Colossians (Icelandic)

Colossians (Icelandic)

1

1:1b.COL.001.001 Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú og Tímóteus, bróðir vor, heilsa

1:2b.COL.001.002 hinum heilögu og trúuðu bræðrum í Kólossu, sem eru í Kristi. Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum.

1:3b.COL.001.003 Vér þökkum Guði, föður Drottins vors Jesú Krists, ávallt er vér biðjum fyrir yður.

1:4b.COL.001.004 Því að vér höfum heyrt um trú yðar á Krist Jesú og um kærleikann, sem þér berið til allra heilagra,

1:5b.COL.001.005 vegna vonar þeirrar, sem yður er geymd í himnunum. Um þá von hafið þér áður heyrt í orði sannleikans, fagnaðarerindinu,

1:6b.COL.001.006 sem til yðar er komið, eins og það einnig ber ávöxt og vex í öllum heiminum. Það hefur það líka gjört hjá yður frá þeim degi, er þér heyrðuð það og lærðuð að þekkja náð Guðs í sannleika.

1:7b.COL.001.007 Hið sama hafið þér og numið af Epafrasi, vorum elskaða samþjóni, sem er trúr þjónn Krists í vorn stað.

1:8b.COL.001.008 Hann hefur og sagt oss frá kærleika yðar, sem andinn hefur vakið með yður.

1:9b.COL.001.009 Frá þeim degi, er vér heyrðum þetta, höfum vér því ekki látið af að biðja fyrir yður. Vér biðjum þess, að þér mættuð fyllast þekkingu á vilja Guðs með allri speki og skilningi andans,

1:10b.COL.001.010 svo að þér hegðið yður eins og Drottni er samboðið, honum til þóknunar á allan hátt, og fáið borið ávöxt í öllu góðu verki og vaxið að þekkingu á Guði.

1:11b.COL.001.011 Mætti hann styrkja yður á allan hátt með dýrðarmætti sínum, svo að þér fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði

1:12b.COL.001.012 þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.

1:13b.COL.001.013 Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.

1:14b.COL.001.014 Í honum eigum vér endurlausnina, fyrirgefningu synda vorra.

1:15b.COL.001.015 Hann er ímynd hins ósýnilega Guðs, frumburður allrar sköpunar.

1:16b.COL.001.016 Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega, hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt er skapað fyrir hann og til hans.

1:17b.COL.001.017 Hann er fyrri en allt, og allt á tilveru sína í honum.

1:18b.COL.001.018 Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið, frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.

1:19b.COL.001.019 Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyllingu sína búa

1:20b.COL.001.020 og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum, með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.

1:21b.COL.001.021 Og yður, sem áður fyrri voruð fráhverfir Guði og óvinveittir honum í huga yðar og vondum verkum,

1:22b.COL.001.022 yður hefur hann nú sátta gjört við sig með dauða Krists í jarðneskum líkama. Hann vildi láta yður koma fram fyrir sig heilaga og lýtalausa og óaðfinnanlega.

1:23b.COL.001.023 Standið aðeins stöðugir í trúnni, grundvallaðir og fastir fyrir og hvikið ekki frá von fagnaðarerindisins, sem þér hafið heyrt og prédikað hefur verið fyrir öllu, sem skapað er undir himninum, og er ég, Páll, orðinn þjónn þess.

1:24b.COL.001.024 Nú er ég glaður í þjáningum mínum yðar vegna. Það, sem enn vantar á þjáningar Krists, uppfylli ég með líkamlegum þjáningum mínum til heilla fyrir líkama hans, sem er kirkjan.

1:25b.COL.001.025 En hans þjónn er ég orðinn samkvæmt því hlutverki, sem Guð hefur mér á hendur falið yðar vegna: Að flytja Guðs orð óskorað,

1:26b.COL.001.026 leyndardóminn, sem hefur verið hulinn frá upphafi tíða og kynslóða, en nú hefur hann verið opinberaður Guðs heilögu.

1:27b.COL.001.027 Guð vildi kunngjöra þeim, hvílíkan dýrðar ríkdóm heiðnu þjóðirnar eiga í þessum leyndardómi, sem er Kristur meðal yðar, von dýrðarinnar.

1:28b.COL.001.028 Hann boðum vér, er vér áminnum sérhvern mann og fræðum með allri speki, til þess að vér getum leitt hvern mann fram fullkominn í Kristi.

1:29b.COL.001.029 Að þessu strita ég og stríði með þeim mætti, sem kröftuglega verkar í mér.

2

2:1b.COL.002.001 Ég vil að þér vitið, hversu hörð er barátta mín vegna yðar og þeirra í Laódíkeu og allra þeirra, sem ekki hafa séð mig sjálfan.

2:2b.COL.002.002 Mig langar, að þeir uppörvist í hjörtum sínum, sameinist í kærleika og öðlist gjörvalla auðlegð þeirrar sannfæringar og skilnings, sem veitir þekkinguna á leyndardómi Guðs, Kristi.

2:3b.COL.002.003 En í honum eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.

2:4b.COL.002.004 Þetta segi ég til þess að enginn tæli yður með áróðurstali,

2:5b.COL.002.005 því að ég er hjá yður í andanum, þótt ég sé líkamlega fjarlægur, og ég horfi með fögnuði á góða skipan hjá yður og festu yðar í trúnni á Krist.

2:6b.COL.002.006 Þér hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum.

2:7b.COL.002.007 Verið rótfestir í honum og byggðir á honum, staðfastir í trúnni, eins og yður hefur verið kennt, og auðugir að þakklátsemi.

2:8b.COL.002.008 Gætið þess, að enginn verði til að hertaka yður með heimspeki og hégómavillu, sem byggist á mannasetningum, er runnið frá heimsvættunum, en ekki frá Kristi.

2:9b.COL.002.009 Því að í honum býr öll fylling guðdómsins líkamlega.

2:10b.COL.002.010 Og í honum, sem er höfuð hvers konar tignar og valds, hafið þér öðlast hlutdeild í þessari fyllingu.

2:11b.COL.002.011 Í honum eruð þér einnig umskornir þeirri umskurn, sem ekki er með höndum gjörð, heldur með umskurn Krists, við að afklæðast hinum synduga líkama,

2:12b.COL.002.012 þegar þér voruð greftraðir með Kristi í skírninni. Í skírninni voruð þér einnig með honum uppvaktir fyrir trúna á mátt Guðs, er vakti hann upp frá dauðum.

2:13b.COL.002.013 Þér voruð dauðir sökum afbrota yðar og umskurnarleysis. En Guð lífgaði yður ásamt honum, þegar hann fyrirgaf oss öll afbrotin.

2:14b.COL.002.014 Hann afmáði skuldabréfið, sem þjakaði oss með ákvæðum sínum. Hann tók það burt með því að negla það á krossinn.

2:15b.COL.002.015 Hann fletti vopnum tignirnar og völdin, leiddi þau opinberlega fram til háðungar og hrósaði sigri yfir þeim í Kristi.

2:16b.COL.002.016 Enginn skyldi því dæma yður fyrir mat eða drykk eða það sem snertir hátíðir, tunglkomur eða hvíldardaga.

2:17b.COL.002.017 Þetta er aðeins skuggi þess, sem koma átti, en líkaminn er Krists.

2:18b.COL.002.018 Látið þá ekki taka af yður hnossið, sem þykjast af auðmýkt sinni og engladýrkun og státa af sýnum sínum. Þeir hrokast upp af engu í hyggju holds síns

2:19b.COL.002.019 og halda sér ekki við hann, sem er höfuðið og styrkir allan líkamann og samantengir taugum og böndum, svo að hann þróast guðlegum þroska.

2:20b.COL.002.020 Ef þér eruð dánir með Kristi undan valdi heimsvættanna, hvers vegna hagið þér yður þá eins og þér lifðuð í heiminum og látið leggja fyrir yður boð eins og þessi:

2:21b.COL.002.021 "Snertu ekki, bragðaðu ekki, taktu ekki á"? -

2:22b.COL.002.022 Allt þetta er þó ætlað til að eyðast við notkunina! - mannaboðorð og mannalærdómar!

2:23b.COL.002.023 Þetta hefur að sönnu orð á sér um speki, slík sjálfvalin dýrkun og auðmýking og harðneskja við líkamann, en hefur ekkert gildi, heldur er til þess eins að fullnægja holdinu.

3

3:1b.COL.003.001 Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs.

3:2b.COL.003.002 Hugsið um það, sem er hið efra, en ekki um það, sem á jörðinni er.

3:3b.COL.003.003 Því að þér eruð dánir og líf yðar er fólgið með Kristi í Guði.

3:4b.COL.003.004 Þegar Kristur, sem er líf yðar, opinberast, þá munuð þér og ásamt honum opinberast í dýrð.

3:5b.COL.003.005 Deyðið því hið jarðneska í fari yðar: Hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd, sem ekki er annað en skurðgoðadýrkun.

3:6b.COL.003.006 Af þessu kemur reiði Guðs [yfir þá, sem hlýða honum ekki].

3:7b.COL.003.007 Meðal þeirra voruð og þér áður, þegar þér lifðuð í þessum syndum.

3:8b.COL.003.008 En nú skuluð þér segja skilið við allt þetta: Reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt orðbragð.

3:9b.COL.003.009 Ljúgið ekki hver að öðrum, því þér hafið afklæðst hinum gamla manni með gjörðum hans

3:10b.COL.003.010 og íklæðst hinum nýja, sem endurnýjast til fullkominnar þekkingar og verður þannig mynd skapara síns.

3:11b.COL.003.011 Þar er ekki grískur maður eða Gyðingur, umskorinn eða óumskorinn, útlendingur, Skýti, þræll eða frjáls maður, þar er Kristur allt og í öllum.

3:12b.COL.003.012 Íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartans meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi.

3:13b.COL.003.013 Umberið hver annan og fyrirgefið hver öðrum, ef einhver hefur sök á hendur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyrirgefið yður, svo skuluð þér og gjöra.

3:14b.COL.003.014 En íklæðist yfir allt þetta elskunni, sem er band algjörleikans.

3:15b.COL.003.015 Látið frið Krists ríkja í hjörtum yðar, því að til friðar voruð þér kallaðir sem limir í einum líkama. Verðið þakklátir.

3:16b.COL.003.016 Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki. Fræðið og áminnið hver annan með sálmum, lofsöngum og andlegum ljóðum og syngið Guði sætlega lof í hjörtum yðar.

3:17b.COL.003.017 Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.

3:18b.COL.003.018 Þér konur, verið undirgefnar mönnum yðar, eins og sómir þeim, er Drottni heyra til.

3:19b.COL.003.019 Þér menn, elskið eiginkonur yðar og verið ekki beiskir við þær.

3:20b.COL.003.020 Þér börn, verið hlýðin foreldrum yðar í öllu, því að það fer þeim vel, sem Drottni heyra til.

3:21b.COL.003.021 Þér feður, verið ekki vondir við börn yðar, svo að þau verði ekki ístöðulaus.

3:22b.COL.003.022 Þér þrælar, verið hlýðnir í öllu jarðneskum drottnum yðar, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur í einlægni hjartans og í ótta Drottins.

3:23b.COL.003.023 Hvað sem þér gjörið, þá vinnið af heilum huga, eins og Drottinn ætti í hlut, en ekki menn.

3:24b.COL.003.024 Þér vitið og sjálfir, að Drottinn mun veita yður arfleifðina að launum. Þér þjónið Drottni Kristi.

3:25b.COL.003.025 Sá, sem rangt gjörir, skal fá það endurgoldið, sem hann gjörði rangt, og þar er ekki manngreinarálit.

4

4:1b.COL.004.001 Þér sem eigið þræla, veitið þeim það sem rétt er og sanngjarnt og vitið, að einnig þér eigið Drottin á himni.

4:2b.COL.004.002 Verið staðfastir í bæninni. Vakið og biðjið með þakkargjörð.

4:3b.COL.004.003 Biðjið jafnframt fyrir oss, að Guð opni oss dyr fyrir orðið og vér getum boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú bundinn.

4:4b.COL.004.004 Biðjið, að ég megi birta hann eins og mér ber að tala.

4:5b.COL.004.005 Umgangist viturlega þá, sem fyrir utan eru, og notið hverja stundina.

4:6b.COL.004.006 Mál yðar sé ætíð ljúflegt, en salti kryddað, til þess að þér vitið, hvernig þér eigið að svara hverjum manni.

4:7b.COL.004.007 Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður og samverkamaður í þjónustu Drottins, mun láta yður vita allt um mína hagi.

4:8b.COL.004.008 Ég sendi hann til yðar gagngjört til þess að þér fáið að vita, hvernig oss líður, og til þess að hann uppörvi yður.

4:9b.COL.004.009 Með honum fer Onesímus, minn trúi og elskaði bróðir, sem er einn úr yðar hópi. Þeir munu láta yður vita allt, sem hér gjörist.

4:10b.COL.004.010 Aristarkus, sambandingi minn, biður að heilsa yður. Svo og Markús, frændi Barnabasar, sem þér hafið fengið orð um. Ef hann kemur til yðar, þá takið vel á móti honum.

4:11b.COL.004.011 Ennfremur biður Jesús, að viðurnefni Jústus, að heilsa yður. Þeir eru nú sem stendur einu umskornu samverkamenn mínir fyrir Guðs ríki, og hafa þeir verið mér til huggunar.

4:12b.COL.004.012 Einnig biður Epafras að heilsa yður, sem er einn úr yðar hópi. Hann er þjónn Krists Jesú og berst jafnan fyrir yður í bænum sínum, til þess að þér megið standa stöðugir, fullkomnir og fullvissir í öllu því, sem er vilji Guðs.

4:13b.COL.004.013 Þann vitnisburð gef ég honum, að hann leggur mikið á sig fyrir yður og þá sem eru í Laódíkeu og í Híerapólis.

4:14b.COL.004.014 Þá biður hann Lúkas að heilsa yður, læknirinn elskaði, og Demas.

4:15b.COL.004.015 Berið kveðju bræðrunum í Laódíkeu. Einnig Nýmfu og söfnuðinum sem kemur saman í húsi hennar.

4:16b.COL.004.016 Og þegar búið er að lesa þetta bréf upp hjá yður, þá látið líka lesa það í söfnuði Laódíkeumanna. Lesið þér og bréfið frá Laódíkeu.

4:17b.COL.004.017 Segið Arkippusi: "Gættu embættisins, sem þú hefur tekið að þér í Drottni, og ræktu það vel."

4:18b.COL.004.018 Kveðjan er skrifuð með minni, Páls, eigin hendi. Minnist fjötra minna. Náð sé með yður!


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Colossians (Icelandic). Colossians (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DF5-3