1 Chronicles (Icelandic)

1 Chronicles (Icelandic)

1

1:1b.1CH.001.001 Adam, Set, Enos.

1:2b.1CH.001.002 Kenan, Mahalalel, Jared.

1:3b.1CH.001.003 Henok, Methúsala, Lamek.

1:4b.1CH.001.004 Nói, Sem, Kam og Jafet.

1:5b.1CH.001.005 Synir Jafets voru: Gómer, Magóg, Madaí, Javan, Túbal, Mesek og Tíras.

1:6b.1CH.001.006 Synir Gómers: Askenas, Rífat og Tógarma.

1:7b.1CH.001.007 Synir Javans: Elísa, Tarsis, Kittar og Ródanítar.

1:8b.1CH.001.008 Synir Kams: Kús, Mísraím, Pút og Kanaan.

1:9b.1CH.001.009 Synir Kúss: Seba, Havíla, Sabta, Raema og Sabteka. Og synir Raema: Séba og Dedan.

1:10b.1CH.001.010 Og Kús gat Nimrod. Hann tók að gjörast voldugur á jörðinni.

1:11b.1CH.001.011 Mísraím gat Lúdíta, Anamíta, Lehabíta, Naftúkíta,

1:12b.1CH.001.012 Patrúsíta, Kaslúkíta (þaðan eru komnir Filistar) og Kaftóríta.

1:13b.1CH.001.013 Kanaan gat Sídon, frumgetning sinn, og Het,

1:14b.1CH.001.014 og Jebúsíta, Amoríta, Gírgasíta,

1:15b.1CH.001.015 Hevíta, Arkíta, Síníta,

1:16b.1CH.001.016 Arvadíta, Semaríta og Hamatíta.

1:17b.1CH.001.017 Synir Sems: Elam, Assúr, Arpaksad, Lúd, Aram, Ús, Húl, Geter og Mas.

1:18b.1CH.001.018 Og Arpaksad gat Sela og Sela gat Eber.

1:19b.1CH.001.019 Og Eber fæddust tveir synir. Hét annar Peleg, því að á hans dögum greindist fólkið á jörðinni, en bróðir hans hét Joktan.

1:20b.1CH.001.020 Og Joktan gat Almódad, Salef, Hasarmavet, Jara,

1:21b.1CH.001.021 Hadóram, Úsal, Dikla,

1:22b.1CH.001.022 Ebal, Abímael, Séba,

1:23b.1CH.001.023 Ófír, Havíla og Jóbab. Þessir allir voru synir Joktans.

1:24b.1CH.001.024 Sem, Arpaksad, Sela,

1:25b.1CH.001.025 Eber, Peleg, Reú,

1:26b.1CH.001.026 Serúg, Nahor, Tara,

1:27b.1CH.001.027 Abram, það er Abraham.

1:28b.1CH.001.028 Synir Abrahams: Ísak og Ísmael.

1:29b.1CH.001.029 Þetta er ættartal þeirra: Nebajót var frumgetinn sonur Ísmaels, þá Kedar, Adbeel, Míbsam,

1:30b.1CH.001.030 Misma, Dúma, Massa, Hadad, Tema,

1:31b.1CH.001.031 Jetúr, Nafis og Kedma. Þessir voru synir Ísmaels.

1:32b.1CH.001.032 Synir Ketúru, hjákonu Abrahams: Hún ól Símran, Joksan, Medan, Midían, Jísbak og Súa. Og synir Joksans voru: Séba og Dedan.

1:33b.1CH.001.033 Og synir Midíans: Efa, Efer, Hanok, Abída og Eldaa. Allir þessir voru niðjar Ketúru.

1:34b.1CH.001.034 Abraham gat Ísak. Synir Ísaks voru Esaú og Ísrael.

1:35b.1CH.001.035 Synir Esaú: Elífas, Regúel, Jehús, Jaelam og Kóra.

1:36b.1CH.001.036 Synir Elífas voru: Teman, Ómar, Sefí, Gaetam, Kenas, Timna og Amalek.

1:37b.1CH.001.037 Synir Regúels voru: Nahat, Sera, Samma og Missa.

1:38b.1CH.001.038 Og synir Seírs: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, Díson, Eser og Dísan.

1:39b.1CH.001.039 Og synir Lótans: Hórí og Hómam, og systir Lótans var Timna.

1:40b.1CH.001.040 Synir Sóbals voru: Aljan, Manahat, Ebal, Sefí og Ónam. Og synir Síbeons: Aja og Ana.

1:41b.1CH.001.041 Sonur Ana: Díson. Og synir Dísons: Hamran, Esban, Jítran og Keran.

1:42b.1CH.001.042 Synir Esers voru: Bílhan, Saavan og Jaakan. Synir Dísans voru: Ús og Aran.

1:43b.1CH.001.043 Þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: Bela, sonur Beórs, og hét borg hans Dínhaba.

1:44b.1CH.001.044 Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann.

1:45b.1CH.001.045 Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann.

1:46b.1CH.001.046 Og er Húsam dó, tók Hadad sonur Bedads ríki eftir hann. Hann vann sigur á Midíanítum á Móabsvöllum, og borg hans hét Avít.

1:47b.1CH.001.047 Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann.

1:48b.1CH.001.048 Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá Fljótinu ríki eftir hann.

1:49b.1CH.001.049 Og er Sál dó, tók Baal Hanan, sonur Akbórs, ríki eftir hann.

1:50b.1CH.001.050 Og er Baal Hanan dó, tók Hadad ríki eftir hann, og hét borg hans Pagí, en kona hans Mehetabeel, dóttir Madredar, dóttur Me-Sahabs.

1:51b.1CH.001.051 Og Hadad dó. Og höfðingjar Edómíta voru: höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet,

1:52b.1CH.001.052 höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon,

1:53b.1CH.001.053 höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibsar,

1:54b.1CH.001.054 höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir voru höfðingjar Edómíta.

10

10:1b.1CH.010.001 Filistar höfðu lagt til orustu við Ísrael. Höfðu Ísraelsmenn flúið fyrir Filistum, og lágu margir fallnir á Gilbóafjalli.

10:2b.1CH.010.002 Og Filistar eltu Sál og sonu hans og felldu Jónatan, Abínadab og Malkísúa, sonu Sáls.

10:3b.1CH.010.003 Var nú gjörð hörð atlaga að Sál, og höfðu bogmenn komið auga á hann. Varð hann þá hræddur við bogmennina.

10:4b.1CH.010.004 Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: "Bregð þú sverði þínu og legg mig í gegn með því, svo að óumskornir menn þessir komi ekki og fari háðulega með mig." En skjaldsveinninn vildi ekki gjöra það, því að hann var mjög hræddur. Þá tók Sál sverðið og lét fallast á það.

10:5b.1CH.010.005 Og er skjaldsveinninn sá, að Sál var dauður, þá lét hann og fallast á sverð sitt og dó.

10:6b.1CH.010.006 Þannig létu þeir líf sitt, Sál, synir hans þrír og allir ættmenn hans. Létu þeir lífið saman.

10:7b.1CH.010.007 Þegar allir Ísraelsmenn þeir er á sléttlendinu bjuggu, sáu, að Ísraelsmenn voru flúnir, og Sál og synir hans fallnir, þá yfirgáfu þeir borgir sínar og lögðu á flótta. Og Filistar komu og settust að í þeim.

10:8b.1CH.010.008 Daginn eftir komu Filistar að ræna valinn. Fundu þeir þá Sál og sonu hans þrjá fallna á Gilbóafjalli.

10:9b.1CH.010.009 Flettu þeir hann klæðum og tóku höfuð hans og herklæði og gjörðu sendimenn um allt Filistaland til þess að flytja skurðgoðum sínum og lýðnum gleðitíðindin.

10:10b.1CH.010.010 Og þeir lögðu vopn hans í hof guðs síns, en hauskúpu hans festu þeir upp í hofi Dagóns.

10:11b.1CH.010.011 Þegar allir þeir, er bjuggu í Jabes í Gíleað, fréttu allt það, er Filistar höfðu gjört við Sál,

10:12b.1CH.010.012 þá tóku sig til allir vopnfærir menn, tóku lík Sáls og lík sona hans og fluttu þau til Jabes. Síðan jörðuðu þeir bein þeirra undir eikinni í Jabes og föstuðu í sjö daga.

10:13b.1CH.010.013 Þannig lét Sál líf sitt sakir ótrúmennsku sinnar við Drottin, sakir þess að hann eigi varðveitti boð Drottins, og einnig sakir þess, að hann hafði gengið til frétta við vofu,

10:14b.1CH.010.014 en við Drottin hafði hann eigi gengið til frétta. Hann lét hann þess vegna deyja, en konungdóminn hverfa undir Davíð Ísaíson.

11

11:1b.1CH.011.001 Þá söfnuðust allir Ísraelsmenn til Davíðs í Hebron og sögðu: "Sjá, vér erum hold þitt og bein!

11:2b.1CH.011.002 Þegar um langa hríð, meðan Sál var konungur, hefir þú verið fyrir Ísrael, bæði þegar hann lagði af stað í stríð og þegar hann kom heim. Auk þess hefir Drottinn, Guð þinn, við þig sagt: ,Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar Ísraels, og þú skalt vera höfðingi yfir þjóð minni Ísrael!'"

11:3b.1CH.011.003 Þá komu allir öldungar Ísraels til konungsins í Hebron, og Davíð gjörði við þá sáttmála í Hebron, frammi fyrir augliti Drottins, og þeir smurðu Davíð til konungs yfir Ísrael eftir orði Drottins fyrir munn Samúels.

11:4b.1CH.011.004 Og Davíð og allur Ísrael fór til Jerúsalem, það er Jebús, og þar voru Jebúsítar landsbúar.

11:5b.1CH.011.005 Þá sögðu Jebúsbúar við Davíð: "Þú munt eigi komast hér inn!" En Davíð tók vígið Síon, það er Davíðsborg.

11:6b.1CH.011.006 Þá mælti Davíð: "Hver sá, er fyrstur vinnur sigur á Jebúsítum, skal verða höfuðsmaður og herforingi!" Gekk þá fyrstur upp Jóab Serújuson og varð höfuðsmaður.

11:7b.1CH.011.007 Því næst settist Davíð að í víginu, fyrir því nefndu menn það Davíðsborg.

11:8b.1CH.011.008 Og hann víggirti borgina allt í kring, frá Milló og alla leið umhverfis, en aðra hluta borgarinnar hressti Jóab við.

11:9b.1CH.011.009 Og Davíð efldist meir og meir, og Drottinn allsherjar var með honum.

11:10b.1CH.011.010 Þessir eru helstir kappar Davíðs, er öfluglega studdu hann til konungstignar, ásamt öllum Ísrael, til þess að gjöra hann að konungi samkvæmt boði Drottins til Ísraels.

11:11b.1CH.011.011 Og þetta er talan á köppum Davíðs: Jasóbeam Hakmóníson, höfðingi þeirra þriggja. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum í einu.

11:12b.1CH.011.012 Honum næstur er Eleasar Dódóson, Ahóhíti. Hann var meðal kappanna þriggja.

11:13b.1CH.011.013 Hann var með Davíð í Pas Dammím, en Filistar höfðu safnast þar saman til orustu. En þar var akurspilda, alsprottin byggi. En er fólkið flýði fyrir Filistum,

11:14b.1CH.011.014 námu þeir staðar í spildunni miðri, náðu henni og unnu sigur á Filistum. Veitti Drottinn þannig mikinn sigur.

11:15b.1CH.011.015 Einu sinni fóru þrír af höfðingjunum þrjátíu til Davíðs í hamrinum, í Adúllamvíginu, en her Filista lá í herbúðum í Refaímdal.

11:16b.1CH.011.016 Þá var Davíð í víginu, en varðsveit Filista var þá í Betlehem.

11:17b.1CH.011.017 Þá þyrsti Davíð og sagði: "Hver vill sækja mér vatn í brunninn í Betlehem, sem er þar við hliðið?"

11:18b.1CH.011.018 Þá brutust þeir þrír gegnum herbúðir Filista, jusu vatn úr brunninum í Betlehem, sem er þar við hliðið, tóku það og færðu Davíð. En Davíð vildi ekki drekka það, heldur dreypti því Drottni til handa

11:19b.1CH.011.019 og mælti: "Guð minn láti það vera fjarri mér að gjöra slíkt. Ætti ég að drekka blóð þessara manna, er hættu lífi sínu, því að með því að hætta lífi sínu sóttu þeir það." Og hann vildi ekki drekka það. Þetta gjörðu kapparnir þrír.

11:20b.1CH.011.020 Abísaí, bróðir Jóabs, var fyrir þeim þrjátíu. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum og var frægur meðal þeirra þrjátíu.

11:21b.1CH.011.021 Af þeim þrjátíu var hann í heiðri hafður og var foringi þeirra, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki.

11:22b.1CH.011.022 Benaja Jójadason, hraustmenni, frægur fyrir afreksverk sín, var frá Kabseel. Hann drap báða sonu Aríels frá Móab. Hann sté ofan í brunn og drap þar ljón einn dag, er snjóað hafði.

11:23b.1CH.011.023 Hann drap og egypskan mann tröllaukinn, fimm álna háan. Egyptinn hafði spjót í hendi, digurt sem vefjarrif, en hann fór á móti honum með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti.

11:24b.1CH.011.024 Þetta gjörði Benaja Jójadason. Hann var frægur meðal kappanna þrjátíu.

11:25b.1CH.011.025 Af þeim þrjátíu var hann í heiðri hafður, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn.

11:26b.1CH.011.026 Og hraustu kapparnir voru: Asahel, bróðir Jóabs, Elhanan Dódóson frá Betlehem,

11:27b.1CH.011.027 Sammót frá Harór, Heles frá Palon,

11:28b.1CH.011.028 Íra Íkkesson frá Tekóa, Abíeser frá Anatót,

11:29b.1CH.011.029 Sibbekaí frá Húsa, Ílaí frá Ahó,

11:30b.1CH.011.030 Maharaí frá Netófa, Heled Baanason frá Netófa,

11:31b.1CH.011.031 Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamíns ættkvísl, Benaja frá Píraton,

11:32b.1CH.011.032 Húraí frá Nahale Gaas, Abíel frá Araba,

11:33b.1CH.011.033 Asmavet frá Bahúrím, Eljahba frá Saalbón,

11:34b.1CH.011.034 Hasem frá Gíson, Jónatan Sageson frá Harar,

11:35b.1CH.011.035 Ahíam Sakarsson frá Harar, Elífal Úrsson,

11:36b.1CH.011.036 Hefer frá Mekera, Ahía frá Palon,

11:37b.1CH.011.037 Hesró frá Karmel, Naaraí Esbaíson,

11:38b.1CH.011.038 Jóel, bróðir Natans, Míbhar Hagríson,

11:39b.1CH.011.039 Selek Ammóníti, Nahraí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar,

11:40b.1CH.011.040 Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír,

11:41b.1CH.011.041 Úría Hetíti, Sabad Ahlaíson,

11:42b.1CH.011.042 Adína Sísason, niðji Rúbens, höfðingi Rúbensniðja, og þrjátíu manns með honum,

11:43b.1CH.011.043 Hanan Maakason og Jósafat frá Meten,

11:44b.1CH.011.044 Ússía frá Astera, Sama og Jeíel Hótamssynir frá Aróer,

11:45b.1CH.011.045 Jedíael Simríson og Jóha Tísíti, bróðir hans,

11:46b.1CH.011.046 Elíel frá Mahanaím og Jeríbaí og Jósavja Elnaamssynir og Jítma Móabíti,

11:47b.1CH.011.047 Elíel, Óbeð og Jaasíel frá Mesóbaja.

12

12:1b.1CH.012.001 Þessir eru þeir, er komu til Davíðs í Siklag, er hann var landflótta fyrir Sál Kíssyni. Voru og þeir meðal kappanna, er veittu honum vígsgengi.

12:2b.1CH.012.002 Höfðu þeir boga að vopni og voru leiknir að slöngva steinum með hægri og vinstri hendi og að skjóta örvum af boga: Af frændum Sáls, af Benjamínítum:

12:3b.1CH.012.003 Ahíeser höfuðsmaður og Jóas, Hassemaasynir frá Gíbeu, Jesíel og Pelet Asmavetssynir, Beraka og Jehú frá Anatót,

12:4b.1CH.012.004 Jismaja frá Gíbeon, kappi meðal þeirra þrjátíu og foringi þeirra þrjátíu, Jeremía, Jehasíel, Jóhanan og Jósabad frá Gedera,

12:5b.1CH.012.005 Elúsaí, Jerímót, Bealja, Semarja og Sefatja frá Haríf,

12:6b.1CH.012.006 Elkana, Jissía, Asareel, Jóeser og Jasóbeam Kóraítar,

12:7b.1CH.012.007 Jóela og Sebadja Jeróhamssynir frá Gedór.

12:8b.1CH.012.008 Af Gaðítum gengu kappar miklir, hermenn, búnir til bardaga, er skjöld báru og spjót, í lið með Davíð í fjallvíginu í eyðimörkinni. Voru þeir ásýndum sem ljón og fráir sem skógargeitur á fjöllum.

12:9b.1CH.012.009 Var Eser höfðingi þeirra, annar var Óbadía, þriðji Elíab,

12:10b.1CH.012.010 fjórði Mismanna, fimmti Jeremía,

12:11b.1CH.012.011 sjötti Attaí, sjöundi Elíel,

12:12b.1CH.012.012 áttundi Jóhanan, níundi Elsabad,

12:13b.1CH.012.013 tíundi Jeremía, ellefti Makbannaí.

12:14b.1CH.012.014 Þessir voru af niðjum Gaðs, og voru þeir hershöfðingjar. Var hinn minnsti þeirra einn saman hundrað manna maki, en hinn mesti þúsund.

12:15b.1CH.012.015 Þessir voru þeir, er fóru yfir Jórdan í fyrsta mánuðinum, er hún flóði yfir alla bakka, og stökktu burt öllum dalbyggjum til austurs og vesturs.

12:16b.1CH.012.016 En nokkrir af Benjamíns- og Júdaniðjum komu til Davíðs í fjallvígið.

12:17b.1CH.012.017 Gekk Davíð þá út til þeirra, tók til máls og sagði við þá: "Ef þér komið til mín með friði til þess að veita mér lið, þá vil ég fúslega gjöra bandalag við yður, en ef þér komið til að svíkja mig í hendur óvinum mínum, þótt ég hafi ekkert illt aðhafst, þá sjái Guð feðra vorra það og hegni."

12:18b.1CH.012.018 Þá kom andi yfir Amasaí, höfðingja fyrir hinum þrjátíu, og mælti hann: "Þínir erum vér, Davíð, og með þér, þú Ísaísonur. Heill, heill sé þér, og heill liðsmönnum þínum, því að Guð þinn hjálpar þér." Tók þá Davíð við þeim og gjörði þá að foringjum fyrir sveit sinni.

12:19b.1CH.012.019 Af Manasse gengu í lið með Davíð, þá er hann fór með Filistum til bardaga við Sál - þó liðsinntu þeir þeim ekki, því að höfðingjar Filista réðu ráðum sínum, sendu hann burt og sögðu: "Hann kynni að ganga í lið með Sál, herra sínum, og gæti það orðið vor bani" -

12:20b.1CH.012.020 þegar hann kom til Siklag, þá gengu í lið með honum af Manasse: Adna, Jósabad, Jedíael, Míkael, Jósabad, Elíhú og Silletaí, þúsundhöfðingjar Manasse.

12:21b.1CH.012.021 Veittu þessir Davíð lið gegn ræningjaflokkum, því að allir voru þeir kappar miklir, og urðu þeir foringjar í hernum.

12:22b.1CH.012.022 Því að dag frá degi komu menn til liðs við Davíð, uns herinn var mikill orðinn sem guðsher.

12:23b.1CH.012.023 Þetta er manntal á höfðingjum þeirra hertygjaðra manna, er komu til Davíðs í Hebron til þess að fá honum í hendur konungdóm Sáls eftir boði Drottins:

12:24b.1CH.012.024 Júdamenn, er skjöld báru og spjót, voru 6.800 herbúinna manna.

12:25b.1CH.012.025 Af Símeonsniðjum 7.100 hraustir hermenn.

12:26b.1CH.012.026 Af Levíniðjum: 4.600

12:27b.1CH.012.027 og auk þess Jójada, höfðingi Aronsættar, og 3.700 manns með honum.

12:28b.1CH.012.028 Og Sadók, ungur maður, hinn mesti kappi. Voru 22 herforingjar í ætt hans.

12:29b.1CH.012.029 Af Benjamínsniðjum, frændum Sáls, voru 3.000, en allt til þessa héldu flestir þeirra trúnað við ætt Sáls.

12:30b.1CH.012.030 Af Efraímsniðjum 20.800 nafnkunnra manna í ættum sínum.

12:31b.1CH.012.031 Af hálfri Manassekynkvísl 18.000 manna, er nafngreindir voru til þess að fara og taka Davíð til konungs.

12:32b.1CH.012.032 Af Íssakarsniðjum, er báru skyn á tíðir og tíma, svo að þeir vissu, hvað Ísrael skyldi hafast að, 200 höfðingjar, og lutu allir frændur þeirra boði þeirra.

12:33b.1CH.012.033 Af Sebúlon gengu í herinn 50.000 vígra manna, er höfðu alls konar hervopn, allir með einum huga til þess að hjálpa.

12:34b.1CH.012.034 Af Naftalí fóru þúsund höfðingjar og með þeim 37.000 manna, er skjöld báru og spjót.

12:35b.1CH.012.035 Af Dansniðjum 28.600 manna, er búnir voru til bardaga.

12:36b.1CH.012.036 Af Asser gengu í herinn 40.000 vígra manna.

12:37b.1CH.012.037 Af þeim hinumegin Jórdanar, af Rúbensniðjum, Gaðsniðjum og hálfri ættkvísl Manasse: 120.000 manna, með alls konar vopn til hernaðar.

12:38b.1CH.012.038 Allir þessir hermenn, er skipaðir voru í fylkingu, komu samhuga til Hebron til þess að taka Davíð til konungs yfir allan Ísrael. Voru og allir aðrir Ísraelsmenn samhuga í því að taka Davíð til konungs.

12:39b.1CH.012.039 Og þeir dvöldust þar þrjá daga hjá Davíð og neyttu matar og drykkjar, því að frændur þeirra höfðu búið þeim beina.

12:40b.1CH.012.040 Auk þess færðu þeir, er bjuggu í nágrenni við þá, allt að Íssakar, Sebúlon og Naftalí, vistir á ösnum, úlföldum, múlum og nautum, mjölmat, fíkjukökur, rúsínukökur, vín, olíu og naut og sauði í ríkum mæli, því að gleði var í Ísrael.

13

13:1b.1CH.013.001 Davíð ráðgaðist um við þúsundhöfðingjana og við hundraðshöfðingjana, við alla höfðingjana.

13:2b.1CH.013.002 Og Davíð mælti við Ísraelssöfnuð: "Ef yður líkar svo, og virðist það vera komið frá Drottni, Guði vorum, þá skulum vér senda til frænda vorra, sem eftir eru orðnir í öllum héruðum Ísraels, svo og til prestanna og levítanna í borgunum með beitilöndunum, er að þeim liggja, og skulu þeir safnast til vor.

13:3b.1CH.013.003 Skulum vér sækja örk Guðs vors, því að á dögum Sáls höfum vér ekki spurt um hana."

13:4b.1CH.013.004 Svaraði þá allur söfnuður, að svo skyldi gjöra, því að öllum lýðnum leist þetta rétt vera.

13:5b.1CH.013.005 Kallaði þá Davíð saman allan Ísrael, frá Síhór í Egyptalandi, allt þar til, er leið liggur til Hamat, til þess að flytja örk Guðs frá Kirjat Jearím.

13:6b.1CH.013.006 Og Davíð og allur Ísrael fór til Baala, til Kirjat Jearím, sem er í Júda, til þess að flytja þaðan örk Guðs, sem kennd er við nafn Drottins, hans, sem situr uppi yfir kerúbunum.

13:7b.1CH.013.007 Og þeir óku örk Drottins á nýjum vagni úr húsi Abínadabs, og stýrðu þeir Ússa og Ahjó vagninum.

13:8b.1CH.013.008 Og Davíð og allur Ísrael dansaði fyrir Guði af öllum mætti, með söng, gígjum, hörpum, bumbum, skálabumbum og lúðrum.

13:9b.1CH.013.009 En er komið var að þreskivelli Kídons, rétti Ússa út höndina til þess að grípa í örkina, því að slakað hafði verið á taumhaldinu við akneytin.

13:10b.1CH.013.010 Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ússa, og hann laust hann þar, af því að hann hafði gripið hendi sinni í örkina, og dó hann þar fyrir augliti Guðs.

13:11b.1CH.013.011 En Davíð féll það þungt, að Drottinn hafði lostið Ússa svo hart, og hefir þessi staður verið nefndur Peres Ússa allt fram á þennan dag.

13:12b.1CH.013.012 Davíð varð hræddur við Guð á þeim degi og sagði: "Hvernig má ég þá flytja örk Guðs til mín?"

13:13b.1CH.013.013 Og Davíð flutti ekki örkina til sín í Davíðsborg, heldur sneri hann með hana til húss Óbeð Edóms í Gat.

13:14b.1CH.013.014 Og örk Guðs var þrjá mánuði í húsi Óbeð Edóms, í húsi hans, og Drottinn blessaði hús Óbeð Edóms og allt það, er hans var.

14

14:1b.1CH.014.001 Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa höll handa honum.

14:2b.1CH.014.002 Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans, Ísraels.

14:3b.1CH.014.003 Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur.

14:4b.1CH.014.004 Þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon,

14:5b.1CH.014.005 Jíbhar, Elísúa, Elpelet,

14:6b.1CH.014.006 Nóga, Nefeg, Jafía,

14:7b.1CH.014.007 Elísama, Beeljada og Elífelet.

14:8b.1CH.014.008 Þegar Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim.

14:9b.1CH.014.009 Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal.

14:10b.1CH.014.010 Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: "Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?" Drottinn svaraði honum: "Far þú, ég mun gefa þá í hendur þér."

14:11b.1CH.014.011 Héldu þeir þá til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: "Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás." Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.

14:12b.1CH.014.012 En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brenndir á báli að boði Davíðs.

14:13b.1CH.014.013 Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn.

14:14b.1CH.014.014 Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: "Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum.

14:15b.1CH.014.015 Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista."

14:16b.1CH.014.016 Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista frá Gíbeon til Geser.

14:17b.1CH.014.017 Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.

15

15:1b.1CH.015.001 Davíð byggði hús handa sér í Davíðsborg, og hann bjó stað handa örk Guðs og reisti tjald fyrir hana.

15:2b.1CH.015.002 Þá sagði Davíð: "Enginn má bera örk Guðs nema levítarnir, því að þá hefir Drottinn valið til þess að bera örk Guðs og til þess að þjóna sér að eilífu."

15:3b.1CH.015.003 Síðan stefndi Davíð öllum Ísrael saman til Jerúsalem til þess að flytja örk Drottins á sinn stað, þann er hann hafði búið handa henni.

15:4b.1CH.015.004 Og Davíð stefndi saman niðjum Arons og levítunum:

15:5b.1CH.015.005 Af Kahatsniðjum: Úríel, er var þeirra helstur, og frændum hans, hundrað og tuttugu alls.

15:6b.1CH.015.006 Af Meraríniðjum: Asaja, er var þeirra helstur, og frændum hans, tvö hundruð og tuttugu alls.

15:7b.1CH.015.007 Af Gersómsniðjum: Jóel, er var þeirra helstur, og frændum hans, hundrað og þrjátíu alls.

15:8b.1CH.015.008 Af Elísafansniðjum: Semaja, er var þeirra helstur, og frændum hans, tvö hundruð alls.

15:9b.1CH.015.009 Af Hebronsniðjum: Elíel, er var þeirra helstur, og frændum hans, áttatíu alls.

15:10b.1CH.015.010 Af Ússíelsniðjum: Ammínadab, er var þeirra helstur, og frændum hans, hundrað og tólf alls.

15:11b.1CH.015.011 Síðan kallaði Davíð á Sadók og Abjatar presta og Úríel, Asaja, Jóel, Semaja, Elíel og Ammínadab levíta,

15:12b.1CH.015.012 og mælti við þá: "Þér eruð ætthöfðingjar levíta. Helgið yður og frændur yðar og flytjið örk Drottins, Ísraels Guðs, á þann stað, er ég hefi búið handa henni.

15:13b.1CH.015.013 Af því að þér voruð eigi við hið fyrra skipti, hefir Drottinn Guð vor lostið oss, af því að vér leituðum hans eigi svo sem vera bar."

15:14b.1CH.015.014 Þá helguðu prestarnir og levítarnir sig til þess að flytja örk Drottins, Ísraels Guðs, upp eftir.

15:15b.1CH.015.015 Síðan báru niðjar levíta örk Guðs, eins og Móse hafði fyrirskipað eftir boði Drottins, á stöngum á herðum sér.

15:16b.1CH.015.016 Því næst bauð Davíð höfðingjum levíta að setja frændur þeirra, söngmennina, með hljóðfærum þeirra, hörpum, gígjum og skálabumbum, til þess að þeir skyldu láta fagnaðarglaum kveða við.

15:17b.1CH.015.017 Settu levítar til þess Heman Jóelsson, og af frændum hans Asaf Berekíason, og af Meraríniðjum, frændum sínum, Etan Kúsajason,

15:18b.1CH.015.018 og með þeim frændur þeirra af öðrum flokki: Sakaría Jaasíelsson, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíat, Benaja, Maaseja, Mattitja, Elífelehú, Mikneja, Óbeð Edóm og Jeíel hliðverði.

15:19b.1CH.015.019 Auk þess söngvarana Heman, Asaf og Etan með skálabumbum úr eiri, til þess að syngja hátt,

15:20b.1CH.015.020 og Sakaría, Asíel, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíat, Maaseja og Benaja með hörpur, til þess að syngja háu raddirnar,

15:21b.1CH.015.021 og Mattitja, Elífelehú, Mikneja, Óbeð Edóm, Jeíel og Asaja með gígjur, til þess að syngja lægri raddirnar.

15:22b.1CH.015.022 Kenanja, er var helstur levítanna við arkarburðinn, sá um arkarburðinn, því að hann bar skyn á það.

15:23b.1CH.015.023 Berekía og Elkana voru hliðverðir arkarinnar.

15:24b.1CH.015.024 Sebanja, Jósafat, Netaneel, Amasaí, Sakaría, Benaja og Elíeser prestar þeyttu lúðra frammi fyrir örk Guðs, og Óbeð Edóm og Jehía voru hliðverðir arkarinnar.

15:25b.1CH.015.025 Davíð og öldungar Ísraels og þúsundhöfðingjarnir fóru til þess að flytja sáttmálsörk Drottins með fögnuði úr húsi Óbeð Edóms.

15:26b.1CH.015.026 Og er Guð hjálpaði levítunum, er báru sáttmálsörk Drottins, fórnuðu þeir sjö nautum og sjö hrútum.

15:27b.1CH.015.027 Og Davíð var klæddur baðmullarkyrtli, svo og allir levítarnir, er örkina báru, og söngmennirnir og Kenanja, burðarstjóri, æðstur söngmannanna, en Davíð bar línhökul.

15:28b.1CH.015.028 Og allur Ísrael flutti sáttmálsörk Drottins upp eftir með fagnaðarópi og lúðurhljómi, með lúðrum og skálabumbum, og létu hljóma hörpur og gígjur.

15:29b.1CH.015.029 En er sáttmálsörk Drottins kom í Davíðsborg, leit Míkal, dóttir Sáls, út um gluggann. Og er hún sá Davíð konung vera að hoppa og dansa, fyrirleit hún hann í hjarta sínu.

16

16:1b.1CH.016.001 Og þeir fluttu örk Guðs inn og settu hana í tjaldið, sem Davíð hafði reisa látið yfir hana, og þeir færðu brennifórnir og heillafórnir.

16:2b.1CH.016.002 Og er Davíð hafði fært brennifórnina og heillafórnirnar, blessaði hann lýðinn í nafni Drottins

16:3b.1CH.016.003 og úthlutaði öllum Ísraelsmönnum, körlum sem konum, sinn brauðhleifinn hverjum, kjötstykki og rúsínuköku.

16:4b.1CH.016.004 Davíð setti menn af levítum til þess að gegna þjónustu frammi fyrir örk Drottins og til þess að tigna, lofa og vegsama Drottin, Guð Ísraels.

16:5b.1CH.016.005 Var Asaf helstur þeirra og honum næstur gekk Sakaría, þá Jeíel, Semíramót, Jehíel, Mattitja, Elíab, Benaja, Óbeð Edóm og Jeíel með hljóðfærum, hörpum og gígjum, en Asaf lét skálabumburnar kveða við,

16:6b.1CH.016.006 og Benaja og Jehasíel prestar þeyttu stöðugt lúðrana frammi fyrir sáttmálsörk Guðs.

16:7b.1CH.016.007 Á þeim degi fól Davíð í fyrsta sinni Asaf og frændum hans að syngja "Lofið Drottin."

16:8b.1CH.016.008 Lofið Drottin, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna!

16:9b.1CH.016.009 Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk.

16:10b.1CH.016.010 Hrósið yður af hans helga nafni, hjarta þeirra, er leita Drottins, gleðjist.

16:11b.1CH.016.011 Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífellt eftir augliti hans.

16:12b.1CH.016.012 Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans,

16:13b.1CH.016.013 þér niðjar Ísraels, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu.

16:14b.1CH.016.014 Hann er Drottinn, Guð vor, um víða veröld ganga dómar hans.

16:15b.1CH.016.015 Hann minnist að eilífu sáttmála síns, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða,

16:16b.1CH.016.016 sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak,

16:17b.1CH.016.017 þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael,

16:18b.1CH.016.018 þá er hann mælti: "Þér mun ég gefa Kanaanland sem erfðahlut þinn."

16:19b.1CH.016.019 Þegar þeir voru fámennur hópur, örfáir, og bjuggu þar sem útlendingar,

16:20b.1CH.016.020 og fóru frá einni þjóð til annarrar, og frá einu konungsríki til annars lýðs,

16:21b.1CH.016.021 leið hann engum að kúga þá og hegndi konungum þeirra vegna.

16:22b.1CH.016.022 "Snertið eigi við mínum smurðu, og gjörið eigi spámönnum mínum mein."

16:23b.1CH.016.023 Syngið Drottni, öll lönd, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.

16:24b.1CH.016.024 Segið frá dýrð hans meðal heiðingjanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra þjóða.

16:25b.1CH.016.025 Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, og óttalegur er hann öllum guðum framar.

16:26b.1CH.016.026 Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.

16:27b.1CH.016.027 Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og fögnuður í bústað hans.

16:28b.1CH.016.028 Tjáið Drottni, þér þjóðakynkvíslir, tjáið Drottni vegsemd og vald.

16:29b.1CH.016.029 Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið fram fyrir hann. Fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða,

16:30b.1CH.016.030 titrið fyrir honum, öll lönd. Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki.

16:31b.1CH.016.031 Himinninn gleðjist og jörðin fagni, menn segi meðal heiðingjanna: "Drottinn hefir tekið konungdóm!"

16:32b.1CH.016.032 Hafið drynji og allt, sem í því er, foldin fagni og allt, sem á henni er.

16:33b.1CH.016.033 Öll tré skógarins kveði fagnaðarópi fyrir Drottni, því að hann kemur til þess að dæma jörðina.

16:34b.1CH.016.034 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu!

16:35b.1CH.016.035 og segið: "Hjálpa þú oss, Guð hjálpræðis vors. Safna þú oss saman og frelsa þú oss frá heiðingjunum, að vér megum lofa þitt heilaga nafn, víðfrægja lofstír þinn."

16:36b.1CH.016.036 Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð frá eilífð til eilífðar. Og allur lýður sagði: "Amen!" og "Lof sé Drottni!"

16:37b.1CH.016.037 Og Davíð lét þá Asaf og frændur hans verða þar eftir frammi fyrir sáttmálsörk Drottins til þess að hafa stöðugt þjónustu á hendi frammi fyrir örkinni, eftir því sem á þurfti að halda dag hvern.

16:38b.1CH.016.038 En Óbeð Edóm og frændur þeirra, sextíu og átta, Óbeð Edóm Jedítúnsson og Hósa, skipaði hann hliðverði.

16:39b.1CH.016.039 Sadók prest og frændur hans, prestana, setti hann frammi fyrir bústað Drottins á hæðinni, sem er í Gíbeon,

16:40b.1CH.016.040 til þess stöðugt að færa Drottni brennifórnir á brennifórnaraltarinu, kvelds og morgna, og að fara með öllu svo, sem skrifað er í lögmáli Drottins, því er hann lagði fyrir Ísrael.

16:41b.1CH.016.041 Og með þeim voru þeir Heman, Jedútún og aðrir þeir er kjörnir voru, þeir er með nafni voru til þess kvaddir að lofa Drottin, því að miskunn hans varir að eilífu.

16:42b.1CH.016.042 Og með þeim voru þeir Heman og Jedútún með lúðra og skálabumbur handa söngmönnunum og hljóðfæri fyrir söng guðsþjónustunnar. En þeir Jedútúnssynir voru hliðverðir.

16:43b.1CH.016.043 Síðan fór allur lýðurinn burt, hver heim til sín, en Davíð hvarf aftur til þess að heilsa fólki sínu.

17

17:1b.1CH.017.001 Svo bar til, þá er Davíð sat í höll sinni, að Davíð sagði við Natan spámann: "Sjá, ég bý í höll af sedrusviði, en sáttmálsörk Drottins undir tjalddúkum."

17:2b.1CH.017.002 Natan svaraði Davíð: "Gjör þú allt, sem þér er í hug, því að Guð er með þér."

17:3b.1CH.017.003 En hina sömu nótt kom orð Guðs til Natans:

17:4b.1CH.017.004 "Far þú og seg Davíð þjóni mínum: Svo segir Drottinn: Eigi skalt þú reisa mér hús til að búa í.

17:5b.1CH.017.005 Ég hefi ekki búið í húsi síðan er ég leiddi Ísraelsmenn út, allt fram á þennan dag, heldur ferðaðist ég í tjaldi og búð.

17:6b.1CH.017.006 Alla þá stund, er ég hefi um farið meðal allra Ísraelsmanna, hefi ég þá sagt nokkurt orð í þá átt við nokkurn af dómurum Ísraels, þá er ég setti til að vera hirða lýðs míns: ,Hví reisið þér mér ekki hús af sedrusviði?' -

17:7b.1CH.017.007 Og nú skalt þú svo segja þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég tók þig úr haglendinu frá hjarðmennskunni og setti þig höfðingja yfir lýð minn Ísrael.

17:8b.1CH.017.008 Ég hefi verið með þér í öllu, sem þú hefir tekið þér fyrir hendur, og upprætt alla óvini þína fyrir þér. Ég mun gjöra nafn þitt sem nafn hinna mestu manna, sem á jörðinni eru,

17:9b.1CH.017.009 og fá lýð mínum Ísrael stað og gróðursetja hann þar, svo að hann geti búið á sínum stað og geti verið öruggur framvegis. Níðingar skulu eigi eyða honum framar eins og áður,

17:10b.1CH.017.010 frá því er ég setti dómara yfir lýð minn Ísrael, og ég mun lægja alla fjandmenn þína. Og ég boða þér, að Drottinn mun reisa þér hús.

17:11b.1CH.017.011 Þegar ævi þín er öll og þú gengur til feðra þinna, mun ég hefja afspring þinn eftir þig, einn af sonum þínum, og staðfesta konungdóm hans.

17:12b.1CH.017.012 Hann skal reisa mér hús og ég mun staðfesta hásæti hans að eilífu.

17:13b.1CH.017.013 Ég vil vera honum faðir og hann skal vera mér sonur, og miskunn mína mun ég ekki frá honum taka, eins og ég tók hana frá fyrirrennara þínum,

17:14b.1CH.017.014 heldur mun ég setja hann yfir hús mitt og ríki að eilífu, og hásæti hans skal vera óbifanlegt um aldur."

17:15b.1CH.017.015 Natan flutti Davíð öll þessi orð og sagði honum sýn þessa alla.

17:16b.1CH.017.016 Þá gekk Davíð konungur inn og settist niður frammi fyrir Drottni og mælti: "Hver er ég, Drottinn Guð, og hvað er hús mitt, að þú skulir hafa leitt mig til þessa?

17:17b.1CH.017.017 Og það nægði þér ekki, Guð, heldur hefir þú fyrirheit gefið um hús þjóns þíns langt fram í aldir, og það meira að segja á mannlegan hátt, Drottinn Guð.

17:18b.1CH.017.018 En hvað má Davíð enn við þig mæla? Þú þekkir sjálfur þjón þinn.

17:19b.1CH.017.019 Drottinn, sakir þjóns þíns og að þínum vilja hefir þú gjört þetta, að boða þjóni þínum alla þessa miklu hluti.

17:20b.1CH.017.020 Drottinn, enginn er sem þú, og enginn er Guð nema þú, samkvæmt öllu því, er vér höfum heyrt með eyrum vorum.

17:21b.1CH.017.021 Og hvaða þjóð önnur á jörðinni jafnast við þjóð þína Ísrael, að Guð hafi farið og keypt sér hana að eignarlýð, aflað sér frægðar og gjört fyrir hana mikla hluti og hræðilega: stökkt burt undan lýð sínum annarri þjóð og guði hennar?

17:22b.1CH.017.022 Þú hefir gjört lýð þinn Ísrael að þínum lýð um aldur og ævi, og þú, Drottinn, gjörðist Guð þeirra.

17:23b.1CH.017.023 Og lát nú, Drottinn, fyrirheit það, er þú hefir gefið um þjón þinn og um hús hans, standa stöðugt um aldur og ævi, og gjör þú svo sem þú hefir heitið.

17:24b.1CH.017.024 Þá mun nafn þitt reynast traust og verða mikið að eilífu og hljóða svo: Drottinn allsherjar, Guð Ísraels, Ísraels Guð - og hús þjóns þíns Davíðs mun stöðugt standa fyrir þér.

17:25b.1CH.017.025 Því að þú, Guð minn, hefir birt þjóni þínum, að þú munir reisa honum hús. Fyrir því hafði þjónn þinn djörfung til að bera þessa bæn fram fyrir þig.

17:26b.1CH.017.026 Og nú, Drottinn, þú ert Guð, og þú hefir gefið þjóni þínum þetta dýrlega fyrirheit,

17:27b.1CH.017.027 virst þú nú að blessa hús þjóns þíns, svo að það sé til að eilífu fyrir þínu augliti. Því að það, sem þú, Drottinn, blessar, er blessað að eilífu."

18

18:1b.1CH.018.001 Eftir þetta vann Davíð sigur á Filistum og braut þá undir sig, og náði Gat og borgunum umhverfis hana úr höndum Filista.

18:2b.1CH.018.002 Hann vann og sigur á Móabítum, og þannig urðu Móabítar skattskyldir þegnar Davíðs.

18:3b.1CH.018.003 Davíð vann og sigur á Hadareser, konungi í Sóba, er liggur á leið til Hamat, þá er hann fór leiðangur til að festa ríki sitt við Efratfljót.

18:4b.1CH.018.004 Vann Davíð af honum þúsund vagna, sjö þúsund riddara og tuttugu þúsundir fótgönguliðs. Lét Davíð skera sundur hásinarnar á öllum stríðshestunum og hélt aðeins einu hundraði eftir.

18:5b.1CH.018.005 Þegar Sýrlendingar frá Damaskus komu til liðs við Hadareser, konung í Sóba, þá felldi Davíð tuttugu og tvö þúsund manns af Sýrlendingum.

18:6b.1CH.018.006 Og Davíð setti landstjóra á Sýrlandi, því er kennt er við Damaskus, og urðu Sýrlendingar skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig veitti Drottinn Davíð sigur, hvert sem hann fór.

18:7b.1CH.018.007 Davíð tók og hina gullnu skjöldu, er þjónar Hadaresers höfðu borið, og flutti til Jerúsalem.

18:8b.1CH.018.008 Auk þess tók Davíð afar mikið af eiri í Teba og Kún, borgum Hadaresers. Af því gjörði Salómon eirhafið, súlurnar og eiráhöldin.

18:9b.1CH.018.009 Þegar Tóú, konungur í Hamat, frétti að Davíð hefði lagt að velli allan her Hadaresers, konungs í Sóba,

18:10b.1CH.018.010 þá sendi Tóú Hadóram son sinn á fund Davíðs konungs til þess að heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafði barist við Hadareser og unnið sigur á honum, því að Tóú átti í ófriði við Hadareser. Og með honum sendi hann alls konar gripi af gulli, silfri og eiri.

18:11b.1CH.018.011 Gripina helgaði Davíð konungur einnig Drottni, ásamt silfri því og gulli, er hann hafði haft á burt frá öllum þjóðum: frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filistum og Amalek.

18:12b.1CH.018.012 Og Abísaí Serújuson vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, átján þúsundum manns.

18:13b.1CH.018.013 Og hann setti landstjóra í Edóm, og allir Edómítar urðu þegnar Davíðs. En Drottinn veitti Davíð sigur, hvert sem hann fór.

18:14b.1CH.018.014 Og Davíð ríkti yfir öllum Ísrael og lét alla þjóð sína njóta laga og réttar.

18:15b.1CH.018.015 Jóab Serújuson var fyrir hernum og Jósafat Ahílúðsson var ríkisritari,

18:16b.1CH.018.016 Sadók Ahítúbsson og Abímelek Abjatarsson voru prestar og Savsa kanslari.

18:17b.1CH.018.017 Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíðs voru hinir fyrstu við hönd konungi.

19

19:1b.1CH.019.001 Eftir þetta bar svo til, að Nahas Ammónítakonungur andaðist, og tók Hanún sonur hans ríki eftir hann.

19:2b.1CH.019.002 Þá sagði Davíð: "Ég vil sýna Hanún Nahassyni vináttu, því að faðir hans sýndi mér vináttu." Síðan sendi Davíð sendimenn til þess að hugga hann eftir föðurmissinn. En er þjónar Davíðs komu í land Ammóníta til Hanúns til þess að hugga hann,

19:3b.1CH.019.003 þá sögðu höfðingjar Ammóníta við Hanún: "Hyggur þú að Davíð vilji heiðra föður þinn, er hann gjörir menn á þinn fund til að hugga þig? Munu ekki þjónar hans vera komnir á þinn fund til þess að njósna í borginni og til þess að eyðileggja og kanna landið?"

19:4b.1CH.019.004 Þá lét Hanún taka þjóna Davíðs og nauðraka þá og skera af þeim klæðin til hálfs, upp á þjóhnappa, og lét þá síðan fara.

19:5b.1CH.019.005 Fóru menn þá og sögðu Davíð af mönnunum, og sendi hann þá á móti þeim - því að mennirnir voru mjög svívirtir - og konungur lét segja þeim: "Verið í Jeríkó uns skegg yðar er vaxið, og komið síðan heim aftur."

19:6b.1CH.019.006 En er Ammónítar sáu, að þeir höfðu gjört sig illa þokkaða hjá Davíð, þá sendu þeir Hanún og Ammónítar þúsund talentur silfurs til þess að leigja sér vagna og riddara hjá Sýrlendingum í Mesópótamíu og hjá Sýrlendingum í Maaka og Sóba.

19:7b.1CH.019.007 Leigðu þeir sér síðan þrjátíu og tvö þúsund vagna og konunginn í Maaka og lið hans, komu þeir og settu herbúðir fyrir framan Medeba. Og Ammónítar söfnuðust saman úr borgum sínum og komu til bardagans.

19:8b.1CH.019.008 En er Davíð frétti það, sendi hann Jóab af stað með allan kappaherinn.

19:9b.1CH.019.009 Ammónítar fóru og út og fylktu liði sínu við borgarhliðið, en konungarnir, er komnir voru, stóðu úti á víðavangi einir sér.

19:10b.1CH.019.010 Þegar Jóab sá, að honum var búinn bardagi, bæði að baki og að framan, valdi hann úr öllu einvalaliði Ísraels og fylkti því á móti Sýrlendingum.

19:11b.1CH.019.011 Hitt liðið fékk hann Abísaí bróður sínum, og fylktu þeir því á móti Ammónítum.

19:12b.1CH.019.012 Og Jóab mælti: "Ef Sýrlendingar bera mig ofurliði, þá verður þú að hjálpa mér, en ef Ammónítar bera þig ofurliði, mun ég hjálpa þér.

19:13b.1CH.019.013 Vertu hughraustur og sýnum nú af oss karlmennsku fyrir þjóð vora og borgir Guðs vors, en Drottinn gjöri það sem honum þóknast."

19:14b.1CH.019.014 Síðan lagði Jóab og liðið, sem með honum var, til orustu við Sýrlendinga, og þeir flýðu fyrir honum.

19:15b.1CH.019.015 En er Ammónítar sáu, að Sýrlendingar flýðu fyrir Jóab, lögðu þeir og á flótta fyrir Abísaí bróður hans og leituðu inn í borgina. En Jóab fór til Jerúsalem.

19:16b.1CH.019.016 Þegar Sýrlendingar sáu, að þeir höfðu beðið ósigur fyrir Ísrael, þá sendu þeir menn og buðu út Sýrlendingum, sem voru hinumegin við Efrat, og Sófak, hershöfðingi Hadaresers, var fyrir þeim.

19:17b.1CH.019.017 Og er Davíð var sagt frá því, þá safnaði hann saman öllum Ísrael, fór yfir Jórdan og kom til Helam, og fylkti í móti þeim. Sýrlendingar fylktu liði sínu í móti Davíð og börðust við hann.

19:18b.1CH.019.018 En Sýrlendingar flýðu fyrir Ísrael, og Davíð felldi sjö þúsund vagnkappa og fjörutíu þúsund manns af fótgönguliði, og Sófak hershöfðingja drap hann.

19:19b.1CH.019.019 En er þjónar Hadaresers sáu, að þeir höfðu beðið ósigur fyrir Ísrael, sömdu þeir frið við Davíð og gjörðust lýðskyldir honum. Upp frá því vildu Sýrlendingar eigi veita Ammónítum lið.

2

2:1b.1CH.002.001 Þessir voru synir Ísraels: Rúben, Símeon, Leví og Júda, Íssakar og Sebúlon,

2:2b.1CH.002.002 Dan, Jósef og Benjamín, Naftalí, Gað og Asser.

2:3b.1CH.002.003 Synir Júda: Ger, Ónan og Sela, þrír að tölu, er dóttir Súa, kanverska konan, ól honum. En Ger, frumgetinn sonur Júda, var vondur fyrir augliti Drottins, svo að Drottinn lét hann deyja.

2:4b.1CH.002.004 Tamar tengdadóttir hans ól honum Peres og Sera. Synir Júda voru alls fimm.

2:5b.1CH.002.005 Synir Peres: Hesron og Hamúl.

2:6b.1CH.002.006 Synir Sera: Simrí, Etan, Heman, Kalkól og Dara - fimm alls.

2:7b.1CH.002.007 Synir Karmí: Akar, sá er steypti Ísrael í ógæfu með því að fara sviksamlega með hið bannfærða.

2:8b.1CH.002.008 Og synir Etans: Asarja.

2:9b.1CH.002.009 Og synir Hesrons, er fæddust honum: Jerahmeel, Ram og Kelúbaí.

2:10b.1CH.002.010 Ram gat Ammínadab, og Ammínadab gat Nahson, höfuðsmann Júdamanna.

2:11b.1CH.002.011 Nahson gat Salma, Salma gat Bóas,

2:12b.1CH.002.012 Bóas gat Óbeð, Óbeð gat Ísaí.

2:13b.1CH.002.013 Ísaí gat Elíab frumgetning sinn, þá Abínadab, Símea hinn þriðja,

2:14b.1CH.002.014 Netaneel hinn fjórða, Raddaí hinn fimmta,

2:15b.1CH.002.015 Ósem hinn sjötta, Davíð hinn sjöunda.

2:16b.1CH.002.016 Og systur þeirra voru þær Serúja og Abígail, og synir Serúju voru: Abísaí, Jóab og Asahel, þrír að tölu.

2:17b.1CH.002.017 En Abígail ól Amasa, og faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti.

2:18b.1CH.002.018 Kaleb, sonur Hesrons, gat börn við Asúbu konu sinni og við Jeríót. Þessir voru synir hennar: Jeser, Sóbab og Ardon.

2:19b.1CH.002.019 Og er Asúba andaðist, gekk Kaleb að eiga Efrat og ól hún honum Húr,

2:20b.1CH.002.020 en Húr gat Úrí og Úrí gat Besaleel.

2:21b.1CH.002.021 Síðan gekk Hesron inn til dóttur Makírs, föður Gíleaðs, og tók hana sér fyrir konu. Var hann þá sextíu ára gamall. Hún ól honum Segúb.

2:22b.1CH.002.022 Og Segúb gat Jaír. Hann átti tuttugu og þrjár borgir í Gíleaðlandi.

2:23b.1CH.002.023 En Gesúrítar og Sýrlendingar tóku Jaírs-þorp frá þeim, Kenat og þorpin þar í kring, sextíu borgir alls. Allir þessir voru niðjar Makírs, föður Gíleaðs.

2:24b.1CH.002.024 Og eftir andlát Hesrons í Kaleb Efrata ól Abía kona hans honum Ashúr, föður Tekóa.

2:25b.1CH.002.025 Synir Jerahmeels, frumgetins sonar Hesrons: Ram, frumgetningurinn, og Búna, Óren, Ósem og Ahía.

2:26b.1CH.002.026 En Jerahmeel átti aðra konu, er Atara hét. Hún var móðir Ónams.

2:27b.1CH.002.027 Synir Rams, frumgetins sonar Jerahmeels: Maas, Jamín og Eker.

2:28b.1CH.002.028 Og synir Ónams voru: Sammaí og Jada; og synir Sammaí: Nadab og Abísúr.

2:29b.1CH.002.029 En kona Abísúrs hét Abíhaíl. Hún ól honum Akban og Mólíd.

2:30b.1CH.002.030 Og synir Nadabs voru: Seled og Appaím, en Seled dó barnlaus.

2:31b.1CH.002.031 Og synir Appaíms: Jíseí, og synir Jíseí: Sesan, og synir Sesans: Ahelaí.

2:32b.1CH.002.032 Og synir Jada, bróður Sammaí: Jeter og Jónatan, en Jeter dó barnlaus.

2:33b.1CH.002.033 Og synir Jónatans voru: Pelet og Sasa. Þessir voru niðjar Jerahmeels.

2:34b.1CH.002.034 Og Sesan átti enga sonu, heldur dætur einar. En Sesan átti egypskan þræl, er Jarha hét.

2:35b.1CH.002.035 Og Sesan gaf Jarha þræli sínum dóttur sína fyrir konu, og hún ól honum Attaí.

2:36b.1CH.002.036 Og Attaí gat Natan, Natan gat Sabat,

2:37b.1CH.002.037 Sabat gat Eflal, Eflal gat Óbeð,

2:38b.1CH.002.038 Óbeð gat Jehú, Jehú gat Asarja,

2:39b.1CH.002.039 Asarja gat Heles, Heles gat Eleasa,

2:40b.1CH.002.040 Eleasa gat Sísemaí, Sísemaí gat Sallúm,

2:41b.1CH.002.041 Sallúm gat Jekamja og Jekamja gat Elísama.

2:42b.1CH.002.042 Synir Kalebs, bróður Jerahmeels: Mesa, frumgetinn sonur hans - hann var faðir Sífs - svo og synir Maresa, föður Hebrons.

2:43b.1CH.002.043 Synir Hebrons voru: Kóra, Tappúa, Rekem og Sema.

2:44b.1CH.002.044 Og Sema gat Raham, föður Jorkeams, og Rekem gat Sammaí.

2:45b.1CH.002.045 En sonur Sammaí var Maon, og Maon var faðir að Bet Súr.

2:46b.1CH.002.046 Og Efa, hjákona Kalebs, ól Haran, Mósa og Gases, en Haran gat Gases.

2:47b.1CH.002.047 Synir Jehdaí: Regem, Jótam, Gesan, Pelet, Efa og Saaf.

2:48b.1CH.002.048 Maaka, hjákona Kalebs, ól Seber og Tírkana.

2:49b.1CH.002.049 Og enn ól hún Saaf, föður Madmanna, Sefa, föður Makbena og föður Gíbea, en dóttir Kalebs var Aksa.

2:50b.1CH.002.050 Þessir voru synir Kalebs. Synir Húrs, frumgetins sonar Efrata: Sóbal, faðir að Kirjat Jearím,

2:51b.1CH.002.051 Salma, faðir að Betlehem, Haref, faðir að Bet Gader.

2:52b.1CH.002.052 Og Sóbal, faðir að Kirjat Jearím, átti fyrir sonu: Haróe, hálft Menúhót

2:53b.1CH.002.053 og ættirnar frá Kirjat Jearím, svo og Jítríta, Pútíta, Súmatíta og Mísraíta. Frá þeim eru komnir Sóreatítar og Estaólítar.

2:54b.1CH.002.054 Synir Salma: Betlehem og Netófatítar, Atarót, Bet Jóab og helmingur Manatíta, það er Sóreíta,

2:55b.1CH.002.055 og ættir fræðimannanna, er búa í Jabes, Tíreatítar, Símeatítar og Súkatítar. Þetta eru Kínítar, er komnir eru frá Hammat, föður Rekabs ættar.

20

20:1b.1CH.020.001 Á næsta ári, um það leyti er konungar fara í hernað, hélt Jóab út með liðinu og herjaði land Ammóníta. Og hann kom og settist um Rabba, en Davíð dvaldist í Jerúsalem. Og Jóab vann Rabba og braut hana.

20:2b.1CH.020.002 Og Davíð tók kórónu Milkóms af höfði honum og komst að raun um, að hún vó talentu gulls, og í henni var dýrindis steinn. Davíð setti hana á höfuð sér og flutti mjög mikið herfang burt úr borginni.

20:3b.1CH.020.003 Hann flutti og burt fólkið, sem þar var, og setti það við sagirnar, járnfleygana og axirnar, og svo fór Davíð með allar borgir Ammóníta. Síðan fór Davíð ásamt öllu liðinu aftur heim til Jerúsalem.

20:4b.1CH.020.004 Seinna tókst enn orusta hjá Geser við Filista. Þá drap Sibbekaí Húsatíti Sippaí, einn af niðjum Refaíta, og urðu þeir að lúta í lægra haldi.

20:5b.1CH.020.005 Og enn tókst orusta við Filista. Þá drap Elkanan Jaírsson Lahmí, bróður Golíats frá Gat. Spjótskaft hans var sem vefjarrifur.

20:6b.1CH.020.006 Og er enn tókst orusta hjá Gat, var þar tröllaukinn maður, er hafði sex fingur á hvorri hendi og sex tær á hvorum fæti, tuttugu og fjögur að tölu. Var hann og kominn af Refaítum.

20:7b.1CH.020.007 Hann smánaði Ísrael, en Jónatan, sonur Símea, bróður Davíðs, drap hann.

20:8b.1CH.020.008 Þessir voru komnir af Refaítum í Gat, og féllu þeir fyrir Davíð og mönnum hans.

21

21:1b.1CH.021.001 Satan hófst í gegn Ísrael og egndi Davíð til þess að telja Ísrael.

21:2b.1CH.021.002 Þá mælti Davíð við Jóab og höfðingja lýðsins: "Farið og teljið Ísrael frá Beerseba til Dan og látið mig vita það, svo að ég fái að vita tölu á þeim."

21:3b.1CH.021.003 Jóab svaraði: "Drottinn margfaldi lýðinn - hversu margir sem þeir nú kunna að vera - hundrað sinnum. Þeir eru þó, minn herra konungur, allir þjónar herra míns. Hví æskir herra minn þessa? Hvers vegna á það að verða Ísrael til áfellis?"

21:4b.1CH.021.004 En Jóab mátti eigi gjöra annað en það, sem konungur bauð. Lagði Jóab þá af stað og fór um allan Ísrael og kom síðan aftur til Jerúsalem.

21:5b.1CH.021.005 Og Jóab sagði Davíð töluna, er komið hafði út við manntalið: Í öllum Ísrael voru ein milljón og hundrað þúsundir vopnaðra manna, og í Júda fjögur hundruð og sjötíu þúsundir vopnaðra manna.

21:6b.1CH.021.006 En Leví og Benjamín taldi hann eigi, því að Jóab hraus hugur við skipun konungs.

21:7b.1CH.021.007 En þetta verk var illt í augum Guðs, og laust hann Ísrael.

21:8b.1CH.021.008 Þá sagði Davíð við Guð: "Mjög hefi ég syndgað, er ég framdi þetta verk, en nú, tak þú burt misgjörð þjóns þíns, því að mjög óviturlega hefir mér til tekist."

21:9b.1CH.021.009 En Drottinn talaði til Gaðs, sjáanda Davíðs, á þessa leið:

21:10b.1CH.021.010 "Far þú og mæl svo við Davíð: Svo segir Drottinn: Þrjá kosti set ég þér, kjós einn af þeim, og mun ég svo við þig gjöra."

21:11b.1CH.021.011 Þá gekk Gað til Davíðs og sagði við hann: "Svo segir Drottinn: Kjós þér,

21:12b.1CH.021.012 annaðhvort að hungur verði í þrjú ár, eða að þú verðir að flýja í þrjá mánuði fyrir óvinum þínum og sverð fjandmanna þinna nái þér, eða að sverð Drottins og drepsótt geisi í landinu í þrjá daga og engill Drottins valdi eyðingu í öllu Ísraelslandi. Hygg nú að, hverju ég eigi að svara þeim, er sendi mig."

21:13b.1CH.021.013 Davíð svaraði Gað: "Ég er í miklum nauðum staddur. Falli ég þá í hendur Drottins, því að mikil er miskunn hans, en í manna hendur vil ég ekki falla."

21:14b.1CH.021.014 Drottinn lét þá drepsótt koma í Ísrael, og féllu sjötíu þúsundir manns af Ísrael.

21:15b.1CH.021.015 Og Guð sendi engil til Jerúsalem til þess að eyða hana, og er hann var að eyða hana, leit Drottinn til og hann iðraði hins illa, og sagði við engilinn, er eyddi fólkinu: "Nóg er að gjört! Drag nú að þér höndina!" En engill Drottins var þá hjá þreskivelli Ornans Jebúsíta.

21:16b.1CH.021.016 Og Davíð hóf upp augu sín og sá engil Drottins standa milli himins og jarðar með brugðið sverð í hendi, er hann beindi gegn Jerúsalem. Þá féll Davíð og öldungarnir fram á andlit sér, klæddir hærusekkjum.

21:17b.1CH.021.017 Og Davíð sagði við Guð: "Var það eigi ég, er bauð að telja fólkið? Það er ég, sem hefi syndgað og breytt mjög illa, en þetta er hjörð mín, - hvað hefir hún gjört? Drottinn, Guð minn, lát hönd þína leggjast á mig og ættmenn mína, en eigi á lýð þinn til þess að valda mannhruni."

21:18b.1CH.021.018 En engill Drottins bauð Gað að segja Davíð, að Davíð skyldi fara upp eftir til þess að reisa Drottni altari á þreskivelli Ornans Jebúsíta.

21:19b.1CH.021.019 Og Davíð fór upp eftir að boði Gaðs, því er hann hafði talað í nafni Drottins.

21:20b.1CH.021.020 Og er Ornan sneri sér við, sá hann konung koma og fjóra sonu hans með honum, en Ornan var að þreskja hveiti.

21:21b.1CH.021.021 Og er Davíð kom til Ornans, leit Ornan upp og sá Davíð. Gekk hann þá út af þreskivellinum og laut á ásjónu sína til jarðar fyrir Davíð.

21:22b.1CH.021.022 Þá mælti Davíð við Ornan: "Lát þú þreskivöllinn af hendi við mig, svo að ég geti reist Drottni þar altari - skalt þú selja mér það fullu verði - og plágunni megi létta af lýðnum."

21:23b.1CH.021.023 Ornan svaraði Davíð: "Tak þú það. Minn herra konungurinn gjöri sem honum þóknast. Sjá, ég gef nautin til brennifórnar og þreskisleðana til eldiviðar og hveitið til matfórnar, allt gef ég það."

21:24b.1CH.021.024 En Davíð konungur sagði við Ornan: "Eigi svo, en kaupa vil ég það fullu verði, því að eigi vil ég taka það sem þitt er Drottni til handa og færa brennifórn, er ég hefi kauplaust þegið."

21:25b.1CH.021.025 Síðan greiddi Davíð Ornan sex hundruð sikla gulls fyrir völlinn.

21:26b.1CH.021.026 Og Davíð reisti Drottni þar altari og fórnaði brennifórnum og heillafórnum, og er hann ákallaði Drottin, svaraði hann honum með því að senda eld af himnum á brennifórnaraltarið.

21:27b.1CH.021.027 Og Drottinn bauð englinum að slíðra sverð sitt.

21:28b.1CH.021.028 Þá er Davíð sá, að Drottinn svaraði honum á þreskivelli Ornans Jebúsíta, þá færði hann þar fórnir.

21:29b.1CH.021.029 En bústaður Drottins, er Móse hafði gjört í eyðimörkinni, og brennifórnaraltarið voru um það leyti á hæðinni í Gíbeon.

21:30b.1CH.021.030 En Davíð gat eigi gengið fram fyrir það til þess að leita Guðs, því að hann var hræddur við sverð engils Drottins.

22

22:1b.1CH.022.001 Og Davíð mælti: "Þetta sé hús Drottins Guðs, og þetta sé altari fyrir brennifórnir Ísraels."

22:2b.1CH.022.002 Og Davíð bauð að stefna saman útlendingum þeim, er voru í Ísraelslandi, og hann setti steinhöggvara til þess að höggva til steina, til þess að reisa af musteri Guðs.

22:3b.1CH.022.003 Davíð dró og að afar mikið af járni í nagla á hliðhurðirnar og í spengurnar, og svo mikið af eiri, að eigi varð vegið,

22:4b.1CH.022.004 og sedrustré, svo að eigi varð tölu á komið, því að Sídoningar og Týrverjar færðu Davíð afar mikið af sedrustrjám.

22:5b.1CH.022.005 Davíð hugsaði með sér: "Salómon sonur minn er ungur og óþroskaður, en musterið, er Drottni á að reisa, á að vera afar stórt, til frægðar og prýði um öll lönd. Ég ætla því að viða að til þess." Og Davíð viðaði afar miklu að fyrir andlát sitt.

22:6b.1CH.022.006 Síðan kallaði hann Salómon son sinn, og fól honum að reisa musteri Drottni, Guði Ísraels.

22:7b.1CH.022.007 Og Davíð mælti við Salómon: "Sonur minn! Ég hafði í hyggju að reisa musteri nafni Drottins, Guðs míns.

22:8b.1CH.022.008 En orð Drottins kom til mín, svolátandi: Þú hefir úthellt miklu blóði og háð miklar orustur. Þú skalt eigi reisa musteri nafni mínu, því að miklu blóði hefir þú hellt til jarðar fyrir augliti mínu.

22:9b.1CH.022.009 En þér mun sonur fæðast. Hann mun verða kyrrlátur maður, og ég mun veita honum ró fyrir öllum fjandmönnum hans allt um kring, því að Salómon skal hann heita, og ég mun veita frið og kyrrð í Ísrael um hans daga.

22:10b.1CH.022.010 Hann skal reisa musteri nafni mínu, hann skal vera mér sonur og ég honum faðir, og ég mun staðfesta konungsstól hans yfir Ísrael að eilífu.

22:11b.1CH.022.011 Drottinn sé nú með þér, sonur minn, svo að þú verðir auðnumaður og reisir musteri Drottins, Guðs þíns, eins og hann hefir um þig heitið.

22:12b.1CH.022.012 Veiti Drottinn þér aðeins hyggindi og skilning og skipi þig yfir Ísrael, og að þú megir varðveita lögmál Drottins, Guðs þíns.

22:13b.1CH.022.013 Þá munt þú auðnumaður verða, ef þú varðveitir setninga þá og boðorð og breytir eftir þeim, er Drottinn lagði fyrir Móse um Ísrael. Ver þú hughraustur og öruggur! Óttast ekki og ver hvergi hræddur.

22:14b.1CH.022.014 Sjá, þrátt fyrir þrautir mínar hefi ég dregið að til musteris Drottins hundrað þúsund talentur gulls, milljón talentur silfurs, og svo mikið af eiri og járni, að eigi verður vegið, því að afar mikið er af því. Viða og steina hefi ég einnig aflað, og mátt þú þar enn við auka.

22:15b.1CH.022.015 Með þér er og margt starfsmanna, steinhöggvarar, steinsmiðir og trésmiðir og alls konar hagleiksmenn til alls konar smíða

22:16b.1CH.022.016 af gulli, silfri, eiri og járni, er eigi verður tölu á komið. Upp nú, og tak til starfa og Drottinn sé með þér."

22:17b.1CH.022.017 Og Davíð bauð öllum höfðingjum Ísraels að liðsinna Salómon syni sínum og mælti:

22:18b.1CH.022.018 "Drottinn Guð yðar er með yður og hefir veitt yður frið allt um kring, því að hann hefir selt frumbyggja landsins mér á vald, og landið er undirokað fyrir augliti Drottins og fyrir augliti lýðs hans.

22:19b.1CH.022.019 Beinið þá hjörtum yðar og hug yðar að því að leita Drottins, Guðs yðar. Takið yður til og reisið helgidóm Drottins Guðs, svo að þér getið flutt sáttmálsörk Drottins og hin helgu áhöld Guðs í musterið, er reisa á nafni Drottins."

23

23:1b.1CH.023.001 Þá er Davíð var gamall orðinn og saddur lífdaga, gjörði hann Salómon son sinn að konungi yfir Ísrael.

23:2b.1CH.023.002 Og hann stefndi saman öllum höfðingjum Ísraels, prestunum og levítunum.

23:3b.1CH.023.003 Levítarnir voru taldir, þrítugir og þaðan af eldri, og höfðatala þeirra var þrjátíu og átta þúsund karlmenn.

23:4b.1CH.023.004 "Af þeim skulu tuttugu og fjögur þúsund vera fyrir verkum við hús Drottins, sex þúsund skulu vera embættismenn og dómarar,

23:5b.1CH.023.005 fjögur þúsund hliðverðir, og fjögur þúsund skulu lofa Drottin með áhöldum þeim, er ég hefi látið gjöra til þess að vegsama með," sagði Davíð.

23:6b.1CH.023.006 Davíð skipti þeim í flokka eftir þeim Gerson, Kahat og Merarí, Levísonum.

23:7b.1CH.023.007 Til Gersonsniðja töldust Laedan og Símeí.

23:8b.1CH.023.008 Synir Laedans voru: Jehíel, er var fyrir þeim, Setam og Jóel, þrír alls.

23:9b.1CH.023.009 Synir Símeí voru: Selómít, Hasíel og Haran, þrír alls. Voru þeir ætthöfðingjar Laedansættar.

23:10b.1CH.023.010 Og synir Símeí: Jahat, Sína, Jeús og Bería. Þessir voru synir Símeí, fjórir alls.

23:11b.1CH.023.011 Var Jahat fyrir þeim, þá Sína, en Jeús og Bería áttu eigi margt barna, svo að þeir töldust ein ætt, einn flokkur.

23:12b.1CH.023.012 Synir Kahats: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel, fjórir alls.

23:13b.1CH.023.013 Synir Amrams: Aron og Móse. En Aron var greindur frá hinum, til þess að hann skyldi verða vígður sem háheilagur ásamt sonum sínum, um aldur og ævi, til þess að þeir skyldu brenna reykelsi frammi fyrir Drottni, þjóna honum og lofa nafn hans um aldur og ævi.

23:14b.1CH.023.014 Og að því er snertir guðsmanninn Móse, þá voru synir hans taldir til Levíkynkvíslar.

23:15b.1CH.023.015 Synir Móse voru Gersóm og Elíeser.

23:16b.1CH.023.016 Sonur Gersóms: Sebúel höfðingi.

23:17b.1CH.023.017 En sonur Elíesers var Rehabja höfðingi. Aðra sonu átti Elíeser eigi, en synir Rehabja voru afar margir.

23:18b.1CH.023.018 Sonur Jísehars: Selómít höfðingi.

23:19b.1CH.023.019 Synir Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.

23:20b.1CH.023.020 Synir Ússíels: Míka höfðingi, annar Jissía.

23:21b.1CH.023.021 Synir Merarí: Mahlí og Músí. Synir Mahlí: Eleasar og Kís.

23:22b.1CH.023.022 En Eleasar dó svo, að hann átti enga sonu, heldur dætur einar, og tóku þeir Kíssynir, frændur þeirra, þær sér að konum.

23:23b.1CH.023.023 Synir Músí voru: Mahlí, Eder og Jeremót, þrír alls.

23:24b.1CH.023.024 Þessir eru þeir Levíniðjar eftir ættum þeirra, ætthöfðingjar þeir, er taldir voru af þeim, eftir nafnatölu og höfða, er höfðu það starf á hendi að þjóna í musteri Drottins, tvítugir og þaðan af eldri.

23:25b.1CH.023.025 Davíð mælti: "Drottinn, Guð Ísraels, hefir veitt lýð sínum hvíld, og býr nú að eilífu í Jerúsalem.

23:26b.1CH.023.026 Levítarnir þurfa því ekki lengur að bera búðina og öll þau áhöld, er að starfi hennar lúta."

23:27b.1CH.023.027 (Því að eftir síðustu fyrirmælum Davíðs voru levítar taldir, tvítugir og þaðan af eldri).

23:28b.1CH.023.028 Embætti þeirra er að aðstoða Aronsniðja, gegna þjónustu við musteri Drottins, hafa umsjón með forgörðunum og klefunum og ræstingu á öllum hinum helgu munum, og gegna störfunum við hús Guðs,

23:29b.1CH.023.029 annast um raðsettu brauðin, hveitimjölið í matfórnirnar, hin ósýrðu flatbrauð, pönnuna og hið samanhrærða, og hvers konar mæli og stiku,

23:30b.1CH.023.030 og að koma fram á hverjum morgni til þess að lofa og vegsama Drottin, og eins á kveldin,

23:31b.1CH.023.031 og að færa Drottni hverja brennifórn á hvíldardögum, tunglkomudögum og löghátíðum, allar þær, sem ákveðið er að stöðugt skuli færa Drottni.

23:32b.1CH.023.032 Hafa þeir störf á hendi við samfundatjaldið og störf við helgidóminn og störf hjá Aronsniðjum, frændum sínum, við þjónustuna í musteri Drottins.

24

24:1b.1CH.024.001 Aronsniðjar höfðu og flokkaskipun fyrir sig. Synir Arons voru: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.

24:2b.1CH.024.002 En Nadab og Abíhú dóu á undan föður sínum og áttu eigi sonu, og urðu svo þeir Eleasar og Ítamar prestar.

24:3b.1CH.024.003 Og þeir Davíð og Sadók af Eleasarsniðjum og Ahímelek af Ítamarsniðjum skiptu þeim niður í starfsflokka eftir embættum þeirra.

24:4b.1CH.024.004 En það kom í ljós, að af Eleasarsniðjum voru fleiri höfðingjar en af Ítamarsniðjum. Fyrir því skiptu menn þeim svo, að af Eleasarsniðjum urðu sextán ætthöfðingjar, en átta af Ítamarsniðjum.

24:5b.1CH.024.005 Og hvorum tveggja skiptu menn eftir hlutkesti, því að helgidómshöfðingjar og Guðs höfðingjar voru af niðjum Eleasars og af niðjum Ítamars.

24:6b.1CH.024.006 Og Semaja Netaneelsson ritari, einn af levítum, skráði þá í viðurvist konungs og höfðingjanna og Sadóks prests og Ahímeleks Abjatarssonar og ætthöfðingja prestanna og levítanna. Var ein ætt tekin frá af Eleasar og ein af Ítamar.

24:7b.1CH.024.007 Fyrsti hluturinn féll á Jójaríb, annar á Jedaja,

24:8b.1CH.024.008 þriðji á Harím, fjórði á Seórím,

24:9b.1CH.024.009 fimmti á Malkía, sjötti á Mijamín,

24:10b.1CH.024.010 sjöundi á Hakkos, áttundi á Abía,

24:11b.1CH.024.011 níundi á Jesúa, tíundi á Sekanja,

24:12b.1CH.024.012 ellefti á Eljasíb, tólfti á Jakím,

24:13b.1CH.024.013 þrettándi á Húppa, fjórtándi á Jesebeab,

24:14b.1CH.024.014 fimmtándi á Bilga, sextándi á Immer,

24:15b.1CH.024.015 seytjándi á Hesír, átjándi á Happísses,

24:16b.1CH.024.016 nítjándi á Pelashja, tuttugasti á Jeheskel,

24:17b.1CH.024.017 tuttugasti og fyrsti á Jakín, tuttugasti og annar á Gamúl,

24:18b.1CH.024.018 tuttugasti og þriðji á Delaja, tuttugasti og fjórði á Maasja.

24:19b.1CH.024.019 Er það starfskvöð þeirra að fara inn í musteri Drottins, eftir þeim reglum, er Aron forfaðir þeirra hafði sett, samkvæmt því, er Drottinn, Guð Ísraels, hafði boðið honum.

24:20b.1CH.024.020 En að því er snertir aðra niðja Leví, þá voru af Amramsniðjum Súbael, af Súbaelsniðjum Jehdeja,

24:21b.1CH.024.021 af Rehabja, af Rehabjaniðjum Jissía höfðingi,

24:22b.1CH.024.022 af Jíseharítum Selómót, af Selómótsniðjum Jahat,

24:23b.1CH.024.023 en af niðjum Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.

24:24b.1CH.024.024 Niðjar Ússíels voru: Míka, af niðjum Míka var Samír.

24:25b.1CH.024.025 Bróðir Míka var Jissía, af niðjum Jissía var Sakaría.

24:26b.1CH.024.026 Niðjar Merarí voru Mahlí og Músí og niðjar Jaasía, sonar hans.

24:27b.1CH.024.027 Niðjar Merarí frá Jaasía syni hans voru: Sóham, Sakkúr og Íbrí.

24:28b.1CH.024.028 Frá Mahlí var Eleasar kominn. Hann átti eigi sonu.

24:29b.1CH.024.029 Frá Kís: Synir Kís: Jerahmeel.

24:30b.1CH.024.030 Niðjar Músí voru: Mahlí, Eder og Jerímót. Þessir voru niðjar levíta eftir ættum þeirra.

24:31b.1CH.024.031 Þeir vörpuðu og hlutkesti, eins og frændur þeirra, Aronsniðjar, í viðurvist Davíðs konungs og Sadóks og Ahímeleks og ætthöfðingja prestanna og levítanna, ætthöfðingjarnir eins og yngri frændur þeirra.

25

25:1b.1CH.025.001 Þeir Davíð og hershöfðingjarnir tóku og frá til þjónustu niðja Asafs, Hemans og Jedútúns, er að spámannahætti lofuðu Guð með gígjum, hörpum og skálabumbum. Og tala þeirra, er starf höfðu við þessa þjónustu, var:

25:2b.1CH.025.002 Af Asafsniðjum: Sakkúr, Jósef, Netanja og Asarela, synir Asafs, undir stjórn Asafs, er lék eins og spámaður eftir fyrirsögn konungs.

25:3b.1CH.025.003 Af Jedútún: Synir Jedútúns: Gedalja, Serí, Jesaja, Hasabja, Mattitja, Símeí, sex alls, undir stjórn Jedútúns föður síns, er lék á gígju eins og spámaður, þá er lofa skyldi Drottin og vegsama hann.

25:4b.1CH.025.004 Af Heman: Synir Hemans: Búkkía, Mattanja, Ússíel, Sebúel, Jerímót, Hananja, Hananí, Elíata, Giddaltí, Rómamtí Eser, Josbekasa, Mallótí, Hótír, Mahasíót.

25:5b.1CH.025.005 Allir þessir voru synir Hemans, sjáanda konungs, er horn skyldu hefja að boði Guðs. Og Guð gaf Heman fjórtán sonu og þrjár dætur.

25:6b.1CH.025.006 Allir þessir voru við sönginn í musteri Drottins undir stjórn föður þeirra með skálabumbur, hörpur og gígjur til þess að gegna þjónustu í musteri Guðs undir forustu konungs, Asafs, Jedútúns og Hemans.

25:7b.1CH.025.007 Og talan á þeim og frændum þeirra, er lærðir voru í ljóðum Drottins, og allir voru vel að sér, var tvö hundruð áttatíu og átta.

25:8b.1CH.025.008 Og þeir vörpuðu hlutkesti um starfið, yngri sem eldri, kennarar sem lærisveinar.

25:9b.1CH.025.009 Fyrsti hlutur fyrir Asaf féll á Jósef, sonu hans og bræður, tólf alls, annar á Gedalja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:10b.1CH.025.010 þriðji á Sakkúr, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:11b.1CH.025.011 fjórði á Jísrí, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:12b.1CH.025.012 fimmti á Netanja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:13b.1CH.025.013 sjötti á Búkkía, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:14b.1CH.025.014 sjöundi á Jesarela, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:15b.1CH.025.015 áttundi á Jesaja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:16b.1CH.025.016 níundi á Mattanja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:17b.1CH.025.017 tíundi á Símeí, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:18b.1CH.025.018 ellefti á Asareel, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:19b.1CH.025.019 tólfti á Hasabja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:20b.1CH.025.020 þrettándi á Súbael, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:21b.1CH.025.021 fjórtándi á Mattitja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:22b.1CH.025.022 fimmtándi á Jeremót, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:23b.1CH.025.023 sextándi á Hananja, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:24b.1CH.025.024 seytjándi á Josbekasa, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:25b.1CH.025.025 átjándi á Hananí, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:26b.1CH.025.026 nítjándi á Mallótí, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:27b.1CH.025.027 tuttugasti á Elíjata, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:28b.1CH.025.028 tuttugasti og fyrsti á Hótír, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:29b.1CH.025.029 tuttugasti og annar á Giddaltí, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:30b.1CH.025.030 tuttugasti og þriðji á Mahasíót, sonu hans og bræður, tólf alls,

25:31b.1CH.025.031 tuttugasti og fjórði á Rómamtí Eser, sonu hans og bræður, tólf alls.

26

26:1b.1CH.026.001 Að því er snertir hliðvarðaflokkana, þá voru þar af Kóraítum: Meselemja Kóreson af Asafsniðjum.

26:2b.1CH.026.002 En synir Meselemja voru: Sakaría, frumgetningurinn, annar Jedíael, þriðji Sebadja, fjórði Jatníel,

26:3b.1CH.026.003 fimmti Elam, sjötti Jóhanan, sjöundi Elíóenaí.

26:4b.1CH.026.004 Synir Óbeð Edóms voru: Semaja, frumgetningurinn, annar Jósabad, þriðji Jóa, fjórði Sakar, fimmti Netaneel,

26:5b.1CH.026.005 sjötti Ammíel, sjöundi Íssakar, áttundi Pegúlletaí, því að Guð hafði blessað hann.

26:6b.1CH.026.006 En Semaja, syni hans, fæddust og synir, er réðu í ættum sínum, því að þeir voru hinir röskustu menn.

26:7b.1CH.026.007 Synir Semaja voru: Otní, Refael, Óbeð og Elsabat. Bræður þeirra voru Elíhú og Semakja, dugandi menn.

26:8b.1CH.026.008 Allir þessir voru af niðjum Óbeð Edóms, þeir og synir þeirra og bræður, dugandi menn, vel hæfir til þjónustunnar, sextíu og tveir alls frá Óbeð Edóm.

26:9b.1CH.026.009 Meselemja átti og sonu og bræður, dugandi menn, átján alls.

26:10b.1CH.026.010 Synir Hósa, er var af Meraríniðjum, voru: Simrí höfðingi; þótt eigi væri hann frumgetningurinn, þá gjörði faðir hans hann að höfðingja;

26:11b.1CH.026.011 annar Hilkía, þriðji Tebalja, fjórði Sakaría. Synir og bræður Hósa voru þrettán alls.

26:12b.1CH.026.012 Þessum hliðvarðaflokkum eftir ætthöfðingjum hlotnaðist starf við þjónustuna í húsi Drottins, þeim sem frændum þeirra.

26:13b.1CH.026.013 Og menn vörpuðu hlutkesti um hvert hlið fyrir sig, eftir ættum, yngri sem eldri.

26:14b.1CH.026.014 Fyrir hliðið gegnt austri féll hluturinn á Selemja. Menn vörpuðu og hlutkesti fyrir Sakaría son hans, hygginn ráðgjafa, og féll hans hlutur á hliðið gegnt norðri,

26:15b.1CH.026.015 fyrir Óbeð Edóm gegnt suðri, og fyrir son hans á geymsluhúsið,

26:16b.1CH.026.016 fyrir Súppím og Hósa gegnt vestri við Sallekethliðið, við götuna, sem liggur upp eftir, hver varðstöðin við aðra.

26:17b.1CH.026.017 Við hliðið gegnt austri voru sex levítar, gegnt norðri fjórir dag hvern, gegnt suðri fjórir dag hvern, og við geymsluhúsið tveir og tveir.

26:18b.1CH.026.018 Við Parbar gegnt vestri: fjórir fyrir götuna, tveir fyrir Parbar.

26:19b.1CH.026.019 Þessir eru hliðvarðaflokkarnir af Kóraítaniðjum og af Meraríniðjum.

26:20b.1CH.026.020 Levítar frændur þeirra höfðu umsjón með fjársjóðum Guðs húss og með helgigjafafjársjóðunum.

26:21b.1CH.026.021 Niðjar Laedans, niðjar Gersoníta, Laedans, ætthöfðingjar Laedansættar Gersoníta, Jehíelítar,

26:22b.1CH.026.022 niðjar Jehíelíta, Setam og Jóel bróðir hans höfðu umsjón með fjársjóðum í húsi Drottins.

26:23b.1CH.026.023 Að því er snertir Amramíta, Jíseharíta, Hebroníta og Ússíelíta,

26:24b.1CH.026.024 þá var Sebúel Gersómsson, Mósesonar, yfirumsjónarmaður yfir fjársjóðunum.

26:25b.1CH.026.025 Og að því er snertir frændur þeirra frá Elíeser, þá var Rehabja sonur hans, hans son Jesaja, hans son Jóram, hans son Sikrí, hans son Selómít.

26:26b.1CH.026.026 Höfðu þeir Selómít þessi og bræður hans umsjón með öllum helgigjafafjársjóðunum, þeim er Davíð konungur og ætthöfðingjarnir, þúsundhöfðingjarnir og hundraðshöfðingjarnir og herforingjarnir höfðu helgað -

26:27b.1CH.026.027 úr ófriði og af herfangi höfðu þeir helgað það til þess að endurbæta með musteri Drottins,

26:28b.1CH.026.028 og allt, er Samúel sjáandi, Sál Kísson, Abner Nersson og Jóab Serújuson höfðu helgað, allt hið helgaða, var undir umsjón Selómíts og bræðra hans.

26:29b.1CH.026.029 Af Jíseharítum höfðu þeir Kenanja og synir hans á hendi hin veraldlegu störf í Ísrael, sem embættismenn og dómarar.

26:30b.1CH.026.030 Af Hebronítum höfðu þeir Hasabja og frændur hans, dugandi menn, seytján hundruð alls, á hendi stjórnarstörf Ísraels hérna megin Jórdanar, að vestanverðu. Stóðu þeir fyrir öllum störfum Drottins og þjónustu konungs.

26:31b.1CH.026.031 Til Hebroníta taldist Jería, höfðingi Hebroníta eftir kyni þeirra og ættum - voru þeir kannaðir á fertugasta ríkisári Davíðs, og fundust meðal þeirra hinir röskustu menn í Jaser í Gíleað -

26:32b.1CH.026.032 og frændur hans, röskir menn, tvö þúsund og sjö hundruð ætthöfðingjar alls. Setti Davíð konungur þá yfir Rúbensniðja, Gaðsniðja og hálfa kynkvísl Manasseniðja, að því er snertir öll erindi Guðs og erindi konungsins.

27

27:1b.1CH.027.001 Þessir eru Ísraelsmenn eftir tölu þeirra, ætthöfðingjar, þúsundhöfðingjar, hundraðshöfðingjar og starfsmenn þeirra, er þjónuðu konungi í öllum flokkastörfum, er komu og fóru mánuð eftir mánuð, alla mánuði ársins. Voru í flokki hverjum tuttugu og fjögur þúsund manns.

27:2b.1CH.027.002 Yfir fyrsta flokki, í fyrsta mánuði, var Jasóbeam Sabdíelsson, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:3b.1CH.027.003 Var hann af Peresniðjum og fyrir öllum herforingjum í fyrsta mánuði.

27:4b.1CH.027.004 Yfir flokki annars mánaðarins var Eleasar Dódaíson, Ahóhíti. Fyrir flokki hans var höfðinginn Miklót, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:5b.1CH.027.005 Þriðji hershöfðinginn, í þriðja mánuðinum, var Benaja, sonur Jójada prests, höfðingi, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:6b.1CH.027.006 Var Benaja þessi kappi meðal þeirra þrjátíu og fyrir þeim þrjátíu. Var Ammísabad sonur hans fyrir flokki hans.

27:7b.1CH.027.007 Fjórði var Asahel, bróðir Jóabs, fjórða mánuðinn, og eftir hann Sebadja sonur hans. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:8b.1CH.027.008 Fimmti hershöfðinginn var Samhút Jísraíti, fimmta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:9b.1CH.027.009 Sjötti var Íra Íkkesson frá Tekóa, sjötta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:10b.1CH.027.010 Sjöundi var Heles Pelóníti af Efraímsniðjum, sjöunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:11b.1CH.027.011 Áttundi var Sibbekaí Húsatíti af Seraítum, áttunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:12b.1CH.027.012 Níundi var Abíeser frá Anatót af Benjamínsniðjum, níunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:13b.1CH.027.013 Tíundi var Maharaí frá Netófa af Seraítum, tíunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:14b.1CH.027.014 Ellefti var Benaja frá Píraton af Efraímsniðjum, ellefta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:15b.1CH.027.015 Tólfti var Heldaí frá Netófa af ætt Otníels, tólfta mánuðinn, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.

27:16b.1CH.027.016 Þessir voru yfir kynkvíslum Ísraels: Af Rúbensniðjum var höfðingi Elíeser Síkríson. Af Símeonsniðjum Sefatja Maakason.

27:17b.1CH.027.017 Af Leví Hasabja Kemúelsson. Af Aron Sadók.

27:18b.1CH.027.018 Af Júda Elíhú, einn af bræðrum Davíðs. Af Íssakar Omrí Míkaelsson.

27:19b.1CH.027.019 Af Sebúlon Jismaja Óbadíason. Af Naftalí Jerímót Asríelsson.

27:20b.1CH.027.020 Af Efraímsniðjum Hósea Asasjason. Af hálfri Manassekynkvísl Jóel Pedajason.

27:21b.1CH.027.021 Af hálfri Manassekynkvísl í Gíleað Íddó Sakaríason. Af Benjamín Jaasíel Abnersson.

27:22b.1CH.027.022 Af Dan Asareel Jeróhamsson. Þessir voru höfðingjar Ísraelskynkvísla.

27:23b.1CH.027.023 En Davíð lét ekki telja þá, er yngri voru en tvítugir, því að Drottinn hafði heitið því að gjöra Ísraelsmenn marga sem stjörnur himins.

27:24b.1CH.027.024 Hafði Jóab Serújuson byrjað á að telja, en eigi lokið við, því að sakir þessa kom reiði yfir Ísrael, og talan var eigi skráð með tölunum í árbókum Davíðs konungs.

27:25b.1CH.027.025 Asmavet Adíelsson hafði umsjón með fjársjóðum konungs og Jónatan Ússíasson með eignunum á mörkinni, í borgunum, þorpunum og köstulunum.

27:26b.1CH.027.026 Esrí Kelúbsson hafði umsjón með jarðyrkjumönnum, er störfuðu að akuryrkju,

27:27b.1CH.027.027 Símeí frá Rama yfir víngörðunum, og Sabdí Sifmíti yfir vínforðanum í víngörðunum,

27:28b.1CH.027.028 Baal Hanan frá Geder yfir olíutrjánum og mórberjatrjánum á láglendinu og Jóas yfir olíuforðanum.

27:29b.1CH.027.029 Yfir nautunum, er gengu á Saron, hafði Sítraí frá Saron umsjón, yfir nautunum, er gengu í dölunum, Safat Adlaíson,

27:30b.1CH.027.030 yfir úlföldunum Óbíl Ísmaelíti, yfir ösnunum Jehdeja frá Merónót,

27:31b.1CH.027.031 yfir sauðfénaðinum Jasis Hagríti. Allir þessir voru umráðamenn yfir eignum Davíðs konungs.

27:32b.1CH.027.032 Jónatan, föðurbróðir Davíðs, var ráðgjafi. Var hann vitur maður og fróður. Jehíel Hakmóníson var með sonum konungs,

27:33b.1CH.027.033 Akítófel var ráðgjafi konungs og Húsaí Arkíti var stallari konungs.

27:34b.1CH.027.034 Næstur Akítófel gekk Jójada Benajason og Abjatar. Jóab var hershöfðingi konungs.

28

28:1b.1CH.028.001 Davíð stefndi til Jerúsalem öllum höfðingjum Ísraels, höfðingjum fyrir kynkvíslunum og flokkshöfðingjunum, þeim er konungi þjónuðu, þúsundhöfðingjunum og hundraðshöfðingjunum og ráðsmönnum yfir öllum eignum og fénaði konungs og sona hans, og auk þess hirðmönnunum og köppunum og öllum röskum mönnum.

28:2b.1CH.028.002 Þá stóð Davíð konungur upp og mælti: "Hlustið á mig, þér bræður mínir og lýður minn! Ég hafði í hyggju að reisa hvíldarstað fyrir sáttmálsörk Drottins og fyrir fótskör Guðs vors, og dró að föng til byggingarinnar.

28:3b.1CH.028.003 En Guð sagði við mig: ,Þú skalt eigi reisa hús nafni mínu, því að þú ert bardagamaður og hefir úthellt blóði.'

28:4b.1CH.028.004 Drottinn Guð Ísraels kaus mig af allri ætt minni, að ég skyldi ævinlega vera konungur yfir Ísrael. Því að Júda hefir hann kjörið til þjóðhöfðingja, og í ættkvísl Júda ætt mína, og meðal sona föður míns þóknaðist honum að gjöra mig að konungi yfir öllum Ísrael.

28:5b.1CH.028.005 Og af öllum sonum mínum - því að Drottinn hefir gefið mér marga sonu - kaus hann Salómon son minn, að hann skyldi sitja á konungsstóli Drottins yfir Ísrael.

28:6b.1CH.028.006 Hann sagði við mig: ,Salómon sonur þinn, hann skal reisa musteri mitt og forgarða mína, því að hann hefi ég kjörið mér fyrir son, og ég vil vera honum faðir.

28:7b.1CH.028.007 Og ég mun staðfesta konungdóm hans að eilífu, ef hann stöðugt heldur boð mín og fyrirskipanir, eins og nú.'

28:8b.1CH.028.008 Og nú, að öllum Ísrael ásjáanda, frammi fyrir söfnuði Drottins og í áheyrn Guðs vors: Varðveitið kostgæfilega öll boðorð Drottins, Guðs yðar, að þér megið eiga þetta góða land og láta það ganga að erfðum til niðja yðar um aldur og ævi.

28:9b.1CH.028.009 Og þú, Salómon, sonur minn, lær að þekkja Guð föður þíns og þjóna honum af öllu hjarta og með fúsu geði, því að Drottinn rannsakar öll hjörtu og þekkir allar hugrenningar. Ef þú leitar hans, mun hann gefa þér kost á að finna sig; ef þú yfirgefur hann, mun hann útskúfa þér um aldur.

28:10b.1CH.028.010 Gæt nú að, því að Drottinn hefir kjörið þig til þess að reisa helgidómshús. Gakk öruggur að verki."

28:11b.1CH.028.011 Síðan fékk Davíð Salómon syni sínum fyrirmynd að forsalnum og herbergjum hans, fjárhirslum, loftherbergjum, innherbergjum og arkarherberginu,

28:12b.1CH.028.012 svo og fyrirmynd að öllu því, er hann hafði í huga: að forgörðum musteris Drottins og herbergjunum allt í kring, féhirslum Guðs húss og fjárhirslunum fyrir helgigjafirnar,

28:13b.1CH.028.013 áætlun um flokka prestanna og levítanna og öll embættisstörf í musteri Drottins, og um öll þjónustuáhöld í musteri Drottins,

28:14b.1CH.028.014 og áætlun um þyngd gullsins, sem á þurfti að halda í öll áhöld við hvers konar embættisstörf; og um þyngd silfuráhaldanna, sem á þurfti að halda við hvers konar embættisstörf;

28:15b.1CH.028.015 og um efnið í gullstjakana og gulllampana, er á þeim voru, eftir þyngd hvers stjaka og lampa hans; og um efnið í silfurstjakana eftir þyngd hvers stjaka og lampa hans, eftir því sem hver stjaki var ætlaður til;

28:16b.1CH.028.016 og um þyngd gullsins í hvert af borðunum fyrir raðsettu brauðin; og um silfrið í silfurborðin;

28:17b.1CH.028.017 og um þyngd soðkrókanna og fórnarskálanna og bollanna úr skíru gulli og þyngd gullbikaranna og silfurbikaranna, hvers fyrir sig;

28:18b.1CH.028.018 og um þyngd reykelsisaltarisins úr hreinsuðu gulli. Og hann fékk honum fyrirmynd að vagninum, gullkerúbunum, er breiddu út vængina og huldu sáttmálsörk Drottins.

28:19b.1CH.028.019 "Allt þetta," kvað Davíð, "er skráð í riti frá hendi Drottins. Hann hefir frætt mig um öll störf, er vinna á eftir fyrirmyndinni."

28:20b.1CH.028.020 Síðan mælti Davíð við Salómon son sinn: "Ver hughraustur og öruggur og kom þessu til framkvæmdar. Óttast ekki og lát eigi hugfallast, því að Drottinn Guð, Guð minn, mun vera með þér. Hann mun eigi sleppa af þér hendinni og eigi yfirgefa þig, uns lokið er öllum störfum til þjónustugjörðar í musteri Drottins.

28:21b.1CH.028.021 Hér eru og prestaflokkar og levíta til alls konar þjónustu við musteri Guðs, og hjá þér eru menn til alls konar starfa, verkhyggnir menn, fúsir til allra starfa, og enn fremur hlýða höfðingjarnir og allur lýðurinn öllum skipunum þínum."

29

29:1b.1CH.029.001 Davíð konungur mælti til alls safnaðarins: "Salómon sonur minn, hinn eini, er Guð hefir kjörið, er ungur og óreyndur, en starfið er mikið, því að eigi er musteri þetta manni ætlað, heldur Drottni Guði.

29:2b.1CH.029.002 Ég hefi af öllum mætti dregið að fyrir musteri Guðs míns, gull í gulláhöldin, silfur í silfuráhöldin, eir í eiráhöldin, járn í járnáhöldin og tré í tréáhöldin, sjóamsteina og steina til að greypa inn, gljásteina og mislita steina, alls konar dýra steina og afar mikið af alabastursteinum.

29:3b.1CH.029.003 Enn fremur vil ég, sakir þess að ég hefi mætur á musteri Guðs míns, gefa það, er ég á af gulli og silfri, til musteris Guðs míns, auk alls þess, er ég hefi dregið að fyrir helgidóminn:

29:4b.1CH.029.004 Þrjú þúsund talentur af gulli og það af Ófírgulli, sjö þúsund talentur af skíru silfri til þess að klæða með veggina í herbergjunum

29:5b.1CH.029.005 og til þess að útvega gull í gulláhöldin og silfur í silfuráhöldin, og til alls konar listasmíða. Hver er nú fús til þess að færa Drottni ríflega fórnargjöf í dag?"

29:6b.1CH.029.006 Þá kváðust ætthöfðingjarnir, höfðingjar kynkvísla Ísraels, þúsundhöfðingjarnir og hundraðshöfðingjarnir og ráðsmennirnir yfir störfum í konungsþjónustu vera fúsir til þess,

29:7b.1CH.029.007 og þeir gáfu til Guðs húss fimm þúsund talentur gulls, tíu þúsund Daríus-dali, tíu þúsund talentur silfurs, átján þúsund talentur eirs og hundrað þúsund talentur járns.

29:8b.1CH.029.008 Og hver sá, er átti gimsteina, gaf þá í féhirslu húss Drottins, er Jehíel Gersoníti hafði umsjón yfir.

29:9b.1CH.029.009 Þá gladdist lýðurinn yfir örlæti þeirra, því að þeir höfðu af heilum hug fært Drottni sjálfviljagjafir, og Davíð konungur gladdist einnig stórum.

29:10b.1CH.029.010 Þá lofaði Davíð Drottin, að öllum söfnuðinum ásjáanda, og Davíð mælti: "Lofaður sért þú, Drottinn, Guð Ísraels, forföður vors, frá eilífð til eilífðar.

29:11b.1CH.029.011 Þín, Drottinn, er tignin, mátturinn og dýrðin, vegsemdin og hátignin, því að allt er þitt, á himni og jörðu. Þinn er konungdómurinn, Drottinn, og sá, er gnæfir yfir alla sem höfðingi.

29:12b.1CH.029.012 Auðlegðin og heiðurinn koma frá þér; þú drottnar yfir öllu, máttur og megin er í hendi þinni, og á þínu valdi er það, að gjöra hvern sem vera skal mikinn og máttkan.

29:13b.1CH.029.013 Og nú, Guð vor, vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.

29:14b.1CH.029.014 Því að hvað er ég, og hvað er lýður minn, að vér skulum vera færir um að gefa svo mikið sjálfviljuglega? Nei, frá þér er allt, og af þínu höfum vér fært þér gjöf.

29:15b.1CH.029.015 Því að vér erum aðkomandi og útlendingar fyrir þér, eins og allir feður vorir. Sem skuggi eru dagar vorir á jörðunni, og engin er vonin.

29:16b.1CH.029.016 Drottinn, Guð vor, öll þessi auðæfi, er vér höfum dregið að til þess að reisa þér - þínu heilaga nafni - hús, frá þér eru þau og allt er það þitt.

29:17b.1CH.029.017 Og ég veit, Guð minn, að þú rannsakar hjartað og hefir þóknun á hreinskilni. Ég hefi með hreinum hug og sjálfviljuglega gefið allt þetta, og ég hefi með gleði horft á, hversu lýður þinn, sem hér er, færir þér sjálfviljagjafir.

29:18b.1CH.029.018 Drottinn, Guð feðra vorra, Abrahams, Ísaks og Jakobs, varðveit þú slíkar hugrenningar í hjarta lýðs þíns að eilífu, og bein hjörtum þeirra til þín.

29:19b.1CH.029.019 En gef þú Salómon syni mínum einlægt hjarta, að hann megi varðveita boðorð þín, vitnisburði og fyrirskipanir, og að hann megi gjöra allt þetta og reisa musterið, er ég hefi dregið að föng til."

29:20b.1CH.029.020 Síðan mælti Davíð til alls safnaðarins: "Lofið Drottin, Guð yðar!" Lofaði þá allur söfnuðurinn Drottin, Guð feðra sinna, hneigðu sig og lutu Drottni og konungi.

29:21b.1CH.029.021 Næsta morgun færðu þeir Drottni sláturfórn og færðu honum í brennifórn: þúsund naut, þúsund hrúta og þúsund lömb, og drykkjarfórnir, er við áttu, svo og sláturfórnir í ríkum mæli fyrir allan Ísrael.

29:22b.1CH.029.022 Átu þeir svo og drukku frammi fyrir Drottni þann dag í miklum fagnaði og tóku Salómon, son Davíðs, öðru sinni til konungs og smurðu hann þjóðhöfðingja Drottni til handa, en Sadók til prests.

29:23b.1CH.029.023 Sat Salómon þannig sem konungur Drottins í hásæti í stað Davíðs föður síns og var auðnumaður, og allir Ísraelsmenn hlýddu honum.

29:24b.1CH.029.024 Og allir höfðingjarnir og kapparnir, svo og allir synir Davíðs konungs, hylltu Salómon konung.

29:25b.1CH.029.025 Og Drottinn gjörði Salómon mjög vegsamlegan í augum allra Ísraelsmanna og veitti honum tignarmikinn konungdóm, svo að enginn konungur í Ísrael hafði slíkan haft á undan honum.

29:26b.1CH.029.026 Davíð Ísaíson ríkti yfir öllum Ísrael.

29:27b.1CH.029.027 En sá tími, er hann ríkti yfir Ísrael, var fjörutíu ár. Í Hebron ríkti hann sjö ár, en í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú.

29:28b.1CH.029.028 Dó hann í góðri elli, saddur lífdaga, auðæfa og sæmdar, og tók Salómon sonur hans ríki eftir hann.

29:29b.1CH.029.029 En saga Davíðs konungs frá upphafi til enda er skráð í Sögu Samúels sjáanda, svo og í Sögu Natans spámanns og í Sögu Gaðs sjáanda.

29:30b.1CH.029.030 Þar er og sagt frá öllum konungdómi hans og hreystiverkum svo og atburðum þeim, er fyrir hann komu og fyrir Ísrael og öll ríki landanna.

3

3:1b.1CH.003.001 Þessir eru synir Davíðs, er hann eignaðist í Hebron: Ammon, frumgetningurinn, við Akínóam frá Jesreel; annar var Daníel, við Abígail frá Karmel;

3:2b.1CH.003.002 hinn þriðji Absalon, sonur Maöku, dóttur Talmaí konungs í Gesúr; hinn fjórði Adónía, sonur Haggítar;

3:3b.1CH.003.003 hinn fimmti Sefatja, við Abítal; hinn sjötti Jitream, við Eglu, konu sinni.

3:4b.1CH.003.004 Sex fæddust honum í Hebron. Þar ríkti hann sjö ár og sex mánuði, en í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú ár.

3:5b.1CH.003.005 Og þessa eignaðist hann í Jerúsalem: Símea, Sóbab, Natan og Salómon - fjóra alls - við Batsúa Ammíelsdóttur,

3:6b.1CH.003.006 enn fremur Jíbhar, Elísama, Elífelet,

3:7b.1CH.003.007 Nóga, Nefeg, Jafía,

3:8b.1CH.003.008 Elísama, Eljada, Elífelet - níu alls.

3:9b.1CH.003.009 Þetta eru allir synir Davíðs, að hjákvennasonum eigi meðtöldum. En systir þeirra var Tamar.

3:10b.1CH.003.010 Sonur Salómons var Rehabeam, hans son var Abía, hans son Asa, hans son Jósafat,

3:11b.1CH.003.011 hans son Jóram, hans son Ahasía, hans son Jóas,

3:12b.1CH.003.012 hans son Amasía, hans son Asaría, hans son Jótam,

3:13b.1CH.003.013 hans son Akas, hans son Hiskía, hans son Manasse,

3:14b.1CH.003.014 hans son Amón, hans son Jósía.

3:15b.1CH.003.015 Og synir Jósía voru: Jóhanan, frumgetningurinn, annar Jójakím, þriðji Sedekía, fjórði Sallúm.

3:16b.1CH.003.016 Og synir Jójakíms: Jekonja, sonur hans; hans son var Sedekía.

3:17b.1CH.003.017 Synir Jekonja, hins herleidda: Sealtíel, sonur hans,

3:18b.1CH.003.018 Malkíram, Pedaja, Seneassar, Jekamja, Hósama og Nedabja.

3:19b.1CH.003.019 Synir Pedaja voru: Serúbabel og Símeí, og synir Serúbabels: Mesúllam og Hananja. Systir þeirra var Selómít.

3:20b.1CH.003.020 Og enn fremur Hasúba, Óhel, Berekía, Hasadja, Júsab Hesed - fimm alls.

3:21b.1CH.003.021 Synir Hananja voru: Pelatja og Jesaja, synir Refaja, synir Arnans, synir Óbadía, synir Sekanja.

3:22b.1CH.003.022 Synir Sekanja voru: Semaja, og synir Semaja: Hattúa, Jígeal, Baría, Nearja og Safat - sex alls.

3:23b.1CH.003.023 Synir Nearja voru: Eljóenaí, Hiskía, Asríkam - þrír alls.

3:24b.1CH.003.024 En synir Eljóenaí voru: Hódavja, Eljasíb, Pelaja, Akkúb, Jóhanan, Delaja, Ananí - sjö alls.

4

4:1b.1CH.004.001 Synir Júda: Peres, Hesron, Karmí, Húr og Sóbal.

4:2b.1CH.004.002 En Reaja, sonur Sóbals, gat Jahat, Jahat gat Ahúmaí og Lahad. Þetta eru ættir Sóreatíta.

4:3b.1CH.004.003 Þessir voru synir Etams: Jesreel, Jisma, Jídbas, en systir þeirra hét Haselelpóní.

4:4b.1CH.004.004 Enn fremur Penúel, faðir Gedórs, og Eser, faðir Húsa. Þetta eru synir Húrs, frumburðar Efrata, föður að Betlehem.

4:5b.1CH.004.005 Ashúr, faðir að Tekóa, átti tvær konur, Heleu og Naeru.

4:6b.1CH.004.006 Og Naera ól honum Ahússam, Hefer, Temní og Ahastaríta. Þetta eru synir Naeru.

4:7b.1CH.004.007 Og synir Heleu voru: Seret, Jísehar og Etnam.

4:8b.1CH.004.008 En Kós gat Anúb, Sóbeba og ættir Aharhels, sonar Harúms.

4:9b.1CH.004.009 En Jaebes var fyrir bræðrum sínum, og móðir hans nefndi hann Jaebes og mælti: "Ég hefi alið hann með harmkvælum."

4:10b.1CH.004.010 Og Jaebes ákallaði Guð Ísraels og mælti: "Blessa þú mig og auk landi við mig, og verði hönd þín með mér, og bæg þú ógæfunni frá mér, svo að engin harmkvæli komi yfir mig." Og Guð veitti honum það, sem hann bað um.

4:11b.1CH.004.011 En Kelúb, bróðir Súha, gat Mehír. Hann er faðir Estóns.

4:12b.1CH.004.012 En Estón gat Bet Rafa, Pasea og Tehinna, föður að borg Nahasar; þetta eru Rekamenn.

4:13b.1CH.004.013 Synir Kenas: Otníel og Seraja. Og synir Otníels: Hatat.

4:14b.1CH.004.014 En Meonotaí gat Ofra, og Seraja gat Jóab, föður að Smiðadal, því að þeir voru smiðir.

4:15b.1CH.004.015 Synir Kalebs Jefúnnesonar: Írú, Ela og Naam; synir Ela: Kenas.

4:16b.1CH.004.016 Synir Jehalelels: Síf, Sífa, Tirja og Asareel.

4:17b.1CH.004.017 Synir Esra: Jeter, Mered, Efer og Jalon. Og þessir eru synir Bitju, dóttur Faraós, er gekk að eiga Mered: Hún ól Mirjam, Sammaí og Jísba, föður Estemóa.

4:18b.1CH.004.018 En kona hans, er var frá Júda, ól Jered, föður að Gedór, og Heber, föður að Sókó, og Jekútíel, föður að Sanóa.

4:19b.1CH.004.019 Synir konu Hódía, systur Nahams: faðir Kegílu, Garmíta, Estemóa og Maakatíta.

4:20b.1CH.004.020 Synir Símons: Amnon, Rinna, Ben Hanan og Tílon; og synir Jíseí: Sóhet og sonur Sóhets.

4:21b.1CH.004.021 Synir Sela, sonar Júda: Ger, faðir Leka, Laeda, faðir Maresa, og ættir baðmullarverkmannanna frá Bet Asbea,

4:22b.1CH.004.022 enn fremur Jókím og mennirnir frá Kóseba, Jóas og Saraf, er unnu Móab og Jasúbí Lehem. Þetta eru fornar sögur.

4:23b.1CH.004.023 Þeir voru leirkerasmiðir og byggðu Netaím og Gedera. Hjá konungi, við þjónustu hans, þar bjuggu þeir.

4:24b.1CH.004.024 Synir Símeons: Nemúel, Jamín, Jaríb, Sera, Sál.

4:25b.1CH.004.025 Hans sonur var Sallúm, hans son Mibsam, hans son Misma.

4:26b.1CH.004.026 Og synir Misma voru: Hammúel, sonur hans, hans son Sakkúr, hans son Símeí.

4:27b.1CH.004.027 Símeí átti sextán sonu og sex dætur, en bræður hans áttu eigi margt barna, og ætt þeirra varð eigi svo fjölmenn sem Júdamenn.

4:28b.1CH.004.028 Þeir bjuggu í Beerseba, Mólada, Hasar Súal,

4:29b.1CH.004.029 Bílha, Esem, Tólad,

4:30b.1CH.004.030 Betúel, Harma, Siklag,

4:31b.1CH.004.031 Bet Markabót, Hasar Súsím, Bet Bíreí og Saaraím. Þetta voru borgir þeirra, þangað til Davíð tók ríki.

4:32b.1CH.004.032 Og þorp þeirra voru: Etam, Ain, Rimmon, Tóken og Asan - fimm borgir,

4:33b.1CH.004.033 og auk þess öll þau þorp, er lágu kringum borgir þessar, allt til Baal. Þetta voru bústaðir þeirra, og höfðu þeir ættartal fyrir sig.

4:34b.1CH.004.034 Mesóbab, Jamlek, Jósa, sonur Amasja,

4:35b.1CH.004.035 Jóel, Jehú, sonur Jósíbja, Serajasonar, Asíelssonar,

4:36b.1CH.004.036 og Eljóenaí, Jaakoba, Jesóhaja, Asaja, Adíel, Jesímíel og Benaja,

4:37b.1CH.004.037 Sísa, sonur Sífeí, Allonssonar, Jedajasonar, Simrísonar, Semajasonar;

4:38b.1CH.004.038 þessir menn sem hér eru nafngreindir, voru höfðingjar í ættum sínum, og hafa ættir þeirra orðið mjög fjölmennar.

4:39b.1CH.004.039 Og þeir fóru þaðan, er leið liggur til Gedór, allt þar til kemur austur fyrir dalinn, til þess að leita haglendis fyrir sauði sína.

4:40b.1CH.004.040 Og þeir fundu feitt og gott haglendi, og landrými var þar mikið, og rólegt var þar og friðsamlegt, því að þeir, er áður höfðu byggt þar, voru komnir af Kam.

4:41b.1CH.004.041 Þá komu þeir, sem hér eru nafngreindir, á dögum Hiskía Júdakonungs, eyddu tjöldum þeirra og drápu Meúníta, sem þar voru, og gjöreyddu þeim allt fram á þennan dag og bjuggu þar eftir þá, því að þar var haglendi fyrir sauði þeirra.

4:42b.1CH.004.042 Og af þeim Símeonsniðjum fóru fimm hundruð manns til Seírfjalla, og voru þeir Pelatja, Nearja, Refaja og Ússíel, synir Jíseí, fyrir þeim.

4:43b.1CH.004.043 Drápu þeir hinar síðustu leifar Amalekíta og bjuggu þar allt fram á þennan dag.

5

5:1b.1CH.005.001 Synir Rúbens, frumgetnings Ísraels - því að frumgetningurinn var hann, en er hann hafði flekkað hvílu föður síns, var frumgetningsrétturinn veittur sonum Jósefs, sonar Ísraels (þó skyldu þeir eigi teljast frumgetnir í ættartölum);

5:2b.1CH.005.002 því að Júda var voldugastur bræðra sinna, og einn af niðjum hans varð höfðingi, en frumgetningsréttinn fékk Jósef -

5:3b.1CH.005.003 synir Rúbens, frumgetins sonar Ísraels, voru Hanok, Pallú, Hesron og Karmí.

5:4b.1CH.005.004 Synir Jóels: Semaja, sonur hans, hans son var Góg, hans son Símeí,

5:5b.1CH.005.005 hans son Míka, hans son Reaja, hans son Baal,

5:6b.1CH.005.006 hans son Beera, er Tílgat Pilneser Assýríukonungur herleiddi. Hann var höfðingi fyrir Rúbensniðjum.

5:7b.1CH.005.007 Og frændur hans eftir ættum þeirra, eins og þeir voru skráðir í ættartölum eftir uppruna þeirra, voru: Hinn fyrsti var Jeíel, þá Sakaría

5:8b.1CH.005.008 og Bela Asasson, Semasonar, Jóelssonar. Hann bjó í Aróer og allt að Nebó og Baal Meon.

5:9b.1CH.005.009 Og gegnt austri bjó hann allt að eyðimörkinni, er liggur í vestur frá Efratfljóti, því að þeir áttu hjarðir miklar í Gíleaðlandi.

5:10b.1CH.005.010 En á dögum Sáls áttu þeir í ófriði við Hagríta, og er Hagrítar voru fallnir fyrir þeim, settust þeir að í tjöldum þeirra, er voru með allri austurhlið Gíleaðs.

5:11b.1CH.005.011 Niðjar Gaðs bjuggu andspænis þeim í Basanlandi, allt til Salka.

5:12b.1CH.005.012 Var Jóel helstur þeirra, þá Safam og Jaenaí og Safat í Basan.

5:13b.1CH.005.013 Og frændur þeirra eftir ættum þeirra voru: Míkael, Mesúllam, Seba, Jóraí, Jaekan, Sía og Eber, sjö alls.

5:14b.1CH.005.014 Þessir eru synir Abíhaíls, Húrísonar, Jaróasonar, Gíleaðssonar, Míkaelssonar, Jesísaísonar, Jahdósonar, Bússonar.

5:15b.1CH.005.015 Var Ahí Abdíelsson, Gúnísonar, ætthöfðingi þeirra.

5:16b.1CH.005.016 Og þeir bjuggu í Gíleað, í Basan og þorpunum umhverfis, og í öllum beitilöndum Sarons, svo langt sem þau náðu.

5:17b.1CH.005.017 Þessir allir voru skráðir á dögum Jótams Júdakonungs og á dögum Jeróbóams Ísraelskonungs.

5:18b.1CH.005.018 Rúbensniðjar, Gaðsniðjar og hálf kynkvísl Manasse, þeir er hraustir menn voru, báru skjöld og sverð, bentu boga og kunnu að hernaði, fjörutíu og fjögur þúsund, sjö hundruð og sextíu herfærir menn,

5:19b.1CH.005.019 áttu í ófriði við Hagríta og við Jetúr, Nafís og Nódab.

5:20b.1CH.005.020 Og þeir fengu liðveislu gegn þeim, og Hagrítar og allir bandamenn þeirra gáfust þeim á vald. Því að meðan á bardaganum stóð, höfðu þeir hrópað til Guðs um hjálp, og bænheyrði hann þá, af því að þeir treystu honum.

5:21b.1CH.005.021 Höfðu þeir burt með sér að herfangi hjarðir þeirra, fimmtíu þúsund úlfalda, tvö hundruð og fimmtíu þúsund sauði, tvö þúsund asna og hundrað þúsund manns.

5:22b.1CH.005.022 Því að margir voru þeir, er voru lagðir sverði og féllu, því að ófriðurinn var háður að Guðs ráði. Bjuggu þeir þar eftir þá fram til herleiðingar.

5:23b.1CH.005.023 Þeir, er tilheyrðu hálfri Manassekynkvísl, bjuggu í landinu frá Basan til Baal Hermon og til Seír og Hermonfjalls. Voru þeir fjölmennir,

5:24b.1CH.005.024 og voru þessir ætthöfðingjar þeirra: Efer, Jíseí, Elíel, Asríel, Jeremía, Hódavja og Jahdíel. Voru þeir kappar miklir og nafnkunnir menn, höfðingjar í ættum sínum.

5:25b.1CH.005.025 En er þeir sýndu ótrúmennsku Guði feðra sinna og tóku fram hjá með guðum þjóðflokka þeirra, er fyrir voru í landinu, en Guð hafði eytt fyrir þeim,

5:26b.1CH.005.026 þá æsti Guð Ísraels reiði Púls Assýríukonungs og reiði Tílgat Pilnesers, Assýríukonungs, og herleiddi hann Rúbensniðja, Gaðsniðja og hálfa kynkvísl Manasse og flutti þá til Hala, Habór, Hara og Gósanfljóts, og er svo enn í dag.

6

6:1b.1CH.006.001 Synir Leví: Gersom, Kahat og Merarí.

6:2b.1CH.006.002 Og synir Kahats: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel.

6:3b.1CH.006.003 Og synir Amrams: Aron, Móse og Mirjam. Og synir Arons: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.

6:4b.1CH.006.004 Eleasar gat Pínehas, Pínehas gat Abísúa,

6:5b.1CH.006.005 Abísúa gat Búkkí, Búkkí gat Ússí,

6:6b.1CH.006.006 Ússí gat Serahja, Serahja gat Merajót,

6:7b.1CH.006.007 Merajót gat Amarja, Amarja gat Ahítúb,

6:8b.1CH.006.008 Ahítúb gat Sadók, Sadók gat Akímaas,

6:9b.1CH.006.009 Akímaas gat Asarja, Asarja gat Jóhanan,

6:10b.1CH.006.010 Jóhanan gat Asarja, hann sem var prestur í musterinu, er Salómon byggði í Jerúsalem.

6:11b.1CH.006.011 En Asarja gat Amarja, Amarja gat Ahítúb,

6:12b.1CH.006.012 Ahítúb gat Sadók, Sadók gat Sallúm,

6:13b.1CH.006.013 Sallúm gat Hilkía, Hilkía gat Asarja,

6:14b.1CH.006.014 Asarja gat Seraja, Seraja gat Jósadak.

6:15b.1CH.006.015 En Jósadak fór burt, þegar Drottinn lét Nebúkadnesar herleiða Júdamenn og Jerúsalembúa.

6:16b.1CH.006.016 Synir Leví: Gersom, Kahat og Merarí.

6:17b.1CH.006.017 Og þessi eru nöfn á sonum Gersoms: Libní og Símeí.

6:18b.1CH.006.018 Og synir Kahats voru: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel.

6:19b.1CH.006.019 Synir Merarí: Mahelí og Músí. Og þessar eru ættir Levíta eftir ættfeðrum þeirra.

6:20b.1CH.006.020 Frá Gersom eru komnir: Libní, sonur hans, hans son Jahat, hans son Simma,

6:21b.1CH.006.021 hans son Jóa, hans son Íddó, hans son Sera, hans son Jeatraí.

6:22b.1CH.006.022 Synir Kahats: Ammínadab, sonur hans, hans son Kóra, hans son Assír,

6:23b.1CH.006.023 hans son Elkana, hans son Ebjasaf, hans son Assír,

6:24b.1CH.006.024 hans son Tahat, hans son Úríel, hans son Ússía, hans son Sál.

6:25b.1CH.006.025 Og synir Elkana: Amasaí og Ahímót,

6:26b.1CH.006.026 hans sonur Elkana, hans son Sofaí, hans son Nahat,

6:27b.1CH.006.027 hans son Elíab, hans son Jeróham, hans son Elkana.

6:28b.1CH.006.028 Og synir Samúels voru: Jóel, frumgetningurinn, og hinn annar Abía.

6:29b.1CH.006.029 Synir Merarí: Mahelí, hans son var Libní, hans son Símeí, hans son Ússa,

6:30b.1CH.006.030 hans son Símea, hans son Haggía, hans son Asaja.

6:31b.1CH.006.031 Þessir eru þeir, er Davíð skipaði til söngs í húsi Drottins, er örkin hafði fundið hæli.

6:32b.1CH.006.032 Þjónuðu þeir við sönginn fyrir dyrum samfundatjalds-búðarinnar, uns Salómon reisti musteri Drottins í Jerúsalem, og gegndu þeir þjónustu sinni eftir reglum þeim, er fyrir þá voru lagðar.

6:33b.1CH.006.033 Þessir eru þeir, er þjónustu þessari gegndu og synir þeirra: Af sonum Kahatíta: Heman, söngvarinn, Jóelsson, Samúelssonar,

6:34b.1CH.006.034 Elkanasonar, Jeróhamssonar, Elíelssonar, Tóasonar,

6:35b.1CH.006.035 Súfssonar, Elkanasonar, Mahatssonar, Amasaísonar,

6:36b.1CH.006.036 Elkanasonar, Jóelssonar, Asaríasonar, Sefaníasonar,

6:37b.1CH.006.037 Tahatssonar, Assírssonar, Ebjasafssonar, Kórasonar,

6:38b.1CH.006.038 Jíseharssonar, Kahatssonar, Levísonar, Ísraelssonar.

6:39b.1CH.006.039 Bróðir hans var Asaf, er stóð honum til hægri handar, Asaf Berekíason, Símeasonar,

6:40b.1CH.006.040 Míkaelssonar, Baasejasonar, Malkíasonar,

6:41b.1CH.006.041 Etnísonar, Serasonar, Adajasonar,

6:42b.1CH.006.042 Etanssonar, Simmasonar, Simmeísonar,

6:43b.1CH.006.043 Jahatssonar, Gersomssonar, Levísonar.

6:44b.1CH.006.044 Og bræður þeirra, synir Merarí, stóðu til vinstri handar: Etan Kísíson, Abdísonar, Mallúkssonar,

6:45b.1CH.006.045 Hasabjasonar, Amasjasonar, Hilkíasonar,

6:46b.1CH.006.046 Amsísonar, Banísonar, Semerssonar,

6:47b.1CH.006.047 Mahelísonar, Músísonar, Merarísonar, Levísonar.

6:48b.1CH.006.048 Og bræður þeirra, levítarnir, voru settir yfir alla þjónustuna við musterisbústað Guðs.

6:49b.1CH.006.049 En Aron og synir hans fórnuðu á brennifórnaraltarinu og reykelsisaltarinu og önnuðust öll störf í Hinu allrahelgasta og að friðþægja fyrir Ísrael - að öllu leyti eins og Móse, þjónn Guðs, hafði fyrirskipað.

6:50b.1CH.006.050 Og þessir eru synir Arons: Eleasar, sonur hans, hans son Pínehas, hans son Abísúa,

6:51b.1CH.006.051 hans son Búkkí, hans son Ússí, hans son Serahja,

6:52b.1CH.006.052 hans son Merajót, hans son Amaría, hans son Ahítúb,

6:53b.1CH.006.053 hans son Sadók, hans son Akímaas.

6:54b.1CH.006.054 Þetta eru bústaðir þeirra, taldir eftir tjaldbúðum í héraði þeirra: Niðjum Arons, ætt Kahatíta - því að fyrsti hluturinn hlotnaðist þeim -

6:55b.1CH.006.055 gáfu þeir Hebron í Júdalandi og beitilandið umhverfis hana.

6:56b.1CH.006.056 En akurland borgarinnar og þorpin, er að henni lágu, gáfu þeir Kaleb Jefúnnesyni.

6:57b.1CH.006.057 En sonum Arons gáfu þeir griðastaðinn Hebron, enn fremur Líbna og beitilandið, er að henni lá, Jattír og Estamóa og beitilandið, er að henni lá,

6:58b.1CH.006.058 Hólon og beitilandið, er að henni lá, Debír og beitilandið, er að henni lá,

6:59b.1CH.006.059 Asan og beitilandið, er að henni lá, og Bet Semes og beitilandið, er að henni lá.

6:60b.1CH.006.060 Og frá Benjamínsættkvísl: Geba og beitilandið, er að henni lá, Allemet og beitilandið, er að henni lá, og Anatót og beitilandið, er að henni lá. Alls voru borgir þeirra þrettán, og beitilöndin, er að þeim lágu.

6:61b.1CH.006.061 Aðrir synir Kahats fengu tíu borgir eftir hlutkesti frá ættum Efraímskynkvíslar og Danskynkvíslar og frá hálfri Manassekynkvísl.

6:62b.1CH.006.062 En synir Gersoms fengu þrettán borgir eftir ættum þeirra frá Íssakarskynkvísl, Asserskynkvísl, Naftalíkynkvísl og frá Manassekynkvísl í Basan.

6:63b.1CH.006.063 Synir Merarí fengu eftir hlutkesti tólf borgir eftir ættum þeirra, frá Rúbenskynkvísl, Gaðskynkvísl og frá Sebúlonskynkvísl.

6:64b.1CH.006.064 Þannig gáfu Ísraelsmenn levítum borgirnar og beitilöndin, er að þeim lágu,

6:65b.1CH.006.065 og þeir gáfu eftir hlutkesti frá kynkvísl Júdasona, frá kynkvísl Símeonssona og frá kynkvísl Benjamínssona þessar borgir, sem þeir nafngreindu.

6:66b.1CH.006.066 Og að því er snertir ættir þeirra Kahatssona, þá fengu þeir borgir þær, er þeim hlotnuðust, frá Efraímskynkvísl.

6:67b.1CH.006.067 Og þeir gáfu þeim griðastaðinn Síkem og beitilandið, er að henni lá, á Efraímfjöllum, enn fremur Geser og beitilandið, er að henni lá,

6:68b.1CH.006.068 Jokmeam og beitilandið, er að henni lá, Bet Hóron og beitilandið, er að henni lá,

6:69b.1CH.006.069 Ajalon og beitilandið, er að henni lá, og Gat Rimmon og beitilandið, er að henni lá.

6:70b.1CH.006.070 Og frá hálfri Manassekynkvísl: Aner og beitilandið, er að henni lá, og Jíbleam og beitilandið, er að henni lá - fyrir ættir hinna Kahatssona.

6:71b.1CH.006.071 Synir Gersoms fengu frá ætt hálfrar Manassekynkvíslar: Gólan í Basan og beitilandið, er að henni lá, og Astarót og beitilandið, er að henni lá.

6:72b.1CH.006.072 Og frá Íssakarskynkvísl: Kedes og beitilandið, er að henni lá, Dabrat og beitilandið, er að henni lá,

6:73b.1CH.006.073 Ramót og beitilandið, er að henni lá, og Anem og beitilandið, er að henni lá.

6:74b.1CH.006.074 Og frá Asserskynkvísl: Masal og beitilandið, er að henni lá, Abdón og beitilandið, er að henni lá,

6:75b.1CH.006.075 Húkok og beitilandið, er að henni lá, og Rehób og beitilandið, er að henni lá.

6:76b.1CH.006.076 Og frá Naftalíkynkvísl: Kedes í Galíl og beitilandið, er að henni lá, Hammót og beitilandið, er að henni lá, og Kirjataím og beitilandið, er að henni lá.

6:77b.1CH.006.077 Þeir synir Merarí, er enn voru eftir, fengu frá Sebúlonskynkvísl: Rimmónó og beitilandið, er að henni lá, og Tabór og beitilandið, er að henni lá.

6:78b.1CH.006.078 Og hinumegin Jórdanar, gegnt Jeríkó, fyrir austan Jórdan, fengu þeir frá Rúbenskynkvísl: Beser í eyðimörkinni og beitilandið, er að henni lá, Jahsa og beitilandið, er að henni lá,

6:79b.1CH.006.079 Kedemót og beitilandið, er að henni lá, og Mefaat og beitilandið, er að henni lá.

6:80b.1CH.006.080 Og frá Gaðskynkvísl: Ramót í Gíleað og beitilandið, er að henni lá, Mahanaím og beitilandið, er að henni lá,

6:81b.1CH.006.081 Hesbon og beitilandið, er að henni lá, og Jaser og beitilandið, er að henni lá.

7

7:1b.1CH.007.001 Synir Íssakars: Tóla, Púa, Jasúb og Simron - fjórir alls.

7:2b.1CH.007.002 Synir Tóla: Ússí, Refaja, Jeríel, Jahemaí, Jíbsam og Samúel. Voru þeir höfðingjar í ættum sínum í Tóla, kappar miklir í ættum sínum; voru þeir á dögum Davíðs tuttugu og tvö þúsund og sex hundruð að tölu.

7:3b.1CH.007.003 Synir Ússí voru: Jísrahja; synir Jísrahja: Míkael, Óbadía, Jóel, Jissía, alls fimm ætthöfðingjar.

7:4b.1CH.007.004 Og til þeirra töldust eftir ættum þeirra, eftir frændliði þeirra, hermannasveitir, þrjátíu og sex þúsund manns, því að þeir áttu margar konur og börn.

7:5b.1CH.007.005 Og frændur þeirra, allar ættir Íssakars, voru kappar miklir. Töldust þeir alls vera áttatíu og sjö þúsundir.

7:6b.1CH.007.006 Synir Benjamíns: Bela, Beker, Jedíael - þrír alls.

7:7b.1CH.007.007 Og synir Bela: Esbón, Ússí, Ússíel, Jerímót og Írí, fimm alls. Voru þeir ætthöfðingjar og kappar miklir, og töldust þeir að vera tuttugu og tvö þúsund þrjátíu og fjórir.

7:8b.1CH.007.008 Og synir Bekers: Semíra, Jóas, Elíeser, Eljóenaí, Omrí, Jeremót, Abía, Anatót og Alemet. Allir þessir voru synir Bekers.

7:9b.1CH.007.009 Og þeir töldust eftir ættum sínum, ætthöfðingjum sínum, er voru kappar miklir, tuttugu þúsund og tvö hundruð.

7:10b.1CH.007.010 Og synir Jedíaels: Bílhan; og synir Bílhans: Jeús, Benjamín, Ehúð, Kenaana, Setan, Tarsis og Ahísahar.

7:11b.1CH.007.011 Allir þessir voru synir Jedíaels, ætthöfðingjar, kappar miklir, seytján þúsund og tvö hundruð vígra manna.

7:12b.1CH.007.012 Súppím og Húppím voru synir Írs, en Húsím sonur Akers.

7:13b.1CH.007.013 Synir Naftalí: Jahsíel, Gúní, Jeser og Sallúm, synir Bílu.

7:14b.1CH.007.014 Synir Manasse: Asríel, er kona hans ól. Hin sýrlenska hjákona hans ól Makír, föður Gíleaðs.

7:15b.1CH.007.015 Og Makír tók konu handa Húppím og Súppím, en systir hans hét Maaka. Hinn annar hét Selófhað, og Selófhað átti dætur.

7:16b.1CH.007.016 Og Maaka, kona Makírs, ól son og nefndi hann Peres. En bróðir hans hét Seres, og synir hans voru Úlam og Rekem.

7:17b.1CH.007.017 Og synir Úlams: Bedan. Þessir eru synir Gíleaðs Makírssonar, Manassesonar.

7:18b.1CH.007.018 En Hammóleket systir hans ól Íshód, Abíeser og Mahela.

7:19b.1CH.007.019 Og synir Semída voru: Ahjan, Sekem, Líkhí og Aníam.

7:20b.1CH.007.020 Synir Efraíms: Sútela, hans son var Bered, hans son Tahat, hans son Eleada, hans son Tahat,

7:21b.1CH.007.021 hans son Sóbad, hans son Sútela, Eser og Elead, en Gat-menn, þeir er fæddir voru í landinu, drápu þá, er þeir fóru til þess að ræna hjörðum þeirra.

7:22b.1CH.007.022 Þá harmaði Efraím faðir þeirra lengi, og bræður hans komu til þess að hugga hann.

7:23b.1CH.007.023 Og hann gekk inn til konu sinnar, og hún varð þunguð og ól son, og hann nefndi hann Bería, því að ógæfu hafði að borið í húsi hans.

7:24b.1CH.007.024 En dóttir hans var Seera. Hún byggði neðri og efri Bet Hóron og Ússen Seera.

7:25b.1CH.007.025 Og sonur hans var Refa og Resef. Hans son var Tela, hans son Tahan,

7:26b.1CH.007.026 hans son Laedan, hans son Ammíhúd, hans son Elísama,

7:27b.1CH.007.027 hans son Nún, hans son Jósúa.

7:28b.1CH.007.028 Óðal þeirra og bústaðir voru: Betel og þorpin umhverfis, austur að Naaran og vestur að Geser og þorpunum umhverfis, enn fremur Síkem og þorpin umhverfis til Aja og þorpanna umhverfis.

7:29b.1CH.007.029 Og í höndum Manassesona voru: Bet Sean og þorpin umhverfis, Taana og þorpin umhverfis, Megiddó og þorpin umhverfis, Dór og þorpin umhverfis. Þar bjuggu synir Jósefs, sonar Ísraels.

7:30b.1CH.007.030 Synir Assers: Jímna, Jísva, Jísví og Bería, og systir þeirra var Seera.

7:31b.1CH.007.031 Og synir Bería: Heber og Malkíel. Hann er faðir Birsaíts.

7:32b.1CH.007.032 En Heber gat Jaflet, Semer, Hótam og Súu, systur þeirra.

7:33b.1CH.007.033 Og synir Jaflets: Pasak, Bímehal og Asvat. Þessir voru synir Jaflets.

7:34b.1CH.007.034 Og synir Semers: Ahí, Róhga, Húbba og Aram.

7:35b.1CH.007.035 Og synir Helems, bróður hans: Sófa, Jímna, Seles og Amal.

7:36b.1CH.007.036 Synir Sófa voru: Súa, Harnefer, Súal, Berí, Jímra,

7:37b.1CH.007.037 Beser, Hód, Samma, Silsa, Jítran og Beera.

7:38b.1CH.007.038 Og synir Jeters: Jefúnne, Pispa og Ara.

7:39b.1CH.007.039 Og synir Úlla: Ara, Hanníel og Risja.

7:40b.1CH.007.040 Allir þessir voru synir Assers, ætthöfðingjar, frábærir kappar, höfðingjar meðal þjóðhöfðingja. Töldust þeir, er skráðir voru til herþjónustu, tuttugu og sex þúsundir manns.

8

8:1b.1CH.008.001 Benjamín gat Bela, frumgetning sinn, annan Asbel, þriðja Ahra,

8:2b.1CH.008.002 fjórða Nóha, fimmta Rafa.

8:3b.1CH.008.003 Og Bela átti að sonum: Addar, Gera, Abíhúd,

8:4b.1CH.008.004 Abísúa, Naaman, Ahóa,

8:5b.1CH.008.005 Gera, Sefúfan og Húram.

8:6b.1CH.008.006 Þessir voru synir Ehúðs - þessir voru ætthöfðingjar Gebabúa, og þeir herleiddu þá til Manahat,

8:7b.1CH.008.007 og Naaman, Ahía og Gera, hann herleiddi þá - hann gat Ússa og Ahíhúd.

8:8b.1CH.008.008 Saharaím gat í Móabslandi, er hann hafði rekið þær frá sér, Húsím og Baöru konur sínar -

8:9b.1CH.008.009 þá gat hann við Hódes konu sinni: Jóbab, Síbja, Mesa, Malkam,

8:10b.1CH.008.010 Jeús, Sokja og Mirma. Þessir voru synir hans, ætthöfðingjar.

8:11b.1CH.008.011 Og við Húsím gat hann Abítúb og Elpaal.

8:12b.1CH.008.012 Og synir Elpaals voru: Eber, Míseam og Semer. Hann byggði Ónó og Lód og þorpin umhverfis.

8:13b.1CH.008.013 Bería og Sema - þeir voru ætthöfðingjar Ajalonbúa, þeir ráku burt íbúana í Gat -

8:14b.1CH.008.014 og Elpaal bróðir hans og Sasak og Jeremót.

8:15b.1CH.008.015 Sebadja, Arad, Eder,

8:16b.1CH.008.016 Míkael, Jispa og Jóha voru synir Bería.

8:17b.1CH.008.017 Sebadja, Mesúllam, Hiskí, Heber,

8:18b.1CH.008.018 Jísmeraí, Jíslía og Jóbab voru synir Elpaals.

8:19b.1CH.008.019 Jakím, Síkrí, Sabdí,

8:20b.1CH.008.020 Elíenaí, Silletaí, Elíel,

8:21b.1CH.008.021 Adaja, Beraja og Simrat voru synir Símeí.

8:22b.1CH.008.022 Jíspan, Eber, Elíel,

8:23b.1CH.008.023 Abdón, Síkrí, Hanan,

8:24b.1CH.008.024 Hananja, Elam, Antótía,

8:25b.1CH.008.025 Jífdeja og Penúel voru synir Sasaks.

8:26b.1CH.008.026 Samseraí, Seharja, Atalja,

8:27b.1CH.008.027 Jaaresja, Elía og Síkrí voru synir Jeróhams.

8:28b.1CH.008.028 Þessir voru ætthöfðingjar í ættum sínum, höfðingjar. Þeir bjuggu í Jerúsalem.

8:29b.1CH.008.029 Í Gíbeon bjuggu: Jegúel, faðir að Gíbeon, og kona hans hét Maaka.

8:30b.1CH.008.030 Frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Súr, Kís, Baal, Ner, Nadab,

8:31b.1CH.008.031 Gedór, Ahjó og Seker.

8:32b.1CH.008.032 En Míklót gat Símea. Einnig þeir bjuggu andspænis bræðrum sínum, hjá bræðrum sínum í Jerúsalem.

8:33b.1CH.008.033 Ner gat Kís, og Kís gat Sál, og Sál gat Jónatan, Malkísúa, Abínadab og Esbaal.

8:34b.1CH.008.034 Og sonur Jónatans var Meríbaal, og Meríbaal gat Míka,

8:35b.1CH.008.035 og synir Míka voru: Píton, Melek, Tarea og Akas.

8:36b.1CH.008.036 En Akas gat Jóadda, Jóadda gat Alemet, Asmavet og Simrí. Simrí gat Mósa,

8:37b.1CH.008.037 Mósa gat Bínea, hans son var Rafa, hans son Eleasa, hans son Asel.

8:38b.1CH.008.038 En Asel átti sex sonu. Þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía og Hanan. Allir þessir voru synir Asels.

8:39b.1CH.008.039 Synir Eseks bróður hans voru: Úlam, frumgetningurinn, annar Jeús, þriðji Elífelet.

8:40b.1CH.008.040 Og synir Úlams voru kappar miklir, bogmenn góðir og áttu marga sonu og sonasonu, hundrað og fimmtíu alls. Allir þessir heyra til Benjamínssona.

9

9:1b.1CH.009.001 Allir Ísraelsmenn voru skráðir í ættartölur. Eru þeir ritaðir í bók Ísraelskonunga. Og Júdamenn voru herleiddir til Babel sakir ótrúmennsku þeirra.

9:2b.1CH.009.002 En hinir fyrri íbúar, er voru í landeign þeirra og borgum, voru Ísraelsmenn, prestarnir, levítarnir og musterisþjónarnir.

9:3b.1CH.009.003 Og í Jerúsalem bjuggu menn af Júdasonum, Benjamínssonum, Efraímssonum og Manassesonum:

9:4b.1CH.009.004 Útaí Ammíhúdsson, Omrísonar, Imrísonar, Banísonar, er var af niðjum Peres, sonar Júda.

9:5b.1CH.009.005 Og af Sílónítum: Asaja, frumgetningurinn og synir hans.

9:6b.1CH.009.006 Og af niðjum Sera: Jegúel. Og bræður þeirra voru sex hundruð og níutíu alls.

9:7b.1CH.009.007 Af Benjamínítum: Sallúm Mesúllamsson, Hódavjasonar, Hassenúasonar,

9:8b.1CH.009.008 enn fremur Jíbneja Jeróhamsson, Ela Ússíson, Míkrísonar, Mésúllam Sefatjason, Regúelssonar, Jíbnejasonar,

9:9b.1CH.009.009 og bræður þeirra eftir ættum þeirra, níu hundruð fimmtíu og sex alls. Allir þessir menn voru ætthöfðingjar í ættum sínum.

9:10b.1CH.009.010 Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín

9:11b.1CH.009.011 og Asarja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfuðsmaður yfir musteri Guðs.

9:12b.1CH.009.012 Enn fremur Adaja Jeróhamsson, Pashúrssonar, Malkíasonar, og Maesí Adíelsson, Jahserasonar, Mesúllamssonar, Mesillemítssonar, Immerssonar.

9:13b.1CH.009.013 Og bræður þeirra, ætthöfðingjar, voru alls eitt þúsund, sjö hundruð og sextíu, dugandi menn til þess að gegna þjónustu við musteri Guðs.

9:14b.1CH.009.014 Af levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, af Meraríniðjum.

9:15b.1CH.009.015 Enn fremur Bakbakkar, Heres, Galal, Mattanja Míkason, Síkrísonar, Asafssonar,

9:16b.1CH.009.016 og Óbadía Semajason, Galalssonar, Jedútúnssonar og Berekía Asason, Elkanasonar, er bjó í þorpum Netófatíta.

9:17b.1CH.009.017 Hliðverðirnir: Sallúm, Akkúb, Talmon og Ahíman og bræður þeirra. Var Sallúm æðstur,

9:18b.1CH.009.018 og gætir hann enn konungshliðsins gegnt austri. Þetta eru hliðverðirnir í hópi levíta.

9:19b.1CH.009.019 En Sallúm Kóreson, Ebjasafssonar, Kórasonar, og bræður hans, er voru af ætt hans, Kóraítarnir, höfðu þjónustu á hendi, þar sem þeir gættu þröskulda tjaldsins. Höfðu feður þeirra gætt dyranna í herbúðum Drottins,

9:20b.1CH.009.020 og var Pínehas Eleasarsson forðum höfðingi þeirra. Drottinn sé með honum!

9:21b.1CH.009.021 En Sakaría Meselemjason gætti dyra samfundatjalds-búðarinnar.

9:22b.1CH.009.022 Alls voru þessir, er teknir voru til þess að vera dyraverðir, tvö hundruð og tólf. Voru þeir skráðir í ættartölur í þorpum sínum - höfðu þeir Davíð og Samúel, sjáandinn, skipað þá í embætti þeirra -,

9:23b.1CH.009.023 voru þeir og synir þeirra við hliðin á húsi Drottins, tjaldbúðinni, til þess að gæta þeirra.

9:24b.1CH.009.024 Stóðu hliðverðirnir gegnt hinum fjórum áttum, gegnt austri, vestri, norðri og suðri.

9:25b.1CH.009.025 En bræður þeirra, er bjuggu í þorpum sínum, áttu að koma inn við og við, sjö daga í senn, til þess að aðstoða þá,

9:26b.1CH.009.026 því að þeir, fjórir yfirhliðverðirnir, höfðu stöðugt starf á hendi. Þetta eru levítarnir. Þeir höfðu og umsjón með herbergjum og fjársjóðum Guðs húss,

9:27b.1CH.009.027 og héldu til um nætur umhverfis musteri Guðs, því að þeir áttu að halda vörð, og á hverjum morgni áttu þeir að ljúka upp.

9:28b.1CH.009.028 Og nokkrir þeirra áttu að sjá um þjónustuáhöldin. Skyldu þeir telja þau, er þeir báru þau út og inn.

9:29b.1CH.009.029 Og nokkrir skyldu sjá um áhöldin, og það öll hin helgu áhöld, og hveitimjölið, vínið og olíuna, reykelsið og kryddjurtirnar,

9:30b.1CH.009.030 og nokkrir af sonum prestanna skyldu gjöra smyrsl af kryddjurtunum,

9:31b.1CH.009.031 en Mattitja, einum af levítum, frumgetningi Sallúms Kóraíta, var falinn pönnubaksturinn.

9:32b.1CH.009.032 Og nokkrir af Kahatítum, bræðrum þeirra, skyldu sjá um raðsettu brauðin og leggja þau fram á hverjum hvíldardegi.

9:33b.1CH.009.033 Söngvararnir, ætthöfðingjar levíta, búa í herbergjunum, lausir við önnur störf, því að þeir hafa starfs að gæta dag og nótt.

9:34b.1CH.009.034 Þessir eru ætthöfðingjar levíta eftir ættum þeirra, höfðingjar. Þeir bjuggu í Jerúsalem.

9:35b.1CH.009.035 Í Gíbeon bjuggu: Jeíel, faðir að Gíbeon, og kona hans hét Maaka.

9:36b.1CH.009.036 Og frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Súr, Kís, Baal, Ner, Nadab,

9:37b.1CH.009.037 Gedór, Ahjó, Sakaría og Miklót.

9:38b.1CH.009.038 En Miklót gat Símeam. Einnig þeir bjuggu andspænis bræðrum sínum, hjá bræðrum sínum í Jerúsalem.

9:39b.1CH.009.039 Ner gat Kís og Kís gat Sál, og Sál gat Jónatan, Malkísúa, Abínadab og Esbaal.

9:40b.1CH.009.040 Og sonur Jónatans var Meríbaal, og Meríbaal gat Míka.

9:41b.1CH.009.041 Og synir Míka voru: Píton, Melek, Tahrea og Akas.

9:42b.1CH.009.042 En Akas gat Jaera, Jaera gat Alemet, Asmavet og Simrí, en Simrí gat Mósa,

9:43b.1CH.009.043 Mósa gat Bínea. Hans son var Refaja, hans son Eleasa, hans son Asel.

9:44b.1CH.009.044 En Asel átti sex sonu. Þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía, Hanan. Þessir eru synir Asels.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. 1 Chronicles (Icelandic). 1 Chronicles (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9D83-3