn himneskur gjöra við yður, nema hver og einn yðar fyrirgefi af hjarta bróður sínum."
19
19:1b.MAT.019.001 Þegar Jesús hafði mælt þessum orðum, fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar.
19:2b.MAT.019.002 Fjöldi manna fylgdi honum, og þar læknaði hann þá.
19:3b.MAT.019.003 Þá komu til hans farísear og vildu freista hans. Þeir spurðu: "Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?"
19:4b.MAT.019.004 Hann svaraði: "Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu
19:5b.MAT.019.005 og sagði: ,Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.'
19:6b.MAT.019.006 Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja."
19:7b.MAT.019.007 Þeir segja við hann: "Hvers vegna bauð þá Móse að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?"
19:8b.MAT.019.008 Hann svarar: "Vegna harðúðar hjartna yðar leyfði Móse yður að skilja við konur yðar, en frá upphafi var þetta eigi þannig.
19:9b.MAT.019.009 Ég segi yður: Sá sem skilur við konu sína nema sakir hórdóms og kvænist annarri, drýgir hór."
19:10b.MAT.019.010 Þá sögðu lærisveinar hans: "Fyrst svo er háttað stöðu karls gagnvart konu, þá er ekki vænlegt að kvænast."
19:11b.MAT.019.011 Hann svaraði þeim: "Þetta er ekki á allra færi, heldur þeirra einna, sem það er gefið.
19:12b.MAT.019.012 Sumir eru vanhæfir til hjúskapar frá móðurlífi, sumir eru vanhæfir gjörðir af manna völdum, sumir hafa sjálfir gjört sig vanhæfa vegna himnaríkis. Sá höndli, sem höndlað fær."
19:13b.MAT.019.013 Þá færðu menn til hans börn, að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim, en lærisveinar hans átöldu þá.
19:14b.MAT.019.014 En Jesús sagði: "Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er himnaríki."
19:15b.MAT.019.015 Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan.
19:16b.MAT.019.016 Þá kom til hans maður og spurði: "Meistari, hvað gott á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?"
19:17b.MAT.019.017 Jesús sagði við hann: "Hví spyr þú mig um hið góða? Einn er sá hinn góði. Ef þú vilt inn ganga til lífsins, þá haltu boðorðin."
19:18b.MAT.019.018 Hann spurði: "Hver?" Jesús sagði: "Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni,
19:19b.MAT.019.019 heiðra föður þinn og móður, og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig."
19:20b.MAT.019.020 Þá sagði ungi maðurinn: "Alls þessa hef ég gætt. Hvers er mér enn vant?"
19:21b.MAT.019.021 Jesús sagði við hann: "Ef þú vilt vera fullkominn, skaltu fara, selja eigur þínar og gefa fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan, og fylg mér."
19:22b.MAT.019.022 Þegar ungi maðurinn heyrði þessi orð, fór hann brott hryggur, enda átti hann miklar eignir.
19:23b.MAT.019.023 En Jesús sagði við lærisveina sína: "Sannlega segi ég yður: Torvelt verður auðmanni inn að ganga í himnaríki.
19:24b.MAT.019.024 Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki."
19:25b.MAT.019.025 Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta, urðu þeir steini lostnir og sögðu: "Hver getur þá orðið hólpinn?"
19:26b.MAT.019.026 Jesús horfði á þá og sagði: "Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en Guð megnar allt."
19:27b.MAT.019.027 Þá sagði Pétur við hann: "Vér yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum vér hljóta?"
19:28b.MAT.019.028 Jesús sagði við þá: "Sannlega segi ég yður: Þegar allt er orðið endurfætt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu, munuð þér, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.
19:29b.MAT.019.029 Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá margfalt aftur og öðlast eilíft líf.
19:30b.MAT.019.030 En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.
2
2:1b.MAT.002.001 Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs, komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem
2:2b.MAT.002.002 og sögðu: "Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? Vér sáum stjörnu hans renna upp og erum komnir að veita honum lotningu."
2:3b.MAT.002.003 Þegar Heródes heyrði þetta, varð hann skelkaður og öll Jerúsalem með honum.
2:4b.MAT.002.004 Og hann stefndi saman öllum æðstu prestum og fræðimönnum lýðsins og spurði þá: "Hvar á Kristur að fæðast?"
2:5b.MAT.002.005 Þeir svöruðu honum: "Í Betlehem í Júdeu. En þannig er ritað hjá spámanninum:
2:6b.MAT.002.006 Þú Betlehem, í landi Júda, ekki ertu síst meðal hefðarborga Júda. Því að höfðingi mun frá þér koma, sem verður hirðir lýðs míns, Ísraels."
2:7b.MAT.002.007 Þá kallaði Heródes vitringana til sín á laun og grófst eftir því hjá þeim, nær stjarnan hefði birst.
2:8b.MAT.002.008 Hann sendi þá síðan til Betlehem og sagði: "Farið og spyrjist vandlega fyrir um barnið, og er þér finnið það látið mig vita, til þess að ég geti einnig komið og veitt því lotningu."
2:9b.MAT.002.009 Þeir hlýddu á konung og fóru. Og stjarnan, sem þeir sáu austur þar, fór fyrir þeim, uns hana bar þar yfir, sem barnið var.
2:10b.MAT.002.010 Þegar þeir sáu stjörnuna, glöddust þeir harla mjög,
2:11b.MAT.002.011 þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu. Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og færðu því gjafir, gull, reykelsi og myrru.
2:12b.MAT.002.012 En þar sem þeir fengu bendingu í draumi að snúa ekki aftur til Heródesar, fóru þeir aðra leið heim í land sitt.
2:13b.MAT.002.013 Þegar þeir voru farnir, þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: "Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera, uns ég segi þér, því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því."
2:14b.MAT.002.014 Hann vaknaði, tók barnið og móður þess um nóttina og fór til Egyptalands.
2:15b.MAT.002.015 Þar dvaldist hann þangað til Heródes var allur. Það sem Drottinn sagði fyrir munn spámannsins, skyldi rætast: "Frá Egyptalandi kallaði ég son minn."
2:16b.MAT.002.016 Þá sá Heródes, að vitringarnir höfðu gabbað hann, og varð afar reiður, sendi menn og lét myrða öll sveinbörn í Betlehem og nágrenni hennar, tvævetur og yngri, en það svaraði þeim tíma, er hann hafði komist að hjá vitringunum.
2:17b.MAT.002.017 Nú rættist það, sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns:
2:18b.MAT.002.018 Rödd heyrðist í Rama, grátur og kveinstafir miklir, Rakel grætur börnin sín og vill ekki huggast láta, því að þau eru ekki framar lífs.
2:19b.MAT.002.019 Þegar Heródes var dáinn, þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi
2:20b.MAT.002.020 og segir: "Rís upp, tak barnið og móður þess og far til Ísraelslands. Nú eru þeir dánir, sem sátu um líf barnsins."
2:21b.MAT.002.021 Hann tók sig upp og fór til Ísraelslands með barnið og móður þess.
2:22b.MAT.002.022 En þá er hann heyrði, að Arkelás réð ríkjum í Júdeu í stað Heródesar föður síns, óttaðist hann að fara þangað, og hélt til Galíleubyggða eftir bendingu í draumi.
2:23b.MAT.002.023 Þar settist hann að í borg, sem heitir Nasaret, en það átti að rætast, sem sagt var fyrir munn spámannanna: "Nasarei skal hann kallast."
20
20:1b.MAT.020.001 Líkt er um himnaríki og húsbónda einn, sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn.
20:2b.MAT.020.002 Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun og sendi þá í víngarð sinn.
20:3b.MAT.020.003 Síðan gekk hann út um dagmál og sá aðra menn standa á torginu iðjulausa.
20:4b.MAT.020.004 Hann sagði við þá: ,Farið þér einnig í víngarðinn, og ég mun greiða yður sanngjörn laun.'
20:5b.MAT.020.005 Þeir fóru. Aftur gekk hann út um hádegi og nón og gjörði sem fyrr.
20:6b.MAT.020.006 Og síðdegis fór hann enn út og sá menn standa þar. Hann spyr þá: ,Hví hímið þér hér iðjulausir allan daginn?'
20:7b.MAT.020.007 Þeir svara: ,Enginn hefur ráðið oss.' Hann segir við þá: ,Farið þér einnig í víngarðinn.'
20:8b.MAT.020.008 Þegar kvöld var komið, sagði eigandi víngarðsins við verkstjóra sinn: ,Kalla þú á verkamennina og greið þeim kaupið. Þú skalt byrja á þeim síðustu og enda á þeim fyrstu.'
20:9b.MAT.020.009 Nú komu þeir, sem ráðnir voru síðdegis, og fengu hver sinn denar.
20:10b.MAT.020.010 Þegar þeir fyrstu komu, bjuggust þeir við að fá meira, en fengu sinn denarinn hver.
20:11b.MAT.020.011 Þeir tóku við honum og fóru að mögla gegn húsbónda sínum.
20:12b.MAT.020.012 Þeir sögðu: ,Þessir síðustu hafa unnið aðeins eina stund, og þú gjörir þá jafna oss, er höfum borið hita og þunga dagsins.'
20:13b.MAT.020.013 Hann sagði þá við einn þeirra: ,Vinur, ekki gjöri ég þér rangt til, sömdum við ekki um einn denar?
20:14b.MAT.020.014 Taktu þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil gjalda þessum síðasta eins og þér.
20:15b.MAT.020.015 Er ég ekki sjálfur fjár míns ráðandi? Eða sérðu ofsjónum yfir því, að ég er góðgjarn?'
20:16b.MAT.020.016 Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir."
20:17b.MAT.020.017 Jesús hélt nú upp til Jerúsalem, og á leiðinni tók hann þá tólf afsíðis og sagði við þá:
20:18b.MAT.020.018 "Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða
20:19b.MAT.020.019 og framselja hann heiðingjum, að þeir hæði hann, húðstrýki og krossfesti. En á þriðja degi mun hann upp rísa."
20:20b.MAT.020.020 Þá kom til hans móðir þeirra Sebedeussona með sonum sínum, laut honum og vildi biðja hann bónar.
20:21b.MAT.020.021 Hann spyr hana: "Hvað viltu?" Hún segir: "Lát þú þessa tvo syni mína sitja þér við hlið í ríki þínu, annan til hægri handar þér og hinn til vinstri."
20:22b.MAT.020.022 Jesús svarar: "Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég á að drekka?" Þeir segja við hann: "Það getum við."
20:23b.MAT.020.023 Hann segir við þá: "Kaleik minn munuð þið drekka. En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið af föður mínum."
20:24b.MAT.020.024 Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við bræðurna tvo.
20:25b.MAT.020.025 En Jesús kallaði þá til sín og mælti: "Þér vitið, að þeir, sem ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu.
20:26b.MAT.020.026 En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar.
20:27b.MAT.020.027 Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé þræll yðar,
20:28b.MAT.020.028 eins og Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga."
20:29b.MAT.020.029 Þegar þeir fóru frá Jeríkó, fylgdi honum mikill mannfjöldi.
20:30b.MAT.020.030 Tveir menn blindir sátu þar við veginn. Þegar þeir heyrðu, að þar færi Jesús, hrópuðu þeir: "Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!"
20:31b.MAT.020.031 Fólkið hastaði á þá, að þeir þegðu, en þeir hrópuðu því meir: "Herra, miskunna þú okkur, sonur Davíðs!"
20:32b.MAT.020.032 Jesús nam staðar, kallaði á þá og sagði: "Hvað viljið þið að ég gjöri fyrir ykkur?"
20:33b.MAT.020.033 Þeir mæltu: "Herra, lát augu okkar opnast."
20:34b.MAT.020.034 Jesús kenndi í brjósti um þá og snart augu þeirra. Jafnskjótt fengu þeir sjónina og fylgdu honum.
21
21:1b.MAT.021.001 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið, sendi Jesús tvo lærisveina
21:2b.MAT.021.002 og sagði við þá: "Farið í þorpið hér framundan ykkur, og jafnskjótt munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér.
21:3b.MAT.021.003 Ef einhver hefur orð um, þá svarið: ,Herrann þarf þeirra við,' og mun hann jafnskjótt senda þau."
21:4b.MAT.021.004 Þetta varð, svo að rættist það, sem sagt er fyrir munn spámannsins:
21:5b.MAT.021.005 Segið dótturinni Síon: Sjá, konungur þinn kemur til þín, hógvær er hann og ríður asna, fola undan áburðargrip.
21:6b.MAT.021.006 Lærisveinarnir fóru og gjörðu sem Jesús hafði boðið þeim,
21:7b.MAT.021.007 komu með ösnuna og folann og lögðu á þau klæði sín, en hann steig á bak.
21:8b.MAT.021.008 Fjöldamargir breiddu klæði sín á veginn, en aðrir hjuggu lim af trjánum og stráðu á veginn.
21:9b.MAT.021.009 Og múgur sá, sem á undan fór og eftir fylgdi, hrópaði: "Hósanna syni Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur, í nafni Drottins! Hósanna í hæstum hæðum!"
21:10b.MAT.021.010 Þegar hann kom inn í Jerúsalem, varð öll borgin í uppnámi, og menn spurðu: "Hver er hann?"
21:11b.MAT.021.011 Fólkið svaraði: "Það er spámaðurinn Jesús frá Nasaret í Galíleu."
21:12b.MAT.021.012 Þá gekk Jesús í helgidóminn og rak út alla, sem voru að selja þar og kaupa, hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna
21:13b.MAT.021.013 og mælti við þá: "Ritað er: ,Hús mitt á að vera bænahús,' en þér gjörið það að ræningjabæli."
21:14b.MAT.021.014 Blindir og haltir komu til hans í helgidóminum, og hann læknaði þá.
21:15b.MAT.021.015 Æðstu prestarnir og fræðimennirnir sáu dásemdarverkin, sem hann gjörði, og heyrðu börnin hrópa í helgidóminum: "Hósanna syni Davíðs!" Þeir urðu gramir við
21:16b.MAT.021.016 og sögðu við hann: "Heyrir þú, hvað þau segja?" Jesús svaraði þeim: "Já, hafið þér aldrei lesið þetta: ,Af barna munni og brjóstmylkinga býrðu þér lof.'"
21:17b.MAT.021.017 Og hann fór frá þeim og úr borginni til Betaníu og hafði þar náttstað.
21:18b.MAT.021.018 Árla morguns hélt hann aftur til borgarinnar og kenndi hungurs.
21:19b.MAT.021.019 Hann sá fíkjutré eitt við veginn og gekk að því, en fann þar ekkert nema blöðin tóm. Hann segir við það: "Aldrei framar vaxi ávöxtur á þér að eilífu." En fíkjutréð visnaði þegar í stað.
21:20b.MAT.021.020 Lærisveinarnir sáu þetta, undruðust og sögðu: "Hvernig gat fíkjutréð visnað svo fljótt?"
21:21b.MAT.021.021 Jesús svaraði þeim: "Sannlega segi ég yður: Ef þér eigið trú og efist ekki, getið þér ekki aðeins gjört slíkt sem fram kom við fíkjutréð. Þér gætuð enda sagt við fjall þetta: ,Lyft þér upp, og steyp þér í hafið,' og svo mundi fara.
21:22b.MAT.021.022 Allt sem þér biðjið í bæn yðar, munuð þér öðlast, ef þér trúið."
21:23b.MAT.021.023 Hann gekk í helgidóminn. Þá komu æðstu prestarnir og öldungar lýðsins til hans, þar sem hann var að kenna, og spurðu: "Með hvaða valdi gjörir þú þetta? Hver gaf þér þetta vald?"
21:24b.MAT.021.024 Jesús svaraði þeim: "Ég vil og leggja eina spurningu fyrir yður. Ef þér svarið mér, mun ég segja yður, með hvaða valdi ég gjöri þetta.
21:25b.MAT.021.025 Hvaðan var skírn Jóhannesar? Frá himni eða frá mönnum?" Þeir ráðguðust hver við annan og sögðu: "Ef vér svörum: ,Frá himni,' spyr hann: ,Hví trúðuð þér honum þá ekki?'
21:26b.MAT.021.026 Ef vér segjum: ,Frá mönnum,' megum vér óttast lýðinn, því að allir telja Jóhannes spámann."
21:27b.MAT.021.027 Og þeir svöruðu Jesú: "Vér vitum það ekki." Hann sagði við þá: "Ég segi yður þá ekki heldur, með hvaða valdi ég gjöri þetta.
21:28b.MAT.021.028 Hvað virðist yður? Maður nokkur átti tvo sonu. Hann gekk til hins fyrra og sagði: ,Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum.'
21:29b.MAT.021.029 Hann svaraði: ,Það vil ég ekki.' En eftir á sá hann sig um hönd og fór.
21:30b.MAT.021.030 Þá gekk hann til hins síðara og mælti á sömu leið. Hann svaraði: ,Já, herra,' en fór hvergi.
21:31b.MAT.021.031 Hvor þeirra tveggja gjörði vilja föðurins?" Þeir svara: "Sá fyrri." Þá mælti Jesús: "Sannlega segi ég yður: Tollheimtumenn og skækjur verða á undan yður inn í Guðs ríki.
21:32b.MAT.021.032 Því að Jóhannes kom til yðar og vísaði veg réttlætis, og þér trúðuð honum ekki, en tollheimtumenn og skækjur trúðu honum. Það sáuð þér, en snerust samt ekki síðar og trúðuð honum.
21:33b.MAT.021.033 Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi.
21:34b.MAT.021.034 Þegar ávaxtatíminn nálgaðist, sendi hann þjóna sína til vínyrkjanna að fá ávöxt sinn.
21:35b.MAT.021.035 En vínyrkjarnir tóku þjóna hans, börðu einn, drápu annan og grýttu hinn þriðja.
21:36b.MAT.021.036 Aftur sendi hann aðra þjóna, fleiri en þá fyrri, og eins fóru þeir með þá.
21:37b.MAT.021.037 Síðast sendi hann til þeirra son sinn og sagði: "Þeir munu virða son minn.
21:38b.MAT.021.038 Þegar vínyrkjarnir sáu soninn, sögðu þeir sín á milli: ,Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann, og náum arfi hans.'
21:39b.MAT.021.039 Og þeir tóku hann, köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.
21:40b.MAT.021.040 Hvað mun nú eigandi víngarðsins gjöra við vínyrkja þessa, þegar hann kemur?"
21:41b.MAT.021.041 Þeir svara: "Þeim vondu mönnum mun hann vægðarlaust tortíma og selja víngarðinn öðrum vínyrkjum á leigu, sem gjalda honum ávöxtinn á réttum tíma."
21:42b.MAT.021.042 Og Jesús segir við þá: "Hafið þér aldrei lesið í ritningunum: Sá steinn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn hyrningarsteinn. Þetta er verk Drottins, og undursamlegt er það í augum vorum.
21:43b.MAT.021.043 Þess vegna segi ég yður: Guðs ríki verður frá yður tekið og gefið þeirri þjóð, sem ber ávexti þess.
21:44b.MAT.021.044 [Sá sem fellur á þennan stein, mun sundur molast, og þann sem hann fellur á, mun hann sundur merja.]"
21:45b.MAT.021.045 Þegar æðstu prestarnir og farísearnir heyrðu dæmisögur hans, skildu þeir, að hann átti við þá.
21:46b.MAT.021.046 Þeir vildu taka hann höndum, en óttuðust fólkið, þar eð menn töldu hann vera spámann.
22
22:1b.MAT.022.001 Þá tók Jesús enn að tala við þá í dæmisögum og mælti:
22:2b.MAT.022.002 "Líkt er um himnaríki og konung einn, sem gjörði brúðkaup sonar síns.
22:3b.MAT.022.003 Hann sendi þjóna sína að kalla til brúðkaupsins þá, sem boðnir voru, en þeir vildu ekki koma.
22:4b.MAT.022.004 Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: ,Segið þeim, sem boðnir voru: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað, og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið.'
22:5b.MAT.022.005 En þeir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns,
22:6b.MAT.022.006 en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu.
22:7b.MAT.022.007 Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra.
22:8b.MAT.022.008 Síðan segir hann við þjóna sína: ,Brúðkaupsveislan er tilbúin, en hinir boðnu voru ekki verðugir.
22:9b.MAT.022.009 Farið því út á vegamót, og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þér finnið.'
22:10b.MAT.022.010 Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum.
22:11b.MAT.022.011 Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann, sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum.
22:12b.MAT.022.012 Hann segir við hann: ,Vinur, hvernig ert þú hér kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum?' Maðurinn gat engu svarað.
22:13b.MAT.022.013 Konungur sagði þá við þjóna sína: ,Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.'
22:14b.MAT.022.014 Því að margir eru kallaðir, en fáir útvaldir."
22:15b.MAT.022.015 Þá gengu farísearnir burt og tóku saman ráð sín, hvernig þeir gætu flækt hann í orðum.
22:16b.MAT.022.016 Þeir senda til hans lærisveina sína ásamt Heródesarsinnum, og þeir segja: "Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg í sannleika, þú hirðir ekki um álit neins, enda gjörir þú þér engan mannamun.
22:17b.MAT.022.017 Seg oss því, hvað þér líst? Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki?"
22:18b.MAT.022.018 Jesús þekkti illsku þeirra og sagði: "Hví freistið þér mín, hræsnarar?
22:19b.MAT.022.019 Sýnið mér peninginn, sem goldinn er í skatt." Þeir fengu honum denar.
22:20b.MAT.022.020 Hann spyr: "Hvers mynd og yfirskrift er þetta?"
22:21b.MAT.022.021 Þeir svara: "Keisarans." Hann segir: "Gjaldið þá keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er."
22:22b.MAT.022.022 Þegar þeir heyrðu þetta, undruðust þeir, og þeir yfirgáfu hann og gengu burt.
22:23b.MAT.022.023 Sama dag komu til hans saddúkear, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann:
22:24b.MAT.022.024 "Meistari, Móse segir: ,Deyi maður barnlaus, þá skal bróðir hans ganga að eiga konu bróður síns og vekja honum niðja.'
22:25b.MAT.022.025 Hér voru með oss sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist og dó. Hann átti engan niðja og eftirlét því bróður sínum konuna.
22:26b.MAT.022.026 Eins varð um næsta og þriðja og þá alla sjö.
22:27b.MAT.022.027 Síðast allra dó konan.
22:28b.MAT.022.028 Kona hvers þeirra sjö verður hún í upprisunni? Allir höfðu þeir átt hana."
22:29b.MAT.022.029 En Jesús svaraði þeim: "Þér villist, því að þér þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs.
22:30b.MAT.022.030 Í upprisunni kvænast menn hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himni.
22:31b.MAT.022.031 En um upprisu dauðra hafið þér ekki lesið það sem Guð segir við yður:
22:32b.MAT.022.032 ,Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.' Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda."
22:33b.MAT.022.033 En mannfjöldinn hlýddi á og undraðist mjög kenningu hans.
22:34b.MAT.022.034 Þegar farísear heyrðu, að hann hafði gjört saddúkea orðlausa, komu þeir saman.
22:35b.MAT.022.035 Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi freista hans og spurði:
22:36b.MAT.022.036 "Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?"
22:37b.MAT.022.037 Hann svaraði honum: ",Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.'
22:38b.MAT.022.038 Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð.
22:39b.MAT.022.039 Annað er þessu líkt: ,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.'
22:40b.MAT.022.040 Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir."
22:41b.MAT.022.041 Meðan farísearnir voru saman komnir, spurði Jesús þá:
22:42b.MAT.022.042 "Hvað virðist yður um Krist? Hvers son er hann?" Þeir svara: "Davíðs."
22:43b.MAT.022.043 Hann segir: "Hvernig getur þá Davíð, innblásinn andanum, kallað hann drottin? Hann segir:
22:44b.MAT.022.044 Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.
22:45b.MAT.022.045 Fyrst Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?"
22:46b.MAT.022.046 Enginn gat svarað honum einu orði, og frá þeim degi þorði enginn að spyrja hann neins framar.
23
23:1b.MAT.023.001 Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna:
23:2b.MAT.023.002 "Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear.
23:3b.MAT.023.003 Því skuluð þér gjöra og halda allt, sem þeir segja yður, en eftir breytni þeirra skuluð þér ekki fara, því þeir breyta ekki sem þeir bjóða.
23:4b.MAT.023.004 Þeir binda þungar byrðar og leggja mönnum á herðar, en sjálfir vilja þeir ekki snerta þær einum fingri.
23:5b.MAT.023.005 Öll sín verk gjöra þeir til að sýnast fyrir mönnum, þeir breikka minnisborða sína og stækka skúfana.
23:6b.MAT.023.006 Ljúft er þeim að skipa hefðarsæti í veislum og æðsta bekk í samkundum,
23:7b.MAT.023.007 láta heilsa sér á torgum og kallast meistarar af mönnum.
23:8b.MAT.023.008 En þér skuluð ekki láta kalla yður meistara, því einn er yðar meistari og þér allir bræður.
23:9b.MAT.023.009 Þér skuluð ekki kalla neinn föður yðar á jörðu, því einn er faðir yðar, sá sem er á himnum.
23:10b.MAT.023.010 Þér skuluð ekki heldur láta kalla yður leiðtoga, því einn er leiðtogi yðar, Kristur.
23:11b.MAT.023.011 Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar.
23:12b.MAT.023.012 Hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.
23:13b.MAT.023.013 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér læsið himnaríki fyrir mönnum. Sjálfir gangið þér ekki þar inn, og þeim, sem inn vilja ganga, leyfið þér eigi inn að komast.
23:14b.MAT.023.014 [Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér etið upp heimili ekkna og flytjið langar bænir að yfirskini. Þér munuð fá því þyngri dóm.]
23:15b.MAT.023.015 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér farið um láð og lög til að snúa einum til yðar trúar, og þegar það tekst, gjörið þér hann hálfu verra vítisbarn en þér sjálfir eruð.
23:16b.MAT.023.016 Vei yður, blindir leiðtogar! Þér segið: ,Ef einhver sver við musterið, þá er það ógilt, en sverji menn við gullið í musterinu, þá er það gildur eiður.'
23:17b.MAT.023.017 Blindu heimskingjar, hvort er meira gullið eða musterið, sem helgar gullið?
23:18b.MAT.023.018 Þér segið: ,Ef einhver sver við altarið, þá er það ógilt, en sverji menn við fórnina, sem á því er, þá er það gildur eiður.'
23:19b.MAT.023.019 Blindu menn, hvort er meira fórnin eða altarið, sem helgar fórnina?
23:20b.MAT.023.020 Sá sem sver við altarið, sver við það og allt, sem á því er.
23:21b.MAT.023.021 Sá sem sver við musterið, sver við það og við þann, sem í því býr.
23:22b.MAT.023.022 Og sá sem sver við himininn, sver við hásæti Guðs og við þann, sem í því situr.
23:23b.MAT.023.023 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni, en hirðið ekki um það, sem mikilvægast er í lögmálinu, réttlæti, miskunn og trúfesti. Þetta ber að gjöra og hitt eigi ógjört að láta.
23:24b.MAT.023.024 Blindu leiðtogar, þér síið mýfluguna, en svelgið úlfaldann!
23:25b.MAT.023.025 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hreinsið bikarinn og diskinn utan, en innan eru þeir fullir yfirgangs og óhófs.
23:26b.MAT.023.026 Blindi farísei, hreinsaðu fyrst bikarinn innan, að hann verði líka hreinn að utan.
23:27b.MAT.023.027 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér líkist hvítum kölkuðum gröfum, sem sýnast fagrar utan, en innan eru fullar af dauðra manna beinum og alls kyns óþverra.
23:28b.MAT.023.028 Þannig eruð þér, sýnist hið ytra réttlátir í augum manna, en eruð hið innra fullir hræsni og ranglætis.
23:29b.MAT.023.029 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hlaðið upp grafir spámannanna og skreytið leiði hinna réttlátu
23:30b.MAT.023.030 og segið: Ef vér hefðum lifað á dögum feðra vorra, hefðum vér ekki átt hlut með þeim í lífláti spámannanna.
23:31b.MAT.023.031 Þannig vitnið þér sjálfir um yður, að þér eruð synir þeirra, sem myrtu spámennina.
23:32b.MAT.023.032 Nú skuluð þér fylla mæli feðra yðar.
23:33b.MAT.023.033 Höggormar og nöðru kyn, hvernig fáið þér umflúið helvítisdóm?
23:34b.MAT.023.034 Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg.
23:35b.MAT.023.035 Þannig kemur yfir yður allt saklaust blóð, sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs Sakaría Barakíasonar, sem þér drápuð milli musterisins og altarisins.
23:36b.MAT.023.036 Sannlega segi ég yður: Allt mun þetta koma yfir þessa kynslóð.
23:37b.MAT.023.037 Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá, sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum, eins og hænan safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi.
23:38b.MAT.023.038 Hús yðar verður í eyði látið.
23:39b.MAT.023.039 Ég segi yður: Héðan af munuð þér eigi sjá mig, fyrr en þér segið: ,Blessaður sé sá sem kemur, í nafni Drottins.'"
24
24:1b.MAT.024.001 Jesús gekk út úr helgidóminum og hélt brott. Þá komu lærisveinar hans og vildu sýna honum byggingar helgidómsins.
24:2b.MAT.024.002 Hann sagði við þá: "Þér sjáið allt þetta? Sannlega segi ég yður, hér mun ekki eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn."
24:3b.MAT.024.003 Þá er hann sat á Olíufjallinu, gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann einslega: "Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn komu þinnar og endaloka veraldar?"
24:4b.MAT.024.004 Jesús svaraði þeim: "Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.
24:5b.MAT.024.005 Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Ég er Kristur!' og marga munu þeir leiða í villu.
24:6b.MAT.024.006 Þér munuð spyrja hernað og ófriðartíðindi. Gætið þess, að skelfast ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn.
24:7b.MAT.024.007 Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum.
24:8b.MAT.024.008 Allt þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
24:9b.MAT.024.009 Þá munu menn framselja yður til pyndinga og taka af lífi, og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns míns.
24:10b.MAT.024.010 Margir munu þá falla frá og framselja hver annan og hata.
24:11b.MAT.024.011 Fram munu koma margir falsspámenn og leiða marga í villu.
24:12b.MAT.024.012 Og vegna þess að lögleysi magnast, mun kærleikur flestra kólna.
24:13b.MAT.024.013 En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.
24:14b.MAT.024.014 Og þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar. Og þá mun endirinn koma.
24:15b.MAT.024.015 Þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar, sem Daníel spámaður talar um, standa á helgum stað," - lesandinn athugi það -
24:16b.MAT.024.016 "þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla.
24:17b.MAT.024.017 Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan að sækja neitt í hús sitt.
24:18b.MAT.024.018 Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína.
24:19b.MAT.024.019 Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum.
24:20b.MAT.024.020 Biðjið, að flótti yðar verði ekki um vetur eða á hvíldardegi.
24:21b.MAT.024.021 Þá verður sú mikla þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa og mun aldrei verða.
24:22b.MAT.024.022 Ef dagar þessir hefðu ekki verið styttir, kæmist enginn maður af. En vegna hinna útvöldu munu þeir dagar styttir verða.
24:23b.MAT.024.023 Ef einhver segir þá við yður: ,Hér er Kristur' eða ,þar', þá trúið því ekki.
24:24b.MAT.024.024 Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur til að leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti.
24:25b.MAT.024.025 Sjá, ég hef sagt yður það fyrir.
24:26b.MAT.024.026 Ef þeir segja við yður: ,Sjá, hann er í óbyggðum,' þá farið ekki þangað. Ef þeir segja: ,Sjá, hann er í leynum,' þá trúið því ekki.
24:27b.MAT.024.027 Eins og elding sem leiftrar frá austri til vesturs, svo mun verða koma Mannssonarins.
24:28b.MAT.024.028 Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.
24:29b.MAT.024.029 En þegar eftir þrenging þessara daga mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast.
24:30b.MAT.024.030 Þá mun tákn Mannssonarins birtast á himni, og allar kynkvíslir jarðarinnar hefja kveinstafi. Og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð.
24:31b.MAT.024.031 Hann mun senda út engla sína með hvellum lúðri, og þeir munu safna hans útvöldu úr áttunum fjórum, himinskauta milli.
24:32b.MAT.024.032 Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd.
24:33b.MAT.024.033 Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið allt þetta, að hann er í nánd, fyrir dyrum.
24:34b.MAT.024.034 Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.
24:35b.MAT.024.035 Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.
24:36b.MAT.024.036 En þann dag og stund veit enginn, hvorki englar á himnum né sonurinn, enginn nema faðirinn einn.
24:37b.MAT.024.037 Eins og var á dögum Nóa, svo mun verða við komu Mannssonarins.
24:38b.MAT.024.038 Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina.
24:39b.MAT.024.039 Og þeir vissu ekki, fyrr en flóðið kom og hreif þá alla burt. Eins verður við komu Mannssonarins.
24:40b.MAT.024.040 Þá verða tveir á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.
24:41b.MAT.024.041 Tvær munu mala á kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.
24:42b.MAT.024.042 Vakið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur.
24:43b.MAT.024.043 Það skiljið þér, að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi á hvaða stundu nætur þjófurinn kæmi.
24:44b.MAT.024.044 Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi.
24:45b.MAT.024.045 Hver er sá trúi og hyggni þjónn, sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma?
24:46b.MAT.024.046 Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.
24:47b.MAT.024.047 Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.
24:48b.MAT.024.048 En ef illur þjónn segir í hjarta sínu: ,Húsbónda mínum dvelst,'
24:49b.MAT.024.049 og hann tekur að berja samþjóna sína og eta og drekka með svöllurum,
24:50b.MAT.024.050 þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, sem hann væntir ekki, á þeirri stundu, sem hann veit ekki,
24:51b.MAT.024.051 höggva hann og láta hann fá hlut með hræsnurum. Þar verður grátur og gnístran tanna.
25
25:1b.MAT.025.001 Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar, sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína.
25:2b.MAT.025.002 Fimm þeirra voru fávísar, en fimm hyggnar.
25:3b.MAT.025.003 Þær fávísu tóku lampa sína, en höfðu ekki olíu með sér,
25:4b.MAT.025.004 en hinar hyggnu tóku olíu með á könnum ásamt lömpum sínum.
25:5b.MAT.025.005 Nú dvaldist brúðgumanum, og urðu þær allar syfjaðar og sofnuðu.
25:6b.MAT.025.006 Um miðnætti kvað við hróp: ,Sjá, brúðguminn kemur, farið til móts við hann.'
25:7b.MAT.025.007 Þá vöknuðu meyjarnar allar og tóku til lampa sína.
25:8b.MAT.025.008 En þær fávísu sögðu við þær hyggnu: ,Gefið oss af olíu yðar, það er að slokkna á lömpum vorum.'
25:9b.MAT.025.009 Þær hyggnu svöruðu: ,Nei, hún nægir aldrei handa öllum. Farið heldur til kaupmanna og kaupið handa yður.'
25:10b.MAT.025.010 Meðan þær voru að kaupa, kom brúðguminn, og þær sem viðbúnar voru, gengu með honum inn til brúðkaupsins, og dyrum var lokað.
25:11b.MAT.025.011 Seinna komu hinar meyjarnar og sögðu: ,Herra, herra, ljúk upp fyrir oss.'
25:12b.MAT.025.012 En hann svaraði: ,Sannlega segi ég yður, ég þekki yður ekki.'
25:13b.MAT.025.013 Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina.
25:14b.MAT.025.014 Svo er um himnaríki sem mann, er ætlaði úr landi. Hann kallaði þjóna sína og fól þeim eigur sínar.
25:15b.MAT.025.015 Einum fékk hann fimm talentur, öðrum tvær og þeim þriðja eina, hverjum eftir hæfni. Síðan fór hann úr landi.
25:16b.MAT.025.016 Sá sem fékk fimm talentur, fór þegar, ávaxtaði þær og græddi aðrar fimm.
25:17b.MAT.025.017 Eins gjörði sá er tvær fékk. Hann græddi aðrar tvær.
25:18b.MAT.025.018 En sá sem fékk eina, fór og gróf fé húsbónda síns í jörð og faldi það.
25:19b.MAT.025.019 Löngu síðar kom húsbóndi þessara þjóna og lét þá gjöra skil.
25:20b.MAT.025.020 Sá með fimm talenturnar gekk þá fram, færði honum aðrar fimm og sagði: ,Herra, fimm talentur seldir þú mér í hendur, hér hef ég grætt aðrar fimm.'
25:21b.MAT.025.021 Húsbóndi hans sagði við hann: ,Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.'
25:22b.MAT.025.022 Þá gekk fram sá með tvær talenturnar og mælti: ,Herra, tvær talentur seldir þú mér í hendur, hér hef ég grætt aðrar tvær.'
25:23b.MAT.025.023 Og húsbóndi hans sagði við hann: ,Gott, þú góði og trúi þjónn, yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.'
25:24b.MAT.025.024 Loks kom sá er fékk eina talentu, og sagði: ,Herra, ég vissi, að þú ert maður harður, sem uppsker þar, sem þú sáðir ekki, og safnar þar, sem þú stráðir ekki.
25:25b.MAT.025.025 Ég var hræddur og fól talentu þína í jörð. Hér hefur þú þitt.'
25:26b.MAT.025.026 Og húsbóndi hans sagði við hann: ,Illi og lati þjónn, þú vissir, að ég uppsker þar, sem ég sáði ekki, og safna þar, sem ég stráði ekki.
25:27b.MAT.025.027 Þú áttir því að leggja fé mitt í banka. Þá hefði ég fengið það með vöxtum, þegar ég kom heim.
25:28b.MAT.025.028 Takið af honum talentuna, og fáið þeim, sem hefur tíu talenturnar.
25:29b.MAT.025.029 Því að hverjum sem hefur, mun gefið verða, og hann mun hafa gnægð, en frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur.
25:30b.MAT.025.030 Rekið þennan ónýta þjón út í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.'
25:31b.MAT.025.031 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu.
25:32b.MAT.025.032 Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum, og hann mun skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum.
25:33b.MAT.025.033 Sauðunum skipar hann sér til hægri handar, en höfrunum til vinstri.
25:34b.MAT.025.034 Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: ,Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims.
25:35b.MAT.025.035 Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig,
25:36b.MAT.025.036 nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.'
25:37b.MAT.025.037 Þá munu þeir réttlátu segja: ,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka?
25:38b.MAT.025.038 Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig?
25:39b.MAT.025.039 Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?'
25:40b.MAT.025.040 Konungurinn mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.'
25:41b.MAT.025.041 Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: ,Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans.
25:42b.MAT.025.042 Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka,
25:43b.MAT.025.043 gestur var ég, en þér hýstuð mig ekki, nakinn, en þér klædduð mig ekki, ég var sjúkur og í fangelsi, en ekki vitjuðuð þér mín.'
25:44b.MAT.025.044 Þá munu þeir svara: ,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi, og hjálpuðum þér ekki?'
25:45b.MAT.025.045 Hann mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður: Það allt sem þér gjörðuð ekki einum hinna minnstu bræðra minna, það hafið þér ekki heldur gjört mér.'
25:46b.MAT.025.046 Og þeir munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs."
26
26:1b.MAT.026.001 Þegar Jesús hafði lokið öllum þessum orðum, sagði hann við lærisveina sína:
26:2b.MAT.026.002 "Þér vitið, að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar."
26:3b.MAT.026.003 Æðstu prestarnir og öldungar lýðsins söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét,
26:4b.MAT.026.004 og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi.
26:5b.MAT.026.005 En þeir sögðu: "Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot með lýðnum."
26:6b.MAT.026.006 En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa.
26:7b.MAT.026.007 Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði.
26:8b.MAT.026.008 Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: "Til hvers er þessi sóun?
26:9b.MAT.026.009 Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum."
26:10b.MAT.026.010 Jesús varð þess vís og sagði við þá: "Hvað eruð þér að angra konuna? Gott verk gjörði hún mér.
26:11b.MAT.026.011 Fátæka hafið þér jafnan hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.
26:12b.MAT.026.012 Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn, var hún að búa mig til greftrunar.
26:13b.MAT.026.013 Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindi þetta verður flutt, um heim allan, mun þess og getið verða, sem hún gjörði, til minningar um hana."
26:14b.MAT.026.014 Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna
26:15b.MAT.026.015 og sagði: "Hvað viljið þér gefa mér fyrir að framselja yður Jesú?" En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga.
26:16b.MAT.026.016 Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja hann.
26:17b.MAT.026.017 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: "Hvar vilt þú, að vér búum þér páskamáltíðina?"
26:18b.MAT.026.018 Hann mælti: "Farið til ákveðins manns í borginni, og segið við hann: ,Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.'"
26:19b.MAT.026.019 Lærisveinarnir gjörðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.
26:20b.MAT.026.020 Um kvöldið sat hann til borðs með þeim tólf.
26:21b.MAT.026.021 Og er þeir mötuðust, sagði hann: "Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig."
26:22b.MAT.026.022 Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: "Ekki er það ég, herra?"
26:23b.MAT.026.023 Hann svaraði þeim: "Sá sem dýfði hendi í fatið með mér, mun svíkja mig.
26:24b.MAT.026.024 Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst."
26:25b.MAT.026.025 En Júdas, sem sveik hann, sagði: "Rabbí, ekki er það ég?" Jesús svaraði: "Þú sagðir það."
26:26b.MAT.026.026 Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: "Takið og etið, þetta er líkami minn."
26:27b.MAT.026.027 Og hann tók kaleik, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði: "Drekkið allir hér af.
26:28b.MAT.026.028 Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda.
26:29b.MAT.026.029 Ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags, er ég drekk hann nýjan með yður í ríki föður míns."
26:30b.MAT.026.030 Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.
26:31b.MAT.026.031 Þá segir Jesús við þá: "Á þessari nóttu munuð þér allir hneykslast á mér, því að ritað er: ,Ég mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast.'
26:32b.MAT.026.032 En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu."
26:33b.MAT.026.033 Þá segir Pétur: "Þótt allir hneykslist á þér, skal ég aldrei hneykslast."
26:34b.MAT.026.034 Jesús sagði við hann: "Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér."
26:35b.MAT.026.035 Pétur svarar: "Þótt ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér." Eins töluðu allir lærisveinarnir.
26:36b.MAT.026.036 Þá kemur Jesús með þeim til staðar, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveinana: "Setjist hér, meðan ég fer og biðst fyrir þarna."
26:37b.MAT.026.037 Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist.
26:38b.MAT.026.038 Hann segir við þá: "Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér."
26:39b.MAT.026.039 Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: "Faðir minn, ef verða má, þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt."
26:40b.MAT.026.040 Hann kemur aftur til lærisveinanna og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: "Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina stund?
26:41b.MAT.026.041 Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt."
26:42b.MAT.026.042 Aftur vék hann brott annað sinn og bað: "Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist, að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji."
26:43b.MAT.026.043 Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra.
26:44b.MAT.026.044 Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr.
26:45b.MAT.026.045 Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: "Sofið þér enn og hvílist? Sjá, stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.
26:46b.MAT.026.046 Standið upp, förum! Í nánd er sá, er mig svíkur."
26:47b.MAT.026.047 Meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins, og höfðu þeir sverð og barefli.
26:48b.MAT.026.048 Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: "Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum."
26:49b.MAT.026.049 Hann gekk beint að Jesú og sagði: "Heill, rabbí!" og kyssti hann.
26:50b.MAT.026.050 Jesús sagði við hann: "Vinur, hví ertu hér?" Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann.
26:51b.MAT.026.051 Einn þeirra, sem með Jesú voru, greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.
26:52b.MAT.026.052 Jesús sagði við hann: "Slíðra sverð þitt! Allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla.
26:53b.MAT.026.053 Hyggur þú, að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla?
26:54b.MAT.026.054 Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast, sem segja, að þetta eigi svo að verða?"
26:55b.MAT.026.055 Á þeirri stundu sagði Jesús við flokkinn: "Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum.
26:56b.MAT.026.056 En allt verður þetta til þess, að ritningar spámannanna rætist." Þá yfirgáfu hann lærisveinarnir allir og flýðu.
26:57b.MAT.026.057 Þeir sem tóku Jesú höndum, færðu hann til Kaífasar, æðsta prests, en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir.
26:58b.MAT.026.058 Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá, hver yrði endir á.
26:59b.MAT.026.059 Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann,
26:60b.MAT.026.060 en fundu ekkert, þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir
26:61b.MAT.026.061 og sögðu: "Þessi maður sagði: ,Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.'"
26:62b.MAT.026.062 Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: "Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?"
26:63b.MAT.026.063 En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: "Ég særi þig við lifandi Guð, segðu oss: Ertu Kristur, sonur Guðs?"
26:64b.MAT.026.064 Jesús svarar honum: "Þú sagðir það. En ég segi yður: Upp frá þessu munuð þér sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himins."
26:65b.MAT.026.065 Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: "Hann guðlastar, hvað þurfum vér nú framar votta við? Þér heyrðuð guðlastið.
26:66b.MAT.026.066 Hvað líst yður?" Þeir svöruðu: "Hann er dauðasekur."
26:67b.MAT.026.067 Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum
26:68b.MAT.026.068 og sögðu: "Spáðu nú, Kristur, hver var að slá þig?"
26:69b.MAT.026.069 En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: "Þú varst líka með Jesú frá Galíleu."
26:70b.MAT.026.070 Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: "Ekki veit ég, hvað þú ert að fara."
26:71b.MAT.026.071 Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá, sem þar voru: "Þessi var með Jesú frá Nasaret."
26:72b.MAT.026.072 En hann neitaði sem áður og sór þess eið, að hann þekkti ekki þann mann.
26:73b.MAT.026.073 Litlu síðar komu þeir, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: "Víst ertu líka einn af þeim, enda segir málfæri þitt til þín."
26:74b.MAT.026.074 En hann sór og sárt við lagði, að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani.
26:75b.MAT.026.075 Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: "Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér." Og hann gekk út og grét beisklega.
27
27:1b.MAT.027.001 Að morgni gjörðu allir æðstu prestarnir og öldungar lýðsins samþykkt gegn Jesú, að hann skyldi af lífi tekinn.
27:2b.MAT.027.002 Þeir létu binda hann og færa brott og framseldu hann Pílatusi landshöfðingja.
27:3b.MAT.027.003 Þegar Júdas, sem sveik hann, sá, að hann var dæmdur sekur, iðraðist hann og skilaði æðstu prestunum og öldungunum silfurpeningunum þrjátíu
27:4b.MAT.027.004 og mælti: "Ég drýgði synd, ég sveik saklaust blóð." Þeir sögðu: "Hvað varðar oss um það? Það er þitt að sjá fyrir því."
27:5b.MAT.027.005 Hann fleygði þá silfrinu inn í musterið og hélt brott. Síðan fór hann og hengdi sig.
27:6b.MAT.027.006 Æðstu prestarnir tóku silfrið og sögðu: "Ekki má láta það í guðskistuna, því þetta eru blóðpeningar."
27:7b.MAT.027.007 Og þeir urðu ásáttir um að kaupa fyrir þá leirkerasmiðs akurinn til grafreits handa útlendingum.
27:8b.MAT.027.008 Þess vegna kallast hann enn í dag Blóðreitur.
27:9b.MAT.027.009 Þá rættist það, sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns: "Þeir tóku silfurpeningana þrjátíu, það verð, sem sá var metinn á, er til verðs var lagður af Ísraels sonum,
27:10b.MAT.027.010 og keyptu fyrir þá leirkerasmiðs akurinn eins og Drottinn hafði fyrir mig lagt."
27:11b.MAT.027.011 Jesús kom nú fyrir landshöfðingjann. Landshöfðinginn spurði hann: "Ert þú konungur Gyðinga?" Jesús svaraði: "Þú segir það."
27:12b.MAT.027.012 Æðstu prestarnir og öldungarnir báru á hann sakir, en hann svaraði engu.
27:13b.MAT.027.013 Þá spurði Pílatus hann: "Heyrir þú ekki, hve mjög þeir vitna gegn þér?"
27:14b.MAT.027.014 En hann svaraði honum ekki, engu orði hans, og undraðist landshöfðinginn mjög.
27:15b.MAT.027.015 Á hátíðinni var landshöfðinginn vanur að gefa lýðnum lausan einn bandingja, þann er þeir vildu.
27:16b.MAT.027.016 Þá var þar alræmdur bandingi í haldi, Barabbas að nafni.
27:17b.MAT.027.017 Sem þeir nú voru saman komnir, sagði Pílatus við þá: "Hvorn viljið þér, að ég gefi yður lausan, Barabbas eða Jesú, sem kallast Kristur?"
27:18b.MAT.027.018 Hann vissi, að þeir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann.
27:19b.MAT.027.019 Meðan Pílatus sat á dómstólnum, sendi kona hans til hans með þessi orð: "Láttu þennan réttláta mann vera, þungir hafa draumar mínir verið í nótt hans vegna."
27:20b.MAT.027.020 En æðstu prestarnir og öldungarnir fengu múginn til að biðja um Barabbas, en að Jesús yrði deyddur.
27:21b.MAT.027.021 Landshöfðinginn spurði: "Hvorn þeirra tveggja viljið þér, að ég gefi yður lausan?" Þeir sögðu: "Barabbas."
27:22b.MAT.027.022 Pílatus spyr: "Hvað á ég þá að gjöra við Jesú, sem kallast Kristur?" Þeir segja allir: "Krossfestu hann."
27:23b.MAT.027.023 Hann spurði: "Hvað illt hefur hann þá gjört?" En þeir æptu því meir: "Krossfestu hann!"
27:24b.MAT.027.024 Nú sér Pílatus, að hann fær ekki að gjört, en ólætin aukast. Hann tók vatn, þvoði hendur sínar frammi fyrir fólkinu og mælti: "Sýkn er ég af blóði þessa manns! Svarið þér sjálfir fyrir!"
27:25b.MAT.027.025 Og allur lýðurinn sagði: "Komi blóð hans yfir oss og yfir börn vor!"
27:26b.MAT.027.026 Þá gaf hann þeim Barabbas lausan, en lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.
27:27b.MAT.027.027 Hermenn landshöfðingjans fóru nú með hann inn í höllina og söfnuðu um hann allri hersveitinni.
27:28b.MAT.027.028 Þeir afklæddu hann og færðu hann í skarlatsrauða kápu,
27:29b.MAT.027.029 fléttuðu þyrnikórónu og settu á höfuð honum, en reyrsprota í hægri hönd hans. Síðan féllu þeir á kné fyrir honum og höfðu hann að háði og sögðu: "Heill þú, konungur Gyðinga!"
27:30b.MAT.027.030 Og þeir hræktu á hann, tóku reyrsprotann og slógu hann í höfuðið.
27:31b.MAT.027.031 Þegar þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr kápunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir hann út til að krossfesta hann.
27:32b.MAT.027.032 Á leiðinni hittu þeir mann frá Kýrene, er Símon hét. Hann neyddu þeir til að bera kross Jesú.
27:33b.MAT.027.033 Og er þeir komu til þess staðar, er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður,
27:34b.MAT.027.034 gáfu þeir honum vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það, en vildi ekki drekka.
27:35b.MAT.027.035 Þá krossfestu þeir hann. Og þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér,
27:36b.MAT.027.036 sátu þar svo og gættu hans.
27:37b.MAT.027.037 Yfir höfði hans festu þeir sakargift hans svo skráða: ÞESSI ER JESÚS, KONUNGUR GYÐINGA.
27:38b.MAT.027.038 Þá voru krossfestir með honum tveir ræningjar, annar til hægri, hinn til vinstri.
27:39b.MAT.027.039 Þeir, sem fram hjá gengu, hæddu hann, skóku höfuð sín
27:40b.MAT.027.040 og sögðu: "Þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum. Bjarga nú sjálfum þér, ef þú ert sonur Guðs, og stíg niður af krossinum!"
27:41b.MAT.027.041 Eins gjörðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og öldungarnir og sögðu:
27:42b.MAT.027.042 "Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Hann er konungur Ísraels, stígi hann nú niður af krossinum, þá skulum vér trúa á hann.
27:43b.MAT.027.043 Hann treystir Guði. Nú ætti Guð að frelsa hann, ef hann hefur mætur á honum. Eða sagði hann ekki: ,Ég er sonur Guðs'?"
27:44b.MAT.027.044 Einnig ræningjarnir, sem með honum voru krossfestir, smánuðu hann á sama hátt.
27:45b.MAT.027.045 En frá hádegi varð myrkur um allt land til nóns.
27:46b.MAT.027.046 Og um nón kallaði Jesús hárri röddu: "Elí, Elí, lama sabaktaní!" Það þýðir: "Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?"
27:47b.MAT.027.047 Nokkrir þeirra, er þar stóðu, heyrðu þetta og sögðu: "Hann kallar á Elía!"
27:48b.MAT.027.048 Jafnskjótt hljóp einn þeirra til, tók njarðarvött og fyllti ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka.
27:49b.MAT.027.049 Hinir sögðu: "Sjáum til, hvort Elía kemur að bjarga honum."
27:50b.MAT.027.050 En Jesús hrópaði aftur hárri röddu og gaf upp andann.
27:51b.MAT.027.051 Þá rifnaði fortjald musterisins í tvennt, ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu,
27:52b.MAT.027.052 grafir opnuðust og margir líkamir helgra látinna manna risu upp.
27:53b.MAT.027.053 Eftir upprisu Jesú gengu þeir úr gröfum sínum og komu í borgina helgu og birtust mörgum.
27:54b.MAT.027.054 Þegar hundraðshöfðinginn og þeir, sem með honum gættu Jesú, sáu landskjálftann og atburði þessa, hræddust þeir mjög og sögðu: "Sannarlega var þessi maður sonur Guðs."
27:55b.MAT.027.055 Þar voru og margar konur, sem álengdar horfðu á, þær höfðu fylgt Jesú frá Galíleu og þjónað honum.
27:56b.MAT.027.056 Meðal þeirra var María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs og Jósefs, og móðir Sebedeussona.
27:57b.MAT.027.057 Um kvöldið kom auðugur maður frá Arímaþeu, Jósef að nafni, er sjálfur var orðinn lærisveinn Jesú.
27:58b.MAT.027.058 Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú. Pílatus bauð þá að fá Jósef hann.
27:59b.MAT.027.059 Jósef tók líkið, sveipaði það hreinu línklæði
27:60b.MAT.027.060 og lagði í nýja gröf, sem hann átti og hafði látið höggva í klett, velti síðan stórum steini fyrir grafarmunnann og fór burt.
27:61b.MAT.027.061 María Magdalena var þar og María hin, og sátu þær gegnt gröfinni.
27:62b.MAT.027.062 Næsta dag, daginn eftir aðfangadag, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus
27:63b.MAT.027.063 og sögðu: "Herra, vér minnumst þess, að svikari þessi sagði í lifanda lífi: ,Eftir þrjá daga rís ég upp.'
27:64b.MAT.027.064 Bjóð því, að grafarinnar sé vandlega gætt allt til þriðja dags, ella gætu lærisveinar hans komið og stolið honum og sagt fólkinu: ,Hann er risinn frá dauðum.' Þá verða síðari svikin verri hinum fyrri."
27:65b.MAT.027.065 Pílatus sagði við þá: "Hér hafið þér varðmenn, farið og búið svo tryggilega um sem best þér kunnið."
27:66b.MAT.027.066 Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni og innsigluðu steininn með aðstoð varðmannanna.
28
28:1b.MAT.028.001 Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina.
28:2b.MAT.028.002 Þá varð landskjálfti mikill, því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann.
28:3b.MAT.028.003 Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór.
28:4b.MAT.028.004 Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.
28:5b.MAT.028.005 En engillinn mælti við konurnar: "Þér skuluð eigi óttast. Ég veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta.
28:6b.MAT.028.006 Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn, þar sem hann lá.
28:7b.MAT.028.007 Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: ,Hann er upp risinn frá dauðum, sjá hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann.' Þetta hef ég sagt yður."
28:8b.MAT.028.008 Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin.
28:9b.MAT.028.009 Og sjá, Jesús kemur á móti þeim og segir: "Heilar þið!" En þær komu, féllu fram fyrir honum og föðmuðu fætur hans.
28:10b.MAT.028.010 Þá segir Jesús við þær: "Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum að halda til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig."
28:11b.MAT.028.011 Meðan þær voru á leiðinni komu nokkrir varðmenn til borgarinnar og sögðu æðstu prestunum allt, sem gjörst hafði.
28:12b.MAT.028.012 En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá:
28:13b.MAT.028.013 "Segið þetta: ,Lærisveinar hans komu á næturþeli, meðan vér sváfum, og stálu honum.'
28:14b.MAT.028.014 Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér sefa hann, svo að þér getið verið áhyggjulausir."
28:15b.MAT.028.015 Þeir tóku við fénu og gjörðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.
28:16b.MAT.028.016 En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til.
28:17b.MAT.028.017 Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa.
28:18b.MAT.028.018 Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: "Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.
28:19b.MAT.028.019 Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda,
28:20b.MAT.028.020 og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar."
3
3:1b.MAT.003.001 Á þeim dögum kemur Jóhannes skírari fram og prédikar í óbyggðum Júdeu.
3:2b.MAT.003.002 Hann sagði: "Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd."
3:3b.MAT.003.003 Jóhannes er sá sem svo er um mælt hjá Jesaja spámanni: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans.
3:4b.MAT.003.004 Jóhannes bar klæði úr úlfaldahári og leðurbelti um lendar sér og hafði til matar engisprettur og villihunang.
3:5b.MAT.003.005 Menn streymdu til hans frá Jerúsalem, allri Júdeu og Jórdanbyggð,
3:6b.MAT.003.006 létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
3:7b.MAT.003.007 Þegar hann sá, að margir farísear og saddúkear komu til skírnar, sagði hann við þá: "Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði?
3:8b.MAT.003.008 Berið þá ávöxt samboðinn iðruninni!
3:9b.MAT.003.009 Látið yður ekki til hugar koma, að þér getið sagt með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.' Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum.
3:10b.MAT.003.010 Öxin er þegar lögð að rótum trjánna, og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.
3:11b.MAT.003.011 Ég skíri yður með vatni til iðrunar, en sá sem kemur eftir mig, er mér máttugri, og er ég ekki verður að bera skó hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi.
3:12b.MAT.003.012 Hann er með varpskófluna í hendi sér og mun gjörhreinsa láfa sinn og safna hveiti sínu í hlöðu, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi."
3:13b.MAT.003.013 Þá kemur Jesús frá Galíleu að Jórdan til Jóhannesar að taka skírn hjá honum.
3:14b.MAT.003.014 Jóhannes vildi varna honum þess og sagði: "Mér er þörf að skírast af þér, og þú kemur til mín!"
3:15b.MAT.003.015 Jesús svaraði honum: "Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti." Og hann lét það eftir honum.
3:16b.MAT.003.016 En þegar Jesús hafði verið skírður, sté hann jafnskjótt upp úr vatninu. Og þá opnuðust himnarnir, og hann sá anda Guðs stíga niður eins og dúfu og koma yfir sig.
3:17b.MAT.003.017 Og rödd kom af himnum: "Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á."
4
4:1b.MAT.004.001 Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina, að hans yrði freistað af djöflinum.
4:2b.MAT.004.002 Þar fastaði hann fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður.
4:3b.MAT.004.003 Þá kom freistarinn og sagði við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú, að steinar þessir verði að brauðum."
4:4b.MAT.004.004 Jesús svaraði: "Ritað er: ,Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði, heldur á hverju því orði, sem fram gengur af Guðs munni.'"
4:5b.MAT.004.005 Þá tekur djöfullinn hann með sér í borgina helgu, setur hann á brún musterisins
4:6b.MAT.004.006 og segir við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér ofan, því að ritað er: Hann mun fela þig englum sínum, og þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini."
4:7b.MAT.004.007 Jesús svaraði honum: "Aftur er ritað: ,Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.'"
4:8b.MAT.004.008 Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall, sýnir honum öll ríki heims og dýrð þeirra
4:9b.MAT.004.009 og segir: "Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú fellur fram og tilbiður mig."
4:10b.MAT.004.010 En Jesús sagði við hann: "Vík brott, Satan! Ritað er: ,Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.'"
4:11b.MAT.004.011 Þá fór djöfullinn frá Jesú. Og englar komu og þjónuðu honum.
4:12b.MAT.004.012 Þegar hann heyrði, að Jóhannes hefði verið tekinn höndum, hélt hann til Galíleu.
4:13b.MAT.004.013 Hann fór frá Nasaret og settist að í Kapernaum við vatnið í byggðum Sebúlons og Naftalí.
4:14b.MAT.004.014 Þannig rættist það, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns:
4:15b.MAT.004.015 Sebúlonsland og Naftalíland við vatnið, landið handan Jórdanar, Galílea heiðingjanna.
4:16b.MAT.004.016 Sú þjóð, sem í myrkri sat, sá mikið ljós. Þeim er sátu í skuggalandi dauðans, er ljós upp runnið.
4:17b.MAT.004.017 Upp frá þessu tekur Jesús að prédika og segja: "Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd."
4:18b.MAT.004.018 Hann gekk með Galíleuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið, en þeir voru fiskimenn.
4:19b.MAT.004.019 Hann sagði við þá: "Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða."
4:20b.MAT.004.020 Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum.
4:21b.MAT.004.021 Hann gekk áfram þaðan og sá tvo aðra bræður, Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans. Þeir voru í bátnum með Sebedeusi, föður sínum, að búa net sín. Jesús kallaði þá,
4:22b.MAT.004.022 og þeir yfirgáfu jafnskjótt bátinn og föður sinn og fylgdu honum.
4:23b.MAT.004.023 Hann fór nú um alla Galíleu, kenndi í samkundum þeirra, prédikaði fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi meðal lýðsins.
4:24b.MAT.004.024 Orðstír hans barst um allt Sýrland, og menn færðu til hans alla, sem þjáðust af ýmsum sjúkdómum og kvölum, voru haldnir illum öndum, tunglsjúka menn og lama. Og hann læknaði þá.
4:25b.MAT.004.025 Mikill mannfjöldi fylgdi honum úr Galíleu, Dekapólis, Jerúsalem, Júdeu og landinu handan Jórdanar.
5
5:1b.MAT.005.001 Þegar hann sá mannfjöldann, gekk hann upp á fjallið. Þar settist hann, og lærisveinar hans komu til hans.
5:2b.MAT.005.002 Þá lauk hann upp munni sínum, kenndi þeim og sagði:
5:3b.MAT.005.003 "Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.
5:4b.MAT.005.004 Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða.
5:5b.MAT.005.005 Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.
5:6b.MAT.005.006 Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.
5:7b.MAT.005.007 Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
5:8b.MAT.005.008 Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
5:9b.MAT.005.009 Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
5:10b.MAT.005.010 Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki.
5:11b.MAT.005.011 Sælir eruð þér, þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna.
5:12b.MAT.005.012 Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar eru mikil á himnum. Þannig ofsóttu þeir spámennina, sem voru á undan yður.
5:13b.MAT.005.013 Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fótum.
5:14b.MAT.005.014 Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist.
5:15b.MAT.005.015 Ekki kveikja menn heldur ljós og setja undir mæliker, heldur á ljósastiku, og þá lýsir það öllum í húsinu.
5:16b.MAT.005.016 Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna, að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar, sem er á himnum.
5:17b.MAT.005.017 Ætlið ekki, að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema, heldur uppfylla.
5:18b.MAT.005.018 Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu, uns allt er komið fram.
5:19b.MAT.005.019 Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það, mun kallast minnstur í himnaríki, en sá, sem heldur þau og kennir, mun mikill kallast í himnaríki.
5:20b.MAT.005.020 Ég segi yður: Ef réttlæti yðar ber ekki af réttlæti fræðimanna og farísea, komist þér aldrei í himnaríki.
5:21b.MAT.005.021 Þér hafið heyrt, að sagt var við forfeðurna: ,Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur, skal svara til saka fyrir dómi.'
5:22b.MAT.005.022 En ég segi yður: Hver sem reiðist bróður sínum, skal svara til saka fyrir dómi. Sá sem hrakyrðir bróður sinn skal svara til saka fyrir ráðinu og hver sem svívirðir hann, hefur unnið til eldsvítis.
5:23b.MAT.005.023 Sértu því að færa fórn þína á altarið og minnist þess þar, að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér,
5:24b.MAT.005.024 þá skaltu skilja gjöf þína eftir fyrir framan altarið, fara fyrst og sættast við bróður þinn, koma síðan og færa fórn þína.
5:25b.MAT.005.025 Vertu skjótur til sátta við andstæðing þinn, meðan þú ert enn á vegi með honum, til þess að hann selji þig ekki dómaranum í hendur og dómarinn þjóninum og þér verði varpað í fangelsi.
5:26b.MAT.005.026 Sannlega segi ég þér: Eigi munt þú komast út þaðan, fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri.
5:27b.MAT.005.027 Þér hafið heyrt, að sagt var: ,Þú skalt ekki drýgja hór.'
5:28b.MAT.005.028 En ég segi yður: Hver sem horfir á konu í girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í hjarta sínu.
5:29b.MAT.005.029 Ef hægra auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr og kasta frá þér. Betra er þér, að einn lima þinna glatist, en öllum líkama þínum verði kastað í helvíti.
5:30b.MAT.005.030 Ef hægri hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af og kasta frá þér. Betra er þér, að einn lima þinna glatist, en allur líkami þinn fari til helvítis.
5:31b.MAT.005.031 Þá var og sagt: ,Sá sem skilur við konu sína, skal gefa henni skilnaðarbréf.'
5:32b.MAT.005.032 En ég segi yður: Hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður til þess, að hún drýgir hór. Og sá sem gengur að eiga fráskilda konu, drýgir hór.
5:33b.MAT.005.033 Enn hafið þér heyrt, að sagt var við forfeðurna: ,Þú skalt ekki vinna rangan eið, en halda skaltu eiða þína við Drottin.'
5:34b.MAT.005.034 En ég segi yður, að þér eigið alls ekki að sverja, hvorki við himininn, því hann er hásæti Guðs,
5:35b.MAT.005.035 né við jörðina, því hún er skör fóta hans, né við Jerúsalem, því hún er borg hins mikla konungs.
5:36b.MAT.005.036 Og eigi skaltu sverja við höfuð þitt, því að þú getur ekki gjört eitt hár hvítt eða svart.
5:37b.MAT.005.037 En þegar þér talið, sé já yðar já og nei sé nei. Það sem umfram er, kemur frá hinum vonda.
5:38b.MAT.005.038 Þér hafið heyrt, að sagt var: ,Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.'
5:39b.MAT.005.039 En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim, sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn, þá bjóð honum einnig hina.
5:40b.MAT.005.040 Og vilji einhver þreyta lög við þig og hafa af þér kyrtil þinn, gef honum eftir yfirhöfnina líka.
5:41b.MAT.005.041 Og neyði einhver þig með sér eina mílu, þá far með honum tvær.
5:42b.MAT.005.042 Gef þeim, sem biður þig, og snú ekki baki við þeim, sem vill fá lán hjá þér.
5:43b.MAT.005.043 Þér hafið heyrt, að sagt var: ,Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn.'
5:44b.MAT.005.044 En ég segi yður: Elskið óvini yðar, og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður,
5:45b.MAT.005.045 svo að þér reynist börn föður yðar á himnum, er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta.
5:46b.MAT.005.046 Þótt þér elskið þá, sem yður elska, hver laun eigið þér fyrir það? Gjöra ekki tollheimtumenn hið sama?
5:47b.MAT.005.047 Og hvað er það, þótt þér heilsið bræðrum yðar einum. Gjöra heiðnir menn ekki hið sama?
5:48b.MAT.005.048 Verið þér því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn.
6
6:1b.MAT.006.001 Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum, þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum.
6:2b.MAT.006.002 Þegar þú gefur ölmusu, skaltu ekki láta þeyta lúður fyrir þér, eins og hræsnarar gjöra í samkunduhúsum og á strætum til þess að hljóta lof af mönnum. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
6:3b.MAT.006.003 En þegar þú gefur ölmusu, viti vinstri hönd þín ekki, hvað sú hægri gjörir,
6:4b.MAT.006.004 svo að ölmusa þín sé í leynum, og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
6:5b.MAT.006.005 Og þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir. Þeir vilja helst standa og biðjast fyrir í samkundum og á gatnamótum, til þess að menn sjái þá. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
6:6b.MAT.006.006 En nær þú biðst fyrir, skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn, sem er í leynum. Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
6:7b.MAT.006.007 Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja. Þeir hyggja, að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína.
6:8b.MAT.006.008 Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann.
6:9b.MAT.006.009 En þannig skuluð þér biðja: Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn,
6:10b.MAT.006.010 til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
6:11b.MAT.006.011 Gef oss í dag vort daglegt brauð.
6:12b.MAT.006.012 Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
6:13b.MAT.006.013 Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. [Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.]
6:14b.MAT.006.014 Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður.
6:15b.MAT.006.015 En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.
6:16b.MAT.006.016 Þegar þér fastið, þá verið ekki daprir í bragði, eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín, svo að engum dyljist, að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
6:17b.MAT.006.017 En nær þú fastar, þá smyr höfuð þitt og þvo andlit þitt,
6:18b.MAT.006.018 svo að menn verði ekki varir við, að þú fastar, heldur faðir þinn, sem er í leynum. Og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
6:19b.MAT.006.019 Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela.
6:20b.MAT.006.020 Safnið yður heldur fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela.
6:21b.MAT.006.021 Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.
6:22b.MAT.006.022 Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt heilt, mun allur líkami þinn bjartur.
6:23b.MAT.006.023 En sé auga þitt spillt, verður allur líkami þinn dimmur. Ef nú ljósið í þér er myrkur, hvílíkt verður þá myrkrið.
6:24b.MAT.006.024 Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.
6:25b.MAT.006.025 Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin?
6:26b.MAT.006.026 Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim?
6:27b.MAT.006.027 Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?
6:28b.MAT.006.028 Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæði? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna.
6:29b.MAT.006.029 En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.
6:30b.MAT.006.030 Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlitlir!
6:31b.MAT.006.031 Segið því ekki áhyggjufullir: ,Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?'
6:32b.MAT.006.032 Allt þetta stunda heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa.
6:33b.MAT.006.033 En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.
6:34b.MAT.006.034 Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.
7
7:1b.MAT.007.001 Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir.
7:2b.MAT.007.002 Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.
7:3b.MAT.007.003 Hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu?
7:4b.MAT.007.004 Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: ,Lát mig draga flísina úr auga þér?' Og þó er bjálki í auga sjálfs þín.
7:5b.MAT.007.005 Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
7:6b.MAT.007.006 Gefið ekki hundum það sem heilagt er, og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum, og þeir snúa sér við og rífa yður í sig.
7:7b.MAT.007.007 Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
7:8b.MAT.007.008 Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.
7:9b.MAT.007.009 Eða hver er sá maður meðal yðar, sem gefur syni sínum stein, er hann biður um brauð?
7:10b.MAT.007.010 Eða höggorm, þegar hann biður um fisk?
7:11b.MAT.007.011 Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?
7:12b.MAT.007.012 Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir.
7:13b.MAT.007.013 Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður, sem liggur til glötunar, og margir þeir, sem þar fara inn.
7:14b.MAT.007.014 Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann.
7:15b.MAT.007.015 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar.
7:16b.MAT.007.016 Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum?
7:17b.MAT.007.017 Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu, en slæmt tré vonda.
7:18b.MAT.007.018 Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu.
7:19b.MAT.007.019 Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.
7:20b.MAT.007.020 Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá.
7:21b.MAT.007.021 Ekki mun hver sá, sem við mig segir: ,Herra, herra,' ganga inn í himnaríki, heldur sá einn, er gjörir vilja föður míns, sem er á himnum.
7:22b.MAT.007.022 Margir munu segja við mig á þeim degi: ,Herra, herra, höfum vér ekki kennt í þínu nafni, rekið út illa anda í þínu nafni og gjört í þínu nafni mörg kraftaverk?'
7:23b.MAT.007.023 Þá mun ég votta þetta: ,Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.'
7:24b.MAT.007.024 Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni, er byggði hús sitt á bjargi.
7:25b.MAT.007.025 Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi, en það féll eigi, því það var grundvallað á bjargi.
7:26b.MAT.007.026 En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni, er byggði hús sitt á sandi.
7:27b.MAT.007.027 Steypiregn skall á, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi. Það féll, og fall þess var mikið."
7:28b.MAT.007.028 Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu, undraðist mannfjöldinn mjög kenningu hans,
7:29b.MAT.007.029 því að hann kenndi þeim eins og sá, er vald hefur, og ekki eins og fræðimenn þeirra.
8
8:1b.MAT.008.001 Nú gekk Jesús niður af fjallinu, og fylgdi honum mikill mannfjöldi.
8:2b.MAT.008.002 Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: "Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig."
8:3b.MAT.008.003 Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: "Ég vil, verð þú hreinn!" Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni.
8:4b.MAT.008.004 Jesús sagði við hann: "Gæt þess að segja þetta engum, en far þú, sýn þig prestinum, og færðu þá fórn, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar."
8:5b.MAT.008.005 Þegar hann kom til Kapernaum, gekk til hans hundraðshöfðingi og bað hann:
8:6b.MAT.008.006 "Herra, sveinn minn liggur heima lami, mjög þungt haldinn."
8:7b.MAT.008.007 Jesús sagði: "Ég kem og lækna hann."
8:8b.MAT.008.008 Þá sagði hundraðshöfðinginn: "Herra, ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt. Mæl þú aðeins eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.
8:9b.MAT.008.009 Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ,Far þú,' og hann fer, og við annan: ,Kom þú,' og hann kemur, og við þjón minn: ,Gjör þetta,' og hann gjörir það."
8:10b.MAT.008.010 Þegar Jesús heyrði þetta, undraðist hann og mælti við þá, sem fylgdu honum: "Sannlega segi ég yður, þvílíka trú hef ég ekki fundið hjá neinum í Ísrael.
8:11b.MAT.008.011 En ég segi yður: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki,
8:12b.MAT.008.012 en synir ríkisins munu út reknir í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna."
8:13b.MAT.008.013 Þá sagði Jesús við hundraðshöfðingjann: "Far þú, verði þér sem þú trúir." Og sveinninn varð heill á þeirri stundu.
8:14b.MAT.008.014 Jesús kom í hús Péturs og sá, að tengdamóðir hans lá með sótthita.
8:15b.MAT.008.015 Hann snart hönd hennar, og sótthitinn fór úr henni. Hún reis á fætur og gekk honum fyrir beina.
8:16b.MAT.008.016 Þegar kvöld var komið, færðu menn til hans marga, er haldnir voru illum öndum. Illu andana rak hann út með orði einu, og alla þá, er sjúkir voru, læknaði hann.
8:17b.MAT.008.017 Það átti að rætast, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns: "Hann tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora."
8:18b.MAT.008.018 En þegar Jesús sá mikinn mannfjölda kringum sig, bauð hann að fara yfir um vatnið.
8:19b.MAT.008.019 Þá kom fræðimaður einn til hans og sagði: "Meistari, ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð."
8:20b.MAT.008.020 Jesús sagði við hann: "Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla."
8:21b.MAT.008.021 Annar, úr hópi lærisveinanna, sagði við hann: "Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn."
8:22b.MAT.008.022 Jesús svarar honum: "Fylg þú mér, en lát hina dauðu jarða sína dauðu."
8:23b.MAT.008.023 Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum.
8:24b.MAT.008.024 Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf.
8:25b.MAT.008.025 Þeir fara til, vekja hann og segja: "Herra, bjarga þú, vér förumst."
8:26b.MAT.008.026 Hann sagði við þá: "Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?" Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn.
8:27b.MAT.008.027 Mennirnir undruðust og sögðu: "Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum."
8:28b.MAT.008.028 Þegar hann kom yfir um, í byggð Gadarena, komu á móti honum frá gröfunum tveir menn haldnir illum öndum, svo skæðir, að enginn mátti þann veg fara.
8:29b.MAT.008.029 Þeir æpa: "Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?"
8:30b.MAT.008.030 En langt frá þeim var mikil svínahjörð á beit.
8:31b.MAT.008.031 Illu andarnir báðu hann og sögðu: "Ef þú rekur okkur út, sendu okkur þá í svínahjörðina."
8:32b.MAT.008.032 Hann sagði: "Farið!" Út fóru þeir og í svínin, og öll hjörðin ruddist fram af hamrinum í vatnið og týndist þar.
8:33b.MAT.008.033 En hirðarnir flýðu, komu til borgarinnar og sögðu öll tíðindin, líka frá mönnunum, sem haldnir voru illum öndum.
8:34b.MAT.008.034 Og allir borgarmenn fóru út til móts við Jesú, og þegar þeir sáu hann, báðu þeir hann að fara burt úr héruðum þeirra.
9
9:1b.MAT.009.001 Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar.
9:2b.MAT.009.002 Þar færa menn honum lama mann, sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn: "Vertu hughraustur, barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar."
9:3b.MAT.009.003 Nokkrir fræðimenn sögðu þá með sjálfum sér: "Hann guðlastar!"
9:4b.MAT.009.004 En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði: "Hví hugsið þér illt í hjörtum yðar?
9:5b.MAT.009.005 Hvort er auðveldara að segja: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar' eða: ,Statt upp og gakk'?
9:6b.MAT.009.006 En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér" - og nú talar hann við lama manninn: "Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín!"
9:7b.MAT.009.007 Og hann stóð upp og fór heim til sín.
9:8b.MAT.009.008 En fólkið, sem horfði á þetta, varð ótta slegið og lofaði Guð, sem gefið hafði mönnum slíkt vald.
9:9b.MAT.009.009 Þá er hann gekk þaðan, sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: "Fylg þú mér!" Og hann stóð upp og fylgdi honum.
9:10b.MAT.009.010 Nú bar svo við, er Jesús sat að borði í húsi hans, að margir tollheimtumenn og bersyndugir komu og settust þar með honum og lærisveinum hans.
9:11b.MAT.009.011 Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við lærisveina hans: "Hvers vegna etur meistari yðar með tollheimtumönnum og bersyndugum?"
9:12b.MAT.009.012 Jesús heyrði þetta og sagði: "Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru.
9:13b.MAT.009.013 Farið og nemið, hvað þetta merkir: ,Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir.' Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara."
9:14b.MAT.009.014 Þá koma til hans lærisveinar Jóhannesar og segja: "Hví föstum vér og farísear, en þínir lærisveinar fasta ekki?"
9:15b.MAT.009.015 Jesús svaraði þeim: "Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir, meðan brúðguminn er hjá þeim? En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn. Þá munu þeir fasta.
9:16b.MAT.009.016 Enginn lætur bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur bótin út frá sér og verður af verri rifa.
9:17b.MAT.009.017 Ekki láta menn heldur nýtt vín á gamla belgi, því þá springa belgirnir, og vínið fer niður, en belgirnir ónýtast. Menn láta nýtt vín á nýja belgi, og varðveitist þá hvort tveggja."
9:18b.MAT.009.018 Meðan hann var að segja þetta við þá, kom forstöðumaður einn, laut honum og sagði: "Dóttir mín var að skilja við, kom og legg hönd þína yfir hana, þá mun hún lifna."
9:19b.MAT.009.019 Jesús stóð upp og fór með honum og lærisveinar hans.
9:20b.MAT.009.020 Kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár, kom þá að baki honum og snart fald klæða hans.
9:21b.MAT.009.021 Hún hugsaði með sér: "Ef ég fæ aðeins snert klæði hans, mun ég heil verða."
9:22b.MAT.009.022 Jesús sneri sér við, og er hann sá hana, sagði hann: "Vertu hughraust, dóttir, trú þín hefur bjargað þér." Og konan varð heil frá þeirri stundu.
9:23b.MAT.009.023 Þegar Jesús kom að húsi forstöðumannsins og sá pípuleikara og fólkið í uppnámi,
9:24b.MAT.009.024 sagði hann: "Farið burt! Stúlkan er ekki dáin, hún sefur." En þeir hlógu að honum.
9:25b.MAT.009.025 Þegar fólkið hafði verið látið fara, gekk hann inn og tók hönd hennar, og reis þá stúlkan upp.
9:26b.MAT.009.026 Og þessi tíðindi bárust um allt það hérað.
9:27b.MAT.009.027 Þá er Jesús hélt þaðan, fóru tveir blindir menn eftir honum og kölluðu: "Miskunna þú okkur, sonur Davíðs."
9:28b.MAT.009.028 Þegar hann kom heim, gengu blindu mennirnir til hans. Jesús spyr þá: "Trúið þið, að ég geti gjört þetta?" Þeir sögðu: "Já, herra."
9:29b.MAT.009.029 Þá snart hann augu þeirra og mælti: "Verði ykkur að trú ykkar."
9:30b.MAT.009.030 Og augu þeirra lukust upp. Jesús lagði ríkt á við þá og sagði: "Gætið þess, að enginn fái að vita þetta."
9:31b.MAT.009.031 En þeir fóru og víðfrægðu hann í öllu því héraði.
9:32b.MAT.009.032 Þegar þeir voru að fara, var komið til hans með mállausan mann, haldinn illum anda.
9:33b.MAT.009.033 Og er illi andinn var út rekinn, tók málleysinginn að mæla. Mannfjöldinn undraðist og sagði: "Aldrei hefur þvílíkt sést í Ísrael."
9:34b.MAT.009.034 En farísearnir sögðu: "Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana."
9:35b.MAT.009.035 Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi.
9:36b.MAT.009.036 En er hann sá mannfjöldann, kenndi hann í brjósti um þá, því þeir voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa.
9:37b.MAT.009.037 Þá sagði hann við lærisveina sína: "Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir.
9:38b.MAT.009.038 Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar."
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Matthew (Icelandic). Matthew (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DD4-8