Leviticus (Icelandic)

Leviticus (Icelandic)

1

1:1b.LEV.001.001 Drottinn kallaði á Móse og talaði við hann úr samfundatjaldinu og mælti:

1:2b.LEV.001.002 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þegar einhver af yður vill færa Drottni fórn, þá skuluð þér færa fórn yðar af fénaðinum, af nautum og sauðum.

1:3b.LEV.001.003 Sé fórn hans brennifórn af nautum, skal það, er hann fórnar, vera karlkyns og gallalaust. Skal hann leiða það að dyrum samfundatjaldsins, svo að hann verði Drottni velþóknanlegur.

1:4b.LEV.001.004 Því næst skal hann leggja hönd sína á höfuð brennifórnarinnar, að hún afli honum velþóknunar og friðþægi fyrir hann.

1:5b.LEV.001.005 Síðan skal hann slátra ungneytinu frammi fyrir Drottni. En synir Arons, prestarnir, skulu fram bera blóðið, og skulu þeir stökkva blóðinu allt í kring utan á altarið, sem stendur við dyr samfundatjaldsins.

1:6b.LEV.001.006 Þá flái hann brennifórnina og hluti hana sundur.

1:7b.LEV.001.007 En synir Arons, prestarnir, skulu gjöra eld á altarinu og leggja við á eldinn.

1:8b.LEV.001.008 Og synir Arons, prestarnir, skulu raða stykkjunum, höfðinu og mörnum ofan á viðinn, sem lagður er á eldinn, sem er á altarinu.

1:9b.LEV.001.009 En innýflin og fæturna skal þvo í vatni, og skal presturinn brenna það allt á altarinu til brennifórnar, eldfórnar þægilegs ilms fyrir Drottin.

1:10b.LEV.001.010 Sé fórnargjöf sú, er hann fram ber til brennifórnar, af sauðfénaði, af sauðkindum eða geitum, þá skal það, er hann fórnar, vera karlkyns og gallalaust.

1:11b.LEV.001.011 Og skal hann slátra því við altarið norðanvert frammi fyrir Drottni, en synir Arons, prestarnir, skulu stökkva blóðinu úr því utan á altarið allt í kring.

1:12b.LEV.001.012 Síðan skal hann hluta það sundur, og skal presturinn raða stykkjunum ásamt höfðinu og mörnum ofan á viðinn, sem lagður er á eldinn, sem er á altarinu.

1:13b.LEV.001.013 En innýflin og fæturna skal þvo í vatni, og skal presturinn fram bera það allt og brenna á altarinu. Er það brennifórn, eldfórn þægilegs ilms fyrir Drottin.

1:14b.LEV.001.014 Vilji hann færa Drottni brennifórn af fuglum, þá taki hann til fórnar sinnar turtildúfur eða ungar dúfur.

1:15b.LEV.001.015 Skal presturinn bera fuglinn að altarinu og klípa af höfuðið og brenna það á altarinu, en blóðið skal kreista út á altarishliðina.

1:16b.LEV.001.016 Og hann skal taka sarpinn með fiðrinu á og kasta honum við austurhlið altarisins, þar sem askan er látin.

1:17b.LEV.001.017 Og hann skal rífa vængina frá, en þó eigi slíta þá af, og skal presturinn brenna hann á altarinu, ofan á viðnum, sem lagður er á eldinn. Er það brennifórn, eldfórn þægilegs ilms fyrir Drottin.

10

10:1b.LEV.010.001 Nadab og Abíhú, synir Arons, tóku hvor sína eldpönnu og létu eld í þær og lögðu reykelsi ofan á og báru fram fyrir Drottin óvígðan eld, sem hann eigi hafði boðið þeim.

10:2b.LEV.010.002 Gekk þá eldur út frá Drottni og eyddi þeim, og þeir dóu frammi fyrir Drottni.

10:3b.LEV.010.003 Þá sagði Móse við Aron: "Nú er það fram komið, sem Drottinn sagði: Heilagleik minn vil ég sýna á þeim, sem nálægjast mig, og birta dýrð mína frammi fyrir öllum lýð." Og Aron þagði.

10:4b.LEV.010.004 Móse kallaði á Mísael og Elsafan, sonu Ússíels, föðurbróður Arons, og sagði við þá: "Komið og berið burt úr helgidóminum frændur ykkar út fyrir herbúðirnar."

10:5b.LEV.010.005 Og þeir komu og báru þá í kyrtlum þeirra út fyrir herbúðirnar, eins og Móse hafði sagt.

10:6b.LEV.010.006 Og Móse sagði við Aron og við Eleasar og Ítamar, sonu hans: "Þér skuluð eigi láta hár yðar flaka, eigi heldur sundur rífa klæði yðar, að þér ekki deyið og hann reiðist ekki öllum söfnuðinum. En bræður yðar, allur Ísraelslýður, gráti yfir þeim eldi, sem Drottinn hefir kveikt.

10:7b.LEV.010.007 Og eigi skuluð þér fara út fyrir dyr samfundatjaldsins, ella munuð þér deyja, því að smurningarolía Drottins er á yður." Og þeir gjörðu sem Móse bauð.

10:8b.LEV.010.008 Drottinn talaði við Aron og sagði:

10:9b.LEV.010.009 "Hvorki skalt þú né synir þínir drekka vín eða áfengan drykk, þegar þér gangið inn í samfundatjaldið, svo að þér deyið ekki. Það er ævarandi lögmál hjá yður frá kyni til kyns.

10:10b.LEV.010.010 Og þér skuluð gjöra greinarmun á því, sem er heilagt og óheilagt, og á því, sem er hreint og óhreint.

10:11b.LEV.010.011 Og þér skuluð kenna Ísraelsmönnum öll þau lög, er Drottinn hefir gefið þeim fyrir Móse."

10:12b.LEV.010.012 Móse sagði við Aron og þá Eleasar og Ítamar, sonu hans, er eftir voru á lífi: "Takið matfórnina, sem eftir er af eldfórnum Drottins, og etið hana ósýrða hjá altarinu, því að hún er háheilög.

10:13b.LEV.010.013 Og þér skuluð eta hana á helgum stað, því að hún er hinn ákveðni hluti þinn og sona þinna af eldfórnum Drottins. Því að svo er mér boðið.

10:14b.LEV.010.014 En bringuna, sem veifa skal, og lærið, sem fórna skal, skuluð þér eta á hreinum stað, þú og synir þínir og dætur þínar með þér, því að þetta er sá ákveðni hluti, sem þér er gefinn og sonum þínum af heillafórnum Ísraelsmanna.

10:15b.LEV.010.015 Lærið, sem fórna skal, og bringuna, sem veifa skal, skulu þeir fram bera ásamt mörstykkja-eldfórnunum til þess að veifa því til veififórnar frammi fyrir Drottni. Síðan skalt þú fá það og synir þínir með þér, sem ævinlega skyldugreiðslu, eins og Drottinn hefir boðið."

10:16b.LEV.010.016 Og Móse leitaði vandlega að syndafórnarhafrinum, og sjá, hann var upp brenndur. Þá reiddist hann Eleasar og Ítamar, sonum Arons, er eftir voru á lífi, og sagði við þá:

10:17b.LEV.010.017 "Hvers vegna átuð þið ekki syndafórnina á helgum stað? Því að hún er háheilög og hann hefir gefið ykkur hana til þess að burt taka misgjörð safnaðarins og friðþægja fyrir þá frammi fyrir Drottni.

10:18b.LEV.010.018 Sjá, blóð hennar hefir ekki verið borið inn í helgidóminn. Þið áttuð þó að eta hana á helgum stað, eins og ég hafði boðið."

10:19b.LEV.010.019 En Aron sagði við Móse: "Sjá, í dag hafa þeir fram borið syndafórn sína og brennifórn fyrir Drottin, og mér hefir slíkt að höndum borið. Hefði ég nú etið syndafórnina í dag, mundi Drottni hafa þóknast það?"

10:20b.LEV.010.020 Og er Móse heyrði þetta, lét hann sér það vel líka.

11

11:1b.LEV.011.001 Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði við þá:

11:2b.LEV.011.002 "Talið til Ísraelsmanna og segið: Þessi eru þau dýr, er þér megið eta af öllum ferfættum dýrum, sem eru á jörðinni:

11:3b.LEV.011.003 Öll ferfætt dýr, sem hafa klaufir, og þær alklofnar, og jórtra, megið þér eta.

11:4b.LEV.011.004 Af þeim, sem jórtra og klaufir hafa, megið þér þó ekki þessi eta: Úlfaldann, því að hann jórtrar að sönnu, en er eigi klaufhæfður; hann sé yður óhreinn;

11:5b.LEV.011.005 stökkhérann, því að hann jórtrar að sönnu, en hefir eigi klaufir; hann sé yður óhreinn;

11:6b.LEV.011.006 hérann, því að hann jórtrar að sönnu, en hefir eigi klaufir; hann sé yður óhreinn;

11:7b.LEV.011.007 og svínið, því að það hefir að sönnu klaufir, og þær alklofnar, en jórtrar ekki; það sé yður óhreint.

11:8b.LEV.011.008 Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta, og hræ þeirra skuluð þér ekki snerta. Þau skulu vera yður óhrein.

11:9b.LEV.011.009 Af lagardýrum megið þér eta þessi: Öll lagardýr, sem hafa sundugga og hreistur, hvort heldur er í sjó eða ám, megið þér eta.

11:10b.LEV.011.010 En af öllu því, sem kvikt er í vötnunum, og af öllum lifandi skepnum, sem eru í vötnunum, séu öll þau dýr í sjó eða ám, sem eigi hafa sundugga og hreistur, yður viðurstyggð.

11:11b.LEV.011.011 Viðurstyggð skulu þau vera yður. Ekki skuluð þér eta kjöt þeirra, og við hræjum þeirra skal yður stugga.

11:12b.LEV.011.012 Öll lagardýr, sem ekki hafa sundugga og hreistur, skulu vera yður viðurstyggð.

11:13b.LEV.011.013 Af fuglunum skal yður stugga við þessum, - þér skuluð eigi eta þá, þeir eru viðurstyggð -: örninn, skegg-gammurinn og gammurinn,

11:14b.LEV.011.014 gleðan og valakynið,

11:15b.LEV.011.015 allt hrafnakynið,

11:16b.LEV.011.016 strúturinn, svalan, mávurinn og haukakynið,

11:17b.LEV.011.017 uglan, súlan og náttuglan,

11:18b.LEV.011.018 hornuglan, pelíkaninn og hrægammurinn,

11:19b.LEV.011.019 storkurinn og lóukynið, herfuglinn og leðurblakan.

11:20b.LEV.011.020 Öll fleyg skriðkvikindi ferfætt séu yður viðurstyggð.

11:21b.LEV.011.021 Af öllum fleygum skriðkvikindum ferfættum megið þér þau ein eta, er hafa leggi upp af afturfótunum til þess að stökkva með um jörðina.

11:22b.LEV.011.022 Af þeim megið þér eta þessi: arbe-engisprettur, sólam-engisprettur, hargól-engisprettur og hagab-engisprettur.

11:23b.LEV.011.023 En öll önnur fleyg skriðkvikindi ferfætt séu yður viðurstyggð.

11:24b.LEV.011.024 Af þessum dýrum verðið þér óhreinir. Hver sem snertir hræ þeirra, verður óhreinn til kvelds.

11:25b.LEV.011.025 En hver sá, sem ber hræ þeirra, hann skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds.

11:26b.LEV.011.026 Hvert það ferfætt dýr, sem hefir klaufir, þó eigi alklofnar, og eigi jórtrar, sé yður óhreint. Hver sem þau snertir verður óhreinn.

11:27b.LEV.011.027 Og öll þau, sem ganga á hrömmum sínum, meðal allra dýra ferfættra, séu yður óhrein. Hver sem snertir hræ þeirra, er óhreinn til kvelds.

11:28b.LEV.011.028 Og sá, sem ber hræ þeirra, skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds. Þau skulu vera yður óhrein.

11:29b.LEV.011.029 Þessi skulu vera yður óhrein á meðal skriðkvikindanna, sem skríða á jörðinni: hreysivislan, músin og eðlukynið,

11:30b.LEV.011.030 skrækeðlan, kóah-eðlan, leta-eðlan, salamandran og kamelljónið.

11:31b.LEV.011.031 Þessi skulu vera yður óhrein meðal allra skriðkvikindanna. Hver sem snertir þau, þegar þau eru dauð, verður óhreinn til kvelds.

11:32b.LEV.011.032 Sérhvað það, er eitthvert af þeim fellur ofan á, þegar þau eru dauð, verður óhreint, hvort heldur er tréílát, klæði, skinn eða sekkur; öll þau áhöld, sem til einhvers eru notuð. Skal það í vatn leggja og er óhreint til kvelds, þá er það hreint.

11:33b.LEV.011.033 Falli eitthvert af þeim ofan í leirker, þá verður allt, sem í því er, óhreint, og kerið skuluð þér brjóta.

11:34b.LEV.011.034 Allur matur, sem etinn er og vatn er látið í, verður óhreinn, og allur drykkur, sem drukkinn er, verður óhreinn, í hvaða keri sem hann er.

11:35b.LEV.011.035 Og sérhvað það, sem hræ þeirra fellur á, verður óhreint. Hvort heldur er ofn eða eldstó, skal það rifið niður. Það er óhreint, og óhreint skal það yður vera.

11:36b.LEV.011.036 Lindir einar og brunnar, það er vatnsstæður, skulu hreinar vera, en sá, sem hræin snertir, verður óhreinn.

11:37b.LEV.011.037 En þó að eitthvað af hræjunum falli á útsæði, sem á að sá, þá er það hreint.

11:38b.LEV.011.038 En ef vatn er látið á sæðið og eitthvað af hræjunum fellur ofan í það, þá sé það yður óhreint.

11:39b.LEV.011.039 Þegar einhver af þeim skepnum deyr, sem yður eru til fæðu, þá skal sá, er snertir dauðan skrokkinn, vera óhreinn til kvelds.

11:40b.LEV.011.040 Og sá, sem etur af skrokknum, skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds. Og sá, sem ber skrokkinn, skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds.

11:41b.LEV.011.041 Öll skriðkvikindi, sem skríða á jörðinni, skulu vera yður viðurstyggð. Eigi skal þau eta.

11:42b.LEV.011.042 Öll þau, er skríða á kviðnum, og öll þau, er ganga á fjórum fótum, svo og allar margfætlur meðal allra skriðkvikinda, er skríða á jörðinni, þau skuluð þér eigi eta, því að þau eru viðurstyggð.

11:43b.LEV.011.043 Látið eigi nokkurt skriðkvikindi gjöra yður sjálfa viðurstyggilega, og saurgið yður ekki á þeim, svo að þér verið óhreinir af þeim.

11:44b.LEV.011.044 Því að ég er Drottinn, Guð yðar. Og helgist og verið heilagir, því að ég er heilagur. Og þér skuluð ekki saurga sjálfa yður á nokkru því skriðkvikindi, sem skríður á jörðinni.

11:45b.LEV.011.045 Því að ég er Drottinn, sem leiddi yður út af Egyptalandi til þess að vera yðar Guð. Þér skuluð vera heilagir, því að ég er heilagur."

11:46b.LEV.011.046 Þessi eru ákvæðin um ferfættu dýrin, fuglana og allar lifandi skepnur, sem hrærast í vötnunum, og um allar lifandi skepnur, sem jörðin er kvik af,

11:47b.LEV.011.047 svo að menn viti grein óhreinna og hreinna dýra, svo og ætra dýra og óætra.

12

12:1b.LEV.012.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

12:2b.LEV.012.002 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Þegar kona verður léttari og elur sveinbarn, þá skal hún vera óhrein sjö daga. Skal hún vera óhrein, eins og þá daga, sem hún er saurug af klæðaföllum.

12:3b.LEV.012.003 Og á áttunda degi skal umskera hold yfirhúðar hans.

12:4b.LEV.012.004 En konan skal halda sér heima þrjátíu og þrjá daga, meðan á blóðhreinsuninni stendur. Hún skal ekkert heilagt snerta og eigi inn í helgidóminn koma, uns hreinsunardagar hennar eru úti.

12:5b.LEV.012.005 En ef hún elur meybarn, þá skal hún vera óhrein hálfan mánuð, sem þá er hún er saurug af klæðaföllum, og hún skal halda sér heima sextíu og sex daga, meðan á blóðhreinsuninni stendur.

12:6b.LEV.012.006 En þegar hreinsunardagar hennar eru úti, hvort heldur er fyrir son eða dóttur, þá skal hún færa prestinum að dyrum samfundatjaldsins sauðkind veturgamla í brennifórn og unga dúfu eða turtildúfu í syndafórn.

12:7b.LEV.012.007 Skal hann fram bera það fyrir Drottin og friðþægja fyrir hana, og er hún þá hrein af blóðlátum sínum." Þessi eru ákvæðin um sængurkonuna, hvort heldur barnið er sveinbarn eða meybarn.

12:8b.LEV.012.008 En ef hún á ekki fyrir sauðkind, þá færi hún tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur, aðra í brennifórn, en hina í syndafórn, og skal presturinn friðþægja fyrir hana, og er hún þá hrein.

13

13:1b.LEV.013.001 Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

13:2b.LEV.013.002 "Nú tekur einhver þrota, hrúður eða gljádíla í skinnið á hörundi sínu og verður að líkþrárskellu í skinninu á hörundi hans. Þá skal leiða hann fyrir Aron prest eða einhvern af prestunum, sonum hans.

13:3b.LEV.013.003 Og prestur skal líta á skelluna í skinninu á hörundinu, og hafi hárin í skellunni gjörst hvít og beri skelluna dýpra en skinnið á hörundi hans, þá er það líkþrárskella. Og prestur skal líta á hann og dæma hann óhreinan.

13:4b.LEV.013.004 En sé hvítur gljádíli í skinninu á hörundi hans og beri ekki dýpra en skinnið og hafi hárin í honum ekki gjörst hvít, þá skal prestur byrgja inni sjö daga þann, er skelluna hefir tekið.

13:5b.LEV.013.005 Og prestur skal líta á hann á sjöunda degi, og sjái hann að jafnmikið ber á skellunni og hafi skellan ekki færst út í skinninu, þá skal prestur byrgja hann enn inni sjö daga.

13:6b.LEV.013.006 Og prestur skal enn líta á hann á sjöunda degi, og sjái hann þá, að skellan hefir dökknað, og hafi skellan ekki færst út í skinninu, skal prestur dæma hann hreinan. Þá er það hrúður, og hann skal þvo klæði sín og er þá hreinn.

13:7b.LEV.013.007 En færist hrúðrið út í skinninu eftir að hann sýndi sig prestinum til þess að verða dæmdur hreinn, þá skal hann aftur sýna sig prestinum.

13:8b.LEV.013.008 Og prestur skal líta á, og sjái hann, að hrúðrið hefir færst út í skinninu, þá skal prestur dæma hann óhreinan. Þá er það líkþrá.

13:9b.LEV.013.009 Nú tekur einhver líkþrárskellu, og skal leiða hann fyrir prest.

13:10b.LEV.013.010 Og prestur skal líta á, og sjái hann, að hvítur þroti er í skinninu og hefir gjört hárin hvít, og lifandi kvika er í þrotanum,

13:11b.LEV.013.011 þá er það gömul líkþrá í skinninu á hörundi hans, og skal prestur dæma hann óhreinan. Hann skal eigi byrgja hann inni, því að hann er óhreinn.

13:12b.LEV.013.012 En brjótist líkþráin út um skinnið og hylji líkþráin allt skinnið frá hvirfli til ilja á þeim, er skellurnar hefir tekið, hvar sem prestur rennir augum til,

13:13b.LEV.013.013 þá skal prestur líta á, og sjái hann, að líkþráin hefir hulið allt hörund hans, þá skal hann dæma hreinan þann, er skellurnar hefir tekið. Hann hefir þá allur gjörst hvítur og er þá hreinn.

13:14b.LEV.013.014 En þegar er ber á kviku holdi á honum, skal hann vera óhreinn.

13:15b.LEV.013.015 Og prestur skal líta á kvika holdið og dæma hann óhreinan. Kvika holdið er óhreint. Þá er það líkþrá.

13:16b.LEV.013.016 En hverfi kvika holdið og gjörist hvítt, þá skal hann ganga fyrir prest.

13:17b.LEV.013.017 Og prestur skal líta á hann, og sjái hann að skellurnar hafa gjörst hvítar, þá skal prestur dæma hreinan þann, er skellurnar hefir tekið. Þá er hann hreinn.

13:18b.LEV.013.018 Nú kemur kýli í hörundið, út í skinnið, og grær,

13:19b.LEV.013.019 og kemur í stað kýlisins hvítur þroti eða gljádíli ljósrauður, þá skal hann sýna sig presti.

13:20b.LEV.013.020 Og prestur skal líta á, og sjái hann, að dílann ber lægra en skinnið og hárin í honum hafa gjörst hvít, skal prestur dæma hann óhreinan. Þá er það líkþrársótt, sem brotist hefir út í kýlinu.

13:21b.LEV.013.021 En ef prestur lítur á hann og sér, að engin hvít hár eru í honum og hann er ekki lægri en skinnið og hefir dökknað, þá skal prestur byrgja hann inni sjö daga.

13:22b.LEV.013.022 En færist hann út í skinninu, skal prestur dæma hann óhreinan. Þá er það líkþrársótt.

13:23b.LEV.013.023 En ef gljádílinn stendur í stað og færist eigi út, þá er það kýlis-ör, og prestur skal dæma hann hreinan.

13:24b.LEV.013.024 En ef brunasár kemur á hörundið og brunakvikan verður að gljádíla ljósrauðum eða hvítum,

13:25b.LEV.013.025 þá skal prestur líta á hann. Og sjái hann, að hárin í gljádílanum hafa gjörst hvít og ber hann dýpra en skinnið, þá er það líkþrá, sem hefir brotist út í brunanum, og skal prestur dæma hann óhreinan. Þá er það líkþrársótt.

13:26b.LEV.013.026 En ef prestur lítur á hann og sér, að engin hvít hár eru í gljádílanum og hann er ekki lægri en skinnið og hefir dökknað, þá skal prestur byrgja hann inni sjö daga.

13:27b.LEV.013.027 Og prestur skal líta á hann á sjöunda degi. Hafi hann þá færst út í skinninu, skal prestur dæma hann óhreinan. Þá er það líkþrársótt.

13:28b.LEV.013.028 En ef gljádílinn stendur í stað og hefir eigi færst út í skinninu, en dökknað, þá er það brunaþroti, og skal prestur dæma hann hreinan, því að þá er það bruna-ör.

13:29b.LEV.013.029 Nú tekur karl eða kona skellu í höfuðið eða skeggið.

13:30b.LEV.013.030 Þá skal prestur líta á skelluna, og sjái hann, að hana ber dýpra en skinnið og gulleit visin hár eru í henni, þá skal prestur dæma hann óhreinan. Þá er það skurfa, það er líkþrá í höfði eða skeggi.

13:31b.LEV.013.031 Og er prestur lítur á skurfuskelluna og sér, að hana ber ekki dýpra en skinnið og engin svört hár eru í henni, þá skal prestur byrgja inni sjö daga þann, er skurfuskelluna hefir tekið.

13:32b.LEV.013.032 Og prestur skal líta á skelluna á sjöunda degi, og sjái hann, að skurfan hefir eigi færst út og engin gulleit hár eru í henni og skurfuna ber eigi dýpra en skinnið,

13:33b.LEV.013.033 þá skal hann raka sig, en skurfuna skal hann ekki raka, og prestur skal enn byrgja inni sjö daga þann, er skurfuna hefir tekið.

13:34b.LEV.013.034 Og prestur skal líta á skurfuna á sjöunda degi, og sjái hann, að skurfan hefir eigi færst út í skinninu og hana ber ekki dýpra en skinnið, þá skal prestur dæma hann hreinan. Og hann skal þvo klæði sín og er þá hreinn.

13:35b.LEV.013.035 En ef skurfan færist út í skinninu eftir að hann hefir verið dæmdur hreinn,

13:36b.LEV.013.036 þá skal prestur líta á hann. Og sjái hann, að skurfan hefir færst út í skinninu, þá skal prestur ekki leita að gulleitu hárunum. Þá er hann óhreinn.

13:37b.LEV.013.037 En ef jafnmikið ber á skurfunni og svört hár hafa sprottið í henni, þá er skurfan gróin. Hann er þá hreinn, og prestur skal dæma hann hreinan.

13:38b.LEV.013.038 Nú tekur karl eða kona gljádíla, hvíta gljádíla í skinnið á hörundi sínu,

13:39b.LEV.013.039 þá skal prestur líta á. Og sjái hann, að gljádílarnir í skinninu á hörundi þeirra eru dumb-hvítir, þá er það hringormur, sem hefir brotist út í skinninu. Þá er hann hreinn.

13:40b.LEV.013.040 Nú verður einhver sköllóttur ofan á höfðinu, þá er hann hvirfilskalli og er hreinn.

13:41b.LEV.013.041 Og ef hann verður sköllóttur framan á höfðinu, þá er hann ennisskalli og er hreinn.

13:42b.LEV.013.042 En sé ljósrauð skella í hvirfilskallanum eða ennisskallanum, þá er það líkþrá, er út brýst í hvirfilskalla hans eða ennisskalla.

13:43b.LEV.013.043 Prestur skal þá líta á hann, og sjái hann að skelluþrotinn í hvirfilskalla hans eða ennisskalla er ljósrauður, á að sjá sem líkþrá í skinninu á hörundinu,

13:44b.LEV.013.044 þá er hann maður líkþrár og er óhreinn. Prestur skal sannlega dæma hann óhreinan. Líkþrársóttin er í höfði honum.

13:45b.LEV.013.045 Líkþrár maður, er sóttina hefir, - klæði hans skulu vera rifin og hár hans flakandi, og hann skal hylja kamp sinn og hrópa: ,Óhreinn, óhreinn!'

13:46b.LEV.013.046 Alla þá stund, er hann hefir sóttina, skal hann óhreinn vera. Hann er óhreinn. Hann skal búa sér. Bústaður hans skal vera fyrir utan herbúðirnar.

13:47b.LEV.013.047 Nú kemur líkþrárskella á fat, hvort heldur er ullarfat eða línfat,

13:48b.LEV.013.048 eða vefnað eða prjónles af líni eða ullu, eða skinn eða eitthvað það, sem af skinni er gjört,

13:49b.LEV.013.049 og sé skellan grænleit eða rauðleit á fatinu eða skinninu eða vefnaðinum eða prjónlesinu eða nokkrum hlut af skinni gjörvum, þá er það líkþrárskella, og skal sýna það prestinum.

13:50b.LEV.013.050 Og prestur skal líta á skelluna og byrgja inni sjö daga það, er skellan er á.

13:51b.LEV.013.051 Og hann skal líta á skelluna á sjöunda degi. Hafi skellan færst út á fatinu eða vefnaðinum eða prjónlesinu eða skinninu, til hverra nota sem skinnið er haft, þá er skellan skæð líkþrá. Þá er það óhreint.

13:52b.LEV.013.052 Og skal brenna fatið eða vefnaðinn eða prjónlesið, hvort það er heldur af ullu eða líni, eða hvern hlut af skinni gjörvan, er skellan er á, því að það er skæð líkþrá. Það skal í eldi brenna.

13:53b.LEV.013.053 En ef prestur lítur á og sér, að skellan hefir eigi færst út í fatinu eða vefnaðinum eða prjónlesinu eða á einhverjum hlut af skinni gjörvum,

13:54b.LEV.013.054 þá skal prestur bjóða að þvo það, sem skellan er á, og hann skal enn byrgja það inni sjö daga.

13:55b.LEV.013.055 Og prestur skal líta á, eftir að það, sem skellan er á, er þvegið, og sjái hann, að skellan hefir eigi breytt lit og skellan hefir eigi færst út, þá er það óhreint. Þú skalt brenna það í eldi, þá er það áta, hvort það er heldur á úthverfunni eða rétthverfunni.

13:56b.LEV.013.056 En ef prestur lítur á og sér, að skellan hefir dökknað, eftir að hún var þvegin, þá skal hann rífa hana af fatinu eða skinninu eða vefnaðinum eða prjónlesinu.

13:57b.LEV.013.057 En komi hún enn í ljós á fatinu eða vefnaðinum eða prjónlesinu eða á nokkrum hlut af skinni gjörvum, þá er það líkþrá, sem er að brjótast út. Þú skalt brenna í eldi það, er skellan er á.

13:58b.LEV.013.058 En það fat eða vefnaður eða prjónles, eða sérhver hlutur af skinni gjör, sem skellan gengur af, ef þvegið er, það skal þvo annað sinn, og er þá hreint."

13:59b.LEV.013.059 Þessi eru ákvæðin um líkþrársótt í ullarfati eða línfati eða vefnaði eða prjónlesi eða nokkrum hlut af skinni gjörvum, er það skal dæma hreint eða óhreint.

14

14:1b.LEV.014.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

14:2b.LEV.014.002 "Þetta skulu vera ákvæðin um líkþráan mann, þá er hann er hreinsaður: Skal leiða hann fyrir prest,

14:3b.LEV.014.003 og prestur skal ganga út fyrir herbúðirnar, og prestur skal líta á. Og sjái hann að líkþrárskellan á hinum líkþráa er gróin,

14:4b.LEV.014.004 þá skal presturinn bjóða að taka fyrir þann, er lætur hreinsa sig, tvo hreina fugla lifandi, sedrusvið, skarlat og ísópsvönd.

14:5b.LEV.014.005 Og prestur skal bjóða að slátra öðrum fuglinum í leirker yfir rennandi vatni.

14:6b.LEV.014.006 En lifandi fuglinn, sedrusviðinn, skarlatið og ísópsvöndinn skal hann taka og drepa því, ásamt lifandi fuglinum, í blóð fuglsins, er slátrað var yfir rennandi vatni.

14:7b.LEV.014.007 Og hann skal stökkva sjö sinnum á þann, sem lætur hreinsa sig af líkþránni, og dæma hann hreinan, en sleppa lifandi fuglinum út á víðavang.

14:8b.LEV.014.008 Sá er lætur hreinsa sig, skal þvo klæði sín, raka allt hár sitt og lauga sig í vatni, og er þá hreinn. Og síðan gangi hann í herbúðirnar, en skal þó sjö daga hafast við fyrir utan tjald sitt.

14:9b.LEV.014.009 Og á sjöunda degi skal hann raka allt hár sitt, bæði höfuð sitt, skegg og augabrúnir, - allt hár sitt skal hann raka. Og hann skal þvo klæði sín og lauga líkama sinn í vatni, og er þá hreinn.

14:10b.LEV.014.010 Á áttunda degi skal hann taka tvö hrútlömb gallalaus og eina gimbur veturgamla gallalausa og þrjá tíunduparta úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn, og einn lóg af olíu.

14:11b.LEV.014.011 Og presturinn, er hreinsar, skal færa manninn, er lætur hreinsa sig, ásamt þessu fram fyrir Drottin að dyrum samfundatjaldsins.

14:12b.LEV.014.012 Og presturinn skal taka annað hrútlambið og fórna því í sektarfórn, ásamt olíu-lóginum, og veifa hvorutveggja að veififórn frammi fyrir Drottni.

14:13b.LEV.014.013 Og lambinu skal slátra á þeim stað, þar sem syndafórninni er slátrað og brennifórninni, á helgum stað; því að eins og syndafórn heyrir presti, svo er og um sektarfórn. Hún er háheilög.

14:14b.LEV.014.014 Prestur skal taka nokkuð af blóði sektarfórnarinnar, og prestur skal ríða því á hægri eyrnasnepil þess, er lætur hreinsa sig, og á þumalfingur hægri handar hans og á stórutá hægri fótar hans.

14:15b.LEV.014.015 Og prestur skal taka nokkuð af olíu-lóginum og hella í vinstri lófa sér.

14:16b.LEV.014.016 Og prestur skal drepa hægri fingri sínum í olíuna, sem er í vinstri lófa hans, og stökkva olíunni með fingri sínum sjö sinnum frammi fyrir Drottni.

14:17b.LEV.014.017 Og af leifunum af olíunni, sem er í lófa hans, skal prestur ríða á hægri eyrnasnepil þess, er lætur hreinsa sig, og á þumalfingur hægri handar hans og á stórutá hægri fótar hans, ofan á blóðið úr sektarfórninni.

14:18b.LEV.014.018 Og því, sem leift er af olíunni í lófa prestsins, skal hann ríða á höfuð þess, sem lætur hreinsa sig, og prestur skal friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni.

14:19b.LEV.014.019 Þá skal prestur fórna syndafórninni og friðþægja fyrir þann, er lætur hreinsa sig, vegna óhreinleika hans, og síðan skal hann slátra brennifórninni.

14:20b.LEV.014.020 Og prestur skal fram bera á altarið brennifórnina og matfórnina. Þannig skal presturinn friðþægja fyrir hann, og er hann þá hreinn.

14:21b.LEV.014.021 En sé hann fátækur og á ekki fyrir þessu, þá skal hann taka eitt hrútlamb í sektarfórn til veifunar, til þess að friðþægt verði fyrir hann, og einn tíunda part úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn, og lóg af olíu

14:22b.LEV.014.022 og tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur, eftir því sem efni hans leyfa. Skal önnur vera til syndafórnar, en hin til brennifórnar.

14:23b.LEV.014.023 Og hann skal færa þær prestinum á áttunda degi frá hreinsun sinni að dyrum samfundatjaldsins fram fyrir Drottin.

14:24b.LEV.014.024 Og prestur skal taka sektarfórnarlambið og olíu-lóginn, og prestur skal veifa því til veififórnar frammi fyrir Drottni.

14:25b.LEV.014.025 Síðan skal sektarfórnarlambinu slátrað. Prestur skal taka nokkuð af blóði sektarfórnarinnar og ríða á hægri eyrnasnepil þess, er lætur hreinsa sig, og á þumalfingur hægri handar hans og á stórutá hægri fótar hans.

14:26b.LEV.014.026 Og nokkru af olíunni skal prestur hella í vinstri lófa sér.

14:27b.LEV.014.027 Og prestur skal stökkva nokkru af olíunni, sem er í vinstri lófa hans, með hægri fingri sínum sjö sinnum frammi fyrir Drottni.

14:28b.LEV.014.028 Og prestur skal ríða nokkru af olíunni, sem er í lófa hans, á hægri eyrnasnepil þess, er lætur hreinsa sig, og á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar hans, á þann stað þar sem blóðið úr sektarfórninni er.

14:29b.LEV.014.029 En því, sem leift er af olíunni í lófa prestsins, skal hann ríða á höfuð þess, er lætur hreinsa sig, til þess að friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni.

14:30b.LEV.014.030 Þá skal hann fórna annarri turtildúfunni eða annarri ungu dúfunni, eftir því sem hann hafði efnin til,

14:31b.LEV.014.031 annarri í syndafórn og hinni í brennifórn, ásamt matfórninni. Þannig skal presturinn friðþægja fyrir þann, er lætur hreinsa sig, frammi fyrir Drottni."

14:32b.LEV.014.032 Þetta eru ákvæðin um þann, sem hefir líkþrársótt og ekki á fyrir hreinsun sinni.

14:33b.LEV.014.033 Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

14:34b.LEV.014.034 "Þá er þér komið í Kanaanland, sem ég mun gefa yður til eignar, og ég læt koma líkþrárskellu á hús í eignarlandi yðar,

14:35b.LEV.014.035 þá skal sá fara, sem húsið á, og greina presti frá og segja: ,Mér virðist sem skella sé á húsinu.'

14:36b.LEV.014.036 Og prestur skal bjóða að láta ryðja húsið áður en prestur gengur inn til þess að líta á skelluna, svo að ekki verði allt óhreint, sem í húsinu er. Síðan skal prestur ganga inn til þess að skoða húsið.

14:37b.LEV.014.037 Og hann skal líta á skelluna, og sjái hann, að skellan á veggjum hússins eru dældir grænleitar eða rauðleitar, og þær ber lægra en vegginn,

14:38b.LEV.014.038 þá skal prestur ganga út úr húsinu að dyrum hússins og byrgja húsið sjö daga.

14:39b.LEV.014.039 Og prestur skal koma aftur á sjöunda degi og líta á, og sjái hann að skellan hefir færst út á veggjum hússins,

14:40b.LEV.014.040 þá skal prestur bjóða að brjóta þá steina úr, sem skellan er á, og varpa þeim á óhreinan stað utan borgar.

14:41b.LEV.014.041 Og húsið skal hann láta skafa allt að innan, og skulu þeir steypa niður vegglíminu, er þeir skafa af, á óhreinan stað utan borgar.

14:42b.LEV.014.042 Og þeir skulu taka aðra steina og setja í stað hinna steinanna, og annað vegglím skal taka og ríða á húsið.

14:43b.LEV.014.043 En ef skellan kemur aftur og brýst út á húsinu, eftir að steinarnir hafa verið brotnir úr og eftir að húsið hefir verið skafið og síðan verið riðið á vegglími,

14:44b.LEV.014.044 þá skal prestur koma og líta á. Og sjái hann að skellan hefir færst út á húsinu, þá er það skæð líkþrá á húsinu. Það er óhreint.

14:45b.LEV.014.045 Og skal rífa húsið, steinana í því, viðina og allt vegglím hússins, og færa út fyrir borgina á óhreinan stað.

14:46b.LEV.014.046 Hver sem gengur inn í húsið alla þá stund, sem það er byrgt, skal vera óhreinn til kvelds.

14:47b.LEV.014.047 Og hver sem hvílir í húsinu, skal þvo klæði sín, og hver sem matar neytir í húsinu, skal þvo klæði sín.

14:48b.LEV.014.048 En ef prestur kemur og lítur á og sér, að skellan hefir ekki færst út á húsinu eftir að riðið var vegglími á húsið, þá skal prestur dæma húsið hreint, því að skellan er þá læknuð.

14:49b.LEV.014.049 Og hann skal taka tvo fugla, sedrusvið, skarlat og ísópsvönd til þess að syndhreinsa húsið.

14:50b.LEV.014.050 Og hann skal slátra öðrum fuglinum í leirker yfir rennandi vatni.

14:51b.LEV.014.051 En sedrusviðinn, ísópsvöndinn, skarlatið og lifandi fuglinn skal hann taka og drepa þeim í blóð fuglsins, er slátrað var, og í rennandi vatnið og stökkva á húsið sjö sinnum.

14:52b.LEV.014.052 Og hann skal syndhreinsa húsið með blóði fuglsins og rennandi vatninu, með lifandi fuglinum, sedrusviðinum, ísópsvendinum og skarlatinu.

14:53b.LEV.014.053 En lifandi fuglinum skal hann sleppa út fyrir borgina, út á víðavang, og friðþægja þannig fyrir húsið, og er það þá hreint."

14:54b.LEV.014.054 Þetta eru ákvæðin um hvers konar líkþrársótt og skurfu,

14:55b.LEV.014.055 um líkþrá í fati og á húsi,

14:56b.LEV.014.056 um þrota, hrúður og gljádíla,

14:57b.LEV.014.057 til leiðbeiningar um það, hvenær eitthvað er óhreint og hvenær það er hreint. Þetta eru ákvæðin um líkþrá.

15

15:1b.LEV.015.001 Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

15:2b.LEV.015.002 "Mælið til Ísraelsmanna og segið við þá: Nú hefir einhver rennsli úr hörundi sínu, og er hann óhreinn vegna rennslisins.

15:3b.LEV.015.003 Og skal svo vera um óhreinleika hans, þá er hann hefir rennsli: Hvort sem rennslið úr hörundi hans gengur út eða stemmist, þá er hann óhreinn.

15:4b.LEV.015.004 Sérhver hvíla skal óhrein vera, ef maður með rennsli hefir legið í henni, og sérhvað það skal óhreint vera, er hann situr á.

15:5b.LEV.015.005 Og hver sem snertir hvílu hans, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:6b.LEV.015.006 Og sá er sest á nokkuð það, sem maður með rennsli hefir setið á, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:7b.LEV.015.007 Og sá sem snertir líkama þess, er rennsli hefir, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:8b.LEV.015.008 Hræki sá, er rennsli hefir, á hreinan mann, þá skal hann þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:9b.LEV.015.009 Sérhver söðull skal óhreinn vera, ef maður með rennsli ríður í honum.

15:10b.LEV.015.010 Og hver sá, er snertir eitthvað það, sem hefir verið undir honum, skal vera óhreinn til kvelds, og sá, er ber það, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:11b.LEV.015.011 Og hver sá, er maður með rennsli hefir snortið, og hafi hann eigi skolað hendur sínar í vatni, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:12b.LEV.015.012 Og leirker skal brjóta, ef maður með rennsli snertir það, en tré-ílát öll skola í vatni.

15:13b.LEV.015.013 Er sá, er rennsli hefir, verður hreinn af rennsli sínu, skal hann telja sjö daga frá hreinsun sinni og þvo klæði sín og lauga líkama sinn í rennandi vatni, og er þá hreinn.

15:14b.LEV.015.014 Og á áttunda degi skal hann taka tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur og ganga fram fyrir Drottin að dyrum samfundatjaldsins og færa þær presti.

15:15b.LEV.015.015 Og prestur skal fórna þeim, annarri í syndafórn og hinni í brennifórn, og prestur skal friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni vegna rennslis hans.

15:16b.LEV.015.016 Nú lætur einhver sæði, og skal hann lauga allan líkama sinn í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:17b.LEV.015.017 Og hvert það fat eða skinn, sem sæðið hefir komið á, skal þvegið í vatni og vera óhreint til kvelds.

15:18b.LEV.015.018 Og leggist maður með konu og hafi samfarir við hana, þá skulu þau lauga sig í vatni og vera óhrein til kvelds.

15:19b.LEV.015.019 Nú hefir kona rennsli, og rennslið úr holdi hennar er blóð, þá skal hún vera óhrein sjö daga, og hver sem snertir hana, skal vera óhreinn til kvelds.

15:20b.LEV.015.020 Allt það, sem hún liggur á, meðan hún er óhrein, skal vera óhreint, og allt, sem hún situr á, skal vera óhreint.

15:21b.LEV.015.021 Og hver sem snertir hvílu hennar, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:22b.LEV.015.022 Og hver sem snertir nokkuð það, sem hún hefir setið á, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:23b.LEV.015.023 Og snerti hann eitthvað, sem er í hvílunni eða á því, sem hún situr á, þá skal hann vera óhreinn til kvelds.

15:24b.LEV.015.024 Og ef einhver samrekkir henni og tíðablóð hennar kemur á hann, þá er hann óhreinn sjö daga, og hver sú hvíla skal óhrein vera, er hann liggur í.

15:25b.LEV.015.025 Nú missir kona blóð marga daga á öðrum tíma en þeim, er hún hefir tíðir, eða hún hefir rennsli fram yfir tíðir sínar, þá skal hún alla þá stund, er hún hefir óhreint rennsli, haga sér eins og þá daga, er hún hefir tíðir. Hún er óhrein.

15:26b.LEV.015.026 Hverja hvílu, sem hún liggur í alla þá stund, sem hún hefir rennsli, skal hún fara með eins og hvílu sína, þá er hún hefir tíðir, og sérhvað það, er hún situr á, skal vera óhreint, eins og þegar hún er óhrein af klæðaföllum.

15:27b.LEV.015.027 Hver sem snertir þetta, skal vera óhreinn, og hann skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

15:28b.LEV.015.028 En þá er hún er hrein orðin af rennsli sínu, skal hún telja sjö daga, og eftir það er hún hrein.

15:29b.LEV.015.029 Og á áttunda degi skal hún taka sér tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur og færa þær prestinum að dyrum samfundatjaldsins.

15:30b.LEV.015.030 Og prestur skal fórna annarri í syndafórn og hinni í brennifórn, og prestur skal friðþægja fyrir hana frammi fyrir Drottni vegna hins óhreina rennslis hennar.

15:31b.LEV.015.031 Og þannig skuluð þér vara Ísraelsmenn við óhreinleika þeirra, að þeir deyi ekki í óhreinleika sínum, ef þeir saurga búð mína, sem er meðal þeirra."

15:32b.LEV.015.032 Þetta eru ákvæðin um þann, sem hefir rennsli, og þann, sem hefir sáðlát, svo að hann verður óhreinn af,

15:33b.LEV.015.033 og um konu, sem hefir tíðir, og þann, sem hefir rennsli, hvort heldur er karl eða kona, og um mann, sem samrekkir konu óhreinni.

16

16:1b.LEV.016.001 Drottinn talaði við Móse eftir dauða tveggja sona Arons, er þeir gengu fram fyrir Drottin og dóu.

16:2b.LEV.016.002 Og Drottinn sagði við Móse: "Seg þú Aroni bróður þínum, að hann megi ekki á hverjum tíma sem er ganga inn í helgidóminn inn fyrir fortjaldið, fram fyrir lokið, sem er yfir örkinni, ella muni hann deyja, því að ég mun birtast í skýinu yfir lokinu.

16:3b.LEV.016.003 Með þetta skal Aron koma inn í helgidóminn: Með ungneyti í syndafórn og hrút í brennifórn.

16:4b.LEV.016.004 Hann skal klæðast helgum línkyrtli og hafa línbrækur yfir holdi sínu og gyrða sig línbelti og setja á sig vefjarhött af líni. Þetta eru helg klæði. Og skal hann lauga líkama sinn í vatni og klæðast þeim.

16:5b.LEV.016.005 Af söfnuði Ísraelsmanna skal hann taka tvo geithafra í syndafórn og einn hrút í brennifórn.

16:6b.LEV.016.006 Aron skal leiða fram uxann, sem honum er ætlaður til syndafórnar, og friðþægja fyrir sig og hús sitt.

16:7b.LEV.016.007 Þá skal hann taka báða geithafrana og færa þá fram fyrir Drottin að dyrum samfundatjaldsins.

16:8b.LEV.016.008 Og Aron skal leggja hluti á báða hafrana, einn hlut fyrir Drottin og hinn annan hlut fyrir Asasel.

16:9b.LEV.016.009 Og Aron skal leiða fram hafurinn, sem hlutur Drottins féll á, og fórna honum í syndafórn.

16:10b.LEV.016.010 En hafurinn, sem hlutur Asasels féll á, skal færa lifandi fram fyrir Drottin, til þess að friðþæging fari fram yfir honum og honum sé sleppt til Asasels út á eyðimörkina.

16:11b.LEV.016.011 Aron skal leiða fram uxann, sem honum er ætlaður til syndafórnar, og friðþægja fyrir sig og hús sitt, og hann skal slátra uxanum, sem honum er ætlaður til syndafórnar.

16:12b.LEV.016.012 Hann skal taka eldpönnu fulla af eldsglóðum af altarinu frammi fyrir Drottni og lúkur sínar fullar af smámuldu ilmreykelsi og bera inn fyrir fortjaldið.

16:13b.LEV.016.013 Og hann skal láta reykelsið á eldinn frammi fyrir Drottni, svo að reykelsisskýið hylji lokið, sem er yfir sáttmálinu, og hann deyi ekki.

16:14b.LEV.016.014 Og hann skal taka nokkuð af blóði uxans og stökkva því með fingri sínum ofan á lokið framanvert, og fyrir framan lokið skal hann stökkva sjö sinnum nokkru af blóðinu með fingri sínum.

16:15b.LEV.016.015 Þessu næst skal hann slátra hafrinum, er ætlaður er lýðnum til syndafórnar, og bera blóð hans inn fyrir fortjaldið og fara með blóðið úr honum á sama hátt, eins og hann fór með blóðið úr uxanum, og stökkva því á lokið og fyrir framan lokið,

16:16b.LEV.016.016 og friðþægja þannig fyrir helgidóminn, vegna óhreinleika Ísraelsmanna og vegna misgjörða þeirra, í hverju sem þeir kunna að hafa syndgað. Og eins skal hann fara með samfundatjaldið, sem stendur meðal þeirra, mitt í óhreinleika þeirra.

16:17b.LEV.016.017 Enginn maður má vera inni í samfundatjaldinu, er hann gengur inn til þess að friðþægja í helgidóminum, til þess er hann fer út og hefir friðþægt fyrir sig og hús sitt og fyrir allan Ísraels söfnuð.

16:18b.LEV.016.018 Hann skal ganga út að altarinu, sem stendur frammi fyrir Drottni, og friðþægja fyrir það. Og hann skal taka nokkuð af blóði uxans og nokkuð af blóði hafursins og ríða á horn altarisins allt í kring.

16:19b.LEV.016.019 Og hann skal stökkva nokkru af blóðinu á það sjö sinnum með fingri sínum og hreinsa það og helga það vegna óhreinleika Ísraelsmanna.

16:20b.LEV.016.020 Er hann þannig hefir lokið friðþægingu helgidómsins, samfundatjaldsins og altarisins, skal hann leiða fram lifandi hafurinn.

16:21b.LEV.016.021 Og Aron skal leggja báðar hendur sínar á höfuð hins lifandi hafurs og játa yfir honum öll afbrot Ísraelsmanna og allar misgjörðir þeirra, í hverju sem þeir kunna að hafa syndgað. Og hann skal leggja þær á höfuð hafursins og senda hann út á eyðimörk með manni, sem til þess er ferðbúinn.

16:22b.LEV.016.022 Og hafurinn skal bera á sér öll afbrot þeirra til óbyggða, og hann skal sleppa hafrinum á eyðimörk.

16:23b.LEV.016.023 Og Aron skal ganga inn í samfundatjaldið og færa sig úr línklæðunum, sem hann fór í, er hann gekk inn í helgidóminn, og skilja þau þar eftir.

16:24b.LEV.016.024 Og hann skal lauga líkama sinn í vatni á helgum stað og fara í klæði sín, ganga síðan út og fórna brennifórn sjálfs sín og brennifórn lýðsins, og friðþægja fyrir sig og fyrir lýðinn.

16:25b.LEV.016.025 Og mör syndafórnarinnar skal hann brenna á altarinu.

16:26b.LEV.016.026 Og sá, er fór burt með hafurinn til Asasels, skal þvo klæði sín og lauga líkama sinn í vatni. Síðan gangi hann í herbúðirnar.

16:27b.LEV.016.027 En syndafórnaruxann og syndafórnarhafurinn, hverra blóð var borið inn til friðþægingar í helgidóminum, skal færa út fyrir herbúðirnar og brenna í eldi skinnin af þeim, kjötið og gorið.

16:28b.LEV.016.028 Og sá, er brennir þetta, skal þvo klæði sín og lauga líkama sinn í vatni. Síðan gangi hann í herbúðirnar.

16:29b.LEV.016.029 Þetta skal vera yður ævarandi lögmál: Í sjöunda mánuðinum, á tíunda degi mánaðarins skuluð þér fasta og ekkert verk vinna, hvorki innbornir menn né útlendingar, er meðal yðar búa.

16:30b.LEV.016.030 Því að á þessum degi skal friðþægt verða fyrir yður til þess að hreinsa yður. Af öllum syndum yðar skuluð þér hreinir vera fyrir Drottni.

16:31b.LEV.016.031 Það skal vera yður algjör hvíldardagur, og þér skuluð fasta. Það er ævarandi lögmál.

16:32b.LEV.016.032 En friðþæginguna skal gjöra sá prestur, er smyrja á og vígjast skal til þess, að hann þjóni í prestsembætti í stað föður síns, og skal hann klæðast línklæðunum, hinum helgu klæðum.

16:33b.LEV.016.033 Hann skal friðþægja fyrir hið helgasta, og hann skal friðþægja fyrir samfundatjaldið og altarið, og hann skal friðþægja fyrir prestana og allt fólk safnaðarins.

16:34b.LEV.016.034 Þetta skal vera yður ævarandi lögmál: að friðþægja einu sinni á ári fyrir Ísraelsmenn vegna allra synda þeirra." Og hann gjörði svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

17

17:1b.LEV.017.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

17:2b.LEV.017.002 "Tala þú við Aron og sonu hans og alla Ísraelsmenn og seg við þá: Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið og sagt:

17:3b.LEV.017.003 Hver sá af húsi Ísraels, sem slátrar nautgrip eða sauðkind eða geitsauð í herbúðunum, eða slátrar því fyrir utan herbúðirnar,

17:4b.LEV.017.004 og leiðir það ekki að dyrum samfundatjaldsins til þess að færa Drottni það að fórnargjöf fyrir framan búð Drottins, sá maður skal vera blóðsekur. Hann hefir úthellt blóði, og sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni,

17:5b.LEV.017.005 til þess að Ísraelsmenn færi sláturfórnir sínar, er þeir eru vanir að fórna á bersvæði, - að þeir færi þær prestinum að dyrum samfundatjaldsins Drottni til handa og fórni þeim í heillafórnir Drottni til handa.

17:6b.LEV.017.006 Prestur skal stökkva blóðinu á altari Drottins við dyr samfundatjaldsins og brenna mörinn til þægilegs ilms fyrir Drottin.

17:7b.LEV.017.007 Og þeir skulu eigi framar færa fórnir skógartröllunum, er þeir nú taka fram hjá með. Þetta skal vera þeim ævarandi lögmál frá kyni til kyns.

17:8b.LEV.017.008 Og þú skalt segja við þá: Hver sá af húsi Ísraels eða af útlendum mönnum, er búa meðal þeirra, sem fórnar brennifórn eða sláturfórn

17:9b.LEV.017.009 og færir hana ekki að dyrum samfundatjaldsins til þess að fórna Drottni henni, sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.

17:10b.LEV.017.010 Hver sá af húsi Ísraels og af útlendum mönnum, er búa meðal þeirra, sem neytir nokkurs blóðs, - gegn þeim manni, sem neytir blóðs, vil ég snúa augliti mínu og uppræta hann úr þjóð sinni.

17:11b.LEV.017.011 Því að líf líkamans er í blóðinu, og ég hefi gefið yður það á altarið, til þess að með því sé friðþægt fyrir yður, því að blóðið friðþægir með lífinu.

17:12b.LEV.017.012 Fyrir því hefi ég sagt við Ísraelsmenn: ,Enginn maður meðal yðar skal blóðs neyta, né heldur skal nokkur útlendingur, er býr meðal yðar, neyta blóðs.'

17:13b.LEV.017.013 Og hver sá Ísraelsmanna og þeirra manna útlendra, er meðal yðar búa, sem veiðir villidýr eða fugl ætan, hann skal hella niður blóðinu og hylja það moldu.

17:14b.LEV.017.014 Því að svo er um líf alls holds, að saman fer blóð og líf, og fyrir því hefi ég sagt við Ísraelsmenn: ,Þér skuluð ekki neyta blóðs úr nokkru holdi, því að líf sérhvers holds, það er blóð þess. Hver sá, er þess neytir, skal upprættur verða.'

17:15b.LEV.017.015 Og hver sá, er etur sjálfdauða skepnu eða dýrrifna, hvort heldur er innborinn maður eða útlendur, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds. Þá er hann hreinn.

17:16b.LEV.017.016 En þvoi hann þau ekki og laugi ekki hold sitt, þá bakar hann sér sekt."

18

18:1b.LEV.018.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

18:2b.LEV.018.002 "Tala þú við Ísraelsmenn og seg við þá: Ég er Drottinn, Guð yðar.

18:3b.LEV.018.003 Þér skuluð ekki gjöra að háttum Egyptalands, þar sem þér bjugguð, og þér skuluð ekki gjöra að háttum Kanaanlands, er ég mun leiða yður inn í, né heldur skuluð þér breyta eftir setningum þeirra.

18:4b.LEV.018.004 Lög mín skuluð þér halda og setningar mínar skuluð þér varðveita, svo að þér breytið eftir þeim. Ég er Drottinn, Guð yðar.

18:5b.LEV.018.005 Þér skuluð því varðveita setningar mínar og lög. Sá sem breytir eftir þeim skal lifa fyrir þau. Ég er Drottinn.

18:6b.LEV.018.006 Enginn yðar skal koma nærri nokkru nánu skyldmenni til þess að bera blygðan þeirra. Ég er Drottinn.

18:7b.LEV.018.007 Þú skalt eigi bera blygðan föður þíns og blygðan móður þinnar. Hún er móðir þín, þú skalt eigi bera blygðan hennar.

18:8b.LEV.018.008 Þú skalt eigi bera blygðan konu föður þíns, það er blygðan föður þíns.

18:9b.LEV.018.009 Blygðan systur þinnar, dóttur föður þíns eða dóttur móður þinnar, hvort heldur hún er fædd heima eða utan heimilis, - blygðan þeirra skalt þú eigi bera.

18:10b.LEV.018.010 Blygðan sonardóttur þinnar eða dótturdóttur, blygðan þeirra skalt þú eigi bera, því að það er þín blygðan.

18:11b.LEV.018.011 Blygðan dóttur konu föður þíns, afkvæmis föður þíns - hún er systir þín -, blygðan hennar skalt þú eigi bera.

18:12b.LEV.018.012 Eigi skalt þú bera blygðan föðursystur þinnar, hún er náið skyldmenni föður þíns.

18:13b.LEV.018.013 Eigi skalt þú bera blygðan móðursystur þinnar, því að hún er náið skyldmenni móður þinnar.

18:14b.LEV.018.014 Eigi skalt þú bera blygðan föðurbróður þíns, eigi koma nærri konu hans, því að hún er sifkona þín.

18:15b.LEV.018.015 Eigi skalt þú bera blygðan tengdadóttur þinnar. Hún er kona sonar þíns, eigi skalt þú bera blygðan hennar.

18:16b.LEV.018.016 Eigi skalt þú bera blygðan konu bróður þíns. Það er blygðan bróður þíns.

18:17b.LEV.018.017 Eigi skalt þú bera blygðan konu og dóttur hennar. Sonardóttur hennar eða dótturdóttur skalt þú eigi taka til þess að bera blygðan þeirra. Þær eru náin skyldmenni; það er óhæfa.

18:18b.LEV.018.018 Né heldur skalt þú taka konu auk systur hennar, henni til eljurígs, með því að bera blygðan hennar auk hinnar, meðan hún er á lífi.

18:19b.LEV.018.019 Eigi skalt þú koma nærri konu til að bera blygðan hennar, þá er hún er óhrein af klæðaföllum.

18:20b.LEV.018.020 Þú skalt og eigi hafa holdlegt samræði við konu náunga þíns, svo að þú saurgist af.

18:21b.LEV.018.021 Eigi skalt þú gefa nokkurt afkvæmi þitt til þess, að það sé helgað Mólok, svo að þú vanhelgir eigi nafn Guðs þíns. Ég er Drottinn.

18:22b.LEV.018.022 Eigi skalt þú leggjast með karlmanni sem kona væri. Það er viðurstyggð.

18:23b.LEV.018.023 Þú skalt ekki eiga samlag við nokkra skepnu, svo að þú saurgist af. Né heldur skal kona standa fyrir skepnu til samræðis við hana. Það er svívirðing.

18:24b.LEV.018.024 Saurgið yður ekki með nokkru þvílíku, því að með öllu þessu hafa heiðingjarnir saurgað sig, sem ég mun reka á burt undan yður.

18:25b.LEV.018.025 Og landið saurgaðist, og fyrir því vitjaði ég misgjörðar þess á því, og landið spjó íbúum sínum.

18:26b.LEV.018.026 Varðveitið því setningar mínar og lög og fremjið enga af þessum viðurstyggðum, hvorki innborinn maður né útlendingur, er býr meðal yðar, -

18:27b.LEV.018.027 því að allar þessar viðurstyggðir hafa landsbúar, er fyrir yður voru, framið, og landið saurgaðist -,

18:28b.LEV.018.028 svo að landið spúi yður ekki, er þér saurgið það, eins og það spjó þeirri þjóð, er fyrir yður var.

18:29b.LEV.018.029 Því að hver sá, er fremur einhverja af þessum viðurstyggðum, þær sálir, sem það gjöra, skulu upprættar verða úr þjóð sinni.

18:30b.LEV.018.030 Varðveitið því boðorð mín, svo að þér fylgið eigi neinum af þeim andstyggilegu venjum, er hafðar voru í frammi fyrir yðar tíð, og saurgið yður ekki með því. Ég er Drottinn, Guð yðar."

19

19:1b.LEV.019.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

19:2b.LEV.019.002 "Tala þú til alls safnaðar Ísraelsmanna og seg við þá: Þér skuluð vera heilagir, því að ég, Drottinn, Guð yðar, er heilagur.

19:3b.LEV.019.003 Sérhver óttist móður sína og föður sinn og haldi hvíldardaga mína. Ég er Drottinn, Guð yðar.

19:4b.LEV.019.004 Snúið yður eigi til falsguða og gjörið yður eigi steypta guði. Ég er Drottinn, Guð yðar.

19:5b.LEV.019.005 Er þér slátrið heillafórn Drottni til handa, þá slátrið henni þannig, að hún afli yður velþóknunar.

19:6b.LEV.019.006 Skal eta hana daginn, sem þér fórnið henni, og daginn eftir, en það, sem leift er til þriðja dags, skal brenna í eldi.

19:7b.LEV.019.007 En sé þó etið af því á þriðja degi, þá skal það talið skemmt kjöt. Það mun eigi verða velþóknanlegt.

19:8b.LEV.019.008 Og hver, sem etur það, bakar sér sekt, því að hann hefir vanhelgað það sem helgað er Drottni, og sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.

19:9b.LEV.019.009 Er þér skerið upp jarðargróður yðar, þá skalt þú eigi skera akur þinn út í hvert horn, né heldur skalt þú tína eftirtíning uppskeru þinnar.

19:10b.LEV.019.010 Og eigi skalt þú gjörtína víngarð þinn, né heldur tína upp niður fallin ber í víngarði þínum. Þú skalt skilja það eftir handa fátækum og útlendingum. Ég er Drottinn, Guð yðar.

19:11b.LEV.019.011 Þér skuluð eigi stela, eigi svíkja, né heldur ljúga hver að öðrum.

19:12b.LEV.019.012 Þér skuluð eigi sverja ranglega við nafn mitt, svo að þú vanhelgir nafn Guðs þíns. Ég er Drottinn.

19:13b.LEV.019.013 Þú skalt eigi beita náunga þinn ofríki, né ræna hann, og kaup daglaunamanns skal eigi vera hjá þér náttlangt til morguns.

19:14b.LEV.019.014 Þú skalt ekki bölva daufum manni, né leggja fótakefli fyrir blindan mann, heldur skalt þú óttast Guð þinn. Ég er Drottinn.

19:15b.LEV.019.015 Eigi skuluð þér ranglæti fremja í dómi. Þú skalt eigi draga taum lítilmagnans, né heldur vera hliðdrægur hinum volduga. Með réttvísi skalt þú dæma náunga þinn.

19:16b.LEV.019.016 Þú skalt eigi ganga um sem rógberi meðal fólks þíns og eigi krefjast blóðs náunga þíns. Ég er Drottinn.

19:17b.LEV.019.017 Þú skalt ekki hata bróður þinn í hjarta þínu. Einarðlega skalt þú ávíta náunga þinn, að þú eigi bakir þér synd hans vegna.

19:18b.LEV.019.018 Eigi skalt þú hefnisamur vera né langrækinn við samlanda þína, en þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ég er Drottinn.

19:19b.LEV.019.019 Þér skuluð varðveita setningar mínar. Þú skalt eigi láta tvær tegundir fénaðar þíns eiga samlag, þú skalt eigi sá akur þinn tvenns konar sæði og eigi skalt þú bera klæði, sem ofin eru af tvenns konar efni.

19:20b.LEV.019.020 Nú hefir einhver holdlegt samræði við konu, og sé hún ambátt manni föstnuð, en hvorki leysingi né frelsingi, þá liggur refsing við. Eigi skal lífláta þau, fyrir því að hún var eigi frelsingi.

19:21b.LEV.019.021 En hann skal færa Drottni sektarfórn sína að dyrum samfundatjaldsins, hrút í sektarfórn.

19:22b.LEV.019.022 Og presturinn skal friðþægja fyrir hann með sektarfórnarhrútnum frammi fyrir Drottni vegna syndar hans, sem hann hefir drýgt. Og honum mun fyrirgefin verða synd hans, sem hann hefir drýgt.

19:23b.LEV.019.023 Er þér komið inn í landið og gróðursetjið alls konar aldintré, þá skuluð þér telja aldinin á þeim sem yfirhúð þeirra. Þrjú ár skuluð þér halda þau fyrir óumskorin; eigi skal neyta þeirra.

19:24b.LEV.019.024 Fjórða árið skulu öll aldin þeirra vera helguð Drottni til lofgjörðar,

19:25b.LEV.019.025 en fimmta árið skuluð þér eta aldin þeirra, svo að þau veiti yður því meiri arð. Ég er Drottinn, Guð yðar.

19:26b.LEV.019.026 Þér skuluð ekkert með blóði eta. Þér skuluð eigi fara með spár né fjölkynngi.

19:27b.LEV.019.027 Þér skuluð eigi kringluskera höfuð yðar, né heldur skalt þú skerða skeggrönd þína.

19:28b.LEV.019.028 Og þér skuluð eigi skera skurði í hold yðar fyrir sakir dauðs manns, né heldur gjöra hörundsflúr á yður. Ég er Drottinn.

19:29b.LEV.019.029 Vanhelga eigi dóttur þína með því að halda henni til saurlifnaðar, að eigi drýgi landið hór og landið fyllist óhæfu.

19:30b.LEV.019.030 Þér skuluð halda hvíldardaga mína og bera lotningu fyrir helgidómi mínum. Ég er Drottinn.

19:31b.LEV.019.031 Leitið eigi til særingaranda né spásagnaranda, farið eigi til frétta við þá, svo að þér saurgist ekki af þeim. Ég er Drottinn, Guð yðar.

19:32b.LEV.019.032 Þú skalt standa upp fyrir hinum gráhærða og heiðra gamalmennið, og þú skalt óttast Guð þinn. Ég er Drottinn.

19:33b.LEV.019.033 Ef útlendur maður býr hjá þér í landi yðar, þá skuluð þér eigi sýna honum ójöfnuð.

19:34b.LEV.019.034 Útlendan mann, sem hjá yður býr, skuluð þér svo með fara sem innborinn mann meðal yðar, og þú skalt elska hann eins og sjálfan þig, því að þér voruð útlendingar í Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð yðar.

19:35b.LEV.019.035 Eigi skuluð þér ranglæti fremja í dómi, stiku, vigt og mæli.

19:36b.LEV.019.036 Þér skuluð hafa réttar vogir, rétta vogarsteina, rétta efu og rétta hín. Ég er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi.

19:37b.LEV.019.037 Og þér skuluð varðveita allar setningar mínar og öll lög mín og halda þau. Ég er Drottinn."

2

2:1b.LEV.002.001 Þegar einhver vill færa Drottni matfórn, þá skal fórn hans vera fínt mjöl, og skal hann hella yfir það olíu og leggja reykelsiskvoðu ofan á það.

2:2b.LEV.002.002 Og hann skal færa það sonum Arons, prestunum, en presturinn skal taka af því hnefafylli sína, af fína mjölinu og af olíunni, ásamt allri reykelsiskvoðunni, og brenna það á altarinu sem ilmhluta fórnarinnar, sem eldfórn þægilegs ilms fyrir Drottin.

2:3b.LEV.002.003 En það, sem af gengur matfórninni, fái Aron og synir hans sem háhelgan hluta af eldfórnum Drottins.

2:4b.LEV.002.004 Viljir þú færa matfórn af því, sem í ofni er bakað, þá séu það ósýrðar kökur af fínu mjöli olíublandaðar og ósýrð flatbrauð olíusmurð.

2:5b.LEV.002.005 En sé fórnargjöf þín matfórn á pönnu, þá skal hún vera ósýrt brauð af fínu mjöli olíublandað.

2:6b.LEV.002.006 Þú skalt brjóta það í mola og hella yfir það olíu; þá er það matfórn.

2:7b.LEV.002.007 En sé fórn þín matfórn tilreidd í suðupönnu, þá skal hún gjörð af fínu mjöli með olíu.

2:8b.LEV.002.008 Og þú skalt færa Drottni matfórnina, sem af þessu er tilreidd. Skal færa hana prestinum, og hann skal fram bera hana að altarinu.

2:9b.LEV.002.009 En presturinn skal af matfórninni taka ilmhlutann og brenna á altarinu til eldfórnar þægilegs ilms fyrir Drottin.

2:10b.LEV.002.010 En það, sem af gengur matfórninni, fái Aron og synir hans sem háhelgan hluta af eldfórnum Drottins.

2:11b.LEV.002.011 Engin matfórn, sem þér færið Drottni, skal gjörð af sýrðu deigi, því að ekkert súrdeig eða hunang megið þér brenna sem eldfórn Drottni til handa.

2:12b.LEV.002.012 Í frumgróðafórn megið þér færa það Drottni, en upp að altarinu má eigi bera það til þægilegs ilms.

2:13b.LEV.002.013 Allar matfórnir þínar skalt þú salti salta, og þú skalt eigi láta vanta í matfórnir þínar salt þess sáttmála, er Guð þinn hefir við þig gjört. Með öllum fórnum þínum skalt þú salt fram bera.

2:14b.LEV.002.014 Færir þú Drottni frumgróðamatfórn, þá skalt þú fram bera í matfórn af frumgróða þínum öx, bökuð við eld, mulin korn úr nýslegnum kornstöngum.

2:15b.LEV.002.015 Og þú skalt hella olíu yfir hana og leggja reykelsiskvoðu ofan á; þá er það matfórn.

2:16b.LEV.002.016 Og presturinn skal brenna ilmhluta hennar, nokkuð af hinu mulda korni og olíunni, ásamt allri reykelsiskvoðunni, til eldfórnar fyrir Drottin.

20

20:1b.LEV.020.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

20:2b.LEV.020.002 "Og þú skalt segja við Ísraelsmenn: Hver sá Ísraelsmanna, eða útlendra manna, er búa í Ísrael, sem færir Mólok nokkurt afkvæmi sitt, skal líflátinn verða. Landslýður skal lemja hann grjóti.

20:3b.LEV.020.003 Og ég vil snúa augliti mínu gegn þeim manni og uppræta hann úr þjóð sinni, fyrir þá sök að hann hefir fært Mólok afkvæmi sitt til þess að saurga helgidóm minn og vanhelga heilagt nafn mitt.

20:4b.LEV.020.004 En ef landslýður hylmir yfir með slíkum manni, er hann færir Mólok afkvæmi sitt, og líflætur hann ekki,

20:5b.LEV.020.005 þá vil ég snúa augliti mínu gegn slíkum manni og gegn ætt hans. Og ég mun uppræta hann og alla þá, er verða honum samsekir í því að taka fram hjá með Mólok, úr þjóð þeirra.

20:6b.LEV.020.006 Sá sem leitar til særingaranda og spásagnaranda til þess að taka fram hjá með þeim, gegn honum vil ég snúa augliti mínu og uppræta hann úr þjóð sinni.

20:7b.LEV.020.007 Helgist og verið heilagir, því að ég er Drottinn, Guð yðar.

20:8b.LEV.020.008 Fyrir því skuluð þér varðveita setningar mínar og halda þær. Ég er Drottinn, sá er yður helgar.

20:9b.LEV.020.009 Hver sá, sem bölvar föður sínum eða móður sinni, skal líflátinn verða. Föður sínum eða móður sinni hefir hann bölvað, blóðsök hvílir á honum.

20:10b.LEV.020.010 Þá er einhver drýgir hór með konu annars manns, drýgir hór með konu náunga síns, þá skal líflátinn verða bæði hórkarlinn og hórkonan.

20:11b.LEV.020.011 Og leggist maður með konu föður síns, þá hefir hann berað blygðan föður síns. Þau skulu bæði líflátin verða, blóðsök hvílir á þeim.

20:12b.LEV.020.012 Og leggist maður með tengdadóttur sinni, þá skulu þau bæði líflátin verða. Svívirðing hafa þau framið, blóðsök hvílir á þeim.

20:13b.LEV.020.013 Og leggist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja þeir báðir viðurstyggð. Þeir skulu líflátnir verða, blóðsök hvílir á þeim.

20:14b.LEV.020.014 Og taki maður bæði konu og móður hennar, þá er það óhæfa. Skal brenna hann í eldi ásamt þeim, svo að eigi gangist við óhæfa meðal yðar.

20:15b.LEV.020.015 Og eigi maður samlag við skepnu, þá skal hann líflátinn verða, og skepnuna skuluð þér drepa.

20:16b.LEV.020.016 Og ef kona kemur nærri einhverri skepnu til samræðis við hana, þá skalt þú deyða konuna og skepnuna. Þau skulu líflátin verða, blóðsök hvílir á þeim.

20:17b.LEV.020.017 Nú tekur einhver systur sína, dóttur föður síns eða dóttur móður sinnar, og sér blygðan hennar og hún sér blygðan hans, þá er það skömm. Þau skulu upprætt verða í augsýn samlanda sinna. Blygðan systur sinnar hefir hann berað og bakað sér sekt.

20:18b.LEV.020.018 Leggist maður með konu, sem hefir tíðir, og berar blygðan hennar - hefir beran gjört brunn hennar og hún hefir sjálf berað brunn blóðs síns -, þá skulu þau bæði upprætt verða úr þjóð sinni.

20:19b.LEV.020.019 Eigi skalt þú bera blygðan móðursystur þinnar eða föðursystur, því að sá maður hefir bert gjört náið skyldmenni sitt, þau hafa bakað sér sekt.

20:20b.LEV.020.020 Og ef einhver leggst með sifkonu sinni, þá hefir hann berað blygðan föðurbróður síns. Þau hafa bakað sér synd, barnlaus skulu þau deyja.

20:21b.LEV.020.021 Og ef einhver tekur konu bróður síns, þá er það saurgun. Blygðan bróður síns hefir hann berað, barnlaus skulu þau vera.

20:22b.LEV.020.022 Varðveitið því allar setningar mínar og öll lög mín og haldið þau, svo að landið, sem ég mun leiða yður inn í, til þess að þér byggið það, spúi yður ekki.

20:23b.LEV.020.023 Þér skuluð ekki breyta eftir setningum þeirrar þjóðar, sem ég rek burt undan yður, því að þeir frömdu allt þetta og þess vegna bauð mér við þeim.

20:24b.LEV.020.024 Fyrir því sagði ég yður: ,Þér skuluð eignast land þeirra, og ég vil gefa yður það til eignar, land sem flýtur í mjólk og hunangi.' Ég er Drottinn, Guð yðar, sem hefi skilið yður frá þjóðunum.

20:25b.LEV.020.025 Gjörið því grein hreinna ferfætlinga og óhreinna, og óhreinna fugla og hreinna, og gjörið yður eigi viðurstyggilega á skepnum, fuglum né neinu, sem hrærist á jörðinni, því sem ég hefi greint frá, til þess að það væri yður óhreint.

20:26b.LEV.020.026 Og þér skuluð vera heilagir fyrir mér, því að ég, Drottinn, er heilagur, og hefi skilið yður frá þjóðunum, til þess að þér skuluð vera mínir.

20:27b.LEV.020.027 Hafi maður eða kona særingaranda eða spásagnaranda, þá skulu þau líflátin verða. Skal lemja þau grjóti, blóðsök hvílir á þeim."

21

21:1b.LEV.021.001 Drottinn sagði við Móse: "Mæl þú til prestanna, sona Arons, og seg við þá: Prestur skal eigi saurga sig á líki meðal fólks síns,

21:2b.LEV.021.002 nema það sé skyldmenni hans, honum mjög náið: móðir hans, faðir hans, sonur hans, dóttir hans, bróðir hans

21:3b.LEV.021.003 eða systir hans, sem er mey og honum nákomin, og eigi er manni gefin, vegna hennar má hann saurga sig.

21:4b.LEV.021.004 Eigi skal hann saurga sig, þar eð hann er höfðingi meðal fólks síns, svo að hann vanhelgi sig.

21:5b.LEV.021.005 Eigi skulu þeir gjöra skalla á höfði sér, eigi raka skeggrönd sína, né heldur skera skurði í hold sitt.

21:6b.LEV.021.006 Þeir skulu vera heilagir fyrir Guði sínum og ekki vanhelga nafn Guðs síns, því að þeir bera fram eldfórnir Drottins, mat Guðs síns. Fyrir því skulu þeir vera heilagir.

21:7b.LEV.021.007 Eigi skulu þeir ganga að eiga skækju eða mey spjallaða, né heldur skulu þeir ganga að eiga konu, er maður hennar hefir rekið frá sér, því að prestur er heilagur fyrir Guði sínum.

21:8b.LEV.021.008 Fyrir því skalt þú halda hann heilagan, því að hann ber fram mat Guðs þíns. Hann skal vera þér heilagur, því að ég er heilagur, Drottinn, sá er yður helgar.

21:9b.LEV.021.009 Og ef prestsdóttir vanhelgar sig með saurlifnaði, þá vanhelgar hún föður sinn. Hana skal brenna í eldi.

21:10b.LEV.021.010 Sá sem er æðsti prestur meðal bræðra sinna, og smurningarolíu hefir verið hellt yfir höfuð honum og hönd hans fyllt, að hann klæðist hinum helgu klæðum, hann skal eigi láta hár sitt flaka og eigi rífa sundur klæði sín.

21:11b.LEV.021.011 Eigi skal hann koma nærri nokkru líki. Vegna föður síns og vegna móður sinnar skal hann eigi saurga sig.

21:12b.LEV.021.012 Og eigi skal hann ganga út úr helgidóminum, svo að hann vanhelgi ekki helgidóm Guðs síns, því að vígsla smurningarolíu Guðs hans er á honum. Ég er Drottinn.

21:13b.LEV.021.013 Hann skal ganga að eiga konu í meydómi hennar.

21:14b.LEV.021.014 Ekkju eða konu brott rekna eða mey spjallaða, skækju, eigi skal hann slíkum kvænast, heldur skal hann taka sér fyrir konu mey af þjóð sinni.

21:15b.LEV.021.015 Eigi skal hann vanhelga afkvæmi sitt meðal fólks síns, því að ég er Drottinn, sá er helgar hann."

21:16b.LEV.021.016 Drottinn talaði við Móse og sagði:

21:17b.LEV.021.017 "Mæl þú til Arons og seg: Hafi einhver niðja þinna, nú eða í komandi kynslóðum, lýti á sér, þá skal hann eigi ganga fram til þess að bera fram mat Guðs síns.

21:18b.LEV.021.018 Því að enginn sá, er lýti hefir á sér, skal ganga fram, sé hann blindur eða haltur eða örkumlaður í andliti eða hafi ofskapaðan útlim,

21:19b.LEV.021.019 eða sé hann fótbrotinn eða handleggsbrotinn,

21:20b.LEV.021.020 eða hafi hann herðakistil eða sé tærður eða hafi vagl á auga eða kláða eða útbrot eða eistnamar.

21:21b.LEV.021.021 Enginn af niðjum Arons prests, sem lýti hefir á sér, skal koma fram til þess að bera fram eldfórnir Drottins. Lýti er á honum; eigi skal hann koma fram til þess að bera fram mat Guðs síns.

21:22b.LEV.021.022 Mat Guðs síns, bæði af því, sem háheilagt er og heilagt, má hann eta.

21:23b.LEV.021.023 En þó skal hann hvorki ganga inn að fortjaldinu né koma nærri altarinu, því að lýti er á honum, að hann eigi vanhelgi helga dóma mína; því að ég er Drottinn, sá er helgar þá."

21:24b.LEV.021.024 Þannig talaði Móse við Aron og sonu hans og við alla Ísraelsmenn.

22

22:1b.LEV.022.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

22:2b.LEV.022.002 "Seg þú Aroni og sonum hans, að þeir skuli halda sér frá helgigjöfum Ísraelsmanna, þeim er þeir helga mér, svo að þeir vanhelgi eigi heilagt nafn mitt. Ég er Drottinn.

22:3b.LEV.022.003 Seg við þá: Hver sá af niðjum yðar, nú og í komandi kynslóðum, er kemur nærri helgigjöfum þeim, er Ísraelsmenn helga Drottni, meðan hann er óhreinn, skal upprættur verða frá augliti mínu. Ég er Drottinn.

22:4b.LEV.022.004 Eigi skal neinn sá af niðjum Arons, sem líkþrár er eða hefir rennsli, eta af helgigjöfunum, uns hann er hreinn. Og sá, er snertir einhvern þann, sem saurgaður er af líki, eða mann sem hefir sáðlát,

22:5b.LEV.022.005 eða sá, sem snert hefir eitthvert skriðkvikindi og saurgast af því, eða mann og saurgast af honum, hverrar tegundar sem óhreinleiki hans er, -

22:6b.LEV.022.006 sá er snert hefir slíkt, skal vera óhreinn til kvelds. Og eigi skal hann eta af helgigjöfunum nema hann laugi líkama sinn í vatni.

22:7b.LEV.022.007 En jafnskjótt og sól er setst, er hann hreinn, og síðan eti hann af helgigjöfunum, því að það er matur hans.

22:8b.LEV.022.008 Sjálfdauða skepnu eða dýrrifna skal hann eigi eta, svo að hann saurgist af. Ég er Drottinn.

22:9b.LEV.022.009 Þeir skulu því varðveita boðorð mín, svo að þeir baki sér eigi synd fyrir slíkt og deyi vegna þess, fyrir því að þeir vanhelguðu það. Ég er Drottinn, sá er helgar þá.

22:10b.LEV.022.010 Enginn sá, er eigi heyrir skylduliði prests, skal eta helgan dóm. Hvorki hjábýlingur prests né kaupamaður skal eta helgan dóm.

22:11b.LEV.022.011 En kaupi prestur þræl verði, þá skal hann eta af því, svo og sá er fæddur er í húsi hans. Þeir skulu eta af mat hans.

22:12b.LEV.022.012 Eigi skal prestsdóttir, sé hún leikmanni gefin, eta af hinum heilögu fórnargjöfum.

22:13b.LEV.022.013 En sé dóttir prests ekkja eða kona brott rekin og eigi ekki barna og sé horfin aftur í hús föður síns, eins og í æsku hennar, skal hún eta af mat föður síns. En enginn sá, er eigi heyrir skylduliði prests, skal eta af honum.

22:14b.LEV.022.014 Nú etur einhver af vangá helgan dóm, og skal hann þá færa presti hinn helga dóm og greiða fimmtung umfram.

22:15b.LEV.022.015 Þeir skulu eigi vanhelga helgigjafir Ísraelsmanna, það er þeir færa Drottni í lyftifórn,

22:16b.LEV.022.016 svo að þeir baki þeim eigi sekt með misgjörð sinni, er þeir eta helgigjafir þeirra, því að ég er Drottinn, sá er helgar þá."

22:17b.LEV.022.017 Drottinn talaði við Móse og sagði:

22:18b.LEV.022.018 "Mæl þú til Arons og sona hans og allra Ísraelsmanna og seg við þá: Þá er einhver af húsi Ísraels eða útlendum mönnum í Ísrael ber fram fórnargjöf sína, hvort sem það er einhver heitfórn þeirra eða sjálfviljafórn, sem þeir færa Drottni að brennifórn,

22:19b.LEV.022.019 þá skuluð þér bera hana svo fram, að hún afli yður velþóknunar: gallalausa, karlkyns, af nautum, sauðum eða geitum.

22:20b.LEV.022.020 Eigi skuluð þér bera fram neitt það, er lýti hefir á sér, því að það mun eigi afla yður velþóknunar.

22:21b.LEV.022.021 Nú vill einhver fórna Drottni heillafórn af nautum eða sauðfénaði, hvort heldur er til að efna heit sitt eða í sjálfviljafórn, þá skal það vera gallalaust, til þess að það afli honum velþóknunar. Ekkert lýti sé á því.

22:22b.LEV.022.022 Það sem blint er eða beinbrotið eða sært eða með kýlum eða kláða eða útbrotum, það skuluð þér eigi færa Drottni, og eigi skuluð þér bera Drottni eldfórn af því á altarið.

22:23b.LEV.022.023 En nautkind eða sauðkind, sem hefir lim ofskapaðan eða vanskapaðan, mátt þú fórna í sjálfviljafórn, en sem heitfórn mun hún eigi verða þóknanleg.

22:24b.LEV.022.024 Það sem vanað er með kramningu, marningu, sliti eða skurði, skuluð þér eigi færa Drottni, og þér skuluð eigi slíkt gjöra í landi yðar.

22:25b.LEV.022.025 Né heldur skuluð þér fá neitt af þessu hjá útlendum manni og bera það fram svo sem mat Guðs yðar, því að skemmd er á því. Lýti er á því, það mun eigi afla yður velþóknunar."

22:26b.LEV.022.026 Drottinn talaði við Móse og sagði:

22:27b.LEV.022.027 "Þá er kálfur, lamb eða kið fæðist, skal það ganga sjö daga undir móðurinni, en átta daga gamalt og þaðan af eldra mun það verða þóknanlega meðtekið sem eldfórnargjöf Drottni til handa.

22:28b.LEV.022.028 Þér skuluð eigi slátra kú eða á sama daginn og afkvæmi hennar.

22:29b.LEV.022.029 Er þér fórnið Drottni þakkarfórn, þá fórnið henni svo, að hún afli yður velþóknunar.

22:30b.LEV.022.030 Skal hún etin samdægurs, eigi skuluð þér leifa neinu af henni til morguns. Ég er Drottinn.

22:31b.LEV.022.031 Varðveitið því skipanir mínar og haldið þær. Ég er Drottinn.

22:32b.LEV.022.032 Og eigi skuluð þér vanhelga heilagt nafn mitt, svo að ég helgist meðal Ísraelsmanna. Ég er Drottinn, sá er yður helgar,

22:33b.LEV.022.033 sá er leiddi yður út af Egyptalandi til þess að vera Guð yðar. Ég er Drottinn."

23

23:1b.LEV.023.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

23:2b.LEV.023.002 "Mæl þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Löghátíðir Drottins, er þér skuluð boða sem helgar samkomur - þessar eru löghátíðir mínar.

23:3b.LEV.023.003 Sex daga skal verk vinna, en sjöunda daginn skal vera helgihvíld, helg samkoma. Þér skuluð ekkert verk vinna. Það er hvíldardagur Drottins í öllum bústöðum yðar.

23:4b.LEV.023.004 Þessar eru löghátíðir Drottins, helgar samkomur, er þér skuluð boða, hverja á sínum tíma.

23:5b.LEV.023.005 Í fyrsta mánuðinum, hinn fjórtánda dag mánaðarins um sólsetur, hefjast páskar Drottins.

23:6b.LEV.023.006 Og fimmtánda dag hins sama mánaðar skal halda Drottni hátíð hinna ósýrðu brauða. Sjö daga skuluð þér eta ósýrt brauð.

23:7b.LEV.023.007 Fyrsta daginn skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.

23:8b.LEV.023.008 Og þér skuluð færa Drottni eldfórn sjö daga. Sjöunda daginn er helg samkoma. Eigi skuluð þér þá fást við neina stritvinnu."

23:9b.LEV.023.009 Drottinn talaði við Móse og sagði:

23:10b.LEV.023.010 "Mæl þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þá er þér komið í land það, sem ég mun gefa yður, og þér skerið þar upp korn, skuluð þér færa presti fyrsta kornbundinið af uppskeru yðar.

23:11b.LEV.023.011 Og hann skal veifa kornbundininu frammi fyrir Drottni, svo að það afli yður velþóknunar, daginn eftir hvíldardaginn skal presturinn veifa því.

23:12b.LEV.023.012 Þann dag, er þér veifið bundininu, skuluð þér fórna veturgamalli sauðkind gallalausri í brennifórn Drottni til handa.

23:13b.LEV.023.013 Og matfórnin með henni skal vera tveir tíundupartar úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, eldfórn þægilegs ilms fyrir Drottin, og dreypifórnin fjórðungur úr hín af víni.

23:14b.LEV.023.014 Eigi skuluð þér eta brauð, bakað korn eða korn úr nýslegnum kornstöngum allt til þess dags, allt til þess er þér hafið fært fórnargjöf Guði yðar. Það skal vera yður ævarandi lögmál frá kyni til kyns í öllum bústöðum yðar.

23:15b.LEV.023.015 Þér skuluð telja frá næsta degi eftir hvíldardaginn, frá þeim degi, er þér færið bundinið í veififórn. Sjö vikur fullar skulu það vera.

23:16b.LEV.023.016 Til næsta dags eftir sjöunda hvíldardaginn skuluð þér telja fimmtíu daga. Þá skuluð þér færa Drottni nýja matfórn.

23:17b.LEV.023.017 Frá bústöðum yðar skuluð þér færa tvö brauð til veififórnar. Skulu þau vera gjörð af tveim tíundupörtum úr efu af fínu mjöli. Þau skulu vera bökuð með súrdeigi - frumgróðafórn Drottni til handa.

23:18b.LEV.023.018 Og ásamt brauðinu skuluð þér fram bera sjö sauðkindur veturgamlar gallalausar, eitt ungneyti og tvo hrúta. Þau skulu vera brennifórn Drottni til handa ásamt matfórn og dreypifórnum þeim, er til þeirra heyra, eldfórn þægilegs ilms Drottni til handa.

23:19b.LEV.023.019 Og þér skuluð fórna einum geithafri í syndafórn og tveim sauðkindum veturgömlum í heillafórn.

23:20b.LEV.023.020 Og presturinn skal veifa þeim með frumgróðabrauðinu að veififórn frammi fyrir Drottni ásamt sauðkindunum tveimur. Skal það vera Drottni helgað handa prestinum.

23:21b.LEV.023.021 Þennan sama dag skuluð þér láta boð út ganga, þér skuluð halda helga samkomu. Þér skuluð eigi vinna neina stritvinnu. Það er ævarandi lögmál fyrir yður í öllum bústöðum yðar frá kyni til kyns.

23:22b.LEV.023.022 Er þér skerið upp jarðargróður yðar, þá skalt þú eigi skera akur þinn út í hvert horn, né heldur skalt þú tína eftirtíning uppskeru þinnar. Þú skalt skilja það eftir handa fátækum og útlendingum. Ég er Drottinn, Guð yðar."

23:23b.LEV.023.023 Drottinn talaði við Móse og sagði:

23:24b.LEV.023.024 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Í sjöunda mánuðinum, hinn fyrsta dag mánaðarins, skuluð þér halda helgihvíld, minningardag með básúnublæstri, helga samkomu.

23:25b.LEV.023.025 Þér skuluð eigi vinna neina stritvinnu, og þér skuluð færa Drottni eldfórn."

23:26b.LEV.023.026 Drottinn talaði við Móse og sagði:

23:27b.LEV.023.027 "Tíunda dag þessa hins sjöunda mánaðar er friðþægingardagurinn. Skuluð þér þá halda helga samkomu og fasta og færa Drottni eldfórn.

23:28b.LEV.023.028 Þennan sama dag skuluð þér ekkert verk vinna, því að hann er friðþægingardagur, til þess að friðþægja fyrir yður frammi fyrir Drottni Guði yðar.

23:29b.LEV.023.029 Því að hver sá, er eigi fastar þennan dag, skal upprættur verða úr þjóð sinni.

23:30b.LEV.023.030 Og hvern þann, er eitthvert verk vinnur þennan dag, hann vil ég afmá úr þjóð hans.

23:31b.LEV.023.031 Þér skuluð ekkert verk vinna. Það er ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns í öllum bústöðum yðar.

23:32b.LEV.023.032 Það skal vera yður helgihvíld og þér skuluð fasta. Hinn níunda dag mánaðarins að kveldi, frá aftni til aftans, skuluð þér halda hvíldardag yðar."

23:33b.LEV.023.033 Drottinn talaði við Móse og sagði:

23:34b.LEV.023.034 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Á fimmtánda degi þessa hins sjöunda mánaðar skal halda Drottni laufskálahátíð sjö daga.

23:35b.LEV.023.035 Fyrsta daginn skal vera helg samkoma, þá skuluð þér eigi vinna neina stritvinnu.

23:36b.LEV.023.036 Sjö daga skuluð þér færa Drottni eldfórn. Áttunda daginn skuluð þér halda helga samkomu og færa Drottni eldfórn. Það er hátíðafundur, þá skuluð þér eigi vinna neina stritvinnu.

23:37b.LEV.023.037 Þetta eru löghátíðir Drottins, er þér skuluð boða sem helgar samkomur til þess að færa Drottni eldfórn, brennifórn og matfórn, sláturfórn og dreypifórnir, hverja fórn á sínum degi,

23:38b.LEV.023.038 auk hvíldardaga Drottins og auk gjafa yðar og auk allra heitfórna yðar og auk allra sjálfviljafórna yðar, er þér færið Drottni.

23:39b.LEV.023.039 Á fimmtánda degi hins sjöunda mánaðar, er þér hafið hirt gróður landsins, skuluð þér halda hátíð Drottins sjö daga. Fyrsta daginn skal vera helgihvíld og áttunda daginn skal vera helgihvíld.

23:40b.LEV.023.040 Og fyrsta daginn skuluð þér taka yður aldin af fögrum trjám, pálmviðargreinar og lim af þéttlaufguðum trjám og lækjarpíl, og þér skuluð fagna frammi fyrir Drottni, Guði yðar, í sjö daga.

23:41b.LEV.023.041 Og þér skuluð halda hana helga sem hátíð Drottins sjö daga á ári. Það er ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns: Í sjöunda mánuðinum skuluð þér halda hana.

23:42b.LEV.023.042 Skuluð þér búa í laufskálum sjö daga. Allir innbornir menn í Ísrael skulu þá búa í laufskálum,

23:43b.LEV.023.043 svo að niðjar yðar viti, að ég lét Ísraelsmenn búa í laufskálum, þá er ég leiddi þá út af Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð yðar."

23:44b.LEV.023.044 Og Móse sagði Ísraelsmönnum löghátíðir Drottins.

24

24:1b.LEV.024.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

24:2b.LEV.024.002 "Bjóð þú Ísraelsmönnum að færa þér tæra olíu af steyttum olífuberjum til ljósastikunnar, svo að lampar verði ávallt settir upp.

24:3b.LEV.024.003 Fyrir utan fortjald sáttmálsins í samfundatjaldinu skal Aron tilreiða þá frá kveldi til morguns frammi fyrir Drottni stöðuglega. Það er ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns.

24:4b.LEV.024.004 Hann skal raða lömpunum á gull-ljósastikuna frammi fyrir Drottni stöðuglega.

24:5b.LEV.024.005 Þú skalt taka fínt mjöl og baka úr því tólf kökur. Skulu vera tveir tíundupartar úr efu í hverri köku.

24:6b.LEV.024.006 Og þú skalt leggja þær í tvær raðir, sex í hvora röð, á gullborðið frammi fyrir Drottni.

24:7b.LEV.024.007 Og þú skalt láta hjá hvorri röð hreina reykelsiskvoðu, og skal hún vera sem ilmhluti af brauðinu, eldfórn Drottni til handa.

24:8b.LEV.024.008 Á hverjum hvíldardegi skal hann raða þessu frammi fyrir Drottni stöðuglega. Er það ævinlegur sáttmáli af hálfu Ísraelsmanna.

24:9b.LEV.024.009 Skal Aron og synir hans fá það og eta það á helgum stað, því að það heyrir honum sem háhelgur hluti af eldfórnum Drottins eftir ævinlegu lögmáli."

24:10b.LEV.024.010 Sonur ísraelskrar konu gekk út meðal Ísraelsmanna, en faðir hans var egypskur. Lenti þá sonur ísraelsku konunnar í deilu við ísraelskan mann í herbúðunum.

24:11b.LEV.024.011 Og sonur ísraelsku konunnar lastmælti nafninu og formælti. Þeir leiddu hann fyrir Móse. En móðir hans hét Selómít Díbrísdóttir, af ættkvísl Dans.

24:12b.LEV.024.012 Og þeir settu hann í varðhald, til þess að þeim kæmi úrskurður fyrir munn Drottins.

24:13b.LEV.024.013 Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

24:14b.LEV.024.014 "Leið þú lastmælandann út fyrir herbúðirnar, og allir þeir, er heyrt hafa, skulu leggja hendur sínar á höfuð honum, og því næst skal allur söfnuðurinn grýta hann.

24:15b.LEV.024.015 Og þú skalt tala við Ísraelsmenn og segja: ,Hver sá, er formælir Guði sínum, bakar sér synd.

24:16b.LEV.024.016 Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.

24:17b.LEV.024.017 Og ljósti einhver mann til bana, skal hann líflátinn verða.

24:18b.LEV.024.018 Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, líf fyrir líf.

24:19b.LEV.024.019 Og veiti maður náunga sínum áverka, þá skal honum gjört hið sama, sem hann hefir gjört:

24:20b.LEV.024.020 Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hinn sami áverki, er hann hefir veitt öðrum, skal honum veittur.

24:21b.LEV.024.021 Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, en sá, er lýstur mann til bana, skal líflátinn.

24:22b.LEV.024.022 Þér skuluð hafa ein lög, hvort heldur útlendur maður eða innborinn á í hlut, því að ég er Drottinn, Guð yðar.'"

24:23b.LEV.024.023 Og Móse talaði við Ísraelsmenn, og þeir leiddu lastmælandann út fyrir herbúðirnar og lömdu hann grjóti. Og Ísraelsmenn gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

25

25:1b.LEV.025.001 Drottinn talaði við Móse á Sínaífjalli og sagði:

25:2b.LEV.025.002 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þegar þér komið í land það, sem ég mun gefa yður, þá skal landið halda Drottni hvíld.

25:3b.LEV.025.003 Sex ár skalt þú sá akur þinn og sex ár skalt nú sniðla víngarð þinn og safna gróðrinum.

25:4b.LEV.025.004 En sjöunda árið skal vera helgihvíld fyrir landið, hvíldartími Drottni til handa. Akur þinn skalt þú ekki sá og víngarð þinn skalt þú ekki sniðla.

25:5b.LEV.025.005 Korn það, er vex sjálfsáið eftir uppskeru þína, skalt þú eigi skera, og vínber óskorins vínviðar þíns skalt þú eigi lesa. Það skal vera hvíldarár fyrir landið.

25:6b.LEV.025.006 Gróður landsins um hvíldartímann skal vera yður til fæðu, þér, þræli þínum og ambátt, kaupamanni þínum og útlendum búanda, er hjá þér dvelja.

25:7b.LEV.025.007 Og fénaði þínum og villidýrunum, sem í landi þínu eru, skal allur gróður þess vera til fæðu.

25:8b.LEV.025.008 Þú skalt telja sjö hvíldarár, sjö ár sjö sinnum, svo að tími þeirra sjö hvíldarára verði fjörutíu og níu ár.

25:9b.LEV.025.009 Og þá skaltu í sjöunda mánuðinum, tíunda dag mánaðarins, láta hvellilúðurinn gjalla. Friðþægingardaginn skuluð þér láta lúðurinn gjalla um gjörvallt land yðar,

25:10b.LEV.025.010 og helga þannig hið fimmtugasta árið og boða frelsi í landinu fyrir alla íbúa þess. Það skal vera yður fagnaðarár. Þá skuluð þér hverfa aftur hver og einn til óðals síns, og þá skuluð þér hverfa aftur hver og einn til ættar sinnar.

25:11b.LEV.025.011 Fagnaðarár skal fimmtugasta árið vera yður. Þér skuluð eigi sá og eigi uppskera það, sem vex sjálfsáið það ár, né heldur skuluð þér þá lesa vínber af óskornum vínviðum.

25:12b.LEV.025.012 Því að það er fagnaðarár. Það sé yður heilagt. Skuluð þér eta af jörðinni það er á henni sprettur.

25:13b.LEV.025.013 Á þessu fagnaðarári skuluð þér hverfa aftur hver og einn til óðals síns.

25:14b.LEV.025.014 Þá er þú selur náunga þínum eitthvað eða þú kaupir eitthvað af náunga þínum, þá skuluð þér eigi sýna hver öðrum ójöfnuð.

25:15b.LEV.025.015 Eftir því, hve mörg ár eru liðin frá fagnaðarári, skalt þú kaupa af náunga þínum, eftir því, hve uppskeruárin eru mörg, skal hann selja þér.

25:16b.LEV.025.016 Því fleiri sem árin eru, því hærra skalt þú setja verðið, og því færri sem árin eru, því lægra skalt þú setja það, því að það er uppskerufjöldinn, sem hann selur þér.

25:17b.LEV.025.017 Og þér skuluð eigi sýna hver öðrum ójöfnuð, heldur skalt þú óttast Guð þinn, því að ég er Drottinn, Guð yðar.

25:18b.LEV.025.018 Fyrir því skuluð þér halda setningar mínar og varðveita lög mín og halda þau, svo að þér megið óhultir búa í landinu.

25:19b.LEV.025.019 Þá mun landið gefa gróður sinn og þér eta yður sadda og búa óhultir í því.

25:20b.LEV.025.020 Og ef þér segið: ,Hvað skulum vér eta sjöunda árið, þá er vér sáum eigi og hirðum eigi gróður vorn?'

25:21b.LEV.025.021 þá vil ég senda yður blessun mína sjötta árið, og mun það leiða fram gróður til þriggja ára.

25:22b.LEV.025.022 Og áttunda árið skuluð þér sá og eta af ávextinum, gamla forðanum. Til hins níunda árs, til þess er gróður þess fæst, skuluð þér eta gamla forðann.

25:23b.LEV.025.023 Landið skal eigi selt fyrir fullt og allt, því að landið er mín eign, því að þér eruð dvalarmenn og hjábýlingar hjá mér.

25:24b.LEV.025.024 Fyrir því skuluð þér í öllu eignarlandi yðar láta land falt til lausnar.

25:25b.LEV.025.025 Ef bróðir þinn gjörist snauður og hann selur nokkuð af óðali sínu, þá skal lausnarmaður hans koma til, sá er það stendur næst, og leysa það, er bróðir hans hefir selt.

25:26b.LEV.025.026 Nú hefir einhver engan lausnarmann, en er kominn svo í efni, að hann á fyrir lausnargjaldinu.

25:27b.LEV.025.027 Þá skal hann telja árin frá því, er hann seldi, en það, sem yfir hefir, skal hann endurgreiða manni þeim, er hann seldi, og hverfur hann þá aftur til óðals síns.

25:28b.LEV.025.028 En hafi hann ekki efni til að leysa, þá skal það, er hann hefir selt, vera í höndum kaupanda til fagnaðarárs. En á fagnaðarárinu gengur það úr eigu hans, og hverfur hann þá aftur til óðals síns.

25:29b.LEV.025.029 Nú selur einhver íbúðarhús í múrgirtri borg, og skal honum heimilt að leysa það í heilt ár frá því, er hann seldi. Lausnarréttur hans skal vera tímabundinn.

25:30b.LEV.025.030 En sé það ekki leyst áður en fullt ár er liðið, þá skal hús í múrgirtri borg verða full eign kaupanda og niðja hans. Það skal eigi ganga úr eigu hans fagnaðarárið.

25:31b.LEV.025.031 En hús í þorpum, sem eigi eru múrgirt allt í kring, skulu talin með landi sveitarinnar. Þau skal jafnan heimilt að leysa, og þau skulu ganga úr eigu kaupanda á fagnaðarárinu.

25:32b.LEV.025.032 Borgir levítanna, húsin í eignarborgum þeirra, skal levítunum heimilt að leysa á hverjum tíma sem er.

25:33b.LEV.025.033 Og ef einhver af levítunum leysir eigi, þá skal selt hús ganga úr eigu kaupanda á fagnaðarárinu, sé það í eignarborg hans, því að húsin í borgum levítanna eru óðalseign þeirra meðal Ísraelsmanna.

25:34b.LEV.025.034 En landið, er liggur undir borgir þeirra, skal eigi selja, því að það er ævinleg eign þeirra.

25:35b.LEV.025.035 Ef bróðir þinn kemst í fátækt og verður ósjálfbjarga hjá þér, þá skalt þú styðja hann sem dvalarmann og hjábýling, svo að hann geti lifað hjá þér.

25:36b.LEV.025.036 Þú skalt eigi taka fjárleigu af honum né aukagjald, heldur skalt þú óttast Guð þinn, svo að bróðir þinn geti lifað hjá þér.

25:37b.LEV.025.037 Þú skalt eigi ljá honum silfur þitt gegn leigu, né heldur hjálpa honum um matvæli þín gegn aukagjaldi.

25:38b.LEV.025.038 Ég er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi til þess að gefa yður Kanaanland og vera Guð yðar.

25:39b.LEV.025.039 Komist bróðir þinn í fátækt hjá þér og selur sig þér, þá skalt þú ekki láta hann vinna þrælavinnu.

25:40b.LEV.025.040 Sem kaupamaður, sem hjábýlingur skal hann hjá þér vera. Hann skal vinna hjá þér til fagnaðarárs.

25:41b.LEV.025.041 En þá skal hann fara frá þér, og börn hans með honum, og hverfa aftur til ættar sinnar, og hann skal hverfa aftur til óðals feðra sinna.

25:42b.LEV.025.042 Því að þeir eru þjónar mínir, sem ég hefi leitt út af Egyptalandi. Eigi skulu þeir seldir mansali.

25:43b.LEV.025.043 Þú skalt eigi drottna yfir honum með hörku, heldur skalt þú óttast Guð þinn.

25:44b.LEV.025.044 Viljir þú fá þér þræla og ambáttir, þá skuluð þér kaupa þræla og ambáttir af þjóðunum, sem umhverfis yður búa.

25:45b.LEV.025.045 Svo og af börnum hjábýlinga, er hjá yður dvelja, af þeim skuluð þér kaupa og af ættliði þeirra, sem hjá yður er og þeir hafa getið í landi yðar, og þau skulu verða eign yðar.

25:46b.LEV.025.046 Og þér skuluð láta þá ganga í arf til barna yðar eftir yður, svo að þau verði eign þeirra. Þér skuluð hafa þau að ævinlegum þrælum. En yfir bræðrum yðar, Ísraelsmönnum, skuluð þér eigi drottna með hörku, einn yfir öðrum.

25:47b.LEV.025.047 Komist dvalarmaður eða hjábýlingur í efni hjá þér, en bróðir þinn kemst í fátækt hjá honum og selur sig dvalarmanni eða hjábýlingi hjá þér eða afkomanda dvalarmanns ættar,

25:48b.LEV.025.048 þá skal heimilt að leysa hann eftir að hann hefir selt sig. Heimilt skal einhverjum af bræðrum hans að leysa hann,

25:49b.LEV.025.049 eða föðurbróður hans eða bræðrungi hans eða einhverjum náfrænda í ætt hans, eða komist hann sjálfur í efni, þá er honum heimilt að leysa sig.

25:50b.LEV.025.050 Og við þann, sem keypti hann, skal hann reikna frá árinu, er hann seldi sig honum, til fagnaðarársins, og söluverðið skal fara eftir árafjöldanum. Skal hann vera hjá honum ákveðinn tíma, svo sem kaupamaður væri.

25:51b.LEV.025.051 Ef enn eru mörg ár eftir, þá skal hann að tiltölu við árafjöldann endurgreiða lausnargjald sitt af fé því, er hann var keyptur fyrir,

25:52b.LEV.025.052 en ef fá ár eru eftir til fagnaðarárs, þá skal hann og reikna honum þau. Eftir áratölunni skal hann endurgreiða lausnargjald sitt.

25:53b.LEV.025.053 Skal hann sæta sömu kjörum hjá honum eins og sá, sem er kaupamaður ár eftir ár. Hann skal eigi drottna yfir honum með hörku að þér ásjáandi.

25:54b.LEV.025.054 En sé hann ekki leystur með þessum hætti, þá skal hann ganga úr eigu kaupanda fagnaðarárið, hann og börn hans með honum.

25:55b.LEV.025.055 Því að Ísraelsmenn eru þjónar mínir, mínir þjónar eru þeir, sem ég hefi leitt út af Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð yðar.

26

26:1b.LEV.026.001 Þér skuluð eigi gjöra yður falsguði, né heldur reisa yður skurðgoð eða merkissteina, og eigi setja upp myndasteina í landi yðar til þess að tilbiðja hjá þeim, því að ég er Drottinn, Guð yðar.

26:2b.LEV.026.002 Mína hvíldardaga skuluð þér halda og fyrir mínum helgidómi lotningu bera. Ég er Drottinn.

26:3b.LEV.026.003 Ef þér breytið eftir mínum setningum og varðveitið mínar skipanir og haldið þær,

26:4b.LEV.026.004 þá skal ég jafnan senda yður regn á réttum tíma, og landið mun gefa ávöxt sinn og trén á mörkinni bera aldin sín.

26:5b.LEV.026.005 Skal þá ná saman hjá yður þresking og vínberjatekja, og vínberjatekja og sáning, og þér skuluð eta yður sadda af brauði og búa öruggir í landi yðar.

26:6b.LEV.026.006 Ég vil gefa frið í landinu, og þér skuluð leggjast til hvíldar og enginn skal hræða yður. Óargadýrum vil ég eyða úr landinu, og sverð skal ekki fara um land yðar.

26:7b.LEV.026.007 Og þér skuluð elta óvini yðar, og frammi fyrir yður skulu þeir fyrir sverði hníga.

26:8b.LEV.026.008 Og fimm af yður skulu elta hundrað, og hundrað af yður skulu elta tíu þúsundir, og óvinir yðar skulu frammi fyrir yður fyrir sverði hníga.

26:9b.LEV.026.009 Ég vil snúa mér til yðar og gjöra yður frjósama og margfalda yður, og ég vil gjöra sáttmála minn við yður.

26:10b.LEV.026.010 Og þér munuð eta fyrnt korn, gamlan forða, og þér munuð bera fyrnda kornið út fyrir hinu nýja.

26:11b.LEV.026.011 Og ég mun reisa búð mína meðal yðar, og sál mín skal ekki hafa óbeit á yður.

26:12b.LEV.026.012 Og ég mun ganga meðal yðar og vera Guð yðar, og þér skuluð vera mín þjóð.

26:13b.LEV.026.013 Ég er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi, til þess að þér væruð eigi þrælar þeirra. Ég braut sundur ok-stengur yðar og lét yður ganga beina.

26:14b.LEV.026.014 En ef þér hlýðið mér ekki og haldið ekki allar þessar skipanir,

26:15b.LEV.026.015 og ef þér hafnið setningum mínum og sál yðar hefir óbeit á dómum mínum, svo að þér haldið ekki allar skipanir mínar, en rjúfið sáttmála minn,

26:16b.LEV.026.016 þá vil ég gjöra yður þetta: Ég vil vitja yðar með skelfingu, tæringu og köldu, svo að augun slokkna og lífið fjarar út. Og þér skuluð sá sæði yðar til einskis, því að óvinir yðar skulu eta það.

26:17b.LEV.026.017 Og ég vil snúa augliti mínu gegn yður, og þér skuluð bíða ósigur fyrir óvinum yðar, og fjandmenn yðar skulu drottna yfir yður, og þér skuluð flýja, þótt enginn elti yður.

26:18b.LEV.026.018 En ef þér viljið þá enn ekki hlýða mér, þá vil ég enn refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.

26:19b.LEV.026.019 Og ég vil brjóta ofurdramb yðar, og ég vil gjöra himininn yfir yður sem járn og land yðar sem eir.

26:20b.LEV.026.020 Þá mun kraftur yðar eyðast til ónýtis, land yðar skal eigi gefa ávöxt sinn og trén á jörðinni eigi bera aldin sín.

26:21b.LEV.026.021 Og ef þér gangið í gegn mér og viljið ekki hlýða mér, þá vil ég enn slá yður sjö sinnum, eins og syndir yðar eru til.

26:22b.LEV.026.022 Og ég vil hleypa dýrum merkurinnar inn á meðal yðar, og þau skulu gjöra yður barnlausa, drepa fénað yðar og gjöra yður fámenna, og vegir yðar skulu verða auðir.

26:23b.LEV.026.023 Og ef þér skipist ekki við þessa tyftun mína, heldur gangið í gegn mér,

26:24b.LEV.026.024 þá vil ég einnig ganga gegn yður, þá vil ég einnig slá yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.

26:25b.LEV.026.025 Og ég vil láta sverð koma yfir yður, er hefna skal sáttmálans. Munuð þér þá þyrpast inn í borgir yðar, en ég vil senda drepsótt meðal yðar, og þér skuluð seldir í óvina hendur.

26:26b.LEV.026.026 Þá er ég brýt staf brauðsins fyrir yður, munu tíu konur baka yður brauð í einum ofni og færa yður brauðið aftur eftir vigt, og þér munuð eta og ekki verða mettir.

26:27b.LEV.026.027 Og ef þér hlýðið mér eigi þrátt fyrir þetta og gangið í gegn mér,

26:28b.LEV.026.028 þá vil ég einnig ganga í gegn yður með þungri reiði og refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.

26:29b.LEV.026.029 Og þér skuluð eta hold sona yðar, og hold dætra yðar skuluð þér eta.

26:30b.LEV.026.030 Og ég vil leggja fórnarhæðir yðar í eyði og kollvarpa sólsúlum yðar og kasta hræjum yðar ofan á búkana af skurðgoðum yðar, og sálu minni mun bjóða við yður.

26:31b.LEV.026.031 Og ég vil leggja borgir yðar í rústir og eyða helgidóma yðar og ekki kenna þægilegan ilm af fórnum yðar.

26:32b.LEV.026.032 Og ég vil eyða landið, svo að óvinum yðar, sem í því búa, skal ofbjóða.

26:33b.LEV.026.033 En yður vil ég tvístra meðal þjóðanna og bregða sverði á eftir yður, og land yðar skal verða auðn og borgir yðar rústir.

26:34b.LEV.026.034 Þá skal landið fá hvíldarár sín bætt upp alla þá stund, sem það er í eyði og þér eruð í landi óvina yðar. Þá skal landið hvílast og bæta upp hvíldarár sín.

26:35b.LEV.026.035 Alla þá stund, sem það er í eyði, skal það njóta hvíldar, þeirrar hvíldar, sem það eigi naut á hvíldarárum yðar, er þér bjugguð í því.

26:36b.LEV.026.036 Og þá af yður, sem eftir verða, vil ég gjöra svo huglausa í löndum óvina þeirra, að þyturinn af fjúkandi laufblaði skal reka þá á flótta og þeir flýja eins og menn flýja undan sverði, og þeir skulu falla, þó að enginn elti.

26:37b.LEV.026.037 Og þeir skulu hrasa hver um annan, eins og flýja skyldi undan sverði, þó að enginn elti, og þér skuluð eigi fá staðist fyrir óvinum yðar.

26:38b.LEV.026.038 Og þér skuluð farast meðal þjóðanna, og land óvina yðar skal upp eta yður.

26:39b.LEV.026.039 Og þeir af yður, sem eftir verða, skulu fyrir sakir misgjörðar sinnar veslast upp í löndum óvina yðar, og þeir skulu veslast upp sakir misgjörða feðra sinna eins og þeir.

26:40b.LEV.026.040 Þá munu þeir játa misgjörð sína og misgjörð feðra sinna, er þeir frömdu með því að rjúfa tryggðir við mig, og hversu þeir hafa gengið í gegn mér -

26:41b.LEV.026.041 fyrir því gekk ég og í gegn þeim og flutti þá í land óvina þeirra -, já, þá mun óumskorið hjarta þeirra auðmýkja sig og þeir fá misgjörð sína bætta upp.

26:42b.LEV.026.042 Og þá vil ég minnast sáttmála míns við Jakob, og sáttmála míns við Ísak og sáttmála míns við Abraham vil ég einnig minnast, og landsins vil ég minnast.

26:43b.LEV.026.043 Og landið skal verða yfirgefið af þeim og fá hvíldarár sín bætt upp, meðan það er í eyði og þeir eru á brottu, og þeir skulu fá misgjörð sína bætta upp fyrir þá sök og vegna þess, að þeir höfnuðu lögum mínum og sál þeirra hafði óbeit á setningum mínum.

26:44b.LEV.026.044 En jafnvel þá, er þeir eru í landi óvina sinna, hafna ég þeim ekki og býður mér ekki við þeim, svo að ég vilji aleyða þeim og rjúfa þannig sáttmála minn við þá, því að ég er Drottinn, Guð þeirra.

26:45b.LEV.026.045 Og sökum þeirra vil ég minnast sáttmálans við forfeður þeirra, er ég leiddi út af Egyptalandi í augsýn þjóðanna til þess að vera Guð þeirra. Ég er Drottinn."

26:46b.LEV.026.046 Þetta eru setningar þær, ákvæði og lög, sem Drottinn setti milli sín og Ísraelsmanna á Sínaífjalli fyrir Móse.

27

27:1b.LEV.027.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

27:2b.LEV.027.002 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Ef maður gjörir heit og heitir Drottni mönnum eftir mati þínu,

27:3b.LEV.027.003 þá skalt þú meta karlmann frá tvítugsaldri til sextugs á fimmtíu sikla silfurs eftir helgidóms sikli.

27:4b.LEV.027.004 Sé það kona, þá skalt þú meta hana á þrjátíu sikla.

27:5b.LEV.027.005 Sé það frá fimm til tuttugu ára að aldri, þá skalt þú meta pilt á tuttugu sikla, en stúlku á tíu sikla.

27:6b.LEV.027.006 Sé það frá eins mánaðar til fimm ára að aldri, þá skalt þú meta svein á fimm sikla silfurs, en mey skalt þú meta á þrjá sikla silfurs.

27:7b.LEV.027.007 Sé það sextugt og þaðan af eldra, þá skalt þú, sé það karlmaður, meta hann á fimmtán sikla, en kvenmann á tíu sikla.

27:8b.LEV.027.008 En eigi hann ekki fyrir því, er þú metur, þá skal leiða hann fyrir prest, og prestur skal meta hann. Eftir efnahag þess, er heitið gjörir, skal prestur meta hann.

27:9b.LEV.027.009 Færi menn Drottni fórnargjöf af fénaði, þá skal allt það af honum heilagt vera, sem Drottni er gefið.

27:10b.LEV.027.010 Eigi má hafa kaup á því eða skipta því, vænu fyrir rýrt eða rýru fyrir vænt. Nú eru skipti höfð á skepnum og skulu þær vera heilagar, bæði sú, er látin er í skiptin, og sú, er fyrir kemur.

27:11b.LEV.027.011 En sé það einhver óhreinn fénaður, er eigi má færa Drottni að fórnargjöf, þá skal leiða skepnuna fyrir prest.

27:12b.LEV.027.012 Og prestur skal meta hana, eftir því sem hún er væn eða rýr til, og skal mat þitt, prestur, standa.

27:13b.LEV.027.013 En vilji hann leysa hana, skal hann gjalda fimmtungi meira en þú metur.

27:14b.LEV.027.014 Nú helgar maður Drottni hús sitt að helgigjöf, og skal þá prestur virða það eftir því sem það er gott eða lélegt til. Skal standa við það, sem prestur metur.

27:15b.LEV.027.015 En vilji sá, er hús sitt hefir helgað, leysa það, skal hann gjalda fimmtung umfram virðingarverð þitt, og er það þá hans.

27:16b.LEV.027.016 Helgi maður Drottni nokkuð af óðalslandi sínu, þá skal mat þitt fara eftir útsæðinu: kómer útsæðis af byggi á fimmtíu sikla silfurs.

27:17b.LEV.027.017 Helgi hann land sitt frá fagnaðarári, þá skal standa við mat þitt.

27:18b.LEV.027.018 En helgi hann land sitt eftir fagnaðarár, þá skal prestur reikna honum verðið eftir árunum, sem eftir eru til fagnaðarárs, og skal þá dregið af mati þínu.

27:19b.LEV.027.019 En vilji sá, er helgað hefir land sitt, leysa það, skal hann gjalda fimmtung umfram verð það, er þú metur, og skal hann þá halda því.

27:20b.LEV.027.020 En leysi hann eigi landið, en selur landið öðrum manni skal eigi heimilt að leysa það framar,

27:21b.LEV.027.021 heldur skal landið, er það losnar á fagnaðarárinu, verða helgað Drottni, eins og bannfært land. Skal það verða eign prests.

27:22b.LEV.027.022 Helgi hann Drottni keypt land, sem eigi er af óðalslandi hans,

27:23b.LEV.027.023 þá skal prestur reikna fyrir hann, hve mikil upphæðin verði eftir mati þínu til fagnaðarárs, og skal hann þann dag greiða það, er þú metur, svo sem helgigjöf Drottni til handa.

27:24b.LEV.027.024 En fagnaðarárið hverfur landið aftur undir þann, er hann keypti það af, undir þann, er á það með óðalsrétti.

27:25b.LEV.027.025 Og allt mat þitt skal vera í helgidóms siklum. Skulu vera tuttugu gerur í sikli.

27:26b.LEV.027.026 En frumburði af fénaði, sem Drottni heyra, fyrir því að þeir eru frumbornir, skal enginn helga. Hvort heldur er nautgripur eða sauðkind, þá heyrir það Drottni.

27:27b.LEV.027.027 En sé það af hinum óhreina fénaði, þá skal hann leysa það eftir mati þínu og gjalda fimmtung umfram, en sé það ekki leyst, skal selja það eftir mati þínu.

27:28b.LEV.027.028 Þó skal eigi selja eða leysa nokkurn hlut bannfærðan, það er einhver helgar Drottni með bannfæringu af einhverju því, er hann á, hvort heldur er maður, skepna eða óðalsland hans. Sérhver hlutur bannfærður er alhelgaður Drottni.

27:29b.LEV.027.029 Engan bannfærðan mann má leysa, hann skal líflátinn verða.

27:30b.LEV.027.030 Öll jarðartíund heyrir Drottni, hvort heldur er af ávexti jarðar eða aldinum trjáa. Hún er helguð Drottni.

27:31b.LEV.027.031 En vilji einhver leysa nokkuð af tíund sinni, þá skal hann gjalda fimmtung umfram.

27:32b.LEV.027.032 Öll tíund af nautgripum og sauðfé, öllu því, er gengur undir hirðisstafinn, hver tíunda skepna skal vera helguð Drottni.

27:33b.LEV.027.033 Skal eigi skoða, hvort hún sé væn eða rýr, og eigi hafa skipti á henni. En séu höfð skipti á henni, þá skal bæði hún og sú, er fyrir kemur, vera heilög. Eigi má leysa hana."

27:34b.LEV.027.034 Þetta eru skipanir þær, sem Drottinn bauð Móse að flytja Ísraelsmönnum á Sínaífjalli.

3

3:1b.LEV.003.001 Sé fórn hans heillafórn og færi hann hana af nautpeningi, hvort heldur er karlkyns eða kvenkyns, þá sé það gallalaust, er hann fram ber fyrir Drottin.

3:2b.LEV.003.002 Því næst skal hann leggja hönd sína á höfuð fórnarinnar og slátra henni fyrir dyrum samfundatjaldsins, en synir Arons, prestarnir, skulu stökkva blóðinu allt í kring utan á altarið.

3:3b.LEV.003.003 Skal hann síðan færa Drottni eldfórn af heillafórninni: netjuna, er hylur iðrin, og allan innýflamörinn,

3:4b.LEV.003.004 bæði nýrun og nýrnamörinn, sem liggur innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið. Við nýrun skal hann taka það frá.

3:5b.LEV.003.005 Og synir Arons skulu brenna það á altarinu ofan á brennifórninni, sem liggur ofan á viðinum, sem lagður er á eldinn, til eldfórnar þægilegs ilms fyrir Drottin.

3:6b.LEV.003.006 Sé fórnargjöfin, sem hann færir Drottni að heillafórn, af sauðfénaði, þá sé það, er hann fram ber, gallalaust, hvort heldur það er karlkyns eða kvenkyns.

3:7b.LEV.003.007 Færi hann sauðkind að fórnargjöf, þá færi hann hana fram fyrir Drottin.

3:8b.LEV.003.008 Því næst skal hann leggja hönd sína á höfuð fórnarinnar og slátra henni fyrir framan samfundatjaldið, en synir Arons skulu stökkva blóðinu allt í kring utan á altarið.

3:9b.LEV.003.009 Skal hann síðan af heillafórninni færa Drottni í eldfórn mörinn úr henni: rófuna alla - skal taka hana af fast við rófubeinið, - netjuna, er hylur iðrin, og allan innýflamörinn,

3:10b.LEV.003.010 bæði nýrun og nýrnamörinn, sem er innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið. Við nýrun skal hann taka það frá.

3:11b.LEV.003.011 Og presturinn skal brenna þetta á altarinu sem eldfórnarmat Drottni til handa.

3:12b.LEV.003.012 Sé fórnargjöf hans geitsauður, þá skal hann færa hann fram fyrir Drottin,

3:13b.LEV.003.013 leggja hönd sína á höfuð hans og slátra honum fyrir framan samfundatjaldið, en synir Arons skulu stökkva blóðinu allt í kring utan á altarið.

3:14b.LEV.003.014 Því næst skal hann fram bera af honum sem fórnargjöf, sem eldfórn Drottni til handa, netjuna, er hylur iðrin, og allan innýflamörinn,

3:15b.LEV.003.015 bæði nýrun og nýrnamörinn, sem er innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið. Við nýrun skal hann taka það frá.

3:16b.LEV.003.016 Og presturinn skal brenna það á altarinu sem eldfórnarmat þægilegs ilms; allur mör heyrir Drottni til.

3:17b.LEV.003.017 Skal það vera ævinlegt lögmál hjá yður frá kyni til kyns í öllum bústöðum yðar: Þér skuluð engan mör og ekkert blóð eta."

4

4:1b.LEV.004.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

4:2b.LEV.004.002 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Nú syndgar einhver af vangá í einhverju því, sem Drottinn hefir bannað að gjöra, og gjörir eitthvað af því.

4:3b.LEV.004.003 Ef smurði presturinn syndgar og bakar fólkinu sekt, þá skal hann fyrir synd sína, er hann hefir drýgt, færa Drottni ungneyti gallalaust til syndafórnar.

4:4b.LEV.004.004 Skal hann leiða uxann að dyrum samfundatjaldsins fram fyrir Drottin og leggja hönd sína á höfuð uxans og slátra uxanum frammi fyrir Drottni.

4:5b.LEV.004.005 Skal smurði presturinn taka nokkuð af blóði uxans og bera það inn í samfundatjaldið.

4:6b.LEV.004.006 Skal presturinn drepa fingri sínum í blóðið og stökkva sjö sinnum nokkru af blóðinu frammi fyrir Drottni, fyrir framan fortjald helgidómsins.

4:7b.LEV.004.007 Því næst skal presturinn ríða nokkru af blóðinu á horn ilmreykelsisaltarisins, er stendur í samfundatjaldinu frammi fyrir Drottni, en öllu hinu blóði uxans skal hella niður við brennifórnaraltarið, er stendur við dyr samfundatjaldsins.

4:8b.LEV.004.008 Síðan skal hann taka allan mörinn úr syndafórnaruxanum, - netjuna, er hylur iðrin, og allan innýflamörinn,

4:9b.LEV.004.009 bæði nýrun og nýrnamörinn, sem er innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið; við nýrun skal hann taka það frá -,

4:10b.LEV.004.010 eins og hann er tekinn úr heillafórnarnautinu, og skal presturinn brenna þetta á brennifórnaraltarinu.

4:11b.LEV.004.011 En húð uxans og allt kjötið, ásamt höfðinu og fótunum, innýflunum og gorinu,

4:12b.LEV.004.012 allan uxann skal hann færa út fyrir herbúðirnar á hreinan stað, þangað sem öskunni er hellt út, leggja hann á við og brenna í eldi. Þar sem öskunni er hellt út skal hann brenndur.

4:13b.LEV.004.013 Ef allur Ísraels lýður misgjörir af vangá og það er söfnuðinum hulið og þeir gjöra eitthvað, sem Drottinn hefir bannað, og falla í sekt,

4:14b.LEV.004.014 þá skal söfnuðurinn, þegar syndin, sem þeir hafa drýgt, er vitanleg orðin, færa ungneyti til syndafórnar og leiða það fram fyrir samfundatjaldið.

4:15b.LEV.004.015 Og skulu öldungar safnaðarins leggja hendur sínar á höfuð uxans frammi fyrir Drottni og slátra uxanum frammi fyrir Drottni.

4:16b.LEV.004.016 Og smurði presturinn skal bera nokkuð af blóði uxans inn í samfundatjaldið.

4:17b.LEV.004.017 Og skal presturinn drepa fingri sínum í blóðið og stökkva því sjö sinnum frammi fyrir Drottni, fyrir framan fortjaldið.

4:18b.LEV.004.018 Og nokkru af blóðinu skal hann ríða á horn altarisins, sem er frammi fyrir Drottni, inni í samfundatjaldinu, en öllu hinu blóðinu skal hann hella niður við brennifórnaraltarið, sem er við dyr samfundatjaldsins.

4:19b.LEV.004.019 Og hann skal taka allan mörinn úr honum og brenna á altarinu.

4:20b.LEV.004.020 Þannig skal hann fara með uxann. Eins og hann fór með syndafórnaruxann, svo skal hann með hann fara. Þannig skal presturinn friðþægja fyrir þá, og þeim mun fyrirgefið verða.

4:21b.LEV.004.021 Skal hann síðan færa uxann út fyrir herbúðirnar og brenna hann, eins og hann brenndi hinn fyrri uxann. Er það syndafórn safnaðarins.

4:22b.LEV.004.022 Þegar leiðtogi syndgar og gjörir af vangá eitthvað, sem Drottinn Guð hans hefir bannað, og verður fyrir það sekur,

4:23b.LEV.004.023 og honum er gjörð vitanleg synd sú, er hann hefir drýgt, þá skal hann færa að fórnargjöf geithafur gallalausan.

4:24b.LEV.004.024 Skal hann leggja hönd sína á höfuð hafursins og slátra honum þar sem brennifórnunum er slátrað, frammi fyrir Drottni. Það er syndafórn.

4:25b.LEV.004.025 Skal presturinn þá taka nokkuð af blóði syndafórnarinnar með fingri sínum og ríða því á horn brennifórnaraltarisins, en hinu blóðinu skal hann hella niður við brennifórnaraltarið.

4:26b.LEV.004.026 En allan mörinn úr honum skal hann brenna á altarinu, eins og mörinn úr heillafórninni. Þannig skal presturinn friðþægja fyrir hann vegna syndar hans, og honum mun fyrirgefið verða.

4:27b.LEV.004.027 Ef einhver alþýðumaður syndgar af vangá með því að gjöra eitthvað það, sem Drottinn hefir bannað, og verður sekur,

4:28b.LEV.004.028 og honum er gjörð vitanleg synd sú, sem hann hefir drýgt, þá skal hann færa að fórnargjöf geit gallalausa, fyrir synd þá, sem hann hefir drýgt.

4:29b.LEV.004.029 Skal hann leggja hönd sína á höfuð syndafórnarinnar og slátra syndafórninni þar sem brennifórnum er slátrað.

4:30b.LEV.004.030 Síðan skal presturinn taka nokkuð af blóðinu með fingri sínum og ríða því á horn brennifórnaraltarisins, en öllu hinu blóðinu skal hann hella niður við altarið.

4:31b.LEV.004.031 En allan mörinn skal hann taka frá, eins og mörinn úr heillafórninni var tekinn frá, og skal presturinn brenna hann á altarinu til þægilegs ilms fyrir Drottin. Þannig skal presturinn friðþægja fyrir hann, og honum mun fyrirgefið verða.

4:32b.LEV.004.032 Fram beri hann sauðkind að fórnargjöf til syndafórnar, þá skal það, er hann fram ber, vera ásauður gallalaus.

4:33b.LEV.004.033 Skal hann leggja hönd sína á höfuð syndafórnarinnar og slátra henni til syndafórnar þar sem brennifórnum er slátrað.

4:34b.LEV.004.034 Skal þá presturinn taka nokkuð af blóði syndafórnarinnar með fingri sínum og ríða því á horn brennifórnaraltarisins, en öllu hinu blóðinu skal hann hella niður við altarið.

4:35b.LEV.004.035 En allan mörinn skal hann taka frá, eins og sauðamörinn er tekinn úr heillafórninni, og skal presturinn brenna hann á altarinu ofan á eldfórnum Drottins. Þannig skal presturinn friðþægja fyrir hann vegna syndar þeirrar, er hann hefir drýgt, og mun honum fyrirgefið verða.

5

5:1b.LEV.005.001 Nú syndgar einhver, með því að hann hefir heyrt formælingu og getur vitni borið, hvort sem hann hefir séð það sjálfur eða orðið þess vísari, en segir eigi til, og bakar sér þannig sekt,

5:2b.LEV.005.002 eða einhver snertir einhvern óhreinan hlut, hvort það er heldur hræ af óhreinu villidýri eða hræ af óhreinum fénaði eða hræ af óhreinu skriðkvikindi og hann veit ekki af því og verður þannig óhreinn og sekur,

5:3b.LEV.005.003 eða hann snertir mann óhreinan, hverrar tegundar sem óhreinleikinn er, sem hann er óhreinn af, og hann veit eigi af því, en verður þess síðar vís og verður þannig sekur,

5:4b.LEV.005.004 eða fleipri einhver þeim eiði af munni fram, að hann skuli gjöra eitthvað, illt eða gott, hvað sem það nú kann að vera, sem menn fleipra út úr sér með eiði, og hann veit eigi af því, en verður þess síðar vís og verður sekur fyrir eitthvað af þessu, -

5:5b.LEV.005.005 verði nokkur sekur fyrir eitthvað af þessu, þá skal hann játa synd sína.

5:6b.LEV.005.006 Og hann skal til sektarbóta fyrir synd þá, sem hann hefir drýgt, færa Drottni ásauð úr hjörðinni, ásauð eða geit, í syndafórn. Og presturinn skal friðþægja fyrir hann vegna syndar hans.

5:7b.LEV.005.007 En ef hann á ekki fyrir kind, þá skal hann í sektarbætur fyrir misgjörð sína færa Drottni tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur, aðra í syndafórn, en hina í brennifórn.

5:8b.LEV.005.008 Hann skal færa þær prestinum, og hann skal fram bera þá fyrr, er til syndafórnar er ætluð. Skal hann klípa höfuðið af hálsinum, en slíta þó eigi frá,

5:9b.LEV.005.009 stökkva nokkru af blóði syndafórnarinnar á hlið altarisins, en það, sem eftir er af blóðinu, skal kreist úr og látið drjúpa niður við altarið. Það er syndafórn.

5:10b.LEV.005.010 En hina skal hann tilreiða í brennifórn að réttum sið. Og presturinn skal friðþægja fyrir hann vegna syndar þeirrar, sem hann hefir drýgt, og mun honum fyrirgefið verða.

5:11b.LEV.005.011 En ef hann á ekki fyrir tveimur turtildúfum eða tveimur ungum dúfum, þá skal hann fram bera að fórnargjöf fyrir misgjörð sína tíunda part úr efu af fínu mjöli í syndafórn. Skal hann eigi hella olíu á það né heldur láta á það reykelsiskvoðu, því að það er syndafórn.

5:12b.LEV.005.012 Hann skal færa það prestinum, og presturinn skal taka af því hnefafylli sína sem ilmhluta fórnarinnar og brenna á altarinu ofan á eldfórnum Drottins. Það er syndafórn.

5:13b.LEV.005.013 Og presturinn skal friðþægja fyrir hann fyrir synd þá, er hann hefir drýgt með einhverju þessu, og honum mun fyrirgefið verða. En hitt fái presturinn, eins og matfórnina."

5:14b.LEV.005.014 Drottinn talaði við Móse og sagði:

5:15b.LEV.005.015 "Nú sýnir einhver þá sviksemi, að draga undan eitthvað af því, sem Drottni er helgað, þá skal hann í sektarbætur færa Drottni hrút gallalausan úr hjörðinni, sem að þínu mati sé eigi minna en tveggja sikla virði, eftir helgidóms sikli, til sektarfórnar.

5:16b.LEV.005.016 Og það, sem hann hefir dregið undan af helgum hlutum, skal hann að fullu bæta og gjalda fimmtungi meira. Skal hann færa það prestinum, og presturinn skal friðþægja fyrir hann með sektarfórnarhrútnum, og mun honum fyrirgefið verða.

5:17b.LEV.005.017 Nú syndgar einhver og gjörir eitthvað, sem Drottinn hefir bannað, og veit eigi af því og verður þannig sekur og misgjörð hvílir á honum,

5:18b.LEV.005.018 þá skal hann færa prestinum hrút gallalausan úr hjörðinni, eftir mati þínu, til sektarfórnar. Og presturinn skal friðþægja fyrir hann fyrir vangæslusynd þá, er hann hefir óafvitandi drýgt, og mun honum fyrirgefið verða.

5:19b.LEV.005.019 Það er sektarfórn. Hann er sannlega sekur orðinn við Drottin."

6

6:1b.LEV.006.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

6:2b.LEV.006.002 "Nú syndgar einhver og sýnir sviksemi gegn Drottni og þrætir við náunga sinn fyrir það, sem honum hefir verið trúað fyrir, eða honum hefir verið í hendur selt, eða hann hefir rænt, eða hann hefir haft með ofríki af náunga sínum,

6:3b.LEV.006.003 eða hann hefir fundið eitthvað, sem týnst hefir, og þrætir fyrir það, eða hann með meinsæri synjar fyrir einhvern þann verknað, er menn fremja sér til syndar, -

6:4b.LEV.006.004 þegar hann syndgar þannig og verður sekur, þá skal hann skila því aftur, sem hann hefir rænt eða með ofríki haft af öðrum eða honum hefir verið trúað fyrir, eða hinu týnda, sem hann hefir fundið,

6:5b.LEV.006.005 eða hverju því, er hann hefir synjað fyrir með meinsæri, og skal hann bæta það fullu verði og gjalda fimmtungi meira. Skal hann greiða það eiganda á þeim degi, er hann færir sektarfórn sína.

6:6b.LEV.006.006 En í bætur Drottni til handa skal hann færa prestinum hrút gallalausan úr hjörðinni, eftir þínu mati, til sektarfórnar.

6:7b.LEV.006.007 Og presturinn skal friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni, og honum mun fyrirgefið verða, - hvað sem menn fremja sér til sektar."

6:8b.LEV.006.008 Drottinn talaði við Móse og sagði:

6:9b.LEV.006.009 "Bjóð Aroni og sonum hans á þessa leið: Þessi eru ákvæðin um brennifórnina: Brennifórnin skal vera á eldstæði altarisins alla nóttina til morguns, og skal altariseldinum haldið lifandi með því.

6:10b.LEV.006.010 Og presturinn skal færa sig í línklæði sín og draga línbrækur yfir hold sitt, taka síðan burt öskuna eftir brennifórnina, er eldurinn hefir eytt á altarinu, og steypa henni niður við hlið altarisins.

6:11b.LEV.006.011 Þá skal hann færa sig úr klæðum sínum og fara í önnur klæði og bera öskuna út fyrir herbúðirnar á hreinan stað.

6:12b.LEV.006.012 Og eldinum á altarinu skal haldið lifandi með því. Hann skal eigi slokkna. Og presturinn skal á hverjum morgni leggja við að eldinum, og hann skal raða brennifórninni ofan á hann og brenna mörinn úr heillafórnunum á honum.

6:13b.LEV.006.013 Eldurinn skal sífellt brenna á altarinu og aldrei slokkna.

6:14b.LEV.006.014 Þessi eru ákvæðin um matfórnina: Synir Arons skulu fram bera hana fyrir Drottin, að altarinu.

6:15b.LEV.006.015 Og hann skal taka af því hnefafylli sína, af fínamjöli matfórnarinnar og olíunni, og alla reykelsiskvoðuna, sem er á matfórninni, og brenna á altarinu til þægilegs ilms, sem ilmhluta hennar fyrir Drottin.

6:16b.LEV.006.016 En það, sem eftir er af henni, skulu Aron og synir hans eta. Ósýrt skal það etið á helgum stað, í forgarði samfundatjaldsins skulu þeir eta það.

6:17b.LEV.006.017 Eigi má baka það með súrdeigi. Ég gef þeim það í þeirra hluta af eldfórnum mínum. Það er háheilagt, eins og syndafórnin og sektarfórnin.

6:18b.LEV.006.018 Allt karlkyn meðal Arons niðja má eta það, frá kyni til kyns ber yður það af eldfórnum Drottins um aldur og ævi. Hver sem snertir það skal vera heilagur."

6:19b.LEV.006.019 Drottinn talaði við Móse og sagði:

6:20b.LEV.006.020 "Þessi er fórnargjöf Arons og sona hans, sem þeir skulu færa Drottni á smurningardegi sínum: tíundi partur úr efu af fínu mjöli í stöðuga matfórn, helmingurinn af því að morgni og helmingurinn að kveldi.

6:21b.LEV.006.021 Skal tilreiða hana á pönnu með olíu. Þú skalt fram bera hana samanhrærða. Þú skalt brjóta hana í stykki og fórna henni til þægilegs ilms fyrir Drottin.

6:22b.LEV.006.022 Og presturinn, sá af sonum hans, sem smurður er í hans stað, skal tilreiða hana. Er það ævarandi lögmál Drottins, öll skal hún brennd.

6:23b.LEV.006.023 Allar matfórnir presta skulu vera alfórnir. Þær má ekki eta."

6:24b.LEV.006.024 Drottinn talaði við Móse og sagði:

6:25b.LEV.006.025 "Mæl til Arons og sona hans og seg: Þessi eru ákvæðin um syndafórnina: Á þeim stað, sem brennifórnunum er slátrað, skal syndafórninni slátrað, frammi fyrir Drottni. Hún er háheilög.

6:26b.LEV.006.026 Presturinn, sem fram ber syndafórnina, skal eta hana, á helgum stað skal hún etin, í forgarði samfundatjaldsins.

6:27b.LEV.006.027 Hver sá, er snertir kjöt hennar, skal vera heilagur. Og þegar eitthvað af blóðinu spýtist á klæðin, þá skalt þú þvo það, sem spýtst hefir á, á helgum stað.

6:28b.LEV.006.028 Og leirkerið, sem hún hefir verið soðin í, skal brjóta, en hafi hún verið soðin í eirkeri, þá skal fægja það og skola í vatni.

6:29b.LEV.006.029 Allt karlkyn meðal prestanna má eta hana. Hún er háheilög.

6:30b.LEV.006.030 En enga syndafórn má eta, hafi nokkuð af blóði hennar verið borið inn í samfundatjaldið til friðþægingar í helgidóminum, heldur skal hún brennd í eldi.

7

7:1b.LEV.007.001 Þessi eru ákvæðin um sektarfórnina: Hún er háheilög.

7:2b.LEV.007.002 Þar sem brennifórninni er slátrað, skal og sektarfórninni slátrað, og skal stökkva blóði hennar allt í kring utan á altarið.

7:3b.LEV.007.003 Og öllum mörnum úr henni skal fórna: rófunni, netjunni, sem hylur iðrin,

7:4b.LEV.007.004 báðum nýrunum, nýrnamörnum, sem liggur innan á mölunum, og stærra lifrarblaðinu. Við nýrun skal taka það frá.

7:5b.LEV.007.005 Og presturinn skal brenna þetta á altarinu sem eldfórn Drottni til handa. Er það sektarfórn.

7:6b.LEV.007.006 Allt karlkyn meðal prestanna má eta hana; á helgum stað skal hún etin; hún er háheilög.

7:7b.LEV.007.007 Skal með sektarfórn farið á sama hátt og syndafórn; eru sömu ákvæði um báðar: Presturinn, sem með þeim friðþægir, skal fá þær.

7:8b.LEV.007.008 Presturinn, sem fram ber brennifórn einhvers manns, skal fá skinnið af brennifórninni, sem hann fram ber.

7:9b.LEV.007.009 Og sérhverja matfórn, sem í ofni er bökuð eða tilreidd í suðupönnu eða á steikarpönnu, fái presturinn, sem fram ber hana.

7:10b.LEV.007.010 En sérhver matfórn, olíublönduð eða þurr, skal tilheyra öllum sonum Arons, svo einum sem öðrum.

7:11b.LEV.007.011 Þessi eru ákvæðin um heillafórnina, sem Drottni er færð:

7:12b.LEV.007.012 Ef einhver fram ber hana til þakkargjörðar, þá skal hann auk þakkarfórnarinnar fram bera ósýrðar kökur olíublandaðar og ósýrð flatbrauð olíusmurð og olíublandaðar kökur, hrærðar úr fínu mjöli.

7:13b.LEV.007.013 Ásamt kökum úr sýrðu deigi skal hann fram bera þessa fórnargáfu sína, auk heilla-þakkarfórnarinnar.

7:14b.LEV.007.014 Og hann skal af henni fram bera eina köku af hverri tegund fórnargáfunnar sem fórnargjöf Drottni til handa. Skal presturinn, er stökkvir blóði heillafórnarinnar, fá hana.

7:15b.LEV.007.015 En kjötið af heilla-þakkarfórninni skal etið sama dag sem fórnin er fram borin. Eigi skal geyma neitt af því til morguns.

7:16b.LEV.007.016 Sé sláturfórn hans heitfórn eða sjálfviljug fórn, þá skal hún etin sama dag sem hann fram ber sláturfórn sína. Þó má eta það, sem af gengur, daginn eftir.

7:17b.LEV.007.017 En það, sem verður eftir af kjöti sláturfórnarinnar á þriðja degi, skal brenna í eldi.

7:18b.LEV.007.018 En sé á þriðja degi nokkuð etið af kjöti heillafórnarinnar, þá mun það eigi verða velþóknanlegt, það skal eigi tilreiknast þeim, er fram bar það. Það skal talið skemmt kjöt. Á hverjum þeim, er etur af því, skal misgjörð hvíla.

7:19b.LEV.007.019 Og það kjöt, sem komið hefir við eitthvað óhreint, skal eigi eta, heldur skal brenna það í eldi. Hvað kjötið að öðru leyti snertir, þá má hver, sem hreinn er, kjöt eta.

7:20b.LEV.007.020 En hver sá, sem etur kjöt af heillafórn, sem Drottni er færð, á meðan hann er óhreinn, hann skal upprættur verða úr þjóð sinni.

7:21b.LEV.007.021 Og hver sem snertir nokkuð óhreint, hvort heldur það er óhreinn maður eða óhrein skepna, eða hvaða óhrein viðurstyggð sem er, og etur þó af heillafórnarkjöti, sem Drottni er fært, hann skal upprættur verða úr þjóð sinni."

7:22b.LEV.007.022 Drottinn talaði við Móse og sagði:

7:23b.LEV.007.023 "Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Engan mör úr nautum, sauðum eða geitum megið þér eta.

7:24b.LEV.007.024 En mör úr sjálfdauðum skepnum eða dýrrifnum má nota til hvers sem vera skal, en með engu móti megið þér eta hann.

7:25b.LEV.007.025 Því að hver sá, sem etur mör úr þeirri skepnu, sem Drottni er færð eldfórn af, sá sem etur hann skal upprættur verða úr þjóð sinni.

7:26b.LEV.007.026 Eigi skuluð þér heldur nokkurs blóðs neyta í neinum af bústöðum yðar, hvorki úr fuglum né fénaði.

7:27b.LEV.007.027 Hver sá, er nokkurs blóðs neytir, hann skal upprættur verða úr þjóð sinni."

7:28b.LEV.007.028 Drottinn talaði við Móse og sagði:

7:29b.LEV.007.029 "Tala til Ísraelsmanna og seg: Sá sem færir Drottni heillafórn skal sjálfur fram bera fórnargjöf sína fyrir Drottin af heillafórninni.

7:30b.LEV.007.030 Með sínum eigin höndum skal hann fram bera eldfórnir Drottins: Mörinn ásamt bringunni skal hann fram bera, bringuna til þess að veifa henni sem veififórn frammi fyrir Drottni,

7:31b.LEV.007.031 og skal presturinn brenna mörinn á altarinu, en bringuna skal Aron og synir hans fá.

7:32b.LEV.007.032 Og af heillafórnum yðar skuluð þér gefa prestinum hægra lærið að fórnargjöf.

7:33b.LEV.007.033 Sá af sonum Arons, er fram ber blóðið úr heillafórninni og mörinn, skal fá hægra lærið í sinn hluta.

7:34b.LEV.007.034 Því að bringuna, sem veifa skal, og lærið, sem fórna skal, hefi ég tekið af Ísraelsmönnum, af heillafórnum þeirra, og gefið það Aroni presti og sonum hans. Er það ævinleg skyldugreiðsla, sem á Ísraelsmönnum hvílir.

7:35b.LEV.007.035 Þetta er hluti Arons og hluti sona hans af eldfórnum Drottins, á þeim degi, sem hann leiddi þá fram til þess að þjóna Drottni í prestsembætti,

7:36b.LEV.007.036 sem Drottinn bauð að Ísraelsmenn skyldu greiða þeim, á þeim degi, sem hann smurði þá. Er það ævinleg skyldugreiðsla hjá þeim frá kyni til kyns."

7:37b.LEV.007.037 Þetta eru ákvæðin um brennifórnir, matfórnir, syndafórnir, sektarfórnir, vígslufórnir og heillafórnir,

7:38b.LEV.007.038 sem Drottinn setti Móse á Sínaífjalli, þá er hann bauð Ísraelsmönnum, að þeir skyldu færa Drottni fórnargjafir sínar í Sínaí-eyðimörk.

8

8:1b.LEV.008.001 Drottinn talaði við Móse og sagði:

8:2b.LEV.008.002 "Tak Aron og sonu hans með honum, klæðin og smurningarolíuna, syndafórnaruxann, báða hrútana og körfuna með ósýrðu brauðunum

8:3b.LEV.008.003 og stefn þú saman öllum söfnuðinum við dyr samfundatjaldsins."

8:4b.LEV.008.004 Og Móse gjörði eins og Drottinn bauð honum, og söfnuðurinn kom saman við dyr samfundatjaldsins.

8:5b.LEV.008.005 Móse sagði við söfnuðinn: "Þetta er það sem Drottinn hefir boðið að gjöra."

8:6b.LEV.008.006 Því næst leiddi Móse fram Aron og sonu hans og þvoði þá í vatni.

8:7b.LEV.008.007 Og hann lagði yfir hann kyrtilinn, gyrti hann beltinu og færði hann í möttulinn, lagði yfir hann hökulinn og gyrti hann hökullindanum og batt hann þannig að honum.

8:8b.LEV.008.008 Þá festi hann á hann brjóstskjöldinn og lét úrím og túmmím í brjóstskjöldinn.

8:9b.LEV.008.009 Og hann setti vefjarhöttinn á höfuð honum, og framan á vefjarhöttinn setti hann gullspöngina, ennishlaðið helga, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

8:10b.LEV.008.010 Móse tók smurningarolíuna og smurði tjaldbúðina og allt, sem í henni var, og helgaði það.

8:11b.LEV.008.011 Og hann stökkti henni sjö sinnum á altarið og smurði altarið og öll áhöld þess, svo og kerið og stétt þess, til að helga það.

8:12b.LEV.008.012 Því næst hellti hann smurningarolíu á höfuð Aroni og smurði hann til þess að helga hann.

8:13b.LEV.008.013 Síðan leiddi Móse fram sonu Arons, færði þá í kyrtla, gyrti þá belti og batt á þá höfuðdúka, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

8:14b.LEV.008.014 Þá leiddi hann fram syndafórnaruxann, og Aron og synir hans lögðu hendur sínar á höfuð syndafórnaruxans.

8:15b.LEV.008.015 En Móse slátraði honum, tók blóðið og reið því með fingri sínum á horn altarisins allt í kring og syndhreinsaði altarið, en því, sem eftir var af blóðinu, hellti hann niður við altarið, og hann helgaði það með því að friðþægja fyrir það.

8:16b.LEV.008.016 Því næst tók hann allan innýflamörinn, stærra lifrarblaðið, bæði nýrun og nýrnamörinn, og Móse brenndi það á altarinu.

8:17b.LEV.008.017 En uxann sjálfan, bæði húðina af honum, kjötið og gorið, brenndi hann í eldi fyrir utan herbúðirnar, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

8:18b.LEV.008.018 Því næst leiddi hann fram brennifórnarhrútinn, og Aron og synir hans lögðu hendur sínar á höfuð hrútsins.

8:19b.LEV.008.019 Síðan slátraði Móse honum og stökkti blóðinu allt um kring á altarið.

8:20b.LEV.008.020 Og hann hlutaði hrútinn sundur, og Móse brenndi höfuðið, stykkin og mörinn.

8:21b.LEV.008.021 En innýflin og fæturna þvoði hann í vatni. Síðan brenndi Móse allan hrútinn á altarinu. Það var brennifórn þægilegs ilms, það var eldfórn Drottni til handa, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

8:22b.LEV.008.022 Þessu næst leiddi hann fram hinn hrútinn, vígsluhrútinn, og Aron og synir hans lögðu hendur sínar á höfuð hrútsins.

8:23b.LEV.008.023 Og Móse slátraði honum og tók nokkuð af blóði hans og reið því á hægri eyrnasnepil Arons, á þumalfingur hægri handar hans og á stórutá hægri fótar hans.

8:24b.LEV.008.024 Þá leiddi Móse fram sonu Arons og reið nokkru af blóðinu á hægri eyrnasnepil þeirra og á þumalfingur hægri handar þeirra og á stórutá hægri fótar þeirra. Og Móse stökkti blóðinu allt um kring á altarið.

8:25b.LEV.008.025 Og hann tók mörinn: rófuna, allan innýflamörinn, stærra lifrarblaðið, bæði nýrun og nýrnamörinn og hægra lærið.

8:26b.LEV.008.026 Sömuleiðis tók hann úr körfunni með ósýrðu brauðunum, sem stóð frammi fyrir Drottni, eina ósýrða köku og eina olíuköku og eitt flatbrauð og lagði það ofan á mörinn og hægra lærið.

8:27b.LEV.008.027 Og hann lagði það allt í hendur Aroni og í hendur sonum hans og veifaði því til veififórnar frammi fyrir Drottni.

8:28b.LEV.008.028 Síðan tók Móse það af höndum þeirra og brenndi það á altarinu ofan á brennifórninni. Það var vígslufórn til þægilegs ilms, það var eldfórn Drottni til handa.

8:29b.LEV.008.029 Því næst tók Móse bringuna og veifaði henni til veififórnar frammi fyrir Drottni. Fékk Móse hana í sinn hluta af vígsluhrútnum, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

8:30b.LEV.008.030 Og Móse tók nokkuð af smurningarolíunni og nokkuð af blóðinu, sem var á altarinu, og stökkti því á Aron og klæði hans, og á sonu hans og á klæði sona hans ásamt honum. Og hann helgaði Aron og klæði hans, og sonu hans og klæði sona hans ásamt honum.

8:31b.LEV.008.031 Og Móse sagði við Aron og sonu hans: "Sjóðið kjötið fyrir dyrum samfundatjaldsins og etið það þar ásamt brauðinu, sem er í vígslufórnarkörfunni, svo sem ég bauð, er ég sagði: ,Aron og synir hans skulu eta það.'

8:32b.LEV.008.032 En leifarnar af kjötinu og brauðinu skuluð þér brenna í eldi.

8:33b.LEV.008.033 Og sjö daga skuluð þér ekki ganga burt frá dyrum samfundatjaldsins, uns vígsludagar yðar eru á enda, því að sjö daga skal fylla hendur yðar.

8:34b.LEV.008.034 Svo sem gjört hefir verið í dag hefir Drottinn boðið að gjöra til þess að friðþægja fyrir yður.

8:35b.LEV.008.035 Og við dyr samfundatjaldsins skuluð þér vera sjö daga, bæði dag og nótt, og varðveita boðorð Drottins, svo að þér deyið ekki, því að svo hefir mér verið boðið."

8:36b.LEV.008.036 Og Aron og synir hans gjörðu allt það, sem Drottinn hafði boðið og Móse flutt þeim.

9

9:1b.LEV.009.001 Á áttunda degi kallaði Móse fyrir sig Aron og sonu hans og öldunga Ísraels

9:2b.LEV.009.002 og sagði við Aron: "Tak þér nautkálf í syndafórn og hrút í brennifórn, gallalausa, og leið þá fram fyrir Drottin.

9:3b.LEV.009.003 En til Ísraelsmanna skalt þú tala á þessa leið: ,Takið geithafur í syndafórn, og kálf og sauðkind, bæði veturgömul og gallalaus, í brennifórn,

9:4b.LEV.009.004 og uxa og hrút í heillafórn, til þess að slátra þeim frammi fyrir Drottni, og matfórn olíublandaða, því að í dag mun Drottinn birtast yður.'"

9:5b.LEV.009.005 Og þeir færðu það, sem Móse hafði boðið, fram fyrir samfundatjaldið, og allur söfnuðurinn kom og nam staðar frammi fyrir Drottni.

9:6b.LEV.009.006 Móse sagði: "Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið. Gjörið það, og mun dýrð Drottins birtast yður."

9:7b.LEV.009.007 Því næst mælti Móse til Arons: "Gakk þú að altarinu og fórna syndafórn þinni og brennifórn þinni, og friðþæg þú fyrir þig og fyrir lýðinn. Fram ber því næst fórnargjöf lýðsins og friðþæg fyrir þá, svo sem Drottinn hefir boðið."

9:8b.LEV.009.008 Aron gekk þá að altarinu og slátraði kálfinum, er honum var ætlaður til syndafórnar.

9:9b.LEV.009.009 En synir Arons færðu honum blóðið, og hann drap fingri sínum í blóðið og reið því á horn altarisins, en hinu blóðinu hellti hann niður við altarið.

9:10b.LEV.009.010 En mörinn, nýrun og stærra lifrarblaðið úr syndafórninni brenndi hann á altarinu, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

9:11b.LEV.009.011 En kjötið og húðina brenndi hann í eldi fyrir utan herbúðirnar.

9:12b.LEV.009.012 Síðan slátraði hann brennifórninni, og synir Arons réttu að honum blóðið, en hann stökkti því allt um kring á altarið.

9:13b.LEV.009.013 Þeir réttu og að honum brennifórnina í stykkjum og höfuðið, og hann brenndi hana á altarinu.

9:14b.LEV.009.014 Og hann þvoði innýflin og fæturna og brenndi á altarinu, ofan á brennifórninni.

9:15b.LEV.009.015 Þá bar hann fram fórnargjöf lýðsins, tók hafurinn, sem ætlaður var lýðnum til syndafórnar, slátraði honum og færði hann í syndafórn, eins og kálfinn áður.

9:16b.LEV.009.016 Hann fram bar og brennifórnina og fórnaði henni að réttum sið.

9:17b.LEV.009.017 Og hann fram bar matfórnina, tók af henni hnefafylli sína og brenndi á altarinu auk morgun-brennifórnarinnar.

9:18b.LEV.009.018 Því næst slátraði hann uxanum og hrútnum til heillafórnar fyrir lýðinn. En synir Arons réttu að honum blóðið, - en hann stökkti því allt í kring á altarið -,

9:19b.LEV.009.019 svo og mörstykkin úr uxanum og af hrútnum rófuna, netjuna, sem hylur iðrin, nýrun og stærra lifrarblaðið.

9:20b.LEV.009.020 Og þeir lögðu mörinn ofan á bringurnar, en hann brenndi mörinn á altarinu.

9:21b.LEV.009.021 En bringunum og hægra lærinu veifaði Aron til veififórnar frammi fyrir Drottni, svo sem Móse hafði boðið.

9:22b.LEV.009.022 Síðan hóf Aron upp hendur sínar yfir fólkið og blessaði það. Og hann sté niður, er hann hafði fórnað syndafórninni, brennifórninni og heillafórninni.

9:23b.LEV.009.023 Móse og Aron gengu inn í samfundatjaldið, og er þeir komu út aftur, blessuðu þeir fólkið. Birtist þá dýrð Drottins öllum lýðnum.

9:24b.LEV.009.024 Eldur gekk út frá Drottni og eyddi brennifórninni og mörnum á altarinu. En er allur lýðurinn sá þetta, hófu þeir upp fagnaðaróp og féllu fram á ásjónur sínar.


Holder of rights
Multilingual Bible Corpus

Citation Suggestion for this Object
TextGrid Repository (2025). Icelandic Collection. Leviticus (Icelandic). Leviticus (Icelandic). Multilingual Parallel Bible Corpus. Multilingual Bible Corpus. https://hdl.handle.net/21.11113/0000-0016-9D65-6