Haggai (Icelandic)

Haggai (Icelandic)

1

1:1b.HAG.001.001 Á öðru ríkisári Daríusar konungs, hinn fyrsta dag hins sjötta mánaðar, kom orð Drottins fyrir munn Haggaí spámanns til Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra í Júda, og til Jósúa Jósadakssonar æðsta prests, svo hljóðandi:

1:2b.HAG.001.002 Svo segir Drottinn allsherjar: Þessi lýður segir: "Enn er ekki tími kominn til að endurreisa hús Drottins."

1:3b.HAG.001.003 Þá kom orð Drottins fyrir munn Haggaí spámanns, svo hljóðandi:

1:4b.HAG.001.004 Er þá tími fyrir yður að búa í þiljuðum húsum, meðan þetta hús liggur í rústum?

1:5b.HAG.001.005 Og nú segir Drottinn allsherjar svo: Takið eftir, hvernig fyrir yður fer!

1:6b.HAG.001.006 Þér sáið miklu, en safnið litlu, etið, en verðið eigi saddir, drekkið, en fáið eigi nægju yðar, klæðið yður, en verðið þó ekki varmir, og sá sem vinnur fyrir kaupi, vinnur fyrir því í götótta pyngju.

1:7b.HAG.001.007 Svo segir Drottinn allsherjar: Takið eftir, hvernig fyrir yður fer!

1:8b.HAG.001.008 Farið upp í fjöllin, sækið við og reisið musterið, þá mun ég hafa velþóknun á því og gjöra mig vegsamlegan! - segir Drottinn.

1:9b.HAG.001.009 Þér búist við miklu, en fáið lítið í aðra hönd, og þó þér flytjið það heim, þá blæs ég það burt. Hvers vegna? segir Drottinn allsherjar. Vegna húss míns, af því að það liggur í rústum, meðan sérhver yðar flýtir sér með sitt hús.

1:10b.HAG.001.010 Fyrir því heldur himinninn uppi yfir yður aftur dögginni og fyrir því heldur jörðin aftur gróðri sínum.

1:11b.HAG.001.011 Ég kallaði þurrk yfir landið og yfir fjöllin, yfir kornið, vínberjalöginn og olíuna og yfir það, sem jörðin af sér gefur, yfir menn og skepnur og yfir allan handafla.

1:12b.HAG.001.012 Þá hlýddi Serúbabel Sealtíelsson og Jósúa Jósadaksson æðsti prestur og allt það, er eftir var orðið lýðsins, röddu Drottins Guðs þeirra og orðum Haggaí spámanns, þeim er Drottinn Guð þeirra hafði sent hann með, og lýðurinn óttaðist Drottin.

1:13b.HAG.001.013 Þá sagði Haggaí, sendiboði Drottins, við lýðinn, samkvæmt boðskap Drottins: Ég er með yður! - segir Drottinn.

1:14b.HAG.001.014 Og Drottinn vakti hug Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra í Júda, og hug Jósúa Jósadakssonar æðsta prests og hug alls þess, er eftir var orðið lýðsins, svo að þeir komu og hófu að byggja hús Drottins allsherjar, Guðs þeirra,

1:15b.HAG.001.015 á tuttugasta og fjórða degi hins sjötta mánaðar, á öðru ríkisári Daríusar konungs.

2

2:1b.HAG.002.001 Á tuttugasta og fyrsta degi hins sjöunda mánaðar talaði Drottinn fyrir munn Haggaí spámanns á þessa leið:

2:2b.HAG.002.002 Mæl þú til Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra í Júda, og til Jósúa Jósadakssonar æðsta prests og til þeirra sem eftir eru af lýðnum, á þessa leið:

2:3b.HAG.002.003 Hver er sá af yður eftir orðinn, er séð hefir þetta hús í sinni fyrri vegsemd, og hversu virðist yður það nú? Er það ekki einskisvert í yðar augum?

2:4b.HAG.002.004 En ver samt hughraustur, Serúbabel - segir Drottinn - og ver hughraustur, Jósúa Jósadaksson æðsti prestur, og ver hughraustur, allur landslýður - segir Drottinn - og haldið áfram verkinu, því að ég er með yður - segir Drottinn allsherjar -

2:5b.HAG.002.005 samkvæmt heiti því, er ég gjörði við yður, þá er þér fóruð af Egyptalandi, og andi minn dvelur meðal yðar. Óttist ekki.

2:6b.HAG.002.006 Því að svo segir Drottinn allsherjar: Eftir skamma hríð mun ég hræra himin og jörð, haf og þurrlendi.

2:7b.HAG.002.007 Ég mun hræra allar þjóðir, svo að gersemar allra þjóða skulu hingað koma, og ég mun fylla hús þetta dýrð - segir Drottinn allsherjar.

2:8b.HAG.002.008 Mitt er silfrið, mitt er gullið - segir Drottinn allsherjar.

2:9b.HAG.002.009 Hin síðari dýrð þessa musteris mun meiri verða en hin fyrri var - segir Drottinn allsherjar - og ég mun veita heill á þessum stað - segir Drottinn allsherjar.

2:10b.HAG.002.010 Á tuttugasta og fjórða degi hins níunda mánaðar, á öðru ríkisári Daríusar, talaði Drottinn fyrir munn Haggaí spámanns á þessa leið:

2:11b.HAG.002.011 Svo segir Drottinn allsherjar: Leitaðu fræðslu prestanna um þetta:

2:12b.HAG.002.012 "Setjum, að maður beri heilagt kjöt í kyrtilskauti sínu og snerti síðan brauð, einhvern rétt matar, vín, olíu eða eitthvað annað matarkyns með kyrtilskauti sínu, verður það þá heilagt af því?" Prestarnir svöruðu og sögðu: "Nei!"

2:13b.HAG.002.013 Þá spurði Haggaí: "Ef maður, sem orðinn er óhreinn, af því að hann hefir snortið lík, kemur við eitthvað af þessu, verður það þá óhreint?" Prestarnir svöruðu og sögðu: "Já, það verður óhreint."

2:14b.HAG.002.014 Þá tók Haggaí til máls og sagði: "Eins er um þennan lýð og þessa þjóð í mínum augum - segir Drottinn - svo og um allt verk er þeir vinna, og það sem þeir færa mér þar að fórn, það er óhreint.

2:15b.HAG.002.015 Og rennið nú huganum frá þessum degi aftur í tímann, áður en steinn var lagður á stein ofan í musteri Drottins.

2:16b.HAG.002.016 Hvernig leið yður þá? Kæmi maður að kornbing, sem gjöra skyldi tuttugu skeppur, þá urðu þær tíu. Kæmi maður að vínþröng og ætlaði að ausa fimmtíu könnur úr þrónni, þá urðu þar ekki nema tuttugu.

2:17b.HAG.002.017 Ég hefi refsað yður með korndrepi og gulnan og hagli yfir öll handaverk yðar, og þó snúið þér yður ekki til mín! - segir Drottinn.

2:18b.HAG.002.018 Rennið nú huganum frá þessum degi lengra aftur í tímann, frá hinum tuttugasta og fjórða degi hins níunda mánaðar, frá þeim degi er lagður var grundvöllur að musteri Drottins. Rennið huganum yfir,

2:19b.HAG.002.019 hvort enn sé korn í forðabúrinu og hvort víntrén og fíkjutrén og granateplatrén og olíutrén beri ekki enn ávöxt. Frá þessum degi vil ég blessun gefa!" Serúbabel, hinn útvaldi Guðs

2:20b.HAG.002.020 Orð Drottins kom til Haggaí annað sinn hinn tuttugasta og fjórða sama mánaðar, svo hljóðandi:

2:21b.HAG.002.021 Mæl til Serúbabels, landstjóra í Júda á þessa leið: Ég mun hræra himin og jörð.

2:22b.HAG.002.022 Ég kollvarpa veldisstólum konungsríkjanna og eyðilegg vald hinna heiðnu konungsríkja. Ég kollvarpa vögnum og þeim, sem í þeim aka, og hestarnir skulu hníga dauðir og þeir, sem á þeim sitja, hver fyrir annars sverði.

2:23b.HAG.002.023 Á þeim degi - segir Drottinn allsherjar - tek ég þig, Serúbabel Sealtíelsson, þjónn minn, og fer með þig eins og innsiglishring, því að þig hefi ég útvalið - segir Drottinn allsherjar.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Haggai (Icelandic). Haggai (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9DCB-3