Job (Icelandic)

Job (Icelandic)

1

1:1b.JOB.001.001 Einu sinni var maður í Ús-landi. Hann hét Job. Hann var maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar.

1:2b.JOB.001.002 Hann átti sjö sonu og þrjár dætur,

1:3b.JOB.001.003 og aflafé hans var sjö þúsund sauða, þrjú þúsund úlfalda, fimm hundruð sameyki nauta, fimm hundruð ösnur og mjög mörg hjú, og var maður sá meiri öllum austurbyggjum.

1:4b.JOB.001.004 Synir hans voru vanir að fara og búa veislu heima hjá sér, hver sinn dag, og þeir buðu systrum sínum þremur að eta og drekka með sér.

1:5b.JOB.001.005 En er veisludagar voru liðnir, sendi Job eftir þeim og helgaði þau. Reis hann árla morguns og fórnaði brennifórn fyrir hvert þeirra. Því að Job hugsaði: "Vera má að börn mín hafi syndgað og formælt Guði í hjarta sínu." Svo gjörði Job alla daga.

1:6b.JOB.001.006 Nú bar svo til einn dag, að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottin, og kom Satan og meðal þeirra.

1:7b.JOB.001.007 Mælti þá Drottinn til Satans: "Hvaðan kemur þú?" Satan svaraði Drottni og sagði: "Ég hefi verið að reika um jörðina og arka fram og aftur um hana."

1:8b.JOB.001.008 Og Drottinn mælti til Satans: "Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar."

1:9b.JOB.001.009 Og Satan svaraði Drottni og sagði: "Ætli Job óttist Guð fyrir ekki neitt? Hefir þú ekki lagt skjólgarð um hann og hús hans og allt, sem hann á, hringinn í kring?

1:10b.JOB.001.010 Handaverk hans hefir þú blessað, og fénaður hans breiðir sig um landið.

1:11b.JOB.001.011 En rétt þú út hönd þína og snert þú allt, sem hann á, og mun hann þá formæla þér upp í opið geðið."

1:12b.JOB.001.012 Þá mælti Drottinn til Satans: "Sjá, veri allt, sem hann á, á þínu valdi, en á sjálfan hann mátt þú ekki leggja hönd þína." Gekk Satan þá burt frá augliti Drottins.

1:13b.JOB.001.013 Nú bar svo til einn dag, er synir hans og dætur átu og drukku vín í húsi elsta bróður síns,

1:14b.JOB.001.014 að sendimaður kom til Jobs og sagði: "Nautin voru að plægja og ösnurnar voru á beit rétt hjá þeim.

1:15b.JOB.001.015 Gjörðu þá Sabear athlaup og tóku þau, en sveinana drápu þeir. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin."

1:16b.JOB.001.016 En áður en hann hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: "Eldur Guðs féll af himni og kveikti í hjörðinni og sveinunum og eyddi þeim. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin."

1:17b.JOB.001.017 En áður en sá hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: "Kaldear fylktu þremur flokkum, gjörðu áhlaup á úlfaldana og tóku þá, en sveinana drápu þeir. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin."

1:18b.JOB.001.018 Áður en sá hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: "Synir þínir og dætur átu og drukku vín í húsi elsta bróður síns.

1:19b.JOB.001.019 Kom þá skyndilega fellibylur austan yfir eyðimörkina og lenti á fjórum hornum hússins, svo að það féll ofan yfir sveinana, og þeir dóu. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin."

1:20b.JOB.001.020 Þá stóð Job upp og reif skikkju sína og skar af sér hárið, og féll til jarðar, tilbað

1:21b.JOB.001.021 og sagði: Nakinn kom ég af móðurskauti og nakinn mun ég aftur þangað fara. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins.

1:22b.JOB.001.022 Í öllu þessu syndgaði Job ekki, og ekki átaldi hann Guð heimskulega.

10

10:1b.JOB.010.001 Mér býður við lífi mínu, ég ætla því að gefa kveinstöfum mínum lausan tauminn, ætla að tala í sálarkvöl minni.

10:2b.JOB.010.002 Ég segi við Guð: Sakfell mig ekki! lát mig vita, hvers vegna þú deilir við mig.

10:3b.JOB.010.003 Er það ávinningur fyrir þig, að þú undirokar, að þú hafnar verki handa þinna, en lætur ljós skína yfir ráðagerð hinna óguðlegu?

10:4b.JOB.010.004 Hefir þú holdleg augu, eða sér þú eins og menn sjá?

10:5b.JOB.010.005 Eru dagar þínir eins og dagar mannanna, eru ár þín eins og mannsævi,

10:6b.JOB.010.006 er þú leitar að misgjörð minni og grennslast eftir synd minni,

10:7b.JOB.010.007 þótt þú vitir, að ég er ekki sekur, og að enginn frelsar af þinni hendi?

10:8b.JOB.010.008 Hendur þínar hafa skapað mig og myndað mig, allan í krók og kring, og samt ætlar þú að tortíma mér?

10:9b.JOB.010.009 Minnstu þó þess, að þú myndaðir mig sem leir, og nú vilt þú aftur gjöra mig að dufti.

10:10b.JOB.010.010 Hefir þú ekki hellt mér sem mjólk og hleypt mig sem ost?

10:11b.JOB.010.011 Hörundi og holdi klæddir þú mig og ófst mig saman úr beinum og sinum.

10:12b.JOB.010.012 Líf og náð veittir þú mér, og umsjá þín varðveitti andardrátt minn.

10:13b.JOB.010.013 En þetta falst þú í hjarta þínu, ég veit þú hafðir slíkt í hyggju.

10:14b.JOB.010.014 Ef ég syndgaði, þá ætlaðir þú að hafa gætur á mér og eigi sýkna mig af misgjörð minni.

10:15b.JOB.010.015 Væri ég sekur, þá vei mér! Og þótt ég væri réttlátur, þá mundi ég samt ekki bera höfuð mitt hátt, mettur af smán og þjakaður af eymd.

10:16b.JOB.010.016 Og ef ég reisti mig upp, þá mundir þú elta mig sem ljón, og ávallt að nýju sýna á mér undramátt þinn.

10:17b.JOB.010.017 Þú mundir leiða fram ný vitni á móti mér og herða á gremju þinni gegn mér, senda nýjan og nýjan kvalaher á hendur mér.

10:18b.JOB.010.018 Hvers vegna útleiddir þú mig þá af móðurlífi? Ég hefði átt að deyja, áður en nokkurt auga leit mig!

10:19b.JOB.010.019 Ég hefði átt að verða eins og ég hefði aldrei verið til, verið borinn frá móðurkviði til grafar!

10:20b.JOB.010.020 Eru ekki dagar mínir fáir? Slepptu mér, svo að ég megi gleðjast lítið eitt,

10:21b.JOB.010.021 áður en ég fer burt og kem aldrei aftur, fer í land myrkurs og niðdimmu,

10:22b.JOB.010.022 land svartamyrkurs sem um hánótt, land niðdimmu og skipuleysis, þar sem birtan sjálf er sem svartnætti.

11

11:1b.JOB.011.001 Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:

11:2b.JOB.011.002 Á ekki að svara orðagjálfrinu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér?

11:3b.JOB.011.003 Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja, og ættir þú að spotta og enginn sneypa þig,

11:4b.JOB.011.004 þar sem þú segir: "Kenning mín er rétt, og ég er hreinn í augum Guðs"?

11:5b.JOB.011.005 En - ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér

11:6b.JOB.011.006 og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni.

11:7b.JOB.011.007 Getur þú náð til botns í Guði eða komist til ystu takmarka hins Almáttka?

11:8b.JOB.011.008 Himinhá er speki hans - hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar - hvað fær þú vitað?

11:9b.JOB.011.009 Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið.

11:10b.JOB.011.010 Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing - hver aftrar honum?

11:11b.JOB.011.011 Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli.

11:12b.JOB.011.012 Verður óvitur maður hygginn? og fæðist skógarösnu-folald sem maður?

11:13b.JOB.011.013 Ef þú undirbýr hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans,

11:14b.JOB.011.014 - ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum -

11:15b.JOB.011.015 já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast.

11:16b.JOB.011.016 Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni, þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá.

11:17b.JOB.011.017 Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn.

11:18b.JOB.011.018 Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skyggnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar.

11:19b.JOB.011.019 Og þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.

11:20b.JOB.011.020 En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann.

12

12:1b.JOB.012.001 Þá svaraði Job og sagði:

12:2b.JOB.012.002 Já, vissulega, miklir menn eruð þér, og með yður mun spekin deyja út!

12:3b.JOB.012.003 En ég hefi vit eins og þér, ekki stend ég yður að baki, og hver er sá, er eigi viti slíkt!

12:4b.JOB.012.004 Athlægi vinar síns - það má ég vera, ég sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér, - ég, hinn réttláti, hreinlyndi, er að athlægi!

12:5b.JOB.012.005 "Ógæfan er fyrirlitleg" - segir hinn öruggi, "hún hæfir þeim, sem skrikar fótur."

12:6b.JOB.012.006 Tjöld spellvirkjanna standa ósködduð, og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði, og sá sem þykist bera Guð í hendi sér.

12:7b.JOB.012.007 En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér, fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,

12:8b.JOB.012.008 eða villidýrin, og þau munu kenna þér, og fiskar hafsins munu kunngjöra þér.

12:9b.JOB.012.009 Hver þeirra veit ekki að hönd Drottins hefir gjört þetta?

12:10b.JOB.012.010 Í hans hendi er líf alls hins lifanda og andi sérhvers mannslíkama.

12:11b.JOB.012.011 Prófar eyrað ekki orðin, eins og gómurinn smakkar matinn?

12:12b.JOB.012.012 Hjá öldruðum mönnum er speki, og langir lífdagar veita hyggindi.

12:13b.JOB.012.013 Hjá Guði er speki og máttur, hans eru ráð og hyggindi.

12:14b.JOB.012.014 Þegar hann rífur niður, þá verður eigi byggt upp aftur, þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.

12:15b.JOB.012.015 Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp, þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.

12:16b.JOB.012.016 Hjá honum er máttur og viska, á valdi hans er sá er villist, og sá er í villu leiðir.

12:17b.JOB.012.017 Hann leiðir ráðherra burt nakta og gjörir dómara að fíflum.

12:18b.JOB.012.018 Hann leysir fjötra konunganna og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.

12:19b.JOB.012.019 Hann leiðir presta burt nakta og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.

12:20b.JOB.012.020 Hann rænir reynda menn málinu og sviptir öldungana dómgreind.

12:21b.JOB.012.021 Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin og gjörir slakt belti hinna sterku.

12:22b.JOB.012.022 Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu og dregur niðdimmuna fram í birtuna.

12:23b.JOB.012.023 Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.

12:24b.JOB.012.024 Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti og lætur þá villast um veglaus öræfi.

12:25b.JOB.012.025 Þeir fálma í ljóslausu myrkri, og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.

13

13:1b.JOB.013.001 Sjá, allt þetta hefir auga mitt séð og eyra mitt heyrt og sett það á sig.

13:2b.JOB.013.002 Það sem þér vitið, það veit ég líka, ekki stend ég yður að baki.

13:3b.JOB.013.003 En ég vil tala til hins Almáttka og mig langar til að þreyta málsókn við Guð.

13:4b.JOB.013.004 Því að sannlega samtvinnið þér lygar og eruð gagnslausir gutlarar allir saman.

13:5b.JOB.013.005 Ó að þér vilduð steinþegja, þá mætti meta yður það til mannvits.

13:6b.JOB.013.006 Heyrið átölur mínar og hlustið á ásakanir vara minna.

13:7b.JOB.013.007 Viljið þér mæla það, sem rangt er, Guði til varnar, og honum til varnar mæla svik?

13:8b.JOB.013.008 Viljið þér draga taum hans, eða viljið þér taka málstað Guðs?

13:9b.JOB.013.009 Ætli það fari vel, þegar hann rannsakar yður, eða ætlið þér að leika á hann, eins og leikið er á menn?

13:10b.JOB.013.010 Nei, hegna, hegna mun hann yður, ef þér eruð hlutdrægir í leyni.

13:11b.JOB.013.011 Hátign hans mun skelfa yður, og ógn hans mun falla yfir yður.

13:12b.JOB.013.012 Spakmæli yðar eru ösku-orðskviðir, vígi yðar eru leirvígi.

13:13b.JOB.013.013 Þegið og látið mig í friði, þá mun ég mæla, og komi yfir mig hvað sem vill.

13:14b.JOB.013.014 Ég stofna sjálfum mér í hættu og legg lífið undir.

13:15b.JOB.013.015 Sjá, hann mun deyða mig - ég bíð hans, aðeins vil ég verja breytni mína fyrir augliti hans.

13:16b.JOB.013.016 Það skal og verða mér til sigurs, því að guðlaus maður kemur ekki fyrir auglit hans.

13:17b.JOB.013.017 Hlýðið því gaumgæfilega á ræðu mína, og vörn mín gangi yður í eyru.

13:18b.JOB.013.018 Sjá, ég hefi undirbúið málið, ég veit, að ég verð dæmdur sýkn.

13:19b.JOB.013.019 Hver er sá, er deila vilji við mig? þá skyldi ég þegja og gefa upp andann.

13:20b.JOB.013.020 Tvennt mátt þú, Guð, ekki við mig gjöra, þá skal ég ekki fela mig fyrir augliti þínu.

13:21b.JOB.013.021 Tak hönd þína burt frá mér, og lát ekki skelfing þína hræða mig.

13:22b.JOB.013.022 Kalla því næst, og mun ég svara, eða ég skal tala, og veit þú mér andsvör í móti.

13:23b.JOB.013.023 Hversu margar eru þá misgjörðir mínar og syndir? Kunngjör mér afbrot mín og synd mína!

13:24b.JOB.013.024 Hvers vegna byrgir þú auglit þitt og ætlar, að ég sé óvinur þinn?

13:25b.JOB.013.025 Ætlar þú að skelfa vindþyrlað laufblað og ofsækja þurrt hálmstrá,

13:26b.JOB.013.026 er þú dæmir mér beiskar kvalir og lætur mig erfa misgjörðir æsku minnar,

13:27b.JOB.013.027 er þú setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína og markar hring kringum iljar mínar?

13:28b.JOB.013.028 - Þessi maður dettur þó sundur eins og maðksmoginn viður, eins og möletið fat.

14

14:1b.JOB.014.001 Maðurinn, af konu fæddur, lifir stutta stund og mettast órósemi.

14:2b.JOB.014.002 Hann rennur upp og fölnar eins og blóm, flýr burt eins og skuggi og hefir ekkert viðnám.

14:3b.JOB.014.003 Og yfir slíkum heldur þú opnum augum þínum og dregur mig fyrir dóm hjá þér!

14:4b.JOB.014.004 Hvernig ætti hreinn að koma af óhreinum? Ekki einn!

14:5b.JOB.014.005 Ef dagar hans eru ákvarðaðir, tala mánaða hans tiltekin hjá þér, hafir þú ákveðið takmark hans, er hann fær eigi yfir komist,

14:6b.JOB.014.006 þá lít þú af honum, til þess að hann fái hvíld, svo að hann megi fagna yfir degi sínum eins og daglaunamaður.

14:7b.JOB.014.007 Því að tréð hefir von, sé það höggvið, þá skýtur það nýjum frjóöngum, og teinungurinn kemur áreiðanlega upp.

14:8b.JOB.014.008 Jafnvel þótt rót þess eldist í jörðinni, og stofn þess deyi í moldinni,

14:9b.JOB.014.009 þá brumar það við ilminn af vatninu, og á það koma greinar eins og unga hríslu.

14:10b.JOB.014.010 En deyi maðurinn, þá liggur hann flatur, og gefi manneskjan upp andann - hvar er hún þá?

14:11b.JOB.014.011 Eins og vatnið hverfur úr stöðuvatninu og fljótið grynnist og þornar upp,

14:12b.JOB.014.012 þannig leggst maðurinn til hvíldar og rís eigi aftur á fætur. Hann rumskar ekki, meðan himnarnir standa og vaknar ekki af svefninum.

14:13b.JOB.014.013 Ó að þú vildir geyma mig í dánarheimum, fela mig, uns reiði þinni linnir, setja mér tímatakmark og síðan minnast mín!

14:14b.JOB.014.014 Þegar maðurinn deyr, lifnar hann þá aftur? þá skyldi ég þreyja alla daga herþjónustu minnar, þar til er lausnartíð mín kæmi.

14:15b.JOB.014.015 Þú mundir kalla, og ég - ég mundi svara þér, þú mundir þrá verk handa þinna.

14:16b.JOB.014.016 Því að þá mundir þú telja spor mín, eigi vaka yfir synd minni.

14:17b.JOB.014.017 Afbrot mín lægju innsigluð í böggli, og á misgjörð mína drægir þú hvítan lit.

14:18b.JOB.014.018 En eins og fjallið molnar sundur, er það hrynur, og kletturinn færist úr stað sínum,

14:19b.JOB.014.019 eins og vatnið holar steinana og vatnsflóðin skola burt jarðarleirnum, svo hefir þú gjört von mannsins að engu.

14:20b.JOB.014.020 Þú ber hann ofurliði að eilífu, og hann fer burt, þú afmyndar ásjónu hans og rekur hann á brott.

14:21b.JOB.014.021 Komist börn hans til virðingar, þá veit hann það ekki, séu þau lítilsvirt, verður hann þess ekki var.

14:22b.JOB.014.022 Aðeins kennir líkami hans eigin sársauka, og sál hans hryggist yfir sjálfum honum.

15

15:1b.JOB.015.001 Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:

15:2b.JOB.015.002 Skyldi vitur maður svara með vindkenndri visku og fylla brjóst sitt austanstormi -

15:3b.JOB.015.003 sanna mál sitt með orðum, sem ekkert gagna, og ræðum, sem engu fá áorkað?

15:4b.JOB.015.004 Auk þess rífur þú niður guðsóttann og veikir lotninguna, sem Guði ber.

15:5b.JOB.015.005 Því að misgjörð þín leggur þér orð í munn og þú velur þér lævísra tungu.

15:6b.JOB.015.006 Þinn eigin munnur sakfellir þig, ekki ég, og varir þínar vitna í gegn þér.

15:7b.JOB.015.007 Fæddist þú fyrstur manna og ert þú í heiminn borinn fyrr en hæðirnar?

15:8b.JOB.015.008 Hefir þú hlustað í ráði Guðs og hrifsað til þín spekina?

15:9b.JOB.015.009 Hvað veist þú, er vér eigi vissum, hvað skilur þú, er oss væri ókunnugt?

15:10b.JOB.015.010 Til eru og öldungar, gráhærðir menn, vor á meðal, auðgari að ævidögum en faðir þinn.

15:11b.JOB.015.011 Er huggun Guðs þér lítils virði og mildileg orðin sem þú heyrir?

15:12b.JOB.015.012 Hvers vegna hrífur gremjan þig og hví ranghvolfast augu þín,

15:13b.JOB.015.013 er þú snýr reiði þinni gegn Guði og lætur þér slík orð um munn fara?

15:14b.JOB.015.014 Hvað er maðurinn, að hann geti verið hreinn, og sá verið réttlátur, sem af konu er fæddur?

15:15b.JOB.015.015 Sjá, sínum heilögu treystir Hann ekki, og himinninn er ekki hreinn í augum hans,

15:16b.JOB.015.016 hvað þá hinn andstyggilegi og spillti, maðurinn, sem drekkur ranglætið eins og vatn.

15:17b.JOB.015.017 Ég vil fræða þig, heyr þú mig, og það sem ég hefi séð, frá því vil ég segja,

15:18b.JOB.015.018 því er vitringarnir kunngjörðu - og duldu ekki - svo sem arfsögn frá feðrum sínum,

15:19b.JOB.015.019 en þeim einum var landið gefið, og enginn útlendingur hafði enn farið um meðal þeirra.

15:20b.JOB.015.020 Alla ævi sína kvelst hinn óguðlegi og öll þau ár, sem geymd eru ofbeldismanninum.

15:21b.JOB.015.021 Skelfingarhljóð óma í eyrum honum, á friðartímum ræðst eyðandinn á hann.

15:22b.JOB.015.022 Hann trúir því ekki, að hann komist út úr myrkrinu, og hann er kjörinn undir sverðið.

15:23b.JOB.015.023 Hann reikar um til þess að leita sér brauðs - hvar er það? - hann veit að ógæfudagurinn bíður hans.

15:24b.JOB.015.024 Neyð og angist skelfa hann, hún ber hann ofurliði eins og konungur, sem búinn er til atlögu,

15:25b.JOB.015.025 af því hann útrétti hönd sína gegn Guði og reis þrjóskur í móti hinum Almáttka,

15:26b.JOB.015.026 rann í móti honum illvígur undir þykkum bungum skjalda sinna.

15:27b.JOB.015.027 Hann þakti andlit sitt spiki og safnaði fitu á lendar sér,

15:28b.JOB.015.028 settist að í eyddum borgum, í húsum, er enginn átti í að búa og ákveðið var, að verða skyldu að rústum.

15:29b.JOB.015.029 Hann verður ekki ríkur, og eigur hans haldast ekki við, og kornöx hans svigna ekki til jarðar.

15:30b.JOB.015.030 Hann kemst eigi undan myrkrinu, frjóanga hans mun loginn svíða, og fyrir reiðiblæstri hans ferst hann.

15:31b.JOB.015.031 Hann skyldi ekki reiða sig á hégóma; hann villist, því að hégómi verður umbun hans.

15:32b.JOB.015.032 Það rætist fyrir skapadægur hans, og pálmagrein hans grænkar eigi.

15:33b.JOB.015.033 Hann hristir af sér súr berin eins og vínviðurinn og varpar af sér blómunum eins og olíutréð.

15:34b.JOB.015.034 Því að sveit hinna óguðlegu er ófrjó, og eldur eyðir tjöldum mútugjafanna.

15:35b.JOB.015.035 Þeir ganga þungaðir með mæðu og ala ógæfu, og kviður þeirra undirbýr svik.

16

16:1b.JOB.016.001 Þá svaraði Job og sagði:

16:2b.JOB.016.002 Ég hefi heyrt nóg af slíku, hvimleiðir huggarar eruð þér allir saman.

16:3b.JOB.016.003 Er orðavindurinn nú á enda? eða hvað knýr þig til andsvara?

16:4b.JOB.016.004 Ég gæti líka talað eins og þér, ef þér væruð í mínum sporum, gæti spunnið saman ræður gegn yður og hrist yfir yður höfuðið,

16:5b.JOB.016.005 ég gæti styrkt yður með munni mínum, og meðaumkun vara minna mundi lina þjáning yðar.

16:6b.JOB.016.006 Þótt ég tali, þá linar ekki kvöl mína, og gjöri ég það ekki, hvaða létti fæ ég þá?

16:7b.JOB.016.007 Miklu fremur hefir Guð nú örþreytt mig, - þú hefir eytt öllu ættliði mínu,

16:8b.JOB.016.008 hefir hremmt mig, og það er vitni í móti mér. Sjúkdómur minn rís í gegn mér, ákærir mig upp í opið geðið.

16:9b.JOB.016.009 Reiði hans slítur mig sundur og ofsækir mig, hann nístir tönnum í móti mér, andstæðingur minn hvessir á mig augun.

16:10b.JOB.016.010 Þeir glenna upp ginið í móti mér, löðrunga mig til háðungar, allir saman gjöra þeir samtök í móti mér.

16:11b.JOB.016.011 Guð gefur mig á vald ranglátra og varpar mér í hendur óguðlegra.

16:12b.JOB.016.012 Ég lifði áhyggjulaus, þá braut hann mig sundur, hann þreif í hnakkann á mér og molaði mig sundur og reisti mig upp sér að skotspæni.

16:13b.JOB.016.013 Skeyti hans fljúga kringum mig, vægðarlaust sker hann sundur nýru mín, hellir galli mínu á jörðu.

16:14b.JOB.016.014 Hann brýtur í mig skarð á skarð ofan og gjörir áhlaup á mig eins og hetja.

16:15b.JOB.016.015 Ég hefi saumað sekk um hörund mitt og stungið horni mínu ofan í moldina.

16:16b.JOB.016.016 Andlit mitt er þrútið af gráti, og svartamyrkur hvílir yfir hvörmum mínum,

16:17b.JOB.016.017 þótt ekkert ranglæti sé í hendi minni og bæn mín sé hrein.

16:18b.JOB.016.018 Jörð, hyl þú eigi blóð mitt, og kvein mitt finni engan hvíldarstað!

16:19b.JOB.016.019 En sjá, á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum.

16:20b.JOB.016.020 Vinir mínir gjöra gys að mér - til Guðs lítur auga mitt grátandi,

16:21b.JOB.016.021 að hann láti manninn ná rétti sínum gagnvart Guði og skeri úr milli mannsins og vinar hans.

16:22b.JOB.016.022 Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur.

17

17:1b.JOB.017.001 Andi minn er bugaður, dagar mínir þrotnir, gröfin bíður mín.

17:2b.JOB.017.002 Vissulega eru þeir enn að gjöra gys að mér! Auga mitt verður að horfa upp á móðganir þeirra!

17:3b.JOB.017.003 Set veð, gakk í ábyrgð fyrir mig hjá þér, Guð, hver mun annars taka í hönd mér?

17:4b.JOB.017.004 Því að hjörtum þeirra hefir þú varnað vits, fyrir því munt þú ekki láta þá sigri hrósa.

17:5b.JOB.017.005 Hver sem með svikum framselur vini sína að herfangi, - augu barna hans munu daprast.

17:6b.JOB.017.006 Hann hefir gjört mig að orðskviði meðal manna, og ég verð að láta hrækja í andlit mitt.

17:7b.JOB.017.007 Fyrir því dapraðist auga mitt af harmi, og limir mínir eru allir orðnir sem skuggi.

17:8b.JOB.017.008 Réttvísir menn skelfast yfir því, og hinn saklausi fárast yfir hinum óguðlega.

17:9b.JOB.017.009 En hinn réttláti heldur fast við sína leið, og sá sem hefir hreinar hendur, verður enn styrkari.

17:10b.JOB.017.010 En komið þér allir hingað aftur, og ég mun ekki finna neinn vitran mann meðal yðar.

17:11b.JOB.017.011 Dagar mínir eru liðnir, fyrirætlanir mínar sundurtættar, - hin dýrasta eign hjarta míns.

17:12b.JOB.017.012 Nóttina gjöra þeir að degi, ljósið á að vera nær mér en myrkrið.

17:13b.JOB.017.013 Þegar ég vonast eftir að dánarheimar verði híbýli mitt, bý mér hvílu í myrkrinu,

17:14b.JOB.017.014 þegar ég kalla gröfina "föður minn", ormana "móður mína og systur" -

17:15b.JOB.017.015 hvar er þá von mín, já, von mín - hver eygir hana?

17:16b.JOB.017.016 Að slagbröndum Heljar stígur hún niður, þá er ég um leið fæ hvíld í moldu.

18

18:1b.JOB.018.001 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

18:2b.JOB.018.002 Hversu lengi ætlið þér að halda áfram þessu orðaskaki? Látið yður segjast, og því næst skulum vér talast við.

18:3b.JOB.018.003 Hvers vegna erum vér metnir sem skepnur, orðnir heimskir í yðar augum?

18:4b.JOB.018.004 Þú, sem tætir sjálfan þig sundur í reiði þinni, - á jörðin þín vegna að fara í auðn og bjargið að færast úr stað sínum?

18:5b.JOB.018.005 Ljós hins óguðlega slokknar, og logi elds hans skín ekki.

18:6b.JOB.018.006 Ljósið myrkvast í tjaldi hans, og það slokknar á lampanum yfir honum.

18:7b.JOB.018.007 Hans öflugu skref verða stutt, og ráðagjörð sjálfs hans steypir honum,

18:8b.JOB.018.008 því að hann rekst í netið með fætur sína, og hann gengur í möskvunum.

18:9b.JOB.018.009 Möskvi festist um hæl hans, lykkjan herðist að honum.

18:10b.JOB.018.010 Snaran liggur falin á jörðinni, og gildran liggur fyrir honum á stígnum.

18:11b.JOB.018.011 Skelfingar hræða hann allt um kring og hrekja hann áfram, hvar sem hann gengur.

18:12b.JOB.018.012 Ógæfu hans tekur að svengja, og glötunin bíður búin eftir falli hans.

18:13b.JOB.018.013 Hún tærir húð hans, og frumburður dauðans etur limu hans.

18:14b.JOB.018.014 Hann er hrifinn burt úr tjaldi sínu, er hann treysti á, og það lætur hann ganga til konungs skelfinganna.

18:15b.JOB.018.015 Í tjaldi hans býr það, sem eigi er hans, brennisteini er stráð yfir bústað hans.

18:16b.JOB.018.016 Að neðan þorna rætur hans, að ofan visna greinar hans.

18:17b.JOB.018.017 Minning hans hverfur af jörðunni, og nafn hans er ekki nefnt á völlunum.

18:18b.JOB.018.018 Menn hrinda honum frá ljósinu út í myrkrið og reka hann burt af jarðríki.

18:19b.JOB.018.019 Hann mun hvorki eiga börn né buru meðal þjóðar sinnar, og enginn, sem undan hefir komist, er í híbýlum hans.

18:20b.JOB.018.020 Yfir skapadægri hans skelfast eftirkomendurnir, og hrylling grípur þá, er fyrr voru uppi.

18:21b.JOB.018.021 Já, svo fer um bústaði hins rangláta og svo um samastað þess manns, sem eigi þekkir Guð.

19

19:1b.JOB.019.001 Þá svaraði Job og sagði:

19:2b.JOB.019.002 Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?

19:3b.JOB.019.003 Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.

19:4b.JOB.019.004 Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá varðar það mig einan.

19:5b.JOB.019.005 Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.

19:6b.JOB.019.006 Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.

19:7b.JOB.019.007 Sjá, ég kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar, ég kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.

19:8b.JOB.019.008 Guð hefir girt fyrir veg minn, svo að ég kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.

19:9b.JOB.019.009 Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.

19:10b.JOB.019.010 Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að ég fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.

19:11b.JOB.019.011 Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.

19:12b.JOB.019.012 Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og setja herbúðir sínar kringum tjald mitt.

19:13b.JOB.019.013 Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.

19:14b.JOB.019.014 Skyldmenni mín láta ekki sjá sig, og kunningjar mínir hafa gleymt mér.

19:15b.JOB.019.015 Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og ég er orðinn útlendingur í augum þeirra.

19:16b.JOB.019.016 Kalli ég á þjón minn, svarar hann ekki, ég verð að sárbæna hann með munni mínum.

19:17b.JOB.019.017 Andi minn er konu minni framandlegur, og bræður mínir forðast mig.

19:18b.JOB.019.018 Jafnvel börnin fyrirlíta mig, standi ég upp, spotta þau mig.

19:19b.JOB.019.019 Alla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir sem ég elskaði, hafa snúist á móti mér.

19:20b.JOB.019.020 Bein mín límast við hörund mitt og hold, og ég hefi sloppið með tannholdið eitt.

19:21b.JOB.019.021 Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.

19:22b.JOB.019.022 Hví ofsækið þér mig eins og Guð og verðið eigi saddir á holdi mínu?

19:23b.JOB.019.023 Ó að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók

19:24b.JOB.019.024 með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!

19:25b.JOB.019.025 Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.

19:26b.JOB.019.026 Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af mér, mun ég líta Guð.

19:27b.JOB.019.027 Ég mun líta hann mér til góðs, já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, - hjartað brennur af þrá í brjósti mér!

19:28b.JOB.019.028 Þegar þér segið: "Vér skulum ofsækja hann, rót ógæfunnar er hjá honum sjálfum að finna!"

19:29b.JOB.019.029 þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.

2

2:1b.JOB.002.001 Nú bar svo til einn dag, að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottin, og kom Satan og meðal þeirra.

2:2b.JOB.002.002 Mælti þá Drottinn til Satans: "Hvaðan kemur þú?" Og Satan svaraði Drottni og sagði: "Ég hefi verið að reika um jörðina og arka fram og aftur um hana."

2:3b.JOB.002.003 Og Drottinn mælti til Satans: "Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar. Og enn þá er hann staðfastur í ráðvendni sinni, og þó hefir þú egnt mig gegn honum til að vinna honum tjón án saka."

2:4b.JOB.002.004 Og Satan svaraði Drottni og sagði: "Nær er skinnið en skyrtan, og fyrir líf sitt gefur maðurinn allt sem hann á.

2:5b.JOB.002.005 En rétt þú út hönd þína og snert þú bein hans og hold, og þá mun hann formæla þér upp í opið geðið."

2:6b.JOB.002.006 Þá mælti Drottinn til Satans: "Sjá, veri hann á þínu valdi, en þyrma skalt þú lífi hans."

2:7b.JOB.002.007 Þá gekk Satan burt frá augliti Drottins og sló Job illkynjuðum kaunum frá hvirfli til ilja.

2:8b.JOB.002.008 Og Job tók sér leirbrot til að skafa sig með, þar sem hann sat í öskunni.

2:9b.JOB.002.009 Þá sagði kona hans við hann: "Heldur þú enn fast við ráðvendni þína? Formæltu Guði og farðu að deyja!"

2:10b.JOB.002.010 En hann sagði við hana: "Þú talar svo sem heimskar konur tala. Fyrst vér höfum þegið hið góða af Guði, ættum vér þá ekki einnig að taka hinu vonda?" Í öllu þessu syndgaði Job ekki með vörum sínum.

2:11b.JOB.002.011 Þegar vinir Jobs þrír fréttu, að öll þessi ógæfa væri yfir hann komin, þá komu þeir hver frá sínum stað, þeir Elífas Temaníti, Bildad Súíti og Sófar Naamíti, og töluðu sig saman um að fara og votta honum samhryggð sína og hugga hann.

2:12b.JOB.002.012 En er þeir hófu upp augu sín álengdar, þekktu þeir hann ekki. Tóku þeir þá að gráta hástöfum, rifu skikkjur sínar og jusu mold yfir höfuð sér hátt í loft upp.

2:13b.JOB.002.013 Og þannig sátu þeir hjá honum á jörðu sjö daga og sjö nætur, og enginn þeirra yrti á hann, því að þeir sáu, hversu mikil kvöl hans var.

20

20:1b.JOB.020.001 Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:

20:2b.JOB.020.002 Fyrir því veita hugsanir mínar mér andsvör og af því að það sýður í mér:

20:3b.JOB.020.003 Ég verð að hlusta á háðulegar ávítur, en andi minn gefur mér skilning að svara.

20:4b.JOB.020.004 Veist þú, að svo hefir það verið frá eilífð, frá því er menn voru settir á jörðina,

20:5b.JOB.020.005 að fögnuður óguðlegra er skammær og að gleði hins guðlausa varir örskotsstund?

20:6b.JOB.020.006 Þó að sjálfbirgingskapur hans nemi við himin og höfuð hans nái upp í skýin,

20:7b.JOB.020.007 þá verður hann þó eilíflega að engu eins og hans eigin saur, þeir, sem sáu hann, segja: Hvar er hann?

20:8b.JOB.020.008 Hann líður burt eins og draumur, svo að hann finnst ekki, og hverfur eins og nætursýn.

20:9b.JOB.020.009 Augað, sem á hann horfði, sér hann eigi aftur, og bústaður hans lítur hann aldrei framar.

20:10b.JOB.020.010 Börn hans sníkja á snauða menn, og hendur þeirra skila aftur eigum hans.

20:11b.JOB.020.011 Þótt bein hans séu full af æskuþrótti, leggjast þau samt með honum í moldu.

20:12b.JOB.020.012 Þótt hið illa sé honum sætt í munni, þótt hann feli það undir tungu sinni,

20:13b.JOB.020.013 þótt hann treini sér það og vilji ekki sleppa því og haldi því eftir í miðjum gómnum,

20:14b.JOB.020.014 þá breytist þó fæðan í innýflum hans, - í nöðrugall í kviði honum.

20:15b.JOB.020.015 Auð gleypti hann - hann verður að æla honum aftur, Guð keyrir hann úr kviði hans.

20:16b.JOB.020.016 Nöðrueitur saug hann, tunga eiturormsins deyðir hann.

20:17b.JOB.020.017 Hann má ekki gleðjast yfir lækjum, yfir rennandi ám hunangs og rjóma.

20:18b.JOB.020.018 Hann lætur af hendi aflaféð og gleypir það eigi, auðurinn sem hann græddi, veitir honum eigi eftirvænta gleði.

20:19b.JOB.020.019 Því að hann kúgaði snauða og lét þá eftir hjálparlausa, sölsaði undir sig hús, en byggði ekki.

20:20b.JOB.020.020 Því að hann þekkti enga ró í maga sínum, þó fær hann eigi forðað því, sem honum er dýrmætast.

20:21b.JOB.020.021 Ekkert komst undan græðgi hans, fyrir því er velsæld hans eigi varanleg.

20:22b.JOB.020.022 Þótt hann hafi allsnægtir, kemst hann í nauðir, allt magn mæðunnar kemur yfir hann.

20:23b.JOB.020.023 Þá verður það: Til þess að fylla kvið hans sendir Guð í hann sína brennandi reiði og lætur mat sínum rigna yfir hann.

20:24b.JOB.020.024 Flýi hann fyrir járnvopnunum, þá borar eirboginn hann í gegn.

20:25b.JOB.020.025 Hann dregur örina út, þá kemur hún út um bakið, og hinn blikandi oddur kemur út úr galli hans - skelfing grípur hann.

20:26b.JOB.020.026 Allur ófarnaður er geymdur auðæfum hans, eldur, sem enginn blæs að, eyðir honum, hann etur það, sem eftir er í tjaldi hans.

20:27b.JOB.020.027 Himinninn afhjúpar misgjörð hans, og jörðin gjörir uppreisn í móti honum.

20:28b.JOB.020.028 Gróði húss hans fer í útlegð, rennur burt í allar áttir á degi reiðinnar.

20:29b.JOB.020.029 Þetta er óguðlegs manns hlutskipti frá Guði og arfleifð sú, sem honum er úthlutuð af hinum Almáttka.

21

21:1b.JOB.021.001 Þá svaraði Job og sagði:

21:2b.JOB.021.002 Hlustið gaumgæfilega á mál mitt, og látið það vera huggun af yðar hendi.

21:3b.JOB.021.003 Unnið mér þess, að ég tali, og þegar ég hefi talað út, þá mátt þú hæða.

21:4b.JOB.021.004 Er ég þá að kvarta yfir mönnum? eða hví skyldi ég ekki vera óþolinmóður?

21:5b.JOB.021.005 Lítið til mín og undrist og leggið hönd á munn!

21:6b.JOB.021.006 Já, þegar ég hugsa um það, skelfist ég, og hryllingur fer um mig allan.

21:7b.JOB.021.007 Hvers vegna lifa hinir óguðlegu, verða gamlir, já, magnast að krafti?

21:8b.JOB.021.008 Niðjar þeirra dafna fyrir augliti þeirra hjá þeim og afsprengi þeirra fyrir augum þeirra.

21:9b.JOB.021.009 Hús þeirra eru óhult og óttalaus, og hirtingarvöndur Guðs kemur ekki niður á þeim.

21:10b.JOB.021.010 Boli þeirra kelfir og kemur að gagni, kýr þeirra ber og lætur ekki kálfi.

21:11b.JOB.021.011 Þeir hleypa út börnum sínum eins og lambahjörð, og smásveinar þeirra hoppa og leika sér.

21:12b.JOB.021.012 Þeir syngja hátt undir með bumbum og gígjum og gleðjast við hljóm hjarðpípunnar.

21:13b.JOB.021.013 Þeir eyða dögum sínum í velgengni og fara til Heljar í friði,

21:14b.JOB.021.014 og þó sögðu þeir við Guð: "Vík frá oss - að þekkja þína vegu girnumst vér eigi.

21:15b.JOB.021.015 Hvað er hinn Almáttki, að vér skyldum dýrka hann, og hvað skyldi það stoða oss að leita hans í bæn?"

21:16b.JOB.021.016 Sjá, gæfa þeirra er ekki á þeirra valdi, - ráðlag óguðlegra er fjarri mér.

21:17b.JOB.021.017 Hversu oft slokknar þá á lampa hinna óguðlegu, og hversu oft kemur ógæfa þeirra yfir þá? Hversu oft deilir Guð þeim hlutskiptum í reiði sinni?

21:18b.JOB.021.018 Hversu oft verða þeir sem strá fyrir vindi og sem sáðir, er stormurinn feykir burt?

21:19b.JOB.021.019 "Guð geymir börnum hans óhamingju hans." Endurgjaldi hann honum sjálfum, svo að hann fái að kenna á því!

21:20b.JOB.021.020 Sjái augu sjálfs hans glötun hans, og drekki hann sjálfur af reiði hins Almáttka!

21:21b.JOB.021.021 Því að hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann, þegar tala mánaða hans er fullnuð?

21:22b.JOB.021.022 Ætla menn að kenna Guði visku eða dæma hinn hæsta?

21:23b.JOB.021.023 Einn deyr í mestu velgengni, fullkomlega áhyggjulaus og ánægður,

21:24b.JOB.021.024 trog hans eru full af mjólk, og mergurinn í beinum hans er safamikill.

21:25b.JOB.021.025 Og annar deyr með beiskju í huga og hefir aldrei notið hamingjunnar.

21:26b.JOB.021.026 Þeir hvíla báðir í duftinu, og maðkarnir hylja þá.

21:27b.JOB.021.027 Sjá, ég þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi.

21:28b.JOB.021.028 Þegar þér segið: "Hvar er hús harðstjórans og hvar er tjaldið, sem hinir óguðlegu bjuggu í?"

21:29b.JOB.021.029 hafið þér þá ekki spurt vegfarendur, - og sönnunum þeirra munuð þér ekki hafna -

21:30b.JOB.021.030 að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan.

21:31b.JOB.021.031 Hver setur honum breytni hans fyrir sjónir? Og þegar hann gjörir eitthvað, hver endurgeldur honum?

21:32b.JOB.021.032 Og til grafar er hann borinn og vakað er yfir legstaðnum.

21:33b.JOB.021.033 Moldarhnausar dalsins liggja mjúklega ofan á honum, og eftir honum flykkjast allir menn, eins og óteljandi eru á undan honum farnir.

21:34b.JOB.021.034 Og hvernig megið þér þá hugga mig með hégóma, og andsvör yðar - sviksemin ein er eftir!

22

22:1b.JOB.022.001 Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:

22:2b.JOB.022.002 Vinnur maðurinn Guði gagn? Nei, sjálfum sér vinnur vitur maður gagn.

22:3b.JOB.022.003 Er það ábati fyrir hinn Almáttka, að þú ert réttlátur, eða ávinningur, að þú lifir grandvöru lífi?

22:4b.JOB.022.004 Er það vegna guðsótta þíns, að hann refsar þér, að hann dregur þig fyrir dóm?

22:5b.JOB.022.005 Er ekki vonska þín mikil og misgjörðir þínar óþrjótandi?

22:6b.JOB.022.006 Því að þú tókst veð af bræðrum þínum að ástæðulausu og færðir fáklædda menn úr flíkum þeirra.

22:7b.JOB.022.007 Þú gafst ekki hinum örmagna vatn að drekka, og hinum hungraða synjaðir þú brauðs.

22:8b.JOB.022.008 En hinn voldugi átti landið, og virðingarmaðurinn bjó í því.

22:9b.JOB.022.009 Ekkjur lést þú fara burt tómhentar, og armleggir munaðarleysingjanna voru brotnir sundur.

22:10b.JOB.022.010 Fyrir því eru snörur allt í kringum þig, og fyrir því skelfir ótti þig skyndilega!

22:11b.JOB.022.011 Eða sér þú ekki myrkrið og vatnaflauminn, sem hylur þig?

22:12b.JOB.022.012 Er ekki Guð himinhár? og lít þú á hvirfil stjarnanna, hve hátt þær gnæfa!

22:13b.JOB.022.013 Og þú segir: "Hvað veit Guð? Getur hann dæmt gegnum skýsortann?

22:14b.JOB.022.014 Skýin skyggja á hann, svo að hann sér ekki, og hann gengur á himinhvelfingunni."

22:15b.JOB.022.015 Ætlar þú að halda fortíðar leið, þá er ranglátir menn hafa farið?

22:16b.JOB.022.016 Þeir er kippt var burt fyrir tímann og grundvöllur þeirra skolaðist burt sem straumur,

22:17b.JOB.022.017 þeir er sögðu við Guð: "Vík frá oss! og hvað gæti hinn Almáttki gjört fyrir oss?"

22:18b.JOB.022.018 og það þó hann fyllti hús þeirra blessun. - Hugarfar óguðlegra sé fjarri mér!

22:19b.JOB.022.019 Hinir réttlátu sjá það og gleðjast, og hinn saklausi gjörir gys að þeim:

22:20b.JOB.022.020 "Vissulega er andstæðingur vor að engu orðinn, og eldurinn hefir eytt leifum þeirra."

22:21b.JOB.022.021 Vingast þú við Guð, þá muntu vera í friði, við það mun blessun yfir þig koma.

22:22b.JOB.022.022 Tak á móti kenning af munni hans, og fest þér orð hans í hjarta.

22:23b.JOB.022.023 Ef þú snýr þér til hins Almáttka, auðmýkir þig, ef þú rekur ranglætið langt burt frá tjaldi þínu -

22:24b.JOB.022.024 já, varpaðu gullinu í duftið og skíragullinu ofan í lækjamölina! -

22:25b.JOB.022.025 þá skal hinn Almáttki vera gull þitt, vera þér hið skærasta silfur.

22:26b.JOB.022.026 Já, þá munt þú hafa yndi af hinum Almáttka og lyfta augliti þínu til Guðs.

22:27b.JOB.022.027 Biðjir þú til hans, bænheyrir hann þig, og heit þín munt þú greiða.

22:28b.JOB.022.028 Og áformir þú eitthvað, mun þér heppnast það, og birta skína yfir vegu þína.

22:29b.JOB.022.029 Þegar þeir liggja niður á við, þá kallar þú "Upp á við!" og hinum auðmjúka hjálpar hann.

22:30b.JOB.022.030 Hann bjargar jafnvel þeim, sem ekki er saklaus, já, hann bjargast fyrir hreinleik handa þinna.

23

23:1b.JOB.023.001 Þá svaraði Job og sagði:

23:2b.JOB.023.002 Enn sem fyrr munu kveinstafir mínir verða taldir uppreisn, hönd Guðs hvílir þungt á andvörpum mínum.

23:3b.JOB.023.003 Ég vildi að ég vissi, hvernig ég ætti að finna hann, hvernig ég gæti komist fram fyrir dómstól hans!

23:4b.JOB.023.004 Þá mundi ég útskýra málið fyrir honum og fylla munn minn sönnunum.

23:5b.JOB.023.005 Ég mundi fá að vita, hverju hann svaraði mér, og heyra hvað hann segði við mig.

23:6b.JOB.023.006 Mundi hann deila við mig í mikilleik máttar síns? Nei, hann mundi veita mér óskipta athygli.

23:7b.JOB.023.007 Þá mundi hreinskilinn maður þreyta málsókn við hann, og ég mundi að eilífu losna við dómara minn.

23:8b.JOB.023.008 En fari ég í austur, þá er hann þar ekki, og í vestur, þar verð ég hans eigi var.

23:9b.JOB.023.009 Þótt hann hafist að í norðri, þá sé ég hann ekki, og sveigi hann á leið til suðurs, fæ ég ekki litið hann.

23:10b.JOB.023.010 En hann veit, hvernig breytni mín hefir verið, ef hann prófaði mig, mundi ég reynast sem gull.

23:11b.JOB.023.011 Fótur minn hefir þrætt spor hans, ég hefi haldið veg hans og eigi hneigt af leið.

23:12b.JOB.023.012 Frá skipun vara hans hefi ég ekki vikið, hefi varðveitt í brjósti mér orð munns hans.

23:13b.JOB.023.013 En hann er samur við sig - hver aftrar honum? Ef hann girnist eitthvað, gjörir hann það.

23:14b.JOB.023.014 Já, hann framkvæmir það, er hann hefir ætlað mér, og mörgu slíku býr hann yfir.

23:15b.JOB.023.015 Þess vegna skelfist ég auglit hans. Hugleiði ég það, hræðist ég hann.

23:16b.JOB.023.016 Já, Guð hefir gjört mig hugdeigan, og hinn Almáttki skotið mér skelk í bringu.

23:17b.JOB.023.017 Því að það er ekki vegna ógæfunnar, að ég stend örþrota, né vegna sjálfs mín, þótt niðdimman hylji mig.

24

24:1b.JOB.024.001 Hvers vegna eru ekki hegningartímar geymdir af hinum Almáttka,

24:2b.JOB.024.002 og hví sjá þeir ekki daga hans, sem á hann trúa? Menn færa landamerki úr stað, ræna hjörðum og halda þeim á beit.

24:3b.JOB.024.003 Asna munaðarleysingjanna reka menn burt og taka uxa ekkjunnar að veði.

24:4b.JOB.024.004 Þeir hrinda hinum fátæku út af veginum, hinir bágstöddu í landinu verða allir að fela sig.

24:5b.JOB.024.005 Já, sem skógarasnar á öræfum ganga þeir út til starfa sinna, leitandi að fæðu, eyðimörkin veitir þeim brauð handa börnunum.

24:6b.JOB.024.006 Á akrinum uppskera þeir fóður sitt og fara í eftirleit í víngarði hins óguðlega.

24:7b.JOB.024.007 Naktir liggja þeir um nætur, klæðlausir, og hafa enga ábreiðu í kuldanum.

24:8b.JOB.024.008 Þeir eru gagndrepa af fjallaskúrunum, og hælislausir faðma þeir klettinn.

24:9b.JOB.024.009 Menn slíta föðurleysingjana af brjóstinu og taka veð af hinum bágstöddu.

24:10b.JOB.024.010 Naktir ganga þeir, klæðlausir, og hungraðir bera þeir kornbundin.

24:11b.JOB.024.011 Í olífugörðum annarra pressa þeir olíu, troða vínlagarþrór og kveljast af þorsta.

24:12b.JOB.024.012 Úr borgunum heyrast stunur deyjandi manna, sálir hinna drepnu hrópa á hefnd, en Guð gefur ekki gaum að óhæfunni.

24:13b.JOB.024.013 Slíkir menn eru ljósfjendur orðnir, þeir þekkja ekki vegu hans og halda sig ekki á stigum hans.

24:14b.JOB.024.014 Með morgunsárinu fer morðinginn á fætur og drepur hinn volaða og snauða, og á nóttunni læðist þjófurinn.

24:15b.JOB.024.015 Og auga hórkarlsins bíður eftir rökkrinu, og hann segir: "Ekkert auga sér mig," og dregur skýlu fyrir andlitið.

24:16b.JOB.024.016 Í myrkrinu brjótast þeir inn í hús, á daginn loka þeir sig inni, þeir þekkja ekki ljósið.

24:17b.JOB.024.017 Því að öllum er þeim niðamyrkrið morgunn, því að þeir eru nákunnugir skelfingum niðamyrkursins.

24:18b.JOB.024.018 Fljótt berst hann burt með straumnum, bölvaður verður erfðahluti hans í landinu, hann snýr eigi framar á leið til víngarðanna.

24:19b.JOB.024.019 Þurrkur og hiti hrífa snjóvatnið burt, Hel þann, er svo hefir syndgað.

24:20b.JOB.024.020 Móðurskautið gleymir honum, ormarnir gæða sér á honum. Hans er eigi framar minnst, og ranglætið verður brotið sundur eins og tré,

24:21b.JOB.024.021 hann sem rændi óbyrjuna, er ekki fæddi, og enga velgjörð sýndi ekkjunni.

24:22b.JOB.024.022 En Guð heldur samt hinum volduga við með mætti sínum, slíkur maður rís aftur upp, þótt hann væri tekinn að örvænta um lífið.

24:23b.JOB.024.023 Guð veitir honum að lifa óhultur, og hann er studdur, og augu hans vaka yfir vegum hans.

24:24b.JOB.024.024 Hátt standa þeir, en eftir stundarkorn eru þeir horfnir. Þeir hníga, þeir eru hrifnir burt eins og allir aðrir og sviðnir af eins og höfuð kornaxins.

24:25b.JOB.024.025 Og ef það er eigi svo, - hver vill þá sanna, að ég sé lygari, og gjöra ræðu mína að engu?

25

25:1b.JOB.025.001 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

25:2b.JOB.025.002 Hans er drottinvald og ótti, hans sem lætur frið ríkja í hæðum sínum.

25:3b.JOB.025.003 Verður tölu komið á hersveitir hans, og yfir hverjum rennur ekki upp ljós hans?

25:4b.JOB.025.004 Hvernig ætti maðurinn þá að vera réttlátur hjá Guði, og hvernig ætti sá að vera hreinn, sem af konu er fæddur?

25:5b.JOB.025.005 Sjá, jafnvel tunglið, það er ekki bjart, og stjörnurnar eru ekki hreinar í augum hans,

25:6b.JOB.025.006 hvað þá maðurinn, maðkurinn, og mannssonurinn, ormurinn!

26

26:1b.JOB.026.001 Þá svaraði Job og sagði:

26:2b.JOB.026.002 En hvað þú hefir hjálpað hinum þróttlausa, stutt hinn máttvana armlegg!

26:3b.JOB.026.003 En hvað þú hefir ráðið hinum óvitra og kunngjört mikla speki!

26:4b.JOB.026.004 Fyrir hverjum hefir þú flutt ræðu þína, og hvers andi var það, sem gekk fram úr þér?

26:5b.JOB.026.005 Andar hinna framliðnu í undirdjúpunum skelfast ásamt vötnunum og íbúum þeirra.

26:6b.JOB.026.006 Naktir liggja undirheimar fyrir Guði og undirdjúpin skýlulaus.

26:7b.JOB.026.007 Hann þenur norðrið út yfir auðninni og lætur jörðina svífa í tómum geimnum,

26:8b.JOB.026.008 hann bindur vatnið saman í skýjum sínum, og þó brestur skýflókinn ekki undir því,

26:9b.JOB.026.009 hann byrgir fyrir ásjónu hásætis síns með því að breiða ský sitt yfir hana.

26:10b.JOB.026.010 Marklínu hefir hann dregið hringinn í kring á haffletinum, þar sem mætast ljós og myrkur.

26:11b.JOB.026.011 Stoðir himinsins nötra og hræðast ógnun hans.

26:12b.JOB.026.012 Með mætti sínum æsir hann hafið, og með hyggindum sínum sundurmolar hann hafdrekann.

26:13b.JOB.026.013 Fyrir andgusti hans verður himinninn heiður, hönd hans leggur í gegn hinn flughraða dreka.

26:14b.JOB.026.014 Sjá, þetta eru aðeins ystu takmörk vega hans, og hversu lágt hvísl er það, sem vér heyrum! En þrumu máttarverka hans - hver skilur hana?

27

27:1b.JOB.027.001 Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:

27:2b.JOB.027.002 Svo sannarlega sem Guð lifir, sá er svipt hefir mig rétti mínum, og hinn Almáttki, er hryggt hefir sálu mína:

27:3b.JOB.027.003 meðan lífsönd er í mér og andi Guðs í nösum mínum,

27:4b.JOB.027.004 skulu varir mínar ekki tala ranglæti og tunga mín ekki mæla svik.

27:5b.JOB.027.005 Fjarri sé mér að játa, að þér hafið rétt að mæla. Þar til er ég gef upp andann, læt ég ekki taka frá mér sakleysi mitt.

27:6b.JOB.027.006 Ég held fast í réttlæti mitt og sleppi því ekki, hjarta mitt átelur mig ekki fyrir neinn daga minna.

27:7b.JOB.027.007 Fyrir óvini mínum fari eins og hinum óguðlega og fyrir mótstöðumanni mínum eins og hinum rangláta.

27:8b.JOB.027.008 Því að hvaða von hefir guðlaus maður, þegar skorið er á þráðinn, þá er Guð hrífur burt líf hans?

27:9b.JOB.027.009 Ætli Guð heyri óp hans, þá er neyð kemur yfir hann?

27:10b.JOB.027.010 Eða getur hann haft yndi af hinum Almáttka, hrópað til Guðs, hvenær sem vera skal?

27:11b.JOB.027.011 Ég vil fræða yður um hönd Guðs, eigi leyna því, er hinn Almáttki hefir í hyggju.

27:12b.JOB.027.012 Sjá, þér hafið allir séð það sjálfir, hví farið þér þá með slíka heimsku?

27:13b.JOB.027.013 Þetta er hlutskipti óguðlegs manns hjá Guði, arfleifð ofbeldismanns, sú er hann fær frá hinum Almáttka:

27:14b.JOB.027.014 Eignist hann mörg börn, þá er það handa sverðinu, og afkvæmi hans mettast eigi af brauði.

27:15b.JOB.027.015 Þeir af fólki hans er af komast, verða jarðaðir af drepsóttinni, og ekkjur þeirra halda engan harmagrát.

27:16b.JOB.027.016 Þegar hann hrúgar saman silfri eins og sandi og hleður saman klæðum sem leir,

27:17b.JOB.027.017 þá hleður hann þeim saman, en hinn réttláti klæðist þeim, og silfrinu deilir hinn saklausi.

27:18b.JOB.027.018 Hann hefir byggt hús sitt eins og köngulló og svo sem skála, er varðmaður reisir sér.

27:19b.JOB.027.019 Ríkur leggst hann til hvíldar - hann gjörir það eigi oftar, hann lýkur upp augunum, og þá er allt farið.

27:20b.JOB.027.020 Skelfingar ná honum eins og vatnaflaumur, um nótt hrífur stormurinn hann burt.

27:21b.JOB.027.021 Austanvindurinn hefur hann á loft, svo að hann þýtur áfram, og feykir honum burt af stað hans.

27:22b.JOB.027.022 Vægðarlaust sendir hann skeyti sín á hann, fyrir hendi hans flýr hann í skyndi -

27:23b.JOB.027.023 þá skella menn saman lófum yfir honum og blístra hann burt frá bústað hans.

28

28:1b.JOB.028.001 Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað.

28:2b.JOB.028.002 Járn er tekið úr jörðu, og steinn er bræddur að eiri.

28:3b.JOB.028.003 Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til ystu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri.

28:4b.JOB.028.004 Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdur mannafótum, fjarlægur mönnum hangir hann, svífur hann.

28:5b.JOB.028.005 Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi.

28:6b.JOB.028.006 Safírinn finnst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá er grefur.

28:7b.JOB.028.007 Örninn þekkir eigi veginn þangað, og valsaugað sér hann ekki,

28:8b.JOB.028.008 hin drembnu rándýr ganga hann eigi, ekkert ljón fer hann.

28:9b.JOB.028.009 Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum.

28:10b.JOB.028.010 Hann heggur göng í björgin, og auga hans sér alls konar dýrindi.

28:11b.JOB.028.011 Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.

28:12b.JOB.028.012 En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á viskan heima?

28:13b.JOB.028.013 Enginn maður þekkir veginn til hennar, og hana er ekki að finna á landi lifenda.

28:14b.JOB.028.014 Undirdjúpið segir: "Í mér er hún ekki!" og hafið segir: "Ekki er hún hjá mér!"

28:15b.JOB.028.015 Hún fæst ekki fyrir skíragull, og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar.

28:16b.JOB.028.016 Eigi verður hún Ófírgulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum.

28:17b.JOB.028.017 Gull og gler kemst ekki til jafns við hana, og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker af skíragulli.

28:18b.JOB.028.018 Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur.

28:19b.JOB.028.019 Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli.

28:20b.JOB.028.020 Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á viskan heima?

28:21b.JOB.028.021 Hún er falin augum allra þeirra er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin.

28:22b.JOB.028.022 Undirdjúpin og dauðinn segja: "Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið."

28:23b.JOB.028.023 Guð veit veginn til hennar, og hann þekkir heimkynni hennar.

28:24b.JOB.028.024 Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur allt, sem undir himninum er.

28:25b.JOB.028.025 Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins,

28:26b.JOB.028.026 þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum,

28:27b.JOB.028.027 þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig.

28:28b.JOB.028.028 Og við manninn sagði hann: "Sjá, að óttast Drottin - það er speki, og að forðast illt - það er viska."

29

29:1b.JOB.029.001 Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:

29:2b.JOB.029.002 Ó að mér liði eins og forðum daga, eins og þá er Guð varðveitti mig,

29:3b.JOB.029.003 þá er lampi hans skein yfir höfði mér, og ég gekk við ljós hans í myrkrinu,

29:4b.JOB.029.004 eins og þá er ég var á sumri ævi minnar, þá er vinátta Guðs var yfir tjaldi mínu,

29:5b.JOB.029.005 þá er hinn Almáttki var enn með mér og börn mín hringinn í kringum mig,

29:6b.JOB.029.006 þá er ég óð í rjóma, og olífuolían rann í lækjum úr klettinum hjá mér,

29:7b.JOB.029.007 þá er ég gekk út í borgarhliðið, upp í borgina, bjó mér sæti á torginu.

29:8b.JOB.029.008 Þegar sveinarnir sáu mig, földu þeir sig, og öldungarnir risu úr sæti og stóðu.

29:9b.JOB.029.009 Höfðingjarnir hættu að tala og lögðu hönd á munn sér.

29:10b.JOB.029.010 Rödd tignarmannanna þagnaði, og tunga þeirra loddi við góminn.

29:11b.JOB.029.011 Því að ef eyra heyrði, taldi það mig sælan, og ef auga sá, bar það mér vitni.

29:12b.JOB.029.012 Því að ég bjargaði bágstöddum, sem hrópuðu á hjálp, og munaðarleysingjum, sem enga aðstoð áttu.

29:13b.JOB.029.013 Blessunarósk aumingjans kom yfir mig, og hjarta ekkjunnar fyllti ég fögnuði.

29:14b.JOB.029.014 Ég íklæddist réttlætinu, og það íklæddist mér, ráðvendni mín var mér sem skikkja og vefjarhöttur.

29:15b.JOB.029.015 Ég var auga hins blinda og fótur hins halta.

29:16b.JOB.029.016 Ég var faðir hinna snauðu, og málefni þess, sem ég eigi þekkti, rannsakaði ég.

29:17b.JOB.029.017 Ég braut jaxlana í hinum rangláta og reif bráðina úr tönnum hans.

29:18b.JOB.029.018 Þá hugsaði ég: "Í hreiðri mínu mun ég gefa upp andann og lifa langa ævi, eins og Fönix-fuglinn.

29:19b.JOB.029.019 Rót mín er opin fyrir vatninu, og döggin hefir náttstað á greinum mínum.

29:20b.JOB.029.020 Heiður minn er æ nýr hjá mér, og bogi minn yngist upp í hendi minni."

29:21b.JOB.029.021 Þeir hlustuðu á mig og biðu og hlýddu þegjandi á tillögu mína.

29:22b.JOB.029.022 Þá er ég hafði talað, tóku þeir eigi aftur til máls, og ræða mín draup niður á þá.

29:23b.JOB.029.023 Þeir biðu mín eins og regns, og opnuðu munn sinn, eins og von væri á vorskúr.

29:24b.JOB.029.024 Ég brosti til þeirra, þegar þeim féllst hugur, og ljós auglitis míns gjörðu þeir aldrei dapurt.

29:25b.JOB.029.025 Fús lagði ég leið til þeirra og sat þar efstur, sat þar sem konungur umkringdur af hersveit sinni, eins og huggari harmþrunginna.

3

3:1b.JOB.003.001 Loks lauk Job upp munni sínum og bölvaði fæðingardegi sínum.

3:2b.JOB.003.002 Hann tók til máls og sagði:

3:3b.JOB.003.003 Farist sá dagur, sem ég fæddist á, og nóttin, sem sagði: Sveinbarn er getið!

3:4b.JOB.003.004 Sá dagur verði að myrkri, Guð á hæðum spyrji ekki eftir honum, engin dagsbirta ljómi yfir honum.

3:5b.JOB.003.005 Myrkur og niðdimma heimti hann aftur, skýflókar leggist um hann, dagmyrkvar skelfi hann.

3:6b.JOB.003.006 Sú nótt - myrkrið hremmi hana, hún gleðji sig eigi meðal ársins daga, hún komi eigi í tölu mánaðanna.

3:7b.JOB.003.007 Sjá, sú nótt verði ófrjó, ekkert fagnaðaróp heyrist á henni.

3:8b.JOB.003.008 Þeir sem bölva deginum, formæli henni, - þeir sem leiknir eru í að egna Levjatan.

3:9b.JOB.003.009 Myrkvist stjörnur aftureldingar hennar, vænti hún ljóss, en það komi ekki, og brágeisla morgunroðans fái hún aldrei litið,

3:10b.JOB.003.010 af því að hún lokaði eigi fyrir mér dyrum móðurlífsins og byrgði ei ógæfuna fyrir augum mínum.

3:11b.JOB.003.011 Hví dó ég ekki í móðurkviði, - andaðist jafnskjótt og ég var kominn af móðurlífi?

3:12b.JOB.003.012 Hvers vegna tóku kné á móti mér og hví voru brjóst til handa mér að sjúga?

3:13b.JOB.003.013 Því þá lægi ég nú og hvíldist, væri sofnaður og hefði frið

3:14b.JOB.003.014 hjá konungum og ráðherrum jarðarinnar, þeim er reistu sér hallir úr rústum,

3:15b.JOB.003.015 eða hjá höfðingjum, sem áttu gull, þeim er fylltu hús sín silfri.

3:16b.JOB.003.016 Eða ég væri ekki til eins og falinn ótímaburður, eins og börn, sem aldrei hafa séð ljósið.

3:17b.JOB.003.017 Í gröfinni hætta hinir óguðlegu hávaðanum, og þar hvílast hinir örmagna.

3:18b.JOB.003.018 Bandingjarnir hafa þar allir ró, heyra þar eigi köll verkstjórans.

3:19b.JOB.003.019 Smár og stór eru þar jafnir, og þrællinn er þar laus við húsbónda sinn.

3:20b.JOB.003.020 Hví gefur Guð ljós hinum þjáðu og líf hinum sorgbitnu?

3:21b.JOB.003.021 þeim sem þrá dauðann, en hann kemur ekki, sem grafa eftir honum ákafara en eftir fólgnum fjársjóðum,

3:22b.JOB.003.022 þeim sem mundu gleðjast svo, að þeir réðu sér ekki fyrir kæti, fagna, ef þeir fyndu gröfina;

3:23b.JOB.003.023 - þeim manni, sem enga götu sér og Guð hefir girt inni?

3:24b.JOB.003.024 Því að andvörp eru orðin mitt daglegt brauð, og kvein mitt úthellist sem vatn.

3:25b.JOB.003.025 Því að óttaðist ég eitthvað, þá hitti það mig, og það sem ég hræddist, kom yfir mig.

3:26b.JOB.003.026 Ég mátti eigi næðis njóta, eigi friðar, eigi hvíldar, þá kom ný mæða.

30

30:1b.JOB.030.001 En nú hlæja þeir að mér, sem yngri eru en ég, mundi ég þó ekki hafa virt feður þeirra þess að setja þá hjá fjárhundum mínum.

30:2b.JOB.030.002 Hvað hefði og kraftur handa þeirra stoðað mig, þar sem þeir aldrei verða fullþroska?

30:3b.JOB.030.003 Þeir eru örmagna af skorti og hungri, naga þurrt landið, sem í gær var auðn og eyðimörk.

30:4b.JOB.030.004 Þeir reyta hrímblöðku hjá runnunum, og gýfilrætur er fæða þeirra.

30:5b.JOB.030.005 Þeir eru flæmdir úr félagi manna, menn æpa að þeim eins og að þjóf,

30:6b.JOB.030.006 svo að þeir verða að hafast við í hræðilegum gjám, í jarðholum og berghellum.

30:7b.JOB.030.007 Milli runnanna rymja þeir, og undir netlunum safnast þeir saman,

30:8b.JOB.030.008 guðlaust og ærulaust kyn, útreknir úr landinu.

30:9b.JOB.030.009 Og nú er ég orðinn þeim að háðkvæði og orðinn umtalsefni þeirra.

30:10b.JOB.030.010 Þeir hafa andstyggð á mér, koma ekki nærri mér og hlífast jafnvel ekki við að hrækja framan í mig.

30:11b.JOB.030.011 Þar sem Guð hefir leyst streng sinn og beygt mig, þá sleppa þeir og beislinu fram af sér gagnvart mér.

30:12b.JOB.030.012 Mér til hægri handar vex hyski þeirra upp, fótum mínum hrinda þeir frá sér og leggja glötunarbrautir sínar gegn mér.

30:13b.JOB.030.013 Þeir hafa rifið upp stig minn, að falli mínu styðja þeir, sem engan hjálparmann eiga.

30:14b.JOB.030.014 Þeir koma sem inn um vítt múrskarð, velta sér áfram innan um rústir.

30:15b.JOB.030.015 Skelfingar hafa snúist móti mér, tign mín er ofsótt eins og af stormi, og gæfa mín er horfin eins og ský.

30:16b.JOB.030.016 Og nú rennur sála mín sundur í tárum, eymdardagar halda mér föstum.

30:17b.JOB.030.017 Nóttin nístir bein mín, svo að þau losna frá mér, og hinar nagandi kvalir mínar hvílast ekki.

30:18b.JOB.030.018 Fyrir mikilleik máttar hans er klæðnaður minn aflagaður, hann lykur fast um mig, eins og hálsmál kyrtils míns.

30:19b.JOB.030.019 Guð hefir kastað mér ofan í saurinn, svo að ég er orðinn eins og mold og aska.

30:20b.JOB.030.020 Ég hrópa til þín, en þú svarar ekki, ég stend þarna, en þú starir á mig.

30:21b.JOB.030.021 Þú ert orðinn grimmur við mig, með krafti handar þinnar ofsækir þú mig.

30:22b.JOB.030.022 Þú lyftir mér upp á vindinn, lætur mig þeytast áfram, og þú lætur mig farast í stormgný.

30:23b.JOB.030.023 Því að ég veit, að þú vilt leiða mig til Heljar, í samkomustað allra þeirra er lifa.

30:24b.JOB.030.024 En - rétta menn ekki út höndina, þegar allt hrynur? eða hrópa menn ekki á hjálp, þegar þeir eru að farast?

30:25b.JOB.030.025 Eða grét ég ekki yfir þeim, sem átti illa daga, og hryggðist ekki sál mín vegna fátæklingsins?

30:26b.JOB.030.026 Já, ég bjóst við góðu, en þá kom illt, vænti ljóss, en þá kom myrkur.

30:27b.JOB.030.027 Það sýður í innýflum mínum án afláts, eymdardagar eru yfir mig komnir.

30:28b.JOB.030.028 Svartur geng ég um, þó ekki af sólarhita, ég stend upp, í söfnuðinum hrópa ég á hjálp.

30:29b.JOB.030.029 Ég er orðinn bróðir sjakalanna og félagi strútsfuglanna.

30:30b.JOB.030.030 Hörund mitt er orðið svart og flagnar af mér, og bein mín eru brunnin af hita.

30:31b.JOB.030.031 Og fyrir því varð gígja mín að gráti og hjarðpípa mín að harmakveini.

31

31:1b.JOB.031.001 Ég hafði gjört sáttmála við augu mín; hvernig hefði ég þá átt að líta til yngismeyjar?

31:2b.JOB.031.002 Og hvert væri þá hlutskiptið frá Guði hér að ofan og arfleifðin frá hinum Almáttka af hæðum?

31:3b.JOB.031.003 Er það ekki glötun fyrir glæpamanninn og ógæfa fyrir þá, er illt fremja?

31:4b.JOB.031.004 Sér hann ekki vegu mína, og telur hann ekki öll mín spor?

31:5b.JOB.031.005 Hafi ég gengið með lyginni og fótur minn hraðað sér til svika -

31:6b.JOB.031.006 vegi Guð mig á rétta vog, til þess að hann viðurkenni sakleysi mitt! -

31:7b.JOB.031.007 hafi spor mín vikið af leið, hjarta mitt farið eftir fýsn augna minna og flekkur loðað við hendur mínar,

31:8b.JOB.031.008 þá eti annar það, sem ég sái, og frjóangar mínir verði rifnir upp með rótum.

31:9b.JOB.031.009 Hafi hjarta mitt látið ginnast vegna einhverrar konu, og hafi ég staðið á hleri við dyr náunga míns,

31:10b.JOB.031.010 þá mali kona mín fyrir annan, og aðrir menn leggist með henni.

31:11b.JOB.031.011 Því að slíkt væri óhæfa og glæpur, sem dómurum ber að hegna fyrir,

31:12b.JOB.031.012 því að það væri eldur, sem eyðir ofan í undirdjúpin og hlyti að uppræta allar eigur mínar.

31:13b.JOB.031.013 Hafi ég lítilsvirt rétt þjóns míns eða þernu minnar, þá er þau áttu í deilu við mig,

31:14b.JOB.031.014 hvað ætti ég þá að gjöra, þegar Guð risi upp, og hverju svara honum, þegar hann rannsakaði?

31:15b.JOB.031.015 Hefir eigi sá er mig skóp, skapað þjón minn í móðurlífi, og hefir ekki hinn sami myndað okkur í móðurkviði?

31:16b.JOB.031.016 Hafi ég synjað fátækum bónar og látið augu ekkjunnar daprast,

31:17b.JOB.031.017 hafi ég etið bitann minn einn; og munaðarleysinginn ekkert fengið af honum -

31:18b.JOB.031.018 nei, frá barnæsku minni hefir hann vaxið upp hjá mér sem hjá föður og frá móðurlífi hefi ég leitt hann -

31:19b.JOB.031.019 hafi ég séð aumingja klæðlausan og snauðan mann ábreiðulausan,

31:20b.JOB.031.020 hafi lendar hans ekki blessað mig og hafi honum ekki hitnað við ullina af sauðum mínum;

31:21b.JOB.031.021 hafi ég reitt hnefann að munaðarleysingjanum, af því að ég sá mér liðsvon í borgarhliðinu,

31:22b.JOB.031.022 þá detti axlir mínar frá herðunum og handleggur minn brotni úr axlarliðnum.

31:23b.JOB.031.023 Því að glötunin frá Guði var mér skelfileg, og gegn hátign hans megna ég ekkert.

31:24b.JOB.031.024 Hafi ég gjört gullið að athvarfi mínu og nefnt skíragullið fulltrúa minn,

31:25b.JOB.031.025 hafi ég glaðst yfir því, að auður minn var mikill og að hönd mín aflaði svo ríkulega,

31:26b.JOB.031.026 hafi ég horft á sólina, hversu hún skein, og á tunglið, hversu dýrlega það óð áfram,

31:27b.JOB.031.027 og hafi hjarta mitt þá látið tælast í leynum, svo að ég bæri hönd að munni og kyssti hana,

31:28b.JOB.031.028 það hefði líka verið hegningarverð synd, því að þá hefði ég afneitað Guði á hæðum.

31:29b.JOB.031.029 Hafi ég glaðst yfir óförum fjandmanns míns og hlakkað yfir því, að ógæfa kom yfir hann -

31:30b.JOB.031.030 nei, aldrei hefi ég leyft munni mínum svo að syndga að ég með formælingum óskaði dauða hans.

31:31b.JOB.031.031 Hafa ekki heimilismenn mínir sagt: "Hvenær hefir nokkur farið ósaddur frá borði hans?"

31:32b.JOB.031.032 ég lét ekki aðkomumann nátta á bersvæði, heldur opnaði ég dyr mínar fyrir ferðamanninum.

31:33b.JOB.031.033 Hafi ég hulið yfirsjónir mínar, eins og menn gjöra, og falið misgjörð mína í brjósti mínu,

31:34b.JOB.031.034 af því að ég hræddist mannfjöldann, og af því að fyrirlitning ættanna fældi mig, svo að ég hafði hægt um mig og fór ekki út fyrir dyr,

31:35b.JOB.031.035 Ó að ég hefði þann, er hlusta vildi á mig! Hér er undirskrift mín - hinn Almáttki svari mér! Sá sem mig ákærir, skrifi sitt ákæruskjal!

31:36b.JOB.031.036 Vissulega skyldi ég bera það á öxlinni, binda það sem höfuðsveig um ennið,

31:37b.JOB.031.037 ég skyldi segja Guði frá hverju spori mínu og ganga sem höfðingi fram fyrir hann!

31:38b.JOB.031.038 hafi akurland mitt hrópað undan mér og öll plógför þess grátið,

31:39b.JOB.031.039 hafi ég etið gróður þess endurgjaldslaust og slökkt líf eiganda þess,

31:40b.JOB.031.040 þá spretti þyrnar upp í stað hveitis og illgresi í stað byggs. Hér enda ræður Jobs.

32

32:1b.JOB.032.001 Og þessir þrír menn hættu að svara Job, því að hann þóttist vera réttlátur.

32:2b.JOB.032.002 Þá upptendraðist reiði Elíhú Barakelssonar Búsíta af Rams kynstofni. Upptendraðist reiði hans gegn Job, af því að hann taldi sig hafa á réttu að standa gagnvart Guði.

32:3b.JOB.032.003 Reiði hans upptendraðist og gegn vinum hans þremur, fyrir það að þeir fundu engin andsvör til þess að sanna Job, að hann hefði á röngu að standa.

32:4b.JOB.032.004 En Elíhú hafði beðið með að mæla til Jobs, því að hinir voru eldri en hann.

32:5b.JOB.032.005 En er Elíhú sá, að mennirnir þrír gátu engu svarað, upptendraðist reiði hans.

32:6b.JOB.032.006 Þá tók Elíhú Barakelsson Búsíti til máls og sagði: Ég er ungur að aldri, en þér eruð öldungar, þess vegna fyrirvarð ég mig og kom mér eigi að því að kunngjöra yður það, sem ég veit.

32:7b.JOB.032.007 Ég hugsaði: Aldurinn tali, og árafjöldinn kunngjöri speki!

32:8b.JOB.032.008 En - það er andinn í manninum og andblástur hins Almáttka, sem gjörir þá vitra.

32:9b.JOB.032.009 Elstu mennirnir eru ekki ávallt vitrastir, og öldungarnir skynja eigi, hvað réttast er.

32:10b.JOB.032.010 Fyrir því segi ég: Hlýð á mig, nú ætla einnig ég að kunngjöra það, sem ég veit.

32:11b.JOB.032.011 Sjá, ég beið eftir ræðum yðar, hlustaði á röksemdir yðar, uns þér fynduð orðin, sem við ættu.

32:12b.JOB.032.012 Og að yður gaf ég gaum, en sjá, enginn sannfærði Job, enginn yðar hrakti orð hans.

32:13b.JOB.032.013 Segið ekki: "Vér höfum hitt fyrir speki, Guð einn fær sigrað hann, en enginn maður!"

32:14b.JOB.032.014 Gegn mér hefir hann ekki sett fram neinar sannanir, og með yðar orðum ætla ég ekki að svara honum.

32:15b.JOB.032.015 Þeir eru skelkaðir, svara eigi framar, þeir standa uppi orðlausir.

32:16b.JOB.032.016 Og ætti ég að bíða, þar sem þeir þegja, þar sem þeir standa og svara eigi framar?

32:17b.JOB.032.017 Ég vil og svara af minni hálfu, ég vil og kunngjöra það, sem ég veit.

32:18b.JOB.032.018 Því að ég er fullur af orðum, andinn í brjósti mínu knýr mig.

32:19b.JOB.032.019 Sjá, brjóst mitt er sem vín, er ekki fær útrás, ætlar að rifna, eins og nýfylltir belgir.

32:20b.JOB.032.020 Ég ætla að tala til þess að létta á mér, ætla að opna varir mínar og svara.

32:21b.JOB.032.021 Ég ætla ekki að draga taum neins, og ég ætla engan að skjalla.

32:22b.JOB.032.022 Því að ég kann ekki að skjalla, ella kynni skapari minn bráðlega að kippa mér burt.

33

33:1b.JOB.033.001 En heyr þú, Job, ræðu mína, og hlýð þú á öll orð mín.

33:2b.JOB.033.002 Sjá, ég opna munn minn, og tunga mín talar í gómi mínum.

33:3b.JOB.033.003 Orð mín eru hjartans hreinskilni, og það sem varir mínar vita, mæla þær í einlægni.

33:4b.JOB.033.004 Andi Guðs hefir skapað mig, og andblástur hins Almáttka gefur mér líf.

33:5b.JOB.033.005 Ef þú getur, þá svara þú mér, bú þig út í móti mér og gakk fram.

33:6b.JOB.033.006 Sjá, ég stend eins og þú gagnvart Guði, ég er og myndaður af leiri.

33:7b.JOB.033.007 Sjá, hræðsla við mig þarf eigi að skelfa þig og þungi minn eigi þrýsta þér niður.

33:8b.JOB.033.008 En þú hefir sagt í eyru mér, og ég heyrði hljóm orðanna:

33:9b.JOB.033.009 "Hreinn er ég, laus við afbrot, saklaus er ég, og hjá mér er engin misgjörð.

33:10b.JOB.033.010 En Guð reynir að finna tilefni til fjandskapar við mig og ætlar að ég sé óvinur hans.

33:11b.JOB.033.011 Hann setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína."

33:12b.JOB.033.012 Sjá, í þessu hefir þú rangt fyrir þér, svara ég þér, því að Guð er meiri en maður.

33:13b.JOB.033.013 Hví hefir þú þráttað við hann, að hann svaraði engu öllum orðum þínum?

33:14b.JOB.033.014 Því að vissulega talar Guð einu sinni, já, tvisvar, en menn gefa því ekki gaum.

33:15b.JOB.033.015 Í draumi, í nætursýn, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina, í blundi á hvílubeði,

33:16b.JOB.033.016 opnar hann eyru mannanna og innsiglar viðvörunina til þeirra

33:17b.JOB.033.017 til þess að fá manninn til þess að láta af gjörðum sínum og forða manninum við drambsemi.

33:18b.JOB.033.018 Hann hlífir sálu hans við gröfinni og lífi hans frá því að farast fyrir skotvopni.

33:19b.JOB.033.019 Maðurinn er og agaður með kvölum á sæng sinni, og stríðið geisar stöðuglega í beinum hans.

33:20b.JOB.033.020 Þá vekur lífshvötin óbeit hjá honum á brauðinu og sál hans á uppáhaldsfæðunni.

33:21b.JOB.033.021 Hold hans eyðist og verður óásjálegt, og beinin, sem sáust ekki áður, verða ber,

33:22b.JOB.033.022 svo að sál hans nálgast gröfina og líf hans engla dauðans.

33:23b.JOB.033.023 En ef þar er hjá honum árnaðarengill, talsmaður, einn af þúsund til þess að boða manninum skyldu hans,

33:24b.JOB.033.024 og miskunni hann sig yfir hann og segi: "Endurleys hann og lát hann eigi stíga niður í gröfina, ég hefi fundið lausnargjaldið,"

33:25b.JOB.033.025 þá svellur hold hans af æskuþrótti, hann snýr aftur til æskudaga sinna.

33:26b.JOB.033.026 Hann biður til Guðs, og Guð miskunnar honum, lætur hann líta auglit sitt með fögnuði og veitir manninum aftur réttlæti hans.

33:27b.JOB.033.027 Hann syngur frammi fyrir mönnum og segir: "Ég hafði syndgað og gjört hið beina bogið, og þó var mér ekki goldið líku líkt.

33:28b.JOB.033.028 Guð hefir leyst sálu mína frá því að fara ofan í gröfina, og líf mitt gleður sig við ljósið."

33:29b.JOB.033.029 Sjá, allt þetta gjörir Guð tvisvar eða þrisvar við manninn

33:30b.JOB.033.030 til þess að hrífa sál hans frá gröfinni, til þess að lífsins ljós megi leika um hann.

33:31b.JOB.033.031 Hlýð á, Job, heyr þú mig, ver þú hljóður og lát mig tala.

33:32b.JOB.033.032 Hafir þú eitthvað að segja, þá svara mér, tala þú, því að gjarnan vildi ég, að þú reyndist réttlátur.

33:33b.JOB.033.033 Ef svo er eigi þá heyr þú mig, ver hljóður, að ég megi kenna þér speki.

34

34:1b.JOB.034.001 Og Elíhú tók aftur til máls og sagði:

34:2b.JOB.034.002 Heyrið, þér vitrir menn, orð mín, og þér fróðir menn, hlustið á mig.

34:3b.JOB.034.003 Því að eyrað prófar orðin, eins og gómurinn smakkar matinn.

34:4b.JOB.034.004 Vér skulum rannsaka, hvað rétt er, komast að því hver með öðrum, hvað gott er.

34:5b.JOB.034.005 Því að Job hefir sagt: "Ég er saklaus, en Guð hefir svipt mig rétti mínum.

34:6b.JOB.034.006 Þótt ég hafi rétt fyrir mér, stend ég sem lygari, banvæn ör hefir hitt mig, þótt ég hafi í engu brotið."

34:7b.JOB.034.007 Hvaða maður er eins og Job, sem drekkur guðlast eins og vatn

34:8b.JOB.034.008 og gefur sig í félagsskap við þá, sem illt fremja, og er í fylgi við óguðlega menn?

34:9b.JOB.034.009 Því að hann hefir sagt: "Maðurinn hefir ekkert gagn af því að vera í vinfengi við Guð."

34:10b.JOB.034.010 Fyrir því, skynsamir menn, heyrið mig! Fjarri fer því, að Guð aðhafist illt og hinn Almáttki fremji ranglæti.

34:11b.JOB.034.011 Nei, hann geldur manninum verk hans og lætur manninum farnast eftir breytni hans.

34:12b.JOB.034.012 Já, vissulega fremur Guð ekki ranglæti, og hinn Almáttki hallar ekki réttinum.

34:13b.JOB.034.013 Hver hefir fengið honum jörðina til varðveislu, og hver hefir grundvallað allan heiminn?

34:14b.JOB.034.014 Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, ef hann drægi til sín anda sinn og andardrátt,

34:15b.JOB.034.015 þá mundi allt hold gefa upp andann og maðurinn aftur verða að dufti.

34:16b.JOB.034.016 Hafir þú vit, þá heyr þú þetta, hlusta þú á hljóm orða minna.

34:17b.JOB.034.017 Getur sá stjórnað, sem hatar réttinn? Eða vilt þú dæma hinn réttláta, volduga?

34:18b.JOB.034.018 þann sem segir við konunginn: "Þú varmenni!" við tignarmanninn: "Þú níðingur!"

34:19b.JOB.034.019 sem ekki dregur taum höfðingjanna og gjörir ekki ríkum hærra undir höfði en fátækum, því að handaverk hans eru þeir allir.

34:20b.JOB.034.020 Skyndilega deyja þeir, og það um miðja nótt, fólkið verður skelkað, og þeir hverfa, og hinn sterki er hrifinn burt, en eigi af manns hendi.

34:21b.JOB.034.021 Því að augu Guðs hvíla yfir vegum hvers manns, og hann sér öll spor hans.

34:22b.JOB.034.022 Ekkert það myrkur er til eða sú niðdimma, að illgjörðamenn geti falið sig þar.

34:23b.JOB.034.023 Því að Guð þarf ekki fyrst að gefa manni gaum, til þess að hann komi fyrir dóm hans.

34:24b.JOB.034.024 Hann brýtur hina voldugu sundur rannsóknarlaust og setur aðra í þeirra stað.

34:25b.JOB.034.025 Þannig þekkir hann verk þeirra og steypir þeim um nótt, og þeir verða marðir sundur.

34:26b.JOB.034.026 Hann hirtir þá sem misgjörðamenn í augsýn allra manna,

34:27b.JOB.034.027 vegna þess að þeir hafa frá honum vikið og vanrækt alla vegu hans

34:28b.JOB.034.028 og látið kvein hins fátæka berast til hans, en hann heyrði kvein hinna voluðu.

34:29b.JOB.034.029 Haldi hann kyrru fyrir, hver vill þá sakfella hann? og byrgi hann auglitið, hver fær þá séð hann? Þó vakir hann yfir þjóð og einstaklingi,

34:30b.JOB.034.030 til þess að guðlausir menn skuli ekki drottna, til þess að þeir séu ekki snörur lýðsins.

34:31b.JOB.034.031 Því að segir nokkur við Guð: "Mér hefir verið hegnt og breyti þó ekki illa.

34:32b.JOB.034.032 Kenn þú mér það, sem ég sé ekki. Hafi ég framið ranglæti, skal ég eigi gjöra það framar"?

34:33b.JOB.034.033 Á hann að endurgjalda eftir geðþótta þínum, af því að þú hafnar? því að þú átt að velja, en ekki ég. Og seg nú fram það, er þú veist!

34:34b.JOB.034.034 Skynsamir menn munu segja við mig, og vitur maður, sem á mig hlýðir:

34:35b.JOB.034.035 "Job talar ekki hyggilega, og orð hans eru ekki skynsamleg."

34:36b.JOB.034.036 Ó að Job mætti reyndur verða æ að nýju, af því að hann svarar eins og illir menn svara.

34:37b.JOB.034.037 Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína, hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði.

35

35:1b.JOB.035.001 Og Elíhú tók enn til máls og sagði:

35:2b.JOB.035.002 Hyggur þú það vera rétt, kallar þú það "réttlæti mitt fyrir Guði,"

35:3b.JOB.035.003 að þú spyr, hvað það stoði þig? "Hvaða gagn hefi ég af því, fremur en ef ég syndgaði?"

35:4b.JOB.035.004 Ég ætla að veita þér andsvör í móti og vinum þínum með þér.

35:5b.JOB.035.005 Horf þú á himininn og sjá, virtu fyrir þér skýin, sem eru hátt yfir þér.

35:6b.JOB.035.006 Syndgir þú, hvað getur þú gjört honum? Og séu afbrot þín mörg, hvaða skaða gjörir þú honum?

35:7b.JOB.035.007 Sért þú ráðvandur, hvað gefur þú honum, eða hvað þiggur hann af þinni hendi?

35:8b.JOB.035.008 Mann, eins og þig, varðar misgjörð þín og mannsins barn ráðvendni þín.

35:9b.JOB.035.009 Menn æpa að sönnu undan hinni margvíslegu kúgan, kveina undan armlegg hinna voldugu,

35:10b.JOB.035.010 en enginn þeirra segir: "Hvar er Guð, skapari minn, sá er leiðir fram lofsöngva um nótt,

35:11b.JOB.035.011 sem fræðir oss meira en dýr merkurinnar og gjörir oss vitrari en fugla loftsins?"

35:12b.JOB.035.012 Þá æpa menn - en hann svarar ekki - undan drambsemi hinna vondu.

35:13b.JOB.035.013 Nei, hégómamál heyrir Guð eigi, og hinn Almáttki gefur því engan gaum,

35:14b.JOB.035.014 hvað þá, er þú segir, að þú sjáir hann ekki. Málið er lagt fram fyrir hann, og þú átt að bíða eftir honum.

35:15b.JOB.035.015 En nú, af því að reiði hans hefir eigi refsað, á hann alls eigi að hafa vitað neitt um yfirsjónina!

35:16b.JOB.035.016 En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni.

36

36:1b.JOB.036.001 Og Elíhú hélt áfram og sagði:

36:2b.JOB.036.002 Haf þolinmæði við mig enn stutta stund, að ég megi fræða þig, því að enn má margt segja Guði til varnar.

36:3b.JOB.036.003 Ég ætla að sækja þekking mína langar leiðir og sanna, að skapari minn hafi á réttu að standa.

36:4b.JOB.036.004 Því að vissulega fer ég eigi með ósannindi, maður með fullkominni þekking stendur frammi fyrir þér.

36:5b.JOB.036.005 Sjá, Guð er voldugur, þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti.

36:6b.JOB.036.006 Hann viðheldur ekki lífi hins óguðlega, en veitir hinum voluðu rétt þeirra.

36:7b.JOB.036.007 Hann hefir ekki augun af hinum réttláta, og hjá konungum í hásætinu lætur hann þá sitja að eilífu, til þess að þeir séu hátt upp hafnir.

36:8b.JOB.036.008 Og þótt þeir verði viðjum reyrðir, veiddir í snörur eymdarinnar,

36:9b.JOB.036.009 og hann setur þeim fyrir sjónir gjörðir þeirra og afbrot þeirra að þeir breyttu drambsamlega,

36:10b.JOB.036.010 og hann opnar eyru þeirra fyrir umvönduninni og segir að þeir skuli snúa sér frá ranglæti, -

36:11b.JOB.036.011 ef þeir þá hlýða og þjóna honum, þá eyða þeir dögum sínum í velgengni og árum sínum í unaði.

36:12b.JOB.036.012 En hlýði þeir ekki, þá farast þeir fyrir skotvopnum, gefa upp andann í vanhyggju sinni.

36:13b.JOB.036.013 Því að vonskufullir í hjarta ala þeir með sér reiði, hrópa eigi á hjálp, þegar hann fjötrar þá.

36:14b.JOB.036.014 Önd þeirra deyr í æskublóma og líf þeirra eins og hórsveina.

36:15b.JOB.036.015 En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni.

36:16b.JOB.036.016 Einnig þig ginnir hann út úr gini neyðarinnar út á víðlendi, þar sem engin þrengsli eru, og það sem kemur á borð þitt, er fullt af feiti.

36:17b.JOB.036.017 En ef þú vinnur til dóms hins óguðlega, þá munu dómur og réttur hremma þig.

36:18b.JOB.036.018 Lát því eigi reiðina ginna þig til spotts, og lát eigi stærð lausnargjaldsins tæla þig.

36:19b.JOB.036.019 Mun hróp þitt koma þér úr nauðunum eða nokkur áreynsla krafta þinna?

36:20b.JOB.036.020 Þráðu eigi nóttina, þá er þjóðir sópast burt af stöðvum sínum.

36:21b.JOB.036.021 Gæt þín, snú þér eigi að ranglæti, því að það kýst þú heldur en að líða.

36:22b.JOB.036.022 Sjá, Guð er háleitur í framkvæmdum máttar síns, hver er slíkur kennari sem hann?

36:23b.JOB.036.023 Hver hefir fyrirskipað honum veg hans, og hver dirfist að segja: "Þú hefir gjört rangt"?

36:24b.JOB.036.024 Minnstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði.

36:25b.JOB.036.025 Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska.

36:26b.JOB.036.026 Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg.

36:27b.JOB.036.027 Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni,

36:28b.JOB.036.028 regnið, sem skýin láta niður streyma, drjúpa yfir marga menn.

36:29b.JOB.036.029 Og hver skilur útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans?

36:30b.JOB.036.030 Sjá, hann breiðir ljós sitt út kringum sig og hylur djúp hafsins.

36:31b.JOB.036.031 Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli.

36:32b.JOB.036.032 Hendur sínar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.

36:33b.JOB.036.033 Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu.

37

37:1b.JOB.037.001 Já, yfir þessu titrar hjarta mitt og hrökkur upp úr stað sínum.

37:2b.JOB.037.002 Heyrið, heyrið drunur raddar hans og hvininn, sem út fer af munni hans.

37:3b.JOB.037.003 Undir öllum himninum lætur hann eldinguna þjóta og leiftur sitt út á jaðra jarðarinnar.

37:4b.JOB.037.004 Á eftir því kemur öskrandi skrugga, hann þrumar með sinni tignarlegu raust og heldur eldingunum ekki aftur, þá er raust hans lætur til sín heyra.

37:5b.JOB.037.005 Guð þrumar undursamlega með raust sinni, hann sem gjörir mikla hluti, er vér eigi skiljum.

37:6b.JOB.037.006 Því að hann segir við snjóinn: "Fall þú á jörðina," og eins við hellirigninguna og hennar dynjandi helliskúrir.

37:7b.JOB.037.007 Hann innsiglar hönd sérhvers manns, til þess að allir menn viðurkenni verk hans.

37:8b.JOB.037.008 Þá fara villidýrin í fylgsni sín og hvílast í bælum sínum.

37:9b.JOB.037.009 Stormurinn kemur úr forðabúrinu og kuldinn af norðanvindunum.

37:10b.JOB.037.010 Fyrir andgust Guðs verður ísinn til, og víð vötnin eru lögð í læðing.

37:11b.JOB.037.011 Hann hleður skýin vætu, tvístrar leifturskýi sínu víðsvegar.

37:12b.JOB.037.012 En það snýst í allar áttir, eftir því sem hann leiðir það, til þess að það framkvæmi allt það er hann býður því, á yfirborði allrar jarðarinnar.

37:13b.JOB.037.013 Hann lætur því ljósta niður, hvort sem það er til hirtingar eða til að vökva jörðina eða til að blessa hana.

37:14b.JOB.037.014 Hlýð þú á þetta, Job, stattu kyrr og gef gaum að dásemdum Guðs.

37:15b.JOB.037.015 Skilur þú, hvernig Guð felur þeim hlutverk þeirra og lætur leiftur skýja sinna skína?

37:16b.JOB.037.016 Skilur þú, hvernig skýin svífa, dásemdir hans, sem fullkominn er að vísdómi,

37:17b.JOB.037.017 þú, sem fötin hitna á, þá er jörðin mókir í sunnanmollu?

37:18b.JOB.037.018 Þenur þú út með honum heiðhimininn, sem fastur er eins og steyptur spegill?

37:19b.JOB.037.019 Kenn oss, hvað vér eigum að segja við hann! Vér megnum ekkert fram að færa fyrir myrkri.

37:20b.JOB.037.020 Á að segja honum, að ég ætli að tala? Eða hefir nokkur sagt, að hann óski að verða gjöreyddur?

37:21b.JOB.037.021 Og nú sjá menn að sönnu ekki ljósið, sem skín skært að skýjabaki, en vindurinn þýtur áfram og sópar skýjunum burt.

37:22b.JOB.037.022 Gullið kemur úr norðri, um Guð lykur ógurlegur ljómi.

37:23b.JOB.037.023 Vér náum eigi til hins Almáttka, til hans, sem er mikill að mætti. En réttinn og hið fulla réttlæti vanrækir hann ekki.

37:24b.JOB.037.024 Fyrir því óttast mennirnir hann, en hann lítur ekki við neinum sjálfbirgingum.

38

38:1b.JOB.038.001 Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði:

38:2b.JOB.038.002 Hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs með óskynsamlegum orðum?

38:3b.JOB.038.003 Gyrð lendar þínar eins og maður, þá mun ég spyrja þig, og þú skalt fræða mig.

38:4b.JOB.038.004 Hvar varst þú, þegar ég grundvallaði jörðina? Seg fram, ef þú hefir þekkingu til.

38:5b.JOB.038.005 Hver ákvað mál hennar - þú veist það! - eða hver þandi mælivaðinn yfir hana?

38:6b.JOB.038.006 Á hvað var stólpum hennar hleypt niður, eða hver lagði hornstein hennar,

38:7b.JOB.038.007 þá er morgunstjörnurnar sungu gleðisöng allar saman og allir guðssynir fögnuðu?

38:8b.JOB.038.008 Og hver byrgði hafið inni með hurðum, þá er það braust fram, gekk út af móðurkviði,

38:9b.JOB.038.009 þá er ég fékk því skýin að klæðnaði og svartaþykknið að reifum?

38:10b.JOB.038.010 þá er ég braut því takmörk og setti slagbranda fyrir og hurðir

38:11b.JOB.038.011 og mælti: "Hingað skaltu komast og ekki lengra, hér skulu þínar hreyknu hrannir brotna!"

38:12b.JOB.038.012 Hefir þú nokkurn tíma á ævi þinni boðið út morgninum, vísað morgunroðanum á stað hans,

38:13b.JOB.038.013 til þess að hann gripi í jaðar jarðarinnar og hinir óguðlegu yrðu hristir af henni?

38:14b.JOB.038.014 Hún breytist eins og leir undir signeti, og allt kemur fram eins og á klæði.

38:15b.JOB.038.015 Og hinir óguðlegu verða sviptir ljósinu og hinn upplyfti armleggur sundur brotinn.

38:16b.JOB.038.016 Hefir þú komið að uppsprettum hafsins og gengið á botni undirdjúpsins?

38:17b.JOB.038.017 Hafa hlið dauðans opnast fyrir þér og hefir þú séð hlið svartamyrkursins?

38:18b.JOB.038.018 Hefir þú litið yfir breidd jarðarinnar? Seg fram, fyrst þú veist það allt saman.

38:19b.JOB.038.019 Hvar er vegurinn þangað sem ljósið býr, og myrkrið - hvar á það heima,

38:20b.JOB.038.020 svo að þú gætir flutt það heim í landareign þess og þekktir göturnar heim að húsi þess?

38:21b.JOB.038.021 Þú veist það, því að þá fæddist þú, og tala daga þinna er há!

38:22b.JOB.038.022 Hefir þú komið til forðabúrs snjávarins og séð forðabúr haglsins,

38:23b.JOB.038.023 sem ég hefi geymt til tíma neyðarinnar, til orustu- og ófriðardagsins?

38:24b.JOB.038.024 Hvar er vegurinn þangað sem ljósið skiptist og austanvindurinn dreifist yfir jörðina?

38:25b.JOB.038.025 Hver hefir búið til rennu fyrir steypiregnið og veg fyrir eldingarnar

38:26b.JOB.038.026 til þess að láta rigna yfir mannautt land, yfir eyðimörkina, þar sem enginn býr,

38:27b.JOB.038.027 til þess að metta auðnir og eyðilönd og láta grængresi spretta?

38:28b.JOB.038.028 Á regnið föður eða hver hefir getið daggardropana?

38:29b.JOB.038.029 Af kviði hverrar er ísinn útgenginn, og hrím himinsins - hver fæddi það?

38:30b.JOB.038.030 Vötnin þéttast eins og steinn, og yfirborð fljótsins verður samfrosta.

38:31b.JOB.038.031 Getur þú þrengt sjöstirnis-böndin eða fær þú leyst fjötra Óríons?

38:32b.JOB.038.032 Lætur þú stjörnumerki dýrahringsins koma fram á sínum tíma og leiðir þú Birnuna með húnum hennar?

38:33b.JOB.038.033 Þekkir þú lög himinsins eða ákveður þú yfirráð hans yfir jörðunni?

38:34b.JOB.038.034 Getur þú lyft raust þinni upp til skýsins, svo að vatnaflaumurinn hylji þig?

38:35b.JOB.038.035 Getur þú sent eldingarnar, svo að þær fari og segi við þig: "Hér erum vér!"

38:36b.JOB.038.036 Hver hefir lagt vísdóm í hin dimmu ský eða hver hefir gefið loftsjónunum vit?

38:37b.JOB.038.037 Hver telur skýin með visku, og vatnsbelgir himinsins - hver hellir úr þeim,

38:38b.JOB.038.038 þegar moldin rennur saman í kökk og hnausarnir loða hver við annan?

38:39b.JOB.038.039 Veiðir þú bráðina fyrir ljónynjuna, og seður þú græðgi ungljónanna,

38:40b.JOB.038.040 þá er þau kúra í bæli sínu og vaka yfir veiði í þéttum runni?

38:41b.JOB.038.041 Hver býr hrafninum fæðu hans, þá er ungar hans hrópa til Guðs, flögra til og frá ætislausir?

39

39:1b.JOB.039.001 Veist þú tímann, nær steingeiturnar bera? Gefur þú gaum að fæðingarhríðum hindanna?

39:2b.JOB.039.002 Telur þú mánuðina, sem þær ganga með, og veist þú tímann, nær þær bera?

39:3b.JOB.039.003 Þær leggjast á knén, fæða kálfa sína, þær losna fljótt við kvalir sínar.

39:4b.JOB.039.004 Kálfar þeirra verða sterkir, vaxa í haganum, fara burt og koma ekki aftur til þeirra.

39:5b.JOB.039.005 Hver hefir látið skógarasnann ganga lausan og hver hefir leyst fjötra villiasnans,

39:6b.JOB.039.006 sem ég hefi gefið eyðivelli að bústað og saltsléttu að heimkynni?

39:7b.JOB.039.007 Hann hlær að hávaða borgarinnar, hann heyrir ekki köll rekstrarmannsins.

39:8b.JOB.039.008 Það sem hann leitar uppi á fjöllunum, er haglendi hans, og öllu því sem grænt er, sækist hann eftir.

39:9b.JOB.039.009 Mun vísundurinn vera fús til að þjóna þér eða mun hann standa um nætur við stall þinn?

39:10b.JOB.039.010 Getur þú bundið vísundinn með bandinu við plógfarið eða mun hann herfa dalgrundirnar á eftir þér?

39:11b.JOB.039.011 Reiðir þú þig á hann, af því að kraftur hans er mikill, og trúir þú honum fyrir arði þínum?

39:12b.JOB.039.012 Treystir þú honum til að flytja sáð þitt heim og til að safna því á þreskivöll þinn?

39:13b.JOB.039.013 Strúthænan baðar glaðlega vængjunum, en er nokkurt ástríki í þeim vængjum og flugfjöðrum?

39:14b.JOB.039.014 Nei, hún fær jörðinni egg sín og lætur þau hitna í moldinni

39:15b.JOB.039.015 og gleymir, að fótur getur brotið þau og dýr merkurinnar troðið þau sundur.

39:16b.JOB.039.016 Hún er hörð við unga sína, eins og hún ætti þá ekki, þótt fyrirhöfn hennar sé árangurslaus, þá er hún laus við ótta,

39:17b.JOB.039.017 því að Guð synjaði henni um visku og veitti henni enga hlutdeild í hyggindum.

39:18b.JOB.039.018 En þegar hún sveiflar sér í loft upp, þá hlær hún að hestinum og þeim sem á honum situr.

39:19b.JOB.039.019 Gefur þú hestinum styrkleika, klæðir þú makka hans flaksandi faxi?

39:20b.JOB.039.020 Lætur þú hann stökkva eins og engisprettu? Fagurlega frýsar hann, en hræðilega!

39:21b.JOB.039.021 Hann krafsar upp grundina og kætist af styrkleikanum, hann fer út á móti hertygjunum.

39:22b.JOB.039.022 Hann hlær að hræðslunni og skelfist ekki og hopar ekki fyrir sverðinu.

39:23b.JOB.039.023 Á baki hans glamrar í örvamælinum, spjót og lensa leiftra.

39:24b.JOB.039.024 Með hávaða og harki hendist hann yfir jörðina og eigi verður honum haldið, þá er lúðurinn gellur.

39:25b.JOB.039.025 Í hvert sinn er lúðurinn gellur, hvíar hann, og langar leiðir nasar hann bardagann, þrumurödd fyrirliðanna og herópið.

39:26b.JOB.039.026 Er það fyrir þín hyggindi að haukurinn lyftir flugfjöðrunum, breiðir út vængi sína í suðurátt?

39:27b.JOB.039.027 Er það eftir þinni skipun að örninn flýgur svo hátt og byggir hreiður sitt hátt uppi?

39:28b.JOB.039.028 Á klettunum á hann sér býli og ból, á klettasnösum og fjallatindum.

39:29b.JOB.039.029 Þaðan skyggnist hann að æti, augu hans sjá langar leiðir.

39:30b.JOB.039.030 Og ungar hans svelgja blóð, og hvar sem vegnir menn liggja, þar er hann.

4

4:1b.JOB.004.001 Þá svaraði Elífas frá Teman og mælti:

4:2b.JOB.004.002 Munt þú taka því illa, þótt maður dirfist að yrða á þig? Og þó, hver fær orða bundist?

4:3b.JOB.004.003 Sjá, þú hefir áminnt marga, og magnþrota hendur hefir þú styrkt.

4:4b.JOB.004.004 Þann sem hrasaði, reistu orð þín á fætur, og hnígandi hnén gjörðir þú stöðug.

4:5b.JOB.004.005 En nú, þegar það kemur yfir þig, gefst þú upp, þegar það nær þér sjálfum, missir þú móðinn.

4:6b.JOB.004.006 Er ekki guðhræðsla þín athvarf þitt og þitt grandvara líferni von þín?

4:7b.JOB.004.007 Hugsaðu þig um: Hver er sá, er farist hafi saklaus, og hvar hefir hinum réttvísu verið tortímt?

4:8b.JOB.004.008 Að því, er ég hefi séð: Þeir sem plægðu rangindi og sáðu óhamingju, þeir einir hafa uppskorið það.

4:9b.JOB.004.009 Fyrir andgusti Guðs fórust þeir, fyrir reiðiblæstri hans urðu þeir að engu.

4:10b.JOB.004.010 Öskur ljónsins og rödd óargadýrsins, - tennur ljónshvolpanna eru brotnar sundur.

4:11b.JOB.004.011 Ljónið ferst, af því að það vantar bráð, og hvolpar ljónynjunnar tvístrast.

4:12b.JOB.004.012 En til mín laumaðist orð, og eyra mitt nam óminn af því -

4:13b.JOB.004.013 í heilabrotunum, sem nætursýnirnar valda, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina.

4:14b.JOB.004.014 Ótti kom yfir mig og hræðsla, svo að öll bein mín nötruðu.

4:15b.JOB.004.015 Og vindgustur straukst fram hjá andliti mínu, hárin risu á líkama mínum.

4:16b.JOB.004.016 Þarna stóð það - útlitið þekkti ég ekki -, einhver mynd fyrir augum mínum, ég heyrði ymjandi rödd:

4:17b.JOB.004.017 "Er maðurinn réttlátur fyrir Guði, nokkur mannkind hrein fyrir skapara sínum?

4:18b.JOB.004.018 Sjá, þjónum sínum treystir hann ekki, og hjá englum sínum finnur hann galla,

4:19b.JOB.004.019 hvað þá hjá þeim, sem búa í leirhúsum, þeim sem eiga rót sína að rekja til moldarinnar, sem marðir eru sundur sem mölur væri.

4:20b.JOB.004.020 Milli morguns og kvelds eru þeir molaðir sundur, án þess að menn gefi því gaum, tortímast þeir gjörsamlega.

4:21b.JOB.004.021 Tjaldstaginu er kippt upp, þeir deyja, og það í vanhyggju sinni."

40

40:1b.JOB.040.001 Og Drottinn mælti til Jobs og sagði:

40:2b.JOB.040.002 Vill ámælismaðurinn þrátta við hinn Almáttka? Sá er sakir ber á Guð, svari hann þessu!

40:3b.JOB.040.003 Þá svaraði Job Drottni og sagði:

40:4b.JOB.040.004 Sjá, ég er of lítilmótlegur, hverju á ég að svara þér? Ég legg hönd mína á munninn.

40:5b.JOB.040.005 Einu sinni hefi ég talað, og endurtek það eigi, - tvisvar, og gjöri það ekki oftar.

40:6b.JOB.040.006 Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði:

40:7b.JOB.040.007 Gyrð lendar þínar eins og maður. Ég mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig.

40:8b.JOB.040.008 Ætlar þú jafnvel að gjöra rétt minn að engu, dæma mig sekan, til þess að þú standir réttlættur?

40:9b.JOB.040.009 Hefir þú þá armlegg eins og Guð, og getur þú þrumað með slíkri rödd sem hann?

40:10b.JOB.040.010 Skrýð þig vegsemd og tign, íklæð þig dýrð og ljóma!

40:11b.JOB.040.011 Lát úthellast strauma reiði þinnar og varpa til jarðar með einu tilliti sérhverjum dramblátum.

40:12b.JOB.040.012 Auðmýk þú sérhvern dramblátan með einu tilliti, og troð þú hina óguðlegu niður þar sem þeir standa.

40:13b.JOB.040.013 Byrg þú þá í moldu alla saman, loka andlit þeirra inni í myrkri,

40:14b.JOB.040.014 þá skal ég líka lofa þig, fyrir það að hægri hönd þín veitir þér fulltingi.

40:15b.JOB.040.015 Sjá, nykurinn sem ég hefi skapað eins og þig, hann etur gras eins og naut.

40:16b.JOB.040.016 Sjá, kraftur hans er í lendum hans og afl hans í kviðvöðvunum.

40:17b.JOB.040.017 Hann sperrir upp stertinn eins og sedrustré, lærsinar hans eru ofnar saman.

40:18b.JOB.040.018 Leggir hans eru eirpípur, beinin eins og járnstafur.

40:19b.JOB.040.019 Hann er frumgróði Guðs verka, sá er skóp hann, gaf honum sverð hans.

40:20b.JOB.040.020 Fjöllin láta honum grasbeit í té, og þar leika sér dýr merkurinnar.

40:21b.JOB.040.021 Hann liggur undir lótusrunnum í skjóli við reyr og sef.

40:22b.JOB.040.022 Lótusrunnarnir breiða skugga yfir hann, lækjarpílviðirnir lykja um hann.

40:23b.JOB.040.023 Sjá, þegar vöxtur kemur í ána, skelfist hann ekki, hann er óhultur, þótt fljót belji á skolti hans.

40:24b.JOB.040.024 Getur nokkur veitt hann með því að ganga framan að honum, getur nokkur dregið taug gegnum nasir hans?

41

41:1b.JOB.041.001 Getur þú veitt krókódílinn á öngul, getur þú heft tungu hans með snæri?

41:2b.JOB.041.002 Dregur þú seftaug gegnum nasir hans og rekur þú krók gegnum kjálka honum?

41:3b.JOB.041.003 Ætli hann beri fram fyrir þig margar auðmjúkar bænir eða mæli til þín blíðum orðum?

41:4b.JOB.041.004 Mun hann gjöra við þig sáttmála, svo að þú takir hann að ævinlegum þræli?

41:5b.JOB.041.005 Munt þú leika þér að honum eins og litlum fugli og getur þú bundið hann fastan fyrir smámeyjar þínar?

41:6b.JOB.041.006 Manga fiskveiðafélagar um hann, skipta þeir honum meðal kaupmanna?

41:7b.JOB.041.007 Getur þú fyllt húð hans broddum og haus hans skutlum?

41:8b.JOB.041.008 Legg hönd þína á hann - hugsaðu þér, hvílík viðureign! Þú gjörir það ekki aftur.

41:9b.JOB.041.009 Já, von mannsins bregst, hann fellur þegar flatur fyrir sjóninni einni saman.

41:10b.JOB.041.010 Enginn er svo fífldjarfur, að hann þori að egna hann, - og hver er þá sá, er þori að ganga fram fyrir mitt auglit?

41:11b.JOB.041.011 Hver hefir að fyrra bragði gefið mér, svo að ég ætti að endurgjalda? Allt sem undir himninum er, það er mitt!

41:12b.JOB.041.012 Ég vil ekki þegja um limu hans, né um styrkleik og fegurð vaxtar hans.

41:13b.JOB.041.013 Hver hefir flett upp skjaldkápu hans að framan, hver fer inn undir tvöfaldan tanngarð hans?

41:14b.JOB.041.014 Hver hefir opnað hliðin að gini hans? Ógn er kringum tennur hans.

41:15b.JOB.041.015 Tignarprýði eru skjaldaraðirnar, lokaðar með traustu innsigli.

41:16b.JOB.041.016 Hver skjöldurinn liggur fast að öðrum, ekkert loft kemst á milli þeirra.

41:17b.JOB.041.017 Þeir eru fastir hver við annan, eru svo samfelldir, að þeir verða eigi skildir sundur.

41:18b.JOB.041.018 Þegar hann hnerrar, standa ljósgeislar úr nösum hans, og augu hans eru sem brágeislar morgunroðans.

41:19b.JOB.041.019 Úr gini hans standa blys, eldneistar ganga fram úr honum.

41:20b.JOB.041.020 Úr nösum hans stendur eimur, eins og upp úr sjóðandi potti, sem kynt er undir með sefgrasi.

41:21b.JOB.041.021 Andi hans kveikir í kolum, og logi stendur úr gini hans.

41:22b.JOB.041.022 Kraftur situr á hálsi hans, og angist stökkur á undan honum.

41:23b.JOB.041.023 Vöðvar holds hans loða fastir við, eru steyptir á hann og hreyfast ekki.

41:24b.JOB.041.024 Hjarta hans er hart sem steinn, já, hart sem neðri kvarnarsteinn.

41:25b.JOB.041.025 Þegar hann stökkur upp, skelfast kapparnir, þeir verða ringlaðir af hræðslu.

41:26b.JOB.041.026 Ráðist einhver að honum með sverði, þá vinnur það eigi á, eigi heldur lensa, skotspjót eða ör.

41:27b.JOB.041.027 Hann metur járnið sem strá, eirinn sem maðksmoginn við.

41:28b.JOB.041.028 Eigi rekur örin hann á flótta, slöngusteinarnir verða hálmur fyrir honum.

41:29b.JOB.041.029 Kylfur metur hann sem hálmstrá, og að hvin spjótsins hlær hann.

41:30b.JOB.041.030 Neðan á honum eru oddhvöss brot, hann markar för í aurinn sem för eftir þreskisleða.

41:31b.JOB.041.031 Hann lætur vella í djúpinu sem í potti, gjörir hafið eins og smyrslaketil.

41:32b.JOB.041.032 Aftur undan honum er ljósrák, ætla mætti, að sjórinn væri silfurhærur.

41:33b.JOB.041.033 Enginn er hans maki á jörðu, hans sem skapaður er til þess að kunna ekki að hræðast.

41:34b.JOB.041.034 Hann lítur niður á allt hátt, hann er konungur yfir öllum drembnum dýrum.

42

42:1b.JOB.042.001 Þá svaraði Job Drottni og sagði:

42:2b.JOB.042.002 Ég veit, að þú megnar allt, og engu ráði þínu verður varnað fram að ganga.

42:3b.JOB.042.003 "Hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs í hyggjuleysi?" Fyrir því hefi ég talað án þess að skilja, um hluti, sem mér voru of undursamlegir og ég þekkti eigi.

42:4b.JOB.042.004 "Hlusta þú, ég ætla að tala. Ég mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig."

42:5b.JOB.042.005 Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig!

42:6b.JOB.042.006 Fyrir því tek ég orð mín aftur og iðrast í dufti og ösku.

42:7b.JOB.042.007 Eftir að Drottinn hafði mælt þessum orðum til Jobs, sagði Drottinn við Elífas Temaníta: "Reiði mín er upptendruð gegn þér og báðum vinum þínum, því að þér hafið ekki talað rétt um mig eins og þjónn minn Job.

42:8b.JOB.042.008 Takið yður því sjö naut og sjö hrúta og farið til þjóns míns Jobs og fórnið brennifórn fyrir yður, og Job þjónn minn skal biðja fyrir yður, því aðeins vegna hans mun ég ekki láta yður gjalda heimsku yðar, með því að þér hafið ekki talað rétt um mig eins og þjónn minn Job."

42:9b.JOB.042.009 Þá fóru þeir Elífas Temaníti, Bildad Súíti og Sófar Naamíti og gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið þeim. Og Drottinn lét að bæn Jobs.

42:10b.JOB.042.010 Og Drottinn sneri við högum Jobs, þá er hann bað fyrir vinum sínum; og hann gaf Job allt sem hann hafði átt, tvöfalt aftur.

42:11b.JOB.042.011 Þá komu til hans allir bræður hans og allar systur hans og allir þeir, er áður höfðu verið kunningjar hans, og neyttu máltíðar með honum í húsi hans, vottuðu honum samhryggð sína og hugguðu hann út af öllu því böli, sem Drottinn hafði látið yfir hann koma. Og þeir gáfu honum hver einn kesíta og hver einn hring af gulli.

42:12b.JOB.042.012 En Drottinn blessaði síðari æviár Jobs enn meir en hin fyrri, og hann eignaðist fjórtán þúsund sauða, sex þúsund úlfalda, þúsund sameyki nauta og þúsund ösnur.

42:13b.JOB.042.013 Hann eignaðist og sjö sonu og þrjár dætur.

42:14b.JOB.042.014 Og hann nefndi eina Jemímu, aðra Kesíu og hina þriðju Keren Happúk.

42:15b.JOB.042.015 Og eigi fundust svo fríðar konur í öllu landinu sem dætur Jobs, og faðir þeirra gaf þeim arf með bræðrum þeirra.

42:16b.JOB.042.016 Og Job lifði eftir þetta hundrað og fjörutíu ár og sá börn sín og barnabörn, fjóra ættliði.

42:17b.JOB.042.017 Og Job dó gamall og saddur lífdaga.

5

5:1b.JOB.005.001 Kalla þú bara! Ætli nokkur svari þér? og til hvers af hinum heilögu viltu snúa þér?

5:2b.JOB.005.002 Því að gremjan drepur heimskingjann, og öfundin deyðir einfeldninginn.

5:3b.JOB.005.003 Ég hefi að vísu séð heimskingjann festa djúpar rætur, en varð þó skyndilega að formæla bústað hans.

5:4b.JOB.005.004 Börn hans eru fjarlæg hjálpinni, þau eru troðin niður í hliðinu, og enginn bjargar.

5:5b.JOB.005.005 Uppskeru hans etur hinn hungraði, já, jafnvel inn í þyrna sækir hann hana, og hinir þyrstu þrá eigur hans.

5:6b.JOB.005.006 Því að óhamingjan vex ekki upp úr moldinni, og mæðan sprettur ekki upp úr jarðveginum.

5:7b.JOB.005.007 Nei, maðurinn fæðist til mæðu, eins og neistarnir fljúga upp í loftið.

5:8b.JOB.005.008 En ég mundi snúa mér til hins Almáttka og bera málefni mitt upp fyrir Guði,

5:9b.JOB.005.009 honum, sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega, dásemdarverk, sem eigi verða talin,

5:10b.JOB.005.010 sem gefur regn á jörðina og sendir vatn yfir vellina

5:11b.JOB.005.011 til þess að hefja hina lítilmótlegu hátt upp, og til þess að hinir sorgbitnu öðlist mikla sælu;

5:12b.JOB.005.012 honum, sem gjörir að engu áform hinna lævísu, svo að hendur þeirra koma engu varanlegu til leiðar,

5:13b.JOB.005.013 sem veiðir vitringana í slægð þeirra, svo að ráð hinna slungnu kollsteypast.

5:14b.JOB.005.014 Á daginn reka þeir sig á myrkur, og sem um nótt þreifa þeir fyrir sér um hádegið.

5:15b.JOB.005.015 Þannig frelsar hann munaðarleysingjann úr gini þeirra og fátæklinginn undan valdi hins sterka.

5:16b.JOB.005.016 Þannig er von fyrir hinn vesala, og illskan lokar munni sínum.

5:17b.JOB.005.017 Sjá, sæll er sá maður, er Guð hirtir, lítilsvirð því eigi ögun hins Almáttka.

5:18b.JOB.005.018 Því að hann særir, en bindur og um, hann slær, og hendur hans græða.

5:19b.JOB.005.019 Úr sex nauðum frelsar hann þig, og í hinni sjöundu snertir þig ekkert illt.

5:20b.JOB.005.020 Í hallærinu frelsar hann þig frá dauða og í orustunni undan valdi sverðsins.

5:21b.JOB.005.021 Fyrir svipu tungunnar ert þú falinn og þarft ekkert að óttast, er eyðingin kemur.

5:22b.JOB.005.022 Að eyðing og hungri getur þú hlegið, og villidýrin þarft þú ekki að óttast.

5:23b.JOB.005.023 Því að þú ert í bandalagi við steina akurlendisins, og dýr merkurinnar eru í sátt við þig.

5:24b.JOB.005.024 Og þú munt komast að raun um, að tjald þitt er heilt, þú kannar bústað þinn og saknar einskis.

5:25b.JOB.005.025 Og þú munt komast að raun um, að niðjar þínir eru margir og afsprengi þitt sem gras á jörðu.

5:26b.JOB.005.026 Í hárri elli munt þú ganga inn í gröfina, eins og kornbundinið er látið í hlöðuna á sínum tíma.

5:27b.JOB.005.027 Sjá, þetta höfum vér útgrundað, þannig er það. Heyr þú það og set það vel á þig!

6

6:1b.JOB.006.001 Þá svaraði Job og sagði:

6:2b.JOB.006.002 Ó að gremja mín væri vegin og ógæfa mín lögð á vogarskálar!

6:3b.JOB.006.003 Hún er þyngri en sandur hafsins, fyrir því hefi ég eigi taumhald á tungu minni.

6:4b.JOB.006.004 Því að örvar hins Almáttka sitja fastar í mér, og andi minn drekkur í sig eitur þeirra. Ógnir Guðs steðja að mér.

6:5b.JOB.006.005 Rymur skógarasninn yfir grængresinu, eða öskrar nautið yfir fóðri sínu?

6:6b.JOB.006.006 Verður hið bragðlausa etið saltlaust, eða er gott bragð að hvítunni í egginu?

6:7b.JOB.006.007 Matur minn fær mér ógleði, mig velgir við að snerta hann.

6:8b.JOB.006.008 Ó að ósk mín uppfylltist, og Guð léti von mína rætast!

6:9b.JOB.006.009 Ég vildi að Guði þóknaðist að merja mig sundur, rétta út höndina og skera lífsþráð minn sundur!

6:10b.JOB.006.010 Þá væri það þó enn huggun mín - og ég skyldi hoppa af gleði í vægðarlausri kvölinni - að ég hefi aldrei afneitað orðum hins Heilaga.

6:11b.JOB.006.011 Hver er kraftur minn, að ég skyldi þreyja, og hver verða endalok mín, að ég skyldi vera þolinmóður?

6:12b.JOB.006.012 Er þá kraftur minn kletta kraftur, eða er líkami minn af eiri?

6:13b.JOB.006.013 Er ég ekki með öllu hjálparvana og öll frelsun frá mér hrakin?

6:14b.JOB.006.014 Hrelldur maður á heimting á meðaumkun hjá vini sínum, enda þótt hann hætti að óttast hinn Almáttka.

6:15b.JOB.006.015 Bræður mínir brugðust eins og lækur, eins og farvegur lækja, sem flóa yfir,

6:16b.JOB.006.016 sem gruggugir eru af ís og snjórinn hverfur ofan í.

6:17b.JOB.006.017 Jafnskjótt og þeir bakast af sólinni, þorna þeir upp, þegar hitnar, hverfa þeir burt af stað sínum.

6:18b.JOB.006.018 Kaupmannalestirnar beygja af leið sinni, halda upp í eyðimörkina og farast.

6:19b.JOB.006.019 Kaupmannalestir frá Tema skyggndust eftir þeim, ferðamannahópar frá Saba reiddu sig á þá.

6:20b.JOB.006.020 Þeir urðu sér til skammar fyrir vonina, þeir komu þangað og urðu sneyptir.

6:21b.JOB.006.021 Þannig eruð þér nú orðnir fyrir mér, þér sáuð skelfing og skelfdust.

6:22b.JOB.006.022 Hefi ég sagt: "Færið mér eitthvað og borgið af eigum yðar fyrir mig,

6:23b.JOB.006.023 frelsið mig úr höndum óvinarins og leysið mig undan valdi kúgarans"?

6:24b.JOB.006.024 Fræðið mig, og ég skal þegja, og sýnið mér, í hverju mér hefir á orðið.

6:25b.JOB.006.025 Hversu áhrifamikil eru einlægninnar orð, en hvað sanna átölur yðar?

6:26b.JOB.006.026 Hafið þér í hyggju að ásaka orð? Ummæli örvilnaðs manns hverfa út í vindinn.

6:27b.JOB.006.027 Þér munduð jafnvel hluta um föðurleysingjann og selja vin yðar.

6:28b.JOB.006.028 Og nú - ó að yður mætti þóknast að líta á mig, ég mun vissulega ekki ljúga upp í opið geðið á yður.

6:29b.JOB.006.029 Snúið við, fremjið eigi ranglæti, já, snúið við, enn þá hefi ég rétt fyrir mér.

6:30b.JOB.006.030 Er ranglæti á minni tungu, eða ætli gómur minn greini ekki hvað illt er?

7

7:1b.JOB.007.001 Er ekki líf mannsins á jörðinni herþjónusta og dagar hans sem dagar daglaunamanns?

7:2b.JOB.007.002 Eins og þræll, sem þráir forsælu, og eins og daglaunamaður, sem bíður eftir kaupi sínu,

7:3b.JOB.007.003 svo hafa mér hlotnast mæðumánuðir og kvalanætur orðið hlutskipti mitt.

7:4b.JOB.007.004 Þegar ég leggst til hvíldar, hugsa ég: "Nær mun ég rísa á fætur?" Og kveldið er langt, og ég fæ mig fullsaddan á að bylta mér uns aftur eldir.

7:5b.JOB.007.005 Líkami minn er þakinn ormum og moldarskánum, húð mín skorpnar og rifnar upp aftur.

7:6b.JOB.007.006 Dagar mínir eru hraðfleygari en vefjarskyttan, og þeir hverfa án vonar.

7:7b.JOB.007.007 Minnstu þess, Guð, að líf mitt er andgustur! Aldrei framar mun auga mitt gæfu líta.

7:8b.JOB.007.008 Það auga, sem nú sér mig, mun eigi líta mig framar, augu þín leita mín, en ég er horfinn.

7:9b.JOB.007.009 Eins og skýið eyðist og hverfur, svo kemur og sá eigi aftur, er niður stígur til Heljar.

7:10b.JOB.007.010 Hann hverfur aldrei aftur til húss síns, og heimili hans þekkir hann eigi framar.

7:11b.JOB.007.011 Ég ætla þá ekki heldur að hafa taum á tungu minni, ég ætla að tala í hugarangist minni, ég ætla að kveina í sálarkvöl minni.

7:12b.JOB.007.012 Er ég haf eða sjóskrímsl, svo að þú þurfir að setja vörð yfir mig?

7:13b.JOB.007.013 Þegar ég hugsa með sjálfum mér: "Rúmið mitt skal hugga mig, hvílan mín létta mér hörmung mína"

7:14b.JOB.007.014 þá hræðir þú mig með draumum og skelfir mig með sýnum,

7:15b.JOB.007.015 svo að ég kýs heldur að kafna, heldur að deyja en að vera slík beinagrind.

7:16b.JOB.007.016 Ég er leiður á þessu - ekki lifi ég eilíflega -, slepptu mér, því að dagar mínir eru andartak.

7:17b.JOB.007.017 Hvað er maðurinn, að þú metir hann svo mikils og að þú snúir huga þínum til hans?

7:18b.JOB.007.018 að þú heimsækir hann á hverjum morgni og reynir hann á hverri stundu?

7:19b.JOB.007.019 Hvenær ætlar þú loks að líta af mér, loks að sleppa mér, meðan ég renni niður munnvatninu?

7:20b.JOB.007.020 Hafi ég syndgað - hvað get ég gert þér, þú vörður manna? Hvers vegna hefir þú mig þér að skotspæni, svo að ég er sjálfum mér byrði?

7:21b.JOB.007.021 Og hví fyrirgefur þú mér eigi synd mína og nemur burt sekt mína? Því að nú leggst ég til hvíldar í moldu, og leitir þú mín, þá er ég eigi framar til.

8

8:1b.JOB.008.001 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

8:2b.JOB.008.002 Hversu lengi ætlar þú slíkt að mæla og orðin í munni þínum að vera hvass vindur?

8:3b.JOB.008.003 Hallar þá Guð réttinum, eða hallar hinn Almáttki réttlætinu?

8:4b.JOB.008.004 Hafi börn þín syndgað móti honum, þá hefir hann selt þau misgjörð þeirra á vald.

8:5b.JOB.008.005 En ef þú leitar Guðs og biður hinn Almáttka miskunnar -

8:6b.JOB.008.006 ef þú ert hreinn og einlægur - já, þá mun hann þegar vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þíns réttlætis.

8:7b.JOB.008.007 Þá mun þinn fyrri hagur virðast lítilfjörlegur, en framtíðarhagur þinn vaxa stórum.

8:8b.JOB.008.008 Spyr þú hina fyrri kynslóð og gef þú gaum að reynslu feðranna.

8:9b.JOB.008.009 Vér erum síðan í gær og vitum ekkert, því að skuggi eru dagar vorir á jörðunni.

8:10b.JOB.008.010 En þeir munu fræða þig, segja þér það og bera fram orð úr sjóði hjarta síns:

8:11b.JOB.008.011 "Sprettur pappírssefið þar sem engin mýri er? vex störin nema í vatni?

8:12b.JOB.008.012 Enn stendur hún í blóma og verður eigi slegin, en hún skrælnar fyrr en nokkurt annað gras."

8:13b.JOB.008.013 Svo fer fyrir hverjum þeim, sem gleymir Guði, og von hins guðlausa verður að engu.

8:14b.JOB.008.014 Athvarf hans brestur sundur, og köngullóarvefur er það, sem hann treystir.

8:15b.JOB.008.015 Hann styðst við hús sitt, en það stendur ekki, hann heldur sér fast í það, en það stenst ekki.

8:16b.JOB.008.016 Hann er safarík skríðandi flétta í sólskini, sem teygir jarðstöngla sína um garðinn

8:17b.JOB.008.017 og vefur rótum sínum um grjóthrúgur og læsir sig milli steinanna.

8:18b.JOB.008.018 En ef hann er upprættur frá stað sínum, þá afneitar staðurinn honum og segir: "Ég hefi aldrei séð þig!"

8:19b.JOB.008.019 Sjá, þetta er öll gleði hans, og aðrir spretta í staðinn upp úr moldinni.

8:20b.JOB.008.020 Sjá, Guð hafnar ekki hinum ráðvanda og heldur ekki í hönd illgjörðamanna.

8:21b.JOB.008.021 Enn mun hann fylla munn þinn hlátri og varir þínar fagnaðarópi.

8:22b.JOB.008.022 Þeir sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera.

9

9:1b.JOB.009.001 Þá svaraði Job og sagði:

9:2b.JOB.009.002 Vissulega, ég veit að það er svo, og hvernig ætti maðurinn að hafa rétt fyrir sér gagnvart Guði?

9:3b.JOB.009.003 Þóknist honum að deila við hann, getur hann ekki svarað einni spurningu af þúsund.

9:4b.JOB.009.004 Hann er vitur í hjarta og máttkur að afli - hver þrjóskaðist gegn honum og sakaði eigi? -

9:5b.JOB.009.005 Hann sem flytur fjöll, svo að þau vita ekki af, hann sem kollvarpar þeim í reiði sinni,

9:6b.JOB.009.006 hann sem hrærir jörðina úr stað, svo að stoðir hennar leika á reiðiskjálfi,

9:7b.JOB.009.007 hann sem býður sólinni, og hún rennur ekki upp, og setur innsigli fyrir stjörnurnar,

9:8b.JOB.009.008 hann sem þenur út himininn aleinn, og gengur á háöldum sjávarins,

9:9b.JOB.009.009 hann sem skóp Vagnstirnið og Óríon, Sjöstjörnuna og forðabúr sunnanvindsins,

9:10b.JOB.009.010 hann sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega og dásemdarverk, er eigi verða talin,

9:11b.JOB.009.011 sjá, hann gengur fram hjá mér, en ég sé hann ekki, hann strýkst fram hjá, en ég verð hans ekki var.

9:12b.JOB.009.012 Þegar hann þrífur til, hver vill þá aftra honum, hver vill segja við hann: "Hvað gjörir þú?"

9:13b.JOB.009.013 Guð heldur ekki aftur reiði sinni, bandamenn hafdrekans beygðu sig undir hann.

9:14b.JOB.009.014 Hversu miklu síður mundi ég þá geta svarað honum, geta valið orð mín gagnvart honum,

9:15b.JOB.009.015 ég sem ekki mætti svara, þótt ég hefði rétt fyrir mér, heldur verð að beiðast miskunnar af dómara mínum.

9:16b.JOB.009.016 Þótt ég kallaði og hann svaraði mér, þá mundi ég ekki trúa, að hann hlustaði á mig.

9:17b.JOB.009.017 Miklu fremur mundi hann hvæsa á mig í stormviðri og margfalda sár mín án saka,

9:18b.JOB.009.018 aldrei leyfa mér að draga andann, heldur metta mig beiskri kvöl.

9:19b.JOB.009.019 Sé um kraft að ræða, er mátturinn hans, sé um rétt að ræða, hver vill þá stefna honum?

9:20b.JOB.009.020 Þótt ég hefði rétt fyrir mér, þá mundi munnur minn sakfella mig, þótt ég væri saklaus, mundi hann koma á mig sektinni.

9:21b.JOB.009.021 Saklaus er ég, ég hirði ekkert um líf mitt, ég virði að vettugi tilveru mína!

9:22b.JOB.009.022 Mér stendur á sama um það. Fyrir því segi ég: hann tortímir jafnt saklausum sem óguðlegum.

9:23b.JOB.009.023 Þegar svipan deyðir snögglega, þá gjörir hann gys að örvænting hinna saklausu.

9:24b.JOB.009.024 Jörðin er gefin í vald hinna óguðlegu, hann byrgir fyrir andlitið á dómendum hennar. Sé það ekki hann - hver þá?

9:25b.JOB.009.025 Dagar mínir voru skjótari en hraðboði, liðu svo hjá, að þeir litu enga hamingju.

9:26b.JOB.009.026 Þeir brunuðu áfram eins og reyrbátar, eins og örn, sem steypir sér niður á æti.

9:27b.JOB.009.027 Ef ég segi: Ég ætla að gleyma volæði mínu, ég ætla að breyta andlitssvip mínum og vera kátur, -

9:28b.JOB.009.028 þá hryllir mig við öllum þjáningum mínum, því ég veit þú sýknar mig ekki.

9:29b.JOB.009.029 Ég á nú að vera sekur, hví skyldi ég þá vera að mæðast til ónýtis?

9:30b.JOB.009.030 Þótt ég þvægi mér úr snjó og hreinsaði hendur mínar í lút,

9:31b.JOB.009.031 þá mundir þú dýfa mér ofan í forarvilpu, svo að klæðum mínum byði við mér.

9:32b.JOB.009.032 Guð er ekki maður eins og ég, að ég geti svarað honum, að við getum gengið saman fyrir réttinn.

9:33b.JOB.009.033 Enginn er sá, er úr skeri okkar í milli, er lagt geti hönd sína á okkur báða.

9:34b.JOB.009.034 Hann taki vönd sinn frá mér og láti ekki skelfing sína hræða mig,

9:35b.JOB.009.035 þá vil ég tala og eigi óttast hann, því að svo er mér eigi farið hið innra.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Job (Icelandic). Job (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9D92-2