1 Timothy (Icelandic)

1 Timothy (Icelandic)

1

1:1b.1TI.001.001 Páll, postuli Krists Jesú, að boði Guðs frelsara vors og Krists Jesú, vonar vorrar, heilsar

1:2b.1TI.001.002 Tímóteusi, skilgetnum syni sínum í trúnni. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, Drottni vorum.

1:3b.1TI.001.003 Þegar ég var á förum til Makedóníu, hvatti ég þig að halda kyrru fyrir í Efesus. Þú áttir að bjóða sumum mönnum að fara ekki með annarlegar kenningar

1:4b.1TI.001.004 og gefa sig ekki að ævintýrum og endalausum ættartölum, er fremur efla þrætur en trúarskilning á ráðstöfun Guðs.

1:5b.1TI.001.005 Markmið þessarar hvatningar er kærleikur af hreinu hjarta, góðri samvisku og hræsnislausri trú.

1:6b.1TI.001.006 Sumir eru viknir frá þessu og hafa snúið sér til hégómamáls.

1:7b.1TI.001.007 Þeir vilja vera lögmálskennendur, þó að hvorki skilji þeir, hvað þeir sjálfir segja, né hvað þeir eru að fullyrða.

1:8b.1TI.001.008 Vér vitum, að lögmálið er gott, noti maðurinn það réttilega

1:9b.1TI.001.009 og viti að það er ekki ætlað réttlátum, heldur lögleysingjum og þverbrotnum, óguðlegum og syndurum, vanheilögum og óhreinum, föðurmorðingjum og móðurmorðingjum, manndrápurum,

1:10b.1TI.001.010 frillulífismönnum, mannhórum, mannaþjófum, lygurum, meinsærismönnum, og hvað sem það er nú annað, sem gagnstætt er hinni heilnæmu kenningu.

1:11b.1TI.001.011 Þetta er samkvæmt fagnaðarerindinu um dýrð hins blessaða Guðs, sem mér var trúað fyrir.

1:12b.1TI.001.012 Ég þakka honum, sem mig styrkan gjörði, Kristi Jesú, Drottni vorum, fyrir það að hann sýndi mér það traust að fela mér þjónustu,

1:13b.1TI.001.013 mér, sem fyrrum var lastmælandi, ofsóknari og smánari. En mér var miskunnað, sökum þess að ég gjörði það í vantrú, án þess að vita, hvað ég gjörði.

1:14b.1TI.001.014 Og náðin Drottins vors varð stórlega rík með trúnni og kærleikanum, sem veitist í Kristi Jesú.

1:15b.1TI.001.015 Það orð er satt, og í alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn, og er ég þeirra fremstur.

1:16b.1TI.001.016 En fyrir þá sök var mér miskunnað, að Kristur Jesús skyldi sýna á mér fyrstum gjörvallt langlyndi sitt, þeim til dæmis, er á hann munu trúa til eilífs lífs.

1:17b.1TI.001.017 Konungi eilífðar, ódauðlegum, ósýnilegum, einum Guði sé heiður og dýrð um aldir alda. Amen.

1:18b.1TI.001.018 Þetta er það, sem ég minni þig á, barnið mitt, Tímóteus, með þau spádómsorð í huga, sem áður voru yfir þér töluð. Samkvæmt þeim skalt þú berjast hinni góðu baráttu,

1:19b.1TI.001.019 í trú og með góðri samvisku. Henni hafa sumir frá sér varpað og liðið skipbrot á trú sinni.

1:20b.1TI.001.020 Í tölu þeirra eru þeir Hýmeneus og Alexander, sem ég hef selt Satan á vald, til þess að hirtingin kenni þeim að hætta að guðlasta.

2

2:1b.1TI.002.001 Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum,

2:2b.1TI.002.002 fyrir konungum og öllum þeim, sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði.

2:3b.1TI.002.003 Þetta er gott og þóknanlegt fyrir frelsara vorum Guði,

2:4b.1TI.002.004 sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.

2:5b.1TI.002.005 Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús,

2:6b.1TI.002.006 sem gaf sig sjálfan til lausnargjalds fyrir alla. Það var vitnisburður hans á settum tíma.

2:7b.1TI.002.007 Til að boða hann er ég skipaður prédikari og postuli, - ég tala sannleika, lýg ekki -, kennari heiðingja í trú og sannleika.

2:8b.1TI.002.008 Ég vil, að karlmenn biðjist hvarvetna fyrir, með upplyftum heilögum höndum, án reiði og þrætu.

2:9b.1TI.002.009 Sömuleiðis vil ég, að konur skrýði sig sæmandi búningi, með blygð og hóglæti, ekki með fléttum og gulli eða perlum og skartklæðum,

2:10b.1TI.002.010 heldur með góðum verkum, eins og sómir konum, er Guð vilja dýrka.

2:11b.1TI.002.011 Konan á að læra í kyrrþey, í allri undirgefni.

2:12b.1TI.002.012 Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum, heldur á hún að vera kyrrlát.

2:13b.1TI.002.013 Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva.

2:14b.1TI.002.014 Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg.

2:15b.1TI.002.015 En hún mun hólpin verða, sakir barnburðarins, ef hún stendur stöðug í trú, kærleika og helgun, samfara hóglæti.

3

3:1b.1TI.003.001 Það orð er satt, að sækist einhver eftir biskupsstarfi, þá girnist hann fagurt hlutverk.

3:2b.1TI.003.002 Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari.

3:3b.1TI.003.003 Ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn.

3:4b.1TI.003.004 Hann á að vera maður, sem veitir góða forstöðu heimili sínu og heldur börnum sínum í hlýðni með allri siðprýði.

3:5b.1TI.003.005 Hvernig má sá, sem ekki hefur vit á að veita heimili sínu forstöðu, veita söfnuði Guðs umsjón?

3:6b.1TI.003.006 Hann á ekki að vera nýr í trúnni, til þess að hann ofmetnist ekki og verði fyrir sama dómi og djöfullinn.

3:7b.1TI.003.007 Hann á líka að hafa góðan orðstír hjá þeim, sem standa fyrir utan, til þess að hann verði eigi fyrir álasi og lendi í tálsnöru djöfulsins.

3:8b.1TI.003.008 Svo eiga og djáknar að vera heiðvirðir, ekki tvímælismenn, ekki sólgnir í vín, ekki gefnir fyrir ljótan gróða.

3:9b.1TI.003.009 Þeir skulu varðveita leyndardóm trúarinnar í hreinni samvisku.

3:10b.1TI.003.010 Einnig þessir menn séu fyrst reyndir, síðan takist þeir þjónustuna á hendur, ef þeir eru óaðfinnanlegir.

3:11b.1TI.003.011 Svo eiga og konur að vera heiðvirðar, ekki rógberar, heldur bindindissamar, trúar í öllu.

3:12b.1TI.003.012 Djáknar séu einkvæntir, og hafi góða stjórn á börnum sínum og heimilum.

3:13b.1TI.003.013 Því að þeir, sem vel hafa staðið í djáknastöðu, koma sér vel í veg og öðlast mikla djörfung í trúnni á Krist Jesú.

3:14b.1TI.003.014 Þetta rita ég þér, þó að ég voni að koma bráðum til þín,

3:15b.1TI.003.015 til þess að þú skulir vita, ef mér seinkar, hvernig á að haga sér í Guðs húsi, sem er söfnuður lifanda Guðs, stólpi og grundvöllur sannleikans.

3:16b.1TI.003.016 Og víst er leyndardómur guðhræðslunnar mikill: Hann opinberaðist í holdi, var réttlættur í anda, birtist englum, var boðaður með þjóðum, var trúað í heimi, var hafinn upp í dýrð.

4

4:1b.1TI.004.001 Andinn segir berlega, að á síðari tímum muni sumir ganga af trúnni og gefa sig að villuöndum og lærdómum illra anda.

4:2b.1TI.004.002 Þessu valda hræsnisfullir lygarar, sem eru brennimerktir á samvisku sinni.

4:3b.1TI.004.003 Það eru þeir, sem meina hjúskap og bjóða mönnum að halda sér frá þeirri fæðu, er Guð hefur skapað til þess að við henni sé tekið með þakkargjörð af trúuðum mönnum, er þekkja sannleikann.

4:4b.1TI.004.004 Allt sem Guð hefur skapað er gott, og engu ber frá sér að kasta, sé það þegið með þakkargjörð.

4:5b.1TI.004.005 Það helgast af orði Guðs og bæn.

4:6b.1TI.004.006 Með því að brýna þetta fyrir bræðrunum, munt þú verða góður þjónn Krists Jesú, nærður af orði trúarinnar og góðu kenningarinnar, sem þú hefur fylgt.

4:7b.1TI.004.007 En hafna þú vanheilögum kerlingaævintýrum, og æf sjálfan þig í guðhræðslu.

4:8b.1TI.004.008 Líkamleg æfing er nytsamleg í sumu, en guðhræðslan er til allra hluta nytsamleg og hefur fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið komanda.

4:9b.1TI.004.009 Það orð er satt og í alla staði þess vert, að við því sé tekið.

4:10b.1TI.004.010 Þess vegna leggjum vér á oss erfiði og þreytum stríð, því að vér höfum fest von vora á lifanda Guði, sem er frelsari allra manna, einkum trúaðra.

4:11b.1TI.004.011 Bjóð þú þetta og kenn það.

4:12b.1TI.004.012 Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika.

4:13b.1TI.004.013 Ver þú, þangað til ég kem, kostgæfinn að lesa úr Ritningunni, áminna og kenna.

4:14b.1TI.004.014 Vanræktu ekki náðargjöfina þína, sem var gefin þér að tilvísan spámanna og með handayfirlagningu öldunganna.

4:15b.1TI.004.015 Stunda þetta, ver allur í þessu, til þess að framför þín sé öllum augljós.

4:16b.1TI.004.016 Haf gát á sjálfum þér og fræðslunni. Ver stöðugur við þetta. Þegar þú gjörir það, muntu bæði gjöra sjálfan þig hólpinn og áheyrendur þína.

5

5:1b.1TI.005.001 Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega, heldur áminn hann sem föður, yngri menn sem bræður,

5:2b.1TI.005.002 aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur í öllum hreinleika.

5:3b.1TI.005.003 Heiðra ekkjur, sem í raun og veru eru ekkjur.

5:4b.1TI.005.004 En ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum, því að það er þóknanlegt fyrir augliti Guðs.

5:5b.1TI.005.005 Sú sem er í raun og veru ekkja og er orðin munaðarlaus, festir von sína á Guði og er stöðug í ákalli og bænum nótt og dag.

5:6b.1TI.005.006 En hin bílífa er dauð, þó að hún lifi.

5:7b.1TI.005.007 Brýn þetta fyrir þeim, til þess að þær séu óaðfinnanlegar.

5:8b.1TI.005.008 En ef einhver sér eigi fyrir sínum, sérstaklega heimilismönnum, þá hefur hann afneitað trúnni og er verri en vantrúaður.

5:9b.1TI.005.009 Ekkja sé ekki tekin á skrá yfir ekkjur nema hún sé orðin fullra sextíu ára, eingift

5:10b.1TI.005.010 og lofsamlega kunn að góðum verkum. Hún verður að hafa fóstrað börn, sýnt gestrisni, þvegið fætur heilagra, hjálpað bágstöddum og lagt stund á hvert gott verk.

5:11b.1TI.005.011 En tak ekki við ungum ekkjum. Þegar þær verða gjálífar afrækja þær Krist, vilja giftast

5:12b.1TI.005.012 og gerast þá sekar um að brjóta sitt fyrra heit.

5:13b.1TI.005.013 Og jafnframt temja þær sér iðjuleysi, rápandi hús úr húsi, ekki einungis iðjulausar, heldur einnig málugar og hlutsamar og tala það, sem eigi ber að tala.

5:14b.1TI.005.014 Ég vil því að ungar ekkjur giftist, ali börn, stjórni heimili og gefi mótstöðumanninum ekkert tilefni til illmælis.

5:15b.1TI.005.015 Nokkrar hafa þegar horfið frá til fylgis við Satan.

5:16b.1TI.005.016 Ef trúuð kona á fyrir ekkjum að sjá, skal hún sjá fyrir þeim, og eigi hafi söfnuðurinn þyngsli af, til þess að hann geti veitt hjálpina þeim, sem ekkjur eru og einstæðar.

5:17b.1TI.005.017 Öldungar þeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem erfiða í orðinu og í kennslu.

5:18b.1TI.005.018 Því að ritningin segir: "Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir" og "verður er verkamaðurinn launa sinna."

5:19b.1TI.005.019 Tak þú ekki við kæru gegn öldungi, nema tveir eða þrír vottar beri.

5:20b.1TI.005.020 Ávíta brotlega í viðurvist allra, til þess að hinir megi hafa ótta.

5:21b.1TI.005.021 Ég heiti á þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla, að þú gætir þessa án nokkurs fordóms og gjörir ekkert af vilfylgi.

5:22b.1TI.005.022 Eigi skalt þú fljótráðið leggja hendur yfir nokkurn mann. Tak eigi heldur þátt í annarra syndum, varðveit sjálfan þig hreinan.

5:23b.1TI.005.023 Ver þú ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna, sem eru svo tíð.

5:24b.1TI.005.024 Syndirnar hjá sumum mönnum eru í augum uppi og eru komnar á undan, þegar dæma skal. En hjá sumum koma þær líka á eftir.

5:25b.1TI.005.025 Á sama hátt eru góðverkin augljós, og þau, sem eru það ekki, munu ekki geta dulist.

6

6:1b.1TI.006.001 Allir þeir, sem eru ánauðugir þrælar, skulu sýna húsbændum sínum allan skyldugan heiður, til þess að ekki verði lastmælt nafni Guðs og kenningunni.

6:2b.1TI.006.002 En þeir, sem trúaða húsbændur eiga, skulu ekki lítilsvirða þá, vegna þess að þeir eru bræður, heldur þjóni þeim því betur sem þeir eru trúaðir og elskaðir og kappkosta að gjöra góðverk. Kenn þú þetta og áminn um það.

6:3b.1TI.006.003 Ef einhver fer með annarlegar kenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því, sem guðrækni vor kennir, þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt.

6:4b.1TI.006.004 Hann er sótttekinn af þrætum og orðastælum. Af þessu fæðist öfund, deilur, lastmæli, vondar hugsanir,

6:5b.1TI.006.005 þjark og þras hugspilltra manna, sem eru sneyddir sannleikanum, en skoða guðhræðsluna sem gróðaveg.

6:6b.1TI.006.006 Já, guðhræðslan samfara nægjusemi er mikill gróðavegur.

6:7b.1TI.006.007 Því að ekkert höfum vér inn í heiminn flutt og ekki getum vér heldur flutt neitt út þaðan.

6:8b.1TI.006.008 Ef vér höfum fæði og klæði, þá látum oss það nægja.

6:9b.1TI.006.009 En þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snöru og alls kyns óviturlegar og skaðlegar fýsnir, er sökkva mönnunum niður í tortímingu og glötun.

6:10b.1TI.006.010 Fégirndin er rót alls þess, sem illt er. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.

6:11b.1TI.006.011 En þú, Guðs maður, forðast þú þetta, en stunda réttlæti, guðhræðslu, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð.

6:12b.1TI.006.012 Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið, sem þú varst kallaður til og þú játaðist með góðu játningunni í viðurvist margra votta.

6:13b.1TI.006.013 Ég býð þér fyrir augliti Guðs, sem veitir öllu líf, og fyrir augliti Krists Jesú, er gjörði góðu játninguna frammi fyrir Pontíusi Pílatusi:

6:14b.1TI.006.014 Gæt þú boðorðsins lýtalaust, óaðfinnanlega allt til endurkomu Drottins vors Jesú Krists,

6:15b.1TI.006.015 sem hinn blessaði og eini alvaldur mun á sínum tíma birtast láta, konungur konunganna og Drottinn drottnanna.

6:16b.1TI.006.016 Hann einn hefur ódauðleika, hann býr í ljósi, sem enginn fær til komist, hann sem enginn maður leit né litið getur. Honum sé heiður og eilífur máttur. Amen.

6:17b.1TI.006.017 Bjóð ríkismönnum þessarar aldar að hreykja sér ekki né treysta fallvöltum auði, heldur Guði, sem lætur oss allt ríkulega í té til nautnar.

6:18b.1TI.006.018 Bjóð þeim að gjöra gott, vera ríkir af góðum verkum, örlátir, fúsir að miðla öðrum,

6:19b.1TI.006.019 með því safna þeir handa sjálfum sér fjársjóði sem er góð undirstaða til hins ókomna, og munu geta höndlað hið sanna líf.

6:20b.1TI.006.020 Þú Tímóteus, varðveit það, sem þér er trúað fyrir, og forðast hinar vanheilögu hégómaræður og mótsagnir hinnar rangnefndu þekkingar,

6:21b.1TI.006.021 sem nokkrir hafa játast undir og orðið frávillingar í trúnni. Náð sé með yður.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. 1 Timothy (Icelandic). 1 Timothy (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DFE-A