Proverbs (Icelandic)
1
1:1b.PRO.001.001 Orðskviðir Salómons Davíðssonar, Ísraels konungs,
1:2b.PRO.001.002 til þess að menn kynnist visku og aga, læri að skilja skynsamleg orð,
1:3b.PRO.001.003 til þess að menn fái viturlegan aga, réttlæti, réttvísi og ráðvendni,
1:4b.PRO.001.004 til þess að þeir veiti hinum óreyndu hyggindi, unglingum þekking og aðgætni, -
1:5b.PRO.001.005 hinn vitri hlýðir á og eykur lærdóm sinn, og hinn hyggni nemur hollar lífsreglur -
1:6b.PRO.001.006 til þess að menn skilji orðskviði og líkingamál, orð spekinganna og gátur þeirra.
1:7b.PRO.001.007 Ótti Drottins er upphaf þekkingar, visku og aga fyrirlíta afglapar einir.
1:8b.PRO.001.008 Hlýð þú, son minn, á áminning föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinnar,
1:9b.PRO.001.009 því að þær eru yndislegur sveigur á höfði þér og men um háls þinn.
1:10b.PRO.001.010 Son minn, þegar skálkar ginna þig, þá gegn þeim eigi.
1:11b.PRO.001.011 Þegar þeir segja: "Kom með oss! Leggjumst í launsátur til manndrápa, sitjum án saka um saklausan mann,
1:12b.PRO.001.012 gleypum þá lifandi eins og Hel - með húð og hári, eins og þá sem farnir eru til dánarheima.
1:13b.PRO.001.013 Alls konar dýra muni munum vér eignast, fylla hús vor rændum fjármunum.
1:14b.PRO.001.014 Þú skalt taka jafnan hlut með oss, einn sjóð skulum vér allir hafa" -
1:15b.PRO.001.015 son minn, þá haf ekki samleið við þá, halt fæti þínum frá stigum þeirra.
1:16b.PRO.001.016 Því að fætur þeirra eru skjótir til ills og fljótir til að úthella blóði.
1:17b.PRO.001.017 Því að til einskis þenja menn út netið í augsýn allra fleygra fugla,
1:18b.PRO.001.018 og slíkir menn sitja um sitt eigið líf, liggja í launsátri fyrir sjálfum sér.
1:19b.PRO.001.019 Þannig fer öllum þeim, sem fíknir eru í rangfenginn gróða: fíknin verður þeim að fjörlesti.
1:20b.PRO.001.020 Spekin kallar hátt á strætunum, lætur rödd sína gjalla á torgunum.
1:21b.PRO.001.021 Hún hrópar á glaummiklum gatnamótum, við borgarhliðin heldur hún tölur sínar:
1:22b.PRO.001.022 Hversu lengi ætlið þér, fávísir, að elska fávísi og hinir háðgjörnu að hafa yndi af háði og heimskingjarnir að hata þekkingu?
1:23b.PRO.001.023 Snúist til umvöndunar minnar, sjá, ég læt anda minn streyma yfir yður, kunngjöri yður orð mín.
1:24b.PRO.001.024 En af því að þér færðust undan, þá er ég kallaði, og enginn gaf því gaum, þótt ég rétti út höndina,
1:25b.PRO.001.025 heldur létuð öll mín ráð sem vind um eyrun þjóta og skeyttuð eigi umvöndun minni,
1:26b.PRO.001.026 þá mun ég hlæja í ógæfu yðar, draga dár að, þegar skelfingin dynur yfir yður,
1:27b.PRO.001.027 þegar skelfingin dynur yfir yður eins og þrumuveður og ógæfa yðar nálgast eins og fellibylur, þegar neyð og angist dynja yfir yður.
1:28b.PRO.001.028 Þá munu þeir kalla á mig, en ég mun ekki svara, þeir munu leita mín, en ekki finna mig.
1:29b.PRO.001.029 Vegna þess að þeir hötuðu þekking og aðhylltust ekki ótta Drottins,
1:30b.PRO.001.030 skeyttu ekki ráðum mínum og smáðu alla umvöndun mína,
1:31b.PRO.001.031 þá skulu þeir fá að neyta ávaxtar breytni sinnar og mettast af sínum eigin vélræðum.
1:32b.PRO.001.032 Því að fráhvarf fávísra drepur þá, og uggleysi heimskingjanna tortímir þeim.
1:33b.PRO.001.033 En sá sem á mig hlýðir, mun búa óhultur, mun vera öruggur og engri óhamingju kvíða.
10
10:1b.PRO.010.001 Orðskviðir Salómons. Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur sonur er móður sinni til mæðu.
10:2b.PRO.010.002 Rangfenginn auður stoðar ekki, en réttlæti frelsar frá dauða.
10:3b.PRO.010.003 Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur, en græðgi guðlausra hrindir hann frá sér.
10:4b.PRO.010.004 Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd.
10:5b.PRO.010.005 Hygginn er sá, er á sumri safnar, en skammarlega fer þeim, er um kornsláttinn sefur.
10:6b.PRO.010.006 Blessun kemur yfir höfuð hins réttláta, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.
10:7b.PRO.010.007 Minning hins réttláta verður blessuð, en nafn óguðlegra fúnar.
10:8b.PRO.010.008 Sá sem er vitur í hjarta, þýðist boðorðin, en sá sem er afglapi í munninum, steypir sér í glötun.
10:9b.PRO.010.009 Sá sem gengur ráðvandlega, gengur óhultur, en sá sem gjörir vegu sína hlykkjótta, verður uppvís.
10:10b.PRO.010.010 Sá sem deplar með auganu, veldur skapraun, en sá sem finnur að með djörfung, semur frið.
10:11b.PRO.010.011 Munnur hins réttláta er lífslind, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.
10:12b.PRO.010.012 Hatur vekur illdeilur, en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.
10:13b.PRO.010.013 Viska er á vörum hyggins manns, en á baki hins óvitra hvín vöndurinn.
10:14b.PRO.010.014 Vitrir menn geyma þekking sína, en munnur afglapans er yfirvofandi hrun.
10:15b.PRO.010.015 Auður ríks manns er honum öflugt vígi, en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli.
10:16b.PRO.010.016 Afli hins réttláta verður til lífs, gróði hins óguðlega til syndar.
10:17b.PRO.010.017 Sá fer lífsins leið, er varðveitir aga, en sá villist, er hafnar umvöndun.
10:18b.PRO.010.018 Sá er leynir hatri, er lygari, en sá sem ber út óhróður, er heimskingi.
10:19b.PRO.010.019 Málæðinu fylgja yfirsjónir, en sá breytir hyggilega, sem hefir taum á tungu sinni.
10:20b.PRO.010.020 Tunga hins réttláta er úrvals silfur, vit hins óguðlega er lítils virði.
10:21b.PRO.010.021 Varir hins réttláta fæða marga, en afglaparnir deyja úr vitleysu.
10:22b.PRO.010.022 Blessun Drottins, hún auðgar, og erfiði mannsins bætir engu við hana.
10:23b.PRO.010.023 Heimskingjanum er ánægja að fremja svívirðing, en viskan er hyggnum manni gleði.
10:24b.PRO.010.024 Það sem hinn óguðlegi óttast, kemur yfir hann, en réttlátum gefst það, er þeir girnast.
10:25b.PRO.010.025 Þegar vindbylurinn skellur á, er úti um hinn óguðlega, en hinn réttláti stendur á eilífum grundvelli.
10:26b.PRO.010.026 Það sem edik er tönnunum og reykur augunum, það er letinginn þeim, er hann senda.
10:27b.PRO.010.027 Ótti Drottins lengir lífdagana, en æviár óguðlegra verða stytt.
10:28b.PRO.010.028 Eftirvænting réttlátra endar í gleði, en von óguðlegra verður að engu.
10:29b.PRO.010.029 Vegur Drottins er athvarf sakleysisins, en hrun þeim, er aðhafast illt.
10:30b.PRO.010.030 Hinn réttláti bifast ekki að eilífu, en hinir óguðlegu munu ekki byggja landið.
10:31b.PRO.010.031 Munnur hins réttláta framleiðir visku, en fláráð tunga verður upprætt.
10:32b.PRO.010.032 Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð.
11
11:1b.PRO.011.001 Svikavog er Drottni andstyggð, en full vog yndi hans.
11:2b.PRO.011.002 Komi hroki, kemur smán, en hjá lítillátum er viska.
11:3b.PRO.011.003 Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá, en undirferli svikulla tortímir þeim.
11:4b.PRO.011.004 Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar, en réttlæti frelsar frá dauða.
11:5b.PRO.011.005 Réttlæti hins ráðvanda gjörir veg hans sléttan, en hinn óguðlegi fellur um guðleysi sitt.
11:6b.PRO.011.006 Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá, en hinir svikulu ánetjast í eigin græðgi.
11:7b.PRO.011.007 Þegar óguðlegur maður deyr, verður von hans að engu, og eftirvænting glæpamannanna er að engu orðin.
11:8b.PRO.011.008 Hinn réttláti frelsast úr nauðum, og hinn óguðlegi kemur í hans stað.
11:9b.PRO.011.009 Með munninum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun, en hinir réttlátu frelsast fyrir þekkingu.
11:10b.PRO.011.010 Borgin fagnar yfir gæfu réttlátra, og þegar óguðlegir farast, gjalla gleðiópin.
11:11b.PRO.011.011 Borgin hefst fyrir blessun hreinskilinna, en fyrir munn óguðlegra steypist hún.
11:12b.PRO.011.012 Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir.
11:13b.PRO.011.013 Sá er gengur um sem rógberi, lýstur upp leyndarmálum, en sá sem er staðfastur í lund, leynir sökinni.
11:14b.PRO.011.014 Þar sem engin stjórn er, þar fellur þjóðin, en þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.
11:15b.PRO.011.015 Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl, er óhultur.
11:16b.PRO.011.016 Yndisleg kona hlýtur sæmd, og hinir sterku hljóta auðæfi.
11:17b.PRO.011.017 Kærleiksríkur maður gjörir sálu sinni gott, en hinn grimmi kvelur sitt eigið hold.
11:18b.PRO.011.018 Hinn óguðlegi aflar sér svikuls ávinnings, en sá er réttlæti sáir, sannra launa.
11:19b.PRO.011.019 Iðki einhver réttlæti, þá leiðir það til lífs, en ef hann eltir hið illa, leiðir það hann til dauða.
11:20b.PRO.011.020 Andstyggð fyrir Drottni eru þeir, sem hafa rangsnúið hjarta, en yndi hans þeir, er breyta ráðvandlega.
11:21b.PRO.011.021 Hér er höndin upp á það: Hinn vondi sleppur ekki óhegndur! en niðjar réttlátra komast undan.
11:22b.PRO.011.022 Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann.
11:23b.PRO.011.023 Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs, en vonir óguðlegra leiða yfir sig reiðidóm.
11:24b.PRO.011.024 Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari.
11:25b.PRO.011.025 Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta.
11:26b.PRO.011.026 Fólkið formælir þeim, sem heldur í kornið, en blessun kemur yfir höfuð þess, er selur það.
11:27b.PRO.011.027 Sá sem leitar góðs, stundar það, sem velþóknanlegt er, en sá sem sækist eftir illu, verður fyrir því.
11:28b.PRO.011.028 Sá sem treystir á auð sinn, hann fellur, en hinir réttlátu munu grænka eins og laufið.
11:29b.PRO.011.029 Sá sem kemur ólagi á heimilishag sinn, erfir vind, og afglapinn verður þjónn hins vitra.
11:30b.PRO.011.030 Ávöxtur hins réttláta er lífstré, og hinn vitri hyllir að sér hjörtun.
11:31b.PRO.011.031 Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu, hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn?
12
12:1b.PRO.012.001 Sá sem elskar aga, elskar þekking, en sá sem hatar umvöndun, er heimskur.
12:2b.PRO.012.002 Hinn góði hlýtur velþóknun af Drottni, en hrekkvísan mann fyrirdæmir hann.
12:3b.PRO.012.003 Enginn maður nær fótfestu með óguðleika, en rót hinna réttlátu mun eigi bifast.
12:4b.PRO.012.004 Væn kona er kóróna manns síns, en vond kona er sem rotnun í beinum hans.
12:5b.PRO.012.005 Hugsanir réttlátra stefna að rétti, en ráðagjörðir óguðlegra að svikum.
12:6b.PRO.012.006 Orð óguðlegra brugga banaráð, en munnur hreinskilinna frelsar þá.
12:7b.PRO.012.007 Óguðlegir kollsteypast og eru eigi framar til, en hús réttlátra stendur.
12:8b.PRO.012.008 Manninum verður hrósað eftir vitsmunum hans, en sá sem er rangsnúinn í hjarta, verður fyrirlitinn.
12:9b.PRO.012.009 Betra er að láta lítið yfir sér og hafa þjón en að berast mikið á og hafa ekki ofan í sig.
12:10b.PRO.012.010 Hinn réttláti er nærgætinn um þörf skepna sinna, en hjarta óguðlegra er hart.
12:11b.PRO.012.011 Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, er óvitur.
12:12b.PRO.012.012 Hinn óguðlegi ágirnist feng hinna vondu, en rót réttlátra er varanleg.
12:13b.PRO.012.013 Yfirsjón varanna er ill snara, en hinn réttláti bjargast úr nauðum.
12:14b.PRO.012.014 Af ávexti munnsins mettast maðurinn gæðum, og það sem hendur hans hafa öðrum gjört, kemur aftur yfir hann.
12:15b.PRO.012.015 Afglapanum finnst sinn vegur réttur, en vitur maður hlýðir á ráð.
12:16b.PRO.012.016 Gremja afglapans kemur þegar í ljós, en kænn maður dylur smán sína.
12:17b.PRO.012.017 Sá sem segir sannleikann hispurslaust, mælir fram það sem rétt er, en falsvotturinn svik.
12:18b.PRO.012.018 Þvaður sumra manna er sem spjótsstungur, en tunga hinna vitru græðir.
12:19b.PRO.012.019 Sannmálar varir munu ávallt standast, en lygin tunga aðeins stutta stund.
12:20b.PRO.012.020 Yfir svikum búa þeir, er illt brugga, en gleði valda þeir, er ráða til friðar.
12:21b.PRO.012.021 Réttlátum manni ber aldrei böl að hendi, en óhamingja hleðst á óguðlega.
12:22b.PRO.012.022 Lygavarir eru Drottni andstyggð, en þeir sem sannleik iðka, eru yndi hans.
12:23b.PRO.012.023 Kænn maður fer dult með þekking sína, en hjarta heimskingjanna fer hátt með flónsku sína.
12:24b.PRO.012.024 Hönd hinna iðnu mun drottna, en hangandi höndin verður vinnuskyld.
12:25b.PRO.012.025 Hugsýki beygir manninn, en vingjarnlegt orð gleður hann.
12:26b.PRO.012.026 Hinum réttláta vegnar betur en öðrum, en vegur óguðlegra leiðir þá í villu.
12:27b.PRO.012.027 Letinginn nær ekki villibráðinni, en iðnin er manninum dýrmætur auður.
12:28b.PRO.012.028 Á vegi réttlætisins er líf, en glæpaleiðin liggur út í dauðann.
13
13:1b.PRO.013.001 Vitur sonur hlýðir umvöndun föður síns, en spottarinn sinnir engum átölum.
13:2b.PRO.013.002 Maðurinn nýtur góðs af ávexti munnsins, en svikarana þyrstir í ofbeldi.
13:3b.PRO.013.003 Sá sem gætir munns síns, varðveitir líf sitt, en glötun er búin þeim, er ginið glennir.
13:4b.PRO.013.004 Sál letingjans girnist og fær ekki, en sál hinna iðnu mettast ríkulega.
13:5b.PRO.013.005 Réttlátur maður hatar fals, en hinn óguðlegi fremur skömm og svívirðu.
13:6b.PRO.013.006 Réttlætið verndar grandvara breytni, en guðleysið steypir syndaranum.
13:7b.PRO.013.007 Einn þykist ríkur, en á þó ekkert, annar læst vera fátækur, en á þó mikinn auð.
13:8b.PRO.013.008 Auðæfi mannsins eru lausnargjald fyrir líf hans, en hinn fátæki hlýðir ekki á neinar ávítur.
13:9b.PRO.013.009 Ljós réttlátra logar skært, en á lampa óguðlegra slokknar.
13:10b.PRO.013.010 Með hroka vekja menn aðeins þrætur, en hjá ráðþægnum mönnum er viska.
13:11b.PRO.013.011 Skjótfenginn auður minnkar, en sá sem safnar smátt og smátt, verður ríkur.
13:12b.PRO.013.012 Langdregin eftirvænting gjörir hjartað sjúkt, en uppfyllt ósk er lífstré.
13:13b.PRO.013.013 Sá sem fyrirlítur áminningarorð, býr sér glötun, en sá sem óttast boðorðið, hlýtur umbun.
13:14b.PRO.013.014 Kenning hins vitra er lífslind til þess að forðast snöru dauðans.
13:15b.PRO.013.015 Góðir vitsmunir veita hylli, en vegur svikaranna leiðir í glötun.
13:16b.PRO.013.016 Kænn maður gjörir allt með skynsemd, en heimskinginn breiðir út vitleysu.
13:17b.PRO.013.017 Óguðlegur sendiboði steypir í ógæfu, en trúr sendimaður er meinabót.
13:18b.PRO.013.018 Fátækt og smán hlýtur sá, er lætur áminning sem vind um eyrun þjóta, en sá sem tekur umvöndun, verður heiðraður.
13:19b.PRO.013.019 Uppfyllt ósk er sálunni sæt, en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.
13:20b.PRO.013.020 Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.
13:21b.PRO.013.021 Óhamingjan eltir syndarana, en gæfan nær hinum réttlátu.
13:22b.PRO.013.022 Góður maður lætur eftir sig arf handa barnabörnunum, en eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.
13:23b.PRO.013.023 Nýbrotið land fátæklinganna gefur mikla fæðu, en mörgum er burtu kippt fyrir ranglæti sitt.
13:24b.PRO.013.024 Sá sem sparar vöndinn, hatar son sinn, en sá sem elskar hann, agar hann snemma.
13:25b.PRO.013.025 Hinn réttláti etur nægju sína, en kviður óguðlegra líður skort.
14
14:1b.PRO.014.001 Viska kvennanna reisir húsið, en fíflskan rífur það niður með höndum sínum.
14:2b.PRO.014.002 Sá sem framgengur í hreinskilni sinni, óttast Drottin, en sá sem fer krókaleiðir, fyrirlítur hann.
14:3b.PRO.014.003 Í munni afglapans er vöndur á hroka hans, en varir hinna vitru varðveita þá.
14:4b.PRO.014.004 Þar sem engin naut eru, þar er jatan tóm, en fyrir kraft uxans fæst mikill ágóði.
14:5b.PRO.014.005 Sannorður vottur lýgur ekki, en falsvottur fer með lygar.
14:6b.PRO.014.006 Spottarinn leitar visku, en finnur ekki, en hyggnum manni er þekkingin auðfengin.
14:7b.PRO.014.007 Gakk þú burt frá heimskum manni, og þú hefir ekki kynnst þekkingar-vörum.
14:8b.PRO.014.008 Viska hins kæna er í því fólgin, að hann skilur veg sinn, en fíflska heimskingjanna er svik.
14:9b.PRO.014.009 Afglaparnir gjöra gys að sektarfórnum, en meðal hreinskilinna er velþóknun.
14:10b.PRO.014.010 Hjartað eitt þekkir kvöl sína, og jafnvel í gleði þess getur enginn annar blandað sér.
14:11b.PRO.014.011 Hús óguðlegra mun eyðileggjast, en tjald hreinskilinna mun blómgast.
14:12b.PRO.014.012 Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.
14:13b.PRO.014.013 Jafnvel þótt hlegið sé, kennir hjartað til, og endir gleðinnar er tregi.
14:14b.PRO.014.014 Rangsnúið hjarta mettast af vegum sínum svo og góður maður af verkum sínum.
14:15b.PRO.014.015 Einfaldur maður trúir öllu, en kænn maður athugar fótmál sín.
14:16b.PRO.014.016 Vitur maður óttast hið illa og forðast það, en heimskinginn er framhleypinn og ugglaus.
14:17b.PRO.014.017 Uppstökkur maður fremur fíflsku, en hrekkvís maður verður hataður.
14:18b.PRO.014.018 Einfeldningarnir erfa fíflsku, en vitrir menn krýnast þekkingu.
14:19b.PRO.014.019 Hinir vondu verða að lúta hinum góðu, og hinir óguðlegu að standa við dyr réttlátra.
14:20b.PRO.014.020 Fátæklingurinn verður hvimleiður jafnvel vini sínum, en ríkismanninn elska margir.
14:21b.PRO.014.021 Sá sem fyrirlítur vin sinn, drýgir synd, en sæll er sá, sem miskunnar sig yfir hina voluðu.
14:22b.PRO.014.022 Vissulega villast þeir, er ástunda illt, en ást og trúfesti ávinna þeir sér, er gott stunda.
14:23b.PRO.014.023 Af öllu striti fæst ágóði, en munnfleiprið eitt leiðir aðeins til skorts.
14:24b.PRO.014.024 Vitrum mönnum er auður þeirra kóróna, en fíflska heimskingjanna er og verður fíflska.
14:25b.PRO.014.025 Sannorður vottur frelsar líf, en sá sem fer með lygar, er svikari.
14:26b.PRO.014.026 Í ótta Drottins er öruggt traust, og synir slíks manns munu athvarf eiga.
14:27b.PRO.014.027 Ótti Drottins er lífslind til þess að forðast snörur dauðans.
14:28b.PRO.014.028 Fólksmergðin er prýði konungsins, en mannaskorturinn steypir höfðingjanum.
14:29b.PRO.014.029 Sá sem er seinn til reiði, er ríkur að skynsemd, en hinn bráðlyndi sýnir mikla fíflsku.
14:30b.PRO.014.030 Rósamt hjarta er líf líkamans, en ástríða er eitur í beinum.
14:31b.PRO.014.031 Sá sem kúgar snauðan mann, óvirðir þann er skóp hann, en sá heiðrar hann, er miskunnar sig yfir fátækan.
14:32b.PRO.014.032 Hinn óguðlegi fellur á illsku sinni, en hinum réttláta er ráðvendnin athvarf.
14:33b.PRO.014.033 Í hjarta hyggins manns heldur viskan kyrru fyrir, en á meðal heimskingja gerir hún vart við sig.
14:34b.PRO.014.034 Réttlætið hefur upp lýðinn, en syndin er þjóðanna skömm.
14:35b.PRO.014.035 Vitur þjónn hlýtur hylli konungsins, en sá hefir reiði hans, sem skammarlega breytir.
15
15:1b.PRO.015.001 Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meiðandi orð vekur reiði.
15:2b.PRO.015.002 Af tungu hinna vitru drýpur þekking, en munnur heimskingjanna eys úr sér vitleysu.
15:3b.PRO.015.003 Augu Drottins eru alls staðar, vakandi yfir vondum og góðum.
15:4b.PRO.015.004 Hógværð tungunnar er lífstré, en fals hennar veldur hugarkvöl.
15:5b.PRO.015.005 Afglapinn smáir aga föður síns, en sá sem tekur umvöndun, verður hygginn.
15:6b.PRO.015.006 Í húsi hins réttláta er mikill auður, en glundroði er í gróðafé hins óguðlega.
15:7b.PRO.015.007 Varir hinna vitru dreifa út þekkingu, en hjarta heimskingjanna er rangsnúið.
15:8b.PRO.015.008 Fórn óguðlegra er Drottni andstyggð, en bæn hreinskilinna er honum þóknanleg.
15:9b.PRO.015.009 Vegur hins óguðlega er Drottni andstyggilegur, en þann sem stundar réttlæti, elskar hann.
15:10b.PRO.015.010 Slæm hirting bíður þess, sem yfirgefur rétta leið, sá sem hatar umvöndun, hlýtur að deyja.
15:11b.PRO.015.011 Dánarheimur og undirdjúpin eru opin fyrir Drottni, hversu miklu fremur hjörtu mannanna barna!
15:12b.PRO.015.012 Spottaranum er ekki vel við, að vandað sé um við hann, til viturra manna fer hann ekki.
15:13b.PRO.015.013 Glatt hjarta gjörir andlitið hýrlegt, en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur.
15:14b.PRO.015.014 Hjarta hins vitra leitar að þekking, en munnur heimskingjanna gæðir sér á fíflsku.
15:15b.PRO.015.015 Hinn volaði sér aldrei glaðan dag, en sá sem vel liggur á, er sífellt í veislu.
15:16b.PRO.015.016 Betra er lítið í ótta Drottins en mikill fjársjóður með áhyggjum.
15:17b.PRO.015.017 Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika en alinn uxi með hatri.
15:18b.PRO.015.018 Bráðlyndur maður vekur deilur, en sá sem seinn er til reiði, stillir þrætu.
15:19b.PRO.015.019 Vegur letingjans er eins og þyrnigerði, en gata hreinskilinna er brautarvegur.
15:20b.PRO.015.020 Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur maður fyrirlítur móður sína.
15:21b.PRO.015.021 Óvitrum manni er fíflskan gleði, en skynsamur maður gengur beint áfram.
15:22b.PRO.015.022 Áformin verða að engu, þar sem engin er ráðagerðin, en ef margir leggja á ráðin, fá þau framgang.
15:23b.PRO.015.023 Gleði hlýtur maðurinn af svari munns síns, og hversu fagurt er orð í tíma talað!
15:24b.PRO.015.024 Lífsins vegur liggur upp á við fyrir hinn hyggna, til þess að hann lendi ekki niður í Helju.
15:25b.PRO.015.025 Drottinn rífur niður hús dramblátra, en setur föst landamerki ekkjunnar.
15:26b.PRO.015.026 Ill áform eru Drottni andstyggð, en hrein eru vingjarnleg orð.
15:27b.PRO.015.027 Sá kemur ólagi á heimilishag sinn, sem fíkinn er í rangfenginn gróða, en sá sem hatar mútugjafir, mun lifa.
15:28b.PRO.015.028 Hjarta hins réttláta íhugar, hverju svara skuli, en munnur óguðlegra eys úr sér illsku.
15:29b.PRO.015.029 Drottinn er fjarlægur óguðlegum, en bæn réttlátra heyrir hann.
15:30b.PRO.015.030 Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað, góðar fréttir feita beinin.
15:31b.PRO.015.031 Eyra sem hlýðir á holla umvöndun, mun búa meðal hinna vitru.
15:32b.PRO.015.032 Sá sem aga hafnar, fyrirlítur sjálfan sig, en sá sem hlýðir á umvöndun, aflar sér hygginda.
15:33b.PRO.015.033 Ótti Drottins er ögun til visku, og auðmýkt er undanfari virðingar.
16
16:1b.PRO.016.001 Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi, en svar tungunnar kemur frá Drottni.
16:2b.PRO.016.002 Manninum þykja allir sínir vegir hreinir, en Drottinn prófar hugarþelið.
16:3b.PRO.016.003 Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.
16:4b.PRO.016.004 Allt hefir Drottinn skapað til síns ákveðna marks, svo og guðleysingjann til óheilladagsins.
16:5b.PRO.016.005 Sérhver hrokafullur maður er Drottni andstyggð, hér er höndin upp á það: hann sleppur ekki óhegndur!
16:6b.PRO.016.006 Með elsku og trúfesti er friðþægt fyrir misgjörð, og fyrir ótta Drottins forðast menn hið illa.
16:7b.PRO.016.007 Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns, þá sættir hann og óvini hans við hann.
16:8b.PRO.016.008 Betra er lítið með réttu en miklar tekjur með röngu.
16:9b.PRO.016.009 Hjarta mannsins upphugsar veg hans, en Drottinn stýrir gangi hans.
16:10b.PRO.016.010 Goðsvar er á vörum konungsins, í dómi mun munni hans ekki skeika.
16:11b.PRO.016.011 Rétt vog og reisla koma frá Drottni, lóðin á vogarskálunum eru hans verk.
16:12b.PRO.016.012 Að fremja ranglæti er konungum andstyggð, því að hásætið staðfestist fyrir réttlæti.
16:13b.PRO.016.013 Réttlátar varir eru yndi konunga, og þeir elska þann, er talar hreinskilni.
16:14b.PRO.016.014 Konungsreiði er sem sendiboði dauðans, en vitur maður sefar hana.
16:15b.PRO.016.015 Í mildilegu augnaráði konungs er líf, og hylli hans er sem vorregns-ský.
16:16b.PRO.016.016 Hversu miklu betra er að afla sér visku en gulls og ákjósanlegra að afla sér hygginda en silfurs.
16:17b.PRO.016.017 Braut hreinskilinna er að forðast illt, að varðveita sálu sína er að gæta breytni sinnar.
16:18b.PRO.016.018 Drambsemi er undanfari tortímingar, og oflæti veit á fall.
16:19b.PRO.016.019 Betra er að vera lítillátur með auðmjúkum en að skipta herfangi með dramblátum.
16:20b.PRO.016.020 Sá sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drottni.
16:21b.PRO.016.021 Sá sem er vitur í hjarta, verður hygginn kallaður, og sætleiki varanna eykur fræðslu.
16:22b.PRO.016.022 Lífslind er hyggnin þeim, sem hana á, en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.
16:23b.PRO.016.023 Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn og eykur fræðsluna á vörum hans.
16:24b.PRO.016.024 Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.
16:25b.PRO.016.025 Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.
16:26b.PRO.016.026 Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum, því að munnur hans rekur á eftir honum.
16:27b.PRO.016.027 Varmennið grefur óheillagröf, og á vörum hans er sem brennandi eldur.
16:28b.PRO.016.028 Vélráður maður kveikir illdeilur, og rógberinn veldur vinaskilnaði.
16:29b.PRO.016.029 Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn og leiðir hann á vondan veg.
16:30b.PRO.016.030 Sá sem lokar augunum, upphugsar vélræði, sá sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.
16:31b.PRO.016.031 Gráar hærur eru heiðurskóróna, á vegi réttlætis öðlast menn hana.
16:32b.PRO.016.032 Sá sem seinn er til reiði, er betri en kappi, og sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá sem vinnur borgir.
16:33b.PRO.016.033 Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir, en Drottinn ræður, hvað upp kemur.
17
17:1b.PRO.017.001 Betri er þurr brauðbiti með ró en fullt hús af fórnarkjöti með deilum.
17:2b.PRO.017.002 Hygginn þræll verður drottnari yfir spilltum syni, og hann tekur erfðahlut með bræðrunum.
17:3b.PRO.017.003 Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, en Drottinn prófar hjörtun.
17:4b.PRO.017.004 Illmennið gefur gaum að fláræðis-vörum, lygin hlýðir á glæpa-tungu.
17:5b.PRO.017.005 Sá sem gjörir gys að fátækum, óvirðir þann er skóp hann, og sá sem gleðst yfir ógæfu, sleppur ekki óhegndur.
17:6b.PRO.017.006 Barnabörnin eru kóróna öldunganna, og feðurnir eru heiður barnanna.
17:7b.PRO.017.007 Ekki hæfa heimskum manni stóryrði, hve miklu síður göfgum manni lygavarir.
17:8b.PRO.017.008 Mútan er gimsteinn í augum þess er hana fær, hvert sem maður snýr sér með hana, kemur hann sínu fram.
17:9b.PRO.017.009 Sá sem breiðir yfir bresti, eflir kærleika, en sá sem ýfir upp sök, veldur vinaskilnaði.
17:10b.PRO.017.010 Ávítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á heimskingja.
17:11b.PRO.017.011 Uppreisnarmaðurinn hyggur á illt eitt, en grimmur sendiboði mun sendur verða móti honum.
17:12b.PRO.017.012 Betra er fyrir mann að mæta birnu, sem rænd er húnum sínum, heldur en heimskingja í flónsku hans.
17:13b.PRO.017.013 Sá sem launar gott með illu, frá hans húsi víkur ógæfan eigi.
17:14b.PRO.017.014 Þegar deila byrjar, er sem tekin sé úr stífla, lát því af þrætunni, áður en rifrildi hefst.
17:15b.PRO.017.015 Sá sem sekan sýknar, og sá sem saklausan sakfellir, þeir eru báðir Drottni andstyggð.
17:16b.PRO.017.016 Hvað stoða peningar í hendi heimskingjans til þess að kaupa speki, þar sem vitið er ekkert?
17:17b.PRO.017.017 Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir.
17:18b.PRO.017.018 Óvitur maður er sá, er til handsala gengur, sá sem gengur í ábyrgð fyrir náunga sinn.
17:19b.PRO.017.019 Sá elskar yfirsjón, sem þrætu elskar, sá sem háar gjörir dyr sínar, sækist eftir hruni.
17:20b.PRO.017.020 Rangsnúið hjarta öðlast enga gæfu, og sá sem hefir fláráða tungu, hrapar í ógæfu.
17:21b.PRO.017.021 Sá sem getur af sér heimskingja, honum verður það til mæðu, og faðir glópsins fagnar ekki.
17:22b.PRO.017.022 Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en dapurt geð skrælir beinin.
17:23b.PRO.017.023 Hinn óguðlegi þiggur mútur á laun til þess að beygja leiðir réttvísinnar.
17:24b.PRO.017.024 Hygginn maður hefir viskuna fyrir framan sig, en augu heimskingjans eru úti á heimsenda.
17:25b.PRO.017.025 Heimskur sonur er föður sínum til sorgar og þeirri til angurs, er ól hann.
17:26b.PRO.017.026 Það eitt að sekta saklausan er ekki gott, en að berja tignarmenni tekur þó út yfir.
17:27b.PRO.017.027 Fámálugur maður er hygginn, og geðrór maður er skynsamur.
17:28b.PRO.017.028 Afglapinn getur jafnvel álitist vitur, ef hann þegir, hygginn, ef hann lokar vörunum.
18
18:1b.PRO.018.001 Sérlyndur maður fer að sínum munum, hann illskast við öllu, sem hyggilegt er.
18:2b.PRO.018.002 Heimskinginn hefir engar mætur á hyggindum, heldur á því að gjöra kunnar hugsanir sínar.
18:3b.PRO.018.003 Þar sem hinn óguðlegi kemur, þar kemur og fyrirlitning, og með smáninni kemur skömm.
18:4b.PRO.018.004 Djúp vötn eru orð af manns munni, lind viskunnar er sem rennandi lækur.
18:5b.PRO.018.005 Það er ekki rétt að draga taum hins óguðlega, að halla rétti hins saklausa í dómi.
18:6b.PRO.018.006 Varir heimskingjans valda deilum, og munnur hans kallar á högg.
18:7b.PRO.018.007 Munnur heimskingjans verður honum að tjóni, og varir hans eru snara fyrir líf hans.
18:8b.PRO.018.008 Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.
18:9b.PRO.018.009 Sá sem tómlátur er í verki sínu, er skilgetinn bróðir eyðsluseggsins.
18:10b.PRO.018.010 Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er þar óhultur.
18:11b.PRO.018.011 Auður ríks manns er honum öflugt vígi og ókleifur múrveggur í sjálfs hans ímyndun.
18:12b.PRO.018.012 Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar.
18:13b.PRO.018.013 Svari einhver áður en hann heyrir, þá er honum það flónska og skömm.
18:14b.PRO.018.014 Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans, en dapurt geð, hver fær borið það?
18:15b.PRO.018.015 Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar, og eyra hinna vitru leitar þekkingar.
18:16b.PRO.018.016 Gjöf sem maður gefur, rýmir til fyrir honum og leiðir hann fram fyrir stórmenni.
18:17b.PRO.018.017 Hinn fyrri sýnist hafa á réttu að standa í þrætumáli sínu, en síðan kemur mótpartur hans og rannsakar röksemdir hans.
18:18b.PRO.018.018 Hlutkestið gjörir enda á deilum og sker úr milli sterkra.
18:19b.PRO.018.019 Erfiðara er að ávinna svikinn bróður en að vinna rammbyggða borg, og deilur slíkra manna eru sem slagbrandar fyrir hallardyrum.
18:20b.PRO.018.020 Kviður mannsins mettast af ávexti munns hans, af gróðri varanna mettast hann.
18:21b.PRO.018.021 Dauði og líf eru á tungunnar valdi, og sá sem hefir taum á henni, mun eta ávöxt hennar.
18:22b.PRO.018.022 Sá sem eignast konu, eignast gersemi, og hlýtur náðargjöf af Drottni.
18:23b.PRO.018.023 Hinn fátæki mælir bljúgum bænarorðum, en hinn ríki svarar með hörku.
18:24b.PRO.018.024 Að vera allra vinur er til tjóns, en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir.
19
19:1b.PRO.019.001 Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en lævís lygari og heimskur að auki.
19:2b.PRO.019.002 Kapp er best með forsjá, og sá sem hraðar sér, misstígur sig.
19:3b.PRO.019.003 Flónska mannsins steypir fyrirtækjum hans, en hjarta hans illskast við Drottin.
19:4b.PRO.019.004 Auður fjölgar vinum, en fátækur maður verður vinum horfinn.
19:5b.PRO.019.005 Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, kemst ekki undan.
19:6b.PRO.019.006 Margir reyna að koma sér í mjúkinn hjá tignarmanninum, og allir eru vinir þess, sem gjafir gefur.
19:7b.PRO.019.007 Allir bræður hins snauða hata hann, hversu miklu fremur firrast þá vinir hans hann.
19:8b.PRO.019.008 Sá sem aflar sér hygginda, elskar líf sitt, sá sem varðveitir skynsemi, mun gæfu hljóta.
19:9b.PRO.019.009 Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, tortímist.
19:10b.PRO.019.010 Sællífi hæfir eigi heimskum manni, hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.
19:11b.PRO.019.011 Hyggni mannsins gjörir hann seinan til reiði, og það er honum til frægðar að ganga fram hjá mótgjörðum.
19:12b.PRO.019.012 Konungsreiði er eins og ljónsöskur, en hylli hans sem dögg á grasi.
19:13b.PRO.019.013 Heimskur sonur er föður sínum sönn óhamingja, og konuþras er sífelldur þakleki.
19:14b.PRO.019.014 Hús og auður er arfur frá feðrunum, en skynsöm kona er gjöf frá Drottni.
19:15b.PRO.019.015 Letin svæfir þungum svefni, og iðjulaus maður mun hungur þola.
19:16b.PRO.019.016 Sá sem varðveitir boðorðið, varðveitir líf sitt, en sá deyr, sem ekki hefir gát á vegum sínum.
19:17b.PRO.019.017 Sá lánar Drottni, er líknar fátækum, og hann mun launa honum góðverk hans.
19:18b.PRO.019.018 Aga þú son þinn, því að enn er von, en farðu eigi svo langt, að þú deyðir hann.
19:19b.PRO.019.019 Sá sem illa reiðist, verður að greiða sekt, því að ætlir þú að bjarga, gjörir þú illt verra.
19:20b.PRO.019.020 Hlýð þú ráðum og tak umvöndun, til þess að þú verðir vitur eftirleiðis.
19:21b.PRO.019.021 Mörg eru áformin í mannshjartanu, en ráðsályktun Drottins stendur.
19:22b.PRO.019.022 Unun mannsins er kærleiksverk hans, og betri er fátækur maður en lygari.
19:23b.PRO.019.023 Ótti Drottins leiðir til lífs, þá hvílist maðurinn mettur, verður ekki fyrir neinni ógæfu.
19:24b.PRO.019.024 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en ekki nennir hann að bera hana aftur upp að munninum.
19:25b.PRO.019.025 Sláir þú spottarann, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vandað um við skynsaman mann, lærir hann hyggindi.
19:26b.PRO.019.026 Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, slíkur sonur fremur smán og svívirðing.
19:27b.PRO.019.027 Hættu, son minn, að hlýða á umvöndun, ef það er til þess eins, að þú brjótir á móti skynsamlegum orðum.
19:28b.PRO.019.028 Samviskulaus vottur gjörir gys að réttinum, og munnur óguðlegra gleypir rangindi.
19:29b.PRO.019.029 Refsidómar eru búnir spotturunum og högg baki heimskingjanna.
2
2:1b.PRO.002.001 Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér,
2:2b.PRO.002.002 svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum,
2:3b.PRO.002.003 já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,
2:4b.PRO.002.004 ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,
2:5b.PRO.002.005 þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast þekking á Guði.
2:6b.PRO.002.006 Því að Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.
2:7b.PRO.002.007 Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,
2:8b.PRO.002.008 með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna guðhræddu.
2:9b.PRO.002.009 Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendni, - í stuttu máli, sérhverja braut hins góða.
2:10b.PRO.002.010 Því að speki mun koma í hjarta þitt, og þekking verða sálu þinni yndisleg.
2:11b.PRO.002.011 Aðgætni mun vernda þig, og hyggindin varðveita þig,
2:12b.PRO.002.012 til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals,
2:13b.PRO.002.013 sem yfirgefa stigu einlægninnar og ganga á vegum myrkursins
2:14b.PRO.002.014 sem hafa gleði af því að gjöra illt, fagna yfir illsku hrekkjum,
2:15b.PRO.002.015 sem gjöra vegu sína hlykkjótta og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni,
2:16b.PRO.002.016 til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu, frá blíðmálugri konu sem annar á,
2:17b.PRO.002.017 sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns,
2:18b.PRO.002.018 því að hús hennar hnígur í dauðann, og brautir hennar liggja niður til framliðinna,
2:19b.PRO.002.019 þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur, og aldrei komast þeir á lífsins stigu, -
2:20b.PRO.002.020 til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra.
2:21b.PRO.002.021 Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því.
2:22b.PRO.002.022 En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.
20
20:1b.PRO.020.001 Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur.
20:2b.PRO.020.002 Konungsreiði er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu.
20:3b.PRO.020.003 Það er manni sómi að halda sér frá þrætu, en hver afglapinn ygglir sig.
20:4b.PRO.020.004 Letinginn plægir ekki á haustin, fyrir því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt.
20:5b.PRO.020.005 Ráðin í hjarta mannsins eru sem djúp vötn, og hygginn maður eys þar af.
20:6b.PRO.020.006 Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin, hver finnur hann?
20:7b.PRO.020.007 Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni, sæl eru því börn hans eftir hann.
20:8b.PRO.020.008 Þegar konungur situr á dómstóli, þá skilur hann allt illt úr með augnaráði sínu.
20:9b.PRO.020.009 Hver getur sagt: "Ég hefi haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?"
20:10b.PRO.020.010 Tvenns konar vog og tvenns konar mál, það er hvort tveggja Drottni andstyggð.
20:11b.PRO.020.011 Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum, hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar.
20:12b.PRO.020.012 Eyrað sem heyrir, og augað sem sér, hvort tveggja hefir Drottinn skapað.
20:13b.PRO.020.013 Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði.
20:14b.PRO.020.014 "Slæmt! Slæmt!" segir kaupandinn, en þegar hann gengur burt, hælist hann um.
20:15b.PRO.020.015 Til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir.
20:16b.PRO.020.016 Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlendinga.
20:17b.PRO.020.017 Sætt er svikabrauðið, en eftir á fyllist munnurinn möl.
20:18b.PRO.020.018 Vel ráðin áform fá framgang, haf því holl ráð, er þú heyr stríð.
20:19b.PRO.020.019 Sá sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi, haf því engin mök við málugan mann.
20:20b.PRO.020.020 Sá sem formælir föður og móður, á hans lampa slokknar í niðamyrkri.
20:21b.PRO.020.021 Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn, blessast eigi að lokum.
20:22b.PRO.020.022 Seg þú ekki: "Ég vil endurgjalda illt!" Bíð þú Drottins, og hann mun hjálpa þér.
20:23b.PRO.020.023 Tvenns konar vog er Drottni andstyggð, og svikavog er ekki góð.
20:24b.PRO.020.024 Spor mannsins eru ákveðin af Drottni, en maðurinn - hvernig fær hann skynjað veg sinn?
20:25b.PRO.020.025 Það er manninum snara að hrópa í fljótfærni: "Helgað!" og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð.
20:26b.PRO.020.026 Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu og lætur síðan hjólið yfir þá ganga.
20:27b.PRO.020.027 Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans.
20:28b.PRO.020.028 Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn, og hann styður hásæti sitt með kærleika.
20:29b.PRO.020.029 Krafturinn er ágæti ungra manna, en hærurnar prýði öldunganna.
20:30b.PRO.020.030 Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða.
21
21:1b.PRO.021.001 Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, hann beygir það til hvers, er honum þóknast.
21:2b.PRO.021.002 Manninum þykja allir sínir vegir réttir, en Drottinn vegur hjörtun.
21:3b.PRO.021.003 Að iðka réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.
21:4b.PRO.021.004 Drembileg augu og hrokafullt hjarta eru lampi óguðlegra, - allt er það synd.
21:5b.PRO.021.005 Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel, en öll flasfærni lendir í fjárskorti.
21:6b.PRO.021.006 Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu, eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans.
21:7b.PRO.021.007 Ofríki hinna óguðlegu dregur þá á eftir sér, því að þeir færast undan að gjöra það, sem rétt er.
21:8b.PRO.021.008 Boginn er vegur þess manns, sem synd er hlaðinn, en verk hins hreina eru ráðvandleg.
21:9b.PRO.021.009 Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.
21:10b.PRO.021.010 Sál hins óguðlega girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.
21:11b.PRO.021.011 Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi.
21:12b.PRO.021.012 Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega, steypir óguðlegum í ógæfu.
21:13b.PRO.021.013 Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka, hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu.
21:14b.PRO.021.014 Gjöf á laun sefar reiði og múta í barmi ákafa heift.
21:15b.PRO.021.015 Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en illgjörðamönnum er það skelfing.
21:16b.PRO.021.016 Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar, mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna.
21:17b.PRO.021.017 Öreigi verður sá, er sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur.
21:18b.PRO.021.018 Hinn óguðlegi er lausnargjald fyrir hinn réttláta, og svikarinn kemur í stað hinna hreinskilnu.
21:19b.PRO.021.019 Betra er að búa í eyðimerkur-landi en með þrasgjarnri og geðillri konu.
21:20b.PRO.021.020 Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra, en heimskur maður sólundar því.
21:21b.PRO.021.021 Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður.
21:22b.PRO.021.022 Vitur maður vinnur borg kappanna og rífur niður vígið, sem hún treysti á.
21:23b.PRO.021.023 Sá sem varðveitir munn sinn og tungu, hann varðveitir sálu sína frá nauðum.
21:24b.PRO.021.024 Sá sem er hrokafullur, dramblátur, hann heitir spottari, sá sem gjörir allt af taumlausum hroka.
21:25b.PRO.021.025 Óskir letingjans drepa hann, því að hendur hans vilja ekki vinna.
21:26b.PRO.021.026 Ávallt er letinginn að óska sér, en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.
21:27b.PRO.021.027 Sláturfórn óguðlegra er Drottni andstyggð, hvað þá, sé hún framborin fyrir óhæfuverk.
21:28b.PRO.021.028 Falsvottur mun tortímast, en maður, sem heyrt hefir, má ávallt tala.
21:29b.PRO.021.029 Óguðlegur maður setur upp öruggan svip, en hinn hreinskilni gjörir veg sinn öruggan.
21:30b.PRO.021.030 Engin viska er til og engin hyggni, né heldur ráð gegn Drottni.
21:31b.PRO.021.031 Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins, en sigurinn er í hendi Drottins.
22
22:1b.PRO.022.001 Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull.
22:2b.PRO.022.002 Ríkur og fátækur hittast, Drottinn skóp þá alla saman.
22:3b.PRO.022.003 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig, en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.
22:4b.PRO.022.004 Laun auðmýktar, ótta Drottins, eru auður, heiður og líf.
22:5b.PRO.022.005 Þyrnar, snörur, eru á vegi hins undirförula, sá sem varðveitir líf sitt, kemur ekki nærri þeim.
22:6b.PRO.022.006 Fræð þú sveininn um veginn, sem hann á að halda, og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja.
22:7b.PRO.022.007 Ríkur maður drottnar yfir fátækum, og lánþeginn verður þræll lánsalans.
22:8b.PRO.022.008 Sá sem ranglæti sáir, uppsker óhamingju, og sproti heiftar hans verður að engu.
22:9b.PRO.022.009 Sá sem er góðgjarn, verður blessaður, því að hann gefur hinum fátæka af brauði sínu.
22:10b.PRO.022.010 Rek þú spottarann burt, þá fer deilan burt, og þá linnir þrætu og smán.
22:11b.PRO.022.011 Drottinn elskar hjartahreinan, konungurinn er vinur þess, sem hefir yndisþokka á vörum sér.
22:12b.PRO.022.012 Augu Drottins varðveita þekkinguna, en orðum svikarans kollvarpar hann.
22:13b.PRO.022.013 Letinginn segir: "Ljón er úti fyrir, ég kynni að verða drepinn úti á götunni."
22:14b.PRO.022.014 Djúp gröf er munnur léttúðarkvenna, sá sem verður fyrir reiði Drottins, fellur í hana.
22:15b.PRO.022.015 Ef fíflska situr föst í hjarta sveinsins, þá mun vöndur agans koma henni burt þaðan.
22:16b.PRO.022.016 Að kúga fátækan eykur efni hans, að gefa ríkum manni verður til þess eins að gjöra hann snauðan.
22:17b.PRO.022.017 Hneig eyra þitt og heyr orð hinna vitru, og snú athygli þinni að kenning minni,
22:18b.PRO.022.018 því að það er fagurt, ef þú geymir þau í brjósti þér, ef þau eru öll til taks á vörum þínum.
22:19b.PRO.022.019 Til þess að traust þitt sé á Drottni, fræði ég þig í dag, já þig.
22:20b.PRO.022.020 Vissulega skrifa ég kjarnyrði handa þér, með heilræðum og fræðslu,
22:21b.PRO.022.021 til þess að ég kunngjöri þér sannleika, áreiðanleg orð, svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð, er senda þig.
22:22b.PRO.022.022 Ræn eigi hinn lítilmótlega, af því að hann er lítilmótlegur, og knosa eigi hinn volaða í borgarhliðinu,
22:23b.PRO.022.023 því að Drottinn mun flytja mál þeirra og ræna þá lífinu, er þá ræna.
22:24b.PRO.022.024 Legg eigi lag þitt við reiðigjarnan mann og haf eigi umgengni við fauta,
22:25b.PRO.022.025 til þess að þú venjist eigi á háttsemi hans og sækir snöru fyrir líf þitt.
22:26b.PRO.022.026 Ver þú ekki meðal þeirra, er ganga til handsala, meðal þeirra, er ganga í ábyrgð fyrir skuldum,
22:27b.PRO.022.027 því þegar þú ekkert hefir að borga með, viltu þá láta taka sængina undan þér?
22:28b.PRO.022.028 Fær þú eigi úr stað hin fornu landamerki, þau er feður þínir hafa sett.
22:29b.PRO.022.029 Sjáir þú mann vel færan í verki sínu, hann getur boðið konungum þjónustu sína, eigi mun hann bjóða sig ótignum mönnum.
23
23:1b.PRO.023.001 Þegar þú situr til borðs með valdsherra, þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig,
23:2b.PRO.023.002 og set þér hníf á barka, ef þú ert matmaður.
23:3b.PRO.023.003 Lát þig ekki langa í kræsingar hans, því að þær eru svikul fæða.
23:4b.PRO.023.004 Streist þú ekki við að verða ríkur, hættu að verja viti þínu til þess.
23:5b.PRO.023.005 Hvort skulu augu þín hvarfla til auðsins, sem er svo stopull? Því að sannlega gjörir hann sér vængi eins og örn, sem flýgur til himins.
23:6b.PRO.023.006 Et eigi brauð hjá nískum manni og lát þig ekki langa í kræsingar hans,
23:7b.PRO.023.007 því að hann er eins og maður, sem reiknar með sjálfum sér. "Et og drekk!" segir hann við þig, en hjarta hans er eigi með þér.
23:8b.PRO.023.008 Bitanum, sem þú hefir etið, verður þú að æla upp aftur, og blíðmælum þínum hefir þú á glæ kastað.
23:9b.PRO.023.009 Tala þú eigi fyrir eyrum heimskingjans, því að hann fyrirlítur hyggindi ræðu þinnar.
23:10b.PRO.023.010 Fær þú eigi úr stað landamerki ekkjunnar og gakk þú eigi inn á akra munaðarleysingjanna,
23:11b.PRO.023.011 því að lausnari þeirra er sterkur - hann mun flytja mál þeirra gegn þér.
23:12b.PRO.023.012 Snú þú hjarta þínu að umvöndun og eyrum þínum að vísdómsorðum.
23:13b.PRO.023.013 Spara eigi aga við sveininn, því ekki deyr hann, þótt þú sláir hann með vendinum.
23:14b.PRO.023.014 Þú slær hann að sönnu með vendinum, en þú frelsar líf hans frá Helju.
23:15b.PRO.023.015 Son minn, þegar hjarta þitt verður viturt, þá gleðst ég líka í hjarta mínu,
23:16b.PRO.023.016 og nýru mín fagna, er varir þínar mæla það sem rétt er.
23:17b.PRO.023.017 Lát eigi hjarta þitt öfunda syndara, heldur ástunda guðsótta á degi hverjum,
23:18b.PRO.023.018 því að vissulega er enn framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.
23:19b.PRO.023.019 Heyr þú, son minn, og ver vitur og stýr hjarta þínu rétta leið.
23:20b.PRO.023.020 Ver þú ekki með drykkjurútum, með þeim, sem hvoma í sig kjöt,
23:21b.PRO.023.021 því að drykkjurútar og mathákar verða snauðir, og svefnmók klæðir í tötra.
23:22b.PRO.023.022 Hlýð þú föður þínum, sem hefir getið þig, og fyrirlít ekki móður þína, þótt hún sé orðin gömul.
23:23b.PRO.023.023 Kaup þú sannleika, og sel hann ekki, visku, aga og hyggindi.
23:24b.PRO.023.024 Faðir réttláts manns fagnar, og sá sem gat vitran son, gleðst af honum.
23:25b.PRO.023.025 Gleðjist faðir þinn og móðir þín og fagni hún, sem fæddi þig.
23:26b.PRO.023.026 Son minn, gef mér hjarta þitt, og lát vegu mína vera þér geðfellda.
23:27b.PRO.023.027 Því að skækja er djúp gröf og léttúðardrós þröngur pyttur.
23:28b.PRO.023.028 Já, hún liggur í leyni eins og ræningi og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.
23:29b.PRO.023.029 Hver æjar? hver veinar? hver á í deilum? hver kvartar? hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?
23:30b.PRO.023.030 Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.
23:31b.PRO.023.031 Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.
23:32b.PRO.023.032 Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.
23:33b.PRO.023.033 Augu þín munu sjá kynlega hluti, og hjarta þitt mun mæla fláræði.
23:34b.PRO.023.034 Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi, já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.
23:35b.PRO.023.035 "Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín!"
24
24:1b.PRO.024.001 Öfunda ekki vonda menn og lát þig ekki langa til að vera með þeim,
24:2b.PRO.024.002 því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum, og varir þeirra mæla ógæfu.
24:3b.PRO.024.003 Fyrir speki verður hús reist, og fyrir hyggni verður það staðfast,
24:4b.PRO.024.004 fyrir þekking fyllast forðabúrin alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.
24:5b.PRO.024.005 Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill,
24:6b.PRO.024.006 því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð, og þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.
24:7b.PRO.024.007 Viskan er afglapanum ofviða, í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
24:8b.PRO.024.008 Þann sem leggur stund á að gjöra illt, kalla menn varmenni.
24:9b.PRO.024.009 Syndin er fíflslegt fyrirtæki, og spottarinn er mönnum andstyggð.
24:10b.PRO.024.010 Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi, þá er máttur þinn lítill.
24:11b.PRO.024.011 Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts, og þyrm þeim, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.
24:12b.PRO.024.012 Segir þú: "Vér vissum það eigi," - sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það, og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það og mun gjalda manninum eftir verkum hans.
24:13b.PRO.024.013 Et þú hunang, son minn, því að það er gott, og hunangsseimur er gómi þínum sætur.
24:14b.PRO.024.014 Nem á sama hátt speki fyrir sálu þína, finnir þú hana, er framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.
24:15b.PRO.024.015 Sit eigi, þú hinn óguðlegi, um bústað hins réttláta og eyðilegg ekki heimkynni hans,
24:16b.PRO.024.016 því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur aftur upp, en óguðlegir steypast í ógæfu.
24:17b.PRO.024.017 Gleð þig eigi yfir falli óvinar þíns, og hjarta þitt fagni eigi yfir því að hann steypist,
24:18b.PRO.024.018 svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki, og hann snúi reiði sinni frá honum til þín.
24:19b.PRO.024.019 Reiðst ekki vegna illgjörðamanna, öfunda eigi óguðlega,
24:20b.PRO.024.020 því að vondur maður á enga framtíð fyrir höndum, á lampa óguðlegra slokknar.
24:21b.PRO.024.021 Son minn, óttastu Drottin og konunginn, samlaga þig ekki óróaseggjum,
24:22b.PRO.024.022 því að ógæfa þeirra ríður að þegar minnst varir, og ófarir beggja - hver veit um þær?
24:23b.PRO.024.023 Þessir orðskviðir eru líka eftir spekinga. Hlutdrægni í dómi er ljót.
24:24b.PRO.024.024 Þeim sem segir við hinn seka: "Þú hefir rétt fyrir þér!" honum formæla menn, honum bölvar fólk.
24:25b.PRO.024.025 En þeim sem hegna eins og ber, mun vel vegna, yfir þá kemur ríkuleg blessun.
24:26b.PRO.024.026 Sá kyssir á varirnar, sem veitir rétt svör.
24:27b.PRO.024.027 Annastu verk þitt utan húss og ljúk því á akrinum, síðan getur þú byggt hús þitt.
24:28b.PRO.024.028 Vertu eigi vottur gegn náunga þínum að ástæðulausu, eða mundir þú vilja svíkja með vörum þínum?
24:29b.PRO.024.029 Seg þú ekki: "Eins og hann gjörði mér, eins ætla ég honum að gjöra, ég ætla að endurgjalda manninum eftir verkum hans!"
24:30b.PRO.024.030 Mér varð gengið fram hjá akri letingja nokkurs og fram hjá víngarði óviturs manns.
24:31b.PRO.024.031 Og sjá, hann var allur vaxinn klungrum, hann var alþakinn netlum, og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
24:32b.PRO.024.032 En ég varð þess var, veitti því athygli, sá það og lét mér það að kenningu verða:
24:33b.PRO.024.033 Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,
24:34b.PRO.024.034 þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.
25
25:1b.PRO.025.001 Þetta eru líka orðskviðir Salómons, er menn Hiskía Júdakonungs hafa safnað.
25:2b.PRO.025.002 Guði er það heiður að dylja mál, en konungum heiður að rannsaka mál.
25:3b.PRO.025.003 Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo eru konungahjörtun órannsakanleg.
25:4b.PRO.025.004 Sé sorinn tekinn úr silfrinu, þá fær smiðurinn ker úr því.
25:5b.PRO.025.005 Séu hinir óguðlegu teknir burt frá augliti konungsins, þá mun hásæti hans staðfestast fyrir réttlæti.
25:6b.PRO.025.006 Stær þig eigi frammi fyrir konunginum og ryðst eigi í rúm stórmenna,
25:7b.PRO.025.007 því að betra er að menn segi við þig: "Fær þig hingað upp!" heldur en að menn gjöri þér læging frammi fyrir tignarmanni. Hvað sem augu þín kunna að hafa séð,
25:8b.PRO.025.008 þá ver eigi skjótur til málsóknar, því að hvað ætlar þú síðan að gjöra, þá er náungi þinn gjörir þér sneypu?
25:9b.PRO.025.009 Rek þú mál þitt gegn náunga þínum, en ljósta eigi upp leyndarmáli annars manns,
25:10b.PRO.025.010 til þess að sá sem heyrir það, smáni þig ekki og þú losnir aldrei við illan orðróm.
25:11b.PRO.025.011 Gullepli í skrautlegum silfurskálum - svo eru orð í tíma töluð.
25:12b.PRO.025.012 Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli, svo er vitur áminnandi heyranda eyra.
25:13b.PRO.025.013 Eins og snjósvali um uppskerutímann, svo er áreiðanlegur sendimaður þeim er sendir hann, því að hann hressir sál húsbónda síns.
25:14b.PRO.025.014 Ský og vindur, og þó engin rigning - svo er sá, sem hrósar sér af gjafmildi, en gefur þó ekkert.
25:15b.PRO.025.015 Með þolinmæði verður höfðingja talið hughvarf, og mjúk tunga mylur bein.
25:16b.PRO.025.016 Finnir þú hunang, þá et sem þér nægir, svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og ælir því upp aftur.
25:17b.PRO.025.017 Stíg sjaldan fæti þínum í hús náunga þíns, svo að hann verði ekki leiður á þér og hati þig.
25:18b.PRO.025.018 Hamar og sverð og hvöss ör - svo er maður, sem ber falsvitni gegn náunga sínum.
25:19b.PRO.025.019 Molnandi tönn og hrasandi fótur - svo er traust á svikara á neyðarinnar degi.
25:20b.PRO.025.020 Að fara úr fötum í kalsaveðri - að hella ediki út í saltpétur - eins er að syngja skapvondum ljóð.
25:21b.PRO.025.021 Ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, og ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka,
25:22b.PRO.025.022 því að þú safnar glóðum elds yfir höfuð honum, og Drottinn mun endurgjalda þér það.
25:23b.PRO.025.023 Norðanvindurinn leiðir fram regn og launskraf reiðileg andlit.
25:24b.PRO.025.024 Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.
25:25b.PRO.025.025 Eins og kalt vatn er dauðþyrstum manni, svo er góð fregn af fjarlægu landi.
25:26b.PRO.025.026 Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur, svo er réttlátur maður, sem titrar frammi fyrir óguðlegum manni.
25:27b.PRO.025.027 Það er ekki gott að eta of mikið hunang, ver því spar á hólið.
25:28b.PRO.025.028 Eins og borg, sem múrarnir hafa verið brotnir utan af, eins er sá maður, sem eigi hefir stjórn á skapsmunum sínum.
26
26:1b.PRO.026.001 Eins og snjór um sumar og eins og regn um uppskeru, eins illa á sæmd við heimskan mann.
26:2b.PRO.026.002 Eins og spörfugl flögrar, eins og svala flýgur, eins er um óverðskuldaða formæling - hún verður eigi að áhrínsorðum.
26:3b.PRO.026.003 Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum - en vöndurinn baki heimskingjanna.
26:4b.PRO.026.004 Svara þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að þú verðir ekki honum jafn.
26:5b.PRO.026.005 Svara þú heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að hann haldi ekki, að hann sé vitur.
26:6b.PRO.026.006 Sá höggur af sér fæturna og fær að súpa á ranglæti, sem sendir orð með heimskingja.
26:7b.PRO.026.007 Eins og lærleggir hins lama hanga máttlausir, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.
26:8b.PRO.026.008 Sá sem sýnir heimskum manni sæmd, honum fer eins og þeim, er bindur stein í slöngvu.
26:9b.PRO.026.009 Eins og þyrnir, sem stingst upp í höndina á drukknum manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.
26:10b.PRO.026.010 Eins og skytta, sem hæfir allt, svo er sá sem leigir heimskingja, og sá er leigir vegfarendur.
26:11b.PRO.026.011 Eins og hundur, sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi, sem endurtekur fíflsku sína.
26:12b.PRO.026.012 Sjáir þú mann, sem þykist vitur, þá er meiri von um heimskingja en hann.
26:13b.PRO.026.013 Letinginn segir: "Óargadýr er á veginum, ljón á götunum."
26:14b.PRO.026.014 Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.
26:15b.PRO.026.015 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en honum verður þungt um að bera hana aftur upp að munninum.
26:16b.PRO.026.016 Latur maður þykist vitrari en sjö, sem svara hyggilega.
26:17b.PRO.026.017 Sá, sem kemst í æsing út af deilu, sem honum kemur ekki við, hann er eins og sá, sem tekur um eyrun á hundi, er hleypur fram hjá.
26:18b.PRO.026.018 Eins og óður maður, sem kastar tundurörvum, banvænum skeytum,
26:19b.PRO.026.019 eins er sá maður, er svikið hefir náunga sinn og segir síðan: "Ég er bara að gjöra að gamni mínu."
26:20b.PRO.026.020 Þegar eldsneytið þrýtur, slokknar eldurinn, og þegar enginn er rógberinn, stöðvast deilurnar.
26:21b.PRO.026.021 Eins og kol þarf til glóða og við til elds, svo þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.
26:22b.PRO.026.022 Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.
26:23b.PRO.026.023 Eldheitir kossar og illt hjarta, það er sem sorasilfur utan af leirbroti.
26:24b.PRO.026.024 Með vörum sínum gjörir hatursmaðurinn sér upp vinalæti, en í hjarta sínu hyggur hann á svik.
26:25b.PRO.026.025 Þegar hann mælir fagurt, þá trú þú honum ekki, því að sjö andstyggðir eru í hjarta hans.
26:26b.PRO.026.026 Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó illska þess opinber á dómþinginu.
26:27b.PRO.026.027 Sá sem grefur gröf, fellur í hana, og steinninn fellur aftur í fang þeim, er veltir honum.
26:28b.PRO.026.028 Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið, og smjaðrandi munnur veldur glötun.
27
27:1b.PRO.027.001 Vertu ekki hróðugur af morgundeginum, því að þú veist ekki, hvað dagurinn ber í skauti sínu.
27:2b.PRO.027.002 Lát aðra hrósa þér og ekki þinn eigin munn, óviðkomandi menn, en ekki þínar eigin varir.
27:3b.PRO.027.003 Steinar eru þungir, og sandurinn sígur í, en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.
27:4b.PRO.027.004 Heiftin er grimm, og reiðin er svæsin, en hver fær staðist öfundina?
27:5b.PRO.027.005 Betri er opinber ofanígjöf en elska sem leynt er.
27:6b.PRO.027.006 Vel meint eru vinar sárin, en viðbjóðslegir kossar hatursmannsins.
27:7b.PRO.027.007 Saddur maður treður hunangsseim undir fótum, en hungruðum manni þykir allt beiskt sætt.
27:8b.PRO.027.008 Eins og fugl, sem floginn er burt úr hreiðri sínu, svo er maður, sem flúinn er burt af heimili sínu.
27:9b.PRO.027.009 Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað, en indælli er vinur en ilmandi viður.
27:10b.PRO.027.010 Yfirgef eigi vin þinn né vin föður þíns og gakk eigi í hús bróður þíns á óheilladegi þínum. Betri er nábúi í nánd en bróðir í fjarlægð.
27:11b.PRO.027.011 Vertu vitur, sonur minn, og gleð hjarta mitt, svo að ég geti svarað þeim orði, sem smána mig.
27:12b.PRO.027.012 Vitur maður sér ógæfuna og felur sig, en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.
27:13b.PRO.027.013 Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlending.
27:14b.PRO.027.014 Hver sem blessar náunga sinn snemma morguns með hárri raustu, það skal metið við hann sem formæling.
27:15b.PRO.027.015 Sífelldur þakleki í rigningatíð og þrasgjörn kona - er hvað öðru líkt.
27:16b.PRO.027.016 Sá er hana stöðvaði, gæti stöðvað vindinn og haldið olíu í hægri hendi sinni.
27:17b.PRO.027.017 Járn brýnir járn, og maður brýnir mann.
27:18b.PRO.027.018 Sá sem gætir fíkjutrés, mun eta ávöxt þess, og sá sem þjónar húsbónda sínum með virktum, mun heiður hljóta.
27:19b.PRO.027.019 Eins og andlit horfir við andliti í vatni, svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.
27:20b.PRO.027.020 Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi, svo eru og augu mannsins óseðjandi.
27:21b.PRO.027.021 Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, og maðurinn er dæmdur eftir orðstír hans.
27:22b.PRO.027.022 Þótt þú steyttir afglapann í mortéli með stauti innan um grjón, þá mundi fíflska hans ekki við hann skilja.
27:23b.PRO.027.023 Haf nákvæmar gætur á útliti sauða þinna og veit hjörðunum athygli þína.
27:24b.PRO.027.024 Því að auður varir ekki eilíflega, né heldur kóróna frá kyni til kyns.
27:25b.PRO.027.025 Sé heyið komið undan og grængresi komið í ljós, og hafi jurtir fjallanna verið hirtar,
27:26b.PRO.027.026 þá átt þú lömb þér til klæðnaðar og geithafra til þess að kaupa fyrir akur
27:27b.PRO.027.027 og nóga geitamjólk þér til fæðslu, til fæðslu heimili þínu, og til viðurlífis þernum þínum.
28
28:1b.PRO.028.001 Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.
28:2b.PRO.028.002 Þegar land gengur undan drottnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar, en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.
28:3b.PRO.028.003 Maður sem er fátækur og kúgar snauða, er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð.
28:4b.PRO.028.004 Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim.
28:5b.PRO.028.005 Illmenni skilja ekki hvað rétt er, en þeir sem leita Drottins, skilja allt.
28:6b.PRO.028.006 Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en sá, sem beitir undirferli og er þó ríkur.
28:7b.PRO.028.007 Sá sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur, en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán.
28:8b.PRO.028.008 Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.
28:9b.PRO.028.009 Sá sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið, - jafnvel bæn hans er andstyggð.
28:10b.PRO.028.010 Sá sem tælir falslausa menn út á vonda leið, hann fellur sjálfur í gröf sína, en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð.
28:11b.PRO.028.011 Ríkur maður þykist vitur, en snauður maður, sem er hygginn, sér við honum.
28:12b.PRO.028.012 Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir, en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig.
28:13b.PRO.028.013 Sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta.
28:14b.PRO.028.014 Sæll er sá maður, sem ávallt er var um sig, en sá sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.
28:15b.PRO.028.015 Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð.
28:16b.PRO.028.016 Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgun, sá sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða.
28:17b.PRO.028.017 Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á, er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann.
28:18b.PRO.028.018 Sá sem breytir ráðvandlega, mun frelsast, en sá sem beitir undirferli, fellur í gryfju.
28:19b.PRO.028.019 Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt.
28:20b.PRO.028.020 Áreiðanlegur maður blessast ríkulega, en sá sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki við refsingu.
28:21b.PRO.028.021 Hlutdrægni er ljót, en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.
28:22b.PRO.028.022 Öfundsjúkur maður flýtir sér að safna auði og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma.
28:23b.PRO.028.023 Sá sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli heldur er tungumjúkur smjaðrari.
28:24b.PRO.028.024 Sá sem rænir foreldra sína og segir: "Það er engin synd!" hann er stallbróðir eyðandans.
28:25b.PRO.028.025 Ágjarn maður vekur deilur, en sá sem treystir Drottni, mettast ríkulega.
28:26b.PRO.028.026 Sá sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi, en sá sem breytir viturlega, mun undan komast.
28:27b.PRO.028.027 Sá sem gefur fátækum, líður engan skort, en þeim sem byrgir augu sín, koma margar óbænir.
28:28b.PRO.028.028 Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum.
29
29:1b.PRO.029.001 Sá sem oftlega hefir ávítaður verið, en þverskallast þó, mun skyndilega knosaður verða, og engin lækning fást.
29:2b.PRO.029.002 Þegar réttlátum fjölgar, gleðst þjóðin, en þegar óguðlegir drottna, andvarpar þjóðin.
29:3b.PRO.029.003 Sá sem elskar visku, gleður föður sinn, en sá sem leggur lag sitt við skækjur, glatar eigum sínum.
29:4b.PRO.029.004 Konungurinn eflir landið með rétti, en sá sem þiggur mútur, eyðir það.
29:5b.PRO.029.005 Sá maður, sem smjaðrar fyrir náunga sínum, hann leggur net fyrir fætur hans.
29:6b.PRO.029.006 Í misgjörð vonds manns er fólgin snara, en réttlátur maður fagnar og gleðst.
29:7b.PRO.029.007 Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lítilmótlegu, en óguðlegur maður hirðir ekkert um að kynna sér það.
29:8b.PRO.029.008 Spottarar æsa upp borgina, en vitrir menn lægja reiðina.
29:9b.PRO.029.009 Þegar vitur maður á í þrætumáli við afglapa, þá reiðist hann og hlær, en hvíld fæst engin.
29:10b.PRO.029.010 Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda, en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.
29:11b.PRO.029.011 Heimskinginn úthellir allri reiði sinni, en vitur maður sefar hana að lokum.
29:12b.PRO.029.012 Þegar drottnarinn hlýðir á lygaorð, verða allir þjónar hans bófar.
29:13b.PRO.029.013 Fátæklingurinn og kúgarinn mætast, Drottinn ljær ljós augum beggja.
29:14b.PRO.029.014 Sá konungur, sem dæmir hina lítilmótlegu með réttvísi, hásæti hans mun stöðugt standa að eilífu.
29:15b.PRO.029.015 Vöndur og umvöndun veita speki, en agalaus sveinn gjörir móður sinni skömm.
29:16b.PRO.029.016 Þegar óguðlegum fjölgar, fjölgar og misgjörðum, en réttlátir munu horfa á fall þeirra.
29:17b.PRO.029.017 Aga þú son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró og veita unað sálu þinni.
29:18b.PRO.029.018 Þar sem engar vitranir eru, kemst fólkið á glapstigu, en sá sem varðveitir lögmálið, er sæll.
29:19b.PRO.029.019 Þræll verður eigi agaður með orðum, því að hann skilur þau að vísu, en fer ekki eftir þeim.
29:20b.PRO.029.020 Sjáir þú mann, sem er fljótfær í orðum, þá er meiri von um heimskingja en hann.
29:21b.PRO.029.021 Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku, vill hann að lokum verða ungherra.
29:22b.PRO.029.022 Reiðigjarn maður vekur deilur, og bráðlyndur maður drýgir marga synd.
29:23b.PRO.029.023 Hroki mannsins lægir hann, en hinn lítilláti mun virðing hljóta.
29:24b.PRO.029.024 Þjófsnauturinn hatar líf sitt, hann hlýðir á bölvunina, en segir þó ekki frá.
29:25b.PRO.029.025 Ótti við menn leiðir í snöru, en þeim er borgið, sem treystir Drottni.
29:26b.PRO.029.026 Margir leita hylli drottnarans, en réttur mannsins kemur frá Drottni.
29:27b.PRO.029.027 Andstyggð réttlátra er sá, sem ranglæti fremur, og andstyggð óguðlegra sá, sem ráðvandlega breytir.
3
3:1b.PRO.003.001 Son minn, gleym eigi kenning minni, og hjarta þitt varðveiti boðorð mín,
3:2b.PRO.003.002 því að langa lífdaga og farsæl ár og velgengni munu þau veita þér í ríkum mæli.
3:3b.PRO.003.003 Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig. Bind þau um háls þér, rita þau á spjald hjarta þíns,
3:4b.PRO.003.004 þá munt þú ávinna þér hylli og fögur hyggindi, bæði í augum Guðs og manna.
3:5b.PRO.003.005 Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
3:6b.PRO.003.006 Mundu til hans á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.
3:7b.PRO.003.007 Þú skalt ekki þykjast vitur, óttast Drottin og forðast illt,
3:8b.PRO.003.008 það mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn og hressandi fyrir bein þín.
3:9b.PRO.003.009 Tigna Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,
3:10b.PRO.003.010 þá munu hlöður þínar verða nægtafullar og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.
3:11b.PRO.003.011 Son minn, lítilsvirð eigi ögun Drottins og lát þér eigi gremjast umvöndun hans,
3:12b.PRO.003.012 því að Drottinn agar þann, sem hann elskar, og lætur þann son kenna til, sem hann hefir mætur á.
3:13b.PRO.003.013 Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki, sá maður, sem hyggindi hlotnast.
3:14b.PRO.003.014 Því að betra er að afla sér hennar en að afla silfurs, og arðurinn af henni ágætari en gull.
3:15b.PRO.003.015 Hún er dýrmætari en perlur, og allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.
3:16b.PRO.003.016 Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar, auður og mannvirðingar í vinstri hendi hennar.
3:17b.PRO.003.017 Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar velgengni.
3:18b.PRO.003.018 Hún er lífstré þeim, sem grípa hana, og sæll er hver sá, er heldur fast í hana.
3:19b.PRO.003.019 Drottinn grundvallaði jörðina með visku, festi himininn af hyggjuviti.
3:20b.PRO.003.020 Fyrir þekking hans mynduðust hafdjúpin og drýpur döggin úr skýjunum.
3:21b.PRO.003.021 Son minn, varðveit þú visku og gætni, lát þær eigi víkja frá augum þínum,
3:22b.PRO.003.022 þá munu þær verða líf sálu þinni og prýði fyrir háls þinn.
3:23b.PRO.003.023 Þá muntu ganga óhultur veg þinn og eigi drepa við fæti.
3:24b.PRO.003.024 Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast, og hvílist þú, mun svefninn verða vær.
3:25b.PRO.003.025 Þú þarft ekki að óttast skyndilega hræðslu, né eyðilegging hinna óguðlegu, þegar hún dynur yfir.
3:26b.PRO.003.026 Því að Drottinn mun vera athvarf þitt og varðveita fót þinn, að hann verði eigi fanginn.
3:27b.PRO.003.027 Synja eigi góðs þeim, er þarfnast þess, ef það er á þínu valdi að gjöra það.
3:28b.PRO.003.028 Seg þú ekki við náunga þinn: "Far og kom aftur! á morgun skal ég gefa þér" - ef þú þó átt það til.
3:29b.PRO.003.029 Brugga eigi illt gegn náunga þínum, þegar hann býr öruggur hjá þér.
3:30b.PRO.003.030 Deil ekki við neinn að ástæðulausu, ef hann hefir ekki gjört þér neitt mein.
3:31b.PRO.003.031 Öfunda ekki ofbeldismanninn og haf engar mætur á neinum gjörðum hans.
3:32b.PRO.003.032 Því að andstyggð er sá Drottni, er afvega fer, en ráðvandir menn alúðarvinir hans.
3:33b.PRO.003.033 Bölvun Drottins er yfir húsi hins óguðlega, en bústað réttlátra blessar hann.
3:34b.PRO.003.034 Spottsama spottar hann, en lítillátum veitir hann náð.
3:35b.PRO.003.035 Vitrir menn munu heiður hljóta, en heimskingjar bera smán úr býtum.
30
30:1b.PRO.030.001 Orð Agúrs Jakesonar. Guðmælið. Maðurinn segir: Ég hefi streitst, ó Guð, ég hefi streitst, ó Guð, og er að þrotum kominn.
30:2b.PRO.030.002 Því að ég er of heimskur til að geta talist maður, og ég hefi eigi mannsvit,
30:3b.PRO.030.003 ég hefi eigi lært speki, svo að ég hafi þekking á Hinum heilaga.
30:4b.PRO.030.004 Hver hefir stigið upp til himna og komið niður? Hver hefir safnað vindinum í greipar sínar? Hver hefir bundið vatnið í skikkju sína? Hver hefir reist öll endimörk jarðar? Hvað heitir hann og hvað heitir sonur hans - fyrst þú veist það?
30:5b.PRO.030.005 Sérhvert orð Guðs er hreint, hann er skjöldur þeim, er leita hælis hjá honum.
30:6b.PRO.030.006 Bæt engu við orð hans, til þess að hann ávíti þig eigi og þú standir sem lygari.
30:7b.PRO.030.007 Um tvennt bið ég þig, synja mér þess eigi, áður en ég dey:
30:8b.PRO.030.008 Lát fals og lygaorð vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð.
30:9b.PRO.030.009 Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja: "Hver er Drottinn?" eða ef ég yrði fátækur, kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns.
30:10b.PRO.030.010 Ræg eigi þjóninn við húsbónda hans, svo að hann biðji þér ekki óbæna og þú verðir að gjalda.
30:11b.PRO.030.011 Til er það kyn, sem bölvar föður sínum og blessar ekki móður sína,
30:12b.PRO.030.012 kyn, sem þykist vera hreint og hefir þó eigi þvegið af sér saurinn
30:13b.PRO.030.013 kyn, sem lyftir hátt augunum og sperrir upp augnahárin,
30:14b.PRO.030.014 kyn, sem hefir sverð að tönnum og hnífa að jöxlum til þess að uppeta hina voluðu úr landinu og hina fátæku burt frá mönnunum.
30:15b.PRO.030.015 Blóðsugan á tvær dætur, sem heita Gefðu! Gefðu! Þrennt er til, sem er óseðjandi, fernt, sem aldrei segir: "Það er nóg!" -
30:16b.PRO.030.016 Helja og móðurlíf óbyrjunnar, jörðin, sem aldrei seðst af vatni, og eldurinn, sem aldrei segir: "Það er nóg!"
30:17b.PRO.030.017 Það auga, sem gjörir gys að föður sínum og fyrirlítur hlýðni við móður sína, mega hrafnarnir við lækinn kroppa út og arnarungarnir eta.
30:18b.PRO.030.018 Þrennt er, sem mér virðist undursamlegt, og fernt, sem ég skil eigi:
30:19b.PRO.030.019 vegur arnarins um loftið, vegur höggormsins yfir klettinn, vegur skipsins um reginhaf og vegur manns hjá konu.
30:20b.PRO.030.020 Þannig er atferli hórkonunnar: Hún neytir, þurrkar sér um munninn og segir: "Ég hefi ekkert rangt gjört."
30:21b.PRO.030.021 Undan þrennu nötrar jörðin, og undir fernu getur hún ekki risið:
30:22b.PRO.030.022 undir þræli, þegar hann verður konungur, og guðlausum manni, þegar hann mettast brauði,
30:23b.PRO.030.023 undir smáðri konu, þegar hún giftist, og þernu, þegar hún bolar burt húsmóður sinni.
30:24b.PRO.030.024 Fjórir eru smáir á jörðinni, og þó eru þeir vitrir spekingar:
30:25b.PRO.030.025 Maurarnir eru kraftlítil þjóð, og þó afla þeir sér fæðunnar á sumrin.
30:26b.PRO.030.026 Stökkhérarnir eru þróttlítil þjóð, og þó gjöra þeir sér híbýli í klettunum.
30:27b.PRO.030.027 Engispretturnar hafa engan konung, og þó fer allur hópurinn út í röð og reglu.
30:28b.PRO.030.028 Ferfætlunni getur þú náð með tómum höndunum, og þó er hún í konungahöllum.
30:29b.PRO.030.029 Þrír eru þeir, sem tigulegir eru á velli, og fjórir, sem tigulegir eru í gangi:
30:30b.PRO.030.030 ljónið, hetjan meðal dýranna, er eigi hopar fyrir neinni skepnu,
30:31b.PRO.030.031 lendgyrtur hesturinn og geithafurinn og konungur, er enginn fær móti staðið.
30:32b.PRO.030.032 Hafir þú heimskast til að upphefja sjálfan þig, eða hafir þú gjört það af ásettu ráði, þá legg höndina á munninn!
30:33b.PRO.030.033 Því að þrýstingur á mjólk framleiðir smjör, og þrýstingur á nasir framleiðir blóð, og þrýstingur á reiði framleiðir deilu.
31
31:1b.PRO.031.001 Orð Lemúels konungs í Massa, er móðir hans kenndi honum.
31:2b.PRO.031.002 Hvað á ég að segja þér, sonur minn? og hvað, sonur kviðar míns? og hvað, sonur áheita minna?
31:3b.PRO.031.003 Gef ekki konum kraft þinn, né ástarhót þín þeim er spilla konungum.
31:4b.PRO.031.004 Ekki sæmir konungum, Lemúel, ekki sæmir konungum að drekka vín, né höfðingjum áfengur drykkur.
31:5b.PRO.031.005 Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum og rangfæra málefni allra aumra manna.
31:6b.PRO.031.006 Gefið áfengan drykk þeim, sem kominn er í örþrot, og vín þeim, sem sorgbitnir eru.
31:7b.PRO.031.007 Drekki hann og gleymi fátækt sinni og minnist ekki framar mæðu sinnar.
31:8b.PRO.031.008 Ljúk þú upp munni þínum fyrir hinn mállausa, fyrir málefni allra þeirra manna, sem eru að örmagnast.
31:9b.PRO.031.009 Ljúk þú upp munni þínum, dæm með réttvísi og rétt þú hlut hinna voluðu og snauðu.
31:10b.PRO.031.010 Væna konu, hver hlýtur hana? hún er miklu meira virði en perlur.
31:11b.PRO.031.011 Hjarta manns hennar treystir henni, og ekki vantar að honum fénist.
31:12b.PRO.031.012 Hún gjörir honum gott og ekkert illt alla ævidaga sína.
31:13b.PRO.031.013 Hún sér um ull og hör og vinnur fúslega með höndum sínum.
31:14b.PRO.031.014 Hún er eins og kaupförin, sækir björgina langt að.
31:15b.PRO.031.015 Hún fer á fætur fyrir dag, skammtar heimilisfólki sínu og segir þernum sínum fyrir verkum.
31:16b.PRO.031.016 Hún hefir augastað á akri og kaupir hann, af ávexti handa sinna plantar hún víngarð.
31:17b.PRO.031.017 Hún gyrðir lendar sínar krafti og tekur sterklega til armleggjunum.
31:18b.PRO.031.018 Hún finnur, að atvinna hennar er arðsöm, á lampa hennar slokknar eigi um nætur.
31:19b.PRO.031.019 Hún réttir út hendurnar eftir rokknum, og fingur hennar grípa snælduna.
31:20b.PRO.031.020 Hún breiðir út lófann móti hinum bágstadda og réttir út hendurnar móti hinum snauða.
31:21b.PRO.031.021 Hún er ekki hrædd um heimilisfólk sitt, þótt snjói, því að allt heimilisfólk hennar er klætt skarlati.
31:22b.PRO.031.022 Hún býr sér til ábreiður, klæðnaður hennar er úr baðmull og purpura.
31:23b.PRO.031.023 Maður hennar er mikils metinn í borgarhliðunum, þá er hann situr með öldungum landsins.
31:24b.PRO.031.024 Hún býr til skyrtur og selur þær, og kaupmanninum fær hún belti.
31:25b.PRO.031.025 Kraftur og tign er klæðnaður hennar, og hún hlær að komandi degi.
31:26b.PRO.031.026 Hún opnar munninn með speki, og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar.
31:27b.PRO.031.027 Hún vakir yfir því, sem fram fer á heimili hennar, og etur ekki letinnar brauð.
31:28b.PRO.031.028 Synir hennar ganga fram og segja hana sæla, maður hennar gengur fram og hrósar henni:
31:29b.PRO.031.029 "Margar konur hafa sýnt dugnað, en þú tekur þeim öllum fram!"
31:30b.PRO.031.030 Yndisþokkinn er svikull og fríðleikinn hverfull, en sú kona, sem óttast Drottin, á hrós skilið.
31:31b.PRO.031.031 Gefið henni af ávexti handa hennar, og verk hennar skulu lofa hana í borgarhliðunum.
4
4:1b.PRO.004.001 Heyrið, synir, áminning föður yðar og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi!
4:2b.PRO.004.002 Því að góðan lærdóm gef ég yður, hafnið eigi kenning minni!
4:3b.PRO.004.003 Þegar ég var sonur í föðurhúsum, viðkvæmt einkabarn heima hjá móður minni,
4:4b.PRO.004.004 þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig: "Hjarta þitt haldi fast orðum mínum, varðveit þú boðorð mín, og muntu lifa!
4:5b.PRO.004.005 Afla þér visku, afla þér hygginda! Gleym eigi og vík eigi frá orðum munns míns!
4:6b.PRO.004.006 Hafna henni eigi, þá mun hún varðveita þig, elska hana, þá mun hún vernda þig.
4:7b.PRO.004.007 Upphaf viskunnar er: afla þér visku, afla þér hygginda fyrir allar eigur þínar!
4:8b.PRO.004.008 Haf hana í hávegum, þá mun hún hefja þig, hún mun koma þér til vegs, ef þú umfaðmar hana.
4:9b.PRO.004.009 Hún mun setja yndislegan sveig á höfuð þér, sæma þig prýðilegri kórónu."
4:10b.PRO.004.010 Heyr þú, son minn, og veit viðtöku orðum mínum, þá munu æviár þín mörg verða.
4:11b.PRO.004.011 Ég vísa þér veg spekinnar, leiði þig á brautir ráðvendninnar.
4:12b.PRO.004.012 Gangir þú þær, skal leið þín ekki verða þröng, og hlaupir þú, skalt þú ekki hrasa.
4:13b.PRO.004.013 Haltu fast í agann, slepptu honum ekki, varðveittu hann, því að hann er líf þitt.
4:14b.PRO.004.014 Kom þú eigi á götu óguðlegra og gakk eigi á vegi vondra manna.
4:15b.PRO.004.015 Sneið hjá honum, farðu hann ekki, snú þú frá honum og farðu fram hjá.
4:16b.PRO.004.016 Því að þeir geta ekki sofið, nema þeir hafi gjört illt, og þeim kemur ekki dúr á auga, nema þeir hafi fellt einhvern.
4:17b.PRO.004.017 Því að þeir eta glæpabrauð og drekka ofbeldisvín.
4:18b.PRO.004.018 Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, sem verður æ skærari fram á hádegi.
4:19b.PRO.004.019 Vegur óguðlegra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki, um hvað þeir hrasa.
4:20b.PRO.004.020 Son minn, gef gaum að ræðu minni, hneig eyra þitt að orðum mínum.
4:21b.PRO.004.021 Lát þau eigi víkja frá augum þínum, varðveit þau innst í hjarta þínu.
4:22b.PRO.004.022 Því að þau eru líf þeirra, er öðlast þau, og lækning fyrir allan líkama þeirra.
4:23b.PRO.004.023 Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins.
4:24b.PRO.004.024 Haltu fláræði munnsins burt frá þér og lát fals varanna vera fjarri þér.
4:25b.PRO.004.025 Augu þín líti beint fram og augnalok þín horfi beint fram undan þér.
4:26b.PRO.004.026 Gjör braut fóta þinna slétta, og allir vegir þínir séu staðfastir.
4:27b.PRO.004.027 Vík hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum burt frá illu.
5
5:1b.PRO.005.001 Son minn, gef gaum að speki minni, hneig eyra þitt að hyggindum mínum,
5:2b.PRO.005.002 til þess að þú megir varðveita mannvit og varir þínar geymi þekkingu.
5:3b.PRO.005.003 Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu, og gómur hennar er hálli en olía.
5:4b.PRO.005.004 En að síðustu er hún beiskari en malurt, beitt eins og tvíeggjað sverð.
5:5b.PRO.005.005 Fætur hennar ganga niður til dauðans, spor hennar liggja til Heljar.
5:6b.PRO.005.006 Til þess að hún hitti ekki leið lífsins, eru brautir hennar á reiki, og hún veit ekki hvert hún fer.
5:7b.PRO.005.007 Heyrið mig því, synir, og víkið eigi frá orðum munns míns.
5:8b.PRO.005.008 Legg leið þína langt frá henni og kom þú ekki nálægt húsdyrum hennar,
5:9b.PRO.005.009 svo að þú gefir ekki öðrum æskublóma þinn og ár þín grimmum manni,
5:10b.PRO.005.010 svo að útlendir menn mettist ekki af eigum þínum og aflafé þitt lendi ekki í annarlegu húsi,
5:11b.PRO.005.011 og þú andvarpir að lokum, þá er líkami þinn og hold veslast upp,
5:12b.PRO.005.012 og segir: "Hversu hefi ég hatað aga og hjarta mitt fyrirlitið umvöndun!
5:13b.PRO.005.013 að ég skyldi ekki hlýða raustu kennara minna og hneigja eyra mitt til þeirra, er fræddu mig!
5:14b.PRO.005.014 Við sjálft lá, að ég hefði ratað í mestu ógæfu á miðju dómþingi safnaðarins."
5:15b.PRO.005.015 Drekk þú vatn úr vatnsþró þinni og rennandi vatn úr brunni þínum.
5:16b.PRO.005.016 Eiga lindir þínar að flóa út á götuna, lækir þínir út á torgin?
5:17b.PRO.005.017 Þér einum skulu þær tilheyra og engum óviðkomandi með þér.
5:18b.PRO.005.018 Uppspretta þín sé blessuð, og gleð þig yfir festarmey æsku þinnar,
5:19b.PRO.005.019 elsku-hindinni, yndis-gemsunni. Brjóst hennar gjöri þig ætíð drukkinn, og ást hennar fjötri þig ævinlega.
5:20b.PRO.005.020 En hví skyldir þú, son minn, láta léttúðarkonu töfra þig, og faðma barm lauslátrar konu?
5:21b.PRO.005.021 Því að vegir sérhvers manns blasa við Drottni, og allar brautir hans gjörir hann sléttar.
5:22b.PRO.005.022 Misgjörðir hins óguðlega fanga hann, og hann verður veiddur í snörur synda sinna.
5:23b.PRO.005.023 Hann mun deyja vegna skorts á aga og kollsteypast vegna sinnar miklu heimsku.
6
6:1b.PRO.006.001 Son minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn, hafir þú gengið til handsala fyrir annan mann,
6:2b.PRO.006.002 hafir þú ánetjað þig með orðum munns þíns, látið veiðast með orðum munns þíns,
6:3b.PRO.006.003 þá gjör þetta, son minn, til að losa þig - því að þú ert kominn á vald náunga þíns - far þú, varpa þér niður og legg að náunga þínum.
6:4b.PRO.006.004 Lát þér eigi koma dúr á auga, né blund á brá.
6:5b.PRO.006.005 Losa þig eins og skógargeit úr höndum hans, eins og fugl úr höndum fuglarans.
6:6b.PRO.006.006 Far þú til maursins, letingi! skoða háttu hans og verð hygginn.
6:7b.PRO.006.007 Þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra,
6:8b.PRO.006.008 þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðu sína um uppskerutímann.
6:9b.PRO.006.009 Hversu lengi ætlar þú, letingi, að hvílast? hvenær ætlar þú að rísa af svefni?
6:10b.PRO.006.010 Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast!
6:11b.PRO.006.011 Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.
6:12b.PRO.006.012 Varmenni, illmenni er sá, sem gengur um með fláttskap í munni,
6:13b.PRO.006.013 sem deplar augunum, gefur merki með fótunum, bendir með fingrunum,
6:14b.PRO.006.014 elur fláræði í hjarta sínu, upphugsar ávallt illt, kveikir illdeilur.
6:15b.PRO.006.015 Fyrir því mun ógæfa skyndilega yfir hann koma, snögglega mun hann sundurmolast og engin lækning fást.
6:16b.PRO.006.016 Sex hluti hatar Drottinn og sjö eru sálu hans andstyggð:
6:17b.PRO.006.017 drembileg augu, lygin tunga og hendur sem úthella saklausu blóði,
6:18b.PRO.006.018 hjarta sem bruggar glæpsamleg ráð, fætur sem fráir eru til illverka,
6:19b.PRO.006.019 ljúgvottur sem lygar mælir, og sá er kveikir illdeilur meðal bræðra.
6:20b.PRO.006.020 Varðveit þú, son minn, boðorð föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinnar.
6:21b.PRO.006.021 Fest þau á hjarta þitt stöðuglega, bind þau um háls þinn.
6:22b.PRO.006.022 Þegar þú ert á gangi, þá leiði þau þig, þegar þú hvílist, vaki þau yfir þér, og þegar þú vaknar, þá ræði þau við þig.
6:23b.PRO.006.023 Því að boðorð er lampi og viðvörun ljós og agandi áminningar leið til lífsins,
6:24b.PRO.006.024 með því að þær varðveita þig fyrir vondri konu, fyrir hálli tungu hinnar lauslátu.
6:25b.PRO.006.025 Girnst eigi fríðleik hennar í hjarta þínu og lát hana eigi töfra þig með augnahárum sínum.
6:26b.PRO.006.026 Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif, og hórkona sækist eftir dýru lífi.
6:27b.PRO.006.027 Getur nokkur borið svo eld í barmi sínum, að föt hans sviðni ekki?
6:28b.PRO.006.028 Eða getur nokkur gengið á glóðum án þess að brenna sig á fótunum?
6:29b.PRO.006.029 Svo fer þeim, sem hefir mök við konu náunga síns, enginn sá kemst klakklaust af, sem hana snertir.
6:30b.PRO.006.030 Fyrirlíta menn eigi þjófinn, þó að hann steli til þess að seðja hungur sitt?
6:31b.PRO.006.031 Og náist hann, verður hann að borga sjöfalt, verður að láta allar eigur húss síns.
6:32b.PRO.006.032 En sá sem drýgir hór með giftri konu, er vitstola, sá einn gjörir slíkt, er tortíma vill sjálfum sér.
6:33b.PRO.006.033 Högg og smán mun hann hljóta, og skömm hans mun aldrei afmáð verða.
6:34b.PRO.006.034 Því að afbrýði er karlmanns-reiði, og hann hlífir ekki á hefndarinnar degi.
6:35b.PRO.006.035 Hann lítur ekki við neinum bótum og friðast eigi, þótt þú ryðjir í hann gjöfum.
7
7:1b.PRO.007.001 Son minn, varðveit þú orð mín og geym þú hjá þér boðorð mín.
7:2b.PRO.007.002 Varðveit þú boðorð mín, og þá munt þú lifa, og áminning mína eins og sjáaldur auga þíns.
7:3b.PRO.007.003 Bind þau á fingur þína, skrifa þau á spjald hjarta þíns.
7:4b.PRO.007.004 Seg við spekina: "Þú ert systir mín!" og kallaðu skynsemina vinkonu,
7:5b.PRO.007.005 svo að þær varðveiti þig fyrir léttúðarkonu, fyrir blíðmálugri konu sem annar á.
7:6b.PRO.007.006 Út um gluggann á húsi mínu, út um grindurnar skimaði ég
7:7b.PRO.007.007 og sá þar meðal sveinanna ungan og vitstola mann.
7:8b.PRO.007.008 Hann gekk á strætinu nálægt horni einu og fetaði leiðina að húsi hennar,
7:9b.PRO.007.009 í rökkrinu, að kveldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu.
7:10b.PRO.007.010 Gekk þá kona í móti honum, búin sem portkona og undirförul í hjarta -
7:11b.PRO.007.011 hávær er hún og óhemjuleg, fætur hennar tolla aldrei heima,
7:12b.PRO.007.012 hún er ýmist á götunum eða á torgunum, og situr um menn hjá hverju horni -,
7:13b.PRO.007.013 hún þrífur í hann og kyssir hann og segir við hann, ósvífin í bragði:
7:14b.PRO.007.014 "Ég átti að greiða heillafórn, í dag hefi ég goldið heit mitt.
7:15b.PRO.007.015 Fyrir því fór ég út til móts við þig, til þess að leita þín, og hefi nú fundið þig.
7:16b.PRO.007.016 Ég hefi búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egypsku líni.
7:17b.PRO.007.017 Myrru, alóe og kanel hefi ég stökkt á hvílu mína.
7:18b.PRO.007.018 Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun, gamna okkur með blíðuhótum.
7:19b.PRO.007.019 Því að maðurinn minn er ekki heima, hann er farinn í langferð.
7:20b.PRO.007.020 Peningapyngjuna tók hann með sér, hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfylling."
7:21b.PRO.007.021 Hún tældi hann með sínum áköfu fortölum, ginnti hann með kjassmælum sínum.
7:22b.PRO.007.022 Hann fer rakleiðis á eftir henni, eins og naut gengur fram á blóðvöllinn, og eins og hjörtur, sem anar í netið,
7:23b.PRO.007.023 uns örin fer í gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna, og veit ekki, að líf hans er í veði.
7:24b.PRO.007.024 Og nú, þér yngismenn, hlýðið á mig og gefið gaum að orðum munns míns.
7:25b.PRO.007.025 Lát eigi hjarta þitt teygjast á vegu hennar, villst eigi inn á stigu hennar.
7:26b.PRO.007.026 Því að margir eru þeir, sem hún hefir sært til ólífis, og mesti grúi allir þeir, sem hún hefir myrt.
7:27b.PRO.007.027 Hús hennar er helvegur, er liggur niður til heimkynna dauðans.
8
8:1b.PRO.008.001 Heyr, spekin kallar og hyggnin lætur raust sína gjalla.
8:2b.PRO.008.002 Uppi á hæðunum við veginn, þar sem göturnar kvíslast - stendur hún.
8:3b.PRO.008.003 Við hliðin, þar sem gengið er út úr borginni, þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt:
8:4b.PRO.008.004 Til yðar, menn, tala ég, og raust mín hljómar til mannanna barna.
8:5b.PRO.008.005 Þér óreyndu, lærið hyggindi, og þér heimskingjar, lærið skynsemi.
8:6b.PRO.008.006 Hlýðið á, því að ég tala það sem göfuglegt er, og varir mínar tjá það sem rétt er.
8:7b.PRO.008.007 Því að sannleika mælir gómur minn og guðleysi er viðbjóður vörum mínum.
8:8b.PRO.008.008 Einlæg eru öll orð munns míns, í þeim er ekkert fals né fláræði.
8:9b.PRO.008.009 Öll eru þau einföld þeim sem skilning hefir, og blátt áfram fyrir þann sem hlotið hefir þekkingu.
8:10b.PRO.008.010 Takið á móti ögun minni fremur en á móti silfri og fræðslu fremur en úrvals gulli.
8:11b.PRO.008.011 Því að viska er betri en perlur, og engir dýrgripir jafnast á við hana.
8:12b.PRO.008.012 Ég, spekin, er handgengin hyggindunum og ræð yfir ráðdeildarsamri þekking.
8:13b.PRO.008.013 Að óttast Drottin er að hata hið illa, drambsemi og ofdramb og illa breytni og fláráðan munn - það hata ég.
8:14b.PRO.008.014 Mín er ráðspekin og framkvæmdarsemin, ég er hyggnin, minn er krafturinn.
8:15b.PRO.008.015 Fyrir mína hjálp ríkja konungarnir og úrskurða höfðingjarnir réttvíslega.
8:16b.PRO.008.016 Fyrir mína hjálp stjórna stjórnendurnir og tignarmennin - allir valdsmenn á jörðu.
8:17b.PRO.008.017 Ég elska þá sem mig elska, og þeir sem leita mín, finna mig.
8:18b.PRO.008.018 Auður og heiður eru hjá mér, ævagamlir fjármunir og réttlæti.
8:19b.PRO.008.019 Ávöxtur minn er betri en gull og gimsteinar og eftirtekjan eftir mig betri en úrvals silfur.
8:20b.PRO.008.020 Ég geng á götu réttlætisins, á stigum réttarins miðjum,
8:21b.PRO.008.021 til þess að gefa þeim sanna auðlegð, er elska mig, og fylla forðabúr þeirra.
8:22b.PRO.008.022 Drottinn skóp mig í upphafi vega sinna, á undan öðrum verkum sínum, fyrir alda öðli.
8:23b.PRO.008.023 Frá eilífð var ég sett til valda, frá upphafi, áður en jörðin var til.
8:24b.PRO.008.024 Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til, þá er engar vatnsmiklar lindir voru til.
8:25b.PRO.008.025 Áður en fjöllunum var hleypt niður, á undan hæðunum fæddist ég,
8:26b.PRO.008.026 áður en hann skapaði völl og vengi og fyrstu moldarkekki jarðríkis.
8:27b.PRO.008.027 Þegar hann gjörði himininn, þá var ég þar, þegar hann setti hvelfinguna yfir hafdjúpið,
8:28b.PRO.008.028 þegar hann festi skýin uppi, þegar uppsprettur hafdjúpsins komust í skorður,
8:29b.PRO.008.029 þegar hann setti hafinu takmörk, til þess að vötnin færu eigi lengra en hann bauð, þegar hann festi undirstöður jarðar.
8:30b.PRO.008.030 Þá stóð ég honum við hlið sem verkstýra, og ég var yndi hans dag hvern, leikandi mér fyrir augliti hans alla tíma,
8:31b.PRO.008.031 leikandi mér á jarðarkringlu hans, og hafði yndi mitt af mannanna börnum.
8:32b.PRO.008.032 Og nú, þér yngismenn, hlýðið mér, því að sælir eru þeir, sem varðveita vegu mína.
8:33b.PRO.008.033 Hlýðið á aga, svo að þér verðið vitrir, og látið hann eigi sem vind um eyrun þjóta.
8:34b.PRO.008.034 Sæll er sá maður, sem hlýðir mér, sem vakir daglega við dyr mínar og geymir dyrastafa minna.
8:35b.PRO.008.035 Því að sá sem mig finnur, finnur lífið og hlýtur blessun af Drottni.
8:36b.PRO.008.036 En sá sem missir mín, skaðar sjálfan sig. Allir þeir, sem hata mig, elska dauðann.
9
9:1b.PRO.009.001 Spekin hefir reist sér hús, höggvið til sjö stólpa sína.
9:2b.PRO.009.002 Hún hefir slátrað sláturfé sínu, byrlað vín sitt, já, hún hefir þegar búið borð sitt.
9:3b.PRO.009.003 Hún hefir sent út þernur sínar, hún kallar á háum stöðum í borginni:
9:4b.PRO.009.004 "Hver, sem óreyndur er, komi hingað!" Við þann, sem óvitur er, segir hún:
9:5b.PRO.009.005 "Komið, etið mat minn og drekkið vínið, sem ég hefi byrlað.
9:6b.PRO.009.006 Látið af heimskunni, þá munuð þér lifa, og fetið veg hyggindanna."
9:7b.PRO.009.007 Sá sem áminnir spottara, bakar sér smán, og þeim sem ávítar óguðlegan, verður það til vansa.
9:8b.PRO.009.008 Ávíta eigi spottarann, svo að hann hati þig eigi, ávíta hinn vitra, og hann mun elska þig.
9:9b.PRO.009.009 Gef hinum vitra, þá verður hann að vitrari, fræð hinn réttláta, og hann mun auka lærdóm sinn.
9:10b.PRO.009.010 Ótti Drottins er upphaf viskunnar og að þekkja Hinn heilaga eru hyggindi.
9:11b.PRO.009.011 Því að fyrir mitt fulltingi munu dagar þínir verða margir og ár lífs þíns aukast.
9:12b.PRO.009.012 Sért þú vitur, þá ert þú vitur þér til góðs, en sért þú spottari, þá mun það bitna á þér einum.
9:13b.PRO.009.013 Frú Heimska er óhemja, einföld og veit ekkert.
9:14b.PRO.009.014 Hún situr úti fyrir húsdyrum sínum, á stól uppi á háu stöðunum í borginni
9:15b.PRO.009.015 til þess að kalla á þá, sem um veginn fara, þá er ganga beint áfram leið sína:
9:16b.PRO.009.016 "Hver sem óreyndur er, komi hingað!" og við þann sem óvitur er, segir hún:
9:17b.PRO.009.017 "Stolið vatn er sætt, og lostætt er launetið brauð."
9:18b.PRO.009.018 Og hann veit ekki, að þar eru hinir framliðnu, að þeir sem hún hefir boðið heim, eru í djúpum Heljar.
- Holder of rights
- Multilingual Bible Corpus
- Citation Suggestion for this Object
- TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Proverbs (Icelandic). Proverbs (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9D98-C