Psalms (Icelandic)

Psalms (Icelandic)

1

1:1b.PSA.001.001 Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

1:2b.PSA.001.002 heldur hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt.

1:3b.PSA.001.003 Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum.

1:4b.PSA.001.004 Svo fer eigi hinum óguðlega, heldur sem sáðum, er vindur feykir.

1:5b.PSA.001.005 Þess vegna munu hinir óguðlegu eigi standast í dóminum og syndugir eigi í söfnuði réttlátra.

1:6b.PSA.001.006 Því að Drottinn þekkir veg réttlátra, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.

10

10:1b.PSA.010.001 Hví stendur þú fjarri, Drottinn, hví byrgir þú augu þín á neyðartímum?

10:2b.PSA.010.002 Hinn óguðlegi ofsækir hina hrjáðu í hroka sínum, þeir flækjast í vélum þeim, er þeir hafa upp hugsað.

10:3b.PSA.010.003 Hinn óguðlegi lofar Guð fyrir það, er sála hans girnist, og hinn ásælni prísar Drottin, sem hann fyrirlítur.

10:4b.PSA.010.004 Hinn óguðlegi segir í drambsemi sinni: "Hann hegnir eigi!" "Guð er ekki til" - svo hugsar hann í öllu.

10:5b.PSA.010.005 Fyrirtæki hans heppnast ætíð, dómar þínir fara hátt yfir höfði hans, alla fjandmenn sína kúgar hann.

10:6b.PSA.010.006 Hann segir í hjarta sínu: "Ég verð eigi valtur á fótum, frá kyni til kyns mun ég eigi í ógæfu rata."

10:7b.PSA.010.007 Munnur hans er fullur af formælingum, svikum og ofbeldi, undir tungu hans býr illska og ranglæti.

10:8b.PSA.010.008 Hann situr í launsátri í þorpunum, í skúmaskotinu drepur hann hinn saklausa, augu hans skima eftir hinum bágstöddu.

10:9b.PSA.010.009 Hann gjörir fyrirsát í fylgsninu eins og ljón í skógarrunni; hann gjörir fyrirsát til þess að ná hinum volaða, hann nær honum í snöru sína, í net sitt.

10:10b.PSA.010.010 Kraminn hnígur hann niður, hinn bágstaddi fellur fyrir klóm hans.

10:11b.PSA.010.011 Hann segir í hjarta sínu: "Guð gleymir því, hann hefir hulið auglit sitt, sér það aldrei."

10:12b.PSA.010.012 Rís þú upp, Drottinn! Lyft þú upp hendi þinni, Guð! Gleym eigi hinum voluðu.

10:13b.PSA.010.013 Hvers vegna á hinn óguðlegi að sýna Guði fyrirlitningu, segja í hjarta sínu: "Þú hegnir eigi"?

10:14b.PSA.010.014 Þú gefur gaum að mæðu og böli til þess að taka það í hönd þína. Hinn bágstaddi felur þér það; þú ert hjálpari föðurlausra.

10:15b.PSA.010.015 Brjót þú armlegg hins óguðlega, og er þú leitar að guðleysi hins vonda, finnur þú það eigi framar.

10:16b.PSA.010.016 Drottinn er konungur um aldur og ævi, heiðingjum er útrýmt úr landi hans.

10:17b.PSA.010.017 Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn, þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt.

10:18b.PSA.010.018 Þú lætur hina föðurlausu og kúguðu ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun.

100

100:1b.PSA.100.001 Þakkarfórnar-sálmur. Öll veröldin fagni fyrir Drottni!

100:2b.PSA.100.002 Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng!

100:3b.PSA.100.003 Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefir skapað oss, og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð.

100:4b.PSA.100.004 Gangið inn um hlið hans með lofsöng, í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.

100:5b.PSA.100.005 Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.

101

101:1b.PSA.101.001 Davíðssálmur. Ég vil syngja um miskunn og rétt, lofsyngja þér, Drottinn.

101:2b.PSA.101.002 Ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda - hvenær kemur þú til mín? Í grandvarleik hjartans vil ég ganga um í húsi mínu.

101:3b.PSA.101.003 Ég læt mér eigi til hugar koma neitt níðingsverk. Ég hata þá sem illa breyta, þeir fá engin mök við mig að eiga.

101:4b.PSA.101.004 Rangsnúið hjarta skal frá mér víkja, ég kannast eigi við hinn vonda.

101:5b.PSA.101.005 Rægi einhver náunga sinn í leyni, þagga ég niður í honum. Hver sem er hrokafullur og drembilátur í hjarta, hann fæ ég ekki þolað.

101:6b.PSA.101.006 Augu mín horfa á hina trúföstu í landinu, að þeir megi búa hjá mér. Sá sem gengur grandvarleikans vegu, hann skal þjóna mér.

101:7b.PSA.101.007 Enginn má dvelja í húsi mínu, er svik fremur. Sá er lygar mælir stenst eigi fyrir augum mínum.

101:8b.PSA.101.008 Á hverjum morgni þagga ég niður í öllum óguðlegum í landinu. Ég útrými úr borg Drottins öllum illgjörðamönnum.

102

102:1b.PSA.102.001 Bæn hrjáðs manns, þá er hann örmagnast og úthellir kveini sínu fyrir Drottni. Drottinn, heyr þú bæn mína og hróp mitt berist til þín.

102:2b.PSA.102.002 Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, þegar ég er í nauðum staddur, hneig að mér eyra þitt, þegar ég kalla, flýt þér að bænheyra mig.

102:3b.PSA.102.003 Því að dagar mínir hverfa sem reykur, bein mín brenna sem eldur.

102:4b.PSA.102.004 Hjarta mitt er mornað og þornað sem gras, því að ég gleymi að neyta brauðs míns.

102:5b.PSA.102.005 Sakir kveinstafa minna er ég sem skinin bein.

102:6b.PSA.102.006 Ég líkist pelíkan í eyðimörkinni, er sem ugla í rústum.

102:7b.PSA.102.007 Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.

102:8b.PSA.102.008 Daginn langan smána óvinir mínir mig, fjandmenn mínir formæla með nafni mínu.

102:9b.PSA.102.009 Ég et ösku sem brauð og blanda drykk minn tárum

102:10b.PSA.102.010 sakir reiði þinnar og bræði, af því að þú hefir tekið mig upp og varpað mér burt.

102:11b.PSA.102.011 Dagar mínir eru sem hallur skuggi, og ég visna sem gras.

102:12b.PSA.102.012 En þú, Drottinn, ríkir að eilífu, og nafn þitt varir frá kyni til kyns.

102:13b.PSA.102.013 Þú munt rísa upp til þess að miskunna Síon, því að tími er kominn til þess að líkna henni, já, stundin er komin.

102:14b.PSA.102.014 Þjónar þínir elska steina hennar og harma yfir öskuhrúgum hennar.

102:15b.PSA.102.015 Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína,

102:16b.PSA.102.016 því að Drottinn byggir upp Síon og birtist í dýrð sinni.

102:17b.PSA.102.017 Hann snýr sér að bæn hinna nöktu og fyrirlítur eigi bæn þeirra.

102:18b.PSA.102.018 Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð, og þjóð, sem enn er ósköpuð, skal lofa Drottin.

102:19b.PSA.102.019 Því að Drottinn lítur niður af sínum helgu hæðum, horfir frá himni til jarðar

102:20b.PSA.102.020 til þess að heyra andvarpanir bandingjanna og leysa börn dauðans,

102:21b.PSA.102.021 að þau mættu kunngjöra nafn Drottins í Síon og lofstír hans í Jerúsalem,

102:22b.PSA.102.022 þegar þjóðirnar safnast saman og konungsríkin til þess að þjóna Drottni.

102:23b.PSA.102.023 Hann hefir bugað kraft minn á ferð minni, stytt daga mína.

102:24b.PSA.102.024 Ég segi: Guð minn, tak mig eigi burt á miðri ævinni. Ár þín vara frá kyni til kyns.

102:25b.PSA.102.025 Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina, og himnarnir eru verk handa þinna.

102:26b.PSA.102.026 Þeir líða undir lok, en þú varir. Þeir fyrnast sem fat, þú skiptir þeim sem klæðum, og þeir hverfa.

102:27b.PSA.102.027 En þú ert hinn sami, og þín ár fá engan enda.

102:28b.PSA.102.028 Synir þjóna þinna munu búa kyrrir og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.

103

103:1b.PSA.103.001 Davíðssálmur. Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn,

103:2b.PSA.103.002 lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans.

103:3b.PSA.103.003 Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein,

103:4b.PSA.103.004 leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn.

103:5b.PSA.103.005 Hann mettar þig gæðum, þú yngist upp sem örninn.

103:6b.PSA.103.006 Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.

103:7b.PSA.103.007 Hann gjörði Móse vegu sína kunna og Ísraelsbörnum stórvirki sín.

103:8b.PSA.103.008 Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.

103:9b.PSA.103.009 Hann þreytir eigi deilur um aldur og er eigi eilíflega reiður.

103:10b.PSA.103.010 Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum,

103:11b.PSA.103.011 heldur svo hár sem himinninn er yfir jörðunni, svo voldug er miskunn hans við þá er óttast hann.

103:12b.PSA.103.012 Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss.

103:13b.PSA.103.013 Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann.

103:14b.PSA.103.014 Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér erum mold.

103:15b.PSA.103.015 Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni,

103:16b.PSA.103.016 þegar vindur blæs á hann er hann horfinn, og staður hans þekkir hann ekki framar.

103:17b.PSA.103.017 En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar, og réttlæti hans nær til barnabarnanna,

103:18b.PSA.103.018 þeirra er varðveita sáttmála hans og muna að breyta eftir boðum hans.

103:19b.PSA.103.019 Drottinn hefir reist hásæti sitt á himnum, og konungdómur hans drottnar yfir alheimi.

103:20b.PSA.103.020 Lofið Drottin, þér englar hans, þér voldugu hetjur, er framkvæmið boð hans, er þér heyrið hljóminn af orði hans.

103:21b.PSA.103.021 Lofið Drottin, allar hersveitir hans, þjónar hans, er framkvæmið vilja hans.

103:22b.PSA.103.022 Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin, sála mín.

104

104:1b.PSA.104.001 Lofa þú Drottin, sála mín! Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill. Þú ert klæddur hátign og vegsemd.

104:2b.PSA.104.002 Þú hylur þig ljósi eins og skikkju, þenur himininn út eins og tjalddúk.

104:3b.PSA.104.003 Þú hvelfir hásal þinn í vötnunum, gjörir ský að vagni þínum, og ferð um á vængjum vindarins.

104:4b.PSA.104.004 Þú gjörir vindana að sendiboðum þínum, bálandi eld að þjónum þínum.

104:5b.PSA.104.005 Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.

104:6b.PSA.104.006 Hafflóðið huldi hana sem klæði, vötnin náðu upp yfir fjöllin,

104:7b.PSA.104.007 en fyrir þinni ógnun flýðu þau, fyrir þrumurödd þinni hörfuðu þau undan með skelfingu.

104:8b.PSA.104.008 Þau gengu yfir fjöllin, steyptust niður í dalina, þangað sem þú hafðir búið þeim stað.

104:9b.PSA.104.009 Þú settir takmörk, sem þau mega ekki fara yfir, þau skulu ekki hylja jörðina framar.

104:10b.PSA.104.010 Þú sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna,

104:11b.PSA.104.011 þær svala öllum dýrum merkurinnar, villiasnarnir slökkva þorsta sinn.

104:12b.PSA.104.012 Yfir þeim byggja fuglar himins, láta kvak sitt heyrast milli greinanna.

104:13b.PSA.104.013 Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna.

104:14b.PSA.104.014 Þú lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðinni

104:15b.PSA.104.015 og vín, sem gleður hjarta mannsins, olíu, sem gjörir andlitið gljáandi, og brauð, sem hressir hjarta mannsins.

104:16b.PSA.104.016 Tré Drottins mettast, sedrustrén á Líbanon, er hann hefir gróðursett

104:17b.PSA.104.017 þar sem fuglarnir byggja hreiður, storkarnir, er hafa kýprestrén að húsi.

104:18b.PSA.104.018 Hin háu fjöll eru handa steingeitunum, klettarnir eru hæli fyrir stökkhérana.

104:19b.PSA.104.019 Þú gjörðir tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit, hvar hún á að ganga til viðar.

104:20b.PSA.104.020 Þegar þú gjörir myrkur, verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik.

104:21b.PSA.104.021 Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði.

104:22b.PSA.104.022 Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum,

104:23b.PSA.104.023 en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld.

104:24b.PSA.104.024 Hversu mörg eru verk þín, Drottinn, þú gjörðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað.

104:25b.PSA.104.025 Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór.

104:26b.PSA.104.026 Þar fara skipin um og Levjatan, er þú hefir skapað til þess að leika sér þar.

104:27b.PSA.104.027 Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.

104:28b.PSA.104.028 Þú gefur þeim, og þau tína, þú lýkur upp hendi þinni, og þau mettast gæðum.

104:29b.PSA.104.029 Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau, þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar.

104:30b.PSA.104.030 Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar.

104:31b.PSA.104.031 Dýrð Drottins vari að eilífu, Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,

104:32b.PSA.104.032 hann sem lítur til jarðar, svo að hún nötrar, sem snertir við fjöllunum, svo að úr þeim rýkur.

104:33b.PSA.104.033 Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.

104:34b.PSA.104.034 Ó að mál mitt mætti falla honum í geð! Ég gleðst yfir Drottni.

104:35b.PSA.104.035 Ó að syndarar mættu hverfa af jörðunni og óguðlegir eigi vera til framar. Vegsama þú Drottin, sála mín. Halelúja.

105

105:1b.PSA.105.001 Þakkið Drottni, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna!

105:2b.PSA.105.002 Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk.

105:3b.PSA.105.003 Hrósið yður af hans helga nafni, hjarta þeirra er leita Drottins gleðjist.

105:4b.PSA.105.004 Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífellt eftir augliti hans.

105:5b.PSA.105.005 Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans,

105:6b.PSA.105.006 þér niðjar Abrahams, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu.

105:7b.PSA.105.007 Hann er Drottinn, vor Guð, um víða veröld ganga dómar hans.

105:8b.PSA.105.008 Hann minnist að eilífu sáttmála síns, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða,

105:9b.PSA.105.009 sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak,

105:10b.PSA.105.010 þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael,

105:11b.PSA.105.011 þá er hann mælti: Þér mun ég gefa Kanaanland sem erfðahlut yðar.

105:12b.PSA.105.012 Þegar þeir voru fámennur hópur, örfáir og bjuggu þar útlendingar,

105:13b.PSA.105.013 þá fóru þeir frá einni þjóð til annarrar og frá einu konungsríki til annars lýðs.

105:14b.PSA.105.014 Hann leið engum að kúga þá og hegndi konungum þeirra vegna.

105:15b.PSA.105.015 "Snertið eigi við mínum smurðu og gjörið eigi spámönnum mínum mein."

105:16b.PSA.105.016 Þá er hann kallaði hallæri yfir landið, braut í sundur hverja stoð brauðsins,

105:17b.PSA.105.017 þá sendi hann mann á undan þeim, Jósef var seldur sem þræll.

105:18b.PSA.105.018 Þeir þjáðu fætur hans með fjötrum, hann var lagður í járn,

105:19b.PSA.105.019 allt þar til er orð hans rættust, og orð Drottins létu hann standast raunina.

105:20b.PSA.105.020 Konungur sendi boð og lét hann lausan, drottnari þjóðanna leysti fjötra hans.

105:21b.PSA.105.021 Hann gjörði hann að herra yfir húsi sínu og að drottnara yfir öllum eigum sínum,

105:22b.PSA.105.022 að hann gæti fjötrað höfðingja eftir vild og kennt öldungum hans speki.

105:23b.PSA.105.023 Síðan kom Ísrael til Egyptalands, Jakob var gestur í landi Kams.

105:24b.PSA.105.024 Og Guð gjörði lýð sinn mjög mannmargan og lét þá verða fleiri en fjendur þeirra.

105:25b.PSA.105.025 Hann sneri hjörtum Egypta til haturs við lýð sinn, til lævísi við þjóna sína.

105:26b.PSA.105.026 Hann sendi Móse, þjón sinn, og Aron, er hann hafði útvalið,

105:27b.PSA.105.027 hann gjörði tákn sín á þeim og undur í landi Kams.

105:28b.PSA.105.028 Hann sendi sorta og myrkvaði landið, en þeir gáfu orðum hans engan gaum,

105:29b.PSA.105.029 hann breytti vötnum þeirra í blóð og lét fiska þeirra deyja,

105:30b.PSA.105.030 land þeirra varð kvikt af froskum, alla leið inn í svefnherbergi konungs,

105:31b.PSA.105.031 hann bauð, þá komu flugur, mývargur um öll héruð þeirra,

105:32b.PSA.105.032 hann gaf þeim hagl fyrir regn, bálandi eld í land þeirra,

105:33b.PSA.105.033 hann laust vínvið þeirra og fíkjutré og braut sundur trén í héruðum þeirra,

105:34b.PSA.105.034 hann bauð, þá kom jarðvargur og óteljandi engisprettur,

105:35b.PSA.105.035 sem átu upp allar jurtir í landi þeirra og átu upp ávöxtinn af jörð þeirra,

105:36b.PSA.105.036 hann laust alla frumburði í landi þeirra, frumgróða alls styrkleiks þeirra.

105:37b.PSA.105.037 Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli, enginn hrasaði af kynkvíslum hans.

105:38b.PSA.105.038 Egyptaland gladdist yfir burtför þeirra, því að ótti við þá var fallinn yfir þá.

105:39b.PSA.105.039 Hann breiddi út ský sem hlíf og eld til þess að lýsa um nætur.

105:40b.PSA.105.040 Þeir báðu, þá lét hann lynghæns koma og mettaði þá með himnabrauði.

105:41b.PSA.105.041 Hann opnaði klett, svo að vatn vall upp, rann sem fljót um eyðimörkina.

105:42b.PSA.105.042 Hann minntist síns heilaga heits við Abraham þjón sinn

105:43b.PSA.105.043 og leiddi lýð sinn út með gleði, sína útvöldu með fögnuði.

105:44b.PSA.105.044 Og hann gaf þeim lönd þjóðanna, það sem þjóðirnar höfðu aflað með striti, fengu þeir til eignar,

105:45b.PSA.105.045 til þess að þeir skyldu halda lög hans og varðveita lögmál hans. Halelúja.

106

106:1b.PSA.106.001 Halelúja! Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

106:2b.PSA.106.002 Hver getur sagt frá máttarverkum Drottins, kunngjört allan lofstír hans?

106:3b.PSA.106.003 Sælir eru þeir, sem gæta réttarins, sem iðka réttlæti alla tíma.

106:4b.PSA.106.004 Minnst þú mín, Drottinn, með velþóknun þeirri, er þú hefir á lýð þínum, vitja mín með hjálpræði þínu,

106:5b.PSA.106.005 að ég megi horfa með unun á hamingju þinna útvöldu, gleðjast yfir gleði þjóðar þinnar, fagna með eignarlýð þínum.

106:6b.PSA.106.006 Vér höfum syndgað ásamt feðrum vorum, höfum breytt illa og óguðlega.

106:7b.PSA.106.007 Feður vorir í Egyptalandi gáfu eigi gætur að dásemdarverkum þínum, minntust eigi þinnar miklu miskunnar og sýndu Hinum hæsta þrjósku hjá Hafinu rauða.

106:8b.PSA.106.008 Þó hjálpaði hann þeim sakir nafns síns til þess að kunngjöra mátt sinn.

106:9b.PSA.106.009 Hann hastaði á Hafið rauða, svo að það þornaði upp, og lét þá ganga um djúpin eins og um eyðimörk.

106:10b.PSA.106.010 Hann frelsaði þá af hendi hatursmanna þeirra og leysti þá af hendi óvinanna.

106:11b.PSA.106.011 Vötnin huldu fjendur þeirra, ekki einn af þeim komst undan.

106:12b.PSA.106.012 Þá trúðu þeir orðum hans, sungu honum lof.

106:13b.PSA.106.013 En þeir gleymdu fljótt verkum hans, treystu eigi á ráð hans.

106:14b.PSA.106.014 Þeir fylltust lysting í eyðimörkinni og freistuðu Guðs í öræfunum.

106:15b.PSA.106.015 Þá veitti hann þeim bæn þeirra og sendi þeim megurð.

106:16b.PSA.106.016 Þá öfunduðust þeir við Móse í herbúðunum, við Aron, hinn heilaga Drottins.

106:17b.PSA.106.017 Jörðin opnaðist og svalg Datan og huldi flokk Abírams,

106:18b.PSA.106.018 eldur kviknaði í flokki þeirra, loginn brenndi hina óguðlegu.

106:19b.PSA.106.019 Þeir bjuggu til kálf hjá Hóreb og lutu steyptu líkneski,

106:20b.PSA.106.020 og létu vegsemd sína í skiptum fyrir mynd af uxa, er gras etur.

106:21b.PSA.106.021 Þeir gleymdu Guði, frelsara sínum, þeim er stórvirki gjörði í Egyptalandi,

106:22b.PSA.106.022 dásemdarverk í landi Kams, óttaleg verk við Hafið rauða.

106:23b.PSA.106.023 Þá hugði hann á að tortíma þeim, ef Móse, hans útvaldi, hefði eigi gengið fram fyrir hann og borið af blakið, til þess að afstýra reiði hans, svo að hann skyldi eigi tortíma.

106:24b.PSA.106.024 Þeir fyrirlitu hið unaðslega land og trúðu eigi orðum hans.

106:25b.PSA.106.025 Þeir mögluðu í tjöldum sínum og hlýddu eigi á raust Drottins.

106:26b.PSA.106.026 Þá lyfti hann hendi sinni gegn þeim og sór að láta þá falla í eyðimörkinni,

106:27b.PSA.106.027 tvístra niðjum þeirra meðal þjóðanna og dreifa þeim um löndin.

106:28b.PSA.106.028 Þeir dýrkuðu Baal Peór og átu fórnir dauðra skurðgoða.

106:29b.PSA.106.029 Þeir egndu hann til reiði með athæfi sínu, og braust því út plága meðal þeirra.

106:30b.PSA.106.030 En Pínehas gekk fram og skar úr, og þá staðnaði plágan.

106:31b.PSA.106.031 Og honum var reiknað það til réttlætis, frá kyni til kyns, að eilífu.

106:32b.PSA.106.032 Þeir reittu hann til reiði hjá Meríba-vötnum, þá fór illa fyrir Móse þeirra vegna,

106:33b.PSA.106.033 því að þeir sýndu þrjósku anda hans, og honum hrutu ógætnisorð af vörum.

106:34b.PSA.106.034 Þeir eyddu eigi þjóðunum, er Drottinn hafði boðið þeim,

106:35b.PSA.106.035 heldur lögðu þeir lag sitt við heiðingjana og lærðu athæfi þeirra.

106:36b.PSA.106.036 Þeir dýrkuðu skurðgoð þeirra, og þau urðu þeim að snöru,

106:37b.PSA.106.037 þeir færðu að fórnum sonu sína og dætur sínar illum vættum

106:38b.PSA.106.038 og úthelltu saklausu blóði, blóði sona sinna og dætra, er þeir fórnfærðu skurðgoðum Kanaans, svo að landið vanhelgaðist af blóðskuldinni.

106:39b.PSA.106.039 Þeir saurguðust af verkum sínum og frömdu tryggðrof með athæfi sínu.

106:40b.PSA.106.040 Þá upptendraðist reiði Drottins gegn lýð hans, og hann fékk viðbjóð á arfleifð sinni.

106:41b.PSA.106.041 Hann gaf þá á vald heiðingjum, og hatursmenn þeirra drottnuðu yfir þeim.

106:42b.PSA.106.042 Óvinir þeirra þjökuðu þá, og þeir urðu að beygja sig undir vald þeirra.

106:43b.PSA.106.043 Mörgum sinnum bjargaði hann þeim, en þeir sýndu þrjósku í ráði sínu og urðu að lúta sakir misgjörðar sinnar.

106:44b.PSA.106.044 Samt leit hann á neyð þeirra, er hann heyrði kvein þeirra.

106:45b.PSA.106.045 Hann minntist sáttmála síns við þá og aumkaðist yfir þá sakir sinnar miklu miskunnar

106:46b.PSA.106.046 og lét þá finna miskunn hjá öllum þeim er höfðu haft þá burt hernumda.

106:47b.PSA.106.047 Hjálpa þú oss, Drottinn, Guð vor, og safna oss saman frá þjóðunum, að vér megum lofa þitt heilaga nafn, víðfrægja lofstír þinn.

106:48b.PSA.106.048 Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð, frá eilífð til eilífðar. Og allur lýðurinn segi: Amen! Halelúja.

107

107:1b.PSA.107.001 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

107:2b.PSA.107.002 Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefir leyst úr nauðum

107:3b.PSA.107.003 og safnað saman úr löndunum, frá austri og vestri, frá norðri og suðri.

107:4b.PSA.107.004 Þeir reikuðu um eyðimörkina, um veglaus öræfin, og fundu eigi byggilegar borgir,

107:5b.PSA.107.005 þá hungraði og þyrsti, sál þeirra vanmegnaðist í þeim.

107:6b.PSA.107.006 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann bjargaði þeim úr angist þeirra

107:7b.PSA.107.007 og leiddi þá um slétta leið, svo að þeir komust til byggilegrar borgar.

107:8b.PSA.107.008 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

107:9b.PSA.107.009 því að hann mettaði magnþrota sál og fyllti hungraða sál gæðum.

107:10b.PSA.107.010 Þeir sem sátu í myrkri og niðdimmu, bundnir eymd og járnum,

107:11b.PSA.107.011 af því að þeir höfðu þrjóskast við orðum Guðs og fyrirlitið ráð Hins hæsta,

107:12b.PSA.107.012 svo að hann beygði hug þeirra með mæðu, þeir hrösuðu, og enginn liðsinnti þeim.

107:13b.PSA.107.013 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra,

107:14b.PSA.107.014 hann leiddi þá út úr myrkrinu og niðdimmunni og braut sundur fjötra þeirra.

107:15b.PSA.107.015 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

107:16b.PSA.107.016 því að hann braut eirhliðin og mölvaði járnslárnar.

107:17b.PSA.107.017 Heimskingjar, er vegna sinnar syndsamlegu breytni og vegna misgjörða sinna voru þjáðir,

107:18b.PSA.107.018 þeim bauð við hverri fæðu og voru komnir nálægt hliðum dauðans.

107:19b.PSA.107.019 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, hann frelsaði þá úr angist þeirra,

107:20b.PSA.107.020 hann sendi út orð sitt og læknaði þá og bjargaði þeim frá gröfinni.

107:21b.PSA.107.021 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

107:22b.PSA.107.022 og færa þakkarfórnir og kunngjöra verk hans með fögnuði.

107:23b.PSA.107.023 Þeir sem fóru um hafið á skipum, ráku verslun á hinum miklu vötnum,

107:24b.PSA.107.024 þeir hafa séð verk Drottins og dásemdir hans á djúpinu.

107:25b.PSA.107.025 Því að hann bauð og þá kom stormviðri, sem hóf upp bylgjur þess.

107:26b.PSA.107.026 Þeir hófust til himins, sigu niður í djúpið, þeim féllst hugur í neyðinni.

107:27b.PSA.107.027 Þeir römbuðu og skjögruðu eins og drukkinn maður, og öll kunnátta þeirra var þrotin.

107:28b.PSA.107.028 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, og hann leiddi þá úr angist þeirra.

107:29b.PSA.107.029 Hann breytti stormviðrinu í blíðan blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar.

107:30b.PSA.107.030 Þá glöddust þeir, af því að þær kyrrðust, og hann lét þá komast í höfn þá, er þeir þráðu.

107:31b.PSA.107.031 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans og dásemdarverk hans við mannanna börn,

107:32b.PSA.107.032 vegsama hann á þjóðarsamkomunni og lofa hann í hóp öldunganna.

107:33b.PSA.107.033 Hann gjörir fljótin að eyðimörk og uppsprettur að þurrum lendum,

107:34b.PSA.107.034 frjósamt land að saltsléttu sakir illsku íbúanna.

107:35b.PSA.107.035 Hann gjörir eyðimörkina að vatnstjörnum og þurrlendið að uppsprettum

107:36b.PSA.107.036 og lætur hungraða menn búa þar, að þeir megi grundvalla byggilega borg,

107:37b.PSA.107.037 sá akra og planta víngarða og afla afurða.

107:38b.PSA.107.038 Og hann blessar þá, svo að þeir margfaldast stórum og fénað þeirra lætur hann eigi fækka.

107:39b.PSA.107.039 Og þótt þeir fækki og hnígi niður sakir þrengingar af böli og harmi,

107:40b.PSA.107.040 þá hellir hann fyrirlitning yfir tignarmenn og lætur þá villast um veglaus öræfi,

107:41b.PSA.107.041 en bjargar aumingjanum úr eymdinni og gjörir ættirnar sem hjarðir.

107:42b.PSA.107.042 Hinir réttvísu sjá það og gleðjast, og öll illska lokar munni sínum.

107:43b.PSA.107.043 Hver sem er vitur, gefi gætur að þessu, og menn taki eftir náðarverkum Drottins.

108

108:1b.PSA.108.001 Ljóð. Davíðssálmur. Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!

108:2b.PSA.108.002 Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

108:3b.PSA.108.003 Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

108:4b.PSA.108.004 því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna.

108:5b.PSA.108.005 Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

108:6b.PSA.108.006 til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

108:7b.PSA.108.007 Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.

108:8b.PSA.108.008 Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

108:9b.PSA.108.009 Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."

108:10b.PSA.108.010 Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?

108:11b.PSA.108.011 Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

108:12b.PSA.108.012 Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.

108:13b.PSA.108.013 Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.

109

109:1b.PSA.109.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Þú Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður,

109:2b.PSA.109.002 því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir í gegn mér, tala við mig með ljúgandi tungu.

109:3b.PSA.109.003 Með hatursorðum umkringja þeir mig og áreita mig að ástæðulausu.

109:4b.PSA.109.004 Þeir launa mér elsku mína með ofsókn, en ég gjöri ekki annað en biðja.

109:5b.PSA.109.005 Þeir launa mér gott með illu og elsku mína með hatri.

109:6b.PSA.109.006 Set óguðlegan yfir mótstöðumann minn, og ákærandinn standi honum til hægri handar.

109:7b.PSA.109.007 Hann gangi sekur frá dómi og bæn hans verði til syndar.

109:8b.PSA.109.008 Dagar hans verði fáir, og annar hljóti embætti hans.

109:9b.PSA.109.009 Börn hans verði föðurlaus og kona hans ekkja.

109:10b.PSA.109.010 Börn hans fari á flæking og vergang, þau verði rekin burt úr rústum sínum.

109:11b.PSA.109.011 Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans, og útlendir fjandmenn ræni afla hans.

109:12b.PSA.109.012 Enginn sýni honum líkn, og enginn aumkist yfir föðurlausu börnin hans.

109:13b.PSA.109.013 Niðjar hans verði afmáðir, nafn hans útskafið í fyrsta ættlið.

109:14b.PSA.109.014 Misgjörðar feðra hans verði minnst af Drottni og synd móður hans eigi afmáð,

109:15b.PSA.109.015 séu þær ætíð fyrir sjónum Drottins og hann afmái minningu þeirra af jörðunni

109:16b.PSA.109.016 sakir þess, að hann mundi eigi eftir að sýna elsku, heldur ofsótti hinn hrjáða og snauða og hinn ráðþrota til þess að drepa hann.

109:17b.PSA.109.017 Hann elskaði bölvunina, hún bitni þá á honum, hann smáði blessunina, hún sé þá fjarri honum.

109:18b.PSA.109.018 Hann íklæddist bölvuninni sem kufli, hún læsti sig þá inn í innyfli hans sem vatn og í bein hans sem olía,

109:19b.PSA.109.019 hún verði honum sem klæði, er hann sveipar um sig, og sem belti, er hann sífellt gyrðist.

109:20b.PSA.109.020 Þetta séu laun andstæðinga minna frá Drottni og þeirra, er tala illt í gegn mér.

109:21b.PSA.109.021 En þú, Drottinn Guð, breyt við mig eftir gæsku miskunnar þinnar, frelsa mig sakir nafns þíns,

109:22b.PSA.109.022 því að ég er hrjáður og snauður, hjartað berst ákaft í brjósti mér.

109:23b.PSA.109.023 Ég hverf sem hallur skuggi, ég er hristur út eins og jarðvargar.

109:24b.PSA.109.024 Kné mín skjögra af föstu, og hold mitt tærist af viðsmjörsskorti.

109:25b.PSA.109.025 Ég er orðinn þeim að spotti, þegar þeir sjá mig, hrista þeir höfuðið.

109:26b.PSA.109.026 Veit mér lið, Drottinn, Guð minn, hjálpa mér eftir miskunn þinni,

109:27b.PSA.109.027 að þeir megi komast að raun um, að það var þín hönd, að það varst þú, Drottinn, sem gjörðir það.

109:28b.PSA.109.028 Bölvi þeir, þú munt blessa, verði þeir til skammar, er rísa gegn mér, en þjónn þinn gleðjist.

109:29b.PSA.109.029 Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing, sveipi um sig skömminni eins og skikkju.

109:30b.PSA.109.030 Ég vil lofa Drottin mikillega með munni mínum, meðal fjölmennis vil ég vegsama hann,

109:31b.PSA.109.031 því að hann stendur hinum snauða til hægri handar til þess að hjálpa honum gegn þeim er sakfella hann.

11

11:1b.PSA.011.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Hjá Drottni leita ég hælis. Hvernig getið þér sagt við mig: "Fljúg sem fugl til fjallanna!"

11:2b.PSA.011.002 Því að nú benda hinir óguðlegu bogann, leggja örvar sínar á streng til þess að skjóta í myrkrinu á hina hjartahreinu.

11:3b.PSA.011.003 Þegar stoðirnar eru rifnar niður, hvað megna þá hinir réttlátu?

11:4b.PSA.011.004 Drottinn er í sínu heilaga musteri, hásæti Drottins er á himnum, augu hans sjá, sjónir hans rannsaka mennina.

11:5b.PSA.011.005 Drottinn rannsakar hinn réttláta og hinn óguðlega, og þann er elskar ofríki, hatar hann.

11:6b.PSA.011.006 Á óguðlega lætur hann rigna glóandi kolum, eldur og brennisteinn og brennheitur vindur er þeirra mældi bikar.

11:7b.PSA.011.007 Því að Drottinn er réttlátur og hefir mætur á réttlætisverkum. Hinir hreinskilnu fá að líta auglit hans.

110

110:1b.PSA.110.001 Davíðssálmur. Svo segir Drottinn við herra minn: "Sest þú mér til hægri handar, þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér."

110:2b.PSA.110.002 Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon, drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

110:3b.PSA.110.003 Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

110:4b.PSA.110.004 Drottinn hefir svarið, og hann iðrar þess eigi: "Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks."

110:5b.PSA.110.005 Drottinn er þér til hægri handar, hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

110:6b.PSA.110.006 Hann heldur dóm meðal þjóðanna, fyllir allt líkum, hann knosar höfuð um víðan vang.

110:7b.PSA.110.007 Á leiðinni drekkur hann úr læknum, þess vegna ber hann höfuðið hátt.

111

111:1b.PSA.111.001 Halelúja. Ég vil lofa Drottin af öllu hjarta, í félagi og söfnuði réttvísra.

111:2b.PSA.111.002 Mikil eru verk Drottins, verð íhugunar öllum þeim, er hafa unun af þeim.

111:3b.PSA.111.003 Tign og vegsemd eru verk hans og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.

111:4b.PSA.111.004 Hann hefir látið dásemdarverka sinna minnst verða, náðugur og miskunnsamur er Drottinn.

111:5b.PSA.111.005 Hann hefir gefið fæðu þeim, er óttast hann, hann minnist að eilífu sáttmála síns.

111:6b.PSA.111.006 Hann hefir kunngjört þjóð sinni kraft verka sinna, með því að gefa þeim eignir heiðingjanna.

111:7b.PSA.111.007 Verk handa hans eru trúfesti og réttvísi, öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg,

111:8b.PSA.111.008 örugg um aldur og ævi, framkvæmd í trúfesti og réttvísi.

111:9b.PSA.111.009 Hann hefir sent lausn lýð sínum, skipað sáttmála sinn að eilífu, heilagt og óttalegt er nafn hans.

111:10b.PSA.111.010 Upphaf speki er ótti Drottins, hann er fögur hyggindi öllum þeim, er iðka hann. Lofstír hans stendur um eilífð.

112

112:1b.PSA.112.001 Halelúja. Sæll er sá maður, sem óttast Drottin og hefir mikla unun af boðum hans.

112:2b.PSA.112.002 Niðjar hans verða voldugir á jörðunni, ætt réttvísra mun blessun hljóta.

112:3b.PSA.112.003 Nægtir og auðæfi eru í húsi hans, og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.

112:4b.PSA.112.004 Hann upprennur réttvísum sem ljós í myrkrinu, mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.

112:5b.PSA.112.005 Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána, sem framkvæmir málefni sín með réttvísi,

112:6b.PSA.112.006 því að hann mun eigi haggast að eilífu, hins réttláta mun minnst um eilífð.

112:7b.PSA.112.007 Hann óttast eigi ill tíðindi, hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.

112:8b.PSA.112.008 Hjarta hans er öruggt, hann óttast eigi, og loks fær hann að horfa á fjendur sína auðmýkta.

112:9b.PSA.112.009 Hann hefir miðlað mildilega, gefið fátækum, réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.

112:10b.PSA.112.010 Hinn óguðlegi sér það, og honum gremst, nístir tönnum og tortímist. Ósk óguðlegra verður að engu.

113

113:1b.PSA.113.001 Halelúja. Þjónar Drottins, lofið, lofið nafn Drottins.

113:2b.PSA.113.002 Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu.

113:3b.PSA.113.003 Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.

113:4b.PSA.113.004 Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

113:5b.PSA.113.005 Hver er sem Drottinn, Guð vor? Hann situr hátt

113:6b.PSA.113.006 og horfir djúpt á himni og á jörðu.

113:7b.PSA.113.007 Hann reisir lítilmagnann úr duftinu, lyftir snauðum upp úr saurnum

113:8b.PSA.113.008 og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum, hjá tignarmönnum þjóðar hans.

113:9b.PSA.113.009 Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja.

114

114:1b.PSA.114.001 Þegar Ísrael fór út af Egyptalandi, Jakobs ætt frá þjóðinni, er mælti á erlenda tungu,

114:2b.PSA.114.002 varð Júda helgidómur hans, Ísrael ríki hans.

114:3b.PSA.114.003 Hafið sá það og flýði, Jórdan hörfaði undan.

114:4b.PSA.114.004 Fjöllin hoppuðu sem hrútar, hæðirnar sem lömb.

114:5b.PSA.114.005 Hvað er þér, haf, er þú flýr, Jórdan, er þú hörfar undan,

114:6b.PSA.114.006 þér fjöll, er þér hoppið sem hrútar, þér hæðir sem lömb?

114:7b.PSA.114.007 Titra þú, jörð, fyrir augliti Drottins, fyrir augliti Jakobs Guðs,

114:8b.PSA.114.008 hans sem gjörir klettinn að vatnstjörn, tinnusteininn að vatnslind.

115

115:1b.PSA.115.001 Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss, heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti.

115:2b.PSA.115.002 Hví eiga heiðingjarnir að segja: "Hvar er Guð þeirra?"

115:3b.PSA.115.003 En vor Guð er í himninum, allt sem honum þóknast, það gjörir hann.

115:4b.PSA.115.004 Skurðgoð þeirra eru silfur og gull, handaverk manna.

115:5b.PSA.115.005 Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki,

115:6b.PSA.115.006 þau hafa eyru, en heyra ekki, nef, en finna engan þef.

115:7b.PSA.115.007 Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur, en ganga ekki, þau tala eigi með barka sínum.

115:8b.PSA.115.008 Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir er á þau treysta.

115:9b.PSA.115.009 En Ísrael treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

115:10b.PSA.115.010 Arons ætt treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

115:11b.PSA.115.011 Þeir sem óttast Drottin treysta Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

115:12b.PSA.115.012 Drottinn minnist vor, hann mun blessa, hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt,

115:13b.PSA.115.013 hann mun blessa þá er óttast Drottin, yngri sem eldri.

115:14b.PSA.115.014 Drottinn mun fjölga yður, sjálfum yður og börnum yðar.

115:15b.PSA.115.015 Þér eruð blessaðir af Drottni, skapara himins og jarðar.

115:16b.PSA.115.016 Himinninn er himinn Drottins, en jörðina hefir hann gefið mannanna börnum.

115:17b.PSA.115.017 Eigi lofa andaðir menn Drottin, né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn,

115:18b.PSA.115.018 en vér viljum lofa Drottin, héðan í frá og að eilífu. Halelúja.

116

116:1b.PSA.116.001 Ég elska Drottin, af því að hann heyrir grátbeiðni mína.

116:2b.PSA.116.002 Hann hefir hneigt eyra sitt að mér, og alla ævi vil ég ákalla hann.

116:3b.PSA.116.003 Snörur dauðans umkringdu mig, angist Heljar mætti mér, ég mætti nauðum og harmi.

116:4b.PSA.116.004 Þá ákallaði ég nafn Drottins: "Ó, Drottinn, bjarga sál minni!"

116:5b.PSA.116.005 Náðugur er Drottinn og réttlátur, og vor Guð er miskunnsamur.

116:6b.PSA.116.006 Drottinn varðveitir varnarlausa, þegar ég var máttvana hjálpaði hann mér.

116:7b.PSA.116.007 Verð þú aftur róleg, sála mín, því að Drottinn gjörir vel til þín.

116:8b.PSA.116.008 Já, þú hreifst sál mína frá dauða, auga mitt frá gráti, fót minn frá hrösun.

116:9b.PSA.116.009 Ég geng frammi fyrir Drottni á landi lifenda.

116:10b.PSA.116.010 Ég trúði, þó ég segði: "Ég er mjög beygður."

116:11b.PSA.116.011 Ég sagði í angist minni: "Allir menn ljúga."

116:12b.PSA.116.012 Hvað á ég að gjalda Drottni fyrir allar velgjörðir hans við mig?

116:13b.PSA.116.013 Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.

116:14b.PSA.116.014 Ég greiði Drottni heit mín, og það í augsýn alls lýðs hans.

116:15b.PSA.116.015 Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans.

116:16b.PSA.116.016 Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn, ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.

116:17b.PSA.116.017 Þér færi ég þakkarfórn og ákalla nafn Drottins.

116:18b.PSA.116.018 Ég greiði Drottni heit mín, og það í augsýn alls lýðs hans,

116:19b.PSA.116.019 í forgörðum húss Drottins, í þér, Jerúsalem. Halelúja.

117

117:1b.PSA.117.001 Lofið Drottin, allar þjóðir, vegsamið hann, allir lýðir,

117:2b.PSA.117.002 því að miskunn hans er voldug yfir oss, og trúfesti Drottins varir að eilífu. Halelúja.

118

118:1b.PSA.118.001 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

118:2b.PSA.118.002 Það mæli Ísrael: "Því að miskunn hans varir að eilífu!"

118:3b.PSA.118.003 Það mæli Arons ætt: "Því að miskunn hans varir að eilífu!"

118:4b.PSA.118.004 Það mæli þeir sem óttast Drottin: "Því að miskunn hans varir að eilífu!"

118:5b.PSA.118.005 Í þrengingunni ákallaði ég Drottin, hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.

118:6b.PSA.118.006 Drottinn er með mér, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?

118:7b.PSA.118.007 Drottinn er með mér með hjálp sína, og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.

118:8b.PSA.118.008 Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum,

118:9b.PSA.118.009 betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.

118:10b.PSA.118.010 Allar þjóðir umkringdu mig, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

118:11b.PSA.118.011 Þær umkringdu mig á alla vegu, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

118:12b.PSA.118.012 Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

118:13b.PSA.118.013 Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla, en Drottinn veitti mér lið.

118:14b.PSA.118.014 Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mér til hjálpræðis.

118:15b.PSA.118.015 Fagnaðar- og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra: Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,

118:16b.PSA.118.016 hægri hönd Drottins upphefur, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

118:17b.PSA.118.017 Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.

118:18b.PSA.118.018 Drottinn hefir hirt mig harðlega, en eigi ofurselt mig dauðanum.

118:19b.PSA.118.019 Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins, að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.

118:20b.PSA.118.020 Þetta er hlið Drottins, réttlátir menn fara inn um það.

118:21b.PSA.118.021 Ég lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.

118:22b.PSA.118.022 Steinninn sem smiðirnir höfnuðu er orðinn að hyrningarsteini.

118:23b.PSA.118.023 Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum.

118:24b.PSA.118.024 Þetta er dagurinn sem Drottinn hefir gjört, fögnum, verum glaðir á honum.

118:25b.PSA.118.025 Drottinn, hjálpa þú, Drottinn, gef þú gengi!

118:26b.PSA.118.026 Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vér yður.

118:27b.PSA.118.027 Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum, allt inn að altarishornunum.

118:28b.PSA.118.028 Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig.

118:29b.PSA.118.029 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

119

119:1b.PSA.119.001 Sælir eru þeir sem breyta grandvarlega, þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.

119:2b.PSA.119.002 Sælir eru þeir er halda reglur hans, þeir er leita hans af öllu hjarta

119:3b.PSA.119.003 og eigi fremja ranglæti, en ganga á vegum hans.

119:4b.PSA.119.004 Þú hefir gefið skipanir þínar, til þess að menn skuli halda þær vandlega.

119:5b.PSA.119.005 Ó að breytni mín mætti vera staðföst, svo að ég varðveiti lög þín.

119:6b.PSA.119.006 Þá mun ég eigi til skammar verða, er ég gef gaum að öllum boðum þínum.

119:7b.PSA.119.007 Ég skal þakka þér af einlægu hjarta, er ég hefi numið þín réttlátu ákvæði.

119:8b.PSA.119.008 Ég vil gæta laga þinna, þá munt þú alls ekki yfirgefa mig.

119:9b.PSA.119.009 Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.

119:10b.PSA.119.010 Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.

119:11b.PSA.119.011 Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.

119:12b.PSA.119.012 Lofaður sért þú, Drottinn, kenn mér lög þín.

119:13b.PSA.119.013 Með vörum mínum tel ég upp öll ákvæði munns þíns.

119:14b.PSA.119.014 Yfir vegi vitnisburða þinna gleðst ég eins og yfir alls konar auði.

119:15b.PSA.119.015 Fyrirmæli þín vil ég íhuga og skoða vegu þína.

119:16b.PSA.119.016 Ég leita unaðar í lögum þínum, gleymi eigi orði þínu.

119:17b.PSA.119.017 Veit þjóni þínum að lifa, að ég megi halda orð þín.

119:18b.PSA.119.018 Ljúk upp augum mínum, að ég megi skoða dásemdirnar í lögmáli þínu.

119:19b.PSA.119.019 Ég er útlendingur á jörðunni, dyl eigi boð þín fyrir mér.

119:20b.PSA.119.020 Sál mín er kvalin af þrá eftir ákvæðum þínum alla tíma.

119:21b.PSA.119.021 Þú hefir ógnað ofstopamönnunum, bölvaðir eru þeir, sem víkja frá boðum þínum.

119:22b.PSA.119.022 Velt þú af mér háðung og skömm, því að ég hefi haldið reglur þínar.

119:23b.PSA.119.023 Þótt þjóðhöfðingjar sitji og taki saman ráð sín gegn mér, þá íhugar þjónn þinn lög þín.

119:24b.PSA.119.024 Og reglur þínar eru unun mín, boð þín eru ráðgjafar mínir.

119:25b.PSA.119.025 Sál mín loðir við duftið, lát mig lífi halda eftir orði þínu.

119:26b.PSA.119.026 Ég hefi talið upp málefni mín, og þú bænheyrðir mig, kenn mér lög þín.

119:27b.PSA.119.027 Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna, að ég megi íhuga dásemdir þínar.

119:28b.PSA.119.028 Sál mín tárast af trega, reis mig upp eftir orði þínu.

119:29b.PSA.119.029 Lát veg lyginnar vera fjarri mér og veit mér náðarsamlega lögmál þitt.

119:30b.PSA.119.030 Ég hefi útvalið veg sannleikans, sett mér ákvæði þín fyrir sjónir.

119:31b.PSA.119.031 Ég held fast við reglur þínar, Drottinn, lát mig eigi verða til skammar.

119:32b.PSA.119.032 Ég vil skunda veg boða þinna, því að þú hefir gjört mér létt um hjartað.

119:33b.PSA.119.033 Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.

119:34b.PSA.119.034 Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.

119:35b.PSA.119.035 Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.

119:36b.PSA.119.036 Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.

119:37b.PSA.119.037 Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.

119:38b.PSA.119.038 Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.

119:39b.PSA.119.039 Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.

119:40b.PSA.119.040 Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.

119:41b.PSA.119.041 Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn, hjálpræði þitt, samkvæmt fyrirheiti þínu,

119:42b.PSA.119.042 að ég fái andsvör veitt þeim er smána mig, því að þínu orði treysti ég.

119:43b.PSA.119.043 Og tak aldrei sannleikans orð burt úr munni mínum, því að ég bíð dóma þinna.

119:44b.PSA.119.044 Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og ævi,

119:45b.PSA.119.045 þá mun ég ganga um víðlendi, því að ég leita fyrirmæla þinna,

119:46b.PSA.119.046 þá mun ég tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi skammast mín,

119:47b.PSA.119.047 og leita unaðar í boðum þínum, þeim er ég elska,

119:48b.PSA.119.048 og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er ég elska, og íhuga lög þín.

119:49b.PSA.119.049 Minnst þú þess orðs við þjón þinn, sem þú lést mig vona á.

119:50b.PSA.119.050 Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífi halda.

119:51b.PSA.119.051 Ofstopamenn spotta mig ákaflega, en ég vík eigi frá lögmáli þínu.

119:52b.PSA.119.052 Ég minnist dóma þinna frá öndverðu, Drottinn, og læt huggast.

119:53b.PSA.119.053 Heiftarreiði við óguðlega hrífur mig, við þá er yfirgefa lögmál þitt.

119:54b.PSA.119.054 Lög þín eru efni ljóða minna á þessum stað, þar sem ég er gestur.

119:55b.PSA.119.055 Um nætur minnist ég nafns þíns, Drottinn, og geymi laga þinna.

119:56b.PSA.119.056 Þetta er orðin hlutdeild mín, að halda fyrirmæli þín.

119:57b.PSA.119.057 Drottinn er hlutskipti mitt, ég hefi ákveðið að varðveita orð þín.

119:58b.PSA.119.058 Ég hefi leitað hylli þinnar af öllu hjarta, ver mér náðugur samkvæmt fyrirheiti þínu.

119:59b.PSA.119.059 Ég hefi athugað vegu mína og snúið fótum mínum að reglum þínum.

119:60b.PSA.119.060 Ég hefi flýtt mér og eigi tafið að varðveita boð þín.

119:61b.PSA.119.061 Snörur óguðlegra lykja um mig, en lögmáli þínu hefi ég eigi gleymt.

119:62b.PSA.119.062 Um miðnætti rís ég upp til þess að þakka þér þín réttlátu ákvæði.

119:63b.PSA.119.063 Ég er félagi allra þeirra er óttast þig og varðveita fyrirmæli þín.

119:64b.PSA.119.064 Jörðin er full af miskunn þinni, Drottinn, kenn mér lög þín.

119:65b.PSA.119.065 Þú hefir gjört vel til þjóns þíns eftir orði þínu, Drottinn.

119:66b.PSA.119.066 Kenn mér góð hyggindi og þekkingu, því að ég trúi á boð þín.

119:67b.PSA.119.067 Áður en ég var beygður, villtist ég, en nú varðveiti ég orð þitt.

119:68b.PSA.119.068 Þú ert góður og gjörir vel, kenn mér lög þín.

119:69b.PSA.119.069 Ofstopamenn spinna upp lygar gegn mér, en ég held fyrirmæli þín af öllu hjarta.

119:70b.PSA.119.070 Hjarta þeirra er tilfinningarlaust sem mör væri, en ég leita unaðar í lögmáli þínu.

119:71b.PSA.119.071 Það varð mér til góðs, að ég var beygður, til þess að ég mætti læra lög þín.

119:72b.PSA.119.072 Lögmálið af munni þínum er mér mætara en þúsundir af gulli og silfri.

119:73b.PSA.119.073 Hendur þínar hafa gjört mig og skapað, veit mér skyn, að ég megi læra boð þín.

119:74b.PSA.119.074 Þeir er óttast þig sjá mig og gleðjast, því að ég vona á orð þitt.

119:75b.PSA.119.075 Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir og að þú hefir lægt mig í trúfesti þinni.

119:76b.PSA.119.076 Lát miskunn þína verða mér til huggunar, eins og þú hefir heitið þjóni þínum.

119:77b.PSA.119.077 Lát miskunn þína koma yfir mig, að ég megi lifa, því að lögmál þitt er unun mín.

119:78b.PSA.119.078 Lát ofstopamennina verða til skammar, af því að þeir kúga mig með rangsleitni, en ég íhuga fyrirmæli þín.

119:79b.PSA.119.079 Til mín snúi sér þeir er óttast þig og þeir er þekkja reglur þínar.

119:80b.PSA.119.080 Hjarta mitt sé grandvart í lögum þínum, svo að ég verði eigi til skammar.

119:81b.PSA.119.081 Sál mín tærist af þrá eftir hjálpræði þínu, ég bíð eftir orði þínu.

119:82b.PSA.119.082 Augu mín tærast af þrá eftir fyrirheiti þínu: Hvenær munt þú hugga mig?

119:83b.PSA.119.083 Því að ég er orðinn eins og belgur í reykhúsi, en lögum þínum hefi ég eigi gleymt.

119:84b.PSA.119.084 Hversu margir eru dagar þjóns þíns? Hvenær munt þú heyja dóm á ofsækjendum mínum?

119:85b.PSA.119.085 Ofstopamenn hafa grafið mér grafir, menn, er eigi hlýða lögmáli þínu.

119:86b.PSA.119.086 Öll boð þín eru trúfesti. Menn ofsækja mig með lygum, veit þú mér lið.

119:87b.PSA.119.087 Nærri lá, að þeir gjörðu út af við mig á jörðunni, og þó hafði ég eigi yfirgefið fyrirmæli þín.

119:88b.PSA.119.088 Lát mig lífi halda sakir miskunnar þinnar, að ég megi varðveita reglurnar af munni þínum.

119:89b.PSA.119.089 Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.

119:90b.PSA.119.090 Frá kyni til kyns varir trúfesti þín, þú hefir grundvallað jörðina, og hún stendur.

119:91b.PSA.119.091 Eftir ákvæðum þínum stendur hún enn í dag, því að allt lýtur þér.

119:92b.PSA.119.092 Ef lögmál þitt hefði eigi verið unun mín, þá hefði ég farist í eymd minni.

119:93b.PSA.119.093 Ég skal eigi gleyma fyrirmælum þínum að eilífu, því að með þeim hefir þú látið mig lífi halda.

119:94b.PSA.119.094 Þinn er ég, hjálpa þú mér, því að ég leita fyrirmæla þinna.

119:95b.PSA.119.095 Óguðlegir bíða mín til þess að tortíma mér, en ég gef gætur að reglum þínum.

119:96b.PSA.119.096 Á allri fullkomnun hefi ég séð endi, en þín boð eiga sér engin takmörk.

119:97b.PSA.119.097 Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan liðlangan daginn íhuga ég það.

119:98b.PSA.119.098 Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér til um eilífð.

119:99b.PSA.119.099 Ég er hyggnari en allir kennarar mínir, því að ég íhuga reglur þínar.

119:100b.PSA.119.100 Ég er skynsamari en öldungar, því að ég held fyrirmæli þín.

119:101b.PSA.119.101 Ég held fæti mínum frá hverjum vondum vegi til þess að gæta orðs þíns.

119:102b.PSA.119.102 Frá ákvæðum þínum hefi ég eigi vikið, því að þú hefir frætt mig.

119:103b.PSA.119.103 Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum.

119:104b.PSA.119.104 Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn, fyrir því hata ég sérhvern lygaveg.

119:105b.PSA.119.105 Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.

119:106b.PSA.119.106 Ég hefi svarið og haldið það að varðveita þín réttlátu ákvæði.

119:107b.PSA.119.107 Ég er mjög beygður, Drottinn, lát mig lífi halda eftir orði þínu.

119:108b.PSA.119.108 Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns, Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.

119:109b.PSA.119.109 Líf mitt er ætíð í hættu, en þínu lögmáli hefi ég eigi gleymt.

119:110b.PSA.119.110 Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig, en ég hefi eigi villst frá fyrirmælum þínum.

119:111b.PSA.119.111 Reglur þínar eru eign mín um aldur, því að þær eru yndi hjarta míns.

119:112b.PSA.119.112 Ég hneigi hjarta mitt að því að breyta eftir lögum þínum, um aldur og allt til enda.

119:113b.PSA.119.113 Ég hata þá, er haltra til beggja hliða, en lögmál þitt elska ég.

119:114b.PSA.119.114 Þú ert skjól mitt og skjöldur, ég vona á orð þitt.

119:115b.PSA.119.115 Burt frá mér, þér illgjörðamenn, að ég megi halda boð Guðs míns.

119:116b.PSA.119.116 Styð mig samkvæmt fyrirheiti þínu, að ég megi lifa, og lát mig eigi til skammar verða í von minni.

119:117b.PSA.119.117 Styð þú mig, að ég megi frelsast og ætíð líta til laga þinna.

119:118b.PSA.119.118 Þú hafnar öllum þeim, er villast frá lögum þínum, því að svik þeirra eru til einskis.

119:119b.PSA.119.119 Sem sora metur þú alla óguðlega á jörðu, þess vegna elska ég reglur þínar.

119:120b.PSA.119.120 Hold mitt nötrar af hræðslu fyrir þér, og dóma þína óttast ég.

119:121b.PSA.119.121 Ég hefi iðkað rétt og réttlæti, sel mig eigi í hendur kúgurum mínum.

119:122b.PSA.119.122 Gakk í ábyrgð fyrir þjón þinn, honum til heilla, lát eigi ofstopamennina kúga mig.

119:123b.PSA.119.123 Augu mín tærast af þrá eftir hjálpræði þínu og eftir þínu réttláta fyrirheiti.

119:124b.PSA.119.124 Far með þjón þinn eftir miskunn þinni og kenn mér lög þín.

119:125b.PSA.119.125 Ég er þjónn þinn, veit mér skyn, að ég megi þekkja reglur þínar.

119:126b.PSA.119.126 Tími er kominn fyrir Drottin að taka í taumana, þeir hafa rofið lögmál þitt.

119:127b.PSA.119.127 Þess vegna elska ég boð þín framar en gull og skíragull.

119:128b.PSA.119.128 Þess vegna held ég beina leið eftir öllum fyrirmælum þínum, ég hata sérhvern lygaveg.

119:129b.PSA.119.129 Reglur þínar eru dásamlegar, þess vegna heldur sál mín þær.

119:130b.PSA.119.130 Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fávísa vitra.

119:131b.PSA.119.131 Ég opna munninn af ílöngun, því ég þrái boð þín.

119:132b.PSA.119.132 Snú þér til mín og ver mér náðugur, eins og ákveðið er þeim er elska nafn þitt.

119:133b.PSA.119.133 Gjör skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert ranglæti drottna yfir mér.

119:134b.PSA.119.134 Leys mig undan kúgun manna, að ég megi varðveita fyrirmæli þín.

119:135b.PSA.119.135 Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn og kenn mér lög þín.

119:136b.PSA.119.136 Augu mín fljóta í tárum, af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.

119:137b.PSA.119.137 Réttlátur ert þú, Drottinn, og réttvísir dómar þínir.

119:138b.PSA.119.138 Þú hefir skipað fyrir reglur þínar með réttlæti og mikilli trúfesti.

119:139b.PSA.119.139 Ákefð mín eyðir mér, því að fjendur mínir hafa gleymt orðum þínum.

119:140b.PSA.119.140 Orð þitt er mjög hreint, og þjónn þinn elskar það.

119:141b.PSA.119.141 Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn, en fyrirmælum þínum hefi ég eigi gleymt.

119:142b.PSA.119.142 Réttlæti þitt er eilíft réttlæti og lögmál þitt trúfesti.

119:143b.PSA.119.143 Neyð og hörmung hafa mér að höndum borið, en boð þín eru unun mín.

119:144b.PSA.119.144 Reglur þínar eru réttlæti um eilífð, veit mér skyn, að ég megi lifa.

119:145b.PSA.119.145 Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn, ég vil halda lög þín.

119:146b.PSA.119.146 Ég ákalla þig, hjálpa þú mér, að ég megi varðveita reglur þínar.

119:147b.PSA.119.147 Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.

119:148b.PSA.119.148 Fyrr en vakan hefst eru augu mín vökul til þess að íhuga orð þitt.

119:149b.PSA.119.149 Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.

119:150b.PSA.119.150 Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði, þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.

119:151b.PSA.119.151 Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.

119:152b.PSA.119.152 Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar, að þú hefir grundvallað þær um eilífð.

119:153b.PSA.119.153 Sjá þú eymd mína og frelsa mig, því að ég hefi eigi gleymt lögmáli þínu.

119:154b.PSA.119.154 Flyt þú mál mitt og leys mig, lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.

119:155b.PSA.119.155 Hjálpræðið er fjarri óguðlegum, því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.

119:156b.PSA.119.156 Mikil er miskunn þín, Drottinn, lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.

119:157b.PSA.119.157 Margir eru ofsækjendur mínir og fjendur, en frá reglum þínum hefi ég eigi vikið.

119:158b.PSA.119.158 Ég sé trúrofana og kenni viðbjóðs, þeir varðveita eigi orð þitt.

119:159b.PSA.119.159 Sjá, hversu ég elska fyrirmæli þín, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.

119:160b.PSA.119.160 Allt orð þitt samanlagt er trúfesti, og hvert réttlætisákvæði þitt varir að eilífu.

119:161b.PSA.119.161 Höfðingjar ofsækja mig að ástæðulausu, en hjarta mitt óttast orð þín.

119:162b.PSA.119.162 Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá er fær mikið herfang.

119:163b.PSA.119.163 Ég hata lygi og hefi andstyggð á henni, en þitt lögmál elska ég.

119:164b.PSA.119.164 Sjö sinnum á dag lofa ég þig sakir þinna réttlátu ákvæða.

119:165b.PSA.119.165 Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt, og þeim er við engri hrösun hætt.

119:166b.PSA.119.166 Ég vænti hjálpræðis þíns, Drottinn, og framkvæmi boð þín.

119:167b.PSA.119.167 Sál mín varðveitir reglur þínar, og þær elska ég mjög.

119:168b.PSA.119.168 Ég varðveiti fyrirmæli þín og reglur, allir mínir vegir eru þér augljósir.

119:169b.PSA.119.169 Ó að hróp mitt mætti nálgast auglit þitt, Drottinn, veit mér að skynja í samræmi við orð þitt.

119:170b.PSA.119.170 Ó að grátbeiðni mín mætti koma fyrir auglit þitt, frelsa mig samkvæmt fyrirheiti þínu.

119:171b.PSA.119.171 Lof um þig skal streyma mér af vörum, því að þú kennir mér lög þín.

119:172b.PSA.119.172 Tunga mín skal mæra orð þitt, því að öll boðorð þín eru réttlæti.

119:173b.PSA.119.173 Hönd þín veiti mér lið, því að þín fyrirmæli hefi ég útvalið.

119:174b.PSA.119.174 Ég þrái hjálpræði þitt, Drottinn, og lögmál þitt er unun mín.

119:175b.PSA.119.175 Lát sál mína lifa, að hún megi lofa þig og dómar þínir veiti mér lið.

119:176b.PSA.119.176 Ég villist sem týndur sauður, leita þú þjóns þíns, því að þínum boðum hefi ég eigi gleymt.

12

12:1b.PSA.012.001 Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.

12:2b.PSA.012.002 Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.

12:3b.PSA.012.003 Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,

12:4b.PSA.012.004 þeim er segja: "Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?"

12:5b.PSA.012.005 "Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp," segir Drottinn. "Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana."

12:6b.PSA.012.006 Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.

12:7b.PSA.012.007 Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.

12:8b.PSA.012.008 Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.

120

120:1b.PSA.120.001 Helgigönguljóð. Ég ákalla Drottin í nauðum mínum, og hann bænheyrir mig.

120:2b.PSA.120.002 Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum, frá tælandi tungu.

120:3b.PSA.120.003 Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar, þú tælandi tunga?

120:4b.PSA.120.004 Örvar harðstjórans eru hvesstar með glóandi viðarkolum.

120:5b.PSA.120.005 Vei mér, að ég dvel hjá Mesek, bý hjá tjöldum Kedars.

120:6b.PSA.120.006 Nógu lengi hefir sál mín búið hjá þeim er friðinn hata.

120:7b.PSA.120.007 Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið.

121

121:1b.PSA.121.001 Helgigönguljóð Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?

121:2b.PSA.121.002 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.

121:3b.PSA.121.003 Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki.

121:4b.PSA.121.004 Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels.

121:5b.PSA.121.005 Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.

121:6b.PSA.121.006 Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur.

121:7b.PSA.121.007 Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.

121:8b.PSA.121.008 Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu.

122

122:1b.PSA.122.001 Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: "Göngum í hús Drottins."

122:2b.PSA.122.002 Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem.

122:3b.PSA.122.003 Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,

122:4b.PSA.122.004 þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins - það er regla fyrir Ísrael - til þess að lofa nafn Drottins,

122:5b.PSA.122.005 því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt.

122:6b.PSA.122.006 Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.

122:7b.PSA.122.007 Friður sé kringum múra þína, heill í höllum þínum.

122:8b.PSA.122.008 Sakir bræðra minna og vina óska ég þér friðar.

122:9b.PSA.122.009 Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju.

123

123:1b.PSA.123.001 Helgigönguljóð. Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum.

123:2b.PSA.123.002 Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar, svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss.

123:3b.PSA.123.003 Líkna oss, Drottinn, líkna oss, því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti.

123:4b.PSA.123.004 Sál vor hefir fengið meira en nóg af háði hrokafullra, af spotti dramblátra.

124

124:1b.PSA.124.001 Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, - skal Ísrael segja -

124:2b.PSA.124.002 hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, þegar menn risu í móti oss,

124:3b.PSA.124.003 þá hefðu þeir gleypt oss lifandi, þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss.

124:4b.PSA.124.004 Þá hefðu vötnin streymt yfir oss, elfur gengið yfir oss,

124:5b.PSA.124.005 þá hefðu gengið yfir oss hin beljandi vötn.

124:6b.PSA.124.006 Lofaður sé Drottinn, er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð.

124:7b.PSA.124.007 Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans. Brast snaran, burt sluppum vér.

124:8b.PSA.124.008 Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar.

125

125:1b.PSA.125.001 Helgigönguljóð. Þeir sem treysta Drottni eru sem Síonfjall, er eigi bifast, sem stendur að eilífu.

125:2b.PSA.125.002 Fjöll eru kringum Jerúsalem, og Drottinn er kringum lýð sinn héðan í frá og að eilífu.

125:3b.PSA.125.003 Því að veldissproti guðleysisins mun eigi hvíla á landi réttlátra, til þess að hinir réttlátu skuli eigi rétta fram hendur sínar til ranglætis.

125:4b.PSA.125.004 Gjör þú góðum vel til, Drottinn, og þeim sem hjartahreinir eru.

125:5b.PSA.125.005 En þá er beygja á krókóttar leiðir mun Drottinn láta hverfa með illgjörðamönnum. Friður sé yfir Ísrael!

126

126:1b.PSA.126.001 Helgigönguljóð. Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi.

126:2b.PSA.126.002 Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: "Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá."

126:3b.PSA.126.003 Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.

126:4b.PSA.126.004 Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.

126:5b.PSA.126.005 Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.

126:6b.PSA.126.006 Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.

127

127:1b.PSA.127.001 Helgigönguljóð. Eftir Salómon. Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis.

127:2b.PSA.127.002 Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð, sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!

127:3b.PSA.127.003 Sjá, synir eru gjöf frá Drottni, ávöxtur móðurkviðarins er umbun.

127:4b.PSA.127.004 Eins og örvar í hendi kappans, svo eru synir getnir í æsku.

127:5b.PSA.127.005 Sæll er sá maður, er fyllt hefir örvamæli sinn með þeim, þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.

128

128:1b.PSA.128.001 Helgigönguljóð. Sæll er hver sá, er óttast Drottin, er gengur á hans vegum.

128:2b.PSA.128.002 Já, afla handa þinna skalt þú njóta, sæll ert þú, vel farnast þér.

128:3b.PSA.128.003 Kona þín er sem frjósamur vínviður innst í húsi þínu, synir þínir sem teinungar olíutrésins umhverfis borð þitt.

128:4b.PSA.128.004 Sjá, sannarlega hlýtur slíka blessun sá maður, er óttast Drottin.

128:5b.PSA.128.005 Drottinn blessi þig frá Síon, þú munt horfa með unun á hamingju Jerúsalem alla ævidaga þína,

128:6b.PSA.128.006 og sjá sonu sona þinna. Friður sé yfir Ísrael!

129

129:1b.PSA.129.001 Helgigönguljóð. Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, - skal Ísrael segja -

129:2b.PSA.129.002 þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, en þó eigi borið af mér.

129:3b.PSA.129.003 Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,

129:4b.PSA.129.004 en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.

129:5b.PSA.129.005 Sneypast skulu þeir og undan hörfa, allir þeir sem hata Síon.

129:6b.PSA.129.006 Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist.

129:7b.PSA.129.007 Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína né sá fang sitt sem bindur,

129:8b.PSA.129.008 og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: "Blessun Drottins sé með yður." Vér blessum yður í nafni Drottins!

13

13:1b.PSA.013.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

13:2b.PSA.013.002 Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að gleyma mér með öllu? Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér?

13:3b.PSA.013.003 Hversu lengi á ég að bera sút í sál, harm í hjarta dag frá degi? Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir mig?

13:4b.PSA.013.004 Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að ég sofni ekki svefni dauðans,

13:5b.PSA.013.005 að óvinur minn geti ekki sagt: "Ég hefi borið af honum!" að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að mér skriðni fótur.

13:6b.PSA.013.006 Ég treysti á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín.

130

130:1b.PSA.130.001 Helgigönguljóð. Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn,

130:2b.PSA.130.002 Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!

130:3b.PSA.130.003 Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist?

130:4b.PSA.130.004 En hjá þér er fyrirgefning, svo að menn óttist þig.

130:5b.PSA.130.005 Ég vona á Drottin, sál mín vonar, og hans orðs bíð ég.

130:6b.PSA.130.006 Meir en vökumenn morgun, vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

130:7b.PSA.130.007 Ó Ísrael, bíð þú Drottins, því að hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.

130:8b.PSA.130.008 Hann mun leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.

131

131:1b.PSA.131.001 Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Drottinn, hjarta mitt er eigi dramblátt né augu mín hrokafull. Ég fæst eigi við mikil málefni, né þau sem mér eru ofvaxin.

131:2b.PSA.131.002 Sjá, ég hefi sefað sál mína og þaggað niður í henni. Eins og afvanið barn hjá móður sinni, svo er sál mín í mér.

131:3b.PSA.131.003 Vona, Ísrael, á Drottin, héðan í frá og að eilífu.

132

132:1b.PSA.132.001 Helgigönguljóð. Drottinn, mun þú Davíð allar þrautir hans,

132:2b.PSA.132.002 hann sem sór Drottni, gjörði heit hinum volduga Jakobs Guði:

132:3b.PSA.132.003 "Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt, eigi stíga í hvílurúm mitt,

132:4b.PSA.132.004 eigi unna augum mínum svefns né augnalokum mínum blunds,

132:5b.PSA.132.005 fyrr en ég hefi fundið stað fyrir Drottin, bústað fyrir hinn volduga Jakobs Guð."

132:6b.PSA.132.006 Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata, fundið hann á Jaarmörk.

132:7b.PSA.132.007 Látum oss ganga til bústaðar Guðs, falla fram á fótskör hans.

132:8b.PSA.132.008 Tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn, þú og örk máttar þíns.

132:9b.PSA.132.009 Prestar þínir íklæðist réttlæti og dýrkendur þínir fagni.

132:10b.PSA.132.010 Sakir Davíðs þjóns þíns vísa þú þínum smurða eigi frá.

132:11b.PSA.132.011 Drottinn hefir svarið Davíð óbrigðulan eið, er hann eigi mun rjúfa: "Af ávexti kviðar þíns mun ég setja mann í hásæti þitt.

132:12b.PSA.132.012 Ef synir þínir varðveita sáttmála minn og reglur mínar, þær er ég kenni þeim, þá skulu og þeirra synir um aldur sitja í hásæti þínu."

132:13b.PSA.132.013 Því að Drottinn hefir útvalið Síon, þráð hana sér til bústaðar:

132:14b.PSA.132.014 "Þetta er hvíldarstaður minn um aldur, hér vil ég búa, því að hann hefi ég þráð.

132:15b.PSA.132.015 Vistir hans vil ég vissulega blessa, og fátæklinga hans vil ég seðja með brauði,

132:16b.PSA.132.016 presta hans vil ég íklæða hjálpræði, hinir guðhræddu er þar búa skulu kveða fagnaðarópi.

132:17b.PSA.132.017 Þar vil ég láta Davíð horn vaxa, þar hefi ég búið lampa mínum smurða.

132:18b.PSA.132.018 Óvini hans vil ég íklæða skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma."

133

133:1b.PSA.133.001 Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er, þegar bræður búa saman,

133:2b.PSA.133.002 eins og hin ilmgóða olía á höfðinu, er rennur niður í skeggið, skegg Arons, er fellur niður á kyrtilfald hans,

133:3b.PSA.133.003 eins og dögg af Hermonfjalli, er fellur niður á Síonfjöll. Því að þar hefir Drottinn boðið út blessun, lífi að eilífu.

134

134:1b.PSA.134.001 Helgigönguljóð. Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottins, þér er standið í húsi Drottins um nætur.

134:2b.PSA.134.002 Fórnið höndum til helgidómsins og lofið Drottin.

134:3b.PSA.134.003 Drottinn blessi þig frá Síon, hann sem er skapari himins og jarðar.

135

135:1b.PSA.135.001 Halelúja. Lofið nafn Drottins, lofið hann, þér þjónar Drottins,

135:2b.PSA.135.002 er standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors.

135:3b.PSA.135.003 Lofið Drottin, því að Drottinn er góður, leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.

135:4b.PSA.135.004 Því að Drottinn hefir útvalið sér Jakob, gert Ísrael að eign sinni.

135:5b.PSA.135.005 Já, ég veit, að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.

135:6b.PSA.135.006 Allt, sem Drottni þóknast, það gjörir hann, á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.

135:7b.PSA.135.007 Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar, gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.

135:8b.PSA.135.008 Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og skepnur,

135:9b.PSA.135.009 sendi tákn og undur yfir Egyptaland, gegn Faraó og öllum þjónum hans.

135:10b.PSA.135.010 Hann laust margar þjóðir og deyddi volduga konunga:

135:11b.PSA.135.011 Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan, og öll konungsríki í Kanaan,

135:12b.PSA.135.012 og gaf lönd þeirra að erfð, að erfð Ísrael, lýð sínum.

135:13b.PSA.135.013 Drottinn, nafn þitt varir að eilífu, minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,

135:14b.PSA.135.014 því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína.

135:15b.PSA.135.015 Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull, handaverk manna.

135:16b.PSA.135.016 Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki,

135:17b.PSA.135.017 þau hafa eyru, en heyra ekki, og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.

135:18b.PSA.135.018 Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta.

135:19b.PSA.135.019 Ísraels ætt, lofið Drottin, Arons ætt, lofið Drottin!

135:20b.PSA.135.020 Leví ætt, lofið Drottin, þér sem óttist Drottin, lofið hann!

135:21b.PSA.135.021 Lofaður sé Drottinn frá Síon, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja.

136

136:1b.PSA.136.001 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

136:2b.PSA.136.002 Þakkið Guði guðanna, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:3b.PSA.136.003 þakkið Drottni drottnanna, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:4b.PSA.136.004 honum, sem einn gjörir mikil dásemdarverk, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:5b.PSA.136.005 honum, sem skapaði himininn með speki, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:6b.PSA.136.006 honum, sem breiddi jörðina út á vötnunum, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:7b.PSA.136.007 honum, sem skapaði stóru ljósin, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:8b.PSA.136.008 sólina til þess að ráða deginum, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:9b.PSA.136.009 tunglið og stjörnurnar til þess að ráða nóttunni, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:10b.PSA.136.010 honum, sem laust Egypta með deyðing frumburðanna, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:11b.PSA.136.011 og leiddi Ísrael burt frá þeim, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:12b.PSA.136.012 með sterkri hendi og útréttum armlegg, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:13b.PSA.136.013 honum, sem skipti Rauðahafinu sundur, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:14b.PSA.136.014 og lét Ísrael ganga gegnum það, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:15b.PSA.136.015 og keyrði Faraó og her hans út í Rauðahafið, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:16b.PSA.136.016 honum, sem leiddi lýð sinn gegnum eyðimörkina, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:17b.PSA.136.017 honum, sem laust mikla konunga, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:18b.PSA.136.018 og deyddi volduga konunga, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:19b.PSA.136.019 Síhon Amorítakonung, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:20b.PSA.136.020 og Óg konung í Basan, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:21b.PSA.136.021 og gaf land þeirra að erfð, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:22b.PSA.136.022 að erfð Ísrael þjóni sínum, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:23b.PSA.136.023 honum, sem minntist vor í læging vorri, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:24b.PSA.136.024 og frelsaði oss frá fjandmönnum vorum, því að miskunn hans varir að eilífu,

136:25b.PSA.136.025 sem gefur fæðu öllu holdi, því að miskunn hans varir að eilífu.

136:26b.PSA.136.026 Þakkið Guði himnanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

137

137:1b.PSA.137.001 Við Babýlons fljót, þar sátum vér og grétum, er vér minntumst Síonar.

137:2b.PSA.137.002 Á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar.

137:3b.PSA.137.003 Því að herleiðendur vorir heimtuðu söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti: "Syngið oss Síonarkvæði!"

137:4b.PSA.137.004 Hvernig ættum vér að syngja Drottins ljóð í öðru landi?

137:5b.PSA.137.005 Ef ég gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd.

137:6b.PSA.137.006 Tunga mín loði mér við góm, ef ég man eigi til þín, ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt.

137:7b.PSA.137.007 Mun þú Edóms niðjum, Drottinn, óheilladag Jerúsalem, þegar þeir æptu: "Rífið, rífið allt niður til grunna!"

137:8b.PSA.137.008 Babýlonsdóttir, þú sem tortímir! Heill þeim, er geldur þér fyrir það sem þú hefir gjört oss!

137:9b.PSA.137.009 Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein.

138

138:1b.PSA.138.001 Eftir Davíð. Ég vil lofa þig af öllu hjarta, lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.

138:2b.PSA.138.002 Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti, því að þú hefir gjört nafn þitt og orð þitt meira öllu öðru.

138:3b.PSA.138.003 Þegar ég hrópaði, bænheyrðir þú mig, þú veittir mér hugmóð, er ég fann kraft hjá mér.

138:4b.PSA.138.004 Allir konungar á jörðu skulu lofa þig, Drottinn, er þeir heyra orðin af munni þínum.

138:5b.PSA.138.005 Þeir skulu syngja um vegu Drottins, því að mikil er dýrð Drottins.

138:6b.PSA.138.006 Því að Drottinn er hár og sér þó hina lítilmótlegu og þekkir hinn drambláta í fjarska.

138:7b.PSA.138.007 Þótt ég sé staddur í þrengingu, lætur þú mig lífi halda, þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér.

138:8b.PSA.138.008 Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig, Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef eigi verk handa þinna.

139

139:1b.PSA.139.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig.

139:2b.PSA.139.002 Hvort sem ég sit eða stend, þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.

139:3b.PSA.139.003 Hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú.

139:4b.PSA.139.004 Því að eigi er það orð á tungu minni, að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.

139:5b.PSA.139.005 Þú umlykur mig á bak og brjóst, og hönd þína hefir þú lagt á mig.

139:6b.PSA.139.006 Þekking þín er undursamlegri en svo, að ég fái skilið, of háleit, ég er henni eigi vaxinn.

139:7b.PSA.139.007 Hvert get ég farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu?

139:8b.PSA.139.008 Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar.

139:9b.PSA.139.009 Þótt ég lyfti mér á vængi morgunroðans og settist við hið ysta haf,

139:10b.PSA.139.010 einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér.

139:11b.PSA.139.011 Og þótt ég segði: "Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,"

139:12b.PSA.139.012 þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.

139:13b.PSA.139.013 Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi.

139:14b.PSA.139.014 Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel.

139:15b.PSA.139.015 Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.

139:16b.PSA.139.016 Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.

139:17b.PSA.139.017 En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.

139:18b.PSA.139.018 Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin, ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér.

139:19b.PSA.139.019 Ó að þú, Guð, vildir fella níðingana. Morðingjar! Víkið frá mér.

139:20b.PSA.139.020 Þeir þrjóskast gegn þér með svikum og leggja nafn þitt við hégóma.

139:21b.PSA.139.021 Ætti ég eigi, Drottinn, að hata þá, er hata þig, og hafa viðbjóð á þeim, er rísa gegn þér?

139:22b.PSA.139.022 Ég hata þá fullu hatri, þeir eru orðnir óvinir mínir.

139:23b.PSA.139.023 Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt, rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar,

139:24b.PSA.139.024 og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg.

14

14:1b.PSA.014.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Heimskinginn segir í hjarta sínu: "Guð er ekki til." Ill og andstyggileg er breytni þeirra, enginn gjörir það sem gott er.

14:2b.PSA.014.002 Drottinn lítur af himni niður á mennina til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.

14:3b.PSA.014.003 Allir eru viknir af leið, allir spilltir, enginn gjörir það sem gott er - ekki einn.

14:4b.PSA.014.004 Skyldu þeir ekki fá að kenna á því, allir illgjörðamennirnir, þeir er eta lýð minn sem brauð væri og ákalla eigi Drottin?

14:5b.PSA.014.005 Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir, því að Guð er hjá kynslóð réttlátra.

14:6b.PSA.014.006 Þér megið láta ráð hinna hrjáðu til skammar verða, því að Drottinn er samt athvarf þeirra.

14:7b.PSA.014.007 Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Síon! Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns, skal Jakob fagna og Ísrael gleðjast.

140

140:1b.PSA.140.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,

140:2b.PSA.140.002 þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum.

140:3b.PSA.140.003 Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra.

140:4b.PSA.140.004 Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.

140:5b.PSA.140.005 Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig.

140:6b.PSA.140.006 Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.

140:7b.PSA.140.007 Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.

140:8b.PSA.140.008 Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast.

140:9b.PSA.140.009 Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.

140:10b.PSA.140.010 Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.

140:11b.PSA.140.011 Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.

140:12b.PSA.140.012 Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra.

140:13b.PSA.140.013 Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.

141

141:1b.PSA.141.001 Davíðssálmur. Drottinn, ég ákalla þig, skunda þú til mín, ljá eyra raust minni, er ég ákalla þig.

141:2b.PSA.141.002 Bæn mín sé fram borin sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt, upplyfting handa minna sem kvöldfórn.

141:3b.PSA.141.003 Set þú, Drottinn, vörð fyrir munn minn, gæslu fyrir dyr vara minna.

141:4b.PSA.141.004 Lát eigi hjarta mitt hneigjast að neinu illu, að því að fremja óguðleg verk með illvirkjum, og lát mig eigi eta krásir þeirra.

141:5b.PSA.141.005 Þótt réttlátur maður slái mig og trúaður hirti mig, mun ég ekki þiggja sæmd af illum mönnum. Bæn mín stendur gegn illsku þeirra.

141:6b.PSA.141.006 Þegar höfðingjum þeirra verður hrundið niður af kletti, munu menn skilja, að orð mín voru sönn.

141:7b.PSA.141.007 Eins og menn höggva við og kljúfa á jörðu, svo skal beinum þeirra tvístrað við gin Heljar.

141:8b.PSA.141.008 Til þín, Drottinn, mæna augu mín, hjá þér leita ég hælis, sel þú eigi fram líf mitt.

141:9b.PSA.141.009 Varðveit mig fyrir gildru þeirra, er sitja um mig, og fyrir snörum illvirkjanna.

141:10b.PSA.141.010 Hinir óguðlegu falli í sitt eigið net, en ég sleppi heill á húfi.

142

142:1b.PSA.142.001 Maskíl eftir Davíð, er hann var í hellinum. Bæn. Ég hrópa hátt til Drottins, hástöfum grátbæni ég Drottin.

142:2b.PSA.142.002 Ég úthelli kveini mínu fyrir honum, tjái honum neyð mína.

142:3b.PSA.142.003 Þegar andi minn örmagnast í mér, þekkir þú götu mína. Á leið þeirri er ég geng hafa þeir lagt snörur fyrir mig.

142:4b.PSA.142.004 Ég lít til hægri handar og skyggnist um, en enginn kannast við mig. Mér er varnað sérhvers hælis, enginn spyr eftir mér.

142:5b.PSA.142.005 Ég hrópa til þín, Drottinn, ég segi: Þú ert hæli mitt, hlutdeild mín á landi lifenda.

142:6b.PSA.142.006 Veit athygli kveini mínu, því að ég er mjög þjakaður, bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari.

142:7b.PSA.142.007 Leið mig út úr dýflissunni, að ég megi lofa nafn þitt, hinir réttlátu skipast í kringum mig, þegar þú gjörir vel til mín.

143

143:1b.PSA.143.001 Davíðssálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

143:2b.PSA.143.002 Gakk eigi í dóm við þjón þinn, því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

143:3b.PSA.143.003 Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar, lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

143:4b.PSA.143.004 Andi minn örmagnast í mér, hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

143:5b.PSA.143.005 Ég minnist fornra daga, íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

143:6b.PSA.143.006 Ég breiði út hendurnar í móti þér, sál mín er sem örþrota land fyrir þér.

143:7b.PSA.143.007 Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér, svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

143:8b.PSA.143.008 Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

143:9b.PSA.143.009 Frelsa mig frá óvinum mínum, Drottinn, ég flý á náðir þínar.

143:10b.PSA.143.010 Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

143:11b.PSA.143.011 Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns.

143:12b.PSA.143.012 Lát þú óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar, ryð þeim öllum úr vegi, er að mér þrengja, því að ég er þjónn þinn.

144

144:1b.PSA.144.001 Eftir Davíð. Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt, sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orustu.

144:2b.PSA.144.002 Miskunn mín og vígi, háborg mín og hjálpari, skjöldur minn og athvarf, hann leggur þjóðir undir mig.

144:3b.PSA.144.003 Drottinn, hvað er maðurinn þess, að þú þekkir hann, mannsins barn, að þú gefir því gaum.

144:4b.PSA.144.004 Maðurinn er sem vindblær, dagar hans sem hverfandi skuggi.

144:5b.PSA.144.005 Drottinn, sveig þú himin þinn og stíg niður, snertu fjöllin, svo að úr þeim rjúki.

144:6b.PSA.144.006 Lát eldinguna leiftra og tvístra óvinum, skjót örvum þínum og skelf þá.

144:7b.PSA.144.007 Rétt út hönd þína frá hæðum, hríf mig burt og bjarga mér úr hinum miklu vötnum, af hendi útlendinganna.

144:8b.PSA.144.008 Munnur þeirra mælir tál, og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

144:9b.PSA.144.009 Guð, ég vil syngja þér nýjan söng, ég vil leika fyrir þér á tístrengjaða hörpu.

144:10b.PSA.144.010 Þú veitir konungunum sigur, hrífur Davíð þjón þinn undan hinu illa sverði.

144:11b.PSA.144.011 Hríf mig burt og bjarga mér af hendi útlendinganna. Munnur þeirra mælir tál, og hægri hönd þeirra er lyginnar hönd.

144:12b.PSA.144.012 Synir vorir eru sem þroskaðir teinungar í æsku sinni, dætur vorar sem hornsúlur, úthöggnar í hallarstíl.

144:13b.PSA.144.013 Hlöður vorar eru fullar og veita afurðir af hverri tegund, fénaður vor getur af sér þúsundir, verður tíþúsundfaldur á haglendum vorum,

144:14b.PSA.144.014 uxar vorir klyfjaðir, ekkert skarð og engir hernumdir og ekkert óp á torgum vorum.

144:15b.PSA.144.015 Sæl er sú þjóð, sem svo er ástatt fyrir, sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði.

145

145:1b.PSA.145.001 Davíðs-lofsöngur. Ég vil vegsama þig, ó Guð minn, þú konungur, og prísa nafn þitt um aldur og ævi.

145:2b.PSA.145.002 Á hverjum degi vil ég prísa þig og lofa nafn þitt um aldur og ævi.

145:3b.PSA.145.003 Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, mikilleikur hans er órannsakanlegur.

145:4b.PSA.145.004 Ein kynslóðin vegsamar verk þín fyrir annarri og kunngjörir máttarverk þín.

145:5b.PSA.145.005 Þær segja frá tign og dýrð vegsemdar þinnar: "Ég vil syngja um dásemdir þínar."

145:6b.PSA.145.006 Og um mátt ógnarverka þinna tala þær: "Ég vil segja frá stórvirkjum þínum."

145:7b.PSA.145.007 Þær minna á þína miklu gæsku og fagna yfir réttlæti þínu.

145:8b.PSA.145.008 Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.

145:9b.PSA.145.009 Drottinn er öllum góður, og miskunn hans er yfir öllu, sem hann skapar.

145:10b.PSA.145.010 Öll sköpun þín lofar þig, Drottinn, og dýrkendur þínir prísa þig.

145:11b.PSA.145.011 Þeir tala um dýrð konungdóms þíns, segja frá veldi þínu.

145:12b.PSA.145.012 Þeir kunngjöra mönnum veldi þitt, hina dýrlegu tign konungdóms þíns.

145:13b.PSA.145.013 Konungdómur þinn er konungdómur um allar aldir og ríki þitt stendur frá kyni til kyns. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.

145:14b.PSA.145.014 Drottinn styður alla þá, er ætla að hníga, og reisir upp alla niðurbeygða.

145:15b.PSA.145.015 Allra augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma.

145:16b.PSA.145.016 Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun.

145:17b.PSA.145.017 Drottinn er réttlátur á öllum sínum vegum og miskunnsamur í öllum sínum verkum.

145:18b.PSA.145.018 Drottinn er nálægur öllum sem ákalla hann, öllum sem ákalla hann í einlægni.

145:19b.PSA.145.019 Hann uppfyllir ósk þeirra er óttast hann, og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim.

145:20b.PSA.145.020 Drottinn varðveitir alla þá er elska hann, en útrýmir öllum níðingum.

145:21b.PSA.145.021 Munnur minn skal mæla orðstír Drottins, allt hold vegsami hans heilaga nafn um aldur og ævi.

146

146:1b.PSA.146.001 Halelúja. Lofa þú Drottin, sála mín!

146:2b.PSA.146.002 Ég vil lofa Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

146:3b.PSA.146.003 Treystið eigi tignarmennum, mönnum sem enga hjálp geta veitt.

146:4b.PSA.146.004 Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu, á þeim degi verða áform þeirra að engu.

146:5b.PSA.146.005 Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar, sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

146:6b.PSA.146.006 hann sem skapað hefir himin og jörð, hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

146:7b.PSA.146.007 sem rekur réttar kúgaðra og veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir hina bundnu,

146:8b.PSA.146.008 Drottinn opnar augu blindra, Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

146:9b.PSA.146.009 Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa, en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

146:10b.PSA.146.010 Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn, Síon, frá kyni til kyns. Halelúja.

147

147:1b.PSA.147.001 Halelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum, því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.

147:2b.PSA.147.002 Drottinn endurreisir Jerúsalem, safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael.

147:3b.PSA.147.003 Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, og bindur um benjar þeirra.

147:4b.PSA.147.004 Hann ákveður tölu stjarnanna, kallar þær allar með nafni.

147:5b.PSA.147.005 Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi, speki hans er ómælanleg.

147:6b.PSA.147.006 Drottinn annast hrjáða, en óguðlega lægir hann að jörðu.

147:7b.PSA.147.007 Syngið Drottni með þakklæti, leikið á gígju fyrir Guði vorum.

147:8b.PSA.147.008 Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni, lætur gras spretta á fjöllunum.

147:9b.PSA.147.009 Hann gefur skepnunum fóður þeirra, hrafnsungunum, þegar þeir kalla.

147:10b.PSA.147.010 Hann hefir eigi mætur á styrkleika hestsins, eigi þóknun á fótleggjum mannsins.

147:11b.PSA.147.011 Drottinn hefir þóknun á þeim er óttast hann, þeim er bíða miskunnar hans.

147:12b.PSA.147.012 Vegsama Drottin, Jerúsalem, lofa þú Guð þinn, Síon,

147:13b.PSA.147.013 því að hann hefir gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum, blessað börn þín, sem í þér eru.

147:14b.PSA.147.014 Hann gefur landi þínu frið, seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

147:15b.PSA.147.015 Hann sendir orð sitt til jarðar, boð hans hleypur með hraða.

147:16b.PSA.147.016 Hann gefur snjó eins og ull, stráir út hrími sem ösku.

147:17b.PSA.147.017 Hann sendir hagl sitt sem brauðmola, hver fær staðist frost hans?

147:18b.PSA.147.018 Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna, lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

147:19b.PSA.147.019 Hann kunngjörði Jakob orð sitt, Ísrael lög sín og ákvæði.

147:20b.PSA.147.020 Svo hefir hann eigi gjört við neina þjóð, þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Halelúja.

148

148:1b.PSA.148.001 Halelúja. Lofið Drottin af himnum, lofið hann á hæðum.

148:2b.PSA.148.002 Lofið hann, allir englar hans, lofið hann, allir herskarar hans.

148:3b.PSA.148.003 Lofið hann, sól og tungl, lofið hann, allar lýsandi stjörnur.

148:4b.PSA.148.004 Lofið hann, himnar himnanna og vötnin, sem eru yfir himninum.

148:5b.PSA.148.005 Þau skulu lofa nafn Drottins, því að hans boði voru þau sköpuð.

148:6b.PSA.148.006 Og hann fékk þeim stað um aldur og ævi, hann gaf þeim lög, sem þau mega eigi brjóta.

148:7b.PSA.148.007 Lofið Drottin af jörðu, þér sjóskrímsl og allir hafstraumar,

148:8b.PSA.148.008 eldur og hagl, snjór og reykur, stormbylurinn, sem framkvæmir orð hans,

148:9b.PSA.148.009 fjöllin og allar hæðir, ávaxtartrén og öll sedrustrén,

148:10b.PSA.148.010 villidýrin og allur fénaður, skriðkvikindin og fleygir fuglar,

148:11b.PSA.148.011 konungar jarðarinnar og allar þjóðir, höfðingjar og allir dómendur jarðar,

148:12b.PSA.148.012 bæði yngismenn og yngismeyjar, öldungar og ungir sveinar!

148:13b.PSA.148.013 Þau skulu lofa nafn Drottins, því að hans nafn eitt er hátt upp hafið, tign hans er yfir jörð og himni.

148:14b.PSA.148.014 Hann lyftir upp horni fyrir lýð sinn, lofsöngur hljómi hjá öllum dýrkendum hans, hjá sonum Ísraels, þjóðinni, sem er nálæg honum. Halelúja.

149

149:1b.PSA.149.001 Halelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

149:2b.PSA.149.002 Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

149:3b.PSA.149.003 Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi, leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

149:4b.PSA.149.004 Því að Drottinn hefir þóknun á lýð sínum, hann skrýðir hrjáða með sigri.

149:5b.PSA.149.005 Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd, syngja fagnandi í hvílum sínum

149:6b.PSA.149.006 með lofgjörð Guðs á tungu og tvíeggjað sverð í höndum

149:7b.PSA.149.007 til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum, hirtingu á lýðunum,

149:8b.PSA.149.008 til þess að binda konunga þeirra með fjötrum, þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

149:9b.PSA.149.009 til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja.

15

15:1b.PSA.015.001 Davíðssálmur Drottinn, hver fær að gista í tjaldi þínu, hver fær að búa á fjallinu þínu helga?

15:2b.PSA.015.002 Sá er fram gengur í flekkleysi og iðkar réttlæti og talar sannleik af hjarta,

15:3b.PSA.015.003 sá er eigi talar róg með tungu sinni, eigi gjörir öðrum mein og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;

15:4b.PSA.015.004 sem fyrirlítur þá er illa breyta, en heiðrar þá er óttast Drottin, sá er sver sér í mein og bregður eigi af,

15:5b.PSA.015.005 sá er eigi lánar fé sitt með okri og eigi þiggur mútur gegn saklausum - sá er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur.

150

150:1b.PSA.150.001 Halelúja. Lofið Guð í helgidómi hans, lofið hann í voldugri festingu hans!

150:2b.PSA.150.002 Lofið hann fyrir máttarverk hans, lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!

150:3b.PSA.150.003 Lofið hann með lúðurhljómi, lofið hann með hörpu og gígju!

150:4b.PSA.150.004 Lofið hann með bumbum og gleðidansi, lofið hann með strengleik og hjarðpípum!

150:5b.PSA.150.005 Lofið hann með hljómandi skálabumbum, lofið hann með hvellum skálabumbum!

150:6b.PSA.150.006 Allt sem andardrátt hefir lofi Drottin! Halelúja!

16

16:1b.PSA.016.001 Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.

16:2b.PSA.016.002 Ég segi við Drottin: "Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig."

16:3b.PSA.016.003 Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu - á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

16:4b.PSA.016.004 Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

16:5b.PSA.016.005 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.

16:6b.PSA.016.006 Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel.

16:7b.PSA.016.007 Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

16:8b.PSA.016.008 Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

16:9b.PSA.016.009 Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði,

16:10b.PSA.016.010 því að þú ofurselur Helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

16:11b.PSA.016.011 Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

17

17:1b.PSA.017.001 Bæn Davíðs. Heyr, Drottinn, á réttvíst málefni, hlýð á hróp mitt, ljá eyra bæn minni, er ég flyt með tállausum vörum.

17:2b.PSA.017.002 Lát rétt minn út ganga frá augliti þínu, augu þín sjá hvað rétt er.

17:3b.PSA.017.003 Þá er þú rannsakar hjarta mitt, prófar það um nætur, reynir mig í eldi, þá finnur þú engar illar hugsanir hjá mér, munnur minn heldur sér í skefjum.

17:4b.PSA.017.004 Hvað sem aðrir gjöra, þá hefi ég eftir orði vara þinna forðast vegu ofbeldismannsins.

17:5b.PSA.017.005 Skref mín fylgdu sporum þínum, mér skriðnaði ekki fótur.

17:6b.PSA.017.006 Ég kalla á þig, því að þú svarar mér, ó Guð, hneig eyru þín til mín, hlýð á orð mín.

17:7b.PSA.017.007 Veit mér þína dásamlegu náð, þú sem hjálpar þeim er leita hælis við þína hægri hönd fyrir ofsækjendum.

17:8b.PSA.017.008 Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna

17:9b.PSA.017.009 fyrir hinum guðlausu, er sýna mér ofbeldi, fyrir gráðugum óvinum, er kringja um mig.

17:10b.PSA.017.010 Mörhjörtum sínum hafa þeir lokað, með munni sínum mæla þeir drambsamleg orð.

17:11b.PSA.017.011 Hvar sem ég geng, umkringja þeir mig, þeir beina augum sínum að því að varpa mér til jarðar.

17:12b.PSA.017.012 Þeir líkjast ljóni er langar í bráð, ungu ljóni, er liggur í felum.

17:13b.PSA.017.013 Rís upp, Drottinn! Far í móti óvininum og varpa honum niður, frelsa mig undan hinum óguðlega með sverði þínu.

17:14b.PSA.017.014 Frelsa mig undan mönnunum með hendi þinni, Drottinn, undan mönnum heimsins, sem hafa hlutskipti sitt í lífinu og þú kviðfyllir gæðum þínum. Þeir eru ríkir að sonum og skilja börnum sínum eftir nægtir sínar.

17:15b.PSA.017.015 En ég mun sakir réttlætisins skoða auglit þitt, þá er ég vakna, mun ég mettast af mynd þinni.

18

18:1b.PSA.018.001 Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins, er flutti Drottni orð þessara ljóða, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls. Hann mælti: Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn.

18:2b.PSA.018.002 Drottinn, bjarg mitt og vígi og frelsari minn, Guð minn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín!

18:3b.PSA.018.003 Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum.

18:4b.PSA.018.004 Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,

18:5b.PSA.018.005 snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.

18:6b.PSA.018.006 Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Hann heyrði raust mína í helgidómi sínum, og óp mitt barst til eyrna honum.

18:7b.PSA.018.007 Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður,

18:8b.PSA.018.008 reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.

18:9b.PSA.018.009 Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.

18:10b.PSA.018.010 Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.

18:11b.PSA.018.011 Hann gjörði myrkur að skýli sínu, regnsorta og skýþykkni að fylgsni sínu allt um kring.

18:12b.PSA.018.012 Frá ljómanum fyrir honum brutust hagl og eldglæringar gegnum ský hans.

18:13b.PSA.018.013 Þá þrumaði Drottinn á himnum, og Hinn hæsti lét raust sína gjalla.

18:14b.PSA.018.014 Hann skaut örvum sínum og tvístraði óvinum sínum, lét eldingar leiftra og hræddi þá.

18:15b.PSA.018.015 Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnun þinni, Drottinn, fyrir andgustinum úr nösum þínum.

18:16b.PSA.018.016 Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.

18:17b.PSA.018.017 Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.

18:18b.PSA.018.018 Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð.

18:19b.PSA.018.019 Hann leiddi mig út á víðlendi, frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér.

18:20b.PSA.018.020 Drottinn fer með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna geldur hann mér,

18:21b.PSA.018.021 því að ég hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum.

18:22b.PSA.018.022 Allar skipanir hans hefi ég fyrir augum, og boðorðum hans þokaði ég eigi burt frá mér.

18:23b.PSA.018.023 Ég var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum.

18:24b.PSA.018.024 Fyrir því galt Drottinn mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans.

18:25b.PSA.018.025 Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur,

18:26b.PSA.018.026 gagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn.

18:27b.PSA.018.027 Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir hrokafulla niðurlúta.

18:28b.PSA.018.028 Já, þú lætur lampa minn skína, Drottinn, Guð minn, þú lýsir mér í myrkrinu.

18:29b.PSA.018.029 Því að fyrir þína hjálp brýt ég múra, fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi.

18:30b.PSA.018.030 Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum þeim sem leita hælis hjá honum.

18:31b.PSA.018.031 Hver er Guð nema Drottinn, og hver er hellubjarg utan vor Guð?

18:32b.PSA.018.032 Sá Guð sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan,

18:33b.PSA.018.033 sem gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum,

18:34b.PSA.018.034 sem æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann.

18:35b.PSA.018.035 Og þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og hægri hönd þín studdi mig, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.

18:36b.PSA.018.036 Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum, og ökklar mínir riðuðu ekki.

18:37b.PSA.018.037 Ég elti óvini mína og náði þeim og sneri ekki aftur, fyrr en ég hafði gjöreytt þeim.

18:38b.PSA.018.038 Ég molaði þá sundur, þeir máttu eigi upp rísa, þeir hnigu undir fætur mér.

18:39b.PSA.018.039 Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig.

18:40b.PSA.018.040 Þú lést mig sjá bak óvina minna, og fjendum mínum eyddi ég.

18:41b.PSA.018.041 Þeir hrópuðu, en enginn kom til hjálpar, þeir hrópuðu til Drottins, en hann svaraði þeim ekki.

18:42b.PSA.018.042 Og ég muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem saur á strætum.

18:43b.PSA.018.043 Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja þjóðanna, lýður sem ég þekkti ekki þjónar mér.

18:44b.PSA.018.044 Óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér, útlendingar smjaðra fyrir mér.

18:45b.PSA.018.045 Útlendingar dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum.

18:46b.PSA.018.046 Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns,

18:47b.PSA.018.047 sá Guð sem veitti mér hefndir og braut þjóðir undir mig,

18:48b.PSA.018.048 sem hreif mig úr höndum óvina minna. Og yfir mótstöðumenn mína hófst þú mig, frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig.

18:49b.PSA.018.049 Fyrir því vil ég vegsama þig, Drottinn, meðal þjóðanna og lofsyngja þínu nafni.

18:50b.PSA.018.050 Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu.

19

19:1b.PSA.019.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa.

19:2b.PSA.019.002 Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki.

19:3b.PSA.019.003 Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.

19:4b.PSA.019.004 Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina, og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald.

19:5b.PSA.019.005 Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt.

19:6b.PSA.019.006 Við takmörk himins rennur hann upp, og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans.

19:7b.PSA.019.007 Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran.

19:8b.PSA.019.008 Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun.

19:9b.PSA.019.009 Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát.

19:10b.PSA.019.010 Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur.

19:11b.PSA.019.011 Þjónn þinn varðveitir þau kostgæfilega, að halda þau hefir mikil laun í för með sér.

19:12b.PSA.019.012 En hver verður var við yfirsjónirnar? Sýkna mig af leyndum brotum!

19:13b.PSA.019.013 Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti.

19:14b.PSA.019.014 Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari!

2

2:1b.PSA.002.001 Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?

2:2b.PSA.002.002 Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:

2:3b.PSA.002.003 "Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra."

2:4b.PSA.002.004 Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.

2:5b.PSA.002.005 Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:

2:6b.PSA.002.006 "Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga."

2:7b.PSA.002.007 Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: "Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.

2:8b.PSA.002.008 Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.

2:9b.PSA.002.009 Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker."

2:10b.PSA.002.010 Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.

2:11b.PSA.002.011 Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.

2:12b.PSA.002.012 Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.

20

20:1b.PSA.020.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.

20:2b.PSA.020.002 Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon.

20:3b.PSA.020.003 Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda.

20:4b.PSA.020.004 Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.

20:5b.PSA.020.005 Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.

20:6b.PSA.020.006 Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.

20:7b.PSA.020.007 Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.

20:8b.PSA.020.008 Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.

20:9b.PSA.020.009 Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.

21

21:1b.PSA.021.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni!

21:2b.PSA.021.002 Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi.

21:3b.PSA.021.003 Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum.

21:4b.PSA.021.004 Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi.

21:5b.PSA.021.005 Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum.

21:6b.PSA.021.006 Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.

21:7b.PSA.021.007 Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi.

21:8b.PSA.021.008 Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna.

21:9b.PSA.021.009 Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim.

21:10b.PSA.021.010 Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi,

21:11b.PSA.021.011 því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.

21:12b.PSA.021.012 Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum.

21:13b.PSA.021.013 Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!

22

22:1b.PSA.022.001 Til söngstjórans. Lag: Hind morgunroðans. Davíðssálmur. Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg.

22:2b.PSA.022.002 "Guð minn!" hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró.

22:3b.PSA.022.003 Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels.

22:4b.PSA.022.004 Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim,

22:5b.PSA.022.005 til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar.

22:6b.PSA.022.006 En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.

22:7b.PSA.022.007 Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið.

22:8b.PSA.022.008 "Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann, því að hann hefir þóknun á honum!"

22:9b.PSA.022.009 Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.

22:10b.PSA.022.010 Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn.

22:11b.PSA.022.011 Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar.

22:12b.PSA.022.012 Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig.

22:13b.PSA.022.013 Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón.

22:14b.PSA.022.014 Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér;

22:15b.PSA.022.015 gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig.

22:16b.PSA.022.016 Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið.

22:17b.PSA.022.017 Ég get talið öll mín bein - þeir horfa á og hafa mig að augnagamni,

22:18b.PSA.022.018 þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn.

22:19b.PSA.022.019 En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar,

22:20b.PSA.022.020 frelsa líf mitt undan sverðinu og sál mína undan hundunum.

22:21b.PSA.022.021 Frelsa mig úr gini ljónsins, frá hornum vísundarins. Þú hefir bænheyrt mig!

22:22b.PSA.022.022 Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil ég lofa þig!

22:23b.PSA.022.023 Þér sem óttist Drottin, lofið hann! Tignið hann, allir niðjar Jakobs! Dýrkið hann, allir niðjar Ísraels!

22:24b.PSA.022.024 Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð hins hrjáða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans.

22:25b.PSA.022.025 Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði, heit mín vil ég efna frammi fyrir þeim er óttast hann.

22:26b.PSA.022.026 Snauðir munu eta og verða mettir, þeir er leita Drottins munu lofa hann. Hjörtu yðar lifni við að eilífu.

22:27b.PSA.022.027 Endimörk jarðar munu minnast þess og hverfa aftur til Drottins og allar ættir þjóðanna falla fram fyrir augliti hans.

22:28b.PSA.022.028 Því að ríkið heyrir Drottni, og hann er drottnari yfir þjóðunum.

22:29b.PSA.022.029 Já, fyrir honum munu öll stórmenni jarðar falla fram, fyrir honum munu beygja sig allir þeir er hníga í duftið. En ég vil lifa honum,

22:30b.PSA.022.030 niðjar mínir munu þjóna honum. Komandi kynslóðum mun sagt verða frá Drottni,

22:31b.PSA.022.031 og lýð sem enn er ófæddur mun boðað réttlæti hans, að hann hefir framkvæmt það.

23

23:1b.PSA.023.001 Davíðssálmur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

23:2b.PSA.023.002 Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.

23:3b.PSA.023.003 Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.

23:4b.PSA.023.004 Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.

23:5b.PSA.023.005 Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.

23:6b.PSA.023.006 Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.

24

24:1b.PSA.024.001 Davíðssálmur. Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er, heimurinn og þeir sem í honum búa.

24:2b.PSA.024.002 Því að hann hefir grundvallað hana á hafinu og fest hana á vötnunum.

24:3b.PSA.024.003 - Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dveljast á hans helga stað?

24:4b.PSA.024.004 - Sá er hefir óflekkaðar hendur og hreint hjarta, eigi sækist eftir hégóma og eigi vinnur rangan eið.

24:5b.PSA.024.005 Hann mun blessun hljóta frá Drottni og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns.

24:6b.PSA.024.006 - Þessi er sú kynslóð er leitar Drottins, stundar eftir augliti þínu, þú Jakobs Guð.

24:7b.PSA.024.007 - Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.

24:8b.PSA.024.008 - Hver er þessi konungur dýrðarinnar? - Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan.

24:9b.PSA.024.009 - Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.

24:10b.PSA.024.010 - Hver er þessi konungur dýrðarinnar? - Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.

25

25:1b.PSA.025.001 Davíðssálmur.

25:2b.PSA.025.002 Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér.

25:3b.PSA.025.003 Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar, þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.

25:4b.PSA.025.004 Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína.

25:5b.PSA.025.005 Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig.

25:6b.PSA.025.006 Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð.

25:7b.PSA.025.007 Minnst eigi æskusynda minna og afbrota, minnst mín eftir elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn.

25:8b.PSA.025.008 Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn.

25:9b.PSA.025.009 Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum þjökuðu veg sinn.

25:10b.PSA.025.010 Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.

25:11b.PSA.025.011 Sakir nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.

25:12b.PSA.025.012 Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.

25:13b.PSA.025.013 Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið.

25:14b.PSA.025.014 Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann, og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.

25:15b.PSA.025.015 Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni.

25:16b.PSA.025.016 Snú þér til mín og líkna mér, því að ég er einmana og hrjáður.

25:17b.PSA.025.017 Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum.

25:18b.PSA.025.018 Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar.

25:19b.PSA.025.019 Lít á, hversu margir óvinir mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig.

25:20b.PSA.025.020 Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.

25:21b.PSA.025.021 Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég.

25:22b.PSA.025.022 Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans.

26

26:1b.PSA.026.001 Davíðssálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að ég geng fram í grandvarleik og þér treysti ég óbifanlega.

26:2b.PSA.026.002 Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta.

26:3b.PSA.026.003 Því að ég hefi elsku þína fyrir augum, og ég geng í sannleika þínum.

26:4b.PSA.026.004 Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn.

26:5b.PSA.026.005 Ég hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra.

26:6b.PSA.026.006 Ég þvæ hendur mínar í sakleysi og geng í kringum altari þitt, Drottinn,

26:7b.PSA.026.007 til þess að láta lofsönginn hljóma og segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

26:8b.PSA.026.008 Drottinn, ég elska bústað húss þíns og staðinn þar sem dýrð þín býr.

26:9b.PSA.026.009 Hríf eigi sál mína burt með syndurum né líf mitt með morðingjum,

26:10b.PSA.026.010 þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum.

26:11b.PSA.026.011 En ég geng fram í grandvarleik, frelsa mig og líkna mér.

26:12b.PSA.026.012 Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin.

27

27:1b.PSA.027.001 Davíðssálmur. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?

27:2b.PSA.027.002 Þegar illvirkjarnir nálgast mig til þess að fella mig, þá verða það andstæðingar mínir og óvinir, sem hrasa og falla.

27:3b.PSA.027.003 Þegar her sest um mig, óttast hjarta mitt eigi, þegar ófriður hefst í gegn mér, er ég samt öruggur.

27:4b.PSA.027.004 Eins hefi ég beðið Drottin, það eitt þrái ég: Að ég fái að dveljast í húsi Drottins alla ævidaga mína til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.

27:5b.PSA.027.005 Því að hann geymir mig í skjóli á óheilladeginum, hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett.

27:6b.PSA.027.006 Þess vegna hefst upp höfuð mitt yfir óvini mína umhverfis mig, að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottni.

27:7b.PSA.027.007 Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt, sýn mér miskunn og svara mér!

27:8b.PSA.027.008 Mér er hugsað til þín, er sagðir: "Leitið auglitis míns!" Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn.

27:9b.PSA.027.009 Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefir verið fulltingi mitt, hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.

27:10b.PSA.027.010 Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur Drottinn mig að sér.

27:11b.PSA.027.011 Vísa mér veg þinn, Drottinn, leið mig um slétta braut sakir óvina minna.

27:12b.PSA.027.012 Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna, því að falsvitni rísa í gegn mér og menn er spúa rógmælum.

27:13b.PSA.027.013 Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins á landi lifenda!

27:14b.PSA.027.014 Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin.

28

28:1b.PSA.028.001 Davíðssálmur. Til þín, Drottinn, hrópa ég, þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér. Ef þú þegir við mér, verð ég sem þeir, er til grafar eru gengnir.

28:2b.PSA.028.002 Heyr þú á grátbeiðni mína, er ég hrópa til þín, er ég lyfti höndum mínum til Hins allrahelgasta í musteri þínu.

28:3b.PSA.028.003 Hríf mig eigi á burt með óguðlegum og með illgjörðamönnum, þeim er tala vinsamlega við náunga sinn, en hafa illt í hyggju.

28:4b.PSA.028.004 Launa þeim eftir verkum þeirra, eftir þeirra illu breytni, launa þeim eftir verkum handa þeirra, endurgjald þeim það er þeir hafa aðhafst.

28:5b.PSA.028.005 Því að þeir hyggja eigi á verk Drottins né handaverk hans, hann rífi þá niður og reisi þá eigi við aftur.

28:6b.PSA.028.006 Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir heyrt grátbeiðni mína.

28:7b.PSA.028.007 Drottinn er vígi mitt og skjöldur, honum treysti hjarta mitt. Ég hlaut hjálp, því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa ég hann.

28:8b.PSA.028.008 Drottinn er vígi lýð sínum og hjálparhæli sínum smurða.

28:9b.PSA.028.009 Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína, gæt þeirra og ber þá að eilífu.

29

29:1b.PSA.029.001 Davíðssálmur. Tjáið Drottni vegsemd, þér guðasynir, tjáið Drottni vegsemd og vald.

29:2b.PSA.029.002 Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir, fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða.

29:3b.PSA.029.003 Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja, Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum.

29:4b.PSA.029.004 Raust Drottins hljómar með krafti, raust Drottins hljómar með tign.

29:5b.PSA.029.005 Raust Drottins brýtur sundur sedrustré, Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon.

29:6b.PSA.029.006 Hann lætur Líbanonfjöll hoppa eins og kálfa og Hermonfjall eins og ungan vísund.

29:7b.PSA.029.007 Raust Drottins klýfur eldsloga.

29:8b.PSA.029.008 Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa, Drottinn lætur Kadeseyðimörk skjálfa.

29:9b.PSA.029.009 Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann og gjörir skógana nakta, og allt í helgidómi hans segir: Dýrð!

29:10b.PSA.029.010 Drottinn situr í hásæti uppi yfir flóðinu, Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu.

29:11b.PSA.029.011 Drottinn veitir lýð sínum styrkleik, Drottinn blessar lýð sinn með friði.

3

3:1b.PSA.003.001 Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum. Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.

3:2b.PSA.003.002 Margir segja um mig: "Hann fær enga hjálp hjá Guði!"

3:3b.PSA.003.003 En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.

3:4b.PSA.003.004 Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga.

3:5b.PSA.003.005 Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.

3:6b.PSA.003.006 Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.

3:7b.PSA.003.007 Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna.

3:8b.PSA.003.008 Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn!

30

30:1b.PSA.030.001 Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur. Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

30:2b.PSA.030.002 Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.

30:3b.PSA.030.003 Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju, lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.

30:4b.PSA.030.004 Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn.

30:5b.PSA.030.005 Andartak stendur reiði hans, en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.

30:6b.PSA.030.006 En ég uggði eigi að mér og hugsaði: "Aldrei skriðnar mér fótur."

30:7b.PSA.030.007 Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.

30:8b.PSA.030.008 Til þín, Drottinn, kallaði ég, og Drottin grátbændi ég:

30:9b.PSA.030.009 "Hver ávinningur er í dauða mínum, í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?

30:10b.PSA.030.010 Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!"

30:11b.PSA.030.011 Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,

30:12b.PSA.030.012 að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

31

31:1b.PSA.031.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,

31:2b.PSA.031.002 hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi, ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.

31:3b.PSA.031.003 Því að þú ert bjarg mitt og vígi, og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.

31:4b.PSA.031.004 Þú munt draga mig úr neti því, er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.

31:5b.PSA.031.005 Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

31:6b.PSA.031.006 Ég hata þá, er dýrka fánýt falsgoð, en Drottni treysti ég.

31:7b.PSA.031.007 Ég vil gleðjast og fagna yfir miskunn þinni, því að þú hefir litið á eymd mína, gefið gætur að sálarneyð minni

31:8b.PSA.031.008 og eigi ofurselt mig óvinunum, en sett fót minn á víðlendi.

31:9b.PSA.031.009 Líkna mér, Drottinn, því að ég er í nauðum staddur, döpruð af harmi eru augu mín, sál mín og líkami.

31:10b.PSA.031.010 Ár mín líða í harmi og líf mitt í andvörpum, mér förlast kraftur sakir sektar minnar, og bein mín tærast.

31:11b.PSA.031.011 Ég er að spotti öllum óvinum mínum, til háðungar nábúum mínum og skelfing kunningjum mínum: þeir sem sjá mig á strætum úti flýja mig.

31:12b.PSA.031.012 Sem dáinn maður er ég gleymdur hjörtum þeirra, ég er sem ónýtt ker.

31:13b.PSA.031.013 Ég heyri illyrði margra, - skelfing er allt um kring - þeir bera ráð sín saman móti mér, hyggja á að svipta mig lífi.

31:14b.PSA.031.014 En ég treysti þér, Drottinn, ég segi: "Þú ert Guð minn!"

31:15b.PSA.031.015 Í þinni hendi eru stundir mínar, frelsa mig af hendi óvina minna og ofsækjenda.

31:16b.PSA.031.016 Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

31:17b.PSA.031.017 Ó Drottinn, lát mig eigi verða til skammar, því að ég ákalla þig. Lát hina guðlausu verða til skammar, hverfa hljóða til Heljar.

31:18b.PSA.031.018 Lát lygavarirnar þagna, þær er mæla drambyrði gegn réttlátum með hroka og fyrirlitningu.

31:19b.PSA.031.019 Hversu mikil er gæska þín, er þú hefir geymt þeim er óttast þig, og auðsýnir þeim er leita hælis hjá þér frammi fyrir mönnunum.

31:20b.PSA.031.020 Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns fyrir svikráðum manna, felur þá í leyni fyrir deilum tungnanna.

31:21b.PSA.031.021 Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir sýnt mér dásamlega náð í öruggri borg.

31:22b.PSA.031.022 Ég hugsaði í angist minni: "Ég er burtrekinn frá augum þínum." En samt heyrðir þú grátraust mína, er ég hrópaði til þín.

31:23b.PSA.031.023 Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu, Drottinn verndar trúfasta, en geldur í fullum mæli þeim er ofmetnaðarverk vinna.

31:24b.PSA.031.024 Verið öruggir og hughraustir, allir þér er vonið á Drottin.

32

32:1b.PSA.032.001 Davíðsmaskíl. Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin.

32:2b.PSA.032.002 Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð, sá er eigi geymir svik í anda.

32:3b.PSA.032.003 Meðan ég þagði, tærðust bein mín, allan daginn kveinaði ég,

32:4b.PSA.032.004 því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju.

32:5b.PSA.032.005 Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti: "Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni," og þú fyrirgafst syndasekt mína.

32:6b.PSA.032.006 Þess vegna biðji þig sérhver trúaður, meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi.

32:7b.PSA.032.007 Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum, með frelsisfögnuði umkringir þú mig.

32:8b.PSA.032.008 Ég vil fræða þig og vísa þér veginn, er þú átt að ganga, ég vil kenna þér og hafa augun á þér:

32:9b.PSA.032.009 Verið eigi sem hestar eða skynlausir múlar; með taum og beisli verður að temja þrjósku þeirra, annars nálgast þeir þig ekki.

32:10b.PSA.032.010 Miklar eru þjáningar óguðlegs manns, en þann er treystir Drottni umlykur hann elsku.

32:11b.PSA.032.011 Gleðjist yfir Drottni og fagnið, þér réttlátir, kveðið fagnaðarópi, allir hjartahreinir!

33

33:1b.PSA.033.001 Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni! Hreinlyndum hæfir lofsöngur.

33:2b.PSA.033.002 Lofið Drottin með gígjum, leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu.

33:3b.PSA.033.003 Syngið honum nýjan söng, knýið strengina ákaft með fagnaðarópi.

33:4b.PSA.033.004 Því að orð Drottins er áreiðanlegt, og öll verk hans eru í trúfesti gjörð.

33:5b.PSA.033.005 Hann hefir mætur á réttlæti og rétti, jörðin er full af miskunn Drottins.

33:6b.PSA.033.006 Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og öll þeirra prýði fyrir anda munns hans.

33:7b.PSA.033.007 Hann safnaði vatni hafsins sem í belg, lét straumana í forðabúr.

33:8b.PSA.033.008 Öll jörðin óttist Drottin, allir heimsbúar hræðist hann,

33:9b.PSA.033.009 því að hann talaði - og það varð, hann bauð - þá stóð það þar.

33:10b.PSA.033.010 Drottinn ónýtir ráð þjóðanna, gjörir að engu áform lýðanna,

33:11b.PSA.033.011 en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns.

33:12b.PSA.033.012 Sæl er sú þjóð er á Drottin að Guði, sá lýður er hann hefir kjörið sér til eignar.

33:13b.PSA.033.013 Drottinn lítur niður af himni, sér öll mannanna börn,

33:14b.PSA.033.014 frá bústað sínum virðir hann fyrir sér alla jarðarbúa,

33:15b.PSA.033.015 hann sem myndað hefir hjörtu þeirra allra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.

33:16b.PSA.033.016 Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns, eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt.

33:17b.PSA.033.017 Svikull er víghestur til sigurs, með ofurafli sínu bjargar hann ekki.

33:18b.PSA.033.018 En augu Drottins hvíla á þeim er óttast hann, á þeim er vona á miskunn hans.

33:19b.PSA.033.019 Hann frelsar þá frá dauða og heldur lífinu í þeim í hallæri.

33:20b.PSA.033.020 Sálir vorar vona á Drottin, hann er hjálp vor og skjöldur.

33:21b.PSA.033.021 Já, yfir honum fagnar hjarta vort, hans heilaga nafni treystum vér.

33:22b.PSA.033.022 Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig.

34

34:1b.PSA.034.001 Sálmur Davíðs, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt. Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.

34:2b.PSA.034.002 Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna.

34:3b.PSA.034.003 Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.

34:4b.PSA.034.004 Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.

34:5b.PSA.034.005 Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.

34:6b.PSA.034.006 Hér er volaður maður sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.

34:7b.PSA.034.007 Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.

34:8b.PSA.034.008 Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.

34:9b.PSA.034.009 Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.

34:10b.PSA.034.010 Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.

34:11b.PSA.034.011 Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.

34:12b.PSA.034.012 Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,

34:13b.PSA.034.013 þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali,

34:14b.PSA.034.014 forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.

34:15b.PSA.034.015 Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.

34:16b.PSA.034.016 Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni.

34:17b.PSA.034.017 Ef réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.

34:18b.PSA.034.018 Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.

34:19b.PSA.034.019 Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.

34:20b.PSA.034.020 Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.

34:21b.PSA.034.021 Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir.

34:22b.PSA.034.022 Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.

35

35:1b.PSA.035.001 Davíðssálmur. Deil þú, Drottinn, við þá er deila við mig, berst þú við þá er berjast við mig.

35:2b.PSA.035.002 Tak skjöld og törgu og rís upp mér til hjálpar.

35:3b.PSA.035.003 Tak til spjót og öxi til þess að mæta ofsækjendum mínum, seg við sál mína: "Ég er hjálp þín!"

35:4b.PSA.035.004 Lát þá er sitja um líf mitt hljóta smán og svívirðing, lát þá hverfa aftur með skömm, er ætla að gjöra mér illt.

35:5b.PSA.035.005 Lát þá verða sem sáðir fyrir vindi, þegar engill Drottins varpar þeim um koll.

35:6b.PSA.035.006 Lát veg þeirra verða myrkan og hálan, þegar engill Drottins eltir þá.

35:7b.PSA.035.007 Því að ástæðulausu hafa þeir lagt net sitt leynt fyrir mig, að ástæðulausu hafa þeir grafið gryfju fyrir mig.

35:8b.PSA.035.008 Lát tortíming koma yfir þá, er þá varir minnst, lát netið, er þeir hafa lagt leynt, veiða sjálfa þá, lát þá falla í þeirra eigin gryfju.

35:9b.PSA.035.009 En sál mín skal kætast yfir Drottni, gleðjast yfir hjálpræði hans.

35:10b.PSA.035.010 Öll bein mín skulu segja: "Drottinn, hver er sem þú, er frelsar hinn umkomulausa frá þeim sem er honum yfirsterkari, hinn hrjáða og snauða frá þeim sem rænir hann?"

35:11b.PSA.035.011 Ljúgvottar rísa upp, þeir spyrja mig um það sem ég veit ekki um.

35:12b.PSA.035.012 Þeir launa mér gott með illu, einsemd varð hlutfall mitt.

35:13b.PSA.035.013 En þegar þeir voru sjúkir, klæddist ég hærusekk, þjáði mig með föstu og bað með niðurlútu höfði,

35:14b.PSA.035.014 gekk um harmandi, sem vinur eða bróðir ætti í hlut, var beygður eins og sá er syrgir móður sína.

35:15b.PSA.035.015 En þeir fagna yfir hrösun minni og safnast saman, útlendingar og ókunnugir menn safnast saman móti mér, mæla lastyrði og þagna eigi.

35:16b.PSA.035.016 Þeir freista mín, smána og smána, nísta tönnum í gegn mér.

35:17b.PSA.035.017 Drottinn, hversu lengi vilt þú horfa á? Frelsa sál mína undan eyðileggingu þeirra, mína einmana sál undan ljónunum.

35:18b.PSA.035.018 Þá vil ég lofa þig í miklum söfnuði, vegsama þig í miklum mannfjölda.

35:19b.PSA.035.019 Lát eigi þá sem án saka eru óvinir mínir, hlakka yfir mér, lát eigi þá sem að ástæðulausu hata mig, skotra augunum.

35:20b.PSA.035.020 Því að frið tala þeir eigi, og móti hinum kyrrlátu í landinu hugsa þeir upp sviksamleg orð.

35:21b.PSA.035.021 Þeir glenna upp ginið í móti mér, segja: "Hæ, hæ! Nú höfum vér séð það með eigin augum!"

35:22b.PSA.035.022 Þú hefir séð það, Drottinn, ver eigi hljóður, Drottinn, ver eigi langt í burtu frá mér.

35:23b.PSA.035.023 Vakna, rís upp og lát mig ná rétti mínum, Guð minn og Drottinn, til þess að flytja mál mitt.

35:24b.PSA.035.024 Dæm mig eftir réttlæti þínu, Drottinn, Guð minn, og lát þá eigi hlakka yfir mér,

35:25b.PSA.035.025 lát þá ekki segja í hjarta sínu: "Hæ! Ósk vor er uppfyllt!" lát þá ekki segja: "Vér höfum gjört út af við hann."

35:26b.PSA.035.026 Lát þá alla verða til skammar og hljóta kinnroða, er hlakka yfir ógæfu minni, lát þá íklæðast skömm og svívirðing, er hreykja sér upp gegn mér.

35:27b.PSA.035.027 Lát þá kveða fagnaðarópi og gleðjast, er unna mér réttar, lát þá ætíð segja: "Vegsamaður sé Drottinn, hann sem ann þjóni sínum heilla!"

35:28b.PSA.035.028 Og tunga mín skal boða réttlæti þitt, lofstír þinn liðlangan daginn.

36

36:1b.PSA.036.001 Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins. Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.

36:2b.PSA.036.002 Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.

36:3b.PSA.036.003 Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.

36:4b.PSA.036.004 Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.

36:5b.PSA.036.005 Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.

36:6b.PSA.036.006 Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.

36:7b.PSA.036.007 Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

36:8b.PSA.036.008 Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.

36:9b.PSA.036.009 Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.

36:10b.PSA.036.010 Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.

36:11b.PSA.036.011 Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.

36:12b.PSA.036.012 Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.

37

37:1b.PSA.037.001 Davíðssálmur. Ver eigi of bráður vegna illvirkjanna, öfunda eigi þá er ranglæti fremja,

37:2b.PSA.037.002 því að þeir fölna skjótt sem grasið, visna sem grænar jurtir.

37:3b.PSA.037.003 Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni,

37:4b.PSA.037.004 þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það sem hjarta þitt girnist.

37:5b.PSA.037.005 Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.

37:6b.PSA.037.006 Hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós og rétt þinn sem hábjartan dag.

37:7b.PSA.037.007 Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann. Ver eigi of bráður vegna þeirra er vel gengur, vegna þess manns er svik fremur.

37:8b.PSA.037.008 Lát af reiði og slepp heiftinni, ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins.

37:9b.PSA.037.009 Illvirkjarnir verða afmáðir, en þeir er vona á Drottin, fá landið til eignar.

37:10b.PSA.037.010 Innan stundar eru engir guðlausir til framar, þegar þú gefur gætur að stað þeirra, eru þeir horfnir.

37:11b.PSA.037.011 En hinir hógværu fá landið til eignar, gleðjast yfir ríkulegri gæfu.

37:12b.PSA.037.012 Óguðlegur maður býr yfir illu gegn réttlátum, nístir tönnum gegn honum.

37:13b.PSA.037.013 Drottinn hlær að honum, því að hann sér að dagur hans kemur.

37:14b.PSA.037.014 Óguðlegir bregða sverðinu og benda boga sína til þess að fella hinn hrjáða og snauða, til þess að brytja niður hina ráðvöndu.

37:15b.PSA.037.015 En sverð þeirra lendir í þeirra eigin hjörtum, og bogar þeirra munu brotnir verða.

37:16b.PSA.037.016 Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra illgjarnra,

37:17b.PSA.037.017 því að armleggur illgjarnra verður brotinn, en réttláta styður Drottinn.

37:18b.PSA.037.018 Drottinn þekkir daga ráðvandra, og arfleifð þeirra varir að eilífu.

37:19b.PSA.037.019 Á vondum tímum verða þeir eigi til skammar, á hallæristímum hljóta þeir saðning.

37:20b.PSA.037.020 En óguðlegir farast, og óvinir Drottins eru sem skraut vallarins: þeir hverfa - sem reykur hverfa þeir.

37:21b.PSA.037.021 Guðlaus maður tekur lán og borgar eigi, en hinn réttláti er mildur og örlátur.

37:22b.PSA.037.022 Því að þeir sem Drottinn blessar, fá landið til eignar, en hinum bannfærðu verður útrýmt.

37:23b.PSA.037.023 Frá Drottni kemur skrefum mannsins festa, þegar hann hefir þóknun á breytni hans.

37:24b.PSA.037.024 Þótt hann falli, þá liggur hann ekki flatur, því að Drottinn heldur í hönd hans.

37:25b.PSA.037.025 Ungur var ég og gamall er ég orðinn, en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn né niðja hans biðja sér matar.

37:26b.PSA.037.026 Ætíð er hann mildur og lánar, og niðjar hans verða öðrum til blessunar.

37:27b.PSA.037.027 Forðastu illt og gjörðu gott, þá munt þú búa kyrr um aldur,

37:28b.PSA.037.028 því að Drottinn hefir mætur á réttlæti og yfirgefur ekki sína trúuðu. Þeir verða eilíflega varðveittir, en niðjar óguðlegra upprætast.

37:29b.PSA.037.029 Hinir réttlátu fá landið til eignar og búa í því um aldur.

37:30b.PSA.037.030 Munnur réttláts manns mælir speki og tunga hans talar það sem rétt er.

37:31b.PSA.037.031 Lögmál Guðs hans er í hjarta hans, eigi skriðnar honum fótur.

37:32b.PSA.037.032 Hinn guðlausi skimar eftir hinum réttláta og situr um að drepa hann,

37:33b.PSA.037.033 en Drottinn ofurselur hann honum ekki og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi.

37:34b.PSA.037.034 Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans, þá mun hann hefja þig upp, að þú erfir landið, og þú skalt horfa á, þegar illvirkjum verður útrýmt.

37:35b.PSA.037.035 Ég sá hinn óguðlega í ofstopa sínum og þenja sig út sem grænt tré á gróðrarstöðvum sínum,

37:36b.PSA.037.036 og ég gekk fram hjá, og sjá, hann var þar ekki framar, ég leitaði hans, en hann fannst ekki.

37:37b.PSA.037.037 Gef gætur að hinum ráðvanda og lít á hinn hreinskilna, því að friðsamir menn eiga framtíð fyrir höndum,

37:38b.PSA.037.038 en afbrotamönnum verður útrýmt öllum samt, framtíðarvon óguðlegra bregst.

37:39b.PSA.037.039 Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum.

37:40b.PSA.037.040 Drottinn liðsinnir þeim og bjargar þeim, bjargar þeim undan hinum óguðlega og hjálpar þeim, af því að þeir leituðu hælis hjá honum.

38

38:1b.PSA.038.001 Davíðssálmur. Minningarljóð. Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.

38:2b.PSA.038.002 Örvar þínar standa fastar í mér, og hönd þín liggur þungt á mér.

38:3b.PSA.038.003 Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar.

38:4b.PSA.038.004 Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð, sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar.

38:5b.PSA.038.005 Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar.

38:6b.PSA.038.006 Ég er beygður og mjög bugaður, ráfa um harmandi daginn langan.

38:7b.PSA.038.007 Lendar mínar eru fullar bruna, og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum.

38:8b.PSA.038.008 Ég er lémagna og kraminn mjög, kveina af angist hjartans.

38:9b.PSA.038.009 Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér.

38:10b.PSA.038.010 Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér.

38:11b.PSA.038.011 Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni, og frændur mínir standa fjarri.

38:12b.PSA.038.012 Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik allan liðlangan daginn.

38:13b.PSA.038.013 En ég er sem daufur, ég heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn,

38:14b.PSA.038.014 ég er sem maður er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans.

38:15b.PSA.038.015 Því að á þig, Drottinn, vona ég, þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn,

38:16b.PSA.038.016 því að ég segi: "Lát þá eigi hlakka yfir mér, eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur."

38:17b.PSA.038.017 Því að ég er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum.

38:18b.PSA.038.018 Ég játa misgjörð mína, harma synd mína,

38:19b.PSA.038.019 og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu.

38:20b.PSA.038.020 Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.

38:21b.PSA.038.021 Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér,

38:22b.PSA.038.022 skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín.

39

39:1b.PSA.039.001 Til söngstjórans, eftir Jedútún. Davíðssálmur. Ég sagði: "Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er í nánd við mig."

39:2b.PSA.039.002 Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist.

39:3b.PSA.039.003 Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði:

39:4b.PSA.039.004 "Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er.

39:5b.PSA.039.005 Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Andgustur einn eru allir menn.

39:6b.PSA.039.006 Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, gjörir háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur."

39:7b.PSA.039.007 Hvers vona ég þá, Drottinn? Von mín er öll á þér.

39:8b.PSA.039.008 Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti.

39:9b.PSA.039.009 Ég þegi, ég opna eigi munninn, því að þú hefir talað.

39:10b.PSA.039.010 Lát plágu þína víkja frá mér, ég verð að engu fyrir krafti handar þinnar.

39:11b.PSA.039.011 Þá er þú beitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn.

39:12b.PSA.039.012 Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir.

39:13b.PSA.039.013 Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar.

4

4:1b.PSA.004.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur. Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

4:2b.PSA.004.002 Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar?

4:3b.PSA.004.003 Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

4:4b.PSA.004.004 Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir.

4:5b.PSA.004.005 Færið réttar fórnir og treystið Drottni.

4:6b.PSA.004.006 Margir segja: "Hver lætur oss hamingju líta?" Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

4:7b.PSA.004.007 Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

4:8b.PSA.004.008 Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

40

40:1b.PSA.040.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ég hefi sett alla von mína á Drottin, og hann laut niður að mér og heyrði kvein mitt.

40:2b.PSA.040.002 Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju, og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan í gangi.

40:3b.PSA.040.003 Hann lagði mér ný ljóð í munn, lofsöng um Guð vorn. Margir sjá það og óttast og treysta Drottni.

40:4b.PSA.040.004 Sæll er sá maður, er gjörir Drottin að athvarfi sínu og snýr sér eigi til hinna dramblátu né þeirra er snúist hafa afleiðis til lygi.

40:5b.PSA.040.005 Mörg hefir þú, Drottinn, Guð minn, gjört dásemdarverk þín og áform þín oss til handa, ekkert kemst í samjöfnuð við þig. Ef ég ætti að boða þau og kunngjöra, eru þau fleiri en tölu verði á komið.

40:6b.PSA.040.006 Á sláturfórnum og matfórnum hefir þú enga þóknun, - þú hefir gefið mér opin eyru - brennifórnir og syndafórnir heimtar þú eigi.

40:7b.PSA.040.007 Þá mælti ég: "Sjá, ég kem, í bókrollunni eru mér reglur settar.

40:8b.PSA.040.008 Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér."

40:9b.PSA.040.009 Ég hefi boðað réttlætið í miklum söfnuði, ég hefi eigi haldið vörunum aftur, það veist þú, Drottinn!

40:10b.PSA.040.010 Ég leyndi eigi réttlæti þínu í hjarta mér, ég kunngjörði trúfesti þína og hjálpræði og dró eigi dul á náð þína og tryggð í hinum mikla söfnuði.

40:11b.PSA.040.011 Tak þá eigi miskunn þína frá mér, Drottinn, lát náð þína og trúfesti ætíð vernda mig.

40:12b.PSA.040.012 Því að ótal hættur umkringja mig, misgjörðir mínar hafa náð mér, svo að ég má eigi sjá, þær eru fleiri en hárin á höfði mér, mér fellst hugur.

40:13b.PSA.040.013 Lát þér, Drottinn, þóknast að frelsa mig, skunda, Drottinn, mér til hjálpar.

40:14b.PSA.040.014 Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.

40:15b.PSA.040.015 Lát þá verða forviða yfir smán sinni, er hrópa háð og spé.

40:16b.PSA.040.016 En allir þeir er leita þín skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu skulu sífellt segja: "Vegsamaður sé Drottinn!"

40:17b.PSA.040.017 Ég er hrjáður og snauður, en Drottinn ber umhyggju fyrir mér. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, tef eigi, Guð minn!

41

41:1b.PSA.041.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.

41:2b.PSA.041.002 Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans.

41:3b.PSA.041.003 Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm.

41:4b.PSA.041.004 Ég sagði: "Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér."

41:5b.PSA.041.005 Óvinir mínir biðja mér óbæna: "Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?"

41:6b.PSA.041.006 Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga.

41:7b.PSA.041.007 Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa:

41:8b.PSA.041.008 "Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar."

41:9b.PSA.041.009 Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér.

41:10b.PSA.041.010 En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim.

41:11b.PSA.041.011 Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.

41:12b.PSA.041.012 Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu.

41:13b.PSA.041.013 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.

42

42:1b.PSA.042.001 Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó Guð.

42:2b.PSA.042.002 Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði. Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs?

42:3b.PSA.042.003 Tár mín urðu fæða mín dag og nótt, af því menn segja við mig allan daginn: "Hvar er Guð þinn?"

42:4b.PSA.042.004 Um það vil ég hugsa og úthella sál minni, sem í mér er, hversu ég gekk fram í mannþrönginni, leiddi þá til Guðs húss með fagnaðarópi og lofsöng, með hátíðaglaumi.

42:5b.PSA.042.005 Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

42:6b.PSA.042.006 Guð minn, sál mín er beygð í mér, fyrir því vil ég minnast þín frá Jórdan- og Hermonlandi, frá litla fjallinu.

42:7b.PSA.042.007 Eitt flóðið kallar á annað, þegar fossar þínir duna, allir boðar þínir og bylgjur ganga yfir mig.

42:8b.PSA.042.008 Um daga býður Drottinn út náð sinni, og um nætur syng ég honum ljóð, bæn til Guðs lífs míns.

42:9b.PSA.042.009 Ég mæli til Guðs: "Þú bjarg mitt, hví hefir þú gleymt mér? hví verð ég að ganga harmandi, kúgaður af óvinum?"

42:10b.PSA.042.010 Háð fjandmanna minna er sem rotnun í beinum mínum, er þeir segja við mig allan daginn: "Hvar er Guð þinn?"

42:11b.PSA.042.011 Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

43

43:1b.PSA.043.001 Lát mig ná rétti mínum, Guð, berst fyrir málefni mínu gegn miskunnarlausri þjóð, bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.

43:2b.PSA.043.002 Því að þú ert sá Guð, sem er mér vígi, hví hefir þú útskúfað mér? hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum?

43:3b.PSA.043.003 Send ljós þitt og trúfesti þína, þau skulu leiða mig, þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga, til bústaðar þíns,

43:4b.PSA.043.004 svo að ég megi inn ganga að altari Guðs, til Guðs minnar fagnandi gleði, og lofa þig með gígjuhljómi, ó Guð, þú Guð minn.

43:5b.PSA.043.005 Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

44

44:1b.PSA.044.001 Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, frá því, er þú gjörðir forðum daga.

44:2b.PSA.044.002 Þú stökktir burt þjóðum, en gróðursettir þá, þú lékst lýði harðlega, en útbreiddir þá.

44:3b.PSA.044.003 Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim.

44:4b.PSA.044.004 Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakobsætt til handa.

44:5b.PSA.044.005 Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir, og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum.

44:6b.PSA.044.006 Ég treysti eigi boga mínum, og sverð mitt veitir mér eigi sigur,

44:7b.PSA.044.007 heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar.

44:8b.PSA.044.008 Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu.

44:9b.PSA.044.009 Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveitum vorum.

44:10b.PSA.044.010 Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum, og hatursmenn vorir taka herfang.

44:11b.PSA.044.011 Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal þjóðanna.

44:12b.PSA.044.012 Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, tekur ekkert verð fyrir hann.

44:13b.PSA.044.013 Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.

44:14b.PSA.044.014 Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.

44:15b.PSA.044.015 Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum, og skömm hylur auglit mitt,

44:16b.PSA.044.016 af því ég verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna.

44:17b.PSA.044.017 Allt þetta hefir mætt oss, og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn.

44:18b.PSA.044.018 Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum,

44:19b.PSA.044.019 en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna og hulið oss niðdimmu.

44:20b.PSA.044.020 Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða,

44:21b.PSA.044.021 mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans?

44:22b.PSA.044.022 En þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé.

44:23b.PSA.044.023 Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur!

44:24b.PSA.044.024 Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun?

44:25b.PSA.044.025 Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina.

44:26b.PSA.044.026 Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar.

45

45:1b.PSA.045.001 Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði. Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.

45:2b.PSA.045.002 Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu.

45:3b.PSA.045.003 Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd.

45:4b.PSA.045.004 Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.

45:5b.PSA.045.005 Örvar þínar eru hvesstar, þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir.

45:6b.PSA.045.006 Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti.

45:7b.PSA.045.007 Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum.

45:8b.PSA.045.008 Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.

45:9b.PSA.045.009 Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna, konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófír-gulls.

45:10b.PSA.045.010 "Heyr, dóttir, og hneig eyra þitt! Gleym þjóð þinni og föðurlandi,

45:11b.PSA.045.011 að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar, því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta.

45:12b.PSA.045.012 Frá Týrus munu menn koma með gjafir, auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar."

45:13b.PSA.045.013 Eintómt skraut er konungsdóttirin, perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar.

45:14b.PSA.045.014 Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung, meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig.

45:15b.PSA.045.015 Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði, þær fara inn í höll konungs.

45:16b.PSA.045.016 Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt.

45:17b.PSA.045.017 Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi.

46

46:1b.PSA.046.001 Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.

46:2b.PSA.046.002 Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.

46:3b.PSA.046.003 Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins.

46:4b.PSA.046.004 Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.

46:5b.PSA.046.005 Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.

46:6b.PSA.046.006 Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.

46:7b.PSA.046.007 Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi.

46:8b.PSA.046.008 Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.

46:9b.PSA.046.009 Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.

46:10b.PSA.046.010 "Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu."

46:11b.PSA.046.011 Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi.

47

47:1b.PSA.047.001 Til söngstjórans. Kóraítasálmur. Klappið saman lófum, allar þjóðir, fagnið fyrir Guði með gleðiópi.

47:2b.PSA.047.002 Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.

47:3b.PSA.047.003 Hann leggur undir oss lýði og þjóðir fyrir fætur vora.

47:4b.PSA.047.004 Hann útvaldi handa oss óðal vort, fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar.

47:5b.PSA.047.005 Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.

47:6b.PSA.047.006 Syngið Guði, syngið, syngið konungi vorum, syngið!

47:7b.PSA.047.007 Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni, syngið Guði lofsöng!

47:8b.PSA.047.008 Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum, Guð er setstur í sitt heilaga hásæti.

47:9b.PSA.047.009 Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar, hann er mjög hátt upphafinn.

48

48:1b.PSA.048.001 Ljóð. Kóraítasálmur. Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

48:2b.PSA.048.002 Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð, yst í norðri, borg hins mikla konungs.

48:3b.PSA.048.003 Guð hefir í höllum hennar kunngjört sig sem vígi.

48:4b.PSA.048.004 Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu, héldu fram saman.

48:5b.PSA.048.005 Óðara en þeir sáu, urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.

48:6b.PSA.048.006 Felmtur greip þá samstundis, angist sem jóðsjúka konu.

48:7b.PSA.048.007 Með austanvindinum brýtur þú Tarsis-knörru.

48:8b.PSA.048.008 Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna, í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu.

48:9b.PSA.048.009 Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu.

48:10b.PSA.048.010 Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.

48:11b.PSA.048.011 Síonfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna.

48:12b.PSA.048.012 Kringið um Síon, gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.

48:13b.PSA.048.013 Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,

48:14b.PSA.048.014 að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.

49

49:1b.PSA.049.001 Fyrir kvenraddir. Til söngstjórans. Kóraítasálmur. Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,

49:2b.PSA.049.002 bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!

49:3b.PSA.049.003 Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi.

49:4b.PSA.049.004 Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm.

49:5b.PSA.049.005 Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,

49:6b.PSA.049.006 þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.

49:7b.PSA.049.007 Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.

49:8b.PSA.049.008 Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu,

49:9b.PSA.049.009 ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.

49:10b.PSA.049.010 Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.

49:11b.PSA.049.011 Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.

49:12b.PSA.049.012 Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki, hann verður jafn skepnunum sem farast.

49:13b.PSA.049.013 Svo fer þeim sem eru þóttafullir, og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra.

49:14b.PSA.049.014 Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra.

49:15b.PSA.049.015 En mína sál mun Guð endurleysa, því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar.

49:16b.PSA.049.016 Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil,

49:17b.PSA.049.017 því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum.

49:18b.PSA.049.018 Hann telur sig sælan meðan hann lifir: "Menn lofa þig, af því að þér farnast vel."

49:19b.PSA.049.019 - Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið.

49:20b.PSA.049.020 Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum sem farast.

5

5:1b.PSA.005.001 Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur. Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum.

5:2b.PSA.005.002 Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég.

5:3b.PSA.005.003 Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.

5:4b.PSA.005.004 Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki, hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.

5:5b.PSA.005.005 Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér, þú hatar alla er illt gjöra.

5:6b.PSA.005.006 Þú tortímir þeim, sem lygar mæla, á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.

5:7b.PSA.005.007 En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.

5:8b.PSA.005.008 Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér.

5:9b.PSA.005.009 Einlægni er ekki til í munni þeirra, hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.

5:10b.PSA.005.010 Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna, hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.

5:11b.PSA.005.011 Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu, því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.

5:12b.PSA.005.012 Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.

50

50:1b.PSA.050.001 Asafs-sálmur. Drottinn er alvaldur Guð, hann talar og kallar á jörðina frá upprás sólar til niðurgöngu hennar.

50:2b.PSA.050.002 Frá Síon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð.

50:3b.PSA.050.003 Guð vor kemur og þegir ekki. Eyðandi eldur fer fyrir honum, og í kringum hann geisar stormurinn.

50:4b.PSA.050.004 Hann kallar á himininn uppi og á jörðina, til þess að dæma lýð sinn:

50:5b.PSA.050.005 "Safnið saman dýrkendum mínum, þeim er gjört hafa sáttmála við mig með fórnum."

50:6b.PSA.050.006 Þá kunngjörðu himnarnir réttlæti hans, því að Guð er sá sem dæmir.

50:7b.PSA.050.007 "Heyr, þjóð mín, og lát mig tala, Ísrael, og lát mig áminna þig, ég er Drottinn, Guð þinn!

50:8b.PSA.050.008 Eigi er það vegna fórna þinna, að ég ávíta þig, brennifórnir þínar eru stöðuglega frammi fyrir mér.

50:9b.PSA.050.009 Ég þarf ekki að taka uxa úr húsi þínu né geithafra úr stíu þinni,

50:10b.PSA.050.010 því að mín eru öll skógardýrin og skepnurnar á fjöllum þúsundanna.

50:11b.PSA.050.011 Ég þekki alla fugla á fjöllunum, og mér er kunnugt um allt það sem hrærist á mörkinni.

50:12b.PSA.050.012 Væri ég hungraður, mundi ég ekki segja þér frá því, því að jörðin er mín og allt sem á henni er.

50:13b.PSA.050.013 Et ég nauta kjöt, eða drekk ég hafra blóð?

50:14b.PSA.050.014 Fær Guði þakkargjörð að fórn og gjald Hinum hæsta þannig heit þín.

50:15b.PSA.050.015 Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig."

50:16b.PSA.050.016 En við hinn óguðlega segir Guð: "Hvernig dirfist þú að telja upp boðorð mín og taka sáttmála minn þér í munn,

50:17b.PSA.050.017 þar sem þú þó hatar aga og varpar orðum mínum að baki þér?

50:18b.PSA.050.018 Sjáir þú þjóf, leggur þú lag þitt við hann, og við hórkarla hefir þú samfélag.

50:19b.PSA.050.019 Þú hleypir munni þínum út í illsku, og tunga þín bruggar svik.

50:20b.PSA.050.020 Þú situr og bakmælir bróður þínum og ófrægir son móður þinnar.

50:21b.PSA.050.021 Slíkt hefir þú gjört, og ég ætti að þegja? Þú heldur, að ég sé líkur þér! Ég mun hegna þér og endurgjalda þér augljóslega.

50:22b.PSA.050.022 Hyggið að þessu, þér sem gleymið Guði, til þess að ég sundurrífi ekki og enginn fái bjargað.

50:23b.PSA.050.023 Sá sem færir þakkargjörð að fórn, heiðrar mig, og þann sem breytir grandvarlega, vil ég láta sjá hjálpræði Guðs."

51

51:1b.PSA.051.001 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs, þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu. Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

51:2b.PSA.051.002 Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,

51:3b.PSA.051.003 því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

51:4b.PSA.051.004 Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

51:5b.PSA.051.005 Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.

51:6b.PSA.051.006 Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

51:7b.PSA.051.007 Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

51:8b.PSA.051.008 Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.

51:9b.PSA.051.009 Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

51:10b.PSA.051.010 Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.

51:11b.PSA.051.011 Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

51:12b.PSA.051.012 Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,

51:13b.PSA.051.013 að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.

51:14b.PSA.051.014 Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

51:15b.PSA.051.015 Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

51:16b.PSA.051.016 Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum - annars mundi ég láta þær í té - og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

51:17b.PSA.051.017 Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

51:18b.PSA.051.018 Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!

51:19b.PSA.051.019 Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

52

52:1b.PSA.052.001 Til söngstjórans. Maskíl eftir Davíð, þá er Dóeg Edómíti kom og sagði Sál frá og mælti til hans: Davíð er kominn í hús Ahímeleks. Hví stærir þú þig af vonskunni, harðstjóri? Miskunn Guðs varir alla daga!

52:2b.PSA.052.002 Tunga þín býr yfir skaðræði, eins og beittur rakhnífur, þú svikaforkur!

52:3b.PSA.052.003 Þú elskar illt meir en gott, lygi fremur en sannsögli.

52:4b.PSA.052.004 Þú elskar hvert skaðræðisorð, þú fláráða tunga!

52:5b.PSA.052.005 Því mun og Guð brjóta þig niður fyrir fullt og allt, hrífa þig burt og draga þig út úr tjaldi þínu og uppræta þig úr landi lifenda.

52:6b.PSA.052.006 Hinir réttlátu munu sjá það og óttast, og þeir munu hlæja að honum:

52:7b.PSA.052.007 "Þetta er maðurinn, sem ekki gjörði Guð að vernd sinni, heldur treysti á hin miklu auðæfi sín og þrjóskaðist í illsku sinni."

52:8b.PSA.052.008 En ég er sem grænt olíutré í húsi Guðs, treysti á Guðs náð um aldur og ævi.

52:9b.PSA.052.009 Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefir því til vegar komið, kunngjöra fyrir augum þinna trúuðu, að nafn þitt sé gott.

53

53:1b.PSA.053.001 Til söngstjórans. Með makalatlagi. Davíðs-maskíl. Heimskinginn segir í hjarta sínu: "Enginn Guð er til!" Ill og andstyggileg er breytni þeirra, enginn gjörir það sem gott er.

53:2b.PSA.053.002 Guð lítur af himni niður á mennina til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.

53:3b.PSA.053.003 Allir eru viknir af leið, allir spilltir, enginn gjörir það sem gott er, ekki einn.

53:4b.PSA.053.004 Skyldu þeir ekki fá að kenna á því, illgjörðamennirnir, þeir er eta lýð minn sem brauð væri og ákalla eigi Guð?

53:5b.PSA.053.005 Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir, þar sem ekkert er að óttast, því að Guð tvístrar beinum þeirra, er setja herbúðir móti þér. Þú lætur þá verða til skammar, því að Guð hefir hafnað þeim.

53:6b.PSA.053.006 Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Síon! Þegar Guð snýr við hag lýðs síns, skal Jakob fagna, Ísrael gleðjast.

54

54:1b.PSA.054.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð, þá er Sifítar komu og sögðu við Sál: Veistu að Davíð felur sig hjá oss? Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn með mætti þínum.

54:2b.PSA.054.002 Guð, heyr þú bæn mína, ljá eyra orðum munns míns.

54:3b.PSA.054.003 Því að erlendir fjandmenn hefjast gegn mér og ofríkismenn sækjast eftir lífi mínu, eigi hafa þeir Guð fyrir augum.

54:4b.PSA.054.004 Sjá, Guð er mér hjálpari, það er Drottinn er styður mig.

54:5b.PSA.054.005 Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma, lát þá hverfa af trúfesti þinni.

54:6b.PSA.054.006 Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir, lofa nafn þitt, Drottinn, að það sé gott,

54:7b.PSA.054.007 því að það hefir frelsað mig úr hverri neyð, og auga mitt hefir svalað sér á að horfa á óvini mína.

55

55:1b.PSA.055.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðs-maskíl. Hlýð, ó Guð, á bæn mína, fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni.

55:2b.PSA.055.002 Veit mér athygli og svara mér. Ég kveina í harmi mínum og styn

55:3b.PSA.055.003 sakir háreysti óvinarins, sakir hróps hins óguðlega, því að þeir steypa yfir mig ógæfu og ofsækja mig grimmilega.

55:4b.PSA.055.004 Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ógnir dauðans falla yfir mig,

55:5b.PSA.055.005 ótti og skelfing er yfir mig komin, og hryllingur fer um mig allan,

55:6b.PSA.055.006 svo að ég segi: "Ó að ég hefði vængi eins og dúfan, þá skyldi ég fljúga burt og finna hvíldarstað,

55:7b.PSA.055.007 já, ég skyldi svífa langt burt, ég skyldi gista í eyðimörkinni.

55:8b.PSA.055.008 Ég skyldi flýta mér að leita mér hælis fyrir þjótandi vindum og veðri."

55:9b.PSA.055.009 Rugla, Drottinn, sundra tungum þeirra, því að ég sé kúgun og deilur í borginni.

55:10b.PSA.055.010 Dag og nótt ganga þær um á múrum hennar, en ógæfa og armæða eru þar inni fyrir.

55:11b.PSA.055.011 Glötun er inni í henni, ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar.

55:12b.PSA.055.012 Því að það er eigi óvinur sem hæðir mig - það gæti ég þolað, og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig - fyrir honum gæti ég farið í felur,

55:13b.PSA.055.013 heldur þú, jafningi minn, vinur minn og kunningi,

55:14b.PSA.055.014 við sem vorum ástúðarvinir, sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús.

55:15b.PSA.055.015 Dauðinn komi yfir þá; stígi þeir lifandi niður til Heljar, því að illska er í bústöðum þeirra, í hjörtum þeirra.

55:16b.PSA.055.016 En ég hrópa til Guðs, og Drottinn mun hjálpa mér.

55:17b.PSA.055.017 Kvöld og morgna og um miðjan dag harma ég og styn, og hann heyrir raust mína.

55:18b.PSA.055.018 Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið, svo að þeir geta eigi nálgast mig, því að mótstöðumenn mínir eru margir.

55:19b.PSA.055.019 Guð mun heyra, og hann er ríkir frá eilífð mun lægja þá. Þeir breytast ekki og óttast eigi Guð.

55:20b.PSA.055.020 Vinur minn lagði hendur á þann er lifði í sátt við hann, hann rauf sáttmál sitt.

55:21b.PSA.055.021 Hálli en smjör er tunga hans, en ófriður er í hjarta hans, mýkri en olía eru orð hans, og þó brugðin sverð.

55:22b.PSA.055.022 Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum.

55:23b.PSA.055.023 Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið. Morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri, en ég treysti þér.

56

56:1b.PSA.056.001 Til söngstjórans. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð, þá er Filistar gripu hann í Gat. Ver mér náðugur, Guð, því að menn kremja mig, liðlangan daginn kreppa bardagamenn að mér.

56:2b.PSA.056.002 Fjandmenn mínir kremja mig liðlangan daginn, því að margir eru þeir, sem berjast gegn mér.

56:3b.PSA.056.003 Þegar ég er hræddur, treysti ég þér.

56:4b.PSA.056.004 Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, Guði treysti ég, ég óttast eigi. Hvað getur hold gjört mér?

56:5b.PSA.056.005 Þeir spilla málefnum mínum án afláts, allt það er þeir hafa hugsað í gegn mér, er til ills.

56:6b.PSA.056.006 Þeir áreita mig, þeir sitja um mig, þeir gefa gætur að ferðum mínum, eins og þeir væntu eftir að ná lífi mínu.

56:7b.PSA.056.007 Sakir ranglætis þeirra verður þeim engrar undankomu auðið, steyp þjóðunum í reiði þinni, ó Guð.

56:8b.PSA.056.008 Þú hefir talið hrakninga mína, tárum mínum er safnað í sjóð þinn, já, rituð í bók þína.

56:9b.PSA.056.009 Fyrir því skulu óvinir mínir hörfa undan, er ég hrópa, það veit ég, að Guð liðsinnir mér.

56:10b.PSA.056.010 Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, með hjálp Drottins mun ég lofa orð hans.

56:11b.PSA.056.011 Guði treysti ég, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?

56:12b.PSA.056.012 Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, ég vil gjalda þér þakkarfórnir,

56:13b.PSA.056.013 af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins.

57

57:1b.PSA.057.001 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál. Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis, og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.

57:2b.PSA.057.002 Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs, er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

57:3b.PSA.057.003 Hann sendir af himni og hjálpar mér, þegar sá er kremur mig spottar. Guð sendir náð sína og trúfesti.

57:4b.PSA.057.004 Ég verð að liggja meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar, og tungur þeirra eru bitur sverð.

57:5b.PSA.057.005 Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!

57:6b.PSA.057.006 Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína, sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana.

57:7b.PSA.057.007 Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.

57:8b.PSA.057.008 Vakna þú, sál mín, vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

57:9b.PSA.057.009 Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

57:10b.PSA.057.010 því að miskunn þín nær til himna og trúfesti þín til skýjanna.

57:11b.PSA.057.011 Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

58

58:1b.PSA.058.001 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðs-miktam. Talið þér í sannleika það sem rétt er, þér guðir? Dæmið þér mennina með sanngirni?

58:2b.PSA.058.002 Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur yðar vega út ofbeldi.

58:3b.PSA.058.003 Hinir illu eru frá móðurlífi viknir af leið, lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.

58:4b.PSA.058.004 Eitur þeirra er eins og höggormseitur, þeir eru eins og dauf naðra, sem lokar eyrunum

58:5b.PSA.058.005 til þess að heyra ekki raust særingamannsins né hins slungna töframanns.

58:6b.PSA.058.006 Guð, brjót sundur tennurnar í munni þeirra, mölva jaxlana úr ljónunum, Drottinn!

58:7b.PSA.058.007 Lát þá hverfa eins og vatn, sem rennur burt; miði hann örvum sínum á þá, þá hníga þeir,

58:8b.PSA.058.008 eins og snigillinn, sem rennur í sundur og hverfur, ótímaburður konunnar, er eigi sá sólina.

58:9b.PSA.058.009 Áður en pottar yðar kenna hitans af þyrnunum, hvort sem þyrnarnir eru grænir eða glóandi, feykir hann hinum illa burt.

58:10b.PSA.058.010 Þá mun hinn réttláti fagna, af því að hann hefir fengið að sjá hefndina, hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.

58:11b.PSA.058.011 Þá munu menn segja: Hinn réttláti hlýtur þó ávöxt; það er þó til Guð, sem dæmir á jörðunni.

59

59:1b.PSA.059.001 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið til þess að drepa hann. Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð minn, bjarga mér frá fjendum mínum.

59:2b.PSA.059.002 Frelsa mig frá illgjörðamönnunum og hjálpa mér gegn morðingjunum,

59:3b.PSA.059.003 því sjá, þeir sitja um líf mitt, hinir sterku áreita mig, þótt ég hafi ekki brotið eða syndgað, Drottinn.

59:4b.PSA.059.004 Þótt ég hafi eigi misgjört, hlaupa þeir að og búast til áhlaups. Vakna þú mér til liðveislu og lít á!

59:5b.PSA.059.005 En þú, Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð, vakna þú til þess að vitja allra þjóðanna, þyrm eigi neinum fráhverfum syndara.

59:6b.PSA.059.006 Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.

59:7b.PSA.059.007 Sjá, það freyðir úr munni þeirra, sverð eru á vörum þeirra, því að - "Hver heyrir?"

59:8b.PSA.059.008 En þú, Drottinn, hlærð að þeim, þú gjörir gys að öllum þjóðunum.

59:9b.PSA.059.009 Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín.

59:10b.PSA.059.010 Guð kemur í móti mér með náð sinni, Guð lætur mig sjá óvini mína auðmýkta.

59:11b.PSA.059.011 Drep þá eigi, svo að lýður minn gleymi eigi, lát þá reika fyrir veldi þínu og steyp þeim af stóli, þú Drottinn, skjöldur vor,

59:12b.PSA.059.012 sakir syndar munns þeirra, orðsins af vörum þeirra, og lát þá verða veidda í hroka þeirra, og sakir formælinga þeirra og lygi, er þeir tala.

59:13b.PSA.059.013 Afmá þá í reiði, afmá þá, uns þeir eru eigi framar til, og lát þá kenna á því, að Guð ríkir yfir Jakobsætt, allt til endimarka jarðar.

59:14b.PSA.059.014 Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.

59:15b.PSA.059.015 Þeir reika um eftir æti og urra, ef þeir verða eigi saddir.

59:16b.PSA.059.016 En ég vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því að þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar.

59:17b.PSA.059.017 Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð.

6

6:1b.PSA.006.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.

6:2b.PSA.006.002 Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast.

6:3b.PSA.006.003 Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn - hversu lengi?

6:4b.PSA.006.004 Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

6:5b.PSA.006.005 Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju?

6:6b.PSA.006.006 Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt.

6:7b.PSA.006.007 Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna.

6:8b.PSA.006.008 Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.

6:9b.PSA.006.009 Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni.

6:10b.PSA.006.010 Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt.

60

60:1b.PSA.060.001 Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Sóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns. Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss - snú þér aftur að oss.

60:2b.PSA.060.002 Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar.

60:3b.PSA.060.003 Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín.

60:4b.PSA.060.004 Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum.

60:5b.PSA.060.005 Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast.

60:6b.PSA.060.006 Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.

60:7b.PSA.060.007 Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

60:8b.PSA.060.008 Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."

60:9b.PSA.060.009 Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?

60:10b.PSA.060.010 Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

60:11b.PSA.060.011 Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.

60:12b.PSA.060.012 Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.

61

61:1b.PSA.061.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð. Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.

61:2b.PSA.061.002 Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt.

61:3b.PSA.061.003 Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum.

61:4b.PSA.061.004 Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna.

61:5b.PSA.061.005 Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt.

61:6b.PSA.061.006 Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.

61:7b.PSA.061.007 Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.

61:8b.PSA.061.008 Þá vil ég lofsyngja nafni þínu um aldur, og efna heit mín dag frá degi.

62

62:1b.PSA.062.001 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur. Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.

62:2b.PSA.062.002 Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.

62:3b.PSA.062.003 Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?

62:4b.PSA.062.004 Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu.

62:5b.PSA.062.005 Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.

62:6b.PSA.062.006 Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.

62:7b.PSA.062.007 Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.

62:8b.PSA.062.008 Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli.

62:9b.PSA.062.009 Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.

62:10b.PSA.062.010 Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.

62:11b.PSA.062.011 Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: "Hjá Guði er styrkleikur."

62:12b.PSA.062.012 Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.

63

63:1b.PSA.063.001 Sálmur eftir Davíð, þá er hann var í Júda-eyðimörk. Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.

63:2b.PSA.063.002 Þannig hefi ég litast um eftir þér í helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,

63:3b.PSA.063.003 því að miskunn þín er mætari en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.

63:4b.PSA.063.004 Þannig skal ég lofa þig meðan lifi, hefja upp hendurnar í þínu nafni.

63:5b.PSA.063.005 Sál mín mettast sem af merg og feiti, og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,

63:6b.PSA.063.006 þá er ég minnist þín í hvílu minni, hugsa um þig á næturvökunum.

63:7b.PSA.063.007 Því að þú ert mér fulltingi, í skugga vængja þinna fagna ég.

63:8b.PSA.063.008 Sál mín heldur sér fast við þig, hægri hönd þín styður mig.

63:9b.PSA.063.009 Þeir sem sitja um líf mitt sjálfum sér til glötunar, munu hverfa í djúp jarðar.

63:10b.PSA.063.010 Þeir munu verða ofurseldir sverðseggjum, verða sjakölunum að bráð.

63:11b.PSA.063.011 Konungurinn skal gleðjast yfir Guði, hver sá er sver við hann, skal sigri hrósa, af því að munni lygaranna hefir verið lokað.

64

64:1b.PSA.064.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

64:2b.PSA.064.002 Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins.

64:3b.PSA.064.003 Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna,

64:4b.PSA.064.004 er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng

64:5b.PSA.064.005 til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir.

64:6b.PSA.064.006 Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: "Hver ætli sjái það?"

64:7b.PSA.064.007 Þeir upphugsa ranglæti: "Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!" því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla.

64:8b.PSA.064.008 Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir,

64:9b.PSA.064.009 og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið.

64:10b.PSA.064.010 Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans. Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.

65

65:1b.PSA.065.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd.

65:2b.PSA.065.002 Þú sem heyrir bænir, til þín kemur allt hold.

65:3b.PSA.065.003 Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor.

65:4b.PSA.065.004 Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.

65:5b.PSA.065.005 Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,

65:6b.PSA.065.006 þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika,

65:7b.PSA.065.007 þú sem stöðvar brimgný hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,

65:8b.PSA.065.008 svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna.

65:9b.PSA.065.009 Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni, þú hefir framleitt korn þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði.

65:10b.PSA.065.010 Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess, með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess.

65:11b.PSA.065.011 Þú hefir krýnt árið með gæsku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feiti.

65:12b.PSA.065.012 Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði.

65:13b.PSA.065.013 Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.

66

66:1b.PSA.066.001 Til söngstjórans. Ljóð. Sálmur. Fagnið fyrir Guði, gjörvallt jarðríki,

66:2b.PSA.066.002 syngið um hans dýrlega nafn, gjörið lofstír hans vegsamlegan.

66:3b.PSA.066.003 Mælið til Guðs: Hversu óttaleg eru verk þín, sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir þér.

66:4b.PSA.066.004 Öll jörðin lúti þér og lofsyngi þér, lofsyngi nafni þínu.

66:5b.PSA.066.005 Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum.

66:6b.PSA.066.006 Hann breytti hafinu í þurrlendi, þeir fóru fótgangandi yfir ána. Þá glöddumst vér yfir honum.

66:7b.PSA.066.007 Hann ríkir um eilífð sakir veldis síns, augu hans gefa gætur að þjóðunum, uppreistarmenn mega eigi láta á sér bæra.

66:8b.PSA.066.008 Þér lýðir, lofið Guð vorn og látið hljóma lofsöng um hann.

66:9b.PSA.066.009 Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum.

66:10b.PSA.066.010 Því að þú hefir rannsakað oss, ó Guð, hreinsað oss, eins og silfur er hreinsað.

66:11b.PSA.066.011 Þú hefir varpað oss í fangelsi, lagt byrði á lendar vorar.

66:12b.PSA.066.012 Þú hefir látið menn ganga yfir höfuð vor, vér höfum farið gegnum eld og vatn, en nú hefir þú leitt oss út á víðan vang.

66:13b.PSA.066.013 Ég kem í hús þitt með brennifórnir, efni heit mín við þig,

66:14b.PSA.066.014 þau er varir mínar hétu og munnur minn nefndi, þá er ég var í nauðum staddur.

66:15b.PSA.066.015 Ég færi þér brennifórn af feitum dýrum, ásamt fórnarilm af hrútum, ég fórna nautum og höfrum.

66:16b.PSA.066.016 Komið, hlýðið til, allir þér er óttist Guð, að ég megi segja frá, hvað hann hefir gjört fyrir mig.

66:17b.PSA.066.017 Til hans hrópaði ég með munni mínum, en lofgjörð lá undir tungu minni.

66:18b.PSA.066.018 Ef ég hygg á illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki.

66:19b.PSA.066.019 En Guð hefir heyrt, gefið gaum að bænarópi mínu.

66:20b.PSA.066.020 Lofaður sé Guð, er eigi vísaði bæn minni á bug né tók miskunn sína frá mér.

67

67:1b.PSA.067.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð. Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor,

67:2b.PSA.067.002 svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.

67:3b.PSA.067.003 Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

67:4b.PSA.067.004 Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni.

67:5b.PSA.067.005 Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

67:6b.PSA.067.006 Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss.

67:7b.PSA.067.007 Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

68

68:1b.PSA.068.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans.

68:2b.PSA.068.002 Eins og reykur eyðist, eyðast þeir, eins og vax bráðnar í eldi, tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs.

68:3b.PSA.068.003 En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum.

68:4b.PSA.068.004 Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans, leggið braut fyrir hann er ekur gegnum öræfin. Drottinn heitir hann, fagnið fyrir augliti hans.

68:5b.PSA.068.005 Hann er faðir föðurlausra, vörður ekknanna, Guð í sínum heilaga bústað.

68:6b.PSA.068.006 Guð lætur hina einmana hverfa heim aftur, hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju, en uppreisnarseggir skulu búa í hrjóstrugu landi.

68:7b.PSA.068.007 Ó Guð, þegar þú fórst út á undan lýð þínum, þegar þú brunaðir fram um öræfin,

68:8b.PSA.068.008 þá nötraði jörðin, og himnarnir drupu fyrir Guði, Drottni frá Sínaí, fyrir Guði, Ísraels Guði.

68:9b.PSA.068.009 Ríkulegu regni dreyptir þú, ó Guð, á arfleifð þína, það sem vanmegnaðist, styrktir þú.

68:10b.PSA.068.010 Staðinn þar sem söfnuður þinn dvelur, bjóst þú hinum hrjáðu, ó Guð, sakir gæsku þinnar.

68:11b.PSA.068.011 Drottinn lætur orð sín rætast, konurnar sem sigur boða eru mikill her:

68:12b.PSA.068.012 "Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja, en hún sem heima situr skiptir herfangi.

68:13b.PSA.068.013 Hvort viljið þér liggja milli fjárgirðinganna? Vængir dúfunnar eru lagðir silfri og fjaðrir hennar íbleiku gulli."

68:14b.PSA.068.014 Þegar Hinn almáttki tvístraði konungunum, þá snjóaði á Salmon.

68:15b.PSA.068.015 Guðs fjall er Basansfjall, tindafjall er Basansfjall.

68:16b.PSA.068.016 Hví lítið þér, tindafjöll, öfundarauga það fjall er Guð hefir kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn samt mun búa um eilífð?

68:17b.PSA.068.017 Hervagnar Guðs eru tíþúsundir, þúsundir á þúsundir ofan. Hinn alvaldi kom frá Sínaí til helgidómsins.

68:18b.PSA.068.018 Þú steigst upp til hæða, hafðir á burt bandingja, tókst við gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum, að þú, Drottinn, Guð, mættir búa þar.

68:19b.PSA.068.019 Lofaður sé Drottinn, er ber oss dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort.

68:20b.PSA.068.020 Guð er oss hjálpræðisguð, og Drottinn alvaldur bjargar frá dauðanum.

68:21b.PSA.068.021 Já, Guð sundurmolar höfuð óvina sinna, hvirfil þeirra, er ganga í sekt sinni.

68:22b.PSA.068.022 Drottinn hefir sagt: "Ég vil sækja þá til Basan, flytja þá frá djúpi hafsins,

68:23b.PSA.068.023 að þú megir troða þá til bana, að tungur hunda þinna megi fá sinn hlut af óvinunum."

68:24b.PSA.068.024 Menn horfa á inngöngu þína, ó Guð, inngöngu Guðs míns og konungs í musterið.

68:25b.PSA.068.025 Söngvarar eru í fararbroddi, þá strengleikarar, ásamt yngismeyjum, er berja bumbur.

68:26b.PSA.068.026 Lofið Guð á hátíðarsamkundum, lofið Drottin, þér sem eruð af uppsprettu Ísraels.

68:27b.PSA.068.027 Þar er Benjamín litli, er ríkir yfir þeim, höfðingjar Júda í þyrpingu, höfðingjar Sebúlons, höfðingjar Naftalí.

68:28b.PSA.068.028 Bjóð út, ó Guð, styrkleik þínum, þeim styrkleik sem þú hefir auðsýnt oss

68:29b.PSA.068.029 frá musteri þínu í Jerúsalem. Konungar skulu færa þér gjafir.

68:30b.PSA.068.030 Ógna þú dýrinu í sefinu, uxaflokkunum ásamt bolakálfum þjóðanna, sem troða menn fótum sökum ágirndar sinnar á silfri. Tvístra þú þjóðum, er unna ófriði!

68:31b.PSA.068.031 Það koma sendiherrar frá Egyptalandi, Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum.

68:32b.PSA.068.032 Þér konungsríki jarðar, syngið Guði, syngið Drottni lof,

68:33b.PSA.068.033 honum sem ekur um himnanna himna frá eilífð, hann lætur raust sína gjalla, hina voldugu raust.

68:34b.PSA.068.034 Tjáið Guði dýrð, yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum.

68:35b.PSA.068.035 Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð!

69

69:1b.PSA.069.001 Til söngstjórans. Liljulag. Davíðssálmur. Hjálpa mér, ó Guð, því að vötnin ætla að drekkja mér.

69:2b.PSA.069.002 Ég er sokkinn niður í botnlausa leðju og hefi enga fótfestu, ég er kominn ofan í vatnadjúp og bylgjurnar ganga yfir mig.

69:3b.PSA.069.003 Ég hefi æpt mig þreyttan, er orðinn brennandi þurr í kverkunum, augu mín eru döpruð orðin af að þreyja eftir Guði mínum.

69:4b.PSA.069.004 Fleiri en hárin á höfði mér eru þeir er hata mig að ástæðulausu, fleiri en bein mín þeir sem án saka eru óvinir mínir. Því sem ég hefi eigi rænt, hefi ég samt orðið að skila aftur.

69:5b.PSA.069.005 Þú, Guð, þekkir heimsku mína, og sakir mínar dyljast þér eigi.

69:6b.PSA.069.006 Lát eigi þá, er vona á þig, verða til skammar mín vegna, ó Drottinn, Drottinn hersveitanna, lát eigi þá er leita þín, verða til svívirðingar mín vegna, þú Guð Ísraels.

69:7b.PSA.069.007 Þín vegna ber ég háðung, þín vegna hylur svívirðing auglit mitt.

69:8b.PSA.069.008 Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum og óþekktur sonum móður minnar.

69:9b.PSA.069.009 Vandlæting vegna húss þíns hefir uppetið mig, og smánanir þeirra er smána þig, hafa lent á mér.

69:10b.PSA.069.010 Ég hefi þjáð mig með föstu, en það varð mér til háðungar.

69:11b.PSA.069.011 Ég gjörði hærusekk að klæðnaði mínum, og ég varð þeim að orðskvið.

69:12b.PSA.069.012 Þeir er sitja í hliðinu, ræða um mig, og þeir er drekka áfengan drykk, syngja um mig.

69:13b.PSA.069.013 En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar. Svara mér, Guð, í trúfesti hjálpræðis þíns sakir mikillar miskunnar þinnar.

69:14b.PSA.069.014 Drag mig upp úr leðjunni, svo að ég sökkvi eigi, lát mig björgun hljóta frá hatursmönnum mínum og úr hafdjúpinu.

69:15b.PSA.069.015 Lát eigi vatnsbylgjurnar ganga yfir mig, né djúpið svelgja mig, og lát eigi brunninn lykja aftur op sitt yfir mér.

69:16b.PSA.069.016 Bænheyr mig, Drottinn, sakir gæsku náðar þinnar, snú þér að mér eftir mikilleik miskunnar þinnar.

69:17b.PSA.069.017 Hyl eigi auglit þitt fyrir þjóni þínum, því að ég er í nauðum staddur, flýt þér að bænheyra mig.

69:18b.PSA.069.018 Nálgast sál mína, leys hana, frelsa mig sakir óvina minna.

69:19b.PSA.069.019 Þú þekkir háðung mína og skömm og svívirðing, allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum.

69:20b.PSA.069.020 Háðungin kremur hjarta mitt, svo að ég örvænti. Ég vonaði, að einhver mundi sýna meðaumkun, en þar var enginn, og að einhverjir mundu hugga, en fann engan.

69:21b.PSA.069.021 Þeir fengu mér malurt til matar, og við þorstanum gáfu þeir mér vínsýru að drekka.

69:22b.PSA.069.022 Svo verði þá borðið fyrir framan þá að snöru, og að gildru fyrir þá sem ugglausir eru.

69:23b.PSA.069.023 Myrkvist augu þeirra, svo að þeir sjái eigi, og lát lendar þeirra ávallt riða.

69:24b.PSA.069.024 Hell þú reiði þinni yfir þá og lát þína brennandi gremi ná þeim.

69:25b.PSA.069.025 Búðir þeirra verði eyddar og enginn búi í tjöldum þeirra,

69:26b.PSA.069.026 því að þann sem þú hefir lostið, ofsækja þeir og auka þjáningar þeirra er þú hefir gegnumstungið.

69:27b.PSA.069.027 Bæt sök við sök þeirra og lát þá eigi ganga inn í réttlæti þitt.

69:28b.PSA.069.028 Verði þeir afmáðir úr bók lifenda og eigi skráðir með réttlátum.

69:29b.PSA.069.029 En ég er volaður og þjáður, hjálp þín, ó Guð, mun bjarga mér.

69:30b.PSA.069.030 Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla það í lofsöng.

69:31b.PSA.069.031 Það mun Drottni líka betur en uxar, ungneyti með hornum og klaufum.

69:32b.PSA.069.032 Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast, þér sem leitið Guðs - hjörtu yðar lifni við.

69:33b.PSA.069.033 Því að Drottinn hlustar á hina fátæku og fyrirlítur eigi bandingja sína.

69:34b.PSA.069.034 Hann skulu lofa himinn og jörð, höfin og allt sem í þeim hrærist.

69:35b.PSA.069.035 Því að Guð veitir Síon hjálp og reisir við borgirnar í Júda, og menn skulu búa þar og fá landið til eignar.

69:36b.PSA.069.036 Niðjar þjóna hans munu erfa það, og þeir er elska nafn hans, byggja þar.

7

7:1b.PSA.007.001 Davíðssálmur, er hann kvað fyrir Drottni sakir Kús Benjamíníta. Drottinn, Guð minn, hjá þér leita ég hælis, hjálpa mér undan öllum ofsækjendum mínum og bjarga mér,

7:2b.PSA.007.002 svo að þeir rífi mig ekki í sundur eins og ljón, tæti mig í sundur og enginn bjargi mér.

7:3b.PSA.007.003 Drottinn, Guð minn, hafi ég gjört þetta: sé ranglæti í höndum mínum,

7:4b.PSA.007.004 hafi ég illt gjört þeim er lifðu í friði við mig, eða gjört fjandmönnum mínum mein að ástæðulausu,

7:5b.PSA.007.005 þá elti mig óvinur minn og nái mér, troði líf mitt til jarðar og varpi sæmd minni í duftið.

7:6b.PSA.007.006 Rís þú upp, Drottinn, í reiði þinni, hef þig gegn ofsa fjandmanna minna og vakna mér til hjálpar, þú sem hefir fyrirskipað réttan dóm.

7:7b.PSA.007.007 Söfnuður þjóðanna umkringi þig, og tak þú sæti uppi yfir honum á hæðum.

7:8b.PSA.007.008 Þú Drottinn, sem dæmir þjóðirnar, lát mig ná rétti mínum, Drottinn, samkvæmt réttlæti mínu og ráðvendni.

7:9b.PSA.007.009 Lát endi á verða illsku óguðlegra, en styrk hina réttlátu, þú, sem rannsakar hjörtun og nýrun, réttláti Guð!

7:10b.PSA.007.010 Guð heldur skildi fyrir mér, hann hjálpar hinum hjartahreinu.

7:11b.PSA.007.011 Guð er réttlátur dómari, hann reiðist illskunni dag hvern.

7:12b.PSA.007.012 Vissulega hvetur hinn óguðlegi aftur sverð sitt, bendir boga sinn og leggur til hæfis,

7:13b.PSA.007.013 en sjálfum sér hefir hann búið hin banvænu vopn, skotið brennandi örvum.

7:14b.PSA.007.014 Já, hann getur illsku, er þungaður af ranglæti og elur tál.

7:15b.PSA.007.015 Hann gróf gröf og gjörði hana djúpa, en sjálfur fellur hann í gryfjuna er hann gjörði.

7:16b.PSA.007.016 Ranglæti hans kemur sjálfum honum í koll, og ofbeldi hans fellur í höfuð honum sjálfum.

7:17b.PSA.007.017 Ég vil lofa Drottin fyrir réttlæti hans og lofsyngja nafni Drottins hins hæsta.

70

70:1b.PSA.070.001 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð. Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér til hjálpar.

70:2b.PSA.070.002 Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.

70:3b.PSA.070.003 Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar, er hrópa háð og spé.

70:4b.PSA.070.004 En allir þeir er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu, skulu sífellt segja: "Vegsamaður sé Guð!"

70:5b.PSA.070.005 Ég er þjáður og snauður, hraða þér til mín, ó Guð. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn!

71

71:1b.PSA.071.001 Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar.

71:2b.PSA.071.002 Frelsa mig og bjarga mér eftir réttlæti þínu, hneig eyru þín til mín og hjálpa mér.

71:3b.PSA.071.003 Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi.

71:4b.PSA.071.004 Guð minn, bjarga mér úr hendi illgjarnra, undan valdi illvirkja og harðstjóra.

71:5b.PSA.071.005 Því að þú ert von mín, þú, Drottinn, ert athvarf mitt frá æsku.

71:6b.PSA.071.006 Við þig hefi ég stuðst frá móðurlífi, frá móðurskauti hefir þú verið skjól mitt, um þig hljómar ætíð lofsöngur minn.

71:7b.PSA.071.007 Ég er mörgum orðinn sem undur, en þú ert mér öruggt hæli.

71:8b.PSA.071.008 Munnur minn er fullur af lofstír þínum, af dýrð þinni daginn allan.

71:9b.PSA.071.009 Útskúfa mér eigi í elli minni, yfirgef mig eigi, þá er þróttur minn þverrar.

71:10b.PSA.071.010 Því að óvinir mínir tala um mig, þeir er sitja um líf mitt, bera ráð sín saman:

71:11b.PSA.071.011 "Guð hefir yfirgefið hann. Eltið hann og grípið hann, því að enginn bjargar."

71:12b.PSA.071.012 Guð, ver eigi fjarri mér, Guð minn, skunda til liðs við mig.

71:13b.PSA.071.013 Lát þá er sýna mér fjandskap farast með skömm, lát þá íklæðast háðung og svívirðing, er óska mér ógæfu.

71:14b.PSA.071.014 En ég vil sífellt vona og auka enn á allan lofstír þinn.

71:15b.PSA.071.015 Munnur minn skal segja frá réttlæti þínu, frá hjálpsemdum þínum allan daginn, því að ég veit eigi tölu á þeim.

71:16b.PSA.071.016 Ég vil segja frá máttarverkum Drottins, ég vil boða réttlæti þitt, það eitt.

71:17b.PSA.071.017 Guð, þú hefir kennt mér frá æsku, og allt til þessa kunngjöri ég dásemdarverk þín.

71:18b.PSA.071.018 Yfirgef mig eigi, ó Guð, þegar ég er gamall orðinn og grár fyrir hærum, að ég megi kunngjöra styrkleik þinn komandi kynslóð.

71:19b.PSA.071.019 Máttur þinn og réttlæti þitt, ó Guð, nær til himins, þú sem hefir framið stórvirki, Guð, hver er sem þú?

71:20b.PSA.071.020 Þú sem hefir látið oss horfa upp á miklar nauðir og ógæfu, þú munt láta oss lifna við að nýju og láta oss aftur stíga upp úr undirdjúpum jarðar.

71:21b.PSA.071.021 Þú munt auka við tign mína og aftur veita mér huggun.

71:22b.PSA.071.022 Þá vil ég lofa trúfesti þína með hörpuleik, Guð minn, leika á gígju fyrir þér, þú Hinn heilagi í Ísrael.

71:23b.PSA.071.023 Varir mínar skulu fagna, er ég leik fyrir þér, og sál mín er þú hefir leyst.

71:24b.PSA.071.024 Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt liðlangan daginn, því að þeir urðu til skammar, já hlutu kinnroða, er óskuðu mér ógæfu.

72

72:1b.PSA.072.001 Eftir Salómon. Guð, sel konungi í hendur dóma þína og konungssyni réttlæti þitt,

72:2b.PSA.072.002 að hann dæmi lýð þinn með réttvísi og þína þjáðu með sanngirni.

72:3b.PSA.072.003 Fjöllin beri lýðnum frið og hálsarnir réttlæti.

72:4b.PSA.072.004 Hann láti hina þjáðu meðal lýðsins ná rétti sínum, hann hjálpi hinum snauðu og kremji kúgarann.

72:5b.PSA.072.005 Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið ber birtu, frá kyni til kyns.

72:6b.PSA.072.006 Hann mun falla sem regn á slægjuland, sem regnskúrir, er vökva landið.

72:7b.PSA.072.007 Um hans daga skal réttlætið blómgast og gnóttir friðar, uns tunglið er eigi framar til.

72:8b.PSA.072.008 Og hann skal ríkja frá hafi til hafs, frá Fljótinu til endimarka jarðar.

72:9b.PSA.072.009 Fjandmenn hans skulu beygja kné fyrir honum og óvinir hans sleikja duftið.

72:10b.PSA.072.010 Konungarnir frá Tarsis og eylöndunum skulu koma með gjafir, konungarnir frá Saba og Seba skulu færa skatt.

72:11b.PSA.072.011 Og allir konungar skulu lúta honum, allar þjóðir þjóna honum.

72:12b.PSA.072.012 Hann bjargar hinum snauða, er hrópar á hjálp, og hinum þjáða, er enginn liðsinnir.

72:13b.PSA.072.013 Hann aumkast yfir bágstadda og snauða, og fátækum hjálpar hann.

72:14b.PSA.072.014 Frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá, og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans.

72:15b.PSA.072.015 Hann mun lifa og menn munu gefa honum Saba-gull, menn munu sífellt biðja fyrir honum, blessa hann liðlangan daginn.

72:16b.PSA.072.016 Gnóttir korns munu vera í landinu, á fjallatindunum, í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon, og menn skulu spretta upp í borgunum eins og gras úr jörðu.

72:17b.PSA.072.017 Nafn hans mun vara að eilífu, meðan sólin skín mun nafn hans gróa. Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér blessunar, allar þjóðir munu hann sælan segja.

72:18b.PSA.072.018 Lofaður sé Drottinn, Guð, Ísraels Guð, sem einn gjörir furðuverk,

72:19b.PSA.072.019 og lofað sé hans dýrlega nafn um eilífð, og öll jörðin fyllist dýrð hans. Amen, amen.

72:20b.PSA.072.020 Bænir Davíðs Ísaísonar eru á enda.

73

73:1b.PSA.073.001 Asafs-sálmur. Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá sem hjartahreinir eru.

73:2b.PSA.073.002 Nærri lá, að fætur mínir hrösuðu, lítið vantaði á, að ég skriðnaði í skrefi,

73:3b.PSA.073.003 því að ég fylltist gremju út af hinum hrokafullu, þegar ég sá gengi hinna guðlausu.

73:4b.PSA.073.004 Þeir hafa engar hörmungar að bera, líkami þeirra er heill og hraustur.

73:5b.PSA.073.005 Þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum, og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn.

73:6b.PSA.073.006 Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra, þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn.

73:7b.PSA.073.007 Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra, girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi.

73:8b.PSA.073.008 Þeir spotta og tala af illsku, mæla kúgunarorð í mikilmennsku sinni.

73:9b.PSA.073.009 Með munni sínum snerta þeir himininn, en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.

73:10b.PSA.073.010 Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá og teygar gnóttir vatns.

73:11b.PSA.073.011 Þeir segja: "Hvernig ætti Guð að vita og Hinn hæsti að hafa nokkra þekkingu?"

73:12b.PSA.073.012 Sjá, þessir menn eru guðlausir, og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.

73:13b.PSA.073.013 Vissulega hefi ég til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi,

73:14b.PSA.073.014 ég þjáist allan daginn, og á hverjum morgni bíður mín hirting.

73:15b.PSA.073.015 Ef ég hefði haft í hyggju að tala þannig, sjá, þá hefði ég brugðið trúnaði við kyn barna þinna.

73:16b.PSA.073.016 En ég hugsaði um, hvernig ég ætti að skilja það, það var erfitt í augum mínum,

73:17b.PSA.073.017 uns ég kom inn í helgidóma Guðs og skildi afdrif þeirra:

73:18b.PSA.073.018 Vissulega setur þú þá á sleipa jörð, þú lætur þá falla í rústir.

73:19b.PSA.073.019 Sviplega verða þeir að auðn, líða undir lok, tortímdir af skelfingum.

73:20b.PSA.073.020 Eins og draum er maður vaknar, þannig fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú ríst á fætur.

73:21b.PSA.073.021 Þegar beiskja var í hjarta mínu og kvölin nísti hug minn,

73:22b.PSA.073.022 þá var ég fáráðlingur og vissi ekkert, var sem skynlaus skepna gagnvart þér.

73:23b.PSA.073.023 En ég er ætíð hjá þér, þú heldur í hægri hönd mína.

73:24b.PSA.073.024 Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni, og síðan munt þú taka við mér í dýrð.

73:25b.PSA.073.025 Hvern á ég annars að á himnum? Og hafi ég þig, hirði ég eigi um neitt á jörðu.

73:26b.PSA.073.026 Þótt hold mitt og hjarta tærist, er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt um eilífð.

73:27b.PSA.073.027 Því sjá, þeir sem fjarlægjast þig, farast, þú afmáir alla þá, sem eru þér ótrúir.

73:28b.PSA.073.028 En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég hefi gjört Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum.

74

74:1b.PSA.074.001 Asafs-maskíl. Hví hefir þú, Guð, hafnað oss að fullu, hví rýkur reiði þín gegn gæsluhjörð þinni?

74:2b.PSA.074.002 Haf í minni söfnuð þinn, er þú aflaðir forðum og leystir til þess að vera kynkvísl óðals þíns, haf í minni Síonfjall, þar sem þú hefir tekið þér bústað.

74:3b.PSA.074.003 Bein þú skrefum þínum til hinna endalausu rústa: Öllu hafa óvinirnir spillt í helgidóminum!

74:4b.PSA.074.004 Fjandmenn þínir grenjuðu inni á samkomustað þínum, reistu upp hermerki sín.

74:5b.PSA.074.005 Eins og menn sem reiða hátt axir í þykkum skógi,

74:6b.PSA.074.006 höggva þeir allan útskurð, mölva með exi og hamri.

74:7b.PSA.074.007 Þeir hafa lagt eld í helgidóm þinn, vanhelgað bústað nafns þíns til grunna.

74:8b.PSA.074.008 Þeir hugsuðu með sjálfum sér: "Vér skulum tortíma þeim öllum." Þeir brenndu öll samkomuhús Guðs í landinu.

74:9b.PSA.074.009 Vér sjáum eigi merki vor, þar er enginn spámaður framar, og enginn er hjá oss sem veit hve lengi.

74:10b.PSA.074.010 Hversu lengi, ó Guð, á fjandmaðurinn að hæða, á óvinurinn að spotta nafn þitt um aldur?

74:11b.PSA.074.011 Hví dregur þú að þér hönd þína, hví geymir þú hægri hönd þína í barmi þér?

74:12b.PSA.074.012 Og þó er Guð konungur minn frá fornum tíðum, sá er framkvæmir hjálpræðisverk á jörðu.

74:13b.PSA.074.013 Þú klaufst hafið með mætti þínum, þú braust sundur höfuð drekans á vatninu,

74:14b.PSA.074.014 þú molaðir sundur hausa Levjatans, gafst hann dýrum eyðimerkurinnar að æti.

74:15b.PSA.074.015 Þú lést lindir og læki spretta upp, þú þurrkaðir upp sírennandi ár.

74:16b.PSA.074.016 Þinn er dagurinn og þín er nóttin, þú gjörðir ljós og sól.

74:17b.PSA.074.017 Þú settir öll takmörk jarðarinnar, sumar og vetur hefir þú gjört.

74:18b.PSA.074.018 Minnst þess, Drottinn, að óvinurinn lastmælir, og heimskur lýður smánar nafn þitt.

74:19b.PSA.074.019 Ofursel eigi villidýrunum sál turtildúfu þinnar, gleym eigi um aldur lífi þinna hrjáðu.

74:20b.PSA.074.020 Gef gætur að sáttmála þínum, því að skúmaskot landsins eru full af bælum ofríkisins.

74:21b.PSA.074.021 Lát eigi þann er kúgun sætir, snúa aftur með svívirðing, lát hina hrjáðu og snauðu lofa nafn þitt.

74:22b.PSA.074.022 Rís upp, Guð, berst fyrir málefni þínu, minnst þú háðungar þeirrar, er þú sætir af heimskingjum daginn á enda.

74:23b.PSA.074.023 Gleym eigi hrópi fjenda þinna, glaumkæti andstæðinga þinna, þeirri er sífellt stígur upp.

75

75:1b.PSA.075.001 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð. Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.

75:2b.PSA.075.002 "Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.

75:3b.PSA.075.003 Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir.

75:4b.PSA.075.004 Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!

75:5b.PSA.075.005 Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!"

75:6b.PSA.075.006 Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,

75:7b.PSA.075.007 heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.

75:8b.PSA.075.008 Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.

75:9b.PSA.075.009 En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.

75:10b.PSA.075.010 Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.

76

76:1b.PSA.076.001 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Asafs-sálmur. Ljóð. Guð er augljós orðinn í Júda, í Ísrael er nafn hans mikið.

76:2b.PSA.076.002 Skáli hans er í Salem og bústaður hans á Síon.

76:3b.PSA.076.003 Þar braut hann sundur leiftur bogans, skjöld og sverð og hervopn.

76:4b.PSA.076.004 Þú birtist dýrlegur, ógurlegri en hin öldnu fjöll.

76:5b.PSA.076.005 Hinir harðsvíruðu urðu öðrum að herfangi, þeir sofnuðu svefni sínum, og hendurnar brugðust öllum hetjunum.

76:6b.PSA.076.006 Fyrir ógnun þinni, Jakobs Guð, hnigu bæði vagnar og hestar í dá.

76:7b.PSA.076.007 Þú ert ógurlegur, og hver fær staðist fyrir þér, er þú reiðist?

76:8b.PSA.076.008 Frá himnum gjörðir þú dóm þinn heyrinkunnan, jörðin skelfdist og kyrrðist,

76:9b.PSA.076.009 þegar Guð reis upp til dóms til þess að hjálpa öllum hrjáðum á jörðu.

76:10b.PSA.076.010 Því að reiði mannsins verður að lofa þig, leifum reiðinnar gyrðir þú þig.

76:11b.PSA.076.011 Vinnið heit og efnið þau við Drottin, Guð yðar, allir þeir sem eru umhverfis hann, skulu færa gjafir hinum óttalega,

76:12b.PSA.076.012 honum sem lægir ofstopa höfðingjanna, sem ógurlegur er konungum jarðarinnar.

77

77:1b.PSA.077.001 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs-sálmur. Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.

77:2b.PSA.077.002 Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins, rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi.

77:3b.PSA.077.003 Ég minnist Guðs og kveina, ég styn, og andi minn örmagnast.

77:4b.PSA.077.004 Þú heldur uppi augnalokum mínum, mér er órótt og ég má eigi mæla.

77:5b.PSA.077.005 Ég í huga fyrri daga, ár þau sem löngu eru liðin,

77:6b.PSA.077.006 ég minnist strengjaleiks míns um nætur, ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar.

77:7b.PSA.077.007 Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur?

77:8b.PSA.077.008 Er miskunn hans lokið um eilífð, fyrirheit hans þrotin um aldir alda?

77:9b.PSA.077.009 Hefir Guð gleymt að sýna líkn, byrgt miskunn sína með reiði?

77:10b.PSA.077.010 Þá sagði ég: "Þetta er kvöl mín, að hægri hönd Hins hæsta hefir brugðist."

77:11b.PSA.077.011 Ég víðfrægi stórvirki Drottins, ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum,

77:12b.PSA.077.012 ég íhuga allar athafnir þínar, athuga stórvirki þín.

77:13b.PSA.077.013 Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill Guð sem Drottinn?

77:14b.PSA.077.014 Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir, þú hefir kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna.

77:15b.PSA.077.015 Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs.

77:16b.PSA.077.016 Vötnin sáu þig, ó Guð, vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu.

77:17b.PSA.077.017 Vatnið streymdi úr skýjunum, þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu.

77:18b.PSA.077.018 Reiðarþrumur þínar kváðu við, leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.

77:19b.PSA.077.019 Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn, og spor þín urðu eigi rakin.

77:20b.PSA.077.020 Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð fyrir Móse og Aron.

78

78:1b.PSA.078.001 Asafs-maskíl. Hlýð þú, lýður minn, á kenning mína, hneigið eyrun að orðum munns míns.

78:2b.PSA.078.002 Ég vil opna munn minn með orðskviði, mæla fram gátur frá fornum tíðum.

78:3b.PSA.078.003 Það sem vér höfum heyrt og skilið og feður vorir sögðu oss,

78:4b.PSA.078.004 það viljum vér eigi dylja fyrir niðjum þeirra, er vér segjum seinni kynslóð frá lofstír Drottins og mætti hans og dásemdarverkum og þeim undrum er hann gjörði.

78:5b.PSA.078.005 Hann setti reglu í Jakob og skipaði lögmál í Ísrael, sem hann bauð feðrum vorum að kunngjöra sonum þeirra,

78:6b.PSA.078.006 til þess að seinni kynslóð mætti skilja það og synir þeir er fæðast mundu, mættu ganga fram og segja sonum sínum frá því,

78:7b.PSA.078.007 og setja traust sitt á Guð og eigi gleyma stórvirkjum Guðs, heldur varðveita boðorð hans,

78:8b.PSA.078.008 og eigi verða sem feður þeirra, þrjósk og ódæl kynslóð, kynslóð með óstöðugu hjarta og anda sem var Guði ótrúr.

78:9b.PSA.078.009 Niðjar Efraíms, herbúnir bogmenn, sneru við á orustudeginum.

78:10b.PSA.078.010 Þeir héldu eigi sáttmála Guðs og færðust undan að fylgja lögmáli hans.

78:11b.PSA.078.011 Þeir gleymdu stórvirkjum hans og dásemdum hans, er hann hafði látið þá horfa á.

78:12b.PSA.078.012 Í augsýn feðra þeirra hafði hann framið furðuverk í Egyptalandi og Sóanhéraði.

78:13b.PSA.078.013 Hann klauf hafið og lét þá fara yfir og lét vatnið standa sem vegg.

78:14b.PSA.078.014 Hann leiddi þá með skýinu um daga og alla nóttina með eldskini.

78:15b.PSA.078.015 Hann klauf björg í eyðimörkinni og gaf þeim gnóttir að drekka eins og úr stórvötnum,

78:16b.PSA.078.016 hann lét læki spretta upp úr klettinum og vatnið streyma niður sem fljót.

78:17b.PSA.078.017 Þó héldu þeir áfram að syndga í gegn honum, að rísa í gegn Hinum hæsta í eyðimörkinni.

78:18b.PSA.078.018 Þeir freistuðu Guðs í hjörtum sínum, er þeir kröfðust matar þess er þeir girntust

78:19b.PSA.078.019 og töluðu gegn Guði og sögðu: "Skyldi Guð geta búið borð í eyðimörkinni?

78:20b.PSA.078.020 Víst sló hann á klettinn, svo að vatnið vall upp og lækir streymdu, en skyldi hann líka geta gefið brauð eða veitt lýð sínum kjöt?"

78:21b.PSA.078.021 Fyrir því reiddist Drottinn, er hann heyrði þetta, eldur bálaði upp gegn Jakob og reiði steig upp gegn Ísrael,

78:22b.PSA.078.022 af því að þeir trúðu eigi á Guð né treystu hjálp hans.

78:23b.PSA.078.023 Og hann bauð skýjunum að ofan og opnaði hurðir himinsins,

78:24b.PSA.078.024 lét manna rigna yfir þá til matar og gaf þeim himnakorn;

78:25b.PSA.078.025 englabrauð fengu menn að eta, fæði sendi hann þeim til saðningar.

78:26b.PSA.078.026 Hann lét austanvindinn taka sig upp í himninum og leiddi sunnanvindinn að með mætti sínum.

78:27b.PSA.078.027 Hann lét kjöti rigna yfir þá sem dufti og vængjuðum fuglum sem sjávarsandi,

78:28b.PSA.078.028 og hann lét þá falla niður í búðir sínar, umhverfis bústað sinn.

78:29b.PSA.078.029 Átu þeir og urðu vel saddir, og græðgi þeirra sefaði hann.

78:30b.PSA.078.030 En meðan þeir voru eigi horfnir frá græðgi sinni, meðan fæðan enn var í munni þeirra,

78:31b.PSA.078.031 þá steig reiði Guðs upp í gegn þeim. Hann deyddi hina gildustu meðal þeirra og lagði að velli æskumenn Ísraels.

78:32b.PSA.078.032 Þrátt fyrir allt þetta héldu þeir áfram að syndga og trúðu eigi á dásemdarverk hans.

78:33b.PSA.078.033 Þá lét hann daga þeirra hverfa í hégóma og ár þeirra enda í skelfingu.

78:34b.PSA.078.034 Þegar hann deyddi þá, leituðu þeir hans, sneru sér og spurðu eftir Guði

78:35b.PSA.078.035 og minntust þess, að Guð var klettur þeirra og Guð hinn hæsti frelsari þeirra.

78:36b.PSA.078.036 Þeir beittu við hann fagurgala með munni sínum og lugu að honum með tungum sínum.

78:37b.PSA.078.037 En hjarta þeirra var eigi stöðugt gagnvart honum, og þeir voru eigi trúir sáttmála hans.

78:38b.PSA.078.038 En hann er miskunnsamur, hann fyrirgefur misgjörðir og tortímir eigi, hann stillir reiði sína hvað eftir annað og hleypir eigi fram allri bræði sinni.

78:39b.PSA.078.039 Hann minntist þess, að þeir voru hold, andgustur, sem líður burt og snýr eigi aftur.

78:40b.PSA.078.040 Hversu oft þrjóskuðust þeir við hann í eyðimörkinni, hryggðu hann á öræfunum.

78:41b.PSA.078.041 Og aftur freistuðu þeir Guðs og móðguðu Hinn heilaga í Ísrael.

78:42b.PSA.078.042 Þeir minntust eigi handar hans, eður dags þess, er hann frelsaði þá frá fjandmönnum þeirra,

78:43b.PSA.078.043 hann sem gjörði tákn sín í Egyptalandi og undur sín í Sóanhéraði.

78:44b.PSA.078.044 Hann breytti ám þeirra í blóð og lækjum þeirra, svo að þeir fengu eigi drukkið.

78:45b.PSA.078.045 Hann sendi flugur meðal þeirra, er bitu þá, og froska, er eyddu þeim.

78:46b.PSA.078.046 Hann gaf engisprettunum afurðir þeirra og jarðvörgunum uppskeru þeirra.

78:47b.PSA.078.047 Hann eyddi vínvið þeirra með haglhríð og mórberjatré þeirra með frosti.

78:48b.PSA.078.048 Hann ofurseldi haglhríðinni fénað þeirra og eldingunni hjarðir þeirra.

78:49b.PSA.078.049 Hann sendi heiftarreiði sína í gegn þeim, æði, bræði og nauðir, sveitir af sendiboðum ógæfunnar.

78:50b.PSA.078.050 Hann ruddi braut reiði sinni, þyrmdi eigi sálum þeirra við dauðanum og ofurseldi drepsóttinni líf þeirra.

78:51b.PSA.078.051 Hann laust alla frumburði í Egyptalandi, frumgróða styrkleikans í tjöldum Kams.

78:52b.PSA.078.052 Hann lét lýð sinn leggja af stað sem sauði og leiddi þá eins og hjörð í eyðimörkinni.

78:53b.PSA.078.053 Hann leiddi þá öruggt, svo að þeir óttuðust eigi, en óvini þeirra huldi hafið.

78:54b.PSA.078.054 Hann fór með þá til síns helga héraðs, til fjalllendis þess, er hægri hönd hans hafði aflað.

78:55b.PSA.078.055 Hann stökkti þjóðum undan þeim, skipti þeim niður eins og erfðahlut og lét kynkvíslir Ísraels setjast að í tjöldum þeirra.

78:56b.PSA.078.056 En þeir freistuðu í þrjósku sinni Guðs hins hæsta og gættu eigi vitnisburða hans.

78:57b.PSA.078.057 Þeir viku af leið, rufu trúnað sinn, eins og feður þeirra, brugðust eins og svikull bogi.

78:58b.PSA.078.058 Þeir egndu hann til reiði með fórnarhæðum sínum, vöktu vandlæti hans með skurðgoðum sínum.

78:59b.PSA.078.059 Guð heyrði það og reiddist og fékk mikla óbeit á Ísrael.

78:60b.PSA.078.060 Hann hafnaði bústaðnum í Síló, tjaldi því, er hann hafði reist meðal mannanna,

78:61b.PSA.078.061 hann ofurseldi hernáminu vegsemd sína og fjandmannshendi prýði sína.

78:62b.PSA.078.062 Hann seldi lýð sinn undir sverðseggjar og reiddist arfleifð sinni.

78:63b.PSA.078.063 Æskumönnum hans eyddi eldurinn og meyjar hans misstu brúðsöngs síns.

78:64b.PSA.078.064 Prestar hans féllu fyrir sverðseggjum, og ekkjur hans fengu engan líksöng flutt.

78:65b.PSA.078.065 Þá vaknaði Drottinn eins og af svefni, eins og hetja, sem hefir látið sigrast af víni.

78:66b.PSA.078.066 Hann barði fjandmenn sína á bakhlutina, lét þá sæta eilífri háðung.

78:67b.PSA.078.067 Samt hafnaði hann tjaldi Jósefs og útvaldi eigi kynkvísl Efraíms,

78:68b.PSA.078.068 heldur útvaldi hann Júda kynkvísl, Síonfjall, sem hann elskar.

78:69b.PSA.078.069 Hann reisti helgidóm sinn sem himinhæðir, grundvallaði hann að eilífu eins og jörðina.

78:70b.PSA.078.070 Hann útvaldi þjón sinn Davíð og tók hann frá fjárbyrgjunum.

78:71b.PSA.078.071 Hann sótti hann frá lambánum til þess að vera hirðir fyrir Jakob, lýð sinn, og fyrir Ísrael, arfleifð sína.

78:72b.PSA.078.072 Og Davíð var hirðir fyrir þá af heilum hug og leiddi þá með hygginni hendi.

79

79:1b.PSA.079.001 Asafs-sálmur. Guð, heiðingjar hafa brotist inn í óðal þitt, þeir hafa saurgað þitt heilaga musteri og lagt Jerúsalem í rústir.

79:2b.PSA.079.002 Þeir hafa gefið lík þjóna þinna fuglum himins að fæðu og villidýrunum hold dýrkenda þinna.

79:3b.PSA.079.003 Þeir hafa úthellt blóði þeirra sem vatni umhverfis Jerúsalem, og enginn jarðaði þá.

79:4b.PSA.079.004 Vér erum til háðungar nábúum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.

79:5b.PSA.079.005 Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að vera reiður, á vandlæti þitt að brenna sem eldur án afláts?

79:6b.PSA.079.006 Hell þú reiði þinni yfir heiðingjana, sem eigi þekkja þig, og yfir konungsríki, er eigi ákalla nafn þitt.

79:7b.PSA.079.007 Því að þeir hafa uppetið Jakob og lagt bústað hans í eyði.

79:8b.PSA.079.008 Lát oss eigi gjalda misgjörða forfeðra vorra, lát miskunn þína fljótt koma í móti oss, því að vér erum mjög þjakaðir.

79:9b.PSA.079.009 Hjálpa þú oss, Guð hjálpræðis vors, sakir dýrðar nafns þíns, frelsa oss og fyrirgef syndir vorar sakir nafns þíns.

79:10b.PSA.079.010 Hví eiga heiðingjarnir að segja: "Hvar er Guð þeirra?" Lát fyrir augum vorum kunna verða á heiðingjunum hefndina fyrir úthellt blóð þjóna þinna.

79:11b.PSA.079.011 Lát andvörp bandingjanna koma fram fyrir þig, leys þá sem komnir eru í dauðann, með þínum sterka armlegg,

79:12b.PSA.079.012 og gjald nágrönnum vorum sjöfalt háðungina er þeir hafa sýnt þér, Drottinn.

79:13b.PSA.079.013 En vér, lýður þinn og gæsluhjörð þín, munum lofa þig um eilífð, kunngjöra lofstír þinn frá kyni til kyns.

8

8:1b.PSA.008.001 Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur. Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.

8:2b.PSA.008.002 Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.

8:3b.PSA.008.003 Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,

8:4b.PSA.008.004 hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess?

8:5b.PSA.008.005 Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann.

8:6b.PSA.008.006 Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans:

8:7b.PSA.008.007 sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,

8:8b.PSA.008.008 fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu.

8:9b.PSA.008.009 Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

80

80:1b.PSA.080.001 Til söngstjórans. Liljulag. Asafs-vitnisburður. Sálmur. Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð.

80:2b.PSA.080.002 Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!

80:3b.PSA.080.003 Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

80:4b.PSA.080.004 Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?

80:5b.PSA.080.005 Þú hefir gefið þeim tárabrauð að eta og fært þeim gnægð tára að drekka.

80:6b.PSA.080.006 Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra, og óvinir vorir gjöra gys að oss.

80:7b.PSA.080.007 Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

80:8b.PSA.080.008 Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi, stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann,

80:9b.PSA.080.009 þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið.

80:10b.PSA.080.010 Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans.

80:11b.PSA.080.011 Hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins.

80:12b.PSA.080.012 Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin?

80:13b.PSA.080.013 Skógargeltirnir naga hann, og öll dýr merkurinnar bíta hann.

80:14b.PSA.080.014 Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa

80:15b.PSA.080.015 og varðveit það sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa.

80:16b.PSA.080.016 Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.

80:17b.PSA.080.017 Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa,

80:18b.PSA.080.018 þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt.

80:19b.PSA.080.019 Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

81

81:1b.PSA.081.001 Til söngstjórans. Á gittít. Asafs-sálmur. Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.

81:2b.PSA.081.002 Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur.

81:3b.PSA.081.003 Þeytið lúðurinn á tunglkomudögum, við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.

81:4b.PSA.081.004 Því að þetta eru lög fyrir Ísrael, boðorð Jakobs Guðs.

81:5b.PSA.081.005 Hann gjörði það að reglu í Jósef, þá er hann fór út í móti Egyptalandi. Ég heyri mál, sem ég þekki eigi:

81:6b.PSA.081.006 "Ég hefi losað herðar hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna.

81:7b.PSA.081.007 Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig, ég bænheyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum.

81:8b.PSA.081.008 Heyr, lýður minn, að ég megi áminna þig, ó, að þú, Ísrael, vildir heyra mig!

81:9b.PSA.081.009 Enginn annar guð má vera meðal þín, og engan útlendan guð mátt þú tilbiðja.

81:10b.PSA.081.010 Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, opna munn þinn, að ég megi seðja þig.

81:11b.PSA.081.011 En lýður minn heyrði eigi raust mína, og Ísrael var mér eigi auðsveipur.

81:12b.PSA.081.012 Þá sleppti ég þeim í þrjósku hjartna þeirra, þeir fengu að ganga eftir eigin geðþótta.

81:13b.PSA.081.013 Ó, að lýður minn vildi heyra mig, Ísrael ganga á mínum vegum,

81:14b.PSA.081.014 þá skyldi ég skjótt lægja óvini þeirra, og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.

81:15b.PSA.081.015 Hatursmenn Drottins skyldu hræsna fyrir honum og ógæfutími þeirra vara að eilífu.

81:16b.PSA.081.016 Ég skyldi gefa þér hið kjarnbesta hveiti að eta og seðja þig á hunangi úr klettunum."

82

82:1b.PSA.082.001 Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna:

82:2b.PSA.082.002 "Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu?

82:3b.PSA.082.003 Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum,

82:4b.PSA.082.004 bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra."

82:5b.PSA.082.005 Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.

82:6b.PSA.082.006 Ég hefi sagt: "Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta,

82:7b.PSA.082.007 en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum."

82:8b.PSA.082.008 Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.

83

83:1b.PSA.083.001 Ljóð. Asafs-sálmur. Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull og hald eigi kyrru fyrir, ó Guð!

83:2b.PSA.083.002 Því sjá, óvinir þínir gjöra hark, og hatursmenn þínir hefja höfuðið,

83:3b.PSA.083.003 þeir bregða á slæg ráð gegn lýð þínum, bera ráð sín saman gegn þeim er þú geymir.

83:4b.PSA.083.004 Þeir segja: "Komið, látum oss uppræta þá, svo að þeir séu ekki þjóð framar, og nafns Ísraels verði eigi framar minnst!"

83:5b.PSA.083.005 Því að þeir hafa einhuga borið saman ráð sín, gegn þér hafa þeir gjört bandalag:

83:6b.PSA.083.006 Edómtjöld og Ísmaelítar, Móab og Hagrítar,

83:7b.PSA.083.007 Gebal, Ammon og Amalek, Filistea ásamt Týrusbúum.

83:8b.PSA.083.008 Assúr hefir einnig gjört bandalag við þá og ljær armlegg sinn Lots-sonum.

83:9b.PSA.083.009 Far með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk,

83:10b.PSA.083.010 þeim var útrýmt hjá Endór, urðu að áburði á jörðina.

83:11b.PSA.083.011 Gjör þá, göfugmenni þeirra, eins og Óreb og Seeb, og alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna,

83:12b.PSA.083.012 þá er sögðu: "Vér viljum kasta eign vorri á vengi Guðs."

83:13b.PSA.083.013 Guð vor, gjör þá sem rykmökk, sem hálmleggi fyrir vindi.

83:14b.PSA.083.014 Eins og eldur, sem brennir skóginn, eins og logi, sem bálast upp um fjöllin,

83:15b.PSA.083.015 svo skalt þú elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum.

83:16b.PSA.083.016 Lát andlit þeirra fyllast sneypu, að þeir megi leita nafns þíns, Drottinn!

83:17b.PSA.083.017 Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast,

83:18b.PSA.083.018 að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni.

84

84:1b.PSA.084.001 Til söngstjórans. Á gittít. Kóraíta-sálmur. Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna.

84:2b.PSA.084.002 Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.

84:3b.PSA.084.003 Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!

84:4b.PSA.084.004 Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig.

84:5b.PSA.084.005 Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu.

84:6b.PSA.084.006 Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun.

84:7b.PSA.084.007 Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon.

84:8b.PSA.084.008 Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð.

84:9b.PSA.084.009 Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða!

84:10b.PSA.084.010 Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.

84:11b.PSA.084.011 Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik.

84:12b.PSA.084.012 Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér.

85

85:1b.PSA.085.001 Til söngstjórans. Kóraíta-sálmur. Þú hefir haft þóknun á landi þínu, Drottinn, snúið við hag Jakobs,

85:2b.PSA.085.002 þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra.

85:3b.PSA.085.003 Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni.

85:4b.PSA.085.004 Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss.

85:5b.PSA.085.005 Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?

85:6b.PSA.085.006 Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?

85:7b.PSA.085.007 Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt!

85:8b.PSA.085.008 Ég vil hlýða á það sem Guð Drottinn talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans.

85:9b.PSA.085.009 Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann, og vegsemdir munu búa í landi voru.

85:10b.PSA.085.010 Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast.

85:11b.PSA.085.011 Trúfesti sprettur upp úr jörðunni, og réttlæti lítur niður af himni.

85:12b.PSA.085.012 Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar.

85:13b.PSA.085.013 Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans.

86

86:1b.PSA.086.001 Davíðs-bæn. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig, því að ég er hrjáður og snauður.

86:2b.PSA.086.002 Vernda líf mitt, því að ég er helgaður þér, hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.

86:3b.PSA.086.003 Ver mér náðugur, Drottinn, því þig ákalla ég allan daginn.

86:4b.PSA.086.004 Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.

86:5b.PSA.086.005 Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.

86:6b.PSA.086.006 Hlýð, Drottinn, á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.

86:7b.PSA.086.007 Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig, því að þú bænheyrir mig.

86:8b.PSA.086.008 Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem þín verk.

86:9b.PSA.086.009 Allar þjóðir, er þú hefir skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.

86:10b.PSA.086.010 Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk, þú einn, ó Guð!

86:11b.PSA.086.011 Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

86:12b.PSA.086.012 Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

86:13b.PSA.086.013 því að miskunn þín er mikil við mig, og þú hefir frelsað sál mína frá djúpi Heljar.

86:14b.PSA.086.014 Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð, og hópur ofríkismanna sækist eftir lífi mínu, eigi hafa þeir þig fyrir augum.

86:15b.PSA.086.015 En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.

86:16b.PSA.086.016 Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.

86:17b.PSA.086.017 Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir, að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.

87

87:1b.PSA.087.001 Kóraíta-sálmur. Ljóð.

87:2b.PSA.087.002 Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum, hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.

87:3b.PSA.087.003 Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs.

87:4b.PSA.087.004 Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.

87:5b.PSA.087.005 En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni, og hann, Hinn hæsti, verndar hana.

87:6b.PSA.087.006 Drottinn telur saman í þjóðaskránum, einn er fæddur hér, annar þar.

87:7b.PSA.087.007 Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: "Allar uppsprettur mínar eru í þér."

88

88:1b.PSA.088.001 Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til söngstjórans. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta. Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

88:2b.PSA.088.002 Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu,

88:3b.PSA.088.003 því að sál mín er mett orðin af böli, og líf mitt nálægist Hel.

88:4b.PSA.088.004 Ég er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.

88:5b.PSA.088.005 Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.

88:6b.PSA.088.006 Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri í djúpinu.

88:7b.PSA.088.007 Reiði þín hvílir á mér, og alla boða þína hefir þú látið skella á mér.

88:8b.PSA.088.008 Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,

88:9b.PSA.088.009 augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.

88:10b.PSA.088.010 Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig?

88:11b.PSA.088.011 Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?

88:12b.PSA.088.012 Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?

88:13b.PSA.088.013 En ég hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

88:14b.PSA.088.014 Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér?

88:15b.PSA.088.015 Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku, ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.

88:16b.PSA.088.016 Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér.

88:17b.PSA.088.017 Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman.

88:18b.PSA.088.018 Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.

89

89:1b.PSA.089.001 Etans-maskíl Esraíta. Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu, kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns,

89:2b.PSA.089.002 því að ég hefi sagt: Náð þín er traust að eilífu, á himninum grundvallaðir þú trúfesti þína.

89:3b.PSA.089.003 Ég hefi gjört sáttmála við minn útvalda, unnið Davíð þjóni mínum svolátandi eið:

89:4b.PSA.089.004 "Ég vil staðfesta ætt þína að eilífu, reisa hásæti þitt frá kyni til kyns."

89:5b.PSA.089.005 Þá lofuðu himnarnir dásemdarverk þín, Drottinn, og söfnuður heilagra trúfesti þína.

89:6b.PSA.089.006 Því að hver er í himninum jafn Drottni, hver er líkur Drottni meðal guðasonanna?

89:7b.PSA.089.007 Guð er ægilegur í hópi heilagra, mikill er hann og óttalegur öllum þeim, sem eru umhverfis hann.

89:8b.PSA.089.008 Drottinn, Guð hersveitanna, hver er sem þú? Þú ert voldugur, Drottinn, og trúfesti þín er umhverfis þig.

89:9b.PSA.089.009 Þú ræður yfir ofstopa hafsins, þegar öldur þess hefjast, stöðvar þú þær.

89:10b.PSA.089.010 Þú knosaðir skrímslið eins og veginn mann, með þínum volduga armi tvístraðir þú óvinum þínum.

89:11b.PSA.089.011 Þinn er himinninn, þín er og jörðin, þú hefir grundvallað veröldina og allt sem í henni er.

89:12b.PSA.089.012 Þú hefir skapað norðrið og suðrið, Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.

89:13b.PSA.089.013 Þú hefir máttugan armlegg, hönd þín er sterk, hátt upphafin hægri hönd þín.

89:14b.PSA.089.014 Réttlæti og réttvísi er grundvöllur hásætis þíns, miskunn og trúfesti ganga frammi fyrir þér.

89:15b.PSA.089.015 Sæll er sá lýður, sem þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi auglitis þíns, Drottinn.

89:16b.PSA.089.016 Þeir gleðjast yfir nafni þínu alla daga og fagna yfir réttlæti þínu,

89:17b.PSA.089.017 því að þú ert þeirra máttug prýði, og sakir velþóknunar þinnar munt þú hefja horn vort,

89:18b.PSA.089.018 því að Drottni heyrir skjöldur vor, konungur vor Hinum heilaga í Ísrael.

89:19b.PSA.089.019 Þá talaðir þú í sýn til dýrkanda þíns og sagðir: "Ég hefi sett kórónu á kappa, ég hefi upphafið útvaldan mann af lýðnum.

89:20b.PSA.089.020 Ég hefi fundið Davíð þjón minn, smurt hann með minni heilögu olíu.

89:21b.PSA.089.021 Hönd mín mun gjöra hann stöðugan og armleggur minn styrkja hann.

89:22b.PSA.089.022 Óvinurinn skal eigi ráðast að honum, og ekkert illmenni skal kúga hann,

89:23b.PSA.089.023 heldur skal ég gjöra út af við fjendur hans að honum ásjáandi, og hatursmenn hans skal ég ljósta.

89:24b.PSA.089.024 Trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum, og fyrir sakir nafns míns skal horn hans gnæfa hátt.

89:25b.PSA.089.025 Ég legg hönd hans á hafið og hægri hönd hans á fljótin.

89:26b.PSA.089.026 Hann mun segja við mig: Þú ert faðir minn, Guð minn og klettur hjálpræðis míns.

89:27b.PSA.089.027 Og ég vil gjöra hann að frumgetning, að hinum hæsta meðal konunga jarðarinnar.

89:28b.PSA.089.028 Ég vil varðveita miskunn mína við hann að eilífu, og sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa.

89:29b.PSA.089.029 Ég læt niðja hans haldast við um aldur og hásæti hans meðan himinninn er til.

89:30b.PSA.089.030 Ef synir hans hafna lögmáli mínu og ganga eigi eftir boðum mínum,

89:31b.PSA.089.031 ef þeir vanhelga lög mín og varðveita eigi boðorð mín,

89:32b.PSA.089.032 þá vil ég vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum,

89:33b.PSA.089.033 en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni.

89:34b.PSA.089.034 Ég vil eigi vanhelga sáttmála minn og eigi breyta því, er mér hefir af vörum liðið.

89:35b.PSA.089.035 Ég hefi einu sinni svarið við heilagleik minn og mun aldrei svíkja Davíð:

89:36b.PSA.089.036 Niðjar hans skulu haldast við um aldur og hásæti hans sem sólin fyrir mér.

89:37b.PSA.089.037 Það skal standa stöðugt að eilífu sem tunglið, svo sannarlega sem áreiðanlegt vitni er á himnum."

89:38b.PSA.089.038 Og þó hefir þú útskúfað og hafnað og reiðst þínum smurða.

89:39b.PSA.089.039 Þú hefir riftað sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt henni til jarðar.

89:40b.PSA.089.040 Þú hefir brotið niður alla múrveggi hans og lagt virki hans í eyði.

89:41b.PSA.089.041 Allir vegfarendur ræna hann, hann er til háðungar orðinn nágrönnum sínum.

89:42b.PSA.089.042 Þú hefir hafið hægri hönd fjenda hans, glatt alla óvini hans.

89:43b.PSA.089.043 Þú hefir og látið sverðseggjar hans hörfa undan og eigi látið hann standast í bardaganum.

89:44b.PSA.089.044 Þú hefir látið endi á verða vegsemd hans og hrundið hásæti hans til jarðar.

89:45b.PSA.089.045 Þú hefir stytt æskudaga hans og hulið hann skömm.

89:46b.PSA.089.046 Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að dyljast, á reiði þín ætíð að brenna sem eldur?

89:47b.PSA.089.047 Minnst þú, Drottinn, hvað ævin er, til hvílíks hégóma þú hefir skapað öll mannanna börn.

89:48b.PSA.089.048 Hver er sá, er lifi og sjái eigi dauðann, sá er bjargi sálu sinni úr greipum Heljar.

89:49b.PSA.089.049 Hvar eru þín fyrri náðarverk, ó Drottinn, þau er þú í trúfesti þinni sórst Davíð?

89:50b.PSA.089.050 Minnst, ó Drottinn, háðungar þjóna þinna, að ég verð að bera í skauti smánan margra þjóða,

89:51b.PSA.089.051 er óvinir þínir, Drottinn, smána mig með, smána fótspor þíns smurða.

89:52b.PSA.089.052 Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen.

9

9:1b.PSA.009.001 Til söngstjórans. Almút labben. Davíðssálmur. Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

9:2b.PSA.009.002 Ég vil gleðjast og kætast yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti.

9:3b.PSA.009.003 Óvinir mínir hörfuðu undan, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu.

9:4b.PSA.009.004 Já, þú hefir látið mig ná rétti mínum og flutt mál mitt, setst í hásætið sem réttlátur dómari.

9:5b.PSA.009.005 Þú hefir hastað á þjóðirnar, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og ævi.

9:6b.PSA.009.006 Óvinirnir eru liðnir undir lok - rústir að eilífu - og borgirnar hefir þú brotið, minning þeirra er horfin.

9:7b.PSA.009.007 En Drottinn ríkir að eilífu, hann hefir reist hásæti sitt til dóms.

9:8b.PSA.009.008 Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum.

9:9b.PSA.009.009 Og Drottinn er vígi orðinn hinum kúguðu, vígi á neyðartímum.

9:10b.PSA.009.010 Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita.

9:11b.PSA.009.011 Lofsyngið Drottni, þeim er býr á Síon, gjörið stórvirki hans kunn meðal þjóðanna.

9:12b.PSA.009.012 Því að hann sem blóðs hefnir hefir minnst þeirra, hann hefir eigi gleymt hrópi hinna hrjáðu:

9:13b.PSA.009.013 "Líkna mér, Drottinn, sjá þú eymd mína, er hatursmenn mínir baka mér, þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans,

9:14b.PSA.009.014 að ég megi segja frá öllum lofstír þínum, fagna yfir hjálp þinni í hliðum Síonardóttur."

9:15b.PSA.009.015 Lýðirnir eru fallnir í gryfju þá, er þeir gjörðu, fætur þeirra festust í neti því, er þeir lögðu leynt.

9:16b.PSA.009.016 Drottinn er kunnur orðinn: Hann hefir háð dóm, hinn óguðlegi festist í því, er hendur hans höfðu gjört. [Strengjaleikur. Sela]

9:17b.PSA.009.017 Hinir óguðlegu hrapa til Heljar, allar þjóðir er gleyma Guði.

9:18b.PSA.009.018 Hinum snauða verður eigi ávallt gleymt, von hinna hrjáðu bregst eigi sífellt.

9:19b.PSA.009.019 Rís þú upp, Drottinn! Lát eigi dauðlega menn verða yfirsterkari, lát þjóðirnar hljóta dóm fyrir augliti þínu.

9:20b.PSA.009.020 Skjót lýðunum skelk í bringu, Drottinn! Lát þá komast að raun um, að þeir eru dauðlegir menn.

90

90:1b.PSA.090.001 Bæn guðsmannsins Móse. Drottinn, þú hefir verið oss athvarf frá kyni til kyns.

90:2b.PSA.090.002 Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð.

90:3b.PSA.090.003 Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir: "Hverfið aftur, þér mannanna börn!"

90:4b.PSA.090.004 Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka.

90:5b.PSA.090.005 Þú hrífur þá burt, sem í svefni, þá er að morgni voru sem gróandi gras.

90:6b.PSA.090.006 Að morgni blómgast það og grær, að kveldi fölnar það og visnar.

90:7b.PSA.090.007 Vér hverfum fyrir reiði þinni, skelfumst fyrir bræði þinni.

90:8b.PSA.090.008 Þú hefir sett misgjörðir vorar fyrir augu þér, vorar huldu syndir fyrir ljós auglitis þíns.

90:9b.PSA.090.009 Allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni, ár vor líða sem andvarp.

90:10b.PSA.090.010 Ævidagar vorir eru sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár, og dýrsta hnossið er mæða og hégómi, því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt.

90:11b.PSA.090.011 Hver þekkir styrkleik reiði þinnar og bræði þína, svo sem hana ber að óttast?

90:12b.PSA.090.012 Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta.

90:13b.PSA.090.013 Snú þú aftur, Drottinn. Hversu lengi er þess að bíða, að þú aumkist yfir þjóna þína?

90:14b.PSA.090.014 Metta oss að morgni með miskunn þinni, að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.

90:15b.PSA.090.015 Veit oss gleði í stað daga þeirra, er þú hefir lægt oss, ára þeirra, er vér höfum illt reynt.

90:16b.PSA.090.016 Lát dáðir þínar birtast þjónum þínum og dýrð þína börnum þeirra.

90:17b.PSA.090.017 Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss, styrk þú verk handa vorra.

91

91:1b.PSA.091.001 Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka,

91:2b.PSA.091.002 sá er segir við Drottin: "Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á!"

91:3b.PSA.091.003 Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt glötunarinnar,

91:4b.PSA.091.004 hann skýlir þér með fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

91:5b.PSA.091.005 Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga,

91:6b.PSA.091.006 drepsóttina, er reikar um í dimmunni, eða sýkina, er geisar um hádegið.

91:7b.PSA.091.007 Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar, þá nær það ekki til þín.

91:8b.PSA.091.008 Þú horfir aðeins á með augunum, sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

91:9b.PSA.091.009 Þitt hæli er Drottinn, þú hefir gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

91:10b.PSA.091.010 Engin ógæfa hendir þig, og engin plága nálgast tjald þitt.

91:11b.PSA.091.011 Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

91:12b.PSA.091.012 Þeir munu bera þig á höndum sér, til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

91:13b.PSA.091.013 Þú skalt stíga ofan á höggorma og nöðrur, troða fótum ljón og dreka.

91:14b.PSA.091.014 "Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann, ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

91:15b.PSA.091.015 Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

91:16b.PSA.091.016 Ég metta hann með fjöld lífdaga og læt hann sjá hjálpræði mitt."

92

92:1b.PSA.092.001 Sálmur. Hvíldardagsljóð. Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti,

92:2b.PSA.092.002 að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur

92:3b.PSA.092.003 á tístrengjað hljóðfæri og hörpu með strengjaleik gígjunnar.

92:4b.PSA.092.004 Þú hefir glatt mig, Drottinn, með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég.

92:5b.PSA.092.005 Hversu mikil eru verk þín, Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar.

92:6b.PSA.092.006 Fíflið eitt skilur eigi, og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.

92:7b.PSA.092.007 Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust, þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,

92:8b.PSA.092.008 en þú sem ert á hæðum, ert til að eilífu, Drottinn.

92:9b.PSA.092.009 Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá, óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.

92:10b.PSA.092.010 En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn, mig hressir þú með ferskri olíu.

92:11b.PSA.092.011 Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína, eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.

92:12b.PSA.092.012 Hinir réttlátu gróa sem pálminn, vaxa sem sedrustréð á Líbanon.

92:13b.PSA.092.013 Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins, gróa í forgörðum Guðs vors.

92:14b.PSA.092.014 Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir.

92:15b.PSA.092.015 Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.

93

93:1b.PSA.093.001 Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir íklæðst hátign, Drottinn hefir skrýðst, hann hefir spennt sig belti styrkleika síns og fest jörðina, svo að hún haggast eigi.

93:2b.PSA.093.002 Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú.

93:3b.PSA.093.003 Straumarnir hófu upp, Drottinn, straumarnir hófu upp raust sína, straumarnir hófu upp dunur sínar.

93:4b.PSA.093.004 Drottinn á hæðum er tignarlegri en gnýr mikilla, tignarlegra vatna, tignarlegri en boðar hafsins.

93:5b.PSA.093.005 Vitnisburðir þínir eru harla áreiðanlegir, húsi þínu hæfir heilagleiki, ó Drottinn, um allar aldir.

94

94:1b.PSA.094.001 Drottinn, Guð hefndarinnar, Guð hefndarinnar, birst þú í geisladýrð!

94:2b.PSA.094.002 Rís þú upp, dómari jarðar, endurgjald ofstopamönnunum það er þeir hafa aðhafst!

94:3b.PSA.094.003 Hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn, hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn að fagna?

94:4b.PSA.094.004 Þeir ausa úr sér drambyrðum, allir illvirkjarnir rembast.

94:5b.PSA.094.005 Þeir kremja lýð þinn, Drottinn, þjá arfleifð þína,

94:6b.PSA.094.006 drepa ekkjur og aðkomandi og myrða föðurlausa

94:7b.PSA.094.007 og segja: "Drottinn sér það ekki, Jakobs Guð tekur eigi eftir því."

94:8b.PSA.094.008 Takið eftir, þér hinir fíflsku meðal lýðsins, og þér fáráðlingar, hvenær ætlið þér að verða hyggnir?

94:9b.PSA.094.009 Mun sá eigi heyra, sem eyrað hefir plantað, mun sá eigi sjá, sem augað hefir til búið?

94:10b.PSA.094.010 Skyldi sá er agar þjóðirnar eigi hegna, hann sem kennir mönnunum þekkingu?

94:11b.PSA.094.011 Drottinn þekkir hugsanir mannsins, að þær eru einber hégómi.

94:12b.PSA.094.012 Sæll er sá maður, er þú agar, Drottinn, og fræðir í lögmáli þínu,

94:13b.PSA.094.013 til þess að hlífa honum við mótlætisdögunum, uns gröf er grafin fyrir óguðlega.

94:14b.PSA.094.014 Því að Drottinn hrindir eigi burt lýð sínum og yfirgefur eigi arfleifð sína,

94:15b.PSA.094.015 heldur mun rétturinn hverfa aftur til hins réttláta, og honum munu allir hjartahreinir fylgja.

94:16b.PSA.094.016 Hver rís upp mér til hjálpar gegn illvirkjunum, hver gengur fram fyrir mig gegn illgjörðamönnunum?

94:17b.PSA.094.017 Ef Drottinn veitti mér eigi fulltingi, þá mundi sál mín brátt hvíla í dauðaþögn.

94:18b.PSA.094.018 Þegar ég hugsaði: "Mér skriðnar fótur," þá studdi mig miskunn þín, Drottinn.

94:19b.PSA.094.019 Þegar miklar áhyggjur lögðust á hjarta mitt, hressti huggun þín sálu mína.

94:20b.PSA.094.020 Mun dómstóll spillingarinnar vera í bandalagi við þig, hann sem býr öðrum tjón undir yfirskini réttarins?

94:21b.PSA.094.021 Þeir ráðast á líf hins réttláta og sakfella saklaust blóð.

94:22b.PSA.094.022 En Drottinn er mér háborg og Guð minn klettur mér til hælis.

94:23b.PSA.094.023 Hann geldur þeim misgjörð þeirra og afmáir þá í illsku þeirra, Drottinn, Guð vor, afmáir þá.

95

95:1b.PSA.095.001 Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.

95:2b.PSA.095.002 Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum.

95:3b.PSA.095.003 Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.

95:4b.PSA.095.004 Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til.

95:5b.PSA.095.005 Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið.

95:6b.PSA.095.006 Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,

95:7b.PSA.095.007 því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans!

95:8b.PSA.095.008 Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,

95:9b.PSA.095.009 þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín.

95:10b.PSA.095.010 Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: "Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína."

95:11b.PSA.095.011 Þess vegna sór ég í reiði minni: "Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar."

96

96:1b.PSA.096.001 Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!

96:2b.PSA.096.002 Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.

96:3b.PSA.096.003 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.

96:4b.PSA.096.004 Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.

96:5b.PSA.096.005 Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.

96:6b.PSA.096.006 Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.

96:7b.PSA.096.007 Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald.

96:8b.PSA.096.008 Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans,

96:9b.PSA.096.009 fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd!

96:10b.PSA.096.010 Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.

96:11b.PSA.096.011 Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er,

96:12b.PSA.096.012 foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,

96:13b.PSA.096.013 fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.

97

97:1b.PSA.097.001 Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist.

97:2b.PSA.097.002 Ský og sorti eru umhverfis hann, réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans,

97:3b.PSA.097.003 eldur fer fyrir honum og bálast umhverfis spor hans.

97:4b.PSA.097.004 Leiftur hans lýsa um jarðríki, jörðin sér það og nötrar.

97:5b.PSA.097.005 Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni, fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.

97:6b.PSA.097.006 Himnarnir kunngjöra réttlæti hans, og allar þjóðir sjá dýrð hans.

97:7b.PSA.097.007 Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum.

97:8b.PSA.097.008 Síon heyrir það og gleðst, Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn.

97:9b.PSA.097.009 Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni, þú ert hátt hafinn yfir alla guði.

97:10b.PSA.097.010 Drottinn elskar þá er hata hið illa, hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.

97:11b.PSA.097.011 Ljós rennur upp réttlátum og gleði hjartahreinum.

97:12b.PSA.097.012 Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn.

98

98:1b.PSA.098.001 Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefir gjört dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.

98:2b.PSA.098.002 Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt, fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.

98:3b.PSA.098.003 Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.

98:4b.PSA.098.004 Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.

98:5b.PSA.098.005 Leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju með lofsöngshljómi,

98:6b.PSA.098.006 með lúðrum og básúnuhljómi, látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni.

98:7b.PSA.098.007 Hafið drynji og allt sem í því er, heimurinn og þeir sem í honum lifa.

98:8b.PSA.098.008 Fljótin skulu klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll saman

98:9b.PSA.098.009 fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.

99

99:1b.PSA.099.001 Drottinn er konungur orðinn! Þjóðirnar skjálfi. Hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötri.

99:2b.PSA.099.002 Drottinn er mikill á Síon og hátt upp hafinn yfir alla lýði.

99:3b.PSA.099.003 Þeir skulu lofa nafn þitt, hið mikla og óttalega. Heilagur er hann!

99:4b.PSA.099.004 Þú ert voldugur konungur, sem elskar réttinn, þú hefir staðfest réttvísina, rétt og réttlæti hefir þú framið í Jakob.

99:5b.PSA.099.005 Tignið Drottin, Guð vorn, og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann!

99:6b.PSA.099.006 Móse og Aron eru meðal presta hans, Samúel meðal þeirra er ákalla nafn hans, þeir ákalla Drottin og hann bænheyrir þá.

99:7b.PSA.099.007 Hann talar til þeirra í skýstólpanum, því að þeir gæta vitnisburða hans og laganna, er hann gaf þeim.

99:8b.PSA.099.008 Drottinn, Guð vor, þú bænheyrir þá, þú reynist þeim fyrirgefandi Guð og sýknar þá af gjörðum þeirra.

99:9b.PSA.099.009 Tignið Drottin Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli, því að heilagur er Drottinn, Guð vor.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Psalms (Icelandic). Psalms (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9D95-F